Lögberg - 22.06.1911, Page 7
LÖGBERG, FIMfTUl>n.GrNN 22. JÚNÍ 1911.
7-
Kvæði
sungin á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar
í Winnipeg 17. Júní 1911.
Okkar gœfu -mesta mann
metum við nú 'hann, sem vann
])jóð, sem átti ekkert vald,
ádrátt launa, tign né gjald.
Sögu hennar, lög og- lönd ý
leitaði uppi í trölla-hönd.
Tók frá lx>rði æðstan auð:
Ástir liennar fyrir brauð.
Honum juku þrautir þrek.
J>rekið. sem að aldrei vék.
Hans það var að voga bratt,
vita rétt og kenna satt.
Miklar Tón vorn Sigurðsson
sérhver fultnægð þjóðar-von.
Hann, svo stakur, sterkur, hár
stækkar við hver hundrað ár.
Dýran hjör og hreinan skjöld
hér er að vinna á hverri öld,
hans, sem aldrei undan vék
eða tveimur skjöldum lék.
Bjóðist einhver okkur hjá
ástsæld hans og tign að ná
holla vild og mátt þess manns
mælum nú á varðan hans.
Sá skal hljóta í metum manns
mildings-nafn síns föðurlands.
sem því keypti frelsið, féð,
fátækt sinni og stríði með.
ísland lætur svanna og svein
segja við hans bautastein:
Þessi styttan okkar er
eini konungs-varðinn hér.
Stephan G. Stephansson.
Sein er íslands sól að hækka,
sem rann upp með þér.
Sjálfstæðið vort seint að stækka,
seni þitt nafnið ber.
lnnan jafnt sem utan þinga.
Er þin hugsjón bæld.
Frelsis- “úttekt’’ íslendinga
enn í spæni mæld.
Minning þín er hjartkær hulin
harmi og gleði í dag.
Ósk og von þín enn er dulin
undir I^andans hag.
Þreyta og raunir rista enni
rúnum böls á lýð.
Þjóð vor engin ofur-menni
elur nú á tíð.
Þú varst ítur, yndis-prúður
öðling landsins vors.
íslands vordís var þin brúður
vakin upp til þors.
Og er sumur sælli tíða
sækja börn vor heim,
nafnið |)itt í lpfstír lýða
lifir æðst hjá Jæim.
Þjóðar vorrar bjarti Baldur,
blessist æ Jún mál.
Tielgist þú um allan aldur
íslands hverri sál.
Vaki æ þín vonarstjarna
vorum himni á.
Vertu Island's ungu barna
eilíf framsókn há.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson.
Þótt hugi vora hitt og annað skilji
og hver einn sinni skoðun kjósi vörn,
á þessum degi sátt og samúð ylji
með sigurvon hin dreifðu Snælands böm;
í dag þeim hvísli lofts og lagar öldur
þess ljúflings nafn, er veki gleðitár, ,
því hann var “íslands sómi, sverð og skjöldur’’
og sögu vorrar ljós í hundrað ár.
Og þótt vér höfum leitað ýmsra landa,
er lífs vors dýrsta hundrað ára gjöf
að drottinn megi leiða’ oss öll i anda,
vor íslands bezti son. að þinni gröf,
og kenna’ oss þar að lesa lifsbók þína
og læra það, hve hún var sönn og trú;
hve beint og skýrt var letruð sérhver lína,
hve ljóst og einart flest er skráðir þú.
Er danskan hnút með lotning litu aðrir,
að leysa, höggva þér í eðli bjó ;
í erfðavængi hlauzt þú fáar fjaðrir,,
en flugið var þín æðsta löngun J)ó.
Og hverjum þeim, sem þorir fjötra’ að saxa
af þreyttum lýð, er vanabundinn stóð,
ei fjaðrir aðeins, heldur vængir vaxa,
lians vængjaþytur skapar fleyga þjóð.
Þá brestur sízt, um sigur þinn er deila
og sögu þína skýra’ á ýmsan veg.
en allur fjöldinn á svo þröngan heila
þ>ar ekkert rúmast nema lítið “ég’’.
