Lögberg - 01.02.1906, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN r. FEBRÚAR 1906
5
menn, flestir i landskoöunarferð,
eöa þá landnemar. Sumir hafa að
eins peninga meðferðis,aðrir flytja
með sér alla búslóð sína.. Fremst
í lestinni eru fólksflutningavagnar
troðfullir af innflytjendum frá
Norðurálfunni. Þar næst koma
vagnar hlaðnir með Bandaríkja-
bændur. Leið vor liggur gegn um
ný héruð. Brautin var lögð fyrir
að eins tveimur árum síðan, en
alls staðar fram með henni má nú
líta plægða akra og óræktaða
sléttufláka á milli. Þetta er um
haust, sem vér erum hér að ferð-
ast. Það er búið að slá hveitið,
og í stórum stökkum stendur það
nú hingað og þangað á sléttlend-
inu.
Alls staðar eru menn að plægja.
Vér skulum standa við og skoða
jarðveginn. Það glitrar á hann í
sólskininu eins og hrafnsvartan
flauelsdúk. Fyrir hverjum plóg
ganga sex hestar. í löngum röð-
um er þeim skipað hingað og
þangað um sléttlendið. Hingað og
tþangað verður maður og var við
gufuplóga, þó ekki sé mikið um
þá enn.
Þreskingin heldur enn áfram.
Vér sjáum reykinn úr þreskivélun-
nm hingað og þangað. Við hverja
járnbrautarstöð bíða langar lestir
af vögnum, sem allir eru hlaðnir
með hveiti sem fara á í kornhlöð-
urnar.
Öll þorpin eru nýbygð og frem-
ur frumbýlingssnið á byggingun-
um, enda hafa þær ekki verið reist-
ar með öðrum verkfærum en sög
og hamri. í flestum þessum nýju
þorpum er að eins eitt stræti og
standa húsin, sem öll eru srnávax-
in, hingað og þangað fram með
því með óreglulegu millibili. Korn-
hlaðan stendur ætíð rétt við járn-
brautina og er afgreiðslustofa
járnbrautarfélagsins oft í sömu
byggingunni. Sagar og hamars-
hljóð heyrist úr öllum áttum. Hér
er ekkert gamalt af þvi sem fyrir
augun ber, alt er nýtt og á fram-
faraskeiöi.
Nú skulum vér halda áfram
„upp í sveit.“ Sko strástakkana,
sem standa í löngum röðum á akr-
inum. Það er plægt hringinn í
kring um þá og á allmiklu svæöi
þar fyrir utan hefir grasið verið
brent í burtu. Þetta er gert til að
tryggja stakkana fvrir eldi. Hér
koma oft fyrir sléttueldar, og væri
ekki gætt þessarar varúðar, mundu
stakkarnir oft og tiðum brenna til
kaldra kola.
í þessum stökkum er óþreskt
liveiti. Hver stakkur út af fyrir sig
er ofurlítil gullnáma sem að eins
á eftir að fara í gegn um þreski-
vélina til þess að verða að mótaðri
mynt. í hverjum stakk er svo
liundruðum bushela skiftir af
hveiti og hinn minsti þeirra er full-
komlega tvö hundruð dollara virði.
Þegar fer að dimma sér maöur
brennur hingað og þangað beggja
vegna fram með járnbrautinni.
Það er stráið, sem búið er úr að
þreskja, er flestallir Canada bænd-
ur kveikja í og brenna til ösku.
í New *York og Chicago væri hægt
að selja hvert tonn af þessu strái
á fimm dollara eða meira. Hér er
eklci hægt að gera sér peninga úr
því, og svo er það brent.
En hvað þessi jarðvegur er ágæt-
ur. Hann er eins feitur og frjó-
samur eins og í sjálfum Nílár-
dalnum í Egyptalandi. í Manito-
ba, þar sem sáð hefir verið hveiti á
sarna landinu ár eftir ár, er upp-
skeran tvöföld á við það, sem er
í Bandaríkjunum, þar sem hún fer
nú minkandi ár frá ári að meðal-
tali. í Bandaríkjunum er uppsker-
an nú að meðaltali nálægt þrettán
bushelum af ekrunni, en í Canada
er hún tuttugu bushel, eða jafnvel
meira, að meðaltali af ekru hverri.
