Lögberg - 14.03.1912, Side 1
&
Co.
Grain Commission Merchants
-- 201 GRAIN EXCHANGE BUILDING -
Members Winnipeg Grain Exchange, Winnipkg
I
ISLENZKIR KORNYRKJUMENN
Sendið hveiti yðar til Fort William
eða Port Arthur, og tilkynnið
Alex Johnson Co.
aol GRAIN EXCUANGE, WINNIPEG,
Fyrsta og eina íslenzka kornfélag í Canada.
25. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 14. MARZ 1912
NÚMER
II
ROALD AMUNDSEN
KEMST FYRSTUR Á
SUÐURHEIMSKAUT
Fyrstur allra, sem til suBur-
skauts jarðar keptu, varð hinn
norski isavikingur Roald Amund-
sen. Hann kom til mannabygða
á fimtudaginn, eftir tveggja ára
útivist og sagöi þær fréttir, að
hann hefði náð að komast alla leið
til suður heimskauts og dvalið þar
í þrjá daga. frá 14. til 17. desem-
ber í vetur, og að alt sitt ferðalag
hefði gengið að óskum. Enginn
efast um, að sögusögn hans sé
sönn, en Bretar vona, að þeirra
maður, Capt. Sott, sé á bakaleið
frá heimskautinu, og jafnvel, að
hann hafi komið þangað á undan
hinuin. þó hvergi liafi Amundsen
orðið hans var. Saga Am. sjálfs
af þessari frægðarför er á þessa
leið, í sem styztu máli:
Þann 10. Febrúar 1911 gengu
þeir félagar á ísinn og tóku til að
flytja vistir suður eftir til geymslu
og notkunar seinna meir, ef á
þyrfti að halda, og á tveim mán-
uðum hlóðu þeir utan um 600
fjórðunga af vistuni, mést selspiki,
á þrem stöðum, en syðsti geymslu-
staðurinn var á 82. breid'darstigi-
Þar skildu þeir eftir 16 vættir af
selaketi og með því að kennileyti
voru engin á ísnum, þá merktu
þeir staðina með því að stinga
smáum fánum á jámstöngum nið-
ur í isinn, eina danska mílu 5 aust-
ur og vestur frá ge\Tnslustaðnum,
sneru siðan aftur. Til þessa
ferðalags höfðu þeir sleða með
sex hunda fyrir hverjum, fóru
skjótt yfir, því að veður voru góð,
færð hin bezta, ísinn bæði sléttur
og sprungu lítill, með grunnum
dældum og lágum, ávölum bung-
um á víxl. Kuldinn var mestur
45 stig á Celsíus. Þeir voru
þrjár vikur i þessu starfi, og er
þeir kornu til )>eirra stöðva, þar
sem þeir lögðu upp, var “Fram”
allur á brott; hafði siglt suður á
leið. en hvert segir ekki, nema að
skipið hafi komizt lengra suður,
en nokkurt annað, á 78.41 suður-
breidd. Þeir félagar átta, sem
eftir voru, tóku nú að búast til vet-
ursetu, reistu skýli handa hund-
unum af ís og tjaldvoðum og hús
handa sjálfum stfv; það fór !
snjó í miðjum April; það var hit-
að upp með lux-lampa, með 200
kerta styrkleik, og nelt hann hús-
inu dúnheitu, þó vel væri fyrir
loftræsing séð með vindaugum.
Þeir grófu vistir sínar í ísinn,
skemmu höfðu þeir til smíða og
allrar vinnu, sem gera þurfti, kola-
byrgi. og viðarskúr og var innan-
gengt i öll þau afhýsi frá bað-
stofunni. Þeir höfðu nóg af öllu
og undu vel hag sínum, við vís-
indaleg störf og ýms önnur.
Sólin hvarf þeim í April og sást
siðan ekki til hennar í fjóra mán-
uði. Snjófall var lítið, og svo
nærri voru þeir skörinni, að þeir
sáu jafnan á ófrosinn sjó; bjugg-
ust þeir við, að hlýrra mundi
verða fyrir þá sök, en kuldinn varð
þó mikill, alt að 60 stigum á
Celsíus, en veður lengst af stillt
með stjörnu bliki og fögrum stið-
urljósum.
