Alþýðublaðið - 02.07.1960, Side 7
axasíld gott hrá
í „kippers
ff
UNDANFARED hefur dval-
Izt hérlendis sérfraeðingur til
leiðbeiningar fyrir íslenzKan
niðursuðuiðnað. Er hér um að
ræða norska vélaverkfræðing-
inn Carl Sundt Hansen, sem
kom hingað til lands 4. maí, en
heldur ' utan árdegis í dag.
Sundt Hansen starfaði hér um
mánaðarskeið í fyrra og var því
ýmsum aðilum í niðursuðuiðn-
aði að góðu kunnur.
Starfi Carls Sundt Hansen
hér var hagað þannig, að hann
heimsótti nær allar starfandi
niðursuðuverksmiðjur og t.ók
til athugunar tæknileg vanda-
mál þeirra, eftir því sem óskað
var og tími leyfði, og skrifaði
síðan álitsgerð fyrir hverja
verksmiðju um athuganir sín-
ar. T.d. voru margir tillögu-
uppdrættir að niðurskipun véla
gerðir með það fyrir augum að
gera framleiðsluna sem hag-
kvæmasta, veittar voru leið-
beiningar um val á tegundum
véla og athuganir gerðar á ein-
stökum atriðum, svo sem áfyli-
ingu og lokun dósa, hitamæl-
ingum og lofttæmingu. Einnig
voru ýmis fjárhagsleg atriði í
sambandi við framleiðsluna
tekin fyrir.
- segir norskur
sérfræðingur í
niðursuðu
Carl Sundt Hansen og Sveinn
Einarsson, verkfræðingur hjá
Iðnaðarmálastofnun íslands,
ræddu við fréttamenn í gær.
Hér á eftir fara nokkur atriði,
sem Sundt Hansen telur sig
geta bent á varðandi framtíð
niðursuðuiðnaðar hér á landi:
Svo virðist sem Faxásíld sé
gotí hráefni til framleiðslu á
reyktri síld (kippers) og síld í
alls konar sósum. Niðursoðn-
ar rækjur héðan eru gæða-
mikJar. Hins vegar er vafa-
samt, að þau mið, sem nú
þekkjast, þoli meiri veiði, og
mæla verður mjög eindregið
með því, að leitað verði nýrra
m:ða.
Smásíldin er, a. m. k. á viss-
um árstímum, gott hráefni til
framleiðslu á síldarsardínum o.
fl. Ekki má gleyma kryddaðri.
Norðurlandssíld sem ákjósan-
legu hráefni til framleiðslu á
gaffalbitum og öðru síldargóð-
gæti. Nota má einnig önnur
hráefni, og hafa skyldi hug-
Tvö skátamó
anda yfir
ÞESSA dagana eru haldin
tvö skátamót hér á landi; ann-
að x Botnsdal í Hvalfirði, en
hitt í Vatnsdalshólum.
Það er Skátafélag Akraness
undir stjórn Páls Gíslasonar
læknis, sem hefur undirbúið
mótið í Botnsdal, sem hófst 29.
f. m.
^ í dag mun forseti íslands,
Ásgeir Ásgeirsson, sem er
verndari skátahreyfingarinnar
á Islandi, heimsækja mótið í
Botnsdal svo og helztu forráða-
menn skátahreyfingarinnar hér
lendis.
Mótið í Vatnsdalshólum hafa
skátafélögin á Blönduósi og
Skagaströnd undirbúið og
sækja það einkum skátar af
Norðurlandi. Foringjar félag-
anna eru Jón ísberg sýslumað-
ur á Blönduósi og Ingólfur Ár-
mannsson kennari á Skaga-
strönd.
Mótstímanum eyða skátamir
dögunum í gönguferðir, skáta-
leiki og ýmsar skátaíþróttir, en
skemmta sér á skátavísu með
söngvum og leikþáttum við
varðelda á kvöldin.
Báðum skátamótunum lýkur
á morgun.
fast, þegar framleidd er gæða-
vara, að oft má ná hagstæðum
árangri f járhagslega, þótt fram
leiðslumagnið sé ekki svo ýkja
mikið.
ísland hefur á að skipa all-
mörgum mönnum með tals-
verða reynslu í niðursuðuiðn-
aði. Samt er ríkjandi viss skort
ur á fáglærðu fólki, t. d. verk-
stjórum með þekkingu í verk-
stjórn, almennri framleiðslu-
tækni — og hagfræði og auk
þess viðbótarfræðslu í niður-
suðutækni.
Allir, sem starfa að niður-
suðuiðnaði, verða að hafa skiin
ing á gæðunum, jöfn og mikil
gæði eru grundvallarskilyrði í
þessari atvinnugrein. Gæðaeft-
irlitið verður að þróast áfram
og smám saman að ná einnig
til framleiðslu til neyzlu inn-
anlands.
