Lögberg - 18.04.1907, Page 6

Lögberg - 18.04.1907, Page 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. APRÍL 1907 DENVER og HELGA hendur á rnag ruddist Haraldur Mervin inn, og meö honum einn af liösforingjunum sem eg haföi séö daginn áöur utan viö herbergisdyr keisarans. “Mér er það mikiö ánægjuefni,’’ mælti Mervin, “aö sjá, aö Yöar Hátign er að hressast; en hvaö á c5i VIÐ ROSSNESKU 'ÍIRÐINA. SKALDSAGA eftir ARTHUR W. MARCHMONT. “Og sem Bandaríkjaborgari neita eg aö láta flytja mig í fangelsi, án þess aö fá aö vita hvaö mér sé gefiö aö sök, að minsta kosti þangaö til erindsreki sendi- herrasveitarinnar kemur aftur.” “Þaö hryggir mig mjög, en eg hefi engin önnur ráö,” svaraöi hann og stóö upp. Þá kom Helga mér til hjálpar og sagöi: “Væri þaö ekki réttara af yöur, Mr. Drougoff, aö fara fyrst á fund prinzins og skýra honum frá kröfum okkar? Maöurinn minn er útlendingur, og vinur keisarans, og yfir höfuö aö tala er þetta mál flóknara og erfiðara viöfangs, en venja er til.” “Þaö er þýðingarlaust,” svaraöi lögreglustjór- inn andmælandi. “Gott og vel,” svaraöi eg, “þá er bezt aö byrja leikinn. Eg var aö búa mig í langferð og er þvi vel vopnaður. Ef hér eiga aö verða blóösúthellingar þá er mér ekki um að kenna. Eg hefi ekki gert mig sekan í neinum glæp, og þér megiö trúa því aö eg ætla ekki að láta taka mig lifandi.” Hann átti auðsjáanlega ekki von á þessu, og það kom hik á hann. “Eg ætla aö finna Hans Hátign prinzinn,” sagöi hann eftir litla þögn og fór því næst i burtu. “Var þaö alvara þín, Harper, að fara að berjast viö þá?” spuröi Helga rólega. 9 “Nei, alls ekki. Eg er öldungis óvopnaður, en þetta þref hefir dregið tímann um tuttugu og fimm mínútur aö minsta kosti. Eg vildi bara aö Mervin kæmi nú.” * “Þú b’ektir mig. Eg hélt aö þér væri alvara,” svaraöi hún og var eins og létt væri af henni þung- um steini. Mr. Drougoff var lengur í burtu en viö gátum jafnvel vonast eftir; en þegar hann kom aftur brá okkur heldur en ekki í brún viö aö heyra fréttirnar. “Hans Hátign prinzinn kemur bráöum hingaö,” sagöi hann í flýti. “Eg get ekki séö að hann hafi neitt gott af því,” svaraði eg, “en hann um það.” Svo þögðum viö öll tim stund. En innan skamms heyröum viö traök mikið úti fyrir, og eigi leiö á löngu þangað til dyrunum var lirundiö upp og rnargir rnenn ruddust þar inn, báru gamia Kalkov á burðarstól og fylgdu tveir læknar hópnum og gengu sinn á hvora hönd viö burðarstól- inn. Burðarmennirnir settu niöur stólinn meö prinz- inum á í mitt herbergiö og hörfuött síöan út úr dyr- unum. “Eg hefi látið bera mig hingað,” mælti prinzinn og leit til Drougoffs, “til að líta eftir því, að skipun- 11 m mínttm sé hlýtt.” Rödd hans var veikluleg, en í svip hans skein sama óbuganlega alvaran og vilja- þrekiö, sem sérstaklega einkendi hann, og eg þekti svo vel. “Þá hafiö þér um leið komiö til aö vera sjónar- vottur að grimmilegum bardaga,” sagöi eg ákveöinn, eins og heföi einsett mér aö verjast meðan eg gæti staöiö uppi. “Drougoff! Takiö þau bæöi