Lögberg - 11.10.1906, Blaðsíða 4

Lögberg - 11.10.1906, Blaðsíða 4
LOGBERG FIMTUDAGINN n. OKTÓBER 1906 lögberg ■er geflS út hvern flmtud** ar The Lögberg Frlntln* & Publlshlng Co., (löggtlt), aS Cor. Wllllam Ave og Nena St., Wlnnlpeg, Man. — Kostar 12.00 um úriS (á Islandi 6 kr.) — Borgist fyrirfram. Einstök nr. 5 cts. Publlshed every Thursday by The Lögberg Prlntlng and Publishing Co. (Incorporated), at Cor.William Ave. & Nena St., Winnipeg, Man. — Sub- •cription prlce $2.00 per year, pay- able in advance. Slngle coples 5 cts. S. BJÖRNSSON, Edltor. M. PAUI.SON, Bus. Manager. Auglýsingar. — Smáauglýsingar I eitt skifti 25 cent fyrir 1 þml.. A stærri auglýsingum um lengri tima, afsláttur eftir samningi. Bústaðaskifti kaupenda veröur aö tilkynna skrlflega og geta um fyr- verandi bústað Jaínframt. Utanúskrift til afgreiðslust. blaðs- lns er: The LÖGBERG PRTG. & PUBL. Co. P. O. Box. 136, Winnipeg, Man. Telephone 221. Utanáskrift til ritstjörans er: Editor Lögberg, P. O. Box 136. Wlnnipeg, Man. Samkvæmt landslögum er uppsögn kaupanda á blaðl ógild nema hann aé skuldlaus þegar hann segir upp.— Ef kaupandi, sem er i skuld vlð blaðið, flytur vistferlum án þess að tilkynna helmilissklftin, Þá er það fyrir dómstólunum álltln sýnlleg sönnun fyrir prettvíslegum tllgangi. Talþráðalöggjöf sanibands- stjórnarinnar. Ilcr á eítir skal rnci) nokkrua) orðum minst á aðgerðir siðasta sambandsþingsins í talþráðaniál- inu, og þær mikilvægu breytingar, sem þar hafa verið gerðar. Er þá fyrst aö telja þaö lagaá- kvæðiö, sem mælir svo íyrir, að öll talþráðafél. lögskipuð af Dojm. stjórn. skuli skyld að sameina sig.l þar er þörf krefur, og slikt er heimtað. Nær það ákvæði til allraj áður greindra talþráðafélaga í1 landinu, hvort sem þau starfa undj ir tilsjón fylkisstjórna, sveitafé-l laga, eða óháð hvorttveggja. Skilyrði til slíkrar sameiningar er, að sú beiðni sé borin undir járnbrautarmálanefnd landsins /Railway Commissionj er sett var fyrrum af Laurier-stjórninni, sem æðsta úrskurðarvald í ágreinings- .málum þeim, er járnbrautafélög snerta og gefist hefir sérlega vel, þar eð hana eiga að skipa alger- lega óvilhallir menn og engri stjórn háðir. En járnbrautarmála- nefndin samþykkir sanieininguna, j þegar hún er, að nefndarinnar á- liti, réttmæt og hagvænleg fyrir al-i inenning. Afgjald fyrir notkun talsím- anna liggur eigi, samkvæmt lög- gjöf þessari, undir endilegu mati talþráðafélaganna, heJdur hefir framangreind nefnd úrslita at- kvæði um hve hátt það skuli vera. Aðal eftirlit með talþráðafélög- um landsins er með lögum þessum falið járnbrautarmálanefndinni. Má ganga að því visu, þegar tillit er tekið til þess, hve vel hún hefir gefist, og mikinn dug og starfs- hygni sýnt, í tilsjón sinni að því: er járnbrautafélögin snertir, að hún muni eigi síður leysa vel af hendi skyídur þær, er henni liafa nú verið faldar viðvíkjandi tal- þráðafélögunum. Fyrirrriæli laganna ,að þvi er j vald nefndarmnar snertir, til að skipa fyrir um sameining talþráða-j kerfa er á þá leið, að þegar fylki,j sveitarfélag eða einstakt talþraða-: félag, sem hefir 'stjórnarheimild j til aS starfa í