Lögberg


Lögberg - 07.03.1894, Qupperneq 2

Lögberg - 07.03.1894, Qupperneq 2
2. LÖGBEP. MIÐVIKUDAOINN 7. MARZ 1S°4. Geliö út aC 143 Prinoess Str., Winnipjj Win I The I.ogberg Printing ár Publishing Co'y. (Incorporated May 27, iK9o). Ritstjóri (Editor); EINAR HföRLEIFSSON Business manager: B.T. BJORNSON. AUGLÝSINGAR: Smí-auglýsingar 1 eitt skipti 26 cts. fyrir 30 orS eCa 1 þuml. dálkslengdar; 1 doll. um mánutfinn. A stserri auglýsingum eða augl. um iengri tima at- sláttur eptir samningi. BÚSTAD A-SKIPTI kiupenda verCur aC ti) kynna skri/tega og geta um fyrverandi bú staS jafnframt. UTANASKRIPT til AFGREIÐSLUSTOFU blaCsins er: THE LÓCBERC PI^INTINC & PUBLISK- CO. P. O. Box 388, Winnipeg, Man. UTANASKRIFT til RITSTJÓRANS er: EDITOK LftCBERfi. P. O. BOX 368. WINNIPEG MAN. DAGINN 7. MARZ 1894. — ty Bamkvæm lanaslögum er uppsögn kaupanda á blaði ógild, nema hann sé skuldlaus, þegar hann segir upp. — Ef kaupandi, sem er i skuld viö blað- ið flytr vistferlum, án þess aö tilkynna heimilaskiftin, þá er það fyrir dómstól- unum álitin sýnileg sönuun fyrir prett- vísum tilgang'. |tr Eptirleiöis verður hverjum )>eim sem sendir oss peninga fyrir blaðið sent viður kenning fyrir borguninDÍ á brjefaspjaldi, hvort sem borganirnar hafa til vor komið frá Umboðsmönnum vorum eða á annan hátt. Ef menn fá ekki slíkar viðurkenn- iugar eptir hælilega lángan tíma, óskum vjer, að þeir geri oss aðvart um það. — Bandaríkjapeninga tekr biaðið fullu verði (af Bandaríkjamönnum), og frá íslandi eru íslenzkir pen- ingaseðlar teknir gildir fullu verCi sem burgun fyrir blaðið. — Seudið borgun í F. 0. ifoney Orders, eöa peninga i Re gistered Letterr. Sendið oss ekki bankaá vísanir, sem borgast eiga annarstaðar en í Winnipeg, nema 25cts aukaborgun fylgi fyrir innköllun. Gliidston segir af sjer. Fregnin í síðasta blaði voru, um að Gladstone ætlaði að segja af sjer, hefur reynzt sönn. t>að mun hafa verið síðara hlut föstudagsins, að hann fór að finna drottninguna í Windsor kastalanum, til J>ess að færa henni skjalið um afsögn sína, og var hann gestur drottningar um nóttina. Hún )»auð honum, að sögn, að gera hann að lávarði, en hann mæltist undan að f»iggja J»á tign. Enginn vafi er nú talinn á J»ví, að Rosebery jarl verði eptirmaður hans. Vitaskuld á nokkur óánægja sjer stað með J»að, að hafa einn af lávörðunum fyrir aðalleiðtoga frjáls- lynda flokksins. Einkum er flokkur I.aboucheres J»vf mjög mótfallinn. En samt sem áður er talið, að Rose- bery muni hafa meira fylgi meðal Jjjóðarinnar en nokkur annar af höfð- ingjum flokksins, að Gladston undan- skildum, og flokkur Laboucheres er um pessar mundir talinn mjög fálið- aður. Eins og nærri má geta, er J»essi m »rkisatburður í sögu Stórbretalðnds aðal-umtalsefni brezku blaðanna J»essa dagana. Saga 19. aldarinnar hefur naumast frá öllu átakanlegri atburði að sk/ra. Giadstöne stendur mitt í sínu mesta frægðarverki, J»ví verki h ins, sem að líkindum hefur J»urft m»ira J»rek til að hefja en nokkurt annað af hans stórvirkjum. Hans andlegi próttur