Lögberg - 26.10.1905, Page 1
Byssur
dg skotfæri. Takið yður frídag til þess að skjóta
andir og andarunga. Við höfum vopnin sem
með þarf. Við höfum fáeinar byssur til leigu
og skotfæri til sölu.
Anderson ðc Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
S38Main Str Telephone 339.
Steinolí uofnar,
í kveldkulinu er þægilegt að geta haft hlýtt í
herberginu sínu. Til þess að geta notið þeirra
þæginda ættuð þér að kaupa hjá okkur steinol-
íuofn. Verð $5 00 og þar yfir,
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
S38 Main Str. Telephone 339.
18 AR.
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 26. Október 1905.
NR. 43
Fréttir.
Yfir smáþorp nokknrt í Illinois
ríkinu, sem Sorento heitir, gekk
fellibylur í vikunni sem leið. Varö
illviörið fjórum mönnum að bana
og braut og skemdi til murta ná-
lægt því fimtíu íbúðarhús.
Aukaþinginu sænska í Stokk-
hólmi var slitið hinn 18. þ. m. 1
þinglokin hélt Oscar konungur
stutta ræðu og kvartaði hann yfir
að sér þætti miður fara að ríkin,
Svíþjóð og Noregur, hefðu rofið
bandalagið. Kvað hann það vera
sína innilegustu ósk og von að
varanlegur friður, sátt og sam-
lyndi, yrði jafnan á milli þessara
tveggja þjóða. Hinn aldraði kon-
ungur var svo hrærður á meðan
hann var að halda ræðuna, að
honum hrukku tár af augum hvað
eftir annað.
Seinni hluta vikunnar sem leið
gckk óvanalega mikið rokveður
yfir Huron, Michgan og Erie-
vötnin og varð að því hið mesta
tjón og mannskaðar. Margir menn
druknuðu og ellefu skip brotnuðu
í spón, en fimtán skip skemidust
meira og minna og rak á land.
Hjá Indíánum, sem halda sig
kringum Fraser Stewart fijótin í
Brit. Columbia lítur nú út fyrir
bjargarskort í vetur sökum þess
að veiði hefir brugðist x ám og
vötnum þar í sumar og haust.
Er svo sagt að frá fjögur til fimm
þúsund Indíánar séu þar á þessu
svæði, sem rétta verður hjálpar-
hönd.
í rúm tvö ár hefir Bandaríkjar
stjórnin átt í málurn út af
klaustra-eignunum á Philippine-
eyjunum. Voru það fjögur hundr-
uð og tíu þúsund ekrur af landi,
sem deilan var unx, og nxúnkarn-
ix ekki vildu sleppa. Bandaríkja-
stjórnin hefir nú unnið nxálið.
í Baku við Kaspxahafið lítur
út fyrir, að ekki verði þess langt
að bíða þangað til nýjar óeirðir
brjótist út. Hafa Múhamedstrúar-
menn þeir, sem heima eiga i borg-
inn, gert hinum rússnesku íbúum
borgarinnar aðvart um að þeir af
þeim, sem nú eigi heiiua þar í
húsumArmeníumanna, sé ráðlegast
að flytja sig sem fyrst, því á íbúa
allra þeirra húsa verði innan
skanxms ráðist og húsin rifin niður
til grunna.
Kaupmenn í Sarnia, Ont., hafa
nýlega borið upp vandkvæði sin
fyrir stjórninni og heimta rögg-
samlegri tollgæzlu þar í borginni
en átt hefir sér stað að undanförnu.
Segja þeir að töluvert miklu af
tollskyldum vörum sé launxað inn
þangað, og séu þær vörur síðan
seldar töluvert lægra en þeim sé
hægt að selja þær eftir að hafa
borgað toll. Að mestu leyti er það
kvenfólk, sem kaupmennirnir segja
að standi fyrir þjví að lauma in'»
vörunum ótolluðum.
MariaTeresa, systir Alfons Spán-
arkonungs, og sú eina af systrum
hans, sem nú er á lífi, er trúlofuð
Ferdinand prinzi í Bavaríu. Prinz-
inum ætlar Alfons konungur að
veita aðalsmannstign og réttindi á
Spáni.
