Lögberg - 03.03.1894, Blaðsíða 1
Logberg er gefið út hvern miSvikudag og
laugardag af
THE LÖGBERG PRINTING & PUBLISHING CO.
Skrifstota: Atgreiðsl ustoia:
148 Princess Str., Winnipeg Man.
Kostar $2,oo um árið (á íslandi 6 kr.
borgist fyrirfram.—Einstök númer 5 cent.
Lögbkrg is puMished every Wednesday and
■S.Muriiay by
Thf. Lögbf.rg printing & publiShing co
at 148 Princess Str., Winnipeg Man.
S ubscription price: $2,00 a year payable
•n advance.
Single copies 5 c.
7. Ar. |
FRJETTIR
CANADA.
Ny-útkomnar verzlunarskj'rslur
Canada s/na, að 1893 námu útfluttar
vörur meira en 4^ millión um fram
f>að sem pær námu 1892, og innflutt-
ar vörur lijer um bil l^ millíón meira
en árið áður. Vörusendingar ftessa
lands til Stórbretalands hafa minnkað
nálega um millíón, en vörusendingar
til Bandarikjanna hafa vaxið um 5
milliónir. Alls námu viðskiptin við
Stórbretaland tæpri millión meira á
árinu 1893 en 1892, en viðskiptin við
Bandarikin uxu um meira en 10 ir.ill-
íónir. Svona hefur farið prátt fyrir
McKinley-lögin. Hvað mundi þá
ekki verða, ef tollgarðurinn væri rifinn
niður, eða að minnsta kosti lækkaður
á landamærunum. t>essar tölnr ættu
að gela synt almenningi svo ljóslega,
sem þörf er á, að f>að er eðlilegast
fyrir oss Canadamenn, að eiga vor að-
alviðskipti við Bandarikin, eins og
frjálslyndi flokkurinn hefur haldið
fram um mörg ár, og að það er pvi
inest undir pví komið fyrir viðskipti
landsins, að verzluninni milli Canada
°g Bandarikjanna verði gert sem
ljettast fyrir.
Það eru sagðir meira en litlir
örðugleikar, sem Sir John Thompson
á með ráðgjafa sína út af skólamálun-
um i Manitoba og Territóriunum, eins
og vikið var á i siðasta blaði. Svo
mikil brögð eru að vandræðum peim
sem stafa af óánægju frönsku ráðherr-
anna, að Sir John hefur orðið að boða
governor og stjórnarformann Terri-
tóríanna til Ottawa til þess að vita,
hvort engu verði um f>okað.
t>eir fjeglæframennirnir Mc-
Greevy og Connolly liafa verið látnir
lausir úr varðhaldinu og þeim gefnar
upp sakir. E>eir fengu læknisvottorð
fyrir pví að lieilsunni væri hætta búin
í fangelsinu.
1 il dæmis um J>að, hve mikil eru
snjóþyngslin í strandfylkjunum má
geta þess, að sumstaðari New Bruns-
wick hefur lestagangur á járnbraut-
um hætt ura stund og á einni braut-
inni verður engin umferð þangað til i
vor. Það kostaði $5000 á dag, að ná
snjónum af Intercolonial brauJnni í
febrúarmánuði. í Manitoba liefur par
á móti svo að segja aldrei orðið nein
viðstaða til muna á lestagangi á járn-
brautum í vetur.
BANDARIKIN.
Eptir síðustu landmælingum
Bandarikjanna eru par 632,058,122
ekrur af óteknu landi. En mikill
meiri hluti pessa lands er óhæfur til
jarðyrkju, og í raun og veru einskis-
virði, pótt eitthvað af þvl megi nota
með dyrum vatnsveitingum. A dálitl-
um pörtum er skógur. en mikil og
dyrmæt námalönd eru enn eptir ó-
numin,
James J. Hill, forseti Great
Northern brautarinnar,hefur allt und-
irbúið til pess að leggja braut frá
Fosston til Duluth, eptir J>ví sem stað-
hæft er 1 blöðunum. Sagt er, að
brautin muni verða lögð í vor, og bú-
izt við, að fyrir bragðið muni C. P. R.
neyðast til að flyta sjer með Duluth
og Winnipeg brautina.