virðist enn óskertur— ea svo bilar sjónin og heyrnin, O' hann verður að kveðja störf sín, ef til vill f»egar mest parf áhonum að halda. Auðvitað er enn eigi unnt að gera sjer neina rökstudda grein fyrir J»sim afleiðingum, sem J»essi stjórnar- f jrmanna-skipti kunnaað hafa. Aug- sÝnilega eru sumir þingmennirnir mjög óánægðir með J»að, að Glad- stone skyldi segja af sjer, og hafa jafnvel ótvíræðlega kennt það drottn- ingunni og sumum embættisbræðrum Gladstones. Sje f»vf svo varið, virð- ist pað benda á, að einhverjar breyt- ingar á prógrammi Gladstones muni vaka fyrir f»eim ráðherrum. Jafnframt koma og nú f»egar fregnir um, að ekki muni örvænt um, að til samkomu- lags kunni að draga með Rosebery lávarði, og J»eim mönnum, sem undir forustu Hamiltons lávarðs og Cham- berlains gengu úr frjálslynda flokkn- um út úrírska málinu. En hve sann- ar sem J»ær spár kunna að reynast, hefur enn engin rödd heyrzt úr frjáls- lynda flokknum í pá átt, að breyta stefnu flokksins f frska málinu. Skuhlir fylkisins. Vjer lásum nýlega J»á staðhæf- ing í hinu íslenzka samtíðarblaði voru hjer í Winnipeg, að stjórn sú sem nú situr að vöidum hjer í fylkinu hefði tekið við fjármálum J»ess pannig, að ongar veðskuldir hefðu á J»ví hvílt. Og svo var fárazt mjög út af pví, að nú væri búið að taka millíónir dollara til láns á fimm árum og að fyrir gengdarlausa eyðslusemi Greenway- stjórnarinnar væri Manitobafylki „á harða-skeiilspretti beinu leiðina til gjaldprota.“ Pað væri alvarlegt mál, petta, ef hjer væri rjett með farið, og vjer teljum pað skyldu hvers Manitoba- manns, íslendinga, eigi síður en ann- ara, að leitast við að gera sjer fulla grein fyrir sannleikanum í pessu efni. Er pað satt, að fjárhag fylkisins sje að hraka í höndum Greenwaystjórnarinn- ar í samanburði við f»að sem hann vsr í höndum Norquaystjórnarinnar? t>egar er vjer sáum f»essa stað- hæfing Heimskringlu, hugsuðum vjer oss að gera við hana athugasemdir, sem gætu leiðbeint mönnum í eptir- leitun sannleikans pessu efni viðvfkj- andi. En vjer höfum ekki komið J»vi í verk fyrr en nú, að vjer viljum mæl- ast til pess, að lesendur vorir gefi vandlega gætur að eptirfarandi tölum. Vjer göngum að J»ví vísu, að sumum kunni að Jjykkja pær nokkuð ,.purr- ar“; við pví verður [ekki gert; tölur eru pað jafnaðarlega. En vjergerum oss í hugarlund, aðhverjum, sem ekki kann J»ær utan að áður, og les pær með athygli og umhugsun, og J»eim ásetningi að fræðast um hag fylkis- ins og meðferð ssjórnarinnar á al- mennings fje, muni J>ykja pær all- fróðlegar. Vjer ábyrgjumst að töl- urnar eru rjettar, svo framarlega, sem ekki slæðist inn prentvillur. Norquaystjórnin gaf út til stuðn- ings járnbrautum veðskuldabrjef, er fylkið stendur f ábyrgð fyrir, sem hjer segir: Til Manitoba og N. W. braut.tr innar..................... $786.494,27 „ Winnipeg og Hudson Bay brautarinnar ............. 255,986,66 ., Man. & South Western Co- lonization brautarinnar.... 