Lögberg - 25.10.1893, Qupperneq 1
Lögberg er gefið út hvern miðvikudag og
laugardag af
The Lögberg PRINTING & PUBMSUING co.
Skrifstofa: Afgreiðsl ustofa: PrentsmiSja
148 Prinoess Str., Winnipeg Man.
Telephone 1)75.
Kostar $2,00 um árið (á Islandi 6 kr.
borgist fyrirfram.—Einstök númer 5 cent.
Lögberg is puhlished every Wednesday and
Saturday hy
THE LÖGBERG PRINTING & PUBLISHING CO
at 148 Princess Str., Winnipeg Man.
l'eleplione 07ö.
S ubscription price: $2,00 a year payable
*n advance.
Single copies 6 c.
(>. Ár. [
Winnipeg, Manitoba, miðvikmlagiun 25. október 1895.
I
Nr. 83.
Verzlun G. Jónssonar
♦
♦
SUDVESTUR HORNI RDSS OG ÍSRBEL
♦
♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
þetta haust hef jeg keypt inn meiri og hetri vöiubyrgðir, fyrir mikið minna verð en nokkru sinni áður.
kaupmenn bœjarins kaupa inn fyrir, sem sje 10—20c. billegar hvert dollars virði.
^ Til dœmis ♦ Til dæmis
Aíc( Drengja-og karlm.-ullarnærfatnaður frá 80c. ogupp, Drengja- ♦ Indælir, nýir, tvíbreiðír kjóladúkar frá 20c. og upp, einbreiðir,
og karlm. ullar-ytrifatnaður frá $2.50 og upp, Drengja- og Ý mjög fallegir og góðir frá lOc. og upp. Hrosslur á $1.50, 1.75,
karlm.-vetraryfirhafnir fyrir $2.25 og upp. 4 2 OO og .'!,oo, nú fyrir að eins $l ,oa.
Billegasta Mdin 1 Wpg.
Já, það svo mikið billegra, að jeg get seit eins billega og smi-
t
i
♦
♦
Til dœmis
Níðsterkir leðurvetlingar frá 50c. og upp, húttr, skyrtur og bux-
ur á 50c. og upp. Ullarsokkar og vetlingar, uppihöld, kragar.
mansjettur, necktie’s, erma- og kraga-hnappar o, fl., o. fl.
&
KOMIÐ ! þAÐ KOSTAR EKKERT AÐ SIvOÐA þAD, OG LÍTIÐ A« KAUPA þAÐ, þAÐ ER SVO BILLEGT.
ÚTRUNNINN LEIGUMÁLI.
Carsley i Co.
344 Main Street.
* Vorar haust- og vetrarbyrgdir
eru mjOg fullkomnar I öllutn deilduro, og vjer iiöfum fallegri og betri vörur
en nokkru sinni áður.
Fyrsta ajrríl naestkomandi, Verða
útrunnbi þau þrjú ár, sein búðin var
leigð upp á, og þar vjer getum ekki
neina með afarkostum, fengið búðar-
lánið endurnyjað, þá erum vjer nauð-
beygðir til að vera búnir að selja út
allar vorar vörubyrgðir fyrir 31. maijz
næstkotnandi. Það, að verzlun vor
liefur stöðugt farið vaxandi síðan
vjer byrjuðum að verzla fyrir þremur
árum, er ljós vottur þess, að vjer
seljum góðar vörur billega og að
fólk er ánægt,
Til þess að geta selt vörurnar sem allra fyrst, þá bjóðum vjer sjerstök
kjörkaup í næstu
3 MANUDI,
þar allt verður að vera selt fyrir 1. apríl. Allar vörur verða merktar skyrum
tölum fyrir lægsta verð.
MÓTTLAR og KVENN-JAKKAR, þær mestu byrgðir í borginni
að velja úr. I3ARNA-YFIRHAFNIR og stuttir Jakkar fyrir drengja-og
stúlku-börn. KJÓLADUKA mjög fallegir og billegir. OLÍUDÚlvAR,
BORÐDÚKAR, GARDÍNUR, ULLARTEPPI og STOPPTEPPI, NÆR-
FÖT, SOKKAR og SKYRTUR, &c. — Mestu kjörkaup verða boðin í
bverri deild þvl allt má til að seljast.
