Lögberg - 02.03.1907, Page 2
Ávarp Edwards Brown til íbúa
Manitoba-fylkis.
BFNI: — Askorun leiðtoga liberalflokksins. —
Astœðan fyrir því hvers vegna 'flýtt er svo tnjög fyrir
kosningunum. — Eru íbúar Manitoba áncegðir með
aðgerðir Roblin-stjórnarinnar?. — Abyrgð fylkis-
stjórnarinnar á samgöngu-ólaginu. — Hvað liberalar
ætla að gera, ef þeir komast til valda.
TIL KJÓSENDANNA 1 MANITOBA!
Herrar tnínir! y— Fylkisstjórnin í Manitoba
hefir gripið til þess úrræöis að drifa kosningarnar
af i öndverðum þessum mánuði. Með þvi að hraða
kosningunum syona tryggja þeir sér það, að þuría
ekki að opinbera það fyrir almenningi, hve mikil
einlægni liafi fylgt máþ hjá þeim, bæði að þvi er
“Grain Combiiie” máliö snertir og stofnsetning
talþráðakerfa, fyr en eftir aö skorið hefir verið úr
því me’ð atkvæðagreiðslu hvor ílokkurinn skuli
völdum halda næstu fjögur árin.
Tilnefningardagurinn var ákveðinn, hinn síð-
asta fyrra mánaðar, og nú liggur fyrir yður að
skera úr þvi með atkvæðum yðar 7. þessa mánað-
ar, livort þér eruð ánægðir með núverandi fylkis-
stjórn, og eruð reiðubúnir til að láta hana halda
völdunum næstu fjögur ár, eða hvort þér haíið á-
sett yður að fá aðra heiðvirðari og ósérplægirari
stjórn til að stýra þessu fylki.
Fylkisstjórnin hefir ákveðið kosningarnar á
þeim tíma, er að vísu niá ganga að fjöldamörgum
bændum út um land verði mjög erfitt og sumum
enda lítt mögulegt að ná til kosningarstaða til að
greiða atkvæði. En jafnvel þó að stórviðri, sam-
göngubönn með járnbrautum og illir vegir torveldi
mönnum aö greiða atkvæði í þessum kosningum,
væntum vér að sérliver kjósandi telji það skyldu
sína, að fara á kosningarstað sinn og greiða at-
kvæði eftir sannfæringu sinni með heiðarlegu
móti. einhverju þingmannsefninu, sem um er að
gera. Á þann hátt að eins gefst kostur á áð í ljós
komi hinn eindregni alþýðu vilji, sem vera skyldi
vald það, er réði í landi hverju.
Fylkisstjórnin, sem nú er við völdin, hefir ver-
ið heppin með það, að bæði fyrir handleiðslu for-
sjónarinnar og hina affarasælu stefnu sambands-
stjórnarinnar í innflutningamálunum hefir hagur
íbúanna í Canada yfir höfuð farið mjög batnandi
á síðari árum.
Næstliðin s,ö ar hefir verið góðæri, ríkuleg
uppskera, mikill tekjuauki hér i Manitoba fylki,
eins og annars staðar í landinu.
Hvernig hefir fylkisstjórnin hagnýtt sér þessi
hlunnindi? Hefir bændunum Iiðið betur? Stend-
ur akuryrkjan með meiri blóma? Hafa skuldir
fylkisins færst niður og stofnféð aukist? Er bónd-
inn ánægður með það, sem hann hefir fengið í
aðra hönd fyrir erfiði sitt? Er hann ánægður með
sölusamkepnina á hveitinu sínu? Er liann ánægð-
ur með það, hve hægt hann á með að koma korn-
tegflndunum, sem hann ræktar, á bezta markaðinn ?
Þessum spurningum er sérhverjum kjósenda
nauðsynlegt að svara áður en hann greiðir atkvæði,
sem og öðrum. er mikils er um vert fyrir hann.
