Lögberg - 21.02.1907, Síða 1
Þakklæti!
Vér þökkum öllum okkar íslenzku viðskifta-
vinum fyrir viöskifti sföastliöið ár og
óskum eftir framhaldi fyrir komandi ár.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638 Main Str. Tstep^one 339
Yér heitstrengíum
aö gera betur viö viðskiftavini vora á þessu
ári £n á árinu sem leið, svo framarlega að
það sé hægt.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main St. Telephone 33 9
20 AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 21. Febrúar 1907.
NR. 8
Kosningarnar ákveðn-
ar 7. Marz.
Satt reyndist þaö, sem ensku Hb-
eral blöSin og Lögberg höfSu fyrir
skemstu gefið í skyn, að fylkis-
kosningunum mundi smelt á í næsta
mánutSi. Sí'öast í vikunni sem leið
var fylkisþingið leyst upp, og til-
nefningardagur ákveðinn 28. Feb-
rúar, en kosningardagur 7. Marz.
Er iþetta sá allra styzti fyrirvari,
sem nokkurn tíma hefir verið gef-
inn til nokkurra aðalkosninga hér í
landi, og sýnir ljóslega að Roblin-
stjórnin er dauðhrædd við að gefa
flokkunum færi á að ræða áhuga-
mál sín til nokkurrar hlítar. —
Stjórnin óttast hið vaxandi fylgi
sem leiðtogi liberalflokksins hér í
fylkinu Edward Brown á a’ð fagna,
og eina tálvonin hennar þó er það,
að hún kunni að geta haldið völd-
unum með því að drífa kosning-
amar af Því nær öldungis fyrir-
varalaust. En liberalar og allir
þeir af fylkisbúum, sem opin augu
hafa fyrir stjórnarhneykslum Rob-
linstjórnarinnar, sem meðal annars
hefir látið Canadian Northem járn
brautarfélagiö múlbinda sig með
tjóðurbeizli um níu hundrúð ár,
eða vel það—ætla ekki, að þola
þessa óhæfu, eyðslusömu, sér-
plægnu og svívirðilegu stjórn
lengur. Roblinstjórnin hefir sjálf
kveðið upp svo réttmætan áfellis-
dóm yfir sér á næstliðnum sjö ár-
um, er hún hefir setið við völdin,
áð sá dómur stendur skráður stóru
og skýru letri i meðvitund sérhvers
rétt hugsandi fylkisbúa, og þeim
dómi verður fullnægt 7. næsta
mánaðar við kosningarnar.
Almennur
liberalfundur verður haldinn á hinu
nýja leikhúsi Walker hér í bænum
að kveldi hins 20. þ. m. fmiðviku-
dagý. Gefst liberölum úr öllum
fjórum kjördæmum bæjarins þar
kostur á að heyra ljóslega rætt um
mörg mikilsvarðandi áhugamál
flokkanna, sem eigi er búist við að
auðið verði a'ð gera heyrin kunn
á annan hátt fremur, sakir þess
hve skammur tími er ákveðinn til
umræðu mála fyrir kosningarnar.
Leikhúsið verður opnað kl. 7
siðd. en ræðuhöld hefjast kl. 8.
Fundinum stýrir Isaak Campbell.
Aðalræðumennirnir verða B. E.
Chaffey, doktor MacArthur, Alex
Macdonald og Thomas H. John-
son. Leiðtogi liberalflokksins Ed-
ward Brown flytur þar síðast ítar-
legt erindi, og verður stefnuskrá
liberal flokksins útskýrð og rök-
studd þar mjög greinilega.
Sannarlega
má það teljast ánægjulegt teikn
vaxandi þroska og áhrifa þjóð-
flokks vor íslendinga hér i landi,
að i nýja kjördæminu hér í bæ,
Vestur-Winnipeg, skuli einn af
þjóðarhópi vorum, Thomas H.
Johnson lögmaður, hafa verið val-
inn í einu hljóði fyrir þingmanns-
efni í næstu kosningum. Sýnir það
berlega, að álit á íslendinguhi er að
aukast, því að þó fjölmargir land-
ar mættu á tilnefningarfundinum í
nýja ísl. Good Tentplara húsinu
næstliðinn fimtudag, þá var samt
meiri hlutinn af fundarmönnum,
sem kusu Mr. Johnson þar, ensku-
mælandi menn.
Að því er góða hæfilegleika Mr.
Johnsons snertir, til að takast þing-
mensku á hendur, álítum vér öld-
ungis óþarft að rita langt mál.