Ef |)ú átt nokkur áhrif oss til lianda
1 æðra heimi feldu blóðug tár
og bið þess guð, að gefa oss stóran anda
með gæfu þína’ í næstu hundrað ár.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Við hundrað ára sögu-sól í heiði
nú saman falla álfur tvær í dag,
að krýna minning látins vinar leiði,
er lyfti sinnar fósturjarðar hag.
frá Heklu-stóli strengir endurhljóma
þ>á stund er gildir höldar sátu þing,
á sagna-spjaldi sigurrúnir ljóma
með sveig um landsins hæsta þjóðmæring.
Vor lýðmæringur! þakkir þúsundfaldar,
að þú varst landsins skjöldur, sverð og hlíf,
í aftanroðans rúnum heillar aldar
með reginstöfum skýrt er alt þitt líf,
þú stóðst á verði, vermdir þjóðar hjarta,
og vaktir sögu ódauðleikans mál,
á ‘hjarn og myrkur brosti frelsið bjarta
þá beitt úr slíðrum hófstu andans stál.
Já, margur hefir lifað þjóð og landi
til láns og frama, borið sverð og skjöld.
enn þitt er hólmans hjálpráð ógleymandi,
i heiði skína dagsins verka gjöld:
hver íslands taug er blönduð þínu blóði,
sem bogar gegnum eldsins raun og hjnrn,
þar glóir perla sönn í tímans sjóði,
er sýnir niðjum landsins óskabarn.
Af J>ökk og lotning lýðsins hugur brennur
og lofar daginn sem oss gaf þig, Jón ;
frá álfum tveimur óður saman rennur,
því eitt er blóðið, sama mólður-frón,
þín helga minning bendi hverju barni
að bera merkið, vikja aldrei hót;
þá gróa blóm, er breiða lauf áhjarni,
með bros og vl frá landsins hjartarót.
Magnús Markússon.
Brennivín - KO«Æhhli,suna
Við höfum allskona víntegundir með mjög sann-
gjörnu verði. Ekki borga meir en þið þurfið fyr-
ir Ákavíti, Svenskt Punch og Svenskt Brennivín,
ftaP" Kaupið af okkur og sannfærist.
THE CITY LIQUOR STORE
308-310 NOTRE DAME AVE.
Rétt við hliðina á Libaral saiaum.
PHOITE GARRY 2286'
AUGLYSING.
Ef þér þurfið að senda peainfia tihfs-
lands, Bandaríkjanna eðn til *JDb varra
staða innan Canada bá ttoúð Dominioa Ex-
press f'c-3piny s Money Orders, útlemdar
avtsanir eða póstsendjngar.
LÁG IÐGJÖLD.
Aöal skrifsofa
212-214 Baniintyiie Ave.
Bulman Bloek
Skrifstotur vfðsvegar um boqgjaa, og
öilum borfum og þorpum vlðsvtgjar um
nadið meðfuam Cao. Pao. Járnbrauro
SEYMOR HQUSf
MARKET SQUARE WINNIPE6
Þar sem bláan inn við Arnarfjörðinn,
ölduhljóðin fjalla-dísir þagga,
þar sem sveipast sumar-gróin jörðin
sólhjúp — þar var óskabamsins vagga.
i
Snemma vildi iðja sveinninn ungi;
út á djúp í stormi vildi’ hann róa;
[>ó að skylli á bátnum brimsins þungi,
brast ei þrek né formennskuna nóga.
Og með vöskurrv öðrtim, íslands sonum,
ættjörð siðar bjó hann flest i haginn;
sá hann rætast sumt af æsku-vonum
seinna — þegar leið á æfi-daginn.
Gömul valdstjórn ginna vildi og svíkja,
greip þá merkið vörður sinnar þjóðar
— frelsis-merkið—, vildi’ hann aldrei víkja,
— vörðinn studdu heilladísir gótðar.
Merkisberinn, mest er reyndist hættanv
málsnjall stefndi fremst af landsins sonum;
fékk þá Island fornan skaða bættan;
fengu' ei Danir sigurinn af hor.um.
— Geymir ættjörð, löngu und leiði falinn,
leiðtogann, sem þjóðin sífelt grætur;
mögur íslands mun liann beztur talinn
meðán ljóma bjartar Júnj-nætur.
Væri þörf. að elskuð ættarjörðin
ætti jafnan marga þína líka;
lengi tvístruð, hirðislausa hjörðin
harmar afreksmennið trygðar-ríka,
Gegnum þref og arg, á seinni árum,
öll — í þoku — frelsis-ljósin skína;
hefir margur minnst þin þá — með tárum,
— margan vantað leiðsögiiina þína.
