Lögberg - 28.03.1907, Side 1

Lögberg - 28.03.1907, Side 1
Þakklæti! Vér þökkum öllum okkar íslenzku viðskifta- vinum fyrir góð viðskiíti síðastliðið ár og óskum eftir framhaldi fyrir komandi ár. Anderson <& Thomas, Hardware & Sporting Goods. B38 Maln Str Telephone 339 Yér heitstrengium a?5 gera betur viö viðskiftavini vora á þessu á ri en á árinu sem leið, svo framarlega að það sd hægt. Anderson Sc Thomas, Hardware & Sporting Goods. 538 Main St. Telephone 339 20. AR. Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 28. Marz 1907. NR. 13. Liberal klúbburinn íslenzki heldur samkomu næsta mánudagskveld (annan í páskumj í samkomusal Good Templara á Sargent ave. í heiSursskyni fvrir íslenzku þingmennina nýkosnu, þá Thomas H. Johnson og Sigtrygg Jónasson, sem bátiir eru meSlimir klúbbsins. Samkoma þessi verb- | ur fyrir karlmenn aS eins, en auk | meblima klúbbsins eru allir þeir íslendingar vinsamlega boSnir, sem veittu nefndum þingmönnum fylgi við sibustu kosningar eba hallast að stefnu frjálslynda flokksins i landsmálum. Á samkomunni verður skemt með stuttum ræðum, söng og hljóðfæraslætti og að þvi loknu veitt kaffi og vindlar. Ókeypis aðgangur bæði til | skemtana og veitinga. Svo er til ætlast, aö samkoman byrji klukkan 7.30. Fréttir. Verðbréfahrun mikiö hefir ver- ið í New York undanfarna daga, og svo mikið kveðið að því, að menn muna eigi til annars meira síðan árið 1873. — Mest hefir að þessu hruni kveðið hvað járn- brauta verðbréfin snertir, sem á fáum klukkutímum féllu um 10 prct.. Komst þá alt í uppnám á kaupmannasamkundu borgarinn- ar, og ýmsir töpuðu feiknafé á ör- stuttum tíma. Helzt litur þó út fyrir aö þessa fjármála gaura- ■ gangs verði lítið vart utan við; New York. Eigi er fullkunnugt; um, hvað komið hefir á stað hruni, þessu í New York. en ýmsir eru á þeirri skoðun, að járnbrauta auð-1 menn standi á bak við, og ætlan | þeirra sé, aö fæla Bandaríkja for- setann frá að halda til streitu! stefnu þeirri, er hann aðhyllist nú í járnbrautamálunum og miðar að því að veita sambandsstjórninni! fullkomið eftirlit og yfirumsjón [ yfir starfrækslu og fjármála- [ rekstri járnbrautarfélaganna. Nýlega urðu tvö stórkostleg j námaslys á Þýzkalandi. Annað í! Kleinrolleln-námunum við For- j back, þar sem sjötíu og fimm j manns mistu lífiö, en tólf særð- [ ust; hitt í Saarlovis-námunum í Rínarfylkjunum. Þar vildi slysið til með þeim hætti, að taugin í körfu þeirri, er námamenn eru látnir siga í niður í námana, slitn- aði, og féllu tuttugu manns, er í j körfunum voru niður af tvö j hundruð feta hæð og dóu allir j samstundis. Nefnd sú, er skipuð var til að semja grundvallarlög fyrir Okla- homa ríkið, hefir nvlega lokið því starfi sínu. Hafði hún setið við lagasamninguna hundrað og fimt- án daga, og verður lagafrumvarp- ið síðar lagt undir atkvæði íbúa- hins nýmyndaða ríkis. Vatnsflóð mikil hafa verið í California um þessar nnyidir og gert mikinn skaða. Þannig er t. d. tjónið af þeim í einum bæ að eins, Oroville, metið rúm sex hundruð og fimtíu þúsund dollar- ar. Viða hefir fólkið orðið að flýja híbýli sin og nokkrir hafa druknað. Símskevti frá Vínarborg skýrir: frá því, að nýgosnar séu upp j megnar ofsóknir í Rumeníu gegn Gyðingum þar. Hafa bændur gert aðsúg að Gyðingum og brent híbýli þeirra, svo að þeir hafa orð- ið að