Hann er margra ára borgari hér,
og hefir tekið fjörugan og atkvæða
mikinn þátt í félagslífi og stjórn-
málabaráttu liberalflokksins um
langan tima, Og er viðurkendur af
helztu stjórnmálamönnum liberala
hér i bæ, svo sem Dafoe ritstjóra
Free Press, sem hinn skörulegasti
ræðumaður og öflugasti fiokks-
maður andstæðinga Roblinstjórn-
arinnar hér um slóðir, og hefir afl-
að sér svo víðtækrar þekkingar á
stjórnmálum þessa lands, að vér
íslendingar munum eiga fáa jafn-
oka hans í þeirri grein. Auk þess
er hann þaulkuntiugur högum
þessa kjördæmis og veit gerla
hvers því er vant.
Má ganga að Því vísu að heill og
heiðri kjördacmisins muni svo vel
borgið í höndum hans, sem framast
er unt, ef hann verður kosinn.
Vér teljum það sjálfsagt aö þorri
Islendinga í þessu kjördæmi taki
því feginshendi að eiga kost á því
að styðja jafn-hæfan mann, af sín-
um þjóðflokki, til þingmensku hér
og Mr. Johnson er. Hann hefir
stórmikið fylgi meðal enskumæl-
andi kjósenda kjördæmisins, og
vér vitum með vissu ag allir ís-
lendingar í Vestur-Winnipeg, sem
hlyntir eru liberalflokknum, gefa
honum atkvæði sín og að líkindum
margir landar úr hinum stjórn-
málaflokknum líka, að þeim und-
anteknum, sem eru svo blindaðir af
flokkshatri að þeir fyrir löngu eru
hættir að taka tillit til nokkurs ann-
ars en þess eins og hallast að því
óheillaráði að greiða atkvæði með
andstæðingi Mr. Johnsons, fyr-
verandi borgarstjóra T. Sharpe,
sem ekki er efnilegra þingmanns-
efni en svo, að hann hefir opinber-
lega lýst yfir því, þessa dagana, að
hann sé í fylsta máta samþykkur
öllum stjórnarsvívirðingum nú-
verandi fylkisstjórnar og alt sé
gott og blessað sem eftir hana
liggi. Hann getur ekki fundið að
nokkrum sköpuðum hlut, Ætti það
að geta gefið Islendingum dálitla
hugmvnd um hvaða fengur muni
vera i því að fá slíkan mann fyrir
málsvara sinn á þingi Eigi fann
heldur ritstjóri Heimskringlu neina
köllun hjá sér til að mæla með þess-
um flokksbróður sínum, er skýrt
var frá tilnefningunni 14. þ. m. í
því blaði.
Til hinna háttvirtu kjósenda í
,,West Winnipeg“ kjördœmi.
Eins og yður er öllum kunnugt, veittist mér sá heiöur á
tilnefningarfundi frjálslynda flokksins í þessu kjör^dæmi, hinn
14. þ. m., að vera i einu hljóði valinn til þess að vera þing-
mannsefni yðar við .fylkiskosningar þær, sem ákveöið er að
fara skuli frarn hinn 7. dag næstkomandi Marzmánaðar.
Þó að mér á ýmsan hátt sé óhægt að takast þennan mikils-
verða og vandasama starf á hendur, þá gat eg ekki neitað að
gjöra það, einkum vegtia þess, að áskoranir til mín um þaö efni
voru svo sterkar og eindregnar, bæði frá íslendingum Clöndum
minum) og öðrum kjósendum í kjördæminu, að þær virtust láta
í ljósi almennings álit og vilja.
Eg hefi þvi samþykt og lofað að sækja sem þingmannsefni
yðar i þessu kjördæmi við næstu kosningar, undir merkjum
frjálslynda flokksins, með þeint einlægum ásetningi, að reyna
af alefli á allan heiðarlegan og löglegan hátt að bera sigur úr
býtum. En undir ötulli og eindreginni samvinnu yðar er það
að miklu leyti komið, hvort það auðnast eða ekki.
Eg þykist fullviss um þáð, að skoðanir yðar og minar á
fylkismálum séu í öllum aðal-atriðum mjög likar og að okkur
greini ekki á um það, að stjórn sú, sem nú situr að völdum,
hefir gjörsamlega brugðist þeirri tiltrú, sem meiri hluti kjós-
enda í þessu fylki veitti henni við tvær undanfarnar kosningar,
og að hún hefir fyrirgjört rétti sínum til þess að sitja lengur
að völdum. Og þá hljótum vér einnig að vera sammála um
hitt, að það sé skylda vor, sem góðra og þjóðhollra borgara
fylkisins, að ryðja úr völdum óvandaðri og óhæfri stjóm, en
kjósa í hennar stað þá menn, sem vér treystum að hafi bæði vit
og vilja til þess að stjórna málefnum fylkis vors vel og sam-
vizkusamlega.
