Lögberg - 28.03.1907, Blaðsíða 6

Lögberg - 28.03.1907, Blaðsíða 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. MARZ 1907 DENVER og HELGA eSa VIÐ ROSSNESKU 'IIRÐINA. SKALDSAGA eftir ARTHUR W. MARCHMONT. “Hann veit aö skjölin munu bráöum annaö hvort veröa í mínum eöa þinum höndum, og þess vegna hefir hann hraöaö giftingunni eins mikiö og þú veizt.” “Eg get nú ekki veriö aö lasta hann fyrir þaö.” “En svo datt honum í hug aö gangast fyrir því, aö viö legöum bœði á staö í þessa langferö.” “En hann mótmælti Því þó fyrst aö þú færir og vildi aö eg færi einn,” svaraöi eg. “Já, hann geröi þaö, því aö hann vissi aö þaö yröi árangurslaust fyrir þig aö fara einan. Þetta voru ekkert nema vífilengjur. Hann ætlaöi okkur auövitað aö veröa samferða til þess aö hann ætti hægra meö aö ráða niðurlögum okkar beggja í einu. Sjáöu svo hvað hann geröi næst. Hann beiö þangað til viö vorum gift og höföum lofað því aö fara til Síberíu. Þá þóttist hann viss um aö viö hlytum aö fara meö skjölin. Mr. Mervin á aö afhenda þér þau x dag, og svo eigum viö aö leggja á staö í kvöld eöa á morgun. Hann býst við aö hann geti látiö lita svo vel eftir okkur, frá því aö þú hefir tekiö viö skjölun- um og þangaö til'við leggjum á staö, aö hann viti fyr- ir víst hvar þau veröa þá.” “Eg ætlaði mér aö hafa þau meö okkur.” Helga hugsaöi sig um stundarkorn, en hristi svo höfuðið andmælandi. “Líklegt er og, að hann hafi einmitt búist við því, en eg efast þó um aö hann hafi þorað aö eiga undir því. Ef inér skjátlast ekki, þá býst eg viö aö hann sæti fyrsta tækifæri, eftir aö þú kemur frá skrifstofu sendiherrans strax í dag. Þá veit hann aö þú munir hafa skjölin á þér, og með því aö láta taka þig fastan og láta leita á þér, nær hann takmarki sínu. Sýnist þér þetta ekki sennilegt?” “Jú; og jafn-augljóst er mér það, og aö viö bæöi hefðum fallið í klær hans, ef skarpskygni þín hefði ekki bjargað okkur. Eg dáist aö hyggindum þínum, elskan mín.” “Þaö er óþarfi fyrir þig aö dást að þessu. Enn eru þetta ekkert nema getgátur. En eg þekki prinz- inn. Nú er bara um það aö hugsa hvað viö eigum að gera viö skjölin.” “Við megum til að senda þau til New York,” svaraði eg ákveðinn. “En hvernig á aö fara aö því?” Svarið kom okkur ósjálfrátt upp í hendurnar, því aö Frank Siegel kom inn í þessu og sagöi um leið og hann heilsaði; “Eg er á förum héðan. Eg hefi fengið símskeyti • og er kallaður vestur til New Ýork.” Viö Helga litum hvort til annars. “Eg hélt aö þú ætlaðir til San Francisco?” “Nei; en eg held áfram að vinna hjá sömu mönnum og sama félaginu. Það hefir að eins skift um bústaöi, flutt sig til New York, og þykir mér þaö engu lakara.” “Mér þykir vænt um að heyra þaö. Eg vonast til að hitta þig þar bráöum.” “Ert þú hættur viö aö fara til Siberíu?” spurði hann undrandi. “Eg veit það ekki fyrir víst enn þá. En eftir á að hvggja, heldurðu að þú getir flutt fyrir mig sendingu til föður míns?” “Áttu við aö eg fari með skjölin?” “Þér eruö býsna fljótur aö geta yöur í eyðurn- ar, Mr. Siegel,” sagði Helga hlæjandi. “Kæra Mrs. Denver. Eg væri fús á að gera ykkur flestan þann greiða, sem eg get, en þetta er mér illa við að gera. Eg get ekki sem stendur átt það á hættu, aö verða tekinn fastur nú. Hvað ætl- arðu að gera, Mr. Denver?” “Eg þarf aö senda