Sjálfur vildi eg levfa mér að beina þeirri spurn-
ingu að yður, kjósendum í bæjunum og borgunuin
sérstaklega, sem og yfir höfuð öðrum. er út um
land búa, hvort þér eruð ánægöir með Iiinn siðferð-
islega árangur af conservatívu stjórninni? Eruð
þér ánægðir með hið ósæmiíega vínsölu-fargan ?
Hin margsviknti loforð stjórnarinnar? Eruð þér
ánægðir með að vínsöluleyfum sé þrengt upp á
sveitafélög í óþökk við íbúana, og að aðal-merkis-
berar stjórnarinnar í kosningabaráttunni séu ill-
ræmdustu vínsölu-seggirnir, sem hægt er að benda j
á í öllu fylkinu?
Eg beini máli mínu til yðar, ibúar Manitoba-
fylkis, hvaða flokki og hvaða stétt, sem þér heyrið
til og spyr: Fallist þér á aðgerðir fylkisstjórnar-
innar, er hún svifti giftar konur atkvæðisrétti í ■
sveitamálum, um eitt ár. til þess að greiða fyrir
því, að vínsala kæmist á í vissum sveitafélögum,
og voru tvö þau sveitarfélög í Dufferin-kjördæm-
inu, sem kosið hefir stjórnarformanninn ýRobliný
fyrir málsvara sinn?
Núverandi fvlkisstjórn náði völdunum með þvi
að gera fjársparnað og umbætur að aðalatriðum
stefnuskrár sinnar. A næstliðnum sjö árum hefir
henni innhenzt $5,135.398.56 tekjuauki fram yfir
það, er stjórninni á undan barst í hendur á jafn-
löngum stjórnartíma. Og enda þótt conserva-
tíva stjórnin er nú heldur völdunum hafi lagt fram
minna fé til almennings þarfa en hin libcrala, er
fé það,^r hún getur nú sýnt í sjóði, eigi meira en
$812,000.' §ú litla upphæð að eins er nú eftir af j
öllum tekjuniifn.
Til að vega upp á móti þessu sjóðfé, þessum
$812,000, sem stjórninni hefir tekist að draga sam-
an á sjö árutn, hefir hún aukið beinar skuldir fylk- j
isins scm svarar $500,000 og óbeinar skuldbinding-
ar svo $23,155,000 skiftir, að ótaldri landþurkunar-
veöskalda-ábvrgðinni. En jafnhliða hefir stjórnin
selt 1,243,263 ekrur af fylkislöndum, stofnfé fylk-
isins, en hefir að eins $919,086 innstæðufé í opin-
berum byggingitm og því líku til að leggja á móti
því.
Ef vér snúunt oss aftur að landsölu-aöferð íylk-
isstjórnarinnar, sjáum vér, að hún hetir fargað 60
prócent af öllum fylkislöndunum, sem komist hafa ,
j undir hennar h'endur síðan árið 1900, og eytt öllu !
fénu, seíu inn hefir kontið fyrir þaú, eins og'það
varu venjulegir tekjuliðir. Meðalverðið á lönd-
uni vorum, sem stjófnin hefir ’selt, hefir verið $2.86 ’
ekran. Á þessu verði hefir stjórnin ekki vílað fyr-
ir sér að selja löndin, jafnvel þó þau hafi verið að j
stíga jafnmikið i verði og öllum íbúum hér í Vest,- 1
ur-Canáda er kunnugt, og þó að bæði Dominion-
stjórnin, C. P. R. og Hudson Bay félagið, sém'og
þau félög önnur, er ntikíð af löndum hafa sel’t, hafi
j áð nieðaltali sélt sín lönd á 9—12 dollára ekrúna.
Löndin. sem fylkið átti, þegar núverandi stjórn
þess kom til valda, voru ekki tóm flóalönd, heldttr
voru meðal þeirra sem næst 800,000 ekrur af ágœt-
is, únals-járnbraittarlöndum i Manitoba og Sas-'
ka’chewan. og éru þau nú öll að heita má seld.