yfirgefa landeignir sínar og flýja. Er mælt, að i siðustu viku hafi tvö þúsund Gyðingar flúið út yfir landamæri Rúmeniu. Sagt er að Gyðinga bandalagið í Vínar- borg hafi gert ráðstafanir til að greiöa fyrir flóttamönnunum. Frumvarpiö sem lá fyrir brezka þinginu um byggingu á neðan- sjávar járnbrautargöngum undir Englandssund, fékk mjög óvægar viðtökur í báðum þingdeildunum, og verður sjálfsagt ekkert af, að það nái fram að ganga fyrst um sinn. Símskeyti frá Rómaborg getur þess að 21. þ.m. hafi voðalegt stórviðri geisað við vesturströnd ttaliu og fjöldi skipa hafi þá rek- iö þar á land og farist. lög fyrir hið unga lýðveldi. Frjáls- lyndi flokkurinn vill fá algert fullveldi fyrir Cuba, og lítur horn- auga til verndarvalds B .nd:ríkji- manna. Rétt nýlega hafa aftur- haldsmenn með tilstyrk Banda- ríkjamanna komið því ákvæði inn [ í kosningarlögin, að útleadingar j þeir, sem skatta greiði, skuli hafa j atkvæðisrétt, eftir fimm ára dvöl á eynni. Foringjum frjálsl. flokks- ins finst þetta muni stefna til þess aö gera Bandaríkjamönnum létt- ara fyrir með að ná yfirráöum á eynni, og höfðu því í heitingum með að segja sig úr nefndinni. Afturhaldsmenn fagna yfir þess- ari fljótfærni liberala; þykir auð- sætt, að afleiðingin verði sú, að allir flokkar jafnt æski eftir vernd Bandaríkja þar eð það þyki nú ljóst orðið, aö eigi geti um heilt gróið með hinum deilugjörnu eyj- arskeggjum. A áttamánaða tímabilinu, frá 1. Marz síðastl., hafa liðug níutíu og fimm þúsund innflytjendur fluzt til Canada, eða um þrjátíu þús- und fleiri en á sama tima næsta ár á undan. Hlutfallslega hafa j færri innflytjendur komiö frá j Bandarikjunum á þessu tímabili en í fyrra; fleiri aftur austan um haf. Nýlega hefir fundist í Atlanz- j hafinu flakið af norsku skipi, er j Skuld hét, frá Túnisbergi. Engir menn voru á þvi. Haldið er að skipinu hafi hlekst á i illviðrunum miklu, fyrri hluta þessa mánaðar. i Svo telst mönnum til að drukn- [ ið hafi viö austurströnd Norður- \meríku á þessum vetri, sem nú :r að enda,um tvö hundruð manns Y99J. Fjögur stórskip hafa far- st þar á vetrinum. Frétt frá Toronto skýrir frá því 24. þ.m., að Joseph Phillips, for- seti York County Loan félagsins, | hafi verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir falskar skýrslur, er hann hafði geíið stjórninni. Ákær- ur um óleyfilegan fjárdrátt, sem hafnar voru gegn honum, hafa verið látnar falla niður. — Eins og ýmsir af lesendum vorum ef- laust vita, margir hverjir fyrir persónulegt tap í viðskiftunum við Y. C. L. félagið, varö þaö gjaldþrota fyrir óráðvandlega meðferð á fé þess af hálfu nefnds Phillips. 'Fregmirnar um hungursneyðina í Kína berast með skeyti hverju, og virðist óöldin, sem þar ríkir, fara sívaxandi. Nýkom.iar fregn- ir frá Shanghai segja þannig að meira sé um sjúkdóma, er að mestu er kent vistaskortinum, en nokkurn tíma áður. Fellur fólk þar hrönnum saman at þessari ó- áran. Þar að auki hafa vatnsflóö upp í landinu gert óvenjulega mikinn skaða á eignum manna og svift fjölda fólks lífi. Svo lítið er um vistir á stórsvæðum í landinu að um langan tíma hafa íbúarnir eigi haft annað til manneldis en ó- matarlega grauta, ,gerða úr kart- öflublöðum og vatni, en nú er sá forði sagður mjög til þurðar gt nginn. Fyrir skömmu rakst enska skip- ið Suevic á sker skamt frá