Stuttlega mætti benda á nokkur þau stór-brot, sem Roblin-
stjórnin hefir gjört sig seka um, fylkisbúum til mikils skaða og
.hnekkis, til dæmis:
Að hún er uppvís orðin að óeinlægni og tvöfeldni að
því er snertir löggjöf og meðferð vínsölumála fylkisins.
Að járnbrautarmálastefna hennar er óhyggileg, hefir
dregið úr samkepni járnbrautarfélaga, bakað fvlkinu þunga
ábyrgð, sem fylkisbúar fá ekki annað fyrir, en uppspunnar
tálvonir um yfir-umráð stjórnarinnar á flutningsmálum
Canadian Northern járnbrautarfélagsins.
Að meðferð stjórnarinnar á landeignum fvlkisins hefir
verið ill og óviturleg og því til óbætanlegs skaða.
A'ð stjórnin hefir farið með fylkisfé j ráðleysi og
bruðli og reikningar hennar og skýrslur um það efni eru
bæði óhreinir og villandi.
Að það er óviturlegt af stjórninni að ætla með vald-
boði að kúga fylkisbúa til þjóðrækni, með því að skipa þeim
að draga fána á stöng daglega á öllum alþýðuskólahúsum
og hóta kcnnurum og skólanefndum sekt og hegningu, ef
út af er brugðið.
Of langt mál yrði það að telja hér upp alt það, sem Roblin-
stjórnin hefir unnið sér til saka, en á þeim stutta tima, sem
henni hefir þóknast að gefa oss til að íhuga það, fram að kosn-
ingunum, mun margt af þvi verða tekið til umræðu á fundum
vorum og er mér einkar kært að sjá þar sem allra flesta, er líta
á þessi mál likt Og vér, hverjum flokki sem þeir hafa að undan-
förnu fylgt í stjórnmálum.
Að endingu vil eg taka það fram, að það eru vinsamleg
tilmæli min, til allra þeirra, sem vilja stvðja mig við þessar
kosningar, að Þeir gjöri það í öllu tilliti samvizkusamlega og
lögum samkvæmt og forðist sem mest má verða persónuleg ill-
mæli og óhróður um andstæðinga vora. Sigurinn verður þyí
að eins til gagns og frægðar að vér berjumst með vopnum sann-
leikans og beitum þeim drengilega.
Islendingar, heiðruðu samlandar mínir! Eg leyfi mér
virðingarfylst að biðja um fylgi yðar og atkvæði við þessar
kosningar og óska þess einlæglega, að þáttur sá, sem þér takið
í þeim, verði þjóðflokki vorum til sæmdar og Manitoba-fylki og
sjálfum oss til gagns og blessunar.
Með virðingu,
Yðar einlægur,
THOMAS H. JOHNSON.
Þingmannaefnin
mœtast.
Mr. T. H. Johnson, liberal-
þingmannsefniö í Vestur-Winni-
j peg, byrjar kosningaundirbúnings
fundarhöld sín á föstudagskveldiö
i kemur í nýja Good-Templarahús-
|t J
inu ísl. (horni McGee og Sargent
str.). Mr. Johnson hefir boöiö
gagnsækjanda sínum.Mr. Sharpe,
á fund þenna til aö halda svörum
uppi fyrir conservativaflokkinn.
Veröur þar sjálfsagt fjölmenni og
góö skemtun.
í talið líklegast að gereyðast muni af
fólki. Segja svo siðustu fregnir
! frá Rússlandi að þrjátíu miljónir
| manna sétt þar nú að miklu leyti
matvælalausar og megi sjálfsagt
; búast við að á næstu þremur mán-
uðunum muni að minsta kosti ein
miljón þeirra verða hungurmorða.
Heilsuhælið, sem Danir eru að
reisa í minningtt Níelsar Finsen,
j Ijóslækningameistarans fræga, er
sagt að verða muni fullbúið í næst-
komandi Septembermánuði. En
myndastytta Finsens, sem ráðgert
I var að afhjúpuð yrði um leið og
heilsuhælið yrði opnað, er nú sagt
að ekki muni verða tilbúin fyr en
um næstkomandi áramót.
THOMAS H. JOHNSON,
þingmannsefni frjálsl.flokksins
í Vestur-Winnipeg.
Fréttir.
Ur bænum.