Ef þessi lönd hefðu verið seld nýlendumönnunt
á aðurnefndti svæði, til að efla innflutning og
stofnun nýrra og blóntlegra bygða, þá hefði þþð
verið málsbót fyrir fylkisstjórnina. En af mönnum,
sem beinlínis ltafa verið nýlendttmenn, og ekkert
annað, hefir jafnan verið heimtað hæsta verð fyr-
ir lönd. þannig að af sumum þeirra hefir stjórnin
heimtað $12 fvrir ekruna.
Ástæðan fyrir því að meðalverðið, sem stjórn-
:n hefir fengið fyrir löndin, er jafn-lágt og áður
cr tekið frant, er sú, að feikistór landflæmi, ntilli
'.000 og 250,000 ekrur að stærð, hafa verið seld
tinum stjórnarinnar á verðinti frá $1.56 til $3.50
ekran.
1
Fylkisstjórnin komst til valda fyrir þjóðeigna-
loforð sin og hélt þau í tiu daga—tímabilið, sem
leið á milli þess að samningarnir voru gerðir fyrst
við Northern Pacific félagið og siðan við Canadian
Northern félagið. En Yictoriadaginn næstan á
undan síðustu kosningum fullvrti Mr. Roblin, að
með samningntim við Canadian Northern félagið
“hefði fylkisstjórnin fcngið eins ótakmörkuð og
fullkomin yfirráð í hendur cins og cf hún hefði
tekið að láni tuttugu miljónir dollara og sjálf látið
leggja livcrja einustu míht af járnbrautum félags-
ins.”
Kjósendum allsstaðar í fylkinu er fullkunnugt
um hvernig hveitiflutningafnir brugðust síðastliðið
haust, og hversu gersamlega Can. Northern félagið
hefir brugðist og ekki uppfylt samningana um
flutninga nú i vetur. Yfir Can. Pac. járnbrautar-
félagið hefir hið sama gengið hvað tíðarfarið snert-
ir, en ekki hefir það hætt öllum tökum, látið braut-
ir sinar eiga sig eða látið almcnning hafa fyrir þvi
sjálfan að reyna að halda þeim attðum. Canadian
Northern félagið, hafandi í höndum ábyrgð fyrir
hér tim bil tveggja miljóna og sex hundruð þús-
und dollara fjárveitingu, er fylkisþingið sérstak-
lega samþykkir til þess að félagið geti aflað sér
nægilegs útbúnaðar, hefir sýnt og sannáð, að það
er allsendis gagnslaust og skeytir hvorki um
skömm né heiður. C)g Mr. Roblin hefir, frá sæti
sinti á síðastliðnu þingi. komist í algerða mótsögn
við allar hinar fyrri yfirlýsingar sínar er hann varð
að viðurkenna að:
“vér höftan cngu mciri yfirráð yfir Canadian
Northern félaginu og aðal-aðgerðum þess hefdur
cn yfir Canadian Pacific járnbrautarfélaginu.” — •
Og jafnframt gaf hann það til kynna, að eintt for-
ré.tindin, sem Manitoba hefir í þokkabót fyrir/hina
geisimikltt ábyrgð almennings til þessa brautar-
félags, séu í því innifalin að halda áfram að
standa í ábvrgð fvrir það þangað til veðböndin
eru leyst.
Hin núverandi fylkisstjórn ber beinlínis ábyrgð |
á núverandi ástandi hvað járnbrautir í Manitoba
snertir, sökum þess að hún breytti tölu þeirra úr
þremtir og i tvær me'ð framkomu sinni árið 1900, j
og ennfrentur útilokaði hún tvö önnur féfög, sem
buðust til að leggja hér brautir á árunum 1900 og
1902. í staðinn fyrir fimni járnbrautafélög, er
keptti hvert við annað, höfum vér haft, alt þangað
til Midland-félagið kemur til sögunnar nú í ár, að-
eins tvö járnbrautarfélög, Canadian Pacific fél. og
Canadian Northern félagið. Ábyrgðin á hinu nú-
verandi óþolandi ástandi, hvað járnbrautamálin
snertir, hvílir því eingöngu á herðum fylkisstjórn-
arinnar í Manitoba, sem enn fremur frá þvi Grand
Trnnk brautarlagningin kom til umtals, ekki hefir
farið neitt dult með óbeit sína á því, að leyfa nýj-
um keppinaut að komast að. Þá hafa og ekki
cinstakir meðlimir stjórnarinnar sparað að láta í
ljósi fjandskap sinn gegn nýrri járnbrautarlagn-
ingu.