landinu, fer þess áj leit, að nota langa talsímalinu, kýsj að tengja kerfi sitt við annað kerfi I grend við sig, en semur eigi við hlutaðeiganda, þá hefir járnbrautaj nefndin lögheimild til að skipa fyrir um, að sameiningin fari framj á þa.in hátt, sem hún álítur sann- gjarnast,og skal gæta þess um leið að skerða á engan veg rekstur eða starfsemi hlutaðeigandi talþráða- félags, er eigi vildi þýðast samein- inguna. Þungamiðja þessara laga er að spenna yfir alt landið eitt, marg- greinað talþráðakerfi, er hafi sem flesta tengibönd, og geti þannig orðið sem allra þægilegast og af- notadrýgst fyrir þjóðina, um leið og þaö er falið trúverðugum, óvil- höllum mönnum, járnbrautarmála- nefndinni, að sjá um, að afgjöld og starfsrekstur sé svo hagkvæm- ur og sanngjárn, bæði fyrir þá, er t talþræðina nota, og félögin sjálf, sem framast má verða. Með lögum þessum er engu tal- þráðakerfi gert hærra undir höfðij en öðru. Þau hljóta öll sem eitt að hlýta sömu löggjöfinni. Hvert um sig að sameina kerfi sitt við' það eða þau félög, er æskja sam-| tengingar og fá hana staðfesta a£ híutaðeigandi úrskurðarvaldi Kemur þarna berlega fram á hve litlum rökum rógur sá er bygð.cr, sem borinn hefir verið á Laurier- stjórnina, viðvíkjandi meðhaldi með Bell talhráðafélaginu. Sam-j kvæmt þessum lögum er það tal-J þráðafélag, eigi síður en hin önn- ur, er staðfest umboð hafa frá Dominion-stjórninni, til að starfa1 liér í landi, skylt til að taka þátt í; sameiningunni öldungis eins og hin, og fellur því orðasveimur sá um sjálfan sig, þrátt fyrir marg-j itrekað fleipur Roblins og fylgi- fiska hans þar að lútandi, enda er þeim herrum ekki nýtt að koll-j hlaupa sig á staðleysis slaðri síiittj um Ottawa-stjórnina. ------o------- Taugaveikin í Wiunipeg. Bæði úti í bygðunum og hérna í borginr.i er mikið rætt um vágest þann, taugaveikina, er um langan^ aldur hefir átt hér bólfestu <'.ysj luin upp á afhallandi sumri liverjn, leggur fólk hrönnum saman í rúm- ið, og sviftir mörgum atorktisöin- um manninum burt af sjónarsvið- inu. Fyrir tveim árum síðan dundi eitt mjög snarpt aðkast taugaveik- innar yfir bæinn. Blöðin voru full af skýringunt, getgátum, tillögum og ráðleggingum, og æfðir sér- fræðingar voru settir til að reyna að komast fyrir um það, hver or- sök veikinnar væri, og setja varúð- arreglur til að hefta hana. Þeir gáfu líka mörg góð og holl ráð; en eigi tókst með þeim að út- rýma veikinni. í fyrra mun veikin hafa verið heldur vægari, en sjúkdómstilfell- in býsna mörg, yfir eitt þúsund, sem skráð voru á sjúkrahúsum bæjarins. A þessu hausti hefir kveðið enn meira að veikinni, og það svo mjög. að þeir sjúklingar hafa eigi fengið aðgang að spítul- tim sakir þrengsla. Telja bæjar- blöðin líklegt, að taugaveikls sjúk- lingar í bænum muni á þessu ári verða eigi færri en fimtán httndr- uS, eða fyllilega eitt og hálft pró- cent af allri íbúatölunni í borg- inni. Það lítur því ekki út fyrir, að taugaveikin sé að rýma bæ þenna, en hitt er aftur víst, að hún hefir fært sig til, og heldur sig nú á öðr- um stöðum en fyrir tveimur árum síðan. Þá var það ætlan manna, að einhver ein aðal orsök