899,846,66 Samlals. $1,942,327,59 Auk þessara veð- skulda,* sem námu allt aC tveim millí- ónum dollara, Ijet og Norquaystjórnin eptii sigeptirfarandi skuldir, sem Green- waystjórnin varð að borga: Sjóðþurð (deficit).. $315,000,00 Ogoldnar rentur af járnbr. skuldabrjefum 318,443,95 Rentu-rentur þar af 69,098,54 702,522,49 Skuldír Norquaystjórn- ar samtals.......... $2,644,85'',08 En ofan á þessa skuldasúpu Norquay stjórnarinnar bætt- ist svo það, að hún hafði dregið út úr sjóði fylkisinsí Otta wa (capital account) 742,842,58 $3.387,6 92,66 Berum nú saman við J»etta fjár- mála-frammistöðu Greenwaystjórnar- innar. Þegar hún kom til valda í fe- brúar 1888, var fjárhirzla fylkisins *) Oss skilzt svo, sem Hkr. eigi við „bonded debt“ par sem hún er að tala um „veðskuldir“ fylkisins, og vjer látum hennar orð halda sjer, til »ess menn skuli eiga ljettara með að átta sig á ágreiningsefninu; annars væri ef til vill rjettara, að nefna J»ess- ar skuldir „veðbrjefaskuldir“. tóm, og borga varð tafarlaust sjóð- purðina, sem nam $315,000; sömu- leiðis lentur og rentu-rentur af járn- brauta-skuldabrjefunum, »em áður eru nefnd, $387,542,49. Til J»ess að geta pað átti stjórnin einskis annars úr- kosta en að taka til láns fje, og pað gerði húa auðvitað. Fje pað sem stjórnin hefur tekið til láns fram á Jjennan dag nemur, að frádregnum 1 á:: s - kostnaði.......... $2,264,939.57 pví hefur verið varið þannig: Styrkur til járn- brauta, 461 míla $791,497,30 Reistar almennings stofnanir, svo sem vitfirringaspítalinn í Brandon,heimiIi fy r - ir ólæknandi menn í Port. la P,, heyrnai og málleysingja- skóli í Wpg, „Land Title“ skrifstofur, o. s. frv.......... 357,662,86' Aðrar umbætur i ai- mennmgs þarfir... 76,7t5,99 Sjóðþurð og ógoldn- ar leigur frá dögum Norquaystjórnar. . . 702,522,49 ísjóCi 1. jan. 1894 336,540,93 $2,264,939,57 Þegar pær skúldir, sem Norquay- stjórnin skildi eptir og núverandi stjórn hefur orðið að borga, eru dregn- ar frá upphæð peirri sem Greenway- stjórnin hefur tekið til láns, pá verða 1 ið sínar ályktanir sjálfur af pvl sem bjor að ofan stendur. Fargjaldspeningarnir enn. Ritsjóra Heimskringlu verður enn skrafdrjúgt um fargjaldspening- ana góðu. Margir mundu hafa hald- ið, að hann Ijeti sjer nægja pað að láta Mr. Hartnev hlaupa apríl, ekki meiri sóma en hann hafði upp úr peirri rekistefnu. En J»að er eins og manninum sje ekki sjálfrátt, svo mikla ástríðu hefur hann fyrir að vaða utn petta mál, sem hann augsynilega botn- ar ekkert í og veit ekkert um — svo maður sje svo góðgjarn að ganga ekki að pví vísu, að hann sje að flækja petta mál gegn betri vitund. Hann liefur af nýju ritað greinir um petta tnál í blað sitt og í Nor’- Wester. Og aðalatriðið í peim er petta, að svo margir af útflytjendun- um frá síðasta sumri bafi verið „bók- aðir“ af Dominion- og Allan-línunni, að bótt stjórnin hefði lánað allt far- gjaldpeirra manna,sem „bókaðir“ voru af Beaverlínunrii, pá hefði ekki sú upphæð numið eins miklu eins og stjórnin segi að enn standi eptir hjá vesturförum. £>ess vegna á að vera „stórlýgi og stórsvik á ferðum hjá einhverjum.11 W. E. GLADSTONE. eptir $1.225.876.15. Það er sú láns- upphæð, sem núverandi stjórn ber 4- byrgð á. Fyrir henni getur hún synt 461 mílu af járnbrautum, og pær stofn- anir til almennings parfa, sem áður er á minnzt. Þar á móti gat Norquaystjórnin ekkert synt fyrir skuldum sínum, sem námu...................