CARSLEY & CO.
344 MAIN STREET.
FRJETTIR
€ANADA.
Sir John Abbott, sem varð stjórn-
arformaður Canada eptir Sir Jolin A.
Macdonald, hggur fyrir dauðauum I
Montreal.
Frá Ottawa er telegraferað í fyrra-
dag, að þingmennsku-afsögu frá Hugh
John Macdonald, þingmanni Winni-
pegbæjar, sje, að sögn, komin í hend-
ur forsetans, og að í gær muni liafa
átt að gefa út skipan urn nyja sam-
bandsþingskosning fyrir þennan bæ.
Frá Montreal er tslegraferað 20.
þ. m.: Ferðir ráðherranna um On-
tario og Quebeo hafa komið á lopt
þeim orðróin, að þingið muni verða
kallað saman snemma og öllu starfi
þess flytt svo mjög, sem mögulegt
verður,og svo verði almennar kosning-
ar látnar fara fram tafarlaust. Eptir því
sem menn frjálslynda flokksins leggja
þetta út, erástæðan sú, að ráðherrarn-
ir óttast að hreyfingar í áttina til um-
bóta á tollögunum sjeu að breiðast
út, og vilja því láta kosningarnarfara
fram áður en sú lireyfing hefur fengið
tíma til að vaxa frekara. llúizt er við,
að þær breytingar, sem gerðar verða
á tolllögunum á næsta þingi, muni
stefna að niðurfaerslu á tollinum, og
ráðherrarnir vona, að landsmenn muni
yfir höfuð gera sig ánægða með þan
liálfverk, og að ef kosningar fara fram
þegar eptir þingið, muni niðurstaðan
vetða sú, að stjórnin fái allgóðan
meiri hluta.
IUNDAR1KIV
Járnbrautarslvs vildu til á tveim
stöðum í Bandaríkjunum á föstudag-
inn, og á hvorutveggja staðnum voru
það syningargestir, sem fyrir þeim
urðu. Annað slysið vildi til á Grand
Trunk brautinni hálfa mílu fyrir aust-
an Battle Creek, Mich ; þar rákust á
tvær lestir, eldur kom upp í vögnun-
um, 3 vagnar brunnu, eittlivað um 50
manns sköðuðust og 26 missttl lífið.
— Hitt slysið vildi til á lllinois Cent-
ral brautinni, skainmt frá Kaukakee,
III. Dar rákust lika lestir hvor á aðra;
sjö manns misstu lífið og tíu sköðuð-
ust.
Þjófar eru lieldur en ekki að gera
vart við sig á járnbrautum í Banda-
ríkjunum um þessar mundir. Fyrra
þriðjudag var stolið $22.000, sem
sendar voru með American Express
fjelaginu frá Nevv York til New Or-
leans. Og á fimmtudaginn var stolið
$15,000 frá manni, sem var á ferð á
járnbraut 1 Texas. Stolið var og frá
samfcrðamönnum lians, þótt þeir hefðu
ekki eins mi'kið að missa. Einn missti
buxur, tveir skóna sína og prestur
nokkur missli yfirfrakkan sinn og
lieilmikið af prjedikunum.
Fjárlaganefnd fulltrúadeildarinn-
ar í congressinum er um þessar nmnd-
ir að semja frumvarp til nYrra tolllaga,
og er búizt við, að það verði lagt fyr-
ir congressinn í desember. Eptir því
sem Hill senator í New York sagði í
ræðu nú í vikunni, verður frumvarpið
stranglega miðað við þarfir stjórnar-
innar, og jafnframt faiið eptir því,
hvað almenningur manna á ljettast
með að bera, en tneð öllu horfið frá
tollverndar-prinsípinu. Óunnar vör-
ur (raw materials), sem verksmiðju-
eigendur þurfa á að halda, verða ó
tollaðar. Nauðsynjavörur manna verða
og svo að segja ótollaðar.