Prendergast sá er myrti Harrison
borgarstjóra i Chicago hefur ekki
fengið mál sitt tekið fyrir af nyju,
eins og hann sótti um, og á að hengj-
ast á föstudaginn langa. Hátíð er til
heilla bezt!
Winnipeg, Manitoba, laugardaginn B. tnarz 1834
ítlOnd.
Frá Lundúnum koma J>ær merk-
isfrjettir, og virðast vera áreiðanleg-
ar, að Gladstone ætli að segja af sjer
formennsku brezku stjórnarinnar ein-
hvern hinna næstu daga fyrir van-
lieilsu sakir; einkum er sjónin og
h eyrnin farin að biia. Rosebery lá-
varður, utanríkisráðherrann, á að
verða eptirmóður hans, en Sir Wil-
liam Vernon Harcourt leiðtogi frjáls-
lynda flokksins í fulltrúadeildinni.
Ekki er sagt, að nein breyting verði
á stefnu flokksins í irska málinu, þótt
Gladstone víki úr foringjasætinu. —
Jafnvel pótt pessari fregn sje almennt
trúað, bar ekki á neinni veiklun hjá
,,hinu gamla mikilmenni“ á fimmtu-
daginn í brezka pinginu. Þá hjelt
hann eina af peim merkilegustu ræð-
um, sem hann hefur haldið um mörg
ár, sagði lávarðadeildinni stríð á hend-
ur fyrir pá mótspyrnu, sem hún hefur
hváð eptir annað á síðustu títnum
veitt merkri löggjöf, sem fulltrúa-
deildin hefur haft með höndum —
sagði, að nú yrði þjóðin sjálf að fara
að skera úr pví, hvort lávarðarnir
ættu að hafa leyfi til að ónjfta allt
starf þeirra manna, sem kosnir væru
af 7 millíónum Breta til að vera lög-
gjafar þjóðarinnar. Ræðan var að
mestu flutt með hinum sama krapti og
með hinni sömu snilld, sem Gladstone
er lagin, og var gerður að henni mik-
ill rómur í þingsalnum.
ftalía ætlar að halda alþjóðas/n-
ingu í sumar i Milano. Hún byrjar
um 1. maí og stendur þangað til I
nóvember.
Lögregluliðið í París er stöðugt
að sitja um að ná í anarkista. 26 af
þeim piltum voru teknir fastir I fyrra-
dag.
Inlands frjettir.
Rvík. 27. jan. 1894.
Stkandasýslu 6. jan.: Síðan
jeg skrifaði yður síðast i nóvember f.
á. hefur tíðin verið mjög umhleyp-
ingasöm og stórhrikaleg. Á jólaföst-
unni rak inn hafþök af ís, sem hvergi
sá út yfir, en eptir að hann var kom-
inn, brá svo undarlega við, að frostin
minnkuðu, svo ekki var nema 4—5
stiga frost mest, en áður liöfðu komið
20 stiga frost. Dyngdi þá niður all-
miklum snjó, og rjett fyrir jólin
bleytti í honum og tók algerlega fyr-
ir liaga. En hagleysan stóð ekki
lengi, því áþriðja dag jóla gerði rosa-
hláku, erstóð þó ekki nemaeinn dag;
en á nyársdag gerði aptur ágætis-
liláku, sem staðið liefur til þessa, og
má nú heita, að jörð sje alauð.
Hval fertugan rak á Gautshamri,
og fáeina höfrunga í Tungugröf og á
Kleifum 1 Kaldbak. Hafísinn er nú
allur horfinn, og er vonandi, að hann
komi ekki aptur.
SuÐUKMÓLASÝSI.U 17. nóv. Vcð.
átta hefur verið mjög óstöðug 1 haust.
Stundum logn og blíðviðri, og stund-
um einhvcr hin mestu rokviðri, sem
gamlir menn muna. Hafa margir
fijer niðri í fjörðunum beðið talsverð-
an skaða I rokviðrum þessum, einkum
þóí rokinu nóttina milli 23. og 24
okt. Meðal annars fuku þá nótt og
brotnuðu í spón 8 bátar 1 Heiðarfirði.
Hús fuku þarog skemmdust meira
eða minna. Á Sómastöðum t. d. fauk
þakið af tveimur heyhlöðum og hey
sem sagt er að muni nema 25—30
hestum. Síldveiðin var þá byrjuð í
Rcyðarfirði, og stóðu þar margar næt-
pr fullar af síld, en í veðriuu slei
þær upp, svo slldin misstist (á að
gizka 7—8000 tunnur), en næturnar
skemmdust meira eða minna. Ein
nótin livarf með öllu því er henni
fylgdi, og er það eigi lítið tjón. Þá
nót átti konsúll C. D. Tulinius á
Eskifirði.