Ung stúlka getur fengið atvinnu í
álnavörubúð á laugardagskveldum. Lyst-
hafendur snúi sér persónulega til,
PERCY COVE,
639 Sargent Ave.
Ætla íbúar Manitobafylkis að
sætta sig við vammir og skammir
Roblinstjórnarinnar í fjögur ár til,
eða ætla þeir að sparka henni út
eins og hún á skilið. Óskert rétt-
lætistilfinning krefst þess síðara.
Vafalaust er hún nú orðin svo rík
hjá fylkisbúum að hún sker úr svo
utn tnunar viö þessar kosningar.
—
I Lögbergi sem kom út hinn 7.
j þ. m., var getið um hið nýja póst-
hús í Saskatchewan, scm Laxdal
j P. O. heitir, og þess getið til að
þáð væri á heimili Lúðvíks Lax-
dal. Sú tilgáta var ekki rétt. Póst-
húsið er að heimili hr. Þorsteins
Laxdal.
Af bók Kuropatkins hershöfð-
ingja unt striðið á milli Rússa og
Japansmanna.sem rússneska stjórn-
in lagði löghald á, jafnskjótt og
búið var að prcnta hana.hafa nokk-
ur eintök, samt sem áður komist út
á meðal almennings. Bókin er í
þrentur stórum bindum og segir
hershöfðinginn svo frá, að ófarir
Rússa í stríðinu hafi verið því að
kenna hversu hermennirnir hafi
verið óhæfir og óáreiðanlegir og
herforingjarnir ónýtir og óhlýðnir
yfirboöurum sinum. Aftur á móti
lofar hann mjög hermenn og hcr-
stjóni Japansmanna. Alt, sem þau
gátu, hafa yfirvöld Rússlands gert
til þess að varna Því, að bók þessi
kæmist almenningi í hendttr, cn
hafa cnn ekki getað rönd við reist.
Málsókn hefir nýlega verið hafin
á Rússlandi gegn syni Leo Tolstois
greifa, fyrir að hafa gefið út á
prent landráðabækling er faðir
hans hefir nýlega ritað. Fýsir
margan að sjá leikslok í því ntáli,
því, eins og kunnugt er, hefir
stjórnin ekki hingað til þorað að
hreyfa ltönd né fót hvað sem greif-
inn hefir látið sér um munn fara í
hennar garð.
Jfárnbrautarslys varð í New Ýork
rtkinu síðastliðin laugardag, og
fórust þar tuttugu manns en hálft
annaö hundrað mann, er mcð lest-
inni voru, urðu fyrir meiri og
minni meiðslum. Meiri hlutinn af
þeim, sem bana biðu, var kvenfólk.
Voðalegustu fréttir berast nú af
hungursneyðinni á Rússlandi. Er
svo sagt að allar líkur séu fyrir því
að miljón manna muni falla þar úr
hungri nú í vetur. I fjörutíu af sjö-
tiu og einu af þeim héruðum lands-
ins, þar sem kornrækt er, brást upp
skeran algerlega síðastliðið sumar,
og tuttugu af þessum héruðum er
Um síðustu ársfjórðungamót
voru þessir settir í embætti í stúk-
unni ísland af umboðsmanni henn-
ar, hr. H. Skaftfeld:
Æ. T.—Mrs. H. Skaftfeld,
V. T.—Mrs. W. Olgeirsson,
F. Æ. T.—J. P. ísdal,
K.—Miss K. Ilenry,
R.—S. B. Benediktsson,
A. R.—P. Jónsson,
F. R.—W. Olgeirsson,
G. —M. Skaftfeld,
D.—Miss Þ. Johnson,
A. G.—G. Pálsson,
V.—H. Árnason,
Ú. V.—E. Johnson,
G. V. U.—Mrs. Þ. Vigfússon.
Meðlimatala utn þessi áramót
var 46.
Frestað kosningum í
2 kjördæmum.
Eins og getið er um á öðrum
stað í blaðinu fara fylkiskosning-
arnar fram 7. næsta mánaðar. I
tveimur kjördæmunum, Gilbert
Plains og Gimli, kvað þó eiga að
fresta þeim þangað til viku síðar
að minsta kosti.
Að því er Gimli-kjördæmið
snertir, er þetta ekki nerr^a vana-
legt tiltæki af Roblinstjórninni, og
hefir vitanlega verið gert í þeim
tilgangi að tryggja sér það að
þingmannsefni hettnar þar næði
kosningu, og kjósendur sættu sig
við það ef stjórnin yrði í meiri
hluta við kosningarnar. En sam-
kvæmt yfirlýsingu Gimli-þing-
mannsins sjálfs eru íslendingar
hér vestra “orðnir svo skilnings-
góðir” að eigi þarf að búast við
því, að þeir geri sér hann að góðu
lengur, þó hann dirfðist að bjóða
sig fram þar.