væri vald- andi veikinni. Kom mönnum eigi saman um, hver sú orsök væri. Kendu ýrnsir um vatninu, aðrir saurrennnunum, og fjölda margari fleiri orsakir voru taldar. Hugðu menn, ef komist yrði að því Hver þessi orsök væri, þcá, mundi auðið að létta plágunni af/á skömfrtum tíma, Siðan hefir þetta verið rannsak- að mikið og lrappsainlega, og eru menn nú komnir á þá skoðun, að : engin ein orsök sé til veikinnar, heldtir séu þær margar, og aðal- i ráðið til útrýmingar á henni, sé ^ hreinlæti og þrífnaður í öllum greinum. Winnipegbær er enn eigi orðinn svo þrifalegur, að taugaveikin eigi hér ekki víst að- setur. Á þar bæjarstjómin og í- búarnir sökina livort um sig. Ræjarstjórnin leggur eigi fram nægilegt fé, til aö ræsta bæinn og gera hann svo hreinlegan seiri þörf væri, enda hefir það eigi dul- ist ýmsum ferðamönnum austan úr fvlkjum, sem komið hafa hing- að nú síðast á þessu sumri, og lýst hafa áliti sinu á honum í hér- lendum blöðum. íbúarnir sumir hverjir eru heldur eigi eins hirtnir um ræsting í kring um sig og æski legt væri, og þeir gætu verið, en slikt er þó hverjum einum sjálfnm fyrir beztu, því að í því er inni- falið eitt mikilvægt heilsufræðis- atriði, og það er dýrt að liggja veikur hér og standast þann kostn- að, sem af þvi leiðir, auk atvintiu- missisins. Enn sem komið er hefir eigi tekist að ákveða neina aðal orsök til taugaveikinnar, sem ber að dyr- um bæði hér í Winnipeg og ýms- um íleiri bæjum þessa iatids, á út- líðandi sumri hverju, jafn óbrigð- ult og áreiðanlega, sem frost fylgir canadiskum vetri. Þeir, sent mesta þekkingu hafa á þvi máli, vilja sem minst ákveða um þaö. V'afalaust vegna þess, að þeim dylst ekki, að orsakirnar eru marg- víslegar. Eitt er þó svo víst, að eigi verð- ur máli því mælt, og það er, að taugaveikin er smittandi, og jarö- vegurinn hér er orðinn sósaður af gerlum þeim er veikinni valda. Ríður því á engtt meir en að fara svo varlega sem auðiö er. þegar stundaður er taugaveikissjúkling- ur, hvort heldur er i heimahúsum eða annars staðar. ,Sá, sem eigi gætir þess, ltefir siðferðislega á- byrgð af því, ef veikiit breiðist út og veldur tjóni. Það er ntarg-* sannað, að gerill eða sóttkveikju- efni, sent berst frá sjúklingi og kentst í færi til að þróast, getar á sköinmum tima margfaldast, svO| að nægilegt veröi til aö sykja fleii"' I hundruð ntanna. Sl'kt er aldrei ofbrvnt fyrir fólki, sérstaklega þar' eð jafn mikil brögð eru að veik- inni, jafnmikik fjártjón og þung- ar legur stafa af henni, og jafn- mörg líf verða henni að herfangi á ári hverju, sem átt hefir sér stað i þesstim bæ. Læknar halda því fram, að veik-| in berist og sýki menn með ýmsui móti. Að maður geti borið gerlaj utan á sér, sérstaklega á höndun- um, fengið þá úr fæðunni og flug-' urnar flutt þá úr einum staö í annan. I mjólk kváöti gerlarnir þrosk-j ast t. d. ákaflega fljótt. Ekki þarf nema mjólkurílá<t sé þvegið úr vatni, sem slikt sóttkveikjuefni kann að leynast í. Verði eitrtivaðj eftir af sjúkdómseitrinu i ílátinti, og ntjólkin sé svo látin i það, þroskast gerlarnir þar þúsundíalt á fáum klukkutímum. í ýmsum jarðarávöxtum þrosk- ast