þessi skjöl til New York.” “Eg get gert ykkur enn rneiri greiöa, en að fara með skjölin. Eg skal leggja ykkur ráð til aö koma þeim óhult vestur um haf. Það væri hvort sem er ekki óyggjandi að senda þau með mér.” “Hvaöa annað ráö betra sérðu til að korna skjöl- unum vesttir?” ‘“Að láta Mervin senda þau sem embættislega sendingu.” “Þaö er dagsanna. En aö mér skyldi ekki detta þaö í hug,” hrópaði eg. “Verið þér sælar, Mrs. Denver. Eg þori aö segja, aö yður lizt vel á yður í New York, og að viö eigum eftir aö hittast Þar og rifja upp forna við- kynningu hér eystra. Vertu sæll, Harper, og þakka þér fyrir aö þú greiddir fyrir mér aö komast í rúss- neskt fangelsi. Nú þykir mér vænt um aö hafa losn- aö úr því í tæka tíö. Eg má til aö hraöa mér. Eg fékk strengileg símskeytisboð um þaö. í guös friði, bæði tvö.” Og svo snaraðist hann út úr herberginu. Þið eruö miklir ákafamenn í Ameríku,” sagöi Helga hlæjandi. “En eg held samt aö þetta sé snjallræði, sem hann ráðlagði okkur.” “Já, eg er alveg viss um þaö,” og svo fórum við að ráðgast um hvernig haganlegast væri að fara að. Okkur kom saman um aö haga öllu rétt eins og viö ætluöum að leggja á stað í Síberiuferöina í raun og veru, og búa okkur undir hana eins og við höfðurn ætlað okkur. Helga stakk upp á því, aö við reynd- um aö leika á prinzinn og ónýta væntanleg hrekkja- brögö hans meö þeim hætti, sem nú skal greina. Hún átti að fara og undirbúa alt til ferðarinnar aö sínu leyti, og okkur kom saman um að hittast ekki aftur fyr en svo sem einni klukkustund fyrir þann tíma, er prinzinn heföi ákveðiö til fundar viö okkur. Þeirri einu klukkustund ætluðum viö aö verja til miðdegisverðar i herbergjum okkar og bíða hans þar. Þetta gerðum viö auðvitaö til þess aö spæjarar hans ættu sem hægast meö að sjá hvað viö tækjum okkur fyrir hendur um daginn, og gefa prinzinum fulla ástæðu til að ætla, að við hefðum skjölin hjá okkur í gistihúsinu. Eg átti fyrst að fara rakleiðis inn í skrifstofu sendiherra stórveldanna og gera þar nauösynlegar ráðstafnir, og þaðan til Mervins. Eftir að eg hafði fundið hann átti eg að aka til ýmsra sölu- búöa í borginni og kaupa alt það er nauðsynlegt væri til ferðarinnar, og hegða mér að öllu leyti eins og viö værum ugglaus og byggjumst viö engum svikum. Rétt þegar eg var að leggja á stað datt mér í hug að ske kynni að Mervin mundi eigi vera um að fallast á ráöagerð Siegels. Sennilegast var, aö hann vildi helzt vera alveg utan við það aö eiga nokkuö við þessi skjöl framar, enda gat slíkt orðið honum til töluverðra óþæginda og jafnvel bakað honum em- embættismissi, ef þaö sannaðist að hann heföi vísvit- andi tekist á hendur, að koma skjölunum út úr Rúss- landi. Mig langaöi alls ekkert til að koma honum í nein vandræöi, en eg ásetti mér að blekkja hann dálítið. Þess vegna bjó eg út aðra skjalabögla, er Iitu öld- ungis eins ut og þeir, sem eg hafði skilið eftir hjá Mervin. Auðvitað voru þeir fullir með óskrifuöum pappir. Þessa bögla hafði eg með mér til Mervins, og lét umslögin vera ólokuð. Þctta reyndist líka mjög heppileg varúðarregla. v trax og eg fann Mervin braut eg upp á erindinu og sagði: Þessi Síberíuferð er ekkert barnaglingur, Mer- vm, og vegna þess aö enginn veit hvað fyrir kann að koma á jafn-Iangri Ieið, held eg að réttast væri