Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.05.1915, Side 8

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.05.1915, Side 8
80 ÞJC ÐVILJINN. XXIX , 21.-22. Bon og Loptur Guðmundsson (bróðir Gisla Guð- mundssonar, gerlafræðings) hér i bænum, í dóm- kirkjunni, að kvöldi miðvikudagsins 5. þ. m., og voru þeir því miður hvergi nærri eins vel sótt- ir, sem skyldi, enda sj&lfstæðismaunafundurinn þá oe sama kvödið, og fjöldinn með allan hug- ann þar. Jarðarför dönsku stúlkunnar, ungfrú Kr. Niel- sen er andaðist hér í bænum 28. april siðastl., sbr. síðasta nr. blaðs vors, fór fram fimmtudag- inn 6. þ. m. Margt Dana, sem heima eiga hér i bænum, o. fl. o. fl. fylgdu henni til grafar. Þvi miður mun það nú litlum vafa bundið, að stúlkan, sem getið or i sm&greininni hér næst & undan, hafi eigi tekið inn eitnð, sem varð henni að bana, i ógáti, en beint viljað losna við lífið, — hefir eigi getað borið kvalir þess lengur, eins og það var orðið henni, hvað sem sýnilegum hag bennar hefir liðið. Það er óheppni i ástam&lum, sem gizkað er &, að mestu, eða öllu; hafi þar um valdið. Almennur stúdentafundur var haldinn i Báru- búðinni hér í bænum fimmudagskvöldið G. þ. m. og stofnuð þar deild af „norræna stúdentasam- bandinuu svo nefnda. Forgöngumaðurinn: .Steinþór Guðmundsson; og hóf hann fyrstur umræðurnar. f L&tinn er hér i bænum i þ. m. (maí) Sigurður Waage, verzlunarmaður, 53 &ra að aldri. .Hann var sonur Eggerts heitins stúdents, er árum saman var kaupmaður, eða verzlunarmað- ur hér í bænum. Sjálfur rak Sigurður heitinn verzlun um hrið, en gegndi þó optar ýmsum verzlunarstörfum fyrir aðra. Hans verður ef til vill síðar getið i blaði voru n&nar. „Botnia“ lagði af stað héðan að kvöldi föstu- dagsins 7. maí þ. á. Meðal farþega héðan var Jón klæðskeri Feld- sted. Sundkennsla er nú nýlega bvrjuð hérílaug- unum, — hefir á nyliðnum vetri legið um hrið niðri. Um kennsluna annast þeir feðgarnir: Páll Erlingsson (bróðir Þorsteins sk&ldB), og Erling- ur, sonur bans. „Sterling’1 kom hingað frá útlöudnm, fimmtu- daginn 6. þ. m. Meðal þarþegja, er með skipinu komu, voru: Kjölbye (fulltrúi dönsku kaupstaðanna 1 Dan- mörku, sendur, til að atbuga hér ýmislegt, or að húsabrunanum mikla, aðfaranóttina 25. april síð- astl., lftur), enn fremur: Magnús úrsmður Benja- mínsson, o. fl. ý Jarðarför Guðjóns heitins Sigurðssonar, úrsmiðs, fór fram hér í bænum föstudaginn 7. mai siðastl. Húskveðjan hófst að heimili hins látna, á „Ingólfshvoli11, kl. 11 f. h., og var herbergið, þar som líkkistan stóð, tjaldað svörtu, í sorgar skyni, og fagurlega Ijósað. Síra Gisli Skúlason á Stóra-Hrauni flutti húskveðjuna, og sungin voru þar tvö kvæði; — annað, er ort hafði Guðm. skáld Magnússon, en hitt eptir Guðm skáld Guðmundsson. Loks var og, áður en kistan var hafin út úr sorgar-heimiliuu, sunginn alkunni ótfararsálmur- inn: „Af því að út var leiddur41. í dómkirkunni, er tjölduð var snörtu, og Ijós- uð að mun fagurlega, flutti Jón prófessor Helga- son líkræðuna, og sungnir voru þar sálmarnir: „Fótmál dauðans fljótt er stígið“, og „Óblessuð stund, er burtu þokan liður“, og eitt frumkveðið Ijóð eptir Guðm. skáld Magnússon. Ýmsir vinir Guðjóns heitins báru likið i kirkjuna, en „Oddfélagar“ báru það úr kirkjunni. — Líkfylgdin var mjög óvnnalega fjölmenn er bar vott um það tvennt, hve margir hér í bæn- um höfðu þekkt, og lærtaðmeta hinn framliðna, og um það, hve afar almenna hluttekningu hið sviplega fráfall hans hafði vakið. I líkfylgdinni var borinn fáni „Félags verzl- unarmanna Reykjavíkur1', og yfileitt var útförin nð öllu mjög prýðileg. f 7. þ. m. andaðist hér i bænum Sigurður skipherra Símonarson, 84 ára að aldri. Hann mun bafa verið einn hinm fyrstu, er skipstjóru hafði á höndum á þilskipum hér við Faxaflóa. Börn hans eru, Rannveig Sigurðardðttir, og Þorsteinn Sigurðsson, og dvaldi Sigurður heiiin síðustu árin & heimili Páls skipheira Matthías- sonar, tengdasonar síns (á Vesturgötu 32) og andaðist þar. Sigurður beitinn var dugandi maður, og að mörgu vel gefinn. AUGLÝSINGUM, sem birtast eiga í „Þjóðv.