Lizard- höfða á Englandi. Skipið var á leið frá Ástralíu til London meö um fjögur hundruð manns innan- borðs, þar af var hálft annað hundraö ungbarna. Fyrir ötula framgöngu skipstjóra og skips- hafnar varð öllum borgið. Mælt er að keisarahjónin zku ætli að heimsækja Friðrik anakonung elnhverntíma fV'rri rt Júlímánaðar næstkomandi. — makonungur hefir fyrir skemstu tið veizlu hjá Þýzkalandskeis- ara. Hinn frægi loftsiglingamaður, Santos Dumont, í Paris, hefir ný- lega smíðað flugvél eina, er hann ætlar að keppa á um tíu þúsund dollara verðlaunin, sem heitin eru fyrir flugvél er fara megi á hálfa mílu fram og aftur. Það er vitan- lega gert að skilyrði, að eigi megi nota neinskonar loftbelg, er haldi vélinni á lofti. Svo sem kunnugt er, hefir nú um marga mánuði verið fremur byltingasamt á eynni Cuba. Sitja Bandaríkjamenn þar og gæta friö- arins, en nefnd manna af öllum stjórnarflokkum situr á rökstólum í Havana við að semja kosninga- Norðan úr óbygðum. Svo sem mörgum lesendum j blaðs þessa er kunnugt, lagði landi vor, Vilhjálmur Stefánsson, ] kennari við Harvardskóla, í land- könnunarferð norður í höf síðast- liðið sumar. Einar Mikkelsen, danskur maður, var formaður far- arinnar. Var svo um talað með þeim félögum,að Mikkelsen skyldi halda skipi sinu frá Vancouver um Behringssund og síðan austur með ströndum til mynnis Mackenzie- árinnar. Vilhjálmur átti aö fara landveg, sem leið Hggur frá Ed- monton niður með Mackenzie til Herschel-eyjar, þar höfðu þeir mælt sér mót í öndverðum Ágúst- mánuði. Ætluöu þeir síðan að leggja á stað áleiðis til Banklands og hafa þar vetursetu. En margt fer öðruvísi en ætlaö er, og svo fór um þessa fyrirætl- un. Vilhjálmi gekk förin ágæta vel; kom hann til Herschel-eyjar 9. Ágúst, en greip þá í tómt. Skip Mikkelsens var þá ókomið og höfðu menn ekkert til þess spurt. Tók nú að vandast málið fyrir Vilhjálmi, þegar hver dagurinn leið af öörum og ekkert bólaði á skipinu. Hann hafði ekkert með- ferðis þeirra hluta, er nauðsynleg- ir voru til vetursetu, utan byssu sína og skotfæri. Það bætti held- ur ekki úr skák, aö þar urn slóöir var hið mesta harðæri. Hafði lið- ið langur tími (2 árj frá því vöruskip hafði komið þar síöast. Þegar öll von var úti um að skip þeirra félaga myndi koma í fyrra- haust, réðst Vilhjálmur vetursetu- maður til Skrælingja nokkurs í Steinnesi fShingle PointJ. Þótti Skrælingjum hann hin mesta happasending, sökum byssunnar og skotfæranna. Um mánaðamótin Október og Nóvember, kom hvalaveiðaskip til Herschel-eyjar. Flutti það þá fregn, að skip Mikkelsens lægi frosiö í ís hjá Barrpw-höfða, en sá höfði er um 500 mílur vestur frá eynni. Er með því útséö um, að þeir geti lagt í norðurförina fyr en síðla næsta sumars. Vilhjálmur hefir * að nokkru kannað héraöið umhverfis sig; hefir hann farið 8 dagleiðir í vest- ur frá aðseturstaö sinum. Á því ferðalagi hafði hann tvo Skræl- ingja með sér. Óku þeir á sleðum og beittu hundum fvrir. Við Skrælingjavatn fEskima LakeJ, sem er um 50 mílur norðaustur af Steinnesi, hefir enskur maöur, Harrison að nafni, vetursetu. Er hann þar á vegum landfræöiífé- lagsins enska, að gera veðurathug- anir, og eitthvað fleira. Til hans bjóst Vilhjálmur við að flytja sig nær miðjum vetri. Ætluðu þeir þá í samlögum að kanna strand- lengjuna austur að Kopar-á