Það voru vínsölubanns-loforðin, sem lyftu
stjórninni upp í valdasessinn, en við fyrsta tæki-
færi braut hún þau loforð, og þó eitthvað tuttugu
og tvö sveitafélög hafi með eigin samþyktum tölu-
vert minkað vínsölusvæðið,' hefir þó núverandi fylk- j
isstjórn aukið tölu vinveitingaleyfanna frá 167 og
upp í 254, nfcytt v-ínveitingaleyfum upp á hvert hér-
aðið. á fætur öðru þrátt fyrir mótmæli íbúanna, á-
lyktanir dónistólanna og sín eigin ákveðnu og ein-
dregnu loforð, eins og t.d. átti sér stað hvað Nor-
wood snertir. Ilún hefir komið í veg fyrir að
hægt væri að koma fram hegningtt og ábyrgð á
hendúr þeim rhönnum, er brotið hafa vínsölulögin
og opinberlega verið í bandalagi við vinsölumenn-
ina. Eruð þér ásáttir með að leyfa vinsölumönn-
unum að kjósa þingmenn og ráða lögum og lofum
á fylkisþinginu ? Sé svo, þá er það skylda yðar að
styðja Roblin-stjórnina. Viljið þér eiga fleiri ár
enn við þessi kjör að búa eða ekki?
Er vér förum fram á að þér greiðið atkvæði
með andstsðingum núverandi fylkisstjórnar, höf-
um vér ekki óákveðna og staðlausá stjórnarstefnu
fram að bjóða. Hinn endurmyndaði liberalflokkur
æskir atkvæða yðar með uppbyggilegri framfara-
stefnu. Vér heitum því, ef þér heiðrið oss með til-
trú yðar, að gefa nákvæman gaum að aktiryrkju-
málum fylkisins og skipa sérstakan akuryrkjumála-
ráðgjafa. sem verji tíma sinum eingöngu í þarfir
þessarar stærstu atvinnugreinar fylkisins. Vér
heitum þvi að Iáta rannsaka alt, er að hveitiflutn-
ingunum og geymslu þess viðvikur, í því augna-
miði að hjálpa bændunum, og muntim annað hvort
láta byggja nægilega margar kornhlöður, er fylkis-
stjórnin sjálf eigi, eða stærri kornhlöður og færri,
eftir því sem bezt hentar. Vér ætluni oss einnig
greiðlega og hæfilega eftir þörfum,en að öðru leyti
sem í voru valdi stendur, að haga samgöngunum
greiðlega og hæfilega eftir þörfum, en að öðru leyti
muntim vér, þar sem oss skortir vald til að skerast
í leikinn, leggja umkvörttinarefni vor undir úr-
skurð járnbautamálanefndarinnar í Canada til þess
að fá bætur ráðnar á því sem ábótavant kann að
vera. •
Vér munum neyða Can. Northern járnbrautar-
félagið til þess að framfylgja samningi þeim, sein
það hefir gert við fylkið, og veitir félaginu svo
verulegan styrk af hendi fylkisbúa. Vér munum
leggja járnbrautir þar og þá, er þeirra gerist þörf,
en ekki halda áfram hinum takmarkalausu og stór-
kostlegu veðskuldaábyrgðum, sem átt hafa sér stað
að undanförnu, og munum gera vort itrasta til að
koma á samkepni milli hinna ýmsu járnbrautafé-
laga. Vér munum með því að koma á umferða-
kenslu í mjólkurmeðferð, fyrirlestrum um búnað,
aðstoð í því að velja útsæði og ríflegum styrkveit-
ingum til búnaðarfélaga, ekki eingöngu gera land-
búnaðinn að ábatavænlegri atvinnugrein en verið
hefir, heldur og veita bændunum hjálp til þess að
geta staðist samkepni þá, er þeir bráðlega mega
eiga von á af hendi akuryrkjumannanna, sem hafa
tekið sér bólfestu fyrir vestan Manitoba-fylki.