höndum! Þér skulið beita valdi ef meö þarf. Eg skipa það!” “Hvaö er okkur gefiö aö sök?” svurði eg reiöu- lega. “Gerið skyldu yöar, Drougoff!” hrópaöi prinz- inn illilega. Lögreglustjórinn gaf undirmönnum sínum merki. “Farðu fram fyrir mig,” hvíslaöi eg aö Helgu, “og reyndu að tefja dálítiö lengur fyrir þeim.” Hún lét ekki segja sér það tvisvar, og henni tókst það mæta vel. Hún hné í faðm mér og hvíldi þar æði-otund eins og yfir komin af harmi. Síðan kvaddi fcún mig með mikilli blíöu og innileik, og i það gengu nokkrar mínútur. Mennirnir hikuöu viö meðan á þessu stóö; og eftir að hún haföi orðið að skilja við mig tókst henni enn aö tefja fyrir þjónum Kalkovs . En að lokum varð mótstöðumönnum mínum eigi lengur hamlað aö leggja hendur á mig og Drougoff lagði á staö til aö taka mig. Eg hörfaði aftur á bak, stakk hendinni í vasa minn og sagði: “Eg aðvara yður um að ganga ekki nær mér, cf þér viljiö ekki stofna lífi yðar í hættu.” Hann hrökk við og nam staðar. “Skipið mönnum yðar að skjóta á hann, ef hann sýnir mótstööu,” hrópaði gamli maðurinn harö- neskjulega. Drougoff endurtók þá skipun við undirmenn sína, og á næsta augnabliki var miðað á mig þremur marghleypum. “Gefist upp, monsieur,” sagöi Drougoff. Eg rak upp skellihlátur. “Já, eg ætla aö gera það, þvi eg hefi ekkert skot- vopn á mér,” svaraöi eg og sneri við vösum minunt, sem voru tómir. En á sama vetfangi kom loksins hjálpin, sem eg hafði lengst þráð, og ekki árangurslaust barist fyrir. Rétt í því að hermennirnir ætluöu að leggja þetta aö þýða?” "Ekkert annað en þaö, að tveir skaövænlegir ní- hilistar eru á leiðinni i fangelsiö,” svaraði prinzinn, einbeittur og alvörugefinn. Eg sá það á svip Mervins, hve mikiö hann reidd- ist af svarinu. “En nú krefst keisarinn þess, aö Mr. Denver komi þegar i staö til hallarinnar á fund sinn. Sú aö- ferö, sem hér er beitt viö heiðarlegan Bandaríkja- borgara er öldungis óviðeigandi, Kalkov prinz.” “Hvað sem yður sýnist um þaö, Mr. Mervin, þá skulu bæöi hjúin nú fara beint í fangelsið,” svaraði prinzinn með miklum hroka. “Nú kemur til yðar kasta. Vilda ofursti,” sagði Mervin og sneri sér að liösforingjanum, sem með honum hafði komið. “Mr. Mervin hefir lýst yfir skipunum þeim, sem keisarinn gaf mér. Eg verð að hlýða þeim.” “En hVaöa skipanir fenguð þér viövíkjandi kon- unni þarna?“ spurði prinzinn þrunginn af heipt. “Madama Denver á að fylgjast með manni sin- um til hallarinnar, og vera þar viö hendina, ef Hans Hátigu skyldi óska eftir að hún yrði kölluð fyrir sig.” “Hún er hættulegur níhilisti, herra ofursti.” “Eg hefi þegar skýrt Yðar Hátign frá skipun- um keisarans.” “Og eg er tilbúinn til að hlýðnast þeim, ofursti,” sagði eg. “Vagninn bíður okkar úti fyrir, Mr. Denver.” Hann bauð Helgu að leiða hana út og eg fór á eftir með Mervin, án þess að virða Kalkov prinz við- lits; en eg sá þó að báðir læknarnir beygðu sig á- hyggjufulhr ofan að honum þegar við vorum að leggja á stað. . “Þú gerðir það fallega, Mervin.” “Eg gerði nú þaS sem eg gat.” “Það