Mikið af þessu nýja landi gefur af
sér þrjátíu og fjörutíu bushel, og
hér í grendinni umhverfis Edrnon-
ton gera nú bændumir sér von um
fimtíu bushela uppskeru af vetrar-
liveiti af hverri ekru. Hver bóndi,
sem vel kann með að fara, getur
hér æfinlega að meðaltali gert ráð
fyrir að fá tuttugu og fimm bushel
af ekrunni, og er það næstum því
helmingi meira en hægt er að bú-
ast við að fá af jafnstóru land-
svæði í Bandaríkjunum.
Á meðan eg dvaldi í Winnipeg
átti eg tal við herra Charles N.
Bell, sem álitið er að kunnugast-
ur sé öllu þvi, er að hveitirækt
lýtur í Canada. Hann er ritari
verzlunarmannafélagsins í Winni-
peg og hefir gengt því starfi til
margra ára. Han kom til Manito-
ba á þeim ámm, er lítið var þar um
bygðir og bú, og hefir ferðast um
landið fram og aftur oft og mörg-
um sinnum. Honum fórust orð á
þessa leið:
,Eftir nákvæmustu skýrslu, sem
hægt er að gefa, var hveitiupp-
skeran síðastliðið ár hér um bil
tuttugu og fjögur bushel af ekr-
unni að meðaltali. Sumstaðar var
uppskeran miklu meiri en það og
sumstaðar aftur nokkuð minni.
Hér eru bændur af öllum þjóðum
og margir þeirra kunna ekki lag á
því, að fá eins mikla uppskeru og
mætti, ef rétt væri að farið.‘
Eg spurði hann að, hvort ekki
væri allmikill munur á hveitilönd-
unum hingað og þangað um land-
ið.
„Jú,“ svaraði Mr. Bell, „þó svo
megi reyndar að orði kveða, að
þau séu öll í heild sinni góð. Bænd
urnir hafa sezt að hingað og þang-
að á stórum landsvæðum og næst-
um því hver einasti bóndi fær frá
tuttugu og fimm til þrjátíu bushel
í uppskeru af ekrunni. En þetta
fyrirkomuag hefir það í för
með sér, að fengin er reynsla fyrir
því, á yfirgripsmiklum svaSðum,
hvernig hveitirækt hepnast þar, og
þá um leið hefir það kornið í ljós,
að mestalt landið er gott og vel
fallið til hveitiræktar.“
„Hvað stórt ummáls er land
það, sem þér álitið hæfilegt hér til
hveitiræktar ?“ spurði eg nú Mr.
Bell.
„Það er stærra en völ er á
í Bandaríkjunum/ svaraði hann.
„Nú sem stendur er manni kunn-
ugt um nálægt þrjú hundruð og
tuttugu þúsund fermílur af hveiti-
landi. Við skulum nú skifta þessu
í tvent og ætla annan lielminginn
til griparæktar, og fyrir þvi sem
úr kann að ganga af allri heildinni
sem lítt notandi. Þá verða samt
sem áður eftir eitt hundrað og
sextíu þúsund fermilur, og skulum
við kalla það sama sem eitt hundr-
að miljónir ekra. Af þeim verð-
ur uppskeran tvær biljónir og
fimm miljónir bushela, sem er tölu-
vert meira en þrisvar sinnum það,
sem uppskeran nokkurn tíma hef-
ir orðið í Bandar. Eg segi ekki,
samt sem áður, að uppskeran verði
svona mikil í Canada á næstkom-
andi árum, en hveitiræktin fer þar
stöðugt og jafnt vaxandi og ekki
verður þess langt að bíða að hún
jafnast við uppskeruna í Banda-
ríkjunum."
