Lögberg - 17.05.1906, Page 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. MAÍ 1906
Stórtjóniö á íslandi.
Öllum Vestur-Islendingum er nú
kunnugt oröiö um skiptapa og
manntjón ógurlegt, sem orðiö hefir
nú alveg nýskeð á Faxaflóa.
Eftir síðustu fréttum að dæma
lítur út fyrir, að farið hafi i sjóinn
í einum byl ekki færri en sjötíu
rr.anns, eða nærri einn af þúsund.
Það eru alt ungir menn á bezta
aldri, ellistoð foreldra sinna, ný-
kvæntir menn frá konum og korn-
ungum börnu,—bezta og hraust-
asta lið fósturjarðarinnar. Mörg
hcimili þannig orðin sorgarheimili
fyrir þenna sviplega atburð,og um
leið svift beztu stoð og styttu.
Nýlega gekk önnur harmsaga
yfir þetta land. Landskjálftinn í
San Francisco kom til leiðar miklu
manntjóni og ógurlegum eigna-
missi. Fregnin um það flaug eins
og herör gegn um alt þetta mikla
land og menn setti hljóða i bili út
af því dæmafáa mótlæti.
Samúðarþelið vaknaði um leið.
Þetta eru bræður vorir og systur,
hold af voru holdi og blóð af voru
blóði. Mótlæti þeirra er mótlæti
vort.
Svo fóru menn oían i vasa sína
og drógu upp hverja stórgjöfina
fætur annarri. Féð hefir streymt
saman úr öllum áttum fram á
þenna dag til að bæta skaðann og
draga úr harminum.
Svo á það ávalt að vera, þegar
harma og tjón ber að höndum.
Eitt er víst. Hve mikið og geig-
væulegt sem þetta mótlæti var, er
tjónið, sem orðið hefir á fósturjörð
vorri í rauninni enn þá sárara og
tilfinnanlegra í hlutfalli við efni og
ástæður. Og þjóð vor, fámenn og
fátæk eins og hún er, stendur marg
falt lakar að vígi með að bæta
það tjón, þó samúðarþdið væri
engu minna.
Samskot eru þegar hafin á ís-
landi hinu mótlætta fólki til liknar,
rífleg mjög eftir ástæðum. En
miklu meira fé þyrfti að safna en
því, sem unt er saman að hafa i
landinu sjáJfu, ef vel ætti að vera.
Þess vegna leyfir klúbburinn
Helgi magri sér að skora á Vestur-
íslendinga alla að skjóta saman
nokkru fé í þessu skyni. Vér er-
um hér svo margir, bæði karlar og
konur, af íslenzku bergi brotin,
sem sárt tekur til ættjarðar vorrar.
Vér fögnum yfir hverjum sigri
hennar. Vér syrgjum út af hverri
harmafregn, er þaðan berst.
Sýnum nú í verkinu, að sam-
hrygð vor og ættjarðarást sé meir
en í orði.
Samskot þessi hefir klúbburinn
ákveðið að hefja sjálfur með því
að leggja fram 50 doll.
Samskotalistar verða prentaðir
og sendir út víðs vegar þar sem ís-
lendingar búa,svo sem flestum gef-
ist færi á að leggja eitthvað af
mörkum. Þeir, sem beint vilja
senda til klúbbsins, geta sent póst-
ávísanir til gjaldkera hans, Alberts
Jónssonar, P. O. Box 32, Winni-
peg, Man. Allur verður gjafalist-
inn auglýstur á prenti á sinum
tíma.
Svo er til ætlast, að öll kurl séu
komin til grafar fyrir miðjan Júní.
Féð verður sent til íslands eftir 15.
dag Júnímánaðar.
Skýldu því allir vinda að þessu
bráðan bug, svo þetta mætti farast
vel og myndarlega og koma að til-
ætluðum notum.
Winnipeg, 14. Maí 1906.
Fyrir hö»d klúbbsins
HELGA MAGRA,
. F. J. Befgmann.
Til nunnis.
Út af þeim ósannindaþvættingi,
sem Hkr. óhikað ryður úr sér við-
víkjandi ummælum Lögb. um Sas-
katchewan Valley landfélagið og
skifli þess og Dominion-stjórnar-
innar, viljum vér til minnis fyrir
lesendur blaðanna, benda á ná-
kvæma skýringu þessa máls í Lög-
bergi 13. Okt. 1904.
