Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.10.1909, Qupperneq 2
186
Þjóðaijlinn.
XXIII., 47.
^ega limlest lík bankamanDS nokkurs í
París, er hét Jules Spech, og er ætlað, að
liann hafi verið myrtur til fjár.--------
Portúgal. Portúgísiski prinzÍDn Miguel
Braganza kvæntist nýlega dóttur amer-
ísks milljóna-eiganda, og fór brúðkaupið
fram í þorpinu DÍDgwall á Skotlandi,og
var viðhafnarmikið. — — —
Spánn. Um 2 þús. „esperantista“
héldu nýlega fund í borginni Barcelona,
og var Alfonso konungur einn þeirra er
þar mælti á þá tUDgu. — — —
ítalía. Þar hafa 418 sýkzt af kóleru,
og af þeim dáið 208. — Flestir þeirra,
er veikst hafa, hafa átt heima í borgun-
um Neapel og Genua. — — —
Serbía. Nýlega hefir orðið uppvist
um samsæri gegn Pétri konungi, og kvað
hafa verið til þess stofnað, að svipta hann
konungdómi, sem og ættmenn hans rík-
istilkalli. — Helzti forkólfur uppreisnar-
manna er nefndur Genchich ofursti, er var
riðinn við morð Alexanders konungs, og
Drögu, drottnÍDgar hans
Mælt er, að Pétur konungur ætli í
haust að bregða sér i kynnisför til Péfc-
ursborgar, Lundúna, Parísar, Eómar og
Konstantínópel. — — —
örikkland. Fyrverandi forsætisráð-
herra Grikkja, Iheotokis, hefir látið i ljósi
að gríska konungsættin muni víkja úr
landi brott* ef þingið samþykki tillögur
liðsforingja, um ýmsar breytingar á skip-
un hermálanna; en óvíst enn, hvað þing-
ið gerir, eða hvort þing verður rofið, sem
sumir telja réttast.
Segi Georg konungur af sér koDung-
dómi, en ættmenn hans sleppi þó eigi
ríkistilkalli, telja ýmsir réttast, að Georg,
sonur hans, verði fremur til ríkis tekinn,
en krÓDprinzinD. — — —
Pinnland. 18. sept. síðastl. voru 100
ár liðin, síðan er Svíar létu Finnland af
hendi við Eússa, er friðurinn i Frederiks-
hamn var saroinn, og gerði Rússastjórn
þá ráðstöfun, að þess skyldi minnzt í
kirkjum roeð þakklætisguðsþjónustugjörð,
og keisari sendi Finnlendingum opið bréf
þess efnis, hve áríðandi þeim væri, að
tengslin við rússneska ríkið yrðu æ nán-
ari og nánari(!)
Bandaríkin. Dr. Cook, sem fyrstur
tjáist hafa komist til norðurpólsins, kvað
hafa heitið því, að halda nokkra fyrir-
lestra í Bandaríkjunum, og í Canada, og
fær fyrir það að minnsta kosti 50 þús.
sterlingspunda.
laft, forseti Bandamanna, var ný skeð
á ferð í borginni Cincinnatí, og sóttu
þá á fund hans 600 konur, er kváðu menn
sína hlaupna frá sér. — Kváðu þær standa
eins á fyrir 2700 ungum konum í Cin-
cinnatí, og vildu að löggjöfin tryggði
betur rétt þeirra, en gjört er, þegar slíkt
kemur fyrir.
Ríkasta kona i Bandaríkjunum er sögð
vera ekkja Rarrimanrfs járnbrautakóngs-
ins, sem Dýlega er látinn. — Mælt, að
eigur heDnar nemi alls um 400 millj.
króna. — — —
Marocco. Mælt er, að soldáninn í Mar-
occo hafi látið taka Rhogien, er þar gerði
tilkall til ríkis, og láta hann inn í ljóna-
búr, og rifu ljónin hann til bana. — Sold-
áni eru og borÍD ýms öDnur hryðjuverk.
JapaD. Japanar hafa vigbúnað all-
mikinn um þessar mundir, sem sagt er,
að sé af þeim rótum runninn, að þeir
vænti ófriðar af Rússum, er minnst
| vonum varir, vilja meina Rússum hafnir
j allar þar eystra. — Svo hræddir eru inenn
! við ófrið, að japanskir kaupmenn í hafn-
arborginni Yladivostock hafa jafn vel lok-
að sölubúðum sínum. —
Samningur við Sameinaða félagið.
—o—
1. gr. Félagið skuldbindur sig til að
halda uppi stöðugum gufuskipasamgöng-
um milli Kaupmannahafnar og Leith ann-
ars vegar og Islands hins vegar, á þeim
' grundvelli, sem viðfest ferðaáætlunarupp-
uppkast sýnir.
Fyrir 10. október ár hvert skal félagið
senda stjórnarráðunum til samþykktar
frumvarp til ferðaáætlunar fyrir næsta ár.
Ekki mega viðkomur í Færeyjum vera
tíðari en viðkomur milliferðaskipanna þar
samkvæmt núgildandi ferðaáætlun, og
skulu baldast fyrirmæli hennar um við-
kornur skipanna eingöngu vegna pósts-
flutnings. Híds vegar má krefjast þess
að skipin komi eins opt við í Færeyjum
eins og millilandaskipin koma þar nú.