„Hvenær var hveiti fyrst sáð í
Manitoba," spurði eg nú Mr. Bell.
„Hveiti var sáð í grend við Winni-
peg löngu áður en vesturhluti
Bandaríkjanna var numinn“, svar-
aði hann. „Árið 1812 flutti Sel-
kirk lávarður nokkura landnema
til Manitoba og þeir menn rækt-
uðu hér hveiti. Þessir menn konm
fyrst hingað með skipum Hud-
sonsflóa-félagsins og smá þokuð-
ust svo suðureftir. Þeir voru þá
svo langt frá markað að þeir
hugsuðu ekki um að framleiða
meira en þeir þurftu til heimilis-
þarfa, og það var fyrst löngu síð-
ar að byrjað var að reka hér bún-
að að nokkuru ráði. Og jafnvel
þegar þangað er komið sögunni
skorti hentug flutningsfæri, járn-
brautir, sem fyrst voru lagðar hér
eftir 1870. Nú á dögum er suður-
hluti Manitoba ein af kornhlöðum
heimsins. Hér var uppskeran fjór-
ar miljónir bushela árið 1886,
fjórtán miljónir tíu árum síðar
og árið 1901 fimtíu miljónir bush-
ela. Mikið af uppskerunni árið
sem leið kom frá nýja landinu sem
nú er að byggjast óðum lengra
vestur á við.“
„Hvað vita menn um hvort
jarðvegurinn muni vera fallinn til
hveitiræktar þar fyrir norðan, sem
nú er búið að nema lönd“, spurði
eg-
„Þau eru vafalaust mjög víð-
áttumikil, hveitilöndin, sem þar eru
ótekin,“ svaraði Mr. Bell. „Við
skulum taka til dæmis Peace River
héraðið, sem liggur i norðvestur
frá Edmonton. Áin þar er skip-
geng. Sonur minn ferðaðist eftir
henni í ellefu daga i fyrra og varð
var við hveitirækt hvervetna á
fljótsbökkunum. Það eru bæði
trúboðar meðal Indíána, og Indi-
ánarnir sjálfir sem þar hafa sáð.
Sönur minn kom þar á Indíána-
heimili þar sem kornrækt var
stunduð og uppskeran hafði náð
þrjú þúsund bushelum árið áður.
Og hveitið i þessum norðlægari
héruðum er betri tegund en áður
hefir þekst. Þvi lengra sem dregur
norður því betri verða bæði korn-
tegundirnar og annar jarðargróð-
ur. Fyrir austan Peace-fljótið eru
héruð, svo þúsundum mílna skift—
ir að víðáttu, sem enginn hvítur
maður hefir augum litið og enginn
getur því um sagt hvað hægt er
þar að framleiða úr skauti jarðar-
innar. Það eitt er hægt ð segja
að í Canada er enn til víðáttu-
mikið land sem ágætt er til akur-
yrkju. Vér vitum aðeins að land-
ið er til en hvað í því býr er enn
óráðin gáta.“
Vesturbæjar-búðin
Geo. R. Mann.
548 Ellice Ave.
nálægt Langsids.
íslenzka töluð í búöinni.
Hér'ættuð þér að verzla,
Viö erum aö selja út ýmsar
vöruleifar og látum þær fara fyrir
mjög lágt verö, án þess aö taka
tillit til þess hvaö viö höfum áöur
selt þœr.
Flannelette Blankets á 750
pariö.
Silkitreyjur, vanalega $5.50
Söluverð nú.......$2.95
Karlm. bugsur. Vanalegn $3-5°
Söluverð nú........$2.28.
Hvít og mislit flannelettes á
$tfc. yds.
DTSALAN MIKLA
Frbdbrick A. Burnkam, forsett.
Geo. D. Eldridge. varaforseti o* matsmaður
Lífsábyrgðartélagið í New York
ALITLEG ÖTKOMA EETIR Ari» 1904.