$ 702.522.49 nje heldur fyrir pví fje, sem hún hafði dregið úr sjóði fylkisins I Ottawa 742.842,58 samtais $1.445.365.07 nema pinghúsið og „Land Title“ skrifstofuna í Winnipeg og auk pess vorn skuldabrjefin sem hún hafði gef- ið út, og námu $1,942,327,59, eins og áður er sagt. Aðalinunuriun 4 fjármála-frammi- stöðu stjórnanna verður pá sá, að Greenwaystjórnin hefur varið 1-J mill- ión dollana í opinber verk og til að styrkja jáfnbrautafyrirtæki, en Nor- quaystjórq/n hefur eyttnálegal^ mill- ión í stjórnarkostnað. að pví undan- teknu að hún ljet reisa tvö hú3, sem i hæsta lagi eru $150,000 virði. Og svo er ritstjóri Heimskr. að tala um, að engar veðskuldir hafi hvílt á pessu fylki, pegar Greenwaystjórn- in tók víð völdunnm, ogaðfyrirhenn- ar aðgerðir sje fylkið að verða gjald- »rota! Oss virðist ekki ástæða til bera að gera að sinni frekari athuga" semdir við pá staðhæfingu. Hver skynsamur lesandi ætti að geta dreg Eigum vjer að trúapví, að mann- inum sje svo ókunnugt um málið, að hann haldi, að enginn af peim sem „bókaðir“ voru af Dominion- eða Allan-línunum hafi fengið lán til vest- urferðar? Veit hann ekki, að umboðs- maður Manitobastjórnarinnar var far- inn að semja við menn um lán til vesturferðar löngu áður en Beaver- línan gat nokkurn farpega bókað? Ef hann veit pað ekki, pá ætti honum að vera auðvelt að atía sjer peirrar vissu. Hann hefði vitaskuld átt að afla sjer hennar áður en hann rjeð af að fara að væna stjórnina opinberlega um ó- ráðvendni í pessu máli, pví að pá hefði ekkert orðið úr pessun vaðli hans—svo framarlega sem hann er ekki að koma með pessar getsakir gegn betri vitund, eins og vjer sögð- um áður. Rafurmagns lækninga stofnun Professor W. E. Bergman læknar með rafurmagni og nuddi gigt, líkamsvisn- un og hárlos á höfðum. Hann nem- ur einnig burtu yms lyti 4 andliti hálsi, handleggjum, og öðrutn lík- amspörtum, svo sein móðurmerki, hár hrukkur, freknur ofl. Kvennfólk ætti að leita til hans. Telephone 557. HEIMILID. Aðsendar greinar, frumsamdar og þýdd- sr, sem ceta beyrt undir „HeimiUð“• verða teknar með þökkum, sjerstaklega ef þær eru ura bíislcap, en ekki mega þær vera mjög iangar. Ritið að eins öðrumegin á blaðið, og sendið nafn yðar og heimili; vitaskuíd verður nafni yðar haldið ieyndu, ef þjer óskið þess. Ut anáskript utan á þess konar greinum: Editor „Heimilið", Lögberg, Box 368 Winnipeg, Man.] Um gkipafóður. (Utdráttur úr ræðu sem Mr. Bedford i Brandon hjelt á búnaðarfjelagsfundi í Winnipeg 17. janúar). Spursmálið um fóður-byrgðir er mjög áríðandi. Það er gamalt orðtak að peirri skepnu sem sje í góðu standi á haustin, sje borgið hálfan veturinn, og er nokkuð hæft I pví. Með geld- neyti er enginn vandi, purrir haust- hagar — ef að