Vér heitum því, að auka styrkveitinguna til
hinna almennu undirbúningsskóla. breyta örlátP0:.
við hina hærri mentaskóla og yfir höfuð að tala
gefa mentamálunum nákvæman gaum, í samráði
við mentamálaráðgjafa, er gefi sig allan við þeim
störftim er að mentamálum lúta.
Vér munum framfylgja alþýðuskólalögunum
hlutdrægnislaust og án neinna ivilnana. Ekki mun-
um vér láta það viðgangast, að veita stjórnarstyrk
þeim skólum er ekki uppfylla fyrirmæli alþýðu-
skólalaganna, og vér munum ötullega verja rétt
fylkisíns til einka-yfirráða hvað mentamál þess
snertir, veröi á hann ráðist. Jafnrétti öllum til
handa: engin sérstök einkaréttindi! Það er heróp
vort.
Landeignum fylkisins munum vér verja til al-
mennings heilla, og að eins selja þær á þann hátt,
að almenn samkepni komist að, eða þeim mönnum
sem landnemar eru og annað ekki, og verður and-
virðinu fvrir slík lönd varið til þess áð mæta borg-
ttn upphæða þeirra, er löndin standa að veði fyrir.
\ ér munum fara sparlega og hyggilega með
almanna fé, og með niðurfærzlu á kostnaðinum við
fylkisstjórnina spara árlega 250,000 döllára út-
gjöld. er varið verður aftur til mentamálanna.
Vér viljum glæða ástina til fána landsins og láta
útskýra þýðingu hans í skólununt, en ekki munum
vér álíta nauðsynlegt að leitast við að efla drott-
inhollustuna með hótunum um hegningu skóla-
kennurtim né skólanefnchim til handa. þó ekki
blakti fáninn yfir hverju skólahúsi, né telja slíkt
skort á drottinhollustu, sem lemja þyrfti inn j þá
með ógnunum og hótunum um synjun fjárstyrks
eða kensluleyfis.
\rér ætlumst til að stjórnin taki aö sér mál-
þráðalagningu til þess að koma í veg fyrir að
sveitarfélögin þurfi að baka sér mikinn kostr.að og
takast á hendur þunga ábyrgð með því að leggja
slíka Jiræði og standast samkeþni út í frá
Vér munum framfylgja lögum fylkisins hlut-
drægmslausf, en eþki láta stjórnast af íieiuum póli-
tiskum hagsmtmum. Vér muniim veita ríílegan
styrk til vegabóta og brúarsmíðis og láta oss 'ant
.um samgöngubætur, en andstæðir munum vér
verða allri oþarfaeyðslu og timsóknum uni stvrk-
veitmgar af almannafé í pólitísku augnami&i.
\ ér ætlum að veita fylkinu heiðarlega, réttláta
°S hyggilega forstöðu hvaö vínsölumálið snertir,
og fara í • þeim efnum eftir óskum fylkisbúa, og
ætíð láta atkvæðagreiðslu þeirra skera úr hvort
vínsóluleyfi skuli veitt eöa því hafiiað, og eins uin
lv.ð hvort fækka skuli vínveitingalevfum i ein-
hvcriu sveitarfélagi eöa kjördeild. Éítirlitsmenn
þeir, cr skipaðir verða, skulu vera heiðarlegir
menn og úrskurði þeirra skal ekki haggað með
ahrifum af hendi stjórnarinnar né skoðanabræðra
þeirra í stjórnmálum.
Ef þér heiðrið æiss með tiltrú yðar, munið þér
komast að raun um, að yður sé ætíð óhætt að reiða
yður staðfastlega á skuldbindingar vorar.