mátti ekki tæpara standa.” “Það .leit út fyrir það.” Að svo mæltu stigum við ánægðir og fegnir inn í vagninn. XXXII. KAPITUU. Endir. Helga beið mín með áhyggjusvip, þegar eg kom út úr herbergjum keisarans, eftir að hafa talaö viö hann. “Hvernig gekk þaö?” spurði hún og kom á móti mér strax og eg kom fram fyrir lnirðina. “Ljómandi vel,” svaraði eg brosandi. “Alt gengur að óskum — fyrir okkur. En eg er hræddur um að prinzinn geti ekki sagt það sama að þvi er hann snertir,” sagði eg kuldalega. “En faðir minn?” “Minning hans verður hér eftir höfð í réttmæt- um heiðri og sérhver skuggi af henni dreginn. Þú hafðir rétt fyrir þér, góða mín, að því er aðal-áform- þitt snerti — að fara sjálf á fund keisarans.” “Já, eg var viss um það.” “Ef þú að eins hefðir náð fundi hans, heföi aldr- ei neitt komið fyrir þessu líkt. Eg hefi aldrei séð mann komast meira við en hann. Eg skildi öll skjöl- in eftir hjá honum, og hann er nú að lesa þau. Þeg- ar hann er búinn að því, ætlar hann að veita þér á- lieyrn. Sjálfur hefir hann ekki áöur fengiö að heyra nokkurn minsta snefil af sannleikanum í þessu máli.” “Aumingja faðir minn,” sagöi hún með veikum rómi. “Loksins fékstu uppreisn.” “Gamli Kalkov hefir farið slæglega að ráði sínu, og liðni tíminn hefir lagt honum í skaut, upphefö, gull og gæfu, en eg öfunda hann ekki af ókomna tímanum.” I þessum svifum kom Mervin inn i biðsalinn. T‘Hvernig hefir þaö gengið, Denver?’” “Alt hefir gengið svo vel, sem eg hefði helzt á- kosið, og kærar þakkir áttu fyrir hjálpina.” “Það þykir mér sannarlega vænt aö heyra,” svaraði liann með óduldum feginleik. “Við vorum komin út á svo veikan ís að eg var orðinn dauö- hræddur um að hann mundi brotna niður með okk- ur,” bætti hann viö. “Sá ís hefir samt haldið okkur öllum — nema Kalkov. Hann á sér enga viðreisnarvon. Þ.ú mátt vera viss um það.” “Þetta var vogunarspil,” sagði hann og var auðsjáanlega að hugsa um hættuna, sem hann hafði veriö i. Eg fór að hlæja. “Þú hefðir sagt það, ef þú hefðir verið í okkar sporum svo sem einn klukkutíma.” “Já, eg ber ekki á móti því, að þið hafiö verið illa stödd,” svaraði hann og brosti þunglyndislega, “en embættisábyrgðin hlýtur að hvíla býsna þungt á hverjum heiðarlegum manni.” “Satt er það, en þó að engin embættisskylda kæmi til greina, getur maður ekki bælt niður frelsis- þrána og þrána til að halda lífi, þegar hvort tveggja er í voða.” “Mér mun aldrei liöa úr minni hjálp sú, er þér hafið veitt okkur. Mr. Mervin,” sagði Helga, og rétti honum hendina brosandi. “Eg vildi heldur stofna mér i samskonar liættu aftur, en að missa vinfengi yðar,” svaraði Mervin með karlmannlegri hæversku. “Þú ert nú að gera aö gamni þínu,” sagöi eg. “Þetta er auðvitað einstaklega fallega sagt af þér, en viö vonum að viö þurfum ekki aö fara fram á slíka hjálp við þig oftar, enda þótt viö þurfum á vernd sendiherrasveitarinnar aö halda, ef keisarinn framfylgir hótun sinni.” “Hvaða hótun?” “Það lítur út fyrir aö hann sé aö hugsa um aö láta Mrs. Denver hætta aö