Flotasýningu allmikla eru Jap-
ansmenn að halda í Yokohama nú
í þessari viku og eru fjörutíu her-
skip af ýmsri stærð þar saman
komin til að taka þátt í sýningunni.
Kosningarnar í Alberta eiga að
fara fram hinn 9. Nóvembermán-
aðar næstkomandi.
Michael A.Doyle skipasmiður frá
Quebec, hefir verið sæmdur heið-
urspeningi, fyrir rösklega fram-
göngu í að bjarga 17 ára gamalli
stúlku, Miss Charlotte L. De Cast-
ner, sem reyndi að granda sér í St.
Lawrence fljótinu í vor. Hún
fleygði sér í vatnið, sem var 30—35
fet á dýpt og ísreki mikill í ánni á
því svæði. Doyle sá til hennar,
varpaði sér þegar í stað í klaka-
vatnið og tókst eftir miklar þrautjr
að bjarga henni til lands.
í Helena, Mont., er nýtekinix
fastur skæður hrossaþjófur,George
Case að nafni. Piltur þessi hefir
verið forsprakki þjófafélags, sem á
einu ári hefir alls stolið um 1,000
hrossum, mest frá Walley héraði,;
biður lxann íxú dóms í Glasgow,
Mont.
í Siclney, Man., hafa menn sum-
staðar fengið frá 58 upp í 63 bush.
hveitis af ekru hverri. Þar er á-;
litið land vænlegast til uppskeru, í
öllu fylkinu.
Prinzinn og prinzessan af Wales
lögðu á stað seint í síðastliðinni
viku til Indlands. Búist er við, að
þau verða 6 mánuði í förþessari.
Konungur og drotning og þeirra
skyldulið fylgdu þeim á járnbraut-
arstöðiixa.
Hrunið er nýja söngleikhúsið í
Neepawa, Man.; liúsið hrundi
snemma nxorguns, og íxxannskaði
kvað eigi hafa orðið, en um er
kent illum og óvönduðum frágangi
á múrbyggingunni. Skaðinn er
metinn mörg þúsund dollara.
Á síðastliðnu ári, talið til 30.
Júní, hafa 886 menn beðið bana af
járnbrautarslysum í Bandaríkjun-
um, en 13,783 skaðast og íxxeiðst.
En skemdir á vélum og vögnum
taldar að íxema nálægt liálfri
þriðju miljón dollara. Borin sam-
an við samskonar skýrslu í fyrra,
eru slysin í ár bæði fleiri og stór-
kostlegri.
Uppskerubrestur á hveiti hefir
orðið allmikill í Mexico, og er því
búist við að nauðsyn þyki bera til
að afnema toll þann, sem hefir ver-
ið á innflxxttu hveiti þangað, frá
Canada og Bandaríkjunum, unx
næstkomandi áramót.
Stórkostleg myndastytta af Piusi
páfa X., seixi safnað liefir verið
samskotum til á meðal kaþólskra
nianna um heinx allan, var nýlega
reist í þorpinu íVenetian héraðjnu,
er páfinn fæddist í. Voru þá og
hátiðahöld mikil á Italíu í sam-
bandi við afhjúpun myndastytt-
unnar.
Tala verkfallsmanna á járnbraut-
um á Rússlaxxdi fer nú óðum vax-
andi meö hverjum degi að hcita
má. Berst verkfallið út með ótrú-
legumhraða og má svo að orði
kveða, að á öllum járnbrautum rík-
isins geri það nú varj: við sig, og
ekkert útlit sé fyrir að það verði
stöðvaö fyrst um sinn. Haldi verk-
falli þessu áfram enn um nokkurn
tíma er talið víst að af þvx muni
leiöa verkföll í flestöllum atvinnu-
greinum i landinu. Borgin Mos-
cow, sem er miðdepill verzlunar-
innar í rússneska ríkinu, er nú at-
gerlega slitin úr samhandi við um-
heiminn sökum járnbrautar verk-
fallsins, og hafa nú allar nauðsynj-
ar þar stigið afskaplega í verði
þessa viku sem nú er að líða. Sama
er að frétta frá ýmsum öðrum
borgum ríkisins, og þykir við því
búið, að alnxenn uppreist hljótist
af fyr en varir.