Bjó þér inst í hræsnislausu hjarta
hrein og dáðrík ást til landsins forna.
— Úr augum skein og yfirsvipnum bjarta
undur-djúpa sálin himinborna.
Fús þú vildir æ með lipurð' laga
lýðsins mein, og fræddir gamla' og unga;
minnug þjóðin man ]úg alla daga
meðan lifir Saga og feðra tunga.
Þú. sem fyrir öld varst ættjörð borinn
óskasonur, þjóð til vegs og frama,
nú, við löngu enduð æfi-sporin,
andans ljómar myndin þín hin sama.
Tökum glaðir, fjarri fósturlandi,
fegins-þátt í minning þinni — heima.
— Vina-landð verndi drottins andi! —
Vart mun ísland barni sinu gleyma.
L. Th.
Að botni vér drekkum vorheiðskygðu hom,
og helgað er Jóni það fullið,
í spekinginn engan né spámanninn vorn
var spunnið eins dálsamlegt gullið,
og aldrei var haldið um hann eins og skaft
á höggvopni’ i óspekta flani,
og Jón gat án bilbuga liugrekki haft
að horfast í augu við Dani.
En nú eru skörðuð vor skörpustu sverð
og skildirnir óhæfir næstum,
»g ekki er herliðið færara’ í ferð,
þótt fötunum klæðist það glæstum,
því langt fram í ætt hafa ölmusur sýkt
vort eðli, í hóp vorra rauna,
svo nóg er að hafa að nafninu ríkt
og notið í rósemi launa.
En viðreisnardeginum örlar nú á:
Oss öllum beú saman að dómi,
Og fyrst er að opna sín augnalok. sjá
hvað öðrum er lifandi sómi.
Og vér megum telja til fagnaðar fremd1
að finnum vér það sem er göfugt
og vitum að falin í verkum er hefnd.
sem vinnum í gáleysi öfugt.
Og hafið vér getum vors heimalands völd—
svo hollráðir orðið og snjallir
því sóma vors ættarlands. sverð þess og skjöld,
Jón Sigurðsson. þekkjum vér allir.
Þótt klöppuð úr marmara myndin hans sé
hún myrkvast. sem augnabliks leiftur
ef skjöldurinn ekki’ er í skóla vorn—né
i skóla vors alþingis greyptur.
Guttormur J. Guttormsson.
Fréttir frá íslandi. ^etur hafa 1 h>-ggju að svngja
____ • fynr folkiö einlwern tíma í Júli.
Reykjavík, 27. Maí 1911. j jón Þ Sivertsen, fóstursonur
Frú Sigr. Ásgeirson, móðir Ás- Guðm. Magnússonar læknis, hefir
geirs etazráðs, varð áttræð 16. þ. Prófi við kaupmanna-
mán. og hafði hún þá boð mikið s ,°antl 1 Naupmannahöfn meö
inni í bústað sínum í Hellrup við harn f-vrstu einkunn-
Kaupmannahöfn. Fruin er vel Látin er nýlega 1^;^ Sig.
ern* riður Sigurðardóttir í Skálholti
Pétur Jónsson söngvari er nú á kona Skúla Arnasonar læknis en
ferðalagi um Vesturheim með dóttir Sigurðar heit. Magnússon-
danska stúdentasöngfélaginu. Þeg- ar bónda á Kópsvatni. Hún var
ar úr þeim leiðangri kemur er á fertugsaldri, mesta tn^mdar og
ferðinni heitið hingað heim. og gæða kona. — tsafold.
Kostaboð Lögbergs.
Komiö nú! Fáiö stærsta íslenzka vikublaöiö sent
heim til yöar í hverri viku. Getiö þér veriö án þess?
Aöeins $2.00 um áriö, —- og nýir kaupendur fá tvær
af neöannefndum sögum kostnaöarlaust. —
Hefndin
Hulda
Svikamylnan
Gulleyjan
Denver og Helga
Ólíkir erfingjar.
Fanginn í Zenda
Rúj>ert Hentzau
Allan Quatermain
Kjördóttirin
Erfðaskrá Lormes
9SANDUH ^ MÖL (f
f MÚRSTEIK, GYPSSTEYPU OG STEINSTEYPU
THE BIRD’S HILL SAND COMPANY, UMITED
Selja og vinna bezta *and, möl og mulið grjót,
KALK OG PORTLAND STEJNLlM. ::
\ ----Aðal varningnr------
Alskonar stœrðir, í steynsteypu, með eða án stál-
styrktar-vírs. %, y, yx, 1 %, iy2, 2 þumlunga
Reynið T°rpedo Sand vom í steypu.