Annars hefur síldvoiðin gengið
vel í haust. „Vaagen‘‘ er búin nð fara
með einn sildarfarm, og ,,Jæderen“ er
hjer nú í 2. sinn eptir síld, og von á
fleiri skipum.
Barðastr.sýslu vestanv. 21. des.
Fyrir fáum dögum rak við Patreks-
fjörð á land allmikið af hafísjökum
og firðir allir fylltust ísi, og fyrri var
hans vart orðið: en I gær var aftaka-
suðaustanrok, og rak hann þá burtu
aptur.
Heilsufar fólks hefur venð al-
mennt í lakasta lagi síðan í haust.
M jög þung og illkynjuð kvefsótt hef-
ur gengið hjer um sveitir og hafa
margir verið lengi veikir í henni, og
hún gengið mjög svo nærri sumum,
tynt alla upp á sumum heimilum, og
víðastkomið að meira eða minna leyti.
Bólguveiki og taugaveiki liefur og
stungið sjer niður, og ymsir aðrir
kvillar.
Rvík. 1. febr. 1894.
Brauð vkitt. Landshöfðingi
veitti 19. f. mán. prestaskóla kand.
Vilhjálmi Briein Goðdalaprestakall í
Skagafirði.
Lausn frá rRKSTSsKAi* hefur
sjera Jakob Benidiktsson í Glaumbæ
fengið frá næstu fardögum með eptir-
launum, sakir heilsubrests. Hann
vígðist 1855, að Eiðum.
Kirkjuflutningur. Landshöfð-
ingi hefur í gær lagt samþykki sitt á,
að kirkjan á Hjaltabakka verði lögð
niður sem kirkja, en viðhaldist sem
líkliús, en að ny kirkja verði reist í
hennar stað á verzlunarstaðnum
Blönduós.
Mannklát. Sannfrjett er lát
()lafs umboðsmanns Pálssonar á Höfða-
brekku. Hann hafði mánudagsmorg-
un 15. f. mán. riðið á fjörur að heim-
an frá sjer, en þann sama dag kom
hestur hans heim nál. miðjutn degi,
þá mannlaus. Var gerð leit næstu
daga á eptir, en árangurslaust. Er
haldið að hann muni hafa drukknað I
Múlakvísl,þar sem hún rennurtil sjáv-
ar skammt fyrir austan bæinn á
Höfðabrekku. Hafði sjezt slóðir I
bröttum sandbakka þar fram við
vatnið.
Rvík. 3. febr. 18894.
Vkstmann akyj u M á Pálsmessu
1895. Hinn 17 og 18. þ. mán. reitt-
ist dálítið af þorski, síðan hefur eigi
gefið; annars hefur hjer verið fiski-
laust í allt haust og vetur.
Búnaðarfjelagið eða framfarafje-
lagið hjer hefur unnið eigi lítið að
túnasljettun á þessum vetri. Sumir
í því fjelagi hafa fengið útmælda
nyja bletti ur.dir tún við jarðir sínar,
og mun einn bóndi hjer vera búinn
að láta sljetta f vetur um 700 ferh.
faðtna af nyju túni; 2 aðrir liafa girt
og sljettað talsvert af nyjum tún-
blettum.
Með nyjungum má telja, að hjer
hefur í vetur verið komið á álrysgð á
kúm; er ábyrgðargjaldið 4 prbl af
matsvcrði kyrinnar, og fjelaga^ fá
bætur að svo tniklu leyti ábyrgðar-
sjóðurinn hrckkur til.
Hinn nyi sparisjóður hóf störf
sín nú við áramót, og eru þegar lagð-
ar í hann um 1000 kr. Haan gefur
fyrst um sinn 3,60 pr.ct. vexti lánar
ótgegn 5 prct. vöxtum. Utlit fyrir
að hann muni þrífast vel.