Hkr. leiddi hjá sér að svara
þeirri grein þá, en hyggur nú lík-
lega að málið sé svo fyrnt orðið,
að sér sé óhætt að vaða á bæxlun-
um staðleysiselginn gamla óg
bjóða almenningi nú alt sem henni
sýnist um það. Til að sýna, að
Lögb. hélt hinu sama fram um það
mál nú síðast og þá fyrst, en eng-
ar breytingar hafa orðið á samn-
ingunum síðan, birtum vér nefnda
grein hér á eftir. Hún er ekki
samin af bráðókunnugum manni,
sem ekki hefir haft tíma til að setja
sig inn í landsmálin, heldur M.
Paulson, sem Hkr. er nýlega búin
að hrósa fyrir þekkingu í þeim
efnum.
„Saskatchewan Valley landfé-
lagið. —
Ósköpin öll hafa gengið á í aft-
urhaldsblöðunum undanfarnar vik-
ur út af því sem þau kalla Sas-
katchewan Valley landfélags-
hneykslið. Með fám orðum skul-
um vér segja sögu máls þess eins
og hún er, og munu þá allir kunn-
ugir menn við það kannast, • að
þakka mætti Roblin-stjórni'n fyrir
ef hún hefði jafn hreinar hendur
hvað meöferð liennar á löndum
fylkisins snertir, eins og Laurier-
stjórnin hefir í Saskatchewan land-
máli þessu.
Saskatchewan Yalley land fé-
lagið er eina félagið, sem Laurier-
stjórnin hefir gert samninga viö
um að fá nýja landtakendur og
vinna að b}gð og framförum í
Norðvesturlandinu siöan hún kom
td valda árið 1896.
Meðan afturhaldsmenn voru við
völdin í Ottawa veittu þeir tuttugu
og sex félögum hlunnindi í því
skyni og afhenitu þeim til fimm ára
2,842,742 ekrur af völdu landi.
Ekki eitt einasta félaga þéssara
stóð við samninga sína.
Níu þeirra fengu ekki einn ein-
asta mann til að setjast að á landi.
Hin seytján fengu fáeina, flest
245, fæst 4.
Allir landtakendur til samans,
sem félög þessi öll til samans
fengu til að taka land, voru 1,243.
Sérhvert félaga þessara átti eftir
samningi að greiða $160 fyrir
hvern landtakanda sém vantaði
upp á hina umsömdu tölu. Af náð
smni gaf afturhaldsstjórnin félög-
unum eftir alt hið mikla gjald, sem
að réttu lagi tilheyrði landssjóði.
Auk þess veitti afturhaldsstjórn-
in félögum þessum úr landssjóði
$322,158.55 til að borga fyrir aug-
lýsingar, koma upp sögunarmyln-
um, hveitimylnum o. s. frv.
Útkoman varð sú, að félögin
fengu til eignari,42i,37i ekru, á
85C. ekruna, og útveguðu 1,243
landtakendur, sem landssjóður
varð að borga $525,789 fyrir.
Þá er að minnast á Saskatche-
wan landfélagið. Það hafði sam-
ið um að kaupa að Regina og
Long Lake járnbrautarfélaginu
landið, sem afturhaldsstjórnin
hafði veitt þvi. Landveitingin til
járnbrautarfélagsins, sem þá hét
Qu’Appelle, Long Lake and Sas-
katchewan félagið, var þannig
hagað, að afturhaldsstjórnin setti
til siðu 3,500,000 ekrur handa fé-
laginu til að velja 830,000 ekrur
úr.
En járnbrautarfélagið neitaði að
velja úr landi þessu vegna þess
það væri ekki „fairly fit for settle-
ment“ eins og tekið var til orða í
landveitingarskjalinu. Að vísu
valdi það 128,000 ekrur og seldi
þær ensku félagi; en lét jafnframt
stjórnina vita, að það skoðaði ekki
landið „fairly fit for settlement.“
Þremur árum siðar fór enska
félagið þess á leit við stjórnina, að
mega láta landið renna inn til
hennar aftur og fá að velja jafn-
margar ekrur annars staðar; og
járnbrautarfélagið byrjaði á mála-
ferlum til þess að nevða stjórnina
til að láta sig fá land, sem væri
„fairly fit for settlement“ eins og
fram hafði verið tekið að landið
ætti að vera í samningum aftur-
haldsstjórnarinnar.