taugaveikisgerill einnig mjög fljótt, komist hann í þá. Geta ntenn því fengið taugaveiki af þeim, sérstaklega þeim tegunditm jarðarávaxta, sem borðaðar eru ó- soðnar. Eins og áður er á drepið, er það þrifnaður í smáu sem stóru, er ntest og bezt hamlar taugaveikinni að komast inn á heimilin. Sam- kvæmjt skýrslum fyrir þetta ár, hefir veikin reynst tíðust og mögn- uðust á þeim svæðum í bænum, þar sem eigi eru komin vatns- leiðsla og saurrennur í húsin. Er því vafalaust mjög svo áríðandi fyrir alla bæjarbúa að, sein allra fyrst verði slíkar umbætur gerðar, helst í hverju einasta húsi í bæn- um. En á því eru töluverðir erfið- leikar, þar sem bærinn vex mjög liratt, því nær í, allar áttir, svo að með því fyrirkontulagi, sem nú er, hefir bæjarstjórnin eigi við að leiða vatn og sorprennur um nýju strætin, og er mjög liklegt, að meðan svo er, verði eigi auðvelt að útrýma veikinni. Samt sem áður er eigi annað sýnna, en að hefta megi veikina mikið úr því sem er, meS því að bæði bæjarstjórnin og ibúarnir leggist á eitt, til að tálma út- breiðslu hennar, með auknum þrifnaðarumbótum, ráðdeild og heilbrigðislegri fyrirhyggju. -------o------- Norðnienn og íslendingar. Eftir Jón Jónsson frá Sleðbrjót. * ♦ Sá hugsunarháttur er nú óðum að ryðja sér til rúms meðal vor íslendinga, að vér þurfum að taka oss til fyrirmyndar ýmislegt í háttum og framkvæmdum ná- grannaþjóðanna,ef vér eigum ekki að dragast aftur úr í bará.ttunni fyrir tilveru vorri sem sjálfstæður þjóðflokkur. Ein af þeim þjóðum, sem vér gætum lært ákaflega mikið af, er:i fræmlur vorir Norðmenn, sem nú erti að mörgu leyti fyrirmyndar- þjóð, þó smá sé, í samanburði við hin svo kölluðu stórveldi. Norð- menn hafa jafnan verið íslend-i ingum vinveittir. Þeir hafa fund- ið, að vér vorum „hold af þeirra holdi og bein af þeirra beinum.“ Þjóðirnar hafa alt af fundið það báðar, að það var eitthvað skylt i eðli þeirra. Ekkert erlent skáld liefir slegið betur á hjartastrengi íslendinga en Björnstjerne Björn- son, nema ef vera skyldi Esaias Tegner. Enginn erlendur maður sem sezt hefir að á Islandi, hefir orðið samgrónari ísl. þjóðerni en hetjan norska Otto Wathne. Og enginn útlendingur hefir haft jafn stórfeld áhrif á framkvæmdarlíf íslendinga eins og hann. Hvar sem Norðmaður hittir Is-< lending- í Norðurálfunni sýnir liann Islendingnum bróðurþel í timgengni, og þeir eru ekki svo fá- ir Norðmennirnir.sem sezt hafa að á íslandi lært tungumál þjóðarinn- ar, og skoðað sig alveg eins og landsins eigin börn. Stjórnmálabarátta Norðmanna | gæti verið oss íslendingum fögur fvrirmynd. Hún sýnir hvernig öfgalaus festa, og einlæg, samhngaj hluttaka þjóðarinnar vinnur að lokum sigur á friðsamlegan hátt. I því efni em Norðmenn langt á ur.ckm hinum blóðstorknu stór- veldunt. Eitt af því, sem vér íslendingar gætum lært af Norðmönnum, er það hvernig samband þjóðarinaar heima í Noregi er við þjóðflokk Norðmanna hér í Vesturheimi. Hugarþel þeirra hefir komið svo svo vel í ljós á þeim tíma- mótum, sem Norðmenn ltafa nú komist yfir. Heimsókn Norð- manna héðan að vestan og viðtök- urnar, sem þjóðin veitti þeim heima í Noregi, er fagur vottur