Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1909, Side 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1909, Side 5
XXIII., 34.—35. Þjóð viljinn. 137 apturhaldssömum Estrupsliðum. Það eitt höfðu þeir sameiginlegt, að berjast á móti Yaltýskunni. Stefnan var með öðrum orðum alveg nei-kvæð. Svo vildi flokki þessum til ýms óhöpp, sem ullu því, að íhaldshlut- inn styrktist, en hinn framsæknari varð veikari. Benedikt Sveinsson dó 1899, og þeir menn, er helzt hefðu getað tekið við for- ustunni af honum voru flestir í hinu lið- inu — fylgjandi Yaltýsku politikinni. Þannig var ástatt þegar gengið var til kosninga 1900. Þá komust á þing ýmsir nýir menn og þar á meðal Hannes Hafstein, og hann yarð foringi flokksins á þinginu 1901. H. Hafstein var að vísu nýr þing- maður, en gefið hafði hann sig dálítið við politík áður, og sú framkoma hans sýndi greinilega, hvar hann átti heima — að hann var eindreginn fylgismaður íhads- liðsiu8. — Hafstein hafði á Þingvallafundi 1888 barist af fremsta megni gegn stefnu Benedikts Sveinssonar, og tvisvar boðið sig fram við alþingiskosningar, en í bæði skiptin lotið í iægra haldi fyrir Bene- diktsliðum. Það að hann varkjörinn foringi flokks- ins sýndi því berlega, að íhaldsliðið var búið að ná yfírtökum í Heima- stjórnarflokknum. En eigi að síður varð enn að reyna að halda í horfið, því að allur þorri kjós- endannna voru kröfuharðir í stjórnarskrár- málinu. Svo korn konungsboðskapurinn frá 10. j jan. 1902. > Þar var boðinn ráðgjafi, er búsettur væri í Reykjavik. Nú voru góð ráð dýr. Það var áreiðanlegt, að „stjórnbótar- flokkurinn“ mundi taka því boði fegins hendi. Hann hafði aldrei verið búsetunni andvígur, að eins ekki viljað neita öðr- um breytingum til hagsbóta á stjórnar- skránni, þótt hún fengist ekki. Stjórnbótarflokkurinn var þó i meiri hluta, og það mátti ganga að því sem vísu, að ef Heimastjómarflokkurinn neit- aði þessu tilboði, þá myndi hann verða enn fámennari — í stórum minni hluta. Landshöfðingjavaldinu varð ekki bjarg- að. Það var ekki lengur hægt að hindra framgang stjórnarskrárbreytingar. En þá var að reyna að sjá um, að völdin yrðu hjá sömu mönnunum, sem hingað til höfðu ráðið mestu — íteyk- víska embættisliðinu og vildarmönnum þess. Þá var það ráð tekið að taka kon- ungsboðskapnum með mestu fagnaðarlát- um. Þetta hafði Heimastjórnarflokkurinn áunnið, þrátt fyrir andróður Valtýsliða — Hannes Hafstein hafði farið utan í þinglok 1901. — Þetta var árangurinn af starfi hans. Þetta sögðu þeir þjóðinni, og fengu meiri hluta hennar til að trúa þvi. Heima- stjórnarflokkurinn vann glæsilegan sigur við kosningarnar. En svo kom ríkisráðssetan. — Ein af kröfum „heimastjórnarmannannau hafði verið sú, að það væri tekið berum orðum fram í stjórnarskránni, að ráðgjafi íslands mætti ekki sitja í ríkisráði Dana. Svo langt gengu þeir, aðþeir úthúðuðu stjórnbótarmönnum fyrir það eitt, að ekkert var um það ákveðið í frumvörpum þeirra. En nú stóð það svart á hvítu í frum- varpi því, er stjórnin lagði fyrir auka- þingið 1902, að ráðherra skyldi fara svo opt sem þyrfti til Kaupmannahafnar, til þess að bera upp fyrir konungi í ríkis- ráðinu lög og mikilsvarðandi stjórnarráð- stafanir. En nú varð ekki lengur í það horft. Ef Heimastjórnarflokkurinn hélt þar fast við skoðun sína, átti haDn á hættu að komast í minni hluta. Hann sneri líka við blaðinu og taldi nú ríkisráðssetuna ekki einungis skað- lausa, heldur beinlínis kost. Frumvarp Albertis var samþvkkt í einu hljóði á þinginu 1902. En nú hófust þeir menn handa, er and- vigir voru rikisráðssetunni og stofnuðu Landvarnarflokkinn, en ekkert unnn þeir á að sinni, frumvarp