Þannig stóðu sakir þegar þeir
A. D. Davidson ofursti, G. F. Pip-
er, A.S.Warner, George C. Howe,
D H. McDonald og A. J. Adam-
son, sem nú mynda Saskatchewan
landfélagið, komu til sögunnar.
Þeir géngu inn á. að kaupa þess-
ar 830,000 ekrur járnbrautarfé-
lagsins og velja þær úr landinu,
sem til síðu hafði verið sett og fé-
lagið hafði neitað vegna þess það
ekki væri „fairly fit for settle-
ment.“
En þeir vildu eiga .land sitt í
einni samfastri spildu og báðu því
stjórnina að selja sér á sama svæði
250,000 ekrur af heimilisréttar-
landi.
I Maímánuði árið 1902 sam-
þykti stjórnin að selja þeim land
það er þeir báðu um, með vissum
skilyrðum, fyrir $1.00 ekruna.
Davidson ofursti og félagar lians
tóku að sér að útvega 32 landtak-
endur í hvert township, af þeim
áttu 20 að fá gefins heimilisréttar-
lönd, og 12 að setjast að á löndum
þeim sem keypt voru að stjórninni.
Strax og skilmá.lum þessum var
fullnægt átti Saskatchewan Valley
landfélagið að fá rétt til að kaupa
það sem eftir yrði af heimilisrétt-
arlöndum umfram þau 20, sem
landtakendur fengu gefins.
Til þéss að gera sér rétta grein
íyrir hagnaðinum við samninga
þessa verður að gæta þess, að jafn
vel þó járnbrautin væri fullgerð
árið 1890, þá mátti landið heita
algerlega óbygt.
Á sextíu og fimm mílna svæði
meðfram járnbrautinni höfðu að
eins þrjú heimilisréttar.lönd verið
tekin fyrir árið 1901, jafnvel þó
búið væri að mæla township-in
meðfram brautinni árið 1882.
Upp til 1902 hafði engin beiðni
komið til innanríkismáladeildar-
ir.nar um að mæla nein önnur town
ship á landsvæði Saskatchewan fé-
lagsins.
Það hafði verið talað illa um
landið og menn litu ekki við því.
Landskoðunarmenn, sem eftir
járnbrautinni ferðuðust, fengu i.lt
áiit á landinu.
Með samningum þessum batt
stjórnin enda á málsókn sem yfir
vofði, fékk tryggingu fvrir þvi, að
32 af þeim 64 heimilisréttarlönd-
um, sem um er að gera í hverju
township sem landið var selt< í,
bvgðust, og að landtakendur
ftngju 20 af hverjum 32 löndum
frítt, eða með öðrum orðum: Það
fékst á þennan hátt trygging fvrir
1,046 landtakendum á svæði
þessu.
Þessu varð Sasktchewan landfé-
lagið að koma til leiðar á.ður en
það fengi eignarbréf fyrir löndun-
um.
Þegar samningarnir voru gerðir
lagði félagið til trvggingar $50,000
inn hjá stjórninni. Fé það verður
þar geymt og tekið sem borgun1
fyrir síðustu 50,000 ekrurnar sem
félagið ávinnur sér.
A þennan hátt kom stjórnin til
leiðar, að 839,000 ekrur af járn-
brautarlandi og auk þess 250,000
ekrur sem hún seldi, kæmist i
hendurnar á ötulu félagi, sem
trygging var fyrir að mundi gefa
sig við því aö fá inn nýbyggja.
Til þessa tima hafa fleiri tekið
lönd en samningamir útheimtu, og
stjórnin hefir nú gefið félaginu
eignarbréf fvrir nálægt 140,000
ekrum og fengið frá því $150,000
í peningum.
Það er kunnugt, að Saskatche-
wan Valley landfélagið hefir 2,200
urnboð víðsvegar í tíu ríkjum
Bandaríkjanna. Landtakendurn-
ir sem það útvegar eru því nær
eingöngu Bandaríkjabændur úr
btztu röðinni. Það hefir stofnsett
fjölmenna þýzka nýlendu utan
svæðis þess sem keypt var að
stjórninni, en þó á járnbrautar-
landsvæðinu áminsta. Þegar fé-
lagið byrjaði að byggja landið, þá
var hvergi hús að r/ina á 50 míl-
um meðfram brautinni norður frá
járnbrautarmannahúsinu í Craik.
Nú eru þar fjögur blómleg þorp.
Félagið auglýsir landið svo vel,
að það er Vestur Canada ómetan-
lega mikils virði.