vera til.” “Hvaö ertu að segja, Harper?” hrópaöi Helga. “Sannleikann, og ekkert annaö.” “Þaö er engin hæfa í þessu,” sagði Mervin. “Jú, keisarinn hótar því,” svaraði eg drýginda- lega. “En hvers vegna ertu þá að hlæja, Harper?” spuröi Helga. “Það er þó ekkert spaugilegt, ef hjónaband okk- ar skyldi verða gert ógilt.” “Á, er þetta ráöningin á gátunni?” sagöi Helga hlæjandi og greip báöum höndum um handlegginn á inér. “Ertu annars ekki aö gera að gamni þínu?” spurði Mervin alvarlegur. “Nei, keisarinn hótar að ónýta hjónaband okk- ar,” svaraði eg. “Það væri nógu gaman að vita ástæðuna,” sagöi Helga og hleypti brúnum. “Auövitaö get eg vel beð- iö eftir að fá að heyra hana þangað til þar að kemur, ef þú hefir verið beðinn að þegja yfir þessu.” “Ónei. Það er bezt eg segi þér það. Keisarinn heldur því fast fram, aö vegna þess aö þú sért prinzessa að ætt, þá sé samþykki hans nauðsynlegt til þess að gifting þín sé lögmæt — svo að—” Þá greip Helga fram i fyrir mér og sagði hlæj- andi: “Eg vissi, að þú varst að narra mig.’” “Samt get eg ekki séð, að liægt sé að mótmæla skipun keisarans,” sagöi Mervin alvarlega. “Og af því hlýtur að leiða, að Helga getur ekki eftirleiðis veriö Mrs. Denver.” “Hvað á eg þá aö vera?” “Keisarinn var að tala um að endurveita þér öll réttindi þín og sæma þig hefðartitli föður þíns.” “En það er þó ómögulegt að gera úr mér prinz!” “Það er satt. en þér verðið náttúrlega gerðar að prinzessu,” sagði Mervin með spekingssvip. “En hvað nafnið mundi láta einkennilega í eyr- um, ef eg yrði kölluð “prinzessan hans Mr. Denvers.” “Fólk mundi hafa hausavíxl á þessu og kalla mig Mr. Denver prinzessunnar.” “En hvað sagðir þú, Harper?” “Eg skal segja þér það þegar við komum aftur til gistihússins. Þú verður okkur samferða þangað, Mr. Mervin.” Hann færöist undan því sakir embættisanna, og fór svo burtu. Við Helga vorum líka rétt að leggja á stað þegar Vilda ofursti kallaði á okkur og sagði, aö keisarinn heföi boðað Helgu á fund sinn áður en við færurn úr höllinni. Hún átti að fara ein til viö- tals við hann. “Eg samgleðst yöur með málalokin, Mr. Den- ver,” sagði ofurstinn þegar hann kom út aftur, eftir að hafa leitt Helgu fyrir keisarann. “Eg er yður þakklátur, herra ofursti,” svaraði eg. “Og sjálfur er eg í sjöunda himni yfir hinum heppilegu úrslitum.” “Eg er viss um að prinzessan sómir sér prýði- lega við hirðina.” “Hvaða prinzessa, ofursti, og við hvaða hirð?” “Lavalski prinzessa,” svaraði liann brosandi. “Það eru engar ‘hirðir’ í Bandarikjunum, herra ofursti.” “En eg bjóst ekki við þvi, að þér munduð ætla að taka hana héðan frá okkur, rétt þegar við erum nýbúnir að finna liana aftur!” “Eg held aö þið, hér við rússnesku hiröina, hafiö komist furðanlega vel af án hennar hingað til, eftir því sem mér er kunnugast,” svaraði eg i gáska. “En gáið að, hvað þér ætlið að gera. Prinzessan er svo yndisleg, svo frið sýnum, svo auöug—að allur heimurinn hlýtur að falla lienm til fóta.” “Hún verður þó aö láta sér nægja Vesturheim,” svaraði