Að lokum sagðí Carl Sundt
Hansen, að markaðsrannsókn-
ir, sala, vörugerð, menntun, fag
manna, trygging jafnra gæða,
allt þetta yrði að þróast samtím
is. Það er margt, sem gera þarf,
og ég vil halda því fram, sagði
hann, að það sé ógjörlegt —
jafnvel fyrir Islendinga — að
framkvæma það á einu eða
tveimur árum. En með síöðugu,
einbeittu starfi verður mark-
inu náð, þótt það kunni að íaka
nokkur ár' *
Sveinn Einarsson skýrði frá
því, að fyrsta niðursuðuverk-
smiðja á íslandi hefði verið
stofnuð árið 1902 á ísafirði, en
nú væru um 10 verksmiðjur á
landinu. Árið 1957 hefðu t. d.
niðursoðnar fiskafurðir verið
tæplega ¥2% af heildarútflutn-
ingsverðmæti sjávarútvegsaf-
urðanna, en sama ár 15% í
.Noregi. Niðursuðuiðnaður er
mjög hagstæður frá þjóðhags-
legu sjónarmiði og þess því að
vænta, að heimsókn Carls
Sundt Hansen hingað yrði til
að örva vöxt og viðgang þessa
iðnaðar.
Svavar og
félagar í
ferðahug
HLJÓMSVEIT Svavars
Gests, sem landskunn er
úr útvarpsþættinum
„Nefndu IagiS“, hefur
leikið í Sjáífstæðishúsinu
í Reykjavík um árabil, en
hyggst nú venda sínu
kvæði í kross og fara norð
ur og austur urn land í
hljómleikaför.
Á hljómleikum hljóm-
sveitarinnar verður færð-
ur upp getraunaþátturinn
„Nefndu Iagið“ og há pen-
ingaverðlaun veitt. Þátt-
unum verður ekki útvarp-
að, heldur hafðir á hljóm-
leikunum til fjölbreytni.
Fyrstu hljómleikar
Svavars Gests verða á Ak
ureyri næstkomandi föstu
dag 8. júls. Síðan heldur
hljómsveitin norður og
austur á firði, en leikur á
dansleikjum um helgar.
retð viljð líkð
sendð fðllbyssu-
ðus herskip
Þeim varð um
sel i Þjórsá!
Framhald a£ 1. síðu.
Hann kvað verð á selskinni
ágætt; rúmar 800 kr. fyrir skinn
ið í fyrra, ef það komst í 1. gæða
flokk. Mun ekki vera lakara
verð fyrir skinnin í sumar. —
Annars er mikil vinna að verka
selskinninn undir sútun, ef þau
eiga að lenda í 1. flokki, og má
engin fita vera eftir í skinninu
— sagði Tómas Tómasson í
Fljótsihólum að lokum.
Aðalútflytjandi selskinnanna
er Þóroddur. E. Jónsson, stór-
kaupmaður í Reykjavík. Tek-
ur hann selskinn frá bændum
við Þjórsá og Ölfusá í umþoðs-
sölu. — a.
BRETAR eru með ráða-
gerðir á prjónunum um
að senda f eiknmikil verk-
smiðjuskip á f jarlægu
fiskimiðin. Þetta er einn
liður í viðbúnaði þeirra
vegna stækkunar ís-
lenzku landhelginnar og
fyrirhugaðra ráðstafana
Norðmanna í þeim efn-
um.
Skipin verða móðurskip
brezkra togara og taka við afla
þeirra. Það verður flakað í
þeim og þau verða búin beztu
kælitækjum.
Þetta er byggt á upplýsing-
um brezkra útgerðarmanna.
Ráðagerðir eru uppi um að
taka jafnvel í notkun gömul
herskip, sém flotinn hefur
f^gt, og hreyta þeim í verk-
smiðjuskip.
Það er von útgerðarmanna,
að með þessu móti eigi þeir
auðveldara með að keppa vi3
t. d. íslendinga og Norðmenn,
sem oft á tíðum skila fiskinunx
á brezkan markað beint af eig-
in miðum.
Þá er talið sennilegt, að þýzk
ir útgerðarmenn séu með svip—
aðar ráðagerðir á prjónurium.
KOMNIR
HEIM •
NfU MENN af áhöfn „Dranga
jökuls“ komu heim í gærkvöld*
með Viscount-flugvél Flugfélags
íslands, „Hrímfaxa“.
Skipstjórinn, kona hans og
sonur, komu hins vegar heim í
fyrradag.
Þeir, sem eftir voru í Skbt-
Iandi í gær, munu væntanlegir
hingað í dag.
Alþýðublaðið — 2. júlí 1960