Sem dæmi þess, hvernig félag-
ið auglýsir landið, nægir að benda
á skemtiferðina handa bankastjór-
um, hveitikaupmönnum, blaða-
mönnum o. s. frv., sem það kom á
frá Chicago til Prince Albert. Á
allan há.tt hefir landið haft sérlega
mikið gott af félagi þessu.
Eins og Mr. Walter Scott sagði
í þinginu, þá er það félagi þessu
að þakka að vagnar ganga eftir
Regina og Long Lake járnbraut-
inni.
Samningarnir, sem stjórnin
gerði við Davidson ofursta og fé-
laga hans, hafa því nú þegar sýnt
það, að þeir voru viturlegir og
landinu til góðs.
Land það, sem stjórnin hefir selt
félaginu á $1.00 ekruna hefði að
öðrum kosti verið heimi.lisréttar-
land, og stjórnin ekkert fyrir það
fengið. En það sem enn þá meira
er um vert, landið hefði að öðrum
kosti legið óbygt og ónotað hver
veit hvað lengi, vegna þess járn-
brautarfélagið,sem landið fékk hjá
gömlu afturhaldsstjórninni, hafði
komið óorði á það.
Þótt stjórnin hefði gefið félag-
ir.u þessar 250,000 ekrur fyrir alls
enga borgun, þá hefði það marg-
borgað sig fyrir Norðvesturlandið
í heild sinni.
“EIMREIÐIN”
FJölbreyttasta og skemtilegasta
tlmaritiC á Islenzku. RitgerClr, sög-
ur, kvæöi myndir. VerS 40c. hvert
heftl. Fæst hjá H. S. Bardal og S.
Bergmann.
The Northern Bank.
Utibúdeildin á horninu á Nena
St. og William Ave.
Rentur borgaðar af innlögum. Ávísanir
gefnar á Islandsbanka og víösvegar um
heim
HÖFUÐSTÓLL $2,000,000.
Aðalskrifstofa í Winnipeg,
Sparisjóösdeildin opin á laugardags-'
kvöldum frá kl, 7—9. §
TME CANADIAN BANK
OP COHMERCE.
á honainu á Ross og Isabel
Höfuðstóll: $10,000,000.
Varasjóður: $4,500,000.
t SPARISJÓÐSDEILDIN
Innlög $1.00 og þar yflr. Rentur
lagöar viö höfuöst. á sex mán. fresti.
Víxlar fást á Englandsbanka,
sem eru borganlegir á fslandi.
AÐAIíSKRIFSTOFA f TORONTO.
Bankastjðrl I Winnipeg er
Thos. S, Strathairn.
the dominion bank.
á horninu á Notre Dame og Nena St.
Alls konar bankastörf af hendi
leyst.
_ A vfsanir seldar á banka á íslandi, Dan-
mörku og í öðrum löndum Norðurálfunn-
ar.
GOODALL
— LJÓSMYNDARI —
aS
616 'A Main st. Cor. Logan ave.
Hér fæst alt sem þarf til þess aíS
búa til ljósmyndir, mynda
gnllstáss og myndarammar.
ORKAR
MORRIS PIANQ
Tónninn og tilflnningin er franrv*
leitt á hærra stig og meS meiri list
heldur en ánokkru ötSru. Þau eru
seld með góðum kjörum og ábyrgrst
um óákveðinn tlma.
Pað ættl að vera á hverju heimill
s. Ii. BARROCFOUGH & co,
228 Portage ave., - Wlnnipeg.
Orr.
Shea
í Sparisjóösdeildin.
Sparisjóðsdeildin tekur við innlög-
um, frá $1.00 að upphæð og þar yflr.
Rentur borgaðar tvisvar á ári, 1 Júnl
og Desember.
Imperial Bank ofCanada
C Höfuðstóll (subscribed) $4,000,000.
HöfuðstóII (borgaður upp) $3,900,000,
Varasjóður - $3,900,000.
J. C. Off, & CO.
Plumbing & Heating.
----o----
625 William A ve
Phone 82. Res. 3738
Láti nú Heirnskringla sjá og
segi jafn satt og rétt frá meðferð
gömlu afturhaldsStjórnarinnar á
stjórnarlandi í Vestur Canada, og
Poblin-stjórnarinnar á landi Man-
iroba-fylkis, og lá.tum síðan lesend-
ur blaðanma skera úr því hjá hverj-
um er um hneyksli að ræða.“
Með ofangreindum kaupum erfði
Saskatchewan Valley landfélagið
landveitingarréttinn sem conserva-
tíva landstjórnin veitti járnbraut-
arfélaginu fyrnefnda í sinni tíð.