eg. “En það er samt stór synd að taka hana héðan.” “Eg ætla ekki að taka hana héðan, herra ofursti —en eg er hálf-hræddttr um, að hún sjálf kæri sig kannske ekkert um að setjast að hér til langframa.” “Það er aumt að heyra,” sagði hann og gretti sig. ; í því var drepið létt högg á dyrnar á biðsalnum, lturðin opnuð samstundis, og Kalkov prinz borinn inn á stóli. “Látið keisarann vita, að eg krefjist þess, að fá að tala við hann undir eins viðvíkjandi afar-áríðandi ntáli, er mikið varðar,” sagði prinzinn og sneri sér að Vilda ofursta. “Keisarinn er í önnum sem stendur, Yðar Há- tign,” svaraði ofurstinn. .“Eg er vanur því, að mér sé hlýtt, Vilda ofursti,” svaraöi Kalkov stygglega. Ofurstinn virtist fyrst ætla að svara þessu and- mælandi, en hætti viö það, hneigði sig fyrir prinzin- um og sagði: “Eg skal bera keisaranttm erindi Yöar Hátign- ar.” Aö svo mæltu fór hann inn. “Hafið þér hitt keisarann?” spurði prinzinn og leit til mín. “Já.” “Hvað fór ylrkar á milli?” spurði hann með þeirri mikilmenskulegtt óskammfeilni, sem honum var lagin. “Við ræddum heimullegt mál,” svaraði eg. “Ef það hefir snert mig, þá hefi eg heimild til aö fá að vita um það.” “Eg verð að biðja yður afsökunar á því, þó að eg láti hjá líða að skýra yður frá því. Eins og þér vitið var fyrsta viðkynning okkar vinsamleg; svo urðum viö óvinir; ef þér hafiö ekkert á móti því vil eg helzt aö við hefðum framvegis aöeins afskifti hvor af öðrum hvorki til ills eöa góðs. Svo hefi eg ekk- ert frekara viö yöur aö tala.” “Eg á samt eftir að tala viö keisarann, monsieur, og þá skulum viö sjá hvernig fer.” Jafnvel enn þá sveifst hann þess ekki, að ógna mér og sýna mér drembilegan valdahroka. Eg lét sem eg heyröi þetta ekki, og innan skamms kom Vilda ofursti aftur fram. “Keisaranum er ekki hægt að veita Yöar Hátign viðtalsleyfi núna,” mælti hann. “Eg geri mig ekki ánægöan með það svar,” mælti prinzinn mæðulega. “Mál það, sem eg hefi aö flytja, er of áríðandi, og snertir keisarann sjálfan of mikiö, til þess aö eg geti gert mér þessa tilkynningu yðar aö góðu. Eg hefi verið æösti'ráðgjafi keisar- ans og nánasti trúnaðarmaöur hans í mörg ár. Eg ætla ekki aö láta leigða svikara og níðinga komast upp á milli mín og hans.” Hann var nærri búinn að missa alla stjórn á sér af reiðinni, sem greip hann við þessa frétt. Samt áttaði hann sig, og sagöi meö veik- um rómi: “Færið Hans Hátign innilega kveöju mína, segið honum að eg sé fárveikur, og eigi að lík- indum skamt eftir ólifað, og sárbæni hann um að veita mér áheyrn í fáeinar mínútur. Segiö honum, aö það veröi líklega i síðasta sinni, sem eg bið hann þessarar bænar.” “Hans Hátign virtist ákveðinn í því aö veita yö- ur ekki viðtalsleyfi áðan,” svaraöi pfurstinn. “Hans Hátign vissi þá hvorki hve veikur eg er né hve áríðandi mál eg hefi að flytja. Imyndið þér yöur aö eg mundi hafa látið bera mig hingað ann- ars?” Vilda ofursti fór þá aftur inn til keisarans. en nú var þögn í biðsalnum meöan hann var inni. Helga kom nú út meö honum, þegar