fCop- permme River) eða lerigra, ef auð- ið yrði. Fremur lætur Vilhjálmur vel af högum sínum, samt þykir honum matreiðslu og kosti Skrælingja i ýmsu ábótavant. Þeir hafa lítið annað sér til matar en fiskmeti, hval og selkjöt. Segir V. að oft- ast nær eti þeir fiskinn og hvalinn hráan, en selkjötið sjóði þeir alt- af. Með mestu herkjubrögöum tókst honum að fá hjá hvalaveiða- skipinu, sem áöur er um getið, um 300 pd. af kjöti og annaö eins af mjöli; auk þess svo litla ögn af sykri og öðru góðgæti siðaöra þjóða. Skrælingjunum ber hann vel söguna. Segir hann þá lipra og viðkunnanlega i umgengni og honum einkar góða. Vilhjálmur hefir stundað mann- fræði (Anthropology) og átti því, í för þessari, að athuga alt, sem að þeirri fræðigrein lítur. Dvöl hans meðal Skrælingjanna er að því leyti happasæl fyrir hann, að honum gefst kostur á að læra mál ið og kvnna sér háttu þeirra. Má því óefað búast við, að hann leggi drjúgan skerf til, að auka þekking manna á þessum einkennilega þjóöflokk. Heldur eru strjálar póstgöngur þaðan að norðan, síðasta bréf Vil- hjálms til bygða, sem fréttir þess- ar eru teknar eftir, var skrifað 26. Nóv. síöastl., en kom ekki til við- takanda fyr ,en í miðjum þessum mánuði. Nýkomin Bandaríkjablöð inna þær fréttir, að nýlega hafi komið bréf frá Einari Mikkelsen heim- skautafara og annað frá Leffing- well félaga hans. Bæði eru bréf- in skrifuð í lok Nóvembermánað- ar. Geta þeir þess, að skipiö sé fast oröiö í ísnum um 200 mílur frá Barrow-höfða. Um það leyti, sem þeir skrifuðu bréfin, ætluðu þeir að leggja í könnunarferð norður á bóginn. Hafa þeir feng- ið fregnir hjá Skrælingjum um ey eina all-mikla og áður ókunna, er vera muni beint norður af þeim. Ætla þeir sér, ásamt öðru, að rannsaka hvað hæft muni í þessu. Skipverjar voru allir heilbrlgöir og hinir kátustu. ------o------- Stúdentafélags fundur. Stúdentafélagið hélt fund 16. þ. m. Þaö var ársfundur félagsins, og voru Því embættismenn kosnir fyrir næsta ár. Þessir hlutu kosningu; Heið- ursforseti, séra Jón Bjarnason; forseti, H. S'gmir; varaforseii, Jón Stefánsson; annar varaforseti ungfrú S. Brandson; skrifari, W. Lindal; gjaldkeri, ungfrú E.And- erson. 1111111 ui bu dvoxiur di gerðum félagsins á þessum vetri, er hin mikla framför meðlima í að tala móöurmál sitt. Það er gleði- efni fyrir alla þá, sem er ant um viðhald íslenzkrar tungu hér hjá oss, að íslenzkir námsmenn virðast vera að vakna til meðvitundar um það, að það er skylda þeirra að leggja rækt við móðurmál sitt', og Varöveita það sem lengst. — En það eru fleiri en þeir, sem ganga skólaveginn, er geta stuðl- að að viðhaldi íslenzkunnar. Það ætti að vera ljúft fyrir alla af ís- lenzkum ættstofni aö reyna að halda móðurmáli sinu eins hreinu og þeim er unt, og vér vonum að almenningur yfirleitt finni hvöt hjá sér og löngun til að halda ís- lenzkunni hreinni og óblandaðri í framtiöinni. Ncmandi. av/ i AjVbTVI&lUll Ollld Býst Mr. Halldórsson við að laid- ar hans hér í bæ unni honum við- skifta, er hann hefir byrjað kjöt- verzlun sina á Ross ave. Hann býst við að opna kjötsölubúðinæ næsta þriðjudag. Ur bænum. Óskað er eftir að athygli fólks sé vakin á samkomu þeirri, er kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar heldur 9. næsta mánaðar. Þar er búist við góðri skemtun. Mr. Jósteinn Halldórsson