Heilsufar hefur yfir höfuð verið
U1jöy
LJEKNAB ADBA
Mun lækna yður; svo ev |>ví varið með
AYElt’S Sarsaparilla, þcgar hún er tekin
inn við veikindttm, sem staúi af óhreinu
btóði; en pó að þetta sje satt um AYEKS
Sarsapariila, eins og þtísundif manna geta
vitnað, þá er ekki hægt að segja (>að með
sanni utn önnur lyf, sem óhlutvandir verzl
unarmenn kunna að mæla með, og reyna
að fleka yður með, eins og þau sjeu „alveg
eins góð eins og Ayers“. Takið Ayers
Sarsaparilla og ekkert nema Ayers, ef
þjerþurfið blóðhteinsandi meðal, og tið
munuð hafa gott af |>ví til langframa. Þetta
meðal hefur tim nílega 5o ár haft mikið
álit á sjer, og lækúúð tteiri menn en nokk-
urt annað lyf hefur gsrt. AYERS Sarsa-
parilla upprætir hvern snert af kirtlaveiki,
sem að erfðum hefur komið, og aðra blóð-
sjúkdóma, og nvtur trausts almennings,
einís og hún á skilið.
Sarsaparilla
„Jeg get ekki stillt mig um að láta í Ijós
fögnuð minn út af |>eirri heilsubót, st-m
jeg lief íengið við að neyta AYERS Sarsa-
parilla. Jeg I jáðist af nýrna sjúkdðmi
hjer um bil sex tnánuði, og hafðt ntiklar
þrautir í mjóhryggnum. Auk þets var
líkami m;nn þakiuu graftrarbólum. Mjer
batnaði ekkert af þeim meðölum,sem mjer
vorn ráðlögð. Jeg fór svo að taka AYERS
Sarstiparilla, og á stuttuni tíma voru þraut-
irn ii hættar og útbrotin horfin. Jpg ráð-
legg hverjuni ungum karlmanni eða konu
sem þjáist af sjókdómum, er stifa af ó-
lireinu blóði, að taka AYERS Sarsapartlla,
hvað gamall. sem sjúkdómurinn katin að
ver8.“ — II. L. Jarmann, 38 William st.,
New York City.
MUN LÆKNA YDUR.
\
Btíið til at l)r. .1. C. Ayer & Co,. L'owell,
Mass.
Næpar birgðir eru af flestum
nauðsynjavörum i verzlaninni.
Konungi.eg auglýsing. Stjórn-
arskrárávarpi neðri deildar í sumar er
svarað svo í konutiglegri auglysingu
15. desbr. f. á.:
„Vjer metum mjög mikils holl-
ustu þá við Oss, er ávarp þetta ber
svo hlyjan vott um, og er það einnig
Oss gleðiefni að líta yfir árangurinn
af samvinnu alþingis og stjórnar
Vorrar um liðin ár. En gagnvart
slíku stjórnarskrárfrumvarpi og því
er nú hefur samþykkt verið, sjáum
Vjer Oss eigi fært að breyta þeirri
stefnu, er Vjer liöfum ávalit fyigt í
þessu máli og Vjer gerðum síðast
grein fyrir í auglysingu Vorri til ís-
lendinga, dagsettri 2. nóvember 1885,
þá er um lagafrumvarp var að ræða,
er fer mun skemmra en þetta frum-
varp í þá átt, að skilja ísland frá rik-
isheildinni. Af þeim sömu ástæðum,
sem þar eru teknar fram, verður þess
heldur ekki vænzt, að þetta frumvarp
öðlist staðfestingu Vora, enda þótt
það kunni og að verða samþykkt af
hinu nykosna alþingi, er Vjer liöfum
stefnt til fundar næsta sumar með
opnu brjefi Voru, dagsettu í dag.
Þetta höfum Vjer viljað gera
Vorum kæru og trúu þegnum á ís-
landi kunnugt nú þegar, til þess að
enginn láti leiðast af vonum í þessu
máli, sem eigi munu geta rætzt, og til
þess að gera með J>ví það, sem í Voru
valdi stendur til þess, að alþingi verði
svo skipað eptir kosningar þær, er í
hönd fara, að það í stað þess að eyða
til einskis kröptum landsins í tilraun-
ir til þess, að koma fratn stjórnarskip-
unarbreyting, sem eigi verður sam-
rymd eining ríkisins, kosti heldur
kapps um, að halda fram uppteknum
störfum að heill og framförum Islands
með þvl stjórnarskipunarlagi, sein er,
og reynzt hefur svo viðunandi, að því
má hlíta til fulls I þær þarfir, og að
þessu lieitum Vjer enn að styðja
af alhuga“.