fyrir mig aö senda ýmislegt af áriðandi skjölum, sem eg hefi meðferðis, beint til föður míns, meðal annars erfðaskra mina. Eins og þú getur ímyndað þér, er mer mjog ant um að þessi skjöl komist til skila, en vegna þess, að ekki hefir verið sem allra bezt sam- komulagið milli min og rússnesku stjórnarinnar og eg hefi þaðan einkis góðs aö vænta, þykir mér viss- ara að fa skjol min send sem embættislega sendingu frá sendiherrasveitinni hér. Eg vona aö þú getir komið þessu til leiðar fyrir mig.“ “Áttu við, að eg sendi skjölin, sem eg hefi geymt fyrir þig?“ “Eg á við aö þú sendir þessi hérna,” sagði eg og tók upp úr vasa mínum skjalaböglana, sem eg hafði útbúið mig með. “Já, það er svo sem sjálfsagt,” svaraði hann, og létti sýnilega við að þurfa ekki að senda hin skjölin, sem hann geymdi. “Eg skal senda þessi núna strax, ef þú vilt,” mælti hann enn fremur og rétti út hend- ina eftir skjalaböglinum, sem eg hélt á. “Þaö vill svo vel til, að við erum aö senda sérstaka embættissend- ingu vestur til Washington um Kínamálið. Banda- rikjaforsetinn sendi gagngert hingað boðbera sinn með áríðandi fregnir, og í dag snýr sá maður aftur meö svar frá okkur. Afhentu mér bara skjölin, sem þú þarft að senda og eg skal sjá um aö þau komist.” “En eg þarf að bæta viö fáeinum línum til föð- ur míns áður en eg afhendi þér skjölin. En viövíkj- andi hinum skjölunum, sem þú geymir fyrir mig, þá ætla eg nú aö biðja þig að geyma þau þangað til eg kem aftur frá Síberíu.” “Biddu mig ekki um það, kæri Denver minn. Eins og eg hefi sagt þér áður vildi eg alla hluti fyrir þig gera, sem eg hefi vald til, en þetta er mér öld- ungis ómögulegt. Sjálfur veit eg ekki hvaö fyrir hefir komið, og hefir verið skipað að grafast ekkert eftir því, en eg hefi lofað því hátíðlega aö afhenda þér þessi skjöl í dag.” Eg lézt taka mér þetta mjög nærri, og fór um það nokkrum ómildum orðum, og fáraðist mikið yfir því, hve óþægilegt væri fyrir mig að flytja skjölin með mér fram og aftur til Síberíu, en "tók samt loks- ins við þeim. Að þvi búnu yfirgaf Mervin mig, til aö gefa mér tóm til aö ljúka viö bréfiö til föður mins, og var eg þá ekki lengi aö skifta um bréfaböglana. Eg tók umslögin utan af óskrifuðu böglunum, sem eg haföi meö mér , og stakk skjölunum sem Mervin haföi geymt í þau umslög, og bjó um óskrifuðu böglana svo þeir litu eins út og hinir, sem Mervin hafði af- hent mér ('stórveldaskjölinj. Síöan skrifaði eg utan á umslögin fsem voru utan um stórveldaskjölinj til föður míns, og beið svo komu Mervins. Strax og hann kom inn sagði eg: “Eg vildi óska aö þú heföir séð þér fært aö senda þessa skjalabögla líka,” og benti um leið á þá óskrifuðu, sem Mervin bjóst við að væru skjölin, sem hann hafði geymt fyrir mig, þar eð böglarnir litu al- veg eins út og þeir, sem hann hafði afhent mér. “Eg vildi lika aö eg hefði getað það, en eg veit aö þú skilur hvaöa ástæður eru því til fyrirstööu.” “Þaö er samt slæmt,” sagöi eg og stakk óskrif- uöu skjalaböglunum í vasa minn. “En þar eö mál þetta er þannig vaxiö, ,sem okkur báðum er kunnugt væri bezt að hafa alls ekki orð á þessu.” “Kæri Denver minn, þaö þarftu ekki aö óttast aö eg geri. Þagmælskan er eitt aöal-undirstööu at- riði í starfsemi okkar hér,” svaraði hann. Þarna var ekkert frekara aö gera, og