Gottfred Ward, auðugur og vel-
metinn bóndi frá Willow í N. D.,
rak sig í gegn í fyrrakveld á hey-
forksálmu, er hann stökk niður á í
xgáti út úr vagni, og dó e.ftir fáar
.nínútur.
Svo mikið fannfergi var konxið í
Montana í gær, að farþegalest
teptist þar i 12 stundir af þeixn
sökum.
Aðra stærstu brúna í Canada
byggir Canadian Northern félag-
ið yfir Saskatchewan ána rétt
fyrir norðan Battleford. Nýjustu
fréttir segja að brúarsmíðin fljúgi
franx með degi hverjum.
Stór sögunarmylna brann í Kexx-
ora, Ont., 23. þ. m. Skaði eigend-
anna, Keewatin Lumber Co., met-
inn $60,000.
Tveir unglingar, í South Lan-
caster, Jolin King og Alexander
Lafav.e, annar 16, en liinn 18 ára,
fóru út að skjóta sér til skemtunar
í gærdag. Þeir sáu íkorna, og La-
fave bjóst þegar að skjóta hann, en
rétt þegar skotið reið af byssunni,
vékst King við, svo að hann bar
fyrir byssuhlaupið, og fékk þegar
bana. — Seint lærist mönnum
gætni og varasemi á veiðiförum.
MíHniar í Canada.
Dr. Heroult, frægur frakkneskur
nxálnivinslufræðingur, sem nú sem
stendur er í Ottawa, hefir nýlega
Iátið skoðun sína í ljósi á Canada
sem málmlandi, og farast hor\um
honum þannig orð:
„Að tiu árunx liðnum getur
ekki hjá því farið að Canada verði
orðið mjög mikið málmvinslur
land. Þá mun járnvöru iðnaðurinn
verða orðinn meiri í Canada en
nokkru öðru landi og nógur til út-
flutnings til að byrgja aðrar þjóðir
heimsins með járnvöru. Það verð-
ur sama hvað járnvörurnar snertir
cins og með hveitið. Að einum ára-
tug liðnum verðui ræktað meira
hveiti í Canda en nokkurs staðar
annars staðar á hnettinum. Franx-
leiðsla járns, ódýi'ari en annars
staðar, \ verður þá orðin mikilvæg
atvinnugrein í Canada.
Sorajárn er undirstöðuefnið bæði
í því stáli, sem notað er til bygg-
inga og öðru stáli. Nú sem stendur
verja Canadamenn frá fimtíu til
sextiu miljónum dollara tii þess að
kaupa fyrir stál frá öðrum löndunx.
Alt það stál mætti búa til í landinu
sjálfu, úr efnum þejjm, sem þar eru
fyrir hendi, og gætu landsmenn
sjálfir gert sér það að atvinnugrein.
Jafnvel þó kostnaðurinn við það að
búa til járn og stál hér heima fyrir
yrði svo inikill, að hægt væri að
kaupa það að, eins ódýrt og inn-
lcnda járnið og stálið, þá er þó sá
kostur við, innanlands-franxleiðsluna
að féð, sem til hennar er varið fer
ekki út úr landinu. En nú er
nokkurn veginn óhsett að gera ráð
fyrir að kostnaðurinn við fram-
leiðsluna þyrfti ekki að verða dýr-
ari hér, heWur jafnvel ódýrari en
viða annars staðar.
Það er sannarlega ekki þýðingar-
lítið atriði að geta haldið kyrrum
í landinu þessum sextíu miljónum
dollara, sem árlega er nú keypt
fyrir járn og stál erlendis, að geta
jafnframt fullnægt ekki að eins
þörfinni innanlands fyrir stál í
brautarteina og ýmsar byggingar,
sem aukast ár frá ári, cftir því sem
landið byggist nieira og meira,
heldur selt með töluverðunx ágóða
í öðrunx löndum afganginn, sem
ekki þarf að brúka heima fyrir.