Vér erum þess fullvissir, að sanngjörn og ríf-
leg útfærsla á landamærum Manitoba-fylkis muni
eiga sér stað áður en lokið er Dominion-þinginu,
sem nú stendur yfir. Vér munum ekki ganga að
hvaða samningi sem er um þetta mál og ekki
veitir Manitoba-fylki fullkomin réttindi, bæði hvað
það snertir og önnur ágreiningsmál milli fylkis-
stjórnar og landstjórnar. En landamæramálið hef-
ir aldrei verið neitt aðal-flokksmál hér í fylkinu, þó
liberalflokkurinh yrði fyrstur til þess að hreyfa
mótmælum gegn hinutn ranglátlegu ákvæðum árið
1881 er kom fylkinu í þessa kreppu , 0g flokkur-
inn hefir ætíð fylgt dyggilega jafnvel núverandi
fylkisstjórn í þessu máli, þó hann jafnframt hafi
mótmælt hinni óhyggilegu og skaðlegu aðferð,
Manitoba-fylki til handa. sem í því er innifalin, að
reyna að gera slík málefni að flokksmáli.
Látið engar ofsafengnar tilvitnanir þessu máli
viðvíkjandi né visvitandi ósannindi í frásögninni
um afstöðu liberalflokksins hvað þáð snertir,
draga athygli yðar frá athöfnum núverandi fylkis-
stjórnar, og þeim aðal-málum, sem nú eru á dag-
skrá. eins og til er ætlast. Ekki ætti neinn heldur
að láta sambandsstjórnarmál, hverrar tegundar
sem er, hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna. Atkvæða-
greiðsla yðar með eða móti Roblin-stjórninni getur
ekki haft nokkur minstu áhrif á gerðir sambands-
stjórnarinnar.
Vér skulum því beina óskiftu athygli voru að
þessum tveimur atriðum: 1. Ert þú ánægður með
að núverandi stjórn verði við völdin framvegis, um
næstkomandi fjögra ára tímabil? 2. Er stjórnar-
aðferð og stjórnarstefnu liberalflokksins i samræmi
vi’ð skoðun þína á þjóðhollustu og skyldurækni?
Undir því svari, sem hver einstakur kjósandi gefur
sjálfum sér uppá þessar spurningar, ætti atkvæða-
greiðsla hans að vera komin.
Enga persónulega óvild né flokkshatur ættu
kjósendurnir að láta hafa áhrif á það, hvernig þeir
greiða atkvæði. Ekki ætti heldur neinn að greiða
atkvæði með neinum umsækjanda um þingsetu
•sakir vinfengis eða kunningsskapar, án tillits til
stjórnmálaskoðana hans. eða hverjum mönnum
hann fvlgir að málum.
Þegar bardagirn er á enda kljáður og vér erum
búnir að greiða atkvæði eftir beztu samvizku, þi
látum oss umgangast hver annan án nokkurrar
þvkkju eða illvilja. Fari atkvæðagreiðslan fram
heiÖarlega og hleypidómalaust, mun liberalflokk-
urinn gera sig ánægðan með úrskurð kjósendanna
hver sem hann vetður. Vér berjumst fvrir mál-
efnum en ekki völdum. fvrir sannfæringu en ekki
flokki. Eg skora á menn úr báðum stjórnmála-
flokkunum að hjálpa oss til að vinna heiðarlegan
sigur. Enginn skyldi selja atkvæði sitt fyrir vin
eða peninga né láta neitt annað stjórna atkvæða-
greiðslu sinni en eigin réttlætistilfinningu. Fylgi
hver kjósandi þeirri leiðarstjörnu við atkvæða-
greiðsluna 7. Marzmánaðar, þá er eg óhræddur
um endalokiti, og beini í fullu trausti þessari á-
skoritn til samborgara minna í Manitoba, sem sú á-
byrgð hvílir nú á að skera úr hverskonar stjórn
þeir vilji hafa yfir sér um næstkomandi fjögra ára
timabil.
Yðar einlægur,
EDJVARD BROWN.