Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1909, Side 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1909, Side 3
XXIII, 34.-85. Þ JÓÐ V IX. JI N N 135 rúmáladeila Sestur-Islendinqa. —O— Menn væntu tíðinda af kirkjuþingi "Vestur-íslendinga, sem háð var síðustu viku júnímánaðar. Það var vitanlegt, að all-mikill ágrein- ’ingur hefir verið þar siðustu árin, milli fiylgismanna gömlu guðfræðÍDnar og á- hangenda hinnar nýju, sern síra Friðrik Bergmann hefir beitt sér fyrir. Fyrir því var það, að forseti kirkjufélagsins í ávarpi 8Ínu til þingsins, lagði það til, að skip- nð væri 5 manna nefnd til þess að reyna að jafna ágreininginn, var það gert, en varð árangurslaust, samkomulagi varð ekki náð, en á þinginu urðu rniklar um- ræður um málið, og komu fratn þrjár til- lögur, eina flutti Friðjón Friðriksson, fyrv. kaupmaður fyrir hönd fylgismanna görnlu guðfræðinnar, og hljóðar hún þannig: Þingið lýsir yfir því, að stefna sú, sem mál- gagn kirkjufélagsins, „Sameiningin", hefir hald,- ið fram á liðnu ári, sé réttmæt stefna kirkju- félagsins, en mótmælir þeim árásum á þá stefnu sem komið hafa fram innan kirkjufélagsins frá síra Friðrik J. Bergmann í tímariti hans „Breiða- hlikum“. Og út af þeim árásnm gerir þingið eptirfylgjandi þingsálykt-anir: 1. Kirkjufélagið neitar, að trúarjátningar kirkjufélagsins séu að eins ráðleggjandi en ekki bindandi, eins og haldið hefir verið fram af Fr. J. Bergmann i Breiðablikum. Trúarjátningar eru bindandi, þar til þær eru af numdar. 2. Kirkjuþingið neitar þvi, að kennimenn kirkjufélagsins hafi rétt til að kenna hvað seoj þeim lizt, jafnvel þó þeir geti sagt, að þeir séu að kenna eptir beztu samvizku og sannfæring. Þeir hafa ekki leyfi til að kenna innan kirkju- félagsins nokkuð, er kemur í bága við það, er þeir hafa skuldbundið sig til að kenna, sem prestar kirkjufélagsins. 3. Kirkjuþingið neitar, að trúarmeðvitund mannsins hafi úrskurðarvald yfir heilagri ritn- ingu og megi hafna orðum hennar eptir vild, og þeirri niðurstöðu, sem af þessu, flýtur að biblían sé óáreiðanleg bók. Aptur á móti lýsir kirkjuþing- ið yfir því, að það haldi fast við þá játningu kirkjufélagsins, að öll ritning sé guðs orð, áreiðan- leg og innblásin, og að hvað eina beri þar að dæma eptir mælikvarða biblíunnar sjálfrar. Aðra flutti George Peterson, lögræðing- ur fyrir þeirra hönd, er fylgja hinni nýju guðfræðisstefnu, hún er svo látandi: Til þess að trúmála-ágreiningur sá, sem á sér stað, verði eigi kirkjufélagi voru til tjóns, leyfi eg mér að bera fram svo hljóðandi tillögu, er komi í stað þeirrar, sem þegar er fyrir þinginu: 1. Að báðar skoðanir, sem fram hafakomið, séu álitnir jafn réttháarí kristninni og kirkjufélagi voru, þegar þeim er haldið fram á grundvelli trúarinnar, og þeir sem þeim fylgja, hvorri um sig, megi ræða það, sem 1 milli ber í friði, í fullu trausti þess, að sannleikurinn verði ofan á að síðustu. 2. Að prestar og leikmenn safnaða vorra séu eigi vittir, hvorri skoðun sem þeir fylgja, og það sé eigi áliti þeirra né virðingu í kirkjufélaginu að neinu leyti til hnekkis eða skerðingar. 8. Að fræða megi almenning safnaða vorra bæði í ræðu og riti, bæði utan kirkju og innan, um hinar nýju bibliurannsóknir og niðurstöðu þeirra, þegar það er gert i trú á föður, son og heilagan anda, í ljósi játningarrita kirkju vorrar, í þeim tilgangi, að fjarlægja ásteytingarsteina og efla trú í hjörtum manna. 4. Að halda megi áfram að ra»ða það, sem þessum skoðunum ber á miili, bróðurlega, bæði einslega og opinberlega, en forðast að blanda persónulegum á deilum eða fyrirdæmingum þar saman við, og engum leyft að gefa í skyn beín- Hnis eða óbeinlinis, að hér sé að eins um únitara- trú að ræða annars vegar, en hinsvegar farísea- hátt og trúhræsni. 5. Að báðar skoðanir hafi jafnan rétt til að skýra málstað sinn í málgagni kirkjufólaasins, og hvorug fyrirdæmd. 