Skírteina gróði (samkvæmt skýrslu New York Insurans-deildarinnar
3. Jan. 1905)........-.......................................$ 4,397,988
Nýjar ábyrgðir borgaðar 1903.................................... 12,527,288
1904................................... 17,862,353
Aukning nýrra bórgaðra ábyrgða.................................... 5.335.06«•
*. Lögleg starfsaukning í gildi (borguð) árið 1904................... 6,797,6ot
I Lögleg aukning viðlagasjóðs meðlima árið 1904..................... 5,883
(’ Aukning iðgjalda hinnar nýju starfsemi árið 1904.................. 128,000
(• Lækkuu á útistandandi dánarkröfum árið 1904....................... 119,296
() AUar borganir til meðlima og erfingja þeirra...................... 61,000,000
( ( ALEX. JAMIESON, ráðsmaður í Manitoba. 411 Mclntyre Bntldtng.
The Wineipeg
GRANITE & MARBLE CO.
Limited.
HÖFUÐSTOLL á$00,000.00.
Vér höfum hinar mestu birgöir, sem til eru
í Vestur-Canada, afjöllum tegundum af minn-
isvöröum. Skrifiö eftir veröskrá eöa komiö viö
hjá okkur aö
248 Princess st., Winnipeg.
---------o----------
Heyrrjarleysi læknast ekKi
víð innspýtingar eða þess konar, því þaer ná
ekki upptökin. Það er að eins eitt, sem lækn .
heyrnar eysi, og það er meðal er verkar á alla
lÍKamsbygginguna. Það stafar af æsing í slím-
himn jnum er olli bölgu í eyrnadípunum. Þegar
þær * <51ga kemur suða fyrir eyrun eða heyrnln
förlast o ef þær lokast fer heyrnin. Sé ekki hægt
að lækna pað sem orsakar bólguna og pípunum
komiQ í camt lag, þá fæst ekki heyrnin aftur.
Níu af tíu s kum tilfellum orsakast af Catarrh,
sem ekki er annað en æsing í slímhimnunum.
Vér skulum gefa $100 fyrir hvert eiaasta heyrn-
arleysis tilfelli (er stafar af catarrh), 9em HALLS’
CATARRH CURE Iæknar ekki. Skrifið eftir bækl-
H*' sem vér gefum.
F. J. CHENEY & CO.,ToIedo, O
Ágœtt barnameðal.
Góöa bragöið aö Chamberlain’s
Cough Remedy og hin góöu áhrif
þess er orsökin til þess, að allar
mæöur, sem ungbörn eiga, hafa
álit á því. og þykir vænt um þaö.
Það læknar fljótt hósta og kvef og
fyrirbyggir lungnabólgu og aðra
skæöa sjúkdóma. Það læknar ekki
eingöngu barnaveikina, heldur fyr-
irbyggir hana jafnframt, ef þaö er
gefið inn undir eins og fer að bera
á hóstanum. Til sölu hjá öllum
lyfsölum.
KENNARA vantar í Marsli-
land skólahéraöi nr. 1278. Kcnslu-
tími fjórir mánuöir (frá 1. Apríl
til 31. Júlí). Umsækjendur veröa
að hafa 3. class certificate. Til-
boðum verður veitt móttaka til
loka Febrúarmánaöar. Umsækj-
endur geti um kaup, er þeir æskja
eftir, sömuíeiöis undanfarandi æf-
ingu viö kenslustörf, og snúi sér í
þeim efnum til
S. B. Olson, sec.-treas.
Marshland P.O., Man.
KENNARI, sem náö befir 2.
eða 3. kennarastigi, getur fengið
stöðu viö Árdalsskóla, nr. 1202, í
8 mánuði, frá 1. Marz til 30. Júní
op svo frá i.September til 31. Des.
1906. Umsækjendur tilgreini
mentastig og kaup. Tilboöum
veitt móttaka til 25. Febr. af
P. S. Guðmundssyni,
Árdal, Man.