stjórnarinnar var aptur samþykkt á alþingi 1903 með öll— um atkvæðum gegn einu. Heimastjórnarmennirnir höfðu þá um vorið gengið sigri hrósandi út úr kosn- ingabaráttunni. Um haustið var stjórnarskrárbreyting- in, staðfest, og 1. febrúar 1904 tók Hannes Hafstein við stjórn íslenzku sérmálanna, sem hinn fyrsti íslenzki ráðherra, er sat hér heima. Apturhaldsliðið hafði sigrað. Landshöfðingjavaldið var að vísu úr sögunni, en völdin voru hjá sömu mönn- 30 þú farir brott úr borginni nokkra daga; farirðu eigi til útlanda. Þú þarft að reyna á þig, svo að þú verðir þreittur! Og átinu sleppirði, er þar að kemur!“ „Þú skilur mig ekkiu, mælti Yerrill, og staklr með- ala-ávísuninni í vasabók sína. „Jeg verð að fara þangað, það er skylda mín; en það er ekki til neins að segja þér þ*tta, því að þú skilur það ekki! Yertu nú sæll! En meðulin veita mér svefn? Er eigi svo? Jeg kem aptur ■og hitti þig, ef þau hrífa ekki! Vertu sæll aptur! Á jeg að f'ara út um þessar dyr? Já, nú man jeg það . . . . . . Henry! Hefirðu nokkuru siani horft framan í dauðann? Jeg á við — —“ „Yitleysa, vitleysa!u greip læknirinn fram í. En Verrill st.óð kyrr við dyrnar, og mælti: „Jeg var einu sinni næstum dáinn, svo að jeg veit, hvernig það er. — Jeg var þá um tvítugt. — Faðir minn var gufuskipa-útgerðarmaður í stórum stíl, og fór eg opt með skipum hans, til að sjá um fermingu, og affermingu. Einu sinni i októbermánuði, fengum við ákafan haust-etorm, svo afskaplegan, að eg hugði. að skipið myndi farast þá eða þegar. Seinni hluta dags gekk brotsjór yfir skipið, að mér óvörum, og slengdi mér um koll, án þess eg fengi minnstu björg mór veitt, og taldi eg mér þá dauðan vísan: — þá sá eg dauðann augliti til auglitis! Þessum atburði hefi eg aldrei getað gleymt, og þarf eg eigi annað, en láta aptur augun, til að sjá og heyra allt sem þá gerðist, sjá siglutré skipsins bera við gráblá- an himinD, heyra brakið í skipinu, og lætin í sjónum, er hann skolaðist yfir skipið. Nei, þeim atburði gleymi eg aldrei! Og þá virtist 23 rautt, varð þar sem blóðið streymdi honum til höfuðsins, enn rauðara. Með mikilli ákefð og fjöri, eins og maður, sem ver mál, sem fyrirfram er tapað, en þar sem hann vill hafa al- menningsálitið á sínu bandi, svaraði hann. „Það er ekki rétt af fólki, að nefna mitt nafn í sambandi við frú de Fleurel. Þegar jeg kom úr stríðinu, og hafði misst fæturnar, hefði eg aldrei sætt mig við, að hún yrði konan mín — aldrei nokkurn tíma. Það var alveg óhugsandi. Þegar menn gipta sig á það ekki að vera gert af göfugmennnsku; stúlkur giptast til þess að lifa hvern dag, hverja mínútu og hverja sekúndu með karlmanni, og só sá maður limlestur líkt og jeg, þá dæma menn hana til æfilangrar sorgar og kvala með því að giptast henDÍ. Jeg skil og dáist að sérhverri sjálfsfóm, þegar eitthver vit er í henni, en jeg vil ekki fallast á, að kona afsali sór allri hamingju, allri gleði og öllum vonum, að eins til þess að almenningur dáist að henni. Þegar jeg heyri glamra í stofugólfi mínu af tréfótum mínum og hækjum, líkast skrölti i milluvængjum, við hvert slrref sem jeg hreifi mig, verð eg svo reiður og óstjórnlegur, að jeg gæti kirkt þjón minn. Haldið þér að menn vildu leggja þær kvalir á konuherðar, sem menn sjálfir tæp- lega geta undir risið. Og haldið þér að fótstubbar mínir séu fallegir á að Iíta? Hann þagnaði. Hverju átti jeg að svara bonum? Jeg fann að hann hafði rótt fyrir sér, og mér virtist, að jeg gæti ekki last- að hana eða fyrirlitið, ekki einu sinni verið mótfallÍDn. framferði hennar. En þessi lausn á gátunni, svo eðlileg sem hún var,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.