frá Churchbridge, Sask., hefir keypt kjötverzlunarstöð þá, að 614 Ross ave., er Mr. H. J. Vopni hefir rek- Fyrir nokkru var minst á þaS hér í blaðinu, að Fyrstu lútersku kirkju hefði verið gefin mjög vönduð eikarsæti handa söngflokk sínum. Vildi gefandinn eigi láta nafns sins við getiö. En síðar komst söngflokkurinn á snoðir um að þessi myndarlega gjþf væri frá T. H. Johnson þingmanni, sem er einn af meðlimum söngflokks Fyrstu lút. kirkju. Kom söng- flokkurinn sér þvi saman um að þakka Mr. Johnson fyrir gjöfina, j og fór nýlega heim til hans í þeim erindum, og færði Mr. Johnson um leið dýrindis gull-kapsel gim- ' steinum sett og hinn bezta grip. ! Afhenti organisti kirkjunnar, Mr. S. K. Hall, gjöfina, með snoturri ræðu. Mr. Johnson þakkaði hina vinsamlegu gjöf söngflokksins með nokkrum vel völdum orðum og kvaðst eigi bera á móti því, að nýju sætin í kirkjunni væru frá sér, þar eð það væri orðið hljóð- bært gagnstætt ætlun sinni.— Síð- an skemtu nienn sér þar með söngvum, samtali og veitingum langt á nótt fram. Heiðurssamsœti. Vorinngöngudaginn, 21. Marz, var Sigtryggi Jónassyni,hinum ný- kosna þingmanni Gimli-kjördæm- is, haldið gildi af klúbbnum Helga magra, sem hann tilheyrir, í hellinum hjá Mariaggi. Lá þar vel á mönnum, eins og nærri má geta og var býsna glatt á hjalla, enda var sælgæti nóg á borðum. En fyrst tók að hýrna yfir mönn- um að bragöi, er Hannes S. Blön- dal stóö á fætur og las upp kvæði það, sem hér fer á eftir, og prent- aö var með mynd heiðursgestsins á lausu blaði og útbýtt öllum, sem þarna voru. Var það sungið svo undir tók í hellinum og gerður að hinn bezti rómur; þótti öllum það sem talað út úr hjarta þeirra_ Ólafur S. Þorgeirsson, forseti klúbbsins, ávarpaði þingmanninn nokkrum oröum. Að því búnu flutti heiðurgesturinn langa tölu og snjalla og gerði grein fyrir kosningabaráttunni og úrslitum hennar. Auk þess töluðu þeir W. H. Paulson og séra Friðrik J. Bergmann. Klukkan aö ganga tólf héldu allir heim til sín. Kom heill! Kom heill, með sigursverð í mundu, oss sómi er að heiðra slíkan gest. Nú sæmdarfullum sigri þínum undu, er sýnir traust á kostum þínum bezt. Og reyndar er það nýung alveg engin, því um það bera liönir tímar vott, að ‘ landar’’ telji þig einn dýrsta drenginn, sem dreift var aldrei nema við alt gott. Já, sjáið hvað vor gamli vinur getur, ei Gimill sjálfur stenzt við framsókn hans. Úr “'Helga magra” hépi enginn betur enn hreyfði brand i fylkjum þessa lands. Og ‘iandinn” fylkti þétt um þjóðmæringinn, svo þusti undan Roblins sóknar-her, unz dreifð var öll og brostin breiðfylkingin, sem Baldvins merki hafði yfir sér. Og allan daginn horfði “Helgi” kátur, úr Hliðskjálf á hinn grimma orraleik. Hann vissi það, að engra eftirbátur var arfi hans, er farinn var á kreik. Um leið og sunnu sveiptu rökkurtjöldin, og svifu stjörnur fram á himinbraut, þá greipti Saga Sigtryggs nafn á skjöldinn, er sigur frægan þar að lokum hlaut. * * * Og heill þér, félagsbróðir gamli’ og góði, sem gæfan leiddi’ í nýjan heiðurs-sess. Vér færum þér, með voru litla ljóði, þá ljúfu ósk, og allir biðjum þess: Að gæfustund þú megir marga’ og langa enn með oss dvelja’, og vinna oss í hag, og fagurt verði', er förlast lífsins ganga, og friðsælt æfi þinnar sólarlag.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.