eftir aö við Iiöfðum rætt lítiö eitt saman um hina fyrirhuguðu ferð austur til Síberiu, sagðist eg þurfa aö hraöa mér til að Ijúka af ymsu er liti aö undirbúningi undir hana, þakkaði eg Mervin fyrir alla þá hjálp, er hann hafði veitt nxér og kvaddi hann síðan. Þegar eg fór út úr skrifstofunni leit eg í kring um mig til að vita hvort eg sæi spæjara Kalkovs prinz og sannfærðist um að grunur Helgu væri á rökum bygður. XXX. KAPITULI. Leikið á prinsinn. Ef Helga hefði haft á réttu að standa, gat eg átt von á því að vera settur aftur þá og þegar og eg var hálf-hissa á þvi að mér skyldi hindrunarlaust vera leyft að komast út úr vagninum. Ef prinzinn hefði undiö svo bráðan bug að þvi aö taka mig fastan þá hefði hann ef til vill getað náð í skjölin þegar hann haföi komist að því að eg haföi þau ekki á mér, og þá hefði farið alt öðruvísi. Ef prinzinn kæmist ekki að bragöi mínu meö skjalaböglana, fyr en boðberi sendiherrasveitarinnar væri lagður á stað frá Pétursborg, þá stóð eg ólíkt betur að vígi. Mér til mil^illar undrunar var alls ekkert gert til að hindra ferð mína. Eg býst við, aö mín hafi verið gætt vandlega, en það var gert með svo mikilli leynd, að eg varð alls ekki var við þaö. Eg haföi auðvitað enga ástæðu til að vera meö neinar áhyggjur út af því og ók búð úr búð til að kaupa hitt og þetta. þangað til komið var aö þeim tíma, er eg hafði mælt mér mót viö Helgu á gistihúsinu. Hún varð hálf-hissa þegar hún sá mig aftur kom- inn. Meðan viö vorum að borða sagöi eg henni frá för minni og ræddum viö siðan um ástæður okkar. “Hann þykist svo viss í sinni sök, aö hann hefir frestaö að taka þig fastan, Harper, en hann kemur áöur en þessi dagur er liðinn.” “Skjölin eru nú komin svo langt í burtu, að hann nær ekki í þau,” sagði eg og hló, “svo að hann getur nú gert það sem honum þóknast.” “Hann gerir það líka. Eg sá Mr. Boreski. Hann hafði heyrt að eg haföi veriö tekin föst og látin laus aftur. Hann kom til aö heilsa upp á mig. Eg hélt aö hann væri ekki á Rússlandi.” Stefanía hertogafrú er komin í sátt og samlyndi við skyldfólk sitt. Svo sagöi hann mér að minsta kosti. Hann fær sjálfur aftur pólska hefðartitil sinn, fyrirgefning á gömlum syndum, og honum verður eitthvað þægt fyrir eignamissinn.” “Því þykir víst vænt um að hún er gift?” “Eg held samt að það hálf-kvíði fyrir því, sem hún kann aö finna upp á næst. Boreski var hálf- skrítinn þegar hann kom. Hann er ekki staðfastur í sér. Hann þarf aö hafa einhvern til aö styðjast við. Hann virðist jafnvel vera hræddur við að láta þaö fréttast, aö hann hefði heimsótt mig. Samt sem áöur fanst honum hann mega til með aö koma og aðvara mig. Hann finnur mikið til þessarar nýju tignar sinnar.” “Aö aðvara þig?” “Já, viðvíkjandi þessari Síberíuferö. Hertoga- frúin hafði heyrt um hana og sagt honum. Hún hlýt- ur l>vi að standa í mjög nánu sambandi viö ■.Kal- kov prinz og rær víst aö því ölluum árum að hjálpa honum til að ná í skjölin. Þ.au ætla aö halda mér Þar sem fanga — þaö er að segja ef viö nokkurn tima komumst þangaö. Mr. Boreski réð mér sterk- lega frá að fara þangað.” “Vissi hann nokkuð um fööur þinn?” Nei. Um hann virðist prinzinn ekkert hafa sagt.