6. Að kostað sé kapps um að láta ágrein- ing út af skoðunum þessum eigi spilla kristi- legri samvinnu né bróðurhug, og leitast við að lækna þau sár, sem deilan kann að hafa valdið hingað til. 7. Að kirkjufélag vort láti eigi deilu þessa spilla samkomulagi við kirkjuna á íslandi, né bróðurhug, svo vér getum orðið fyrir heillavæn- legum áhrifum þaðan, og sjálfir stutt og eflt kristlegan áhuga þar, með orðum og eptirdæmL Loks bar síra Friðrik Hallgrímsson, sem stendur utan við flokkana, fram svo látandi tillögu, í því skyni að reyDa að ná samkomulagi: 1. Kirkjuþingið mötmælir öllum þeim guð- fræðisstefnum, sem beinlínis eða óbeinlinis af- neita sannsöguleik þeirra grundvallaratriða krist- indómsins, sem fram eru tekin í hinni postul- legu trúarjátningu. 2. Kirkjuþingið viðurkennir réttmæti og gagnsemi trúaðrar biblíurannsóknar, en álítur hins vegar margar af þeim staðhæfÍDgum, sem nú á tímum er haldið fram í nafni bibliurann- ! sóknanna ósannaðar getgátur, sem sumar hverj- ar séu andstæðar heilbrigðri, kristilegri trúar- hugsun. 3. Kirkjufélagið viðurkennir, að opinberar umræður um trúmál séu gagnlegar, en álitur að þær eigi alltaf að fara fram með hóværð og still- ingu, án allrar áreitni og persónulegra brigzl- yrða. 32 í hnappagatinu, pentudúk á hnjánum, og hélt á vindli sem þó var eigi íarið að kveikja í. Diskarnir, þrjátíu að tölu, voru allir eins; en þrítug asti og fyrsi i diskurÍDn, sá, er heiðusgestinum var ætlað- ur, til hægri handar við Verrill, var öðru vísi en hinir. — StóllÍDD, sem honum var ætlaður, var stærri. — Hann var úr svörtu eikitré, og með laufaskurði. — Borðbúnað- urinn, sem heiðursgestinum var ætlaður, var og úr silfri og hjá diskinum stóð gyltur bikar, i staðinn fyrir glas — Tappinn var ótekinn úr vínflöskunni, sem stóð þar hjá’ Turnklukka, sem var í fjarsk;a heyrðist nú slá ellefu og vaknaði Verriil við það, sem úr draumi, svipaðist um í herberginu, stóð upp, gekk að glugganum, og starði út um hann. Hann sá vagna og ýms aktæki, þjóta fram og apt- ur um göturnar, og fólk vera að koma hópum saman úr leikhúsinu. Verrill lauk upp einum glugganum, og heyrði skvaldr- ið, sem vant er að heyrast í stórborgum. Hann starði stundarkorn út urn gluggann, en lokaði honum þó brátt aptur, með því að hann var annars hug- ar, og iitaðist um í herberginu. Hjá diski hans stóð vínflaska, sem tappinn hafði enn eigi verið tekinn úr, og glas, sem eigi hafði komið i deigur dropi. Hann tók tinið af flösku-stútnum, en settist svo niður, eptir að hafa litið á úrið sitt, án þess að taka tapp- ann úr flöskunni. Klukkuna vantaði enD eitt kortór í tólf. Hann þerraði svitann af enni sór, eins og hann hafði opt gert áður um kvöldið. 21 ung stúlka gengur að eiga elskhuga sinn, þrátt fyrir ó- höpp -- hvort sem þau snerta fjármál, eða önnur alvar- leg efini. Heríoringinn, sem þannig hafði limlests í stríðinu, hafði eptir herferðina snúið til baka til ungu stúlkunnar, sem gefið hafði honum jáyrði sitt, og þar sem það einu sinni var gefið, hafði hún ekki viljað taka þáð aptur. Mór virtist þetta alveg eðlilegt og sanngjarnt, eins og mönnum virðist öll hjálpfýsi og öll endalok eðlileg, þeg- ar menn lesa um þau í bókum, eða sjá þau á leiksviði Þegar menn sjá, og lesa um slíka göfugmennsku, virðist mönnura ávalt, sem þeir sjálfir myndu hafa fórnað sér með sama guðmóði. En beri daginn eptir vin að garði, sem er í vandræðum og vill fá peningalán, komast menn í herfilegasta skap. En brátt datt mér í hug önnur ágizkun, sem ekki var jafn skáldleg, og hin fyrri. Ef til vill hafði hann kvænst á undan striðinu, áður en hin hræðilega óham- ingja, sem fallbyssukúlan, er reif af honum báðar fætur var orsök í, vildi til, og svo hafði konan örvæntingar- full og mæðuró orðið að taka á móti manni sínum, hjúkra honum, annast um hann, og hugga hann, — hann, sem þegar hann skildi við hana var ungur og fallegur maður, og nú var kominn aptur fótlaus, og sem yrði ósjálfbjarga aum- ingi, það sem eptir var æfinnar. Var hann hamingjusamur eða óhamingjusamur. Mig fór að langa til að kynnast æfisögu hans, og sú löngun varð að síðustu svo óviðráðanleg hjá mér, að mór virtist að jeg að inmnsta kosti yrði að vita helztu atriði hennar, til þess að jeg gæti getið inér þess til, sem hann ekki vildi eða gat skýrt mér frá.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.