LAND TIL SÖLU, fimm míl-
ur frá Churchbridge járnbrautar-
stööinni í Sask. Alt uimgirt. Sex-
tiu ekrur plægöar og verður helm-
ingurinn undirbúinn til sáningar.
Enn fremur til sölu nýlegur gang-
plógur, diskherfi og bindari. Þarf
aö seljast fljótt. Frekari upplýs-
ingar gefur
L. J. Lkrxdai,
Thingvalla P. O., Sask.
Bajiverkur.
Þessi sjúkdómur kemur af gigt
í vöðvunum og má lækna hann
með því aö bera á Chamberlain’s
Pain Balm tvisvar eöa þrisvar
sinnum á dag, og nudda verkjar-
hjá okkur hefir gengiö ljómandi
vel. Fólk hefir komið úr tuttugu
mílna fjarlœgð til þess aö nota sér
hana. Tveir útsöludagar eftir enn.
föstudaguri og laugardagur. Látið
ekkert hamla yöur frá að koma.
Allur sá mikli fjöldi manna, sem
hér hefir komið, rnunu ráða yöur
til að fara, hvað svo sem veðrinu
liður.
Dálitlu höfum við bætt við til
þess að selja á föstudaginn og
laugardaginn og í næstu viktt.
KASHMERE KJÓLAR, rauðir
og bláir, ýntislega skreyttir með
silkiböndum og flaueli. Þeir hafa
vanalega verið seldir á $6.50 og $7
Sérstakt verð $2.50.
LÍESTÝKKI.— Þau eru mjög
útgengileg, E. I. lífstykkin, sem
vanalega eru seld á $1.25.
Söluverð 95 cent.
Bias lífstykkin, vanal. $1.50.
Söluverð nú $1.15.
Lífstykkjabolir, vanal. 90C., nú
65C.; 75C. bolir á 55C., og 50C. bol-
ir fyrir 35 cent.
SILKIPILS.—Þér getið fengð
þau nú með góðu verði. Og ættuð
þér því að kaupa nú nýju silkipils-
in, sem þér þarfnist fvrir vorið.
Þau eru seld með ábyrgð fyrir að
endast vel. Vanaverð er $9.50.
Söluverð nú $6.75.
BLANKETS getið þér og nú
fengið við góðu verði. Veðrið hef-
ir ekki verið svo enn, að þeirra
hafi verið mikil þörf. En það er
kuldatíð eftir að koma enn og það
mun borga sig fyrir yður að kattpa
þessi blankets einmitt nú.
$3 blankets, hvít og grá, stærð
64x72.
Söluverð $2.25.
$5 snjóhvít ullar blankets .
Söluverð $3.85.
Sérstök tegund flannelette blan-
kets. Vanal. $1.25.
Söluverð nú 90C.
Munið eftir því, að þegar útsöl-
unni er lokið, verður nokkuð eftir
af afgöngunt, sem fást þá með
góðu verði.
GROCERIES með sérstöku
verði:—
Goosberries, vanal. á 20C., —
sérstakt verð loc.
ioc. pakkar Pearline á 50.
Hver einasta kona mun á auga-
bragði sjá það, að kjörkaupin hjá
okkur eru þess verð, að þeim sé
gaitmur gefinn.
Fylgið straumnum, sem rennur
í áttina til kjörkaupastaðarins hjá
£%%%%%'%%%%%%%%%%%%%%%%%%%% %%%%%%
The Rat Portage Lumlter C«.
LIMITED.
AÐALSTAÐURINN til aö kaupa trjávið, boröviö, múrlang-
bönd, glugga, huröir, dyrumbúninga,
rent og útsagaö byggingaskraut, kassa
og laupa til flutninga.
Bezta „Maple Flooring“ ætíð til.
Pöatunum á rjávið úr pine, spruce og tamarac nákvæmur gaumur gefinn.
Skrifstöfur og mylnur i Norwood. T::‘««
%.%%%%%%%%%%%%%%%%%%.%%%%%% %%% %%%%
Harðvöru og Húsgagnabúð.