Að svo miklu leyti sem menn
þekkja til þá eru nægar birgðir af
járni í Canada. I Svíaríki eru
járnnániarnir,sem menn þekkja þa
nú senx stendur, nægilega efnisríkii
til þess að fullnægja þörfum heims-
markaðarins í heila öld. Ef menn
nú bera saman þær birgðir, senx
tnenn vita um í Canada, þann dag i
dag, og birgðir Svíaríkis þá er al-
óhætt að staðhæfa að birgðirnar i
Canad aeru þrisvar sinnum meiri en
þær í Sviaríki. Er þ’ví engin ástæða
til að óttast að ekki sé nægilegt
verkefni fyrir hendi fyrst um sinn.“
------ö-------
Fréttir frá íslandi.
Reykjavík, 22. Sept. 1905.
C ' Mjóafirði er ritað 23. Júlí: —
„Veðrátta er hér góð. Hitar og
þurkar hingað til siðan fyrir upp-
stigningardag, en brá nú um helgina
lil votviðra.
Grasvöxtur sæmilegur, einkunx á
deiglendi. Byrjað að slá fyrir 3
vikum síðan.
Fiskiveiðar hafa gengið mjög illa
hér fyrir Austurlandi hingað til, og
beita litil. En nú fer vonandi að
batna úr beituskorti, því síld er far-
in að veiðast í reknet hér úti fyrir
f jörðunum.
Hvalaveiðar hafa gengið vel. Ell-
efsen er búinn að fá um 10,000 föt
fsteiixolíutunnurj og Berg unx 6,000
föt af lýsi, töluvert meira en þeir
fengu í alt fyrrasunxar.
Látinn er hér í Mjóafirði 20. Júní
einn af vorum helztú bændum.sjálfs-
eignarbóndinn Árni Vilhjálmsson, á
Hofi Vilhjálmssonar, 71 árs, en
móðir lians var Guðrún Konráðs-
dóttir Salómonssonar, sunnan úr
Lóni, góð og kröftug ætt. Árni sál.
var kvæntur Þórunni dóttur Einars
heit. Halldórssonar og Önnu heit.
Jónsdóttur. Þau bjuggu í Firði.
Mestu dugnaðar og merkishjón, og
cin hixx auðugustu hjón á sinni tíð
á Austfjörðum, og lifir hún mamx
sinn. Árni sál. var mesti dugnaðar-
nxaður og smiður allgóður.var mesti
heiðursnxaður sem ekki vildi vamm
sitt vita,mjög tryggur vinum sínum,
skenxtinn og glaður. Hann var fríð-
ur og föngulegur maður,þegar hann
var i broddi lífsins og bauð alt af af
sér nxjög gcðan þokka. Hann var
jarðsunginn 29. Júni að viðstöddum
fjölda fólks. Börn þeirra hjóna eru
mörg á lífi; meðal þeirra er Vil-
hjálnxur bóndi og borgari á Hánefs-
stöðum í Seyðisfirði, Jón organisti
og kennari í Mjóafirði, Einar bóndi
á Hofi og Arnlaug hjá móður sinni.
Auk þeirra eru 3 systur álífi, tvær
giftar og ein ógift"1
Látinn er 13-þ.m. Hákon Eyjólfs-
son þóndi á Stafnesi í Rosmhvala-
neshreppi, einhver hinn langefnað-
asti og merkasti bóndi suður þar.
Hann dó úr lungnabólgu.
Heiðursgjafir úr styrktarsjóði
Kristjáns konungs 9. hafa hlotið:—
Jón Sveinbjarnarson bóndi á Bilds-
felli í Grafningý og Helgi Laxdal
bóndi í Tungu á Svalbarðsströnd,
140 kr. hvor fyrir framúrskarandi
dugnað I jarðabótum. — frjóðólfttr.
Reykjavík, 6. Sept. I9°S-
Um bráðabirgðarbólusetninguna í
haust sem leið hefir Magnús Ein-
arsson dýralkknir birt skýrslu í Frey
síðasta. Hann segir að bólusettar
hafi verið nær 21. þús. fjár, og hafi
þar af drepist 37 alls af bólusetn-
ingunni en 343 kindur af pest síðar
eða nær 1 2-3. af hundraði. En af
óbólusettu fé á sömu bæjunum, 7,-
36i alls, dóu úr bráðapest 385, sama
>em tæpir 51 af hundraði.— Pestin
hafði verið nxiklu skæðari í vetur
en árið áður.