þess-, að þeir hafa skilið hvor ann- an, víðurkent hvor annars starf- starfsemi og þýðingu. Er það mjög ólíkt þröngsýnis- getsökum þeim, er Vestur-Islendingar eiga að venjast frá ýmsum. heima, og broddborgara hugsunum um Is- land og íslendinga, sem koma fram hjá ýmsum smásálum hér vestra, sem ekki hafa víðari sjón- deildarhring en dollarsseðilinn eða Poolroomsborðið er. En sem betur fer eru það undantekningar hér meðal íslendinga. E& bygg það sé holt efni til í- hugunar fyrir Islendinga hér vestra og heima að athuga hvernig Norðmenn heima kveðja frændur sina hina vestrænu, er þeir stigu á skipsfjöl, og héldu heim aftur vest ur, og ekki síður er þ^ið ihugunar- efni fyrir Vestur- Islendinga, hvernig beztu menn Norðmanna hér vestra líta á þjóðernisspurs- mál Norðmanna í Vesturheimi. Blaðið „Aftenposten" í Krist- janíu kveður hóp landa sinna, er heimsóktu Noreg á krýningarhá- tiðinni, þannig: „Hinir ungu bræður Vorir frá Ameríku snúa nú í dag heimleiðis í hinn víðlenda Vesturheim. Þeir hafa unnið hjörtu vor og vér send- um með þeim þá hlýjustu kveðju, sem vér eigum í tilfinningu vorri, til hinna þúsund heimila, á vest- rænu sléttunum, og í stórborgun- um, þar sem hlý, norsk hjartaslög eiga heimili. För þeirra hingað hefir verið sigurför, og þeir hafa fengið fulla sönnun fyrir því, hve hlýtt hjartalag vér berum til! bræðra vorra vestan hafs. — Það hefir lengi dregist, að þessar til- finningar hafa brotist út. Og það er laust við, að landar vorir vestra hafi undrast yfir hvað það hefir; dregist lengi, að vér viðurkendum hvað dýrmæta eign vér ættum í [ hinum norsk-ameríska þjóðflokki, sem bráðum fer að verða helming- ur af þjóðflokki vorum. En það má ei gleyma því, að það hefir ekki verið mjög mikil á- stæða til að sýna þessar tilfinning- ar, að minsta kosti ekki fyrir þjóð- ina í heild sinni.—En nú er ástæða til þess. Það hefir heimsótt oss ágætt sýnishorn af hinni ungu norsk-amerísku þjóð. Það eru synir hinna hraustu og þrautseigu manna, sem hafa grundvallað hina norsku Ameriku í Minnesota, Da- kota, Wisconsin og Iowa. Þeir hafa mentast þar vestra sem bezt má verða, og framkoma þeirra hér vekur viöurkenning og aðdáun vora. I Ameríku hefir þess verið beð- ið með eftirvæntingu, hverjar við- tökur þeir fengju hér heima. Norðmenn í Vesturheimi hafa stöðugt rent augum í áttina heim á þessum tímum. Og vér ætlum það ei ofsagt að viðtökur þær, er þessir ungu gestir fengu hér, og bæði nefnd sú og aðrir, er sóktu krýningarhátíðina, hefir ekki svik- ið þær góðu vonir, er bræður vor- ir vorir vestra gerðu sér um við' - tökurnar. Og vér fáum það vel launað. Sá hjartans hlýleikur, sem koma þessara ungu gesta hefir laðað frá brjóstum vorum, hann mun snerta samsvarandi streng í hverju norsku hjarta vestan hafs, og af- leiðingin af því verða, að það vakni ný ást til lands og lvðs, sem dregur hug og hjarta Norðmanna vestra að gamla Noregi. Vér höf'- um allir á þessari stund sterka tilfinning fyrir því, að vér eigum bræðrum vorum vestra svo afar- mikið að þakka. Það hefir aftur og aftur verið tekið fram hvað við eigum þeim að þakka frá árinu í fyrra. Það verður aldrei sagt