Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.08.1911, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.08.1911, Síða 3
XXV., 36.-37. Þjobv.ljinn 143 lá, þ. e., bak við það, að framleugja þing- eeturéttinn, sem kallað er, í etað þess að útnefna þegar konungkjörna þinginenn að nýju, var það, að hjálpa á þenna hátt „heimastjórnarmönnmmm“, — þeim þing- flokkinum, er þjóðin hatði hvorki viljað ejá, né heyra við þingkosningarnar síð- ustu (1908). Þeim var það hagur, að geta nú, er svo var komið, sem sagt hefir verið, haft konungkjörnu þingmennina í kjöri við kosningarnar í haust, en eiga það þó víst, — þar sem hr. Kr. Jónsson var orðinn sama sem flokksbróðir þeirra —, að geta þó smeygt þeim inn á þingið siðar, ef þeir féllu, þar sem útnefningu konung- kjörinna þingmanna á að fresta, unz kosn- ingar eru um garð gengnar. En um þetta þýðir nú lítt að þjarka frekar; en ranghermi „Lögréttuu bar nauð- syn til að leiðrétta. Yonandi er og, að kjósendum gleym- ist það eigi, er til kosninganna kemur, hve miklu betur nheimastjórnarmennu standa að vígi að þvi leyti, að þeir geta vænzt liðsauka að kosningum loknum, er konungkjörnir þingmenn verða útnefndir. Fráleitt gleymist kjósendum það held- ur hvaða meðulum þeir beittu á síðastl. þingi — sbr. þingræðisbrotið, og sím- skeyta sendingarnar út yfir pollinn —, til þess að geta átt von liðsaukans, er fyr greinir. Þeim ætti nú að koma það í koll við kosningarnar í haust. Hvað segir ráðlierrann i fréttnm úr siglingunni? —o — Þegar fregnin um stjórnarskrárbreyt- ingar síðasta alþingis barst til Kaup- mannahafnar, hóf danska blaðið »Ber- linske Tidinde« þegar andmæli gegn því, að ríhisráðs-ákvœðinu — þ. e. ákvæðinu um það, að sérmál íslands skuli borin ! upp fyrir konungl í ríkisráði Dana — skyldi hafa verið kippt burt úr stjórnar- skránni. Ntí er ráðherra nýlega kominn heim úr utanför sinni, og skýrir hann því væntanloga sem allra fyrst frá því, hvort nokkurrar mótstöðu er að vænta, að því er til staðfestingar á stjórnarskrárbreyt- ingunni kemur, verði hún samþykkt óbreytt á væntanlegu aukaþingi. Þetta er þjóðinni mjög áríðandi, að fá að vita. Jafn framt væri og fróðlegt að heyra, hvað ráðherra hefir orðxð ágengt í utan- j för sinni, að þvi er til sambandsmáhim | kemur — sbr. þingsályktun neðri deild- ar á síðasta alþingi — sem og tillögur hans um það1). í stuttu máli: Hvað segir ráðherr- ann i fréttum úr siglingunni? J) Eptir það, er grein þessi var tull sett í blaðinu, barst oss i hendur „Ingólfur11, dags. 8. ág. þ. á., og er þess þar getið, að ráðherra haíi farið þess á leit við Klaus Berntsen, forsætisráð- herra Dana, að hann leggði sambandslögin, er alþingi samþykkti 1909, fyrir ríkisþingið, og hafi hann engu viljað lofa um það, fyr en hann hefði ráðgast við helztu menn þingflokkanna, en því hafi eigi verið lokið, er ráðherra fór heim. Frá Yestur-islendingum, Kirkjuþing hins evang. lút. kirkjufélags ís- lendinga i Vesturheimi var haldið í Winnípeg 23.—29. júní þ. á. Allir prestar kirkjufélagsins, 14 að tölu, voru þar mættir, sem og fnlltrúar frá 33 söfnuðum, og voru fulltrúárnir alls 43. — En frá átta söfn- uðum voru engir fulltrúar mættir. Tveir fyrirlestrar voru haldnir á kirkjuþing- inu. — Flutti annan síra Hj'órtur Leö. og var hann um „skólamáliðu. — Vildi hann, að kirkju- félagið kæmi upp undirbúningsskóla, er veitti nemendum „matriculation„-stigið, sem svo er nefnt. — Hinn fyrirlesturinn flutti sira Jón Bjarnason: „Urn rétta fjársöfnun í þarfir kirkj- unnaru. Rætt var um sunnudagaskóla, heiðingja-trú- boðs o. fl. Forseti kirkjufélagsins var endurkosinn: síra B. B. Jön&son, en vara-forseti: síra N. Sigi. Þor- lál'isson. Aðfaranóttina 15. júui þ. á. vildi það slys til í bænum Winterquarters, að þar brann til kaldra kola íbúðarhús Olajs Sigurðssonar, og allt, er í því var. — £>ar brann og Olalur sjálf- ur inni. Hann var ekkjumaður, 52 ára að aldri, og hafði búið í húsi þessu í uær 20 ár, eða mest- allan tímann, síðan er hann fluttist til Vestur- heims. — Hann var ættaður úr Rangárvalla- sýslu, og voru foreldrar haus: Sig. Sigurðsson og Sigríður Pétursdóttir, hjón í Búðarhólshjá- leigu í Austur-Landeyjum í Rangárvallasýslu. Dóttir Ólals, er hjá honum bjó, var eigi beima nóttina, er slysið bar að. 29. júní þ. á. skaut íslenzkur maður sig til bana á hótelli í Winnipeg. — Maður þessi hét Asgeir Egilsson, og var frá Arabæ í Reykjavík, 28 ára að aldri, „góðum hæfileikum gæddur, og atorkusamui11, að þvf er í blaðinu „Heimsringlau segir. 225 „Æ! Það ei blaðamaðurinn og hr. Gregory!u mælti hann. „A.lveg rétt!u svaraði jeg. „Og má jeg spyrja — ?“ „Hví við komum hingað? En það eruð nú reynd\r þér —u „Komuð þér hingað alla leið, til þess að tala við mig?“ mælti Roachley og bro9ti háðslega. „Það liggur við, að það sé of mikið fyrir haft! “ „Já, jeg beyrðiu, mælti Mallabar, „að þér ætluðuð, að veita mér þá virðingu, að hugsa bráðlega til min — það er að segja, að koma mér út úr heiminum, sem og Kenwood og Ralphu. Roaehley brá, en að eins í svip, því að hann brosti jafn harðan, og var dulur, sem hann átti vanda til. Mér þykir vænt um það Kenwood, að eg hitti Roach- ley, og þykir leitt, að hann skuli vera dáinn, því að það verð eg að játa, að hvað sem öðru leið, var hann þó byggindamaður, og jafnoki minn að því leyti. „Ætti mér að vera það hugleikið, að þér færuð að deyja?u mælti hann. „Og hvernig gat eg hafa sagfc þetta?“ „Jú, það sögðuð þéru, mælti eg, og fann á mér, að eg var engu óstillt&ri en hann. „Þér sögðuð það á fund- inum niður við sjóinn um kvöldið!“ „En hvað ætti mór að ganga til þess?u mælti Roich- ley, og lét, eem hann hefði eigi heyrt það, sem eg sagði, enda þótt eg sæi það á honum, að bann gjörðist fremur áhyggjufullur. Að líkindum var hann að hugsa um það, hver þessu hefði ljóstrað upp. 214 „Hann kallar sig ekki því nafni hérna!u mælti hún, og blikneði upp, eins og hún hefði allt í einu orðið afar- hrædd. „Eruð þér í erindum Iögreglunnar?u mælti hún. „Nei!u evaraði Kenwood, og þó allhikandi, því að honum datt i sömu andránni í hug, hvort eigi hefði verið réttara, að !áta, sem svo væri. „Jeg er — blaðamaður, og vinur Eleanor Ratray!“ mælti hann loks. „Og þér leitið mín hór! Hví gerið þór það?u m»lti Constance. „Æ! þér viljið að Hallur — hr. Gregory gangi að eiga ungfrú Ratray! Ekki aptra eg því!“ „Reynum að skilja hvort annað, frú Raycourt!“ mælti Kenwood. „Hve mikið hafið þér saman við þeswa menn að sældi? Þekkið þér ungfrú Eleanor Ratray?u Hann varð forviða, er hann heyrði, að hún hélt niðri í sér grátnum, en léf, sem liann tæki ekki eptir þvi. Af samtali samsærismannanna niður við sjóinn hafði henn getað ráðið það, að þvi fór fjarri, að Roach- ley og Constance væru vinir. En hann vildi vita vissu síoa. „Jeg vildi gjarna fá að vita?“ mælti haDn, „hvort þér eigið nokkurn þátt í samsæri manna þessara gegn ungfrú Ratray?“ „Þátt í samsærinu? — jeg á engan þátt í neir.u samsæri! Jeg befi óbeit a þeim; ó, ef þér vissuð hve nfskaplega óbeit eg hefi á þeim! Jeg flutti mig hingað, af því að jeg átti hjerna heima, meðan eg var gípt, og hér á jeg jaiðeign; —þess vegna hvarf eg hingað apt- xtr! En þá komu þeir hingað, og get eg eigi gert að því. — En óbeit hefi eg á fleiru!“

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.