Og það eru þeir bindandi samn-
ingar, sem liggja fyrst til skift-
anna, sem Domimion-stjórnin gerði
1902, þó henni tækist að ráða þeim
landinu fremur til hags en skaða,
eftir þvi sem að ofan er sýnt fram
í svo ljóslega.
-------0-------
Algengar rentur borgaðar af öllum
lnnlögum. Avísanir seldar á bank-
ana á íslandl, tltborganlegar I krón.
Útlbú I Winnlpeg eru:
Aðalskrlfstofan á horninu á Main st.
og Bannatyne Ave.
N. G. IiESLIE, bankastj.
Norðurbæjar-delldin, á horninu á
Main st. og Selkirk ave.
F. P. JARVIS, bankastj.
Thos. H. Johnson,
Islenzkur lögfræðingur og máls-
færslumaður.
Skrifstofa:— Room 33 Canada Life
Block, suðaustur homl Portage
avenue og Main st.
UtanAskrift:—p. o. Box 1364.
Telefón: 423. Winnipeg, Maa.
Hætta fyrir börniu.
Engin móðir mundi vísvitandi
gefa barni sínu eitur, og þó hafa
öll hin svo nefndu deyfandi með-
ul, sem bömum eru gefin, meira
og minna af ópíum inni að halda,
og geta verið bráðdrepandi ef
gefið er mikið af þeim. Þegar
mæðurnar brúka Baby’s Own Tab-
lets, hafa þær ábyrgð fyrir því, frá
lyfjafræðingi stjórnarinnar, að
þetta meðal liafi ekki inni að halda
minstu vitund af ópíum né deyf-
andi efnum, og geti ekki gert nein-
um mein. Þessi ábyrgð er mit:ils
virði fyrir mæðurnar, sem láta sér
ant um heilsu barnanna sinna.
Mrs. Chas. McLaughlin, De Bert
Station, N. S., segir: Eg hefi
brúkað Baby’s Own Tablets við
magaverkjum og öðrum barna-
sjúkdómum, og mér finst þær svo
óviðjafnanlegar, að eg get ekki án
þeirra verið.“ Seldar hjá öllum
lyfsölum á 25C. askjan, eða sendar
með pósti, ef skrifað er beint til
„The Dr. Williams’ Medicine Co„
Brockville, Ont.“
Df.M. halldobsson,
PARK RIVER. N. D.
Er að hitta á hverjum miðvikudegi
i Grafton, N.D., frá kl. 6—6 e.m.
H. M. Hannesson,
íslenzkur lögfræðingur og mála-
færslumaður. Skrifstofa:
ROOM 412 McINTYRE Block
Telephone 44141
rlfíuniö eftiu
þvi að —]
Eúdu’s BuQOingapapplr
iieldur húsunum heituml og varnar kulda. Skrifið eftir sýnishorn-
um og verðskrá til
TEES & PERSSE, LI_d.
ágbnts, WINNIPEQ-.
[Stærsta Skandinavaverzlunin í Canada,
W. Meech,
339 Elgin Ave,
]. V. Thorlakson,
662 Langside St*
k
The WINNIPEG DRAY GO.
FLYTJA HÚSBÚNAÐ OG PIANO’S.
Baggage Transfer, — Verzla með alls konar ELDIVIÐ sagaðan
og ósagaðan.
Horninu á ARTHUR & NOTRE DAME.
MBECH & THOELAKSON
---eiöendur.---
’Phone 4353, - WINNIPEG,
Vér óskum eftir viðskiftum yðar. Heildsala rog smásala á innfluttum, lostætum
rnatartegundum, t. d.: norsk KKKogKKKK spiksíld, ansjósur, sardínur, íiskboll-
ur, prímostur, Gautaborgar-bjúgu, gamalostur, rauð-sagó, kartöflumjöl og margskon-
ar grocerie-vörur
The GUSTAFSON-JONES Co. Limited,
325 Logan Ave. 325
Brúkuð töt.
Agæt brúkuö föt af beztu teg-
und fást ætíö hjá
Mrs. Shaw,
479 Notre Bame ave., Winnipeg’
PÁLL M. CLEMENS
by ggingameistari.
Bakbr Block, 468 Main St.
WINNIPEG Phone 4887