Aliíating. Jleö koUiingsbrjcfi
15. des. f. á. cralþingi boðað til auka-
fundar 1. ágúst I894og er svo ákveð-
ið, að það megi eigi eiga setu lengur
en tnánuð.
Ferdaf.jki.agið danska ætlar nð
hafa hingað tvær ferðir I sumar, með
Niðarós, ágætu 1. flokks skipi og
þægilegu, sem fer frá Kböfn 6. júlí,
og aðra ferð með Laura 5. ágúst. Er
ferðinni lieitið til I>ingvalla, Geysis
og Heklu I fyrra skiptið, en I síðara
skiptið að eins til Edngvalla og Geys-
is. Fyrri hópurinn er ætlazt til að
verði 30 manns; fjelagið hefur eigi
ráð á meira rúmi á skipinu en svo.
E>að verða að vera vaskir ferðamenn,
þvi ekki stendur skipið við nema 8
daga. Fjelagið ætlaði að fá viðstöð-
una lengda ltjá gttfuskipafjelaginu, en
af því gat ekki orðið, og mun þó þessi
aukaferð með Niðarós hafa ráðin ver-
ið meðfratn vegna væntanlegra út-
lendra ferðamanna. Bezt hefði verið,
ef ferðafjelagið hefði getað leigt sjer
sjálft skip; en það mundi líklega of
mikið I ráðizt að svo stöddu, meðan
skyli vantar á Þingvöllum og við
Geysi in. m.
í>að fer varla hjá því, að skemntti-
ferðir liingað aukist smám sarnan.
Þetta ferðafjelag I Khöfn virðist gera
sjer mikið far um, að örva ferðahug-
inn liingað.
(ísafold).
AFNÁM ÖLDUNGADEILDAR-
INNAR
I Ottawa var til umræða í fylkisþing-
inu lijer nú I vikunni. Mr. Fisher
kom með tillögu til þingsyfirlysiugar
viðvíkjandi deildinni, og voru aðalat-
riðin J>ati, að Manitoba og Terrítórí n
hefðu þar ekki sanngjarnlega marga
fulltrúa; að aðferðin við að gcra menn
að senatoram væri ekki samkva m
hinni rjettu hugmynd um, hvernig
fylkin ættu að fá fulltrúa sína; að
deildinni liefði alls ekki tekizt að
svara tilgangi þeim er hún hefði ver-
ið stofnuð I; og að annaðhvort yrði
að koma stórkostleg breyting á til-
högun hennar eða þá yrði hún sð af-
nemast með öllu.— Tillaga þing-
mannsins var samþykkt í einu ltljóði.
Engir tóku til máls nema uppástunj. u-
maðurinn, sem lijelt ágæta ræðu um
málið.
SPURNINGAR OG SVÖR.
/Sp. Ef maður tekur til leiga
part af landi annats manns, sem hefur
dóm á móti landi sínu eða eignum,
eða sem hefur veðsett eignir stnar, er
þá ekki sá sem befur tekið l»nd] art-
inn til leigu I neinni Lættu fyrir því
að sá maður sem liefur dóm ir.óti
landinu eða veð I þvl, taki uppsker-
una af honum, þótt löglegir samning-
ar sjeu gerðir milli leigjanda og
leiguliða?
Sp. Ef skuldheimtumafurinn
hefur ekki gert neinar ráðstafanir til
að verða handhafi að landinu, þegar
byrjað er að sá, þá er uppskerunni ó-
hætt, en hafi hann byrjað á þeim ráð-
stöfunum um það Jeyti, er hætt við
að leiguliðinn missí uppskeru sína.
fllveD rjett
— sem þjer hafið frjett. —
BALDWIN & BLONDAL
selja nú um tíma viðbót af þeiin
myndum, sem á8ur liafa verið teknar
hjá þeim (Duplicates) fyrir $2.00
tylftina. En borgun verður að fylgja
pöntuninni; þeirjúti I hinum ymsu fs-
lenzku nylendum, sem Mr. Blöndal
hefur tekið myndir af á undan farandi
sumrum, ættu að nota tækifærið; það
stendur naumast lenai.
207 Paciflc flvo., Winnipeg% flfan,