ÞAKEFNI: —Skoöiö y þuml. möl vora til þakgeröar.
Bezti og stærsti útbúnaður í Vestur-Canada.
Rétt útilátið f 'Yards'' eða vagnhleOslum.
Selt í stórum og smáum stíl.
Geymslustaður og skrifstofa: Horní Ross og Arlington Straeta.
Fáein atriði um Saskatchewan.
Hvergi í heimi bjóðast bændum betri tækifæri en í Saskatchewan.
Saskatchewan nær yfir nokkurn hluta hinnar miklu öldóttu sléttu í
iNorðvestur-Canada, sem er frjósamasti hveiti-jarðvegur í heimi.
Mikill hluti þessa undur frjósama landrýmis, bíður enn ónumið eftir
rþví, að menn taki þar ókeypis heimilisréttaríönd. Það er 760 mílur á
lengd og 300 mílna breitt.
Ekki minna en 50,000,000 ekra af þessu landi, geta til jafnaðar gefið
af sér 20-bushel hveitis af ekrúnni, og mikill hluti þess er hveiti No. 1
Northern.
Saskatchewan er fremst allra fylkja í Canada um hveitiuppskeru, og
stendur aðeins einu ríki að baki í Norður-Ameríku.
A ellefu árum, 1898—1910, greru í Saskatchewan 400,000,000 bushel
hveitis.
Þúsundir landnema streyma þangað árlega frá Austur-Canada, Stór-
bretalandi, Bandaríkjunum og Evrópu, er gangast fyrir hinu ódýra, auð-
yrkta og afar-frjóva landi.
Árið 1910 voru þar numin 27,195 heimilisréttarlönd, 8,834 “pre-emp-
tions”, 653 heimilisréttarlönd keypt, og 971 Suður Afríku sjálfboða
heimilisréttarlönd, en árið 1900 voru numin 2,653 heimilisréttarlönd.
Allar kornhlöður fylkisins taka meir en 26,000,000 bushel. Helmingur
allra kornhlaðna í sléttufylkjunum er í Saskatchewan.
Hveiti-afurðirnar nema ekki nema rúmum helmingi allra tekna, sem
bændur hafa í Saskatchewan. Árið Í910 voru allar bænda aíurðir þar
metnar $92,330,190, og var hveitiö eitt metið á $56,679,791.
Verðmætar kolanámur hafa fundist í suðurhluta fylkisins. Undir
kolalaginu hefir fundist verðmætur leir, sem hentugur er til tígulsteins-
gerðar og leir-rör. Þrjátíu kolanámur eru þar unnar og 208,902 tonn kola
voru unnin þar á árinu sem lauk 28. Febrúar 1910.
I Saskatchewan er talsímakerfi, sem stjórnin á og strafrækir. Þar
eru langvega simar samtals i,772 mílur, 42 stöðvar og 5,000 síma-leigjend-
ur, 133 sveitasímar, samtals 3,226 mílur, sem 3,307 bændur nota.
Járnbrautir ná yfir 3>44° mílur í fylkinu og hafa aukist um 250 af
hundraði að mílnatali síðan 1901; þó virðist járnbrautalagning aðeins í
byrjun. Járnbrautafélögin C. P. R., C. N. R„ G. T. P. og Great Northern
eru að lengja brautir sínar sem óðast, og flutningstæki verða bráðlega um
gervalt fylkið.
Sjö samlags rjómabú eru í fylkinu undir eftirliti stjórnarinnar, sem
styrkir þau með lánum gegn veði. Á sex mánuðum, er lauk 31. Október
1910, höfðu rjómabú þessi búið til nálægt 562,000 pd. smjörs; framleiðslan
hafði vaxið um 119,596 pund eða nærri þriðjung. Hvert smjörbú hafði að
meðaltali 66,000 pund smjörs, eða 9,000 pd. meira en árið áður.
Bankamál Canada þykja einhver beztu í heimi. Nær 300 löggildir
bankar í Canada eiga útibú í fylkinu.