Um leið og hin árlega ferðaáætlun er
samþykkt, skal samið nánara um, bvort
gufuskipið Botnia (eða það skip, ser* kem-
ur í hennar stað) skal leyst frá því að
koma við i Yestmannaeyjum á ferðum
sínum til og frá Reykjavík, eða að eins
koma þar vegna farþega og póstflutnings.
2. gr. A skipunum skal vera 1. og
2. farrými. Fyrsta farrými skal auk þess
fylgja sérstakt kvennaherbergi.
Fyrsta farrými á að geta tekið 30 far-
þega að minnsta kosti, og annað farrými
á tveim skipunum um 50, og þriðja um
35 farþega. Skipin eiga að geta tekið
minnst 400 smálestir af vöruflutningi.
Skipin skulu vera að minnsta kosti
eins hraðskreið, eins stór og hafa eins
mikil þægindi eins og þau, sem nefnd eru
í ferðaáætlunaruppkastinu (þingskj. nr.
679), þó má setja gufuskipið Laura í stað
gufuskipsins . Yesta; gufuskipið Botnia eða
annað jafn hentuglega útbúið skip með
kælirúmi, sem er vel lagað til að fiytja
kjöt og nýjan fisk alla leið sem skipið
fer, skal því fara 9 ferðir eins og til er
tekið í uppkastinu. Verði þess krafist, er
félagið skylt að setja kælirúm í gufuskip-
ið Ceres eða það skip, sem kemur i henn-
ar stað, gegn sérstakri þóknun úr lands-
sjóði, er nemi 6000 eða 7000 kr. á ári,
eptir því hvort kratist er 5000 eða 10,000
teningsfeta kælirúm.
Félaginu er ekki skylt að nota kæli-
vélina, nema sagt sé til fyrirfram kæli-
rúmsflutnings fyrir minnst 50 kr. fyrsta
árið og 100 kr. síðar.
Gjaldskrá um fargjöld og farmgjöld
skal samþykkt af stjórnarráðunum og mega
gjöld þessi eigi vera hærri en fyrir árin
1908 og 1909, bæði milli Danmerkur og
íslands og milli Leith og íslands, hvora
leiðina sem er.
Þó áskilur félagið sér rétt til að hækka
farþegjagjald á Botniu eða þvi skipi, sem
kemur i hennar stað, þó svo, að það verði
oigi hærra en:
100 kr. í 1. farrými fyrir aðra ferð og
65 - - 2. — — — —
og fyrir ferð fram og aptur 170 og 115
krónur.
Enn fremur áskilur félagið sér rétt til
að halda athugasemdum þeim, sem verið
hafa í ferðaáætlunum og farmgjaldaskrám.
Félagið skal koma sér saman við það
félag, sem fær styrk til strandferðanna,
um farrngjaldsgreiðslu fyrir íiutningsmuni
til og frá viðkomustöðum strandferðaskip-
anna, þaonig að farmgjaldið hækki ekki,
þótt skipt sé um skip.
Ekki má hækka fargjald né farmgjald
milli tveggja staða, þótt skipt sé um skip
á leiðinni, en skyldur er þá farþegi að
nota fyrsta skip, sem á að fara þangað,
sem ferð er heitið.
Á ferðum þeim milii íslands, Leith og
Kaupmannahafnar, sem ræðir um í samn-
ingi þessum, skal veita allt að 25 stúd-
entum, og allt að 50 efnalitlum iðnaðar-
mönnum og alþýðumönnum þá ivilnun,
í fargjaldi, að þeir geti ferðast í 2. far-
rými báðar leiðir fyrir sama fargjald og
venjulegt er fyrir aðra leið, enda sýni þeir
vottorð frá forstjóra íslenzku stjórnarráðs-
skrifstofuunar í Kaupmannahöfn eða þá
sýslumanni eða bæjarfógeta i sýslu þeirri
eða kaupstað, þar er maðurinn á heima.
Sömu ívilnun skal gera árlega 10—15
dönskum bændastéttarmönnum, er sýni
vottorð frá stjórnarráði innanríkismálanna.
Loks skuldbindur félagið sig til að
flytja innflytjendur frá Leith til íslands
fyrir sama fargjald og tekið hefir verið
hingað til af farþegjum i 3. farrými frá
íslandi til Leith. (Framh.)
Ritsímaskeyti.
til „Þjóðv.“
—o—
Kaupmannahöfn 13. okt. 1909.
Frá Danmörk:
J. C. Christensen sleppir ráðherra-
embætti 18. okt., og er talið líklegt, að
Holstein-Ledreborg, forsætisráðherra, taki
þá að sór forstöðu þees.
(Að Christensen sér sig knúðan, til að
sleppa embætti sínu, forstöðu hermála-
ráðaneytisins, stafar af hinni megnu mót-
spyrnu gegn hoDum, út af Albertí-hneixl-
inu, og lýsti sá andróður sér meðal ann-
ars í þvi, að um 140 þús] manna rituðu
undir áskorun til konungs þess efnis að,
láta hann víkja úr embætti. — Fengu
fulltrúar undirskrifanda siðan áheyrn hjá
konungi, en hann kvaðst í þessu máli
eigi geta sinnt áskorun frá öðrum en
þingmönnum þjóðarinnar, og kvaðzt sjálf-