Bóluefnin eru þrennskonar: hvitt,
blátt, og silkiþráður. Hvíta efnið
reynist bezt, þ. e. mest vörn í þvi
og er kindinni ekki hættulegt, ef
það er blandað hæfilega bláa efn-
inu. — Dýralæknirinn kvartar um,
að menn vanræki margir að senda
sér skýrslur um árangur bólusetn-
ingarinnar. Minna megi þó ekki
vera en að þeir geri það, er þeir fá
bóluefnið fyrir ekki neitt.
Smjörsalan á Englandi héðan í
sumar ætlar að ganga mikið vel.
Þeir Garðar Gíslason og hans fé-
lagar í Leith seldu viðstöðulaust á
92 a. pundið i 50 tunnum af smjöri,
sem þangað kom með síðustu ferð.
Botníu; hún fór héðan 8. f. m. Það
smjör var alt frá Rauðalækjarbú-
inu í Holtum. Það kvað hafa sent
alls i sumar til þessa 180 tunnur.
Alls eru búin 24, sem sjör hafa sent
út i sumar frá Reykjavík. Ekki
kunnugt hvað mikið það er orðið,
nema að i íshúsið hafa komið 1,623
ílát og xærið flutt flest þaðan með
Botniu í kældum klefa. Sumt hefir
aldrei komið þar, hafi hizt svo á, að
skip hafi verið rétt að leggja á stað,
þegar smjörsendingin kom.
Norðurfaraskipið Belgica kom
lxingað á höfn fyrir nokkru, nál.
hálfum mánuði, frá Grænlands ó-
bygðum, og ræður fyrir þvi Loðvik
Filipp Robert, hertogi af Orleans,
sonur LoðvíksFilipps greifa af Par-
is, en sá var sonur Loðvíks Filipps
Frakkakonungs, þess er hrundið
var af stóli 1848. Hertogi þessi er
nú ættarjöfur Orleansliöfðingjanna,
en þeir kalla tfil rikis á Frakklandi,
jafnhliða ætimönnum Napoleons
nxikla. Hann er rúmlega hálffertug-
ur að aldri (í. 1869) og hefir gefið
sig töluvert við vísindalegunx rann-
sóknarferðum. Þau eru bræðra-
börn hann og Maria prinzessa x
Khöfn, kona Valdimars konungs-
sonar. Hann hefir alist upp á
F.nglandi og Þýzkalandi. Enda
eru þeir frændur útlagar af Frakk-
landi.
Hertoginn lagði norður i höf frá
Trunxs í Noregi sncnxma í Júnimán-
uði og hélt norður um Spitzbergen
til Grænlandsstranda. Þar skutu
þeir félagar á isum 12 hvítabirni og
nokkra rostunga. Meðferðis höfðu
þeir hér á skipinu 2 hvitabjarnar-
liúna lifandi og hund grænlenzkan,
cr þeir höfðu fengið í Trums. Skips
höfnin var norsk mestöll. •— He--
toginn brá sé rtil Geysis og Hek.
og nokkrir förunautar hans.
Skrifað er ísafold vestan af
Breiðafirði i f.mán.,að Guðm. prest-
ur Guðmundsson í Gufudal hröklist
frá því brauði í haust og flytji sig
með fólk sitt til ísafjarðar.í von um
einhverja atvinnu ]?ar, við skriftir
eða því um llkt. „Það er sorglegt,
að prestar skuli, hver af öðrum,
neyðast til að flýja prestaköllin.