“ “Það virðist alt falla í ljúfa löð hjá honum. Það verður gaman að sjá, hvað hann gerir næst.” “Eg hefi líka séð annan mann, sem Iangar mjög mikið til að sjá Þig,” sagði Helga og brosti við. “Mann, sem dáist sérlega mikiö að þér.” “Sjá mig?” Já, hann langar til að veröa Bandaríkjaborgari, en vill samt fyrst fara meö okkur til Síberíu.” Eg veit vel hver það er. Hann er bezti dreng- ur. Þú átt við Ivan.” “Já,” sagöi hún og kinkaði kolli. “Hann hefir hingað til verið elskur að mér einni.” “Sagðirðu honum nokkuö ?” LTm hvað ? ’ sagöi hún ósköp sakleysislega. “Að þú ert ekki lengur ein þíns liðs, og að hann verður nú að skifta velvild sinni á milli okkar.” 'J^, og eg skal segja þér, hann varð hreint ekk- ert hissa. Ilann varð bara svo hlægilega ánægður.” “Hlægilega?” Hún brosti til mín og sagði: “Eg held hann sé sá dyggasti þjónn, sem hægt er aö hugsa sér.” “Þú munt reka þig á jafningja hans í Banda- ríkjunum.” “Mikið undraland hljóta Bandarikin að vera.” “Þú segir þaö nú í alvöru, þegar þú kemur þangað.” Með þessum og þvílíkum gamanyrðum og spaugi reyndum við að bæla niður áhyggjurnar meðan viö biðum eftir Kalkov prinz. Hann kom stundvíslega. Klukkan var á slaginu þrjú, þegar hann kom inn. “Þér eruð stundvís maöur, herra prinz,” sagöi eg- “Eg sagðist ætla aö koma klukkan þrjú, mon- sieur.” “Þér lítið ekki vel út,” og í raun og veru þá leit hann út fyrir að vera mjög veikur. Hann var ná- fölur og áhyggjulegur í bragði, augun sviplaus og alt látbragð lians bar vott um að hann legði mikiö aö sér til að láta á engu bera. Þaö sem fyrir haföi komið daginn áður, hafði auðsjáanlega fengið mikiö á hann, og svo mundi eg lika eftir þvi, að hann hafði orðiö þá veikur. “Eg er orðinn gamall maður, og er ekki vel frísk- ur. Eg hefi veilt hjarta,” sagði hann og fleygði sér niöur í hægindastól. Hann hefði nú getað komist heppilegar að oröi og eg sá að Helga varð hálfhissa á þessu orðatiltæki lians. “Veilt hjarta er leiður förunautur á lífsleiðinni,” svaraöi eg alvarlega. “Má eg ekki bjóöa yður eitt glas af kognaki? Þér reynið alt of mikið á yður, Kalkov prinz,” sagði eg og rétti honum glasiö. Vínið virtist hressa hann, og um leið og hann setti glasið frá sér sagöi hann dálítið glaðari í bragöi: “Þið eruð aö týgja ykkur til ferða.“ “Já, viö höfum mikið að gera. Komið þér með vegabréfin handa okkur?” “Nei.” Þetta einsatkvæðisorð hans minti á hina fyrri harðneskju og þverúð hans. “Nei? Jæja, við getum þá beðið einum degi lengur, ef yður sýnist svo,” svaraði eg og lét sem mér væri sama. Eg get vel getið því nærri, að yður hafi leiðst að vasast í slíku, þar eð þér eruö veikur. Hve- nær getum við vonast eítir aö fá vegabréfin?” “Eg hefi fengið fréttir, sem breyta þessu öllu.” “Einmitt það. Eg vona samt að það séu ekki slæmar fréttir fyrir okkur,” og lét sem eg yrði alt í einu áhyggjufullur. “Eg hefi frétt Það, aö Lavalski prinz sé dáinn.” “Dáinn,” hrópaöi Helga og sneri sér undan. JHvenær dó hann?” spuröi eg. “Eg veit það ekki. Frásögnin um dauða hans er dálítið ótrúleg.” Og eg held að honum hafi líka sjálf- um fundist það, þó að hann gerði alt sem hann gat til að gera hana sennilega. “Þ'að hefir fengið mjög á mig. Eg heföi átt að fá vitneskju um það strax, en eg hefi ekki komist að því fyr en eg sá það nú í stjórnarskýrslunum, en þær hafa veriö svona lengi á Ieiðinni.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.