Alþýðublaðið - 02.07.1960, Side 4

Alþýðublaðið - 02.07.1960, Side 4
NÚ mun vera nýhafið í Ar- gentínu stórkostlegasta skák- imót ársins. Er það haldið í til- efni þess að nú eru liðin 150 ár írá því að Argentínumenn losn- uðu undan yfirráðum Spán- verja. Meðal þátttakenda í mót- inu er Friðrik Ólafsson, og eftir 5því sem hann segir að Argen- itínumenn hafi sagt sér, flestir aSrir frægustu skákmenn iheims. Friðrik bætir því við að ekki sé nú alveg víst að þetta sé iheilagur sannleikur, því að í Argentínu virðist menn hafa þann sið að segja það beint upp í opið geðið á mönnum, sem |>eir meina alls ekki. Ég hefði því ekki þorað að nefna eitt ein asta nafn, ef ég hefði ekki séð í erlendu skáktímariti lista yfir þá meistara, sem boðnir voru til anótsins, en þeir voru: Botvinn- ik, Tal, Kortsnoj, Petrosjan, all- ir frá 'Sovétríkjunum, og segist Friðrik ekki sjá neinn Ijósan tolett í þeim hópi nema einna helzt Petrosjan. Frá Argentínu eru Najdorf, Panno, Bolbochan, Sanguinetti og Wexter, frá Bandaríkjunum Fisoher og Lom foardy, frá Júgóslavíu Gligorie og Ivkov og frá öðrum löndum Szabo, Pachman, Uhlmann, Un- zicker, Larsen, Pomar og Frið- rik. Friðrik hefur nú verið í Ar- geiltínu síðan f marz, tefldi fyrst é. móti í Mar del Plata og stóð sig vel, varð fjórði í röðinni. Efátir urðu þeir Spasskí og Fisbher. Þeir tefldu mjög skemmtilega skák og fer hún Ihér á eftir: Kóngsbragð. Hvítt: Spasskí. Svart: Fischer. 1. e4 e5 2. f4 eXf4 3. Rf3 gó (Kóngsbragð er tiltölulega iítið teflt í stórmótum nútím- ans, en Spasskí beitti því tví- vegis í síðasta Sovétmeistara- móti. Fischer hefur því verið við öUu búinn og velur gamalt og gott framhald.) 4. h4 g4 5. Re5 Rf6 6. d4 (6. RXS4 getur svartur svar- að með d5 og hefur þá betra tafl.) 6. — d6 7. Rd3 RXe4 8. BXf4 Bg7 9. Rc3 (Sennilega betri leikur held- ur en 9. c3.) 9. — RXc3 10. bXc3 c5 10. — o—o var eðlilegri og sennilega betri leikur. Nú hrað- ar hvítur liðskipan sinni af öll- um mætti og skeytir ekki um peðin) 11. Be2! cXd4 12. o—o! Rc6 13. BXS4 o—o 14. BXc8 HXc8 15. Dg4 f5 (Hvítur hótaði 16. Bh6.) 16. Dg3 d Xc3 17. Hael Kh8 18. Khl Hg8 19. BXd6! Bf8 (Eftir 19. — Bf6 20. Df4 BXh4 21. Re5! eru horfur hvíts einnig góðar.) 20. Be5t 21. DXeSt 22. HXf5 23. Kgl 24. Hf2 {Þetta hefur verið flókin skák og erfið fyrir báða, einkum þó svart. Það er því mjög skiljan- legt að hann leiki af sér í þess- ari erfiðu stöðu.) 24. — Be7? (Nú vinnur hvítur fallega.) 25. He4! Dgá 26. Dd4 Hf8 27. Heo Hd8 28. De4 Dh4 29. Hf4 og svartur gafst upp vegna þess að biskupinn er dauðans matur. í næsta þætti kemur bezta skák Friðriks frá sama móti með skýr ingum eftir hann sjálfan. Ingvar Ásmundsson. RXeá Hg7 DXh4t Dg4 Aðalfundur NAF haldinn í R.vík AÐALFUNDUR Sambands samvinnufélaganna á Norður- löndum (Nordisk Andelsfor- bund og Nordisk Andels-Ex- port) var haldinn í Reykjavík í fyrradag. Fundinn sátu að þessu sinni 42 fulltrúar frá Sví- Jjjóð, Danmörku, Noregj og Firtnlandi, auk forystumanna íslénzku samvinnusamtakanna. Umsetning NAF á árinu varð 362 millj. d. kr. Brúttótekjur sambandsins urðu 4 millj. d. kr. á árinu og reksturskostn- aður 1548 bús. d. kr. Tekjuaf- gangur varð 458 þús. d. kr. Var helmingur fjárhæðarinnar yf- irféerður til næsta árs, en af- ganginum varið til ýmissa' framkvæmda í þágu samtak- anna. Formaður norrænu samtak- anna er Karl Albert Andersen, Svíþjóð, en framkvæmdastjóri Mogens Efholm, Danmörku, en aðalskrifstofurnar eru í Kaup- mannahöfn. Auk þess hefur sambandið skrifstofur í Lon- don, 'Valencia og Santos. í fyrradag sátu fulltrúar há- degisverðarboð viðskiptamála- ráðherra og síðdegis sama dag voru þeir gestir forsetabjón- anna að Bessastöðum. í gær ferðuðust þeir um nágrenni Reykjavíkur og Borgarfjörð, en flestir þeirra halda heimleiðis á sunnudag. 