Tekjur þeirra af þessum litlu brauö
um eru ekki helmingur á móti góðu
skipstjórakaupi, enda mun Gufudal-
ur vera eitt af aumustu brauðum
landsins, og legst nú líklegast alveg
niöur, sem vonlegt er.‘‘
Marconistöðin starfar enn hér, en
óvíst hve léngi. Því eftir lögunum
frá þinginu núna unx ritsíma og tal-
sima m. m., svo og ritsímasamningn
um alræmda, þá er Ritsímafélaginu
norræna seldur í hendur einkaréttur
yfir loftinu milli Islands og annara
landa, og má stöðin hér ekki starfa
úr því þiau þau lög ganga i gildi.—
Mr. Capito, erindreki Marconifél.,.
sá er hér hefir dvalist i sumar, fór í
fyrradag heimleiðis nxeð Hóluni og
Lauru. Mr. Densham, sá er stöðv-
arinnar gætir, verður hér áfram,
þangað til skipun kemur um, að
hún eigi að hætta að starfa og leggj
ast niður.
Reykjavík, 13. Sept. 1905.
Á Hvítárvöllum brann 8. þ. m.
heyhlaða mikil ásamt áföstu fijósi
fyrir 15 kýr og hesthúsi, alt til
kaldra kola, en þó svo, að nálega
helming af heyinu i hlöðunni tókst
að bjarga, 3—400 hestum, af 7—
800, sem hún tók og var hér um bil
full. Eldurinn kom upp um há-
bjartan dag, laust fyrir hádegi, og
brunnu húsin á örskammri stundu.
Mun hafa verið borið ógætilega
nxikið saman af heyi í hlöðuna,
geilalaust, og kviknað í heyinu nið-
ur við gólf. Menn fjölmentu af
næstu bæjum til að hjálpa, þar á
rneðal Hjörtur skólastjóri á Hvann-
eyri við 16. mann, og stýrði hann
aðallega björgunarviðleitninni af
miklum vaskleik, en hún var í því
fólgin aðallega, að ná sem mestu af
heyinu út úr eldinum og að verja
önnur hús á bænum, sem öll voru f
háska, með því að bálið var svo
nxikið og veður hvast nokkuð. Þar
á meðal var íbúðarhús bóndans, Ól-
afs Davíðssonar, og mjólkurskólinn
með íbúð Gröixfeldts kennara.
Eldur lifði í rústunum fram um
nxiðjan dag á laugardaginn. Hann
hafði magnast svo aftur um nóttina
í milli, að sent var þá aftur eftir
mönnum að Hvanneyri til hjálpar,
en þeir þá að eins nýháttaðir eftir
heimkomuna frá brunanum.
Föturnar frá mjólkurbúinu komu
að góðu haldi sem slökkviskjólur.
En brunnar þrutu brátt og varð að
sækja vatn i Hvítá til að slökkva,
en það er góður spölur.
Húsin, sem brunnu, voru frá tíð
Andrésar Fjeldsted, lxlaðan og fjós-
ið; en hesthúsið gert upp úr öðru
fjósi, sem baróninn hafði reisa lát-
ið Alt var þetta óvátrygt. Er
gizkað á af kunnugum, að húsin
muni hafa verið unx 2,000 kr. virði.
Verður þá beinn skaði að heyinu
meðtöldu nokkuð á 4. þúsund.
'il's'afold.
------o-------
Dauöadagur Nelsons og sigur-
dagurinn viö Trafalgar.
Uixx gjörvalt brezka veldið liefir
'.íæstliðinn 21. Október, 100 ára
sigurdagur orustunxxar við Trafalg-
ar, en dauöadagur Nelsons, nxestu
sjóhetju Englendinga, verið hátíð-
legur haldinn með mikilli víöhöfn.
Mest var þó um dýrðir á Eng-
landi sjálfu. Minnispeningum og
myndum hetjunnar var útbýtt um
skólana hvervetna, og opinberu
byggingarnar hvervetna skreyttar
fánum og alls konar skrúöi.
Aö standmynd hans, á Trafafgar
Square, streymdi múgur og marg-
mexxni, svo eigi varö tölu á korniö,
og á skipinu hans, „Victory", sem
liggur í Portsmouth, voru ótelj-
andi lofræður haldnar um hinn
mikla sjógarp Englands, einmitt
frá þeim bletti á þilfarinu.sem hann
féll á, meö nafn gtxös og fööur-
landsins á vörunum.