með ofhlvjum orðum. En við meg- um heldur ekki gleyma því, að The DOMINION BANK SELKLRK L'TIBL'IÐ. Alls konar bankastörf af hendi leyst. Sparisjóðsdeildin. Tekið við innlögum, frá $i.oo að upphæð og þar yfir. Hæstu vextir borgaðir. Við- skiftum bænda og annarra sveitamanna sérstakur gaumurgefinn. Bréfleg innlegg og úttektir afgreiddar. Óskað eftir bréta- viðskiftum. Nótur, innkallaðar fyrir bændur fyrir sanngjörn umboðslaun. Við skifti við kaupmenn, sveitarfélög, skólahéruð og einstaklinga með hagfeldum kjörum. d. GRISDALE, bankastjórl. það er eitt, sem við eigum allra mest að þakka bræðrum vorum vestan hafs. Og það er það, sem hefir mesta þýðingu af öllu fyrir oss nú. Þaðan höfum vér fengið þá öflugnstu vakning, til að rísa at svefni og nota land vort sem bezt. Hve mikið hafa ei synir vorir og dætur lært, sem hafa farið þang- að? Hve mikið fjör og fram- kvæmd hafa þar ei vaknað hjá þeim? — Það er enginn efi á þvi. Vér hefðum ekki sfaðið í þeim sporum sem vér stöndum, ef vér cettum ckki fyrir bróður þenna fjöruga og aflmikla tvxbura fyrir vestan hafið. Þesvegna þökkum vér Ameríku fyrir það, sem vér höfum þaðan fengið. Vér þökkum h'jartanlegal fyrir heimsóknina! Ef hún verð- ur endurtekin að ári, munu hjörtu vor slá jafn hlýtt, þó það verði ekki annar eins hátíðabragur á öllu þá, eins og á þessu hátíðarári voru. V'ér biðjum þessa bræður vora, er nú snúa heim,að bera hlýja kveðju vinum og nágrönnum. Sendutn með þeim hlýja kveöju hinum norsk-ameríska þjóðflokki. Verið vissir um vér unnum yður, finu- um til með yður, og fylgjum með athygli gerðum yðar. Vér erttm stoltir af gestum vorum. Og stolt- ir af bræðrum vorum vestan hafs. Og svo að síðustu við borðstokk- inn. Þökk fyrir komuna. Berið heim til yðar hlýja kveðju frá gamla Noregi.“ * * * Mundi það nú ei vera ánægju- legt fyrir oss íslendinga. að svona bróðurhtigur væri vakti- aður milli landa vorra heima og vor? Og hvernig líta nú Norðmenn hér vestra á afstöðu sína gagn- vart Noregi og þjóðinni heima? Á leiðinni heim frá krýningarhá- tíðinni, héldu Norðmenn hátiðleg- an fæðingardag Hákonar konungs. Professor Kildahl, einn hinn merkasti Norðmaður í Bandaríkj- unum, hélt við það tækifæri ræðtt, er lýsir svo vel hugsunarhætti þjóðflc^cksins norska hér vestan hafs. Lauslega þýdd er htm þannig: Vér, sem erum nú staddir hér innan þessara skipsfjala, erum kallaðir Norðmenn, Svíar eða Danir, þegar vér erum í Ameríku, eftir því, hvort feður vorir hafa komið frá Noregi, Svlþjóð eða Danmörku. En þegar vér erum í Noregi, Svíþjóð eða Danmörku. erum vér kallaðir Ameríkumenn. Hið rétta er að vér erum hvort- tveggja. Flestir erum vér Ame- ríkumenn að því Ieyti, að vér er- um annaðhvort fæddir í Ameríku, eða uppaldir þar, eða að minsta kosti höfum veriö þar svo lengi, að vér erum borgarar í Ameríku. Og vér elskum landið, vér finnum, að vér erum að koma heim, þegar vér náigumst strendur þcss. Og þó erum vér ekki hreinir Ameríku- menn. Það er of mikið af norskti, sænsku eða dönsku eðli í oss, se:n kemur fram í athöfnum vorum og uppeldi, til þess að við höfum

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.