Aberdeen iávarður og frú lians
hafa verið á syningunni fyrirfarandi
daga. Yfir írska þorpinu í syningar-
garðinum liefurbreska flaggið blakt
til virðingar við þau. Nokkrir írar
reyndu hvað eptir annað að rífa það
niður á föstudagskveldið, og urðu
ryskingar ailmiklar úr þvf hneyksli.
írar virðast ekki þola að sjá brezkt
flagg yfir írskum bæ, jafnvel ekki á
sllkum stað og við slíkt tækifæri.
Chicago-brjef.
ni.
Chicago 21. okt. 1893.
Ritstjóri Lögbergs.
Kæri vin.
Stærsta leikhús Chicagoborgar
heitir Auditorium. Sama leikritið er
daglega leikið þar um þessar mundir.
Og stundum er það leikið tvisvar á
dag. Leikrit þetta heitir „Ámerica“,
og er eptir Mr. Imre Kiralfy. Frá-
munaleg aðsókn er að leikhúsinu, og
almennt virðast menn vera mjög hrifn -
ir af leik þessum. Oss fjelaga lang-
aði því mjög til að fara í leikhús
þetta. Og 18. þ. m. keyptum vjer
oss aðgangsmiða. Vjer íenguui gott
sæti fyrir $1.50. Leikurinn byrjaði
kl. 8.'
Leikhúsið er mjög stórt og all-
skrautlegt, enda er það í einu mesta
stórliysi bæjarins.
Leikritið „America“ nær yfir 400
ár. l>að byrjar á Kólumbus og end-
ar á syningunni í Chicago. Það eru
„sögulegar syningar11 líkt og „Helgi
hinn magri“ eða „Annar apríl“ hjá
Dönum. Allur útbúningurinn (Sce-
nerv) er frábærlega fagur og stórkost-
legur. Hann ber langt af öllu því,
som við áttum að venjast í konung-
lega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. En
leikiitið sjálft vantar allan skáldskap.
Þar er mörgu sundurleitu hrúgað sam-
an í eina bendu. Allt er gert fyrir
augað, lítið fyrir eyrað, en alls ekkert
fyrir hugsunina. Meðal persónanna
eru „Progress“, „Perseverance“,
„Bigotry11, „Liberty11, „Genius of In-
ventiou11 o. s. frv. Aflraunum og
skrípalátum er blandað inn í leikinn.
Leikritið er samið handa syningunni.
Það var eigi tilgangur Mr. Imre Ki-
ralfy að seinja listaverk, heldur fram-
leiða „sögulegar sýningar11, er fylltu
þetta mikla leikhús dags daglega uin
syningartímann. Dessum tilgangi er
náð. Leikhúsið er ávallt troðfullt,
og græðir það óefað stórfje á leik
þessum.
Eins og jeg gat um í fyrsta brjefi
mínu, þá bauð Dr. R. F. Weidner
okkur sjera Friðrik að koma og skjða
guðíræðisskóla þann, er liann veitir
forstöðu. Það er fyrsti lúterski guð-
fræðisskóli I Chicago. Á þeim skóla
lærðu þeir sjera Björn B. Jónsson og
sjera Jónas A. Sigurðsson. 1 gær
fórum við sjera Friðrik að heimsækja
Dr. Weidner. Hann syndi okkur all-
an skólann og leizt okkur einkar vel
á allt, sem við sáum þar. Skólinn er
sunnarlega í bænnm og lieitir Chicago
Lutlieran Theological Seminary. Hann
á allstórt land. Og verða þar óefað
reist mörg stórhysi, er tímar líða fram.
Þetta er þriðja ár skólans, og hafa
þegar tvö liús verið reist Annað
þeirra er bústaður Dr. Weidaers, en
hitt er skólahús. í því búa nemend-
urnir, og þar fer kennslan fram. Skóla-
húsið heitir „Eliza Hall11 eptir konu
Dr. Passavant’s. I>au hjón liafa stutt
þessa skólastofnun á allan hútt. 5>etta
hús er allstórt, enda kostaði það $22,-
000. öllu er svo haganlega fyrir-
komið í húsi þessu, sem framast má
verða. Nemendur búa tveir saman 1
herbergi, og fer þar óefað mjög vel
um þá. Nemendur á skólanum eru
nú um 35. Einn þeirra er íslending-
ur, Mr. Jón Clemens, sem jeg áður
hef getið um. Auk þess koma all-
margir prestarog útskrifaðir guðfræð-
inga á skóla þennan til þess að stunda
þar sjerstakar námsgreinar. Nú sem
stendur eru 5 kennarar við skólann.