4 2. júlf 1969 — Alþj ðublaðið Rokkmeist- ari giftir sig SVONA gekk það til í London fyrir skemmstu, þegar rokk-kóngurinn Tommy Steele gekk í heilagt hjónaband. Lög- reglan mátti slá hring um kirkjuna til þess að gítar- guttinn kæmist óskadd- aður heim með brúði sína. Fullt traust þingflokksins tWMMMMWMWWMMMW Athugasemd HR. RITSTJÓRI. Út af smágrein í Alþýðu- blaðinu í dag, 30. þ. m., þar sem skýrt er frá því, að Land- síminn hafi neitað nafngreind- um manni um símtal við sýslu- manninn á Blönduósi, vil ég taka fram, að hér hlýtur að vera um misskilning að ræða. Landssíminn neitar engum um afgreiðslu á símtali, svo framarlega sem símasamband er við viðkomandi stöð. Það var heldur ekki gert í þessu til- felli, enda ekkert bví til fyrir- stöðu að símtalið gæti farið fram, og símtalið hófst 10 mín- útum eftir að beðið var um það. yirðingarfyllst Ól. Kvaran. Ghana Framhald af 5. síðu að ekki yrði um að ræða neina mismunun vegna stéttar, kyn- þáttar, trúarbragða eða stjórn- málaskoðana ,og að ríkja skyldi trúar-, mál- og fundafrelsi í landinu. Hann verður einnig forsætisráðherra. Á miðnætti s. 1. varð Ghana Jj'ðveldi innan brezka samveld- isins, þrem árum eftir að land- ið fékk sjálfstæði. í tilefni af lýðveldisstofnuninni voru allir dauðadæmdir náðaðir og fangar með meira en þriggja ára dóm fá eftirgefið eitt ár af dómn- um. LONDON, 30. júní. (NTB-Reuter). ÞINGFLOKKUR jafnaðar- manna í neðri málstofunni gaf leiðtoga flokksins, Hugh Gait- skell, yfirgnæfandi traustsyfir- lýsingu í annað skipti á einum sólarhring. Með 97 gegn 15 at- kvæðum veitti flokkurinn hinni endurskoðuðu stefnu í land- varnamálum stuðning sinn. — I TOLLA- LÆKKUN Brússel, 30. júní. (NTB-RIEUTER).' Evrópska markaðsbandalagið hrindir á morgun, 1. júlí, í friamkvæmd 10 prc. tolla-niður færzlu, sem nær aðeins til að- ildarríkja bandalagsins. Þetta er öívj n tollalækkunis, sem bandaíagiö gerir síðan það var stofnáð 1. janúar 1957, en hún vr • ' .nig 10 prc. Enn ein 10 þrc. tiilalækkun er fyrirhug uð á næsxu 6 mánuðum. Henry Hálf- dánarson heiðaður KONUNGUR Svía hefur sæmt Henry Hálfdánarson framkvæmdastjóra Slysavarna félags íslands riddarakrossi 1. stigs hinnar konunglegu Vasa- orðu. Honum var afhent heið- ursmerkið í sænska sendiráð- inu s.l. fimmtudag úr hendi ambassadors Svía Sten von Euler-Chelpin. gær samþykkti þingflokkurinn með 179 atkvæðum gegn 7 stuðn ing við Gaitskell sem leiðtoga f lokksins og gaf þar með vinstri arminum örugglega til kynna af stöðu þingflokksins til deilu.uál anna innan flokksins. Helzta leiðtogar vinstri armsins eru Frank Cousins og Richard CrosS man. Ástæðan til þess, að færrS atkvæði voru greidd í dag em í gær var sú, að allmargir þing menn voru önnum kafnir yiíS nefndastörf. Hin endurskoðaða landvarna- áætlun vísar á bug þeirri hug- mynd, að Bretar aí'sali sér ein- ir atómvopnum, en telur, að í framtíðinni verði Bandaríkin að sjá vesturveldunum. fyrir frá- fylandi vopnum. Þá staðfestii! áætlunin hollustu við NATO. Sennilegt er, að áætlunin verði á morgun samþykkt af stj órn verkalýðssambandsins, en ennþá er óljóst, hvort Gait- skel'l heldur meirihluta sínum á flokksþinginu í október. Skotfæra- flutningar ÞESSA dagana eru Banda- ríkjamenn að flytja gömul skot færi frá Keflavíkurflugvelli til skips í Reykjavík. Skotfærin munu vera hættu- laus með öHu. íslenzkir lögregluþjónar af Kefalvíkurvelli fylgja skotfæra bílunum til. Reykajvíkur, þar sem Reykjavíkurlögreglan tek- ur við. Bílarnir eru vandlega merkt- ír. Þessir flutningar hófust í gær og mun væntanlega lokið á laug ardag.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.