Vér erum nýbúnir að fá þrjú
vagnhlöss af húsbúnaði, járn-
rúmstæöum, fja"ðrasængum og
mattressum og stoppuðum hús-
búnaði, sem viö erum aö selja
meö óvanalega lágu verði.
Ágæt járn-rúmstæöi, hvít-
gleruö meö fjöörum og matt-
ressum................$6,50
Stólar á 400. og þar yfir
Komiö og sjáið vörur okkar
áöur en þér kaupiö annars
staöar, Viö erum vissir um aö
geta fullnægt yöur meö okkar margbreyttu og ágætu vörum. Þér
munuö sannfsérast um hvað þær eru ódýrar, j
LEON’S
605 til 609 Main St., Winnipeg
Aðrar dyr norður frá Imperial Hotel,
---Telephone 1082--
nú er í blaðinu,
fyrirfram fyrir.. .
ef borgað er
$2.00
LOKUÐUM TILBOÐUM stíluðum til
undirskrifaðs, ogkölluð “Tender for Post
Office, & c , Regina, Sask, aerður veitt
móttaka hér á skrifstofunni þangað til á
föstudaginn 23. Febrúar 1906, um að
byggja pósthús í Regina, Saskatchewan.
Skýrslur og uppdrættir fást hér á skrif-
stofunni og hjá W. T. Mollard, Esq.,Clerk
of Works, Regina, Sask. Eyðublöð undir
tilboðin fást og þarr
Þeir sem tilboð ætla að senda eru hér-
með látnir vita að þau verða ekki tekin til
greina, nema þau séu gerð á þar til ætluð
eyðublöð og undirritað með bjóðandans
rétta nafni.
Hverju tilboði verður að fylgja viðurlcend
banka ávísun, á löglegan banka, stýluð til
,,The Honorable the Minister of Public
Works ', er hljóði upp á tíu prócent (10
prc.) af tilboðsupphæðinni. Bjóðandi fyrir-
gerir tilkalli til þess ef haun neitar að
vinna verKið eftir að honum hefir verið
veitt þaö. eða fullgerir það ekki, samkvæmt
samningi. Sé tilboðinu hafnað, þá verður
ávísunin endursend.
Deildin skuldbindur sig ekki til að sæta
lægsta tilboðí, né neinu þeirra.
Samkvæmt skiþun
111 g ó 1 f u r.
blað lctndvarnarmanna á Islandi
Kemur út í Reykjavík í hverri
viku áriö um krkig. Berst fyrir
réttindum og sjálfstæöi þjóöar-
innar. Flytur ritgeröir um öll
landsmál, fréttir innlendar og út-
lendar,'kvæöi hinna yngri skálda,
ritdóma o. fl.
Ritstjóri: Benedikt Sveinsson
frá Húsavík.
\7estur-íslendingar, þeir er vita
vilja gerla hverju fram vindur
heima á Fróni, ættu aö kaupa
Ingólf; þá fá þeir meðal annars
fréttir í hverjum hódfum mánuði
heim til sin. Sendið einn dollar í
póstávísun ásamt glöggri utaná-
skr., þá fáið þið blaöið sent þetta
ár (1906) skilvíslega ekki sjaldn-
ar en tvisvar í mánuöi.
Adr.: Benedikt Sveinsson,
Reykjavík, Iceland.
staöinn vel í hvert sinn. Ef verk-
ttrinn ekkt linar, skal væta ullar-
dúk lítið tt meö meöalinu og
leggja vi Mun þá fljótt batna.
Selt hjá c-'ium lyfsölum.
J. P. FUMERT0N& CO
Glenboro, Man,
FRED GÉLINAS. Secretary.
Dlpartmeat of Public Works’
Ottawa, 23. Janúari9o6,
Éréttablöð sem birta þessa a«glýsingu án
heimildar frá stjórninni fá enga borgun
fyrir slíkt.
PRENTUN
allskonar gerö á Lögbergi,
fljótt. vel og rýmilega.