eins er nóg af peim — nægja peim, en mjólkandi kyr og kyr sem eru komnar nærri burði, purfa að hafa eitthvað betra. Góðir “Timothy”- eða “Blue grass”-hagar eru ágætir handa peim, par eð peir eru grænir svo langt fram eptir haustinu. Hjer fyrr á tímum var grasið hjer í landinu svo yfirfljótanlegt, að pað nægði ein- göngu til vetrarfóðurs handa skepn- unum. Margir bændur standa á pví enn í dag að par sem ekki sje nóg myrarbey, geti griparækt ekki lukk- azt. Væri svo mættu menn hjer í stórum hluta vesturfylkisins leggja árar í bát, pví Hóa-heyið sem fyrrurn var s'ík gnægð af, er víða algjörlega undir lok liðið. En pað gleður mig að geta fullvissað menn um að pað mi rækta par ymsar fóðurjurtir, og griparækt ásamt með jarðyrkju bless- ast par einlægt betur og betur. í fyrirmyndar-búinu I Brandon hefur einmitt pessu spursmáli verið veitt sjerstakt athygli, og fjölda gras- og fóðurtegunda hafa árlega verið ið reyndar par. Margar peirra hafa að vísu reynzt óhæfar fyrir petta kalda loptslag, en svo hafa aptur aðrar gef- izt allvel. Hingað til hefur oss ekki heppnast með Timothy. F’yrsta upp- skeran varð heldur ljeleg og sú seinni varð svo að pað borgaði sig naumast að slá hana. Sumum bændum hefur lukkazt betur en oss, en I öllum til- fellum reynist best að sá gisið, — 4 til 6 pund í ekruna er nóg í flestan jarðveg. Hinar aðrar tegundir af ræktuðu grasi sem vjer höfum reynt voru Austrian Brome Grass, Orchard Grass, Rough Meadow Grass, Italian Rye Grass, Meadow [Foxtail og Fes- cues. Af pessum tegundum reyndist Austrian Brome bezt. Það er hátt gras og gefur af sjer 2 til 2| ton af ekrunni. Jeg hika mjer ekki við að benda á pað til aðalræktunar, pví pað er hið eina innflutt gras sem má segja að heppnast vel. Sá tíu pundum í ekruna. Fræið tn& fá austan að til að byrja með, en eptir fyrsta árið geta bændur ræktað sitt eigið útsæði ef J»eir vilja. Sem stendur er pað nokk- uð dyrt. Eptirfylgjandi smárategundir hafa verið reyndar á búinu: Mammoth Red, Lucerne, Sanfoin, White Dutch, Alsike, Common Red ogTrefoil. Bezt reyndust Mammoth Red og White Dutch. Hin fyrnefnda er betri fyrir hey, liin síðarnefnda fyrir haga-gras. Auk pessara innfluttu grasa hafa margar innlendar tegundir verið reyndar, og margar peirra synast ætla að gefast vel. Utsæði til sumra peirra verður úbytt gefins í vetur, svo pjer hafið færi á að reyna pær sjálfir. Hjer um bil 20 tegundir af “Millett” höfum vjer fengið víðsvegar að, en engin peirra jafnast á við “Hungarian Grass”. Af pví fást 2 til 4 ton af ekrunni af purru heyi. Bezt er að sá Millet- fræinn óðara og búið er að plægja, áður en jörðin pornar. Oss liefur einnig gefizt vel til fóðurs hafrar — slegnir áður en peir eru fullproska. Jafuvel hið fyrir- Ittna hveitistrá má vel nota með öðru; að minnsta kosti höfuin vjer álitið pað of dyrmætt til að brenna pað. Sá bóndi sem I hirðuleysi eyðileggur petta fallega græna strá sem vjer höf- um af ökrunum hjer, gerir að mínum dómi stórt glappaskot.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.