Einn þeirra er Dr. Roth mjög merkur
maður. Dr. Weidner og Dr. Roth bera
skóla þennan á kerðutn sjer, enda eru
þeir ágætir menn, hver á sinn hátt.
Þeir tóku okkur ágætlega og höfðum
við miðdagsvarð hjá Dr. Weidner.
í gær lögðu þeir Mr. Magnús
Panlson, Mr. Jón A. Blöndal, Mr.
Andrjes Freeman og Mr. Þorsteino
Oddson, fjelagar mínir, á stað heitn-
leiðis. £>eir voru lijer 9 daga og skoð-
uðu 8yninguna mjög vel bg rækilega.
Auk þess fóru þeir víða um Chicago
ög skoðuðu merkustu stórhysi bæjar-
ins o. s. frv. Ferðin varð þeim til
mestu skemmtunar oií mesta fróðleiks.
íslendingar hjer í Chicago báðu
okkur prestana að flytja guðsþjónustu'
á morguu. Sjera Friðrik ætlaði að
gera það, því hann bjóst við að verða
hjer fram yfir næstu helgi. Ilann
fjekk lánaða kirkju bjá gömlum skóla-
bróður sínum, norskum presti hjer í
bænum. Eu svo varð sjera Friðrik
hálflasinn og þurfti að liraða sjer
heim til stn. Iiann lagði þess vegna
á stað í gær með kinum fjelögum
mínum. En jeg varð eptir til þess að
halda þessa guðsþjónustu hjer á morg-
un. Og í næstu viku legg jeg á stað
heimleiðis.
Þessir Islendingar frá Winnipeg
eru nykomnir hingað: Mr. J. W.
Finney, Mr. Eyjólfur Eyjólfsson, Mr.
Gísli Ólafsson, Mr. Þorgeir Símonar-
son og Mr. Guðleifur Daimann. Það
hafa farið milli 10 og 20 íslendingar
frá Winnipeg til syningarinnar í sunt-
ar. Og er það meira en frá öllum
íslenzkum nylendum til samans.
Eitt at þeitn örfáu löndum, seni
ekkert leggja til þessarar heimssfn-
ingar, er ísland. Þó eru á syning-
unni íslenzkir munir, sem jeg fvrst af
öllu verð að minnast á. í dönsku
deild syningarinnar tók jeg eptir 2
slíkum munum. Annað var lítil brúða.
Hún er klædd í íslenzkan liátíðabún-
ing (nyja skautið), og fer það einkar
vel. Hún er frá Mrs. Th. Thorsteins-
son á íslandi. Ilinn munurinn er
einn af dyrgripum sfningarinnar. Það
eru ljósmyndir af allri Flateyjarbók.
Bókin er geymd í lokuðum kassa með
glerloki yfir. Og á hlið hans er mynd
af skipiuu „Vfking.11 Syningar-
spjaldið, sem fylgir bókinni, ber þessa
áritun.
Niðurl. á 2. hls.
„STRING BANI)“
SAMKOMAN
verður haldin í samkomusal G.Jónsson-
ar á Ross Str., miðvikudagskveldið 1.
nóvember; byrjar kl. 8-J.
Skemmtanir verða: Solos, Duetts,
fjórraddaður söngur, Guitar trios,
lestur (Mr. E. H.), „Recitations11 á
ensku og íslenzku.
í „String Band“-inu spila nú sjö
menn og munu þeir reyna að gera sitt
bezta. Einnig verður á samkomunni
sarntal milli tveggja manna, sem mjög
ólíkir eru að vexti, þar sem annar er
um 8 fet á hæð en hinn aðeins rúm 2
fet. Það er enginn vafi á því, að það
er gott heilsunnar vegr.a að fá að
hlæja lyst syna við og við.
DAN SULLIVAN,
S E L U R
Áfenga drykki, vín, Beer, Ö1 og Porter
má- og stór-kaupum.
East Grand Forks,