“, má daglega skila á afgreiðslu blaðsins í Vonarstræti 12. RITSTJÓRI OG EIGANDI: SKÚLI THORODDSEN Prentsmiðja Þjóðvilians. 180 að eg léti, sem mér litist vel á hana? Mér fer sá leik- urÍDD einatt mjög vel!u Windmuller fór ná aptur að hlsegja. „Ferið þar heldur gætilega! svaraði Windmuller. „Ekki að vita, hvernig því væri tekið!u „Jæja, þá það!“ „Hérna er nú höHin!u mælti Windmuller síðan, að fám mínútum liðnum. „Gætið yðar nú, og látið yður ekki henda neina heimskuna! Það legg eg afar-áherzlu á!u „Sjálfsagt!14 svaraði Pfiðerling lágt, og gekk nú ögn á eptir húsbónda sínum inn i höllina. „Er þegar sezt að borðum?“ spurði Windmuller ráðskonuna, er til dyra kom. „Þá verð eg, að flýta mér upp! Maðurinn hérna er þjónninn minn, — hefir, af misskilningi, farið að elta mig hingað! Yiljið þér sjá eitthvað fyrir honum, udz eg hetí skýrt Gio írá komu hans?u Windmuller sá nú að Pfiflerling var nú vísað til vinnufólksins, og kjötpottanna. „Hann er annars dæmafár!u hugsaði Windmuiler, með sjálfum sér, er hann gekk upp stiganD. „Þarna hýmir hann og bíður, í pósthúsinu, allan fyrri part dags- ins, og er þess albúinn, að biða þar jefn vel allan dag- inn, ef á þarf að halda, og laumast svo að baki mér; er eg skrifa símskeitið, án þess að eg verði þess var! Annað- hvort er mér að fara aptur, eða honnum að fara fram! En það tjáir eigi, að hrósa honum, því að eigi þolir hana þ&ð betur, en almennt gjörist!u Máltíðinni var svo langt kominn er Windmller kom inn i matsalinn, að verið var að bera þar um ostinn. „Jeg bið margfaldrar fyrirgefningar“, mælti hann, 181 er hann kom inn dyrnar „Kæra Gio! Viljið þér nú láta néðina koma í etað réttarÍDS, og gefa mér eitthvað að borða? Þér eruð kærleiksríkari en engill, en eg orð- inn glor svangari, en nokkur verksmaður hefur nokkru sinni verið! Sólskinið lét mig alveg gleyma, hvað tím- anum leið! Ríalto-hluti borgarinnar er og fyrirtaks skemmtilegur! En getið þér gizkað á það, Gío, hverjum jeg mæti þá af tilvilju? Þjcninum mínum, sem heldur á ferðapjöDkunum sínum! Eins og vant er, hefur hann TOÍsskilið mig, sauðurinD, og eitthvað verið þá annars hugar, og leggur af stað á eptir mér! Jeg vissi eigi, hvaðan á mig stóð veðrið, og sendi hann auðvitað rak- ieiðis heim aptur! En má hann þó ekki fá að hvílast hérna nokkra kl. tímana Gío?* Gio var nú litið á gest sinn, en mælti síðan, án þess minnsta hik væri á henni: „Kæri frændi! Hann getur verið hér, meðan þér eruð hér, — þekkir og yðar nótur, og tiktúrur, og yður því að mun þægindi að veru hans hér! Það er autt herbergi beint á móti herberjunum yðar, og það getur Jóhann þá feDgið! Hann Jóhann, gizka jeg helzt á!u „Telesfor Pfifflerling heitir hann nú reyDdar!1* svar- aði Windmuller, og gerðist af hlátur að mun. „Jeg nefni hann og aldrei fornafninu!14 mælti Windmuller enn fremur. „Finnst það of fyrirhafnar- mikið!“ „Afar-stórheimskur hlýtur hann að vera, að geta misskilið yður svo brapalega, að koma hingað alla leið frá Vín, ekki skemmra, en það þó er!“ mælti Onesta, og hagræddi nú gullbrúnu hálf-gleraugunum sínum svo, að hún sæi Windmuller þess betur. ,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.