hann kom aftur. Eg sá að hún hafði grátið meðan hún var inni og hálfþerð tár glitruðu í augum hennar. “Þetta eru gleðitár og þakklætistár, Harper,” livíslaði hún og tók um handlegginn á mér, en þegar hún sá Kalkov hrökk hún við. “Hans Hátign segir að það hryggi sig mikillega að heyra um veikindi yðar, hágöfugi prinz,” sagöiof- urstinn, “og hann fáðleggur yður að snúa heim til herbergja yðar, og þar kveðst hann muni birta yður frekari skipanir sinar.” Gamli maðurinn hlýddi á þetta úfinn á svip, án þess að nein merki sæjust um það aö fregnin drægi úr hinu mikla viljaþreki hans og hugrekki. “Þ.etta getur ekki verið satt.” svaraði liann harð- neskjulega. “Jú, þetta eru orðrétt fyrirmæli Hans Hátignar keisarans, og auk þess átti eg að tilkynna yður, aö vegna þess að heilsa yðar sé oröin mjög biluð ætli Hans Hátign að létta af yður öllum embættisskyld- um framvegis.'^ “Það er ómögulegt að hann ætli sér það—án þess jafnvel að leyfa mér að tala viö sig,” hrópaöi hann. “Hans Hátnign er svo eftir sig af fréttunum.sem honum hafa borist í dag, að hann treystir sér ekki til að leggja það á sig að tala viö yður, og hefir fariö til herbergja sinna.” “Guð minn góöur! Þetta verð eg að þola, eft- ir margra ára t rygga og dygga þjónustu.” “Kondu, Harper,” hvíslaði Helga; og við flýtt- um okkur út, fegin að sleppa viö að horfa upp á hug- arangur, vonbrigöi og örvæntingu vinar okkar. Á leiðinni til gistihússins sagði hún mér hvaö þeim haföi farið á milli, keisaranum og henni. Sagði mér frá þvi, hve hann hefði komist við þegar hann hefði komist að því, hvaða óréttur föður hennar ög henni sjálfri hafði verið ger, sagði mér frá þeim fögru framtíðarvonum, er keisarinn hefði gefið í skyn að hún ætti í vændum og hverju hann heföi heitið sér þvi til tryggingar að þær rættust. “Áttu að verða hamingjusöm sem prinzessa?” spurði eg. Hún leit til mín og brosti. Svo hljóp hún inn i gistihúsið á undan mér án þess að svara. Þegar við komum þar inn beið Ivan okkar órór og bjóst fastlega við því að við værum í þann veginn að leggja á stað til Síberíu. “Hvaða fyrirskipanir hefir Yöar Hátign þá aö gefa?” spurði eg Helgu. “Harper!” “Jæja, get eg þá gert Mrs. Denver eitthvaö til þægðar?” “Við erum hætt viö að fara til Síberíu,” sagði Helga við Ivan. “Eg hefi fengið leiðrétting allra mála minna.’ Og þessi mikli risi hló með berlegum feiginleik þegar hann heyröi þetta. “Eg gæti nærri því grátiö af gleði, mademoi- selle,” sagði hann. “Sjáum til, þarna kemur þá þriðji titillinn handa þér, mademoieselle sem sé,” sagði eg hlæjandi. Hún ansaði mér ekki. “En þó við séum hætt við Síberíuferðina erum við samt að leggja í aðra langferð, Ivan,” sagöi hún glaðleg. “Hvert þá?” spuröi eg. “Auövitað til New York; hvert annað skyldi Mrs. Denver svo sem fara?” “Verði þinn vilji,” sagði eg hlæjandi, og skipaöi Ivan svo aö fara að búa alt undir ferðina, því að viö legðum á stað svo fljótt sem mögulegt væri. Og þaö gerðum við líka. ENDIR.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.