Gætileg áætlun telur 425,000 íbúa í Saskatchewan. Bæir og þorp þjóta
upp meðfram járnbrautunum, og eru þar þegar fjórar borgir, 46 bæir og
150 sveitaþorp löggilt
Námsfólk í Saskatchewan var, árið 1909, 53,969, þar af í sveitaskólum,
þorps og bæjar skólum 53,089, en í æðri skólum og stofnunum 880; skóla-
deildir 1,918; stjómartillög $315,596.10.
Ef yður leikur hugur á að vita um framfara-skilyrði og framtíðar-
horfur Saskatchewan, þá leitið nánari skýringa, sem fá.má í spánnýrri
handók, með fögrum myndum, og fæst ókeypis, ef um er beðið. Skrifið
tafarlaust til
Departmentof Agriculture, Regina, Sask.
Eitt af beztu veitingahúsuB basj-
arins. Máltíðir *eldar á 35 csnts
bver.—$1.50 á dag fjrrir fæði og
gott herbergi. Billiard-stofa ag
sérlega vönduð vfnfóng og vindl-
ar.—Ólceypis keyrsla til og frá á
járnbrautarstöðvar.
ýohn (Baird, eigc,ndi.
MARKET
$1-1.50
á dag.
p' ^SSS" HOTEL
á móti markaðmuB.
146 Princcss St
wnnrmcu.
Allir játa
að hreinn’bjór
sé Keilnæmur
drykkur
Drewry’s
REDWOOD
LAGER
Er og hefir altaf
verið hreinn malt-
drykkur.
BIÐJIÐ UM HANN
L L. DREWRY
Manufacturer, Winnipeg.
Agrip af reglugjörft
um heimilisréttarlönd í Caoada-
Norðvesturlandinu
CéRHVER manneskja, secn fjötskyldu
^ hefir fyrir að sjá, og sérhver karlmaö
ur, sem orðinn er 18 ára, hefir heimilisrétt
til fjórðungs úr ..section" af ótaknustjóns-
arlandi í Manitobr Saskatchewan eða AI-
berta. Umsækjandinn verður sjálfur aO
að koma á landskrifstofu stjórnarianar eða
undirskrifstofu í þvf héraði. Samkvæmt
umbeði og með sérstökum skilyrðum má
faðir, móðir, sonur, dóttir. bróöir eða syst-
ir umsækjandans, sækja um landiö fyrir
hans hönd á hvaða skrifstofn sem er
Skyldur. — Sex mánaða ábúð á ári 02
ræktun á landinu í þrjú ár. Landirema
má þó búa á landi, innau 9 mflna frá herm-
ilisréttarlandinu, og ekki er minna en 9c
ekrur og er eignar og ábúSarjörð hans eOa
föður, móður, sonar, dóttur bróBör eCn
systur haris.
f vissum héruðum hefir lanöneminn, snia
fullnægt hefir landtöku skyldum sfnnm,
forkaupsrétt (pre-emtion) að sectionarfjósO-
ungi áföstum við land sitt. Verð $3 ekmn.
Skyldur:—Verðnr að sitja 6 mánuðl af ári
á landinu f 6 ár frá þvf er heimilisréttw-
landið var tekið fað þeim tfma meðtöltkas
er til þess þarf að oá eignarbréfl á heim-Qi
réttarlandinu, og 50 ekrur verður að yrirja
aukreitis.
LandtökumaBur, sem hefir þegar nsitnO
heimilisrétt sinn og ge ur ekki uáð ftv
kaupsrétti (pre-emption) á laodi fgstnr
keypt heimilísréttarland f aératökum opQe
uöum. Verð $3.00 ekran. Skyldur: Vetðið
að sitja 6 mánuði á landinu á ári f þrjú ár
og ræk*a 30 ekrur, reisa hús, $300.00 virði
W. W CORY,
Deputy Minisier of the Interior.
A. S. BARDAL,
selui
Granite
Legsteina
alls kcnar stæröir.
Þeir sem ætla sér aB kaup
LEGSTEINA geta því fengiB þát
meC mjög rýmilegu veröi og ættu
aö senda pantanir 3em fyki, til
A. S. BARDAL
843 Sherbrooke St.
Bardal Block
IHE DOMINION BANK
á horninu á Notre Dame ogNena St.
Greiddur höfuöstóll $4,000,000
Varasjóöir $5,400,000
Sérstakur gaumur gefinn
SPARISJOBSDEILDINNI
Vextir af innlögum borgaðir tvisvar á ári
H. A. BRIGHT, ráörnn.