24. Ágúst sást fyrst til sólar.
Þann dag 'voru þeir félagar albún-
ir til ferðar, en ekkt gatu þeir
lagt af stað, veðurs vegna, fyr en
8- September. Þá íðgou þeir tipp,
átta menn með sjö sleða,. 90 hunda
og fjögra mánaða nesti, en þeir
voru skamt á veg komnir, er
veðrið tók að versna, með megn-
um kulda, hundamir horuðust nið-
ur og féllu nokkrir; varð það þá
ráð þeira félaga að snúa aftur og
bíða vors. Skildust þrír við hóp-
inn og héldu þangað sem heitir
King Edwards VII Land, til rann-
sókna, en fimm voru eftir og
veiddu sel og sjófugla, því að
þeirra gerðist mikil gnægð þegar
vora fór, eða hausta á vorum
helmingi jarðar.
Þann 20. Október, um vetur-
nátta skeið ,var só! komin hátt á
loft á þeirra stöðvum. Þann dag
lögðu þeir upp í leiðangurinn suð-
ur að heimskauti, 5 menn á fjór-
um sleðum með 50 hunda og 4
mánaða nesti. Þ'eir fóru hægt yfir
fyrstu dagana, til jtess að venja
hunda og menn við, og komu 3
dögum síðar að vistaforða sinum
á 80. breiddar stígi. Þá var
þoka mikil, en ekki fóm þeir af-
Ieiðið meir en það, að þeir hittu á
fánastangirnar og röktu sig svo að
vistunum. Þeir gáfu hundunum
eins mifcið selspik og ]>eir gátu í
sig látið og héldu svo af stað
eftir 3- daga hvíld, í 30 st. frostý
Þeir reistu vörifur af höggnum
ísi, mannháar til þess að rata
sönnt leið til baka og fóru þó ekki
minna en rúma þingmanna leið á
dag, það röskir voru hundarn-
ir, röktu sig svo næstu daga til
vistanna er þeir höfðu áður suður
flutt og lögðu upp frá 82. breidd-
arstígi þann 8. Nóvember, var þá
hin bezta færð og skilaði þeim
svo fljótt áfram að 85 breiddar-
stígi, að þeir fóm ekki minna en
hálfa aðra þingmannaleið á dag,
skildu þeir eftir hér og hvar vistir
og annan þunga é^þeir gátu við
sig losað. til þess að létta á sleð-
untim-
Þann 17. Nóvember komu þeir
þangað, sem is og land mætast.
Þar vom sprungur stórar í ísinn
og skörin 300 feta há við landið.
Iþar skildu þeir eftir 30 daga v!st
en tóku með sér nesti til 60 daga.
A landi
Stórhrikalegt var það land að
lita. er þeir voru að komnir.
Þrír linjúkar, sem næstir vom
skörinni, voru 2,000 fet á hæð og
þaðan af meira, allt að 10,000 fet-
um, en álengdar og enn sunnar
skutu aðrir tindar upp snjóugum
skallanum meir en 15,000 fet upp
í loftið.
Þeir höfðti skamma dvöl við
strönd þessa lands, heldur lögðu
þegar á f jöllin; sóttist l>á seint
ferðin, og urðu þeir oft að
fara selflutning með sleðana. en
skíðum varð ekki við komið í
brattanum. Fyrsta daginn komust
þeir 2,000 fet, annars dags kvöld
tjölduðu þeir í 4,500 feta hæð. og
er ekki að orðlengja að þeir sóttu
á jöklana og komust yfir strano-
fjöllin og þá jökla sem þeír
fundu fyrir sér enn sttnnar, að
þeirri hásléttu. sem þar vaÆ ▼yrir
þeim, á fjórum dögum. fóru yfir
hættulegar sprungur, gegnum
jöklaskörð og fram hjá geysihá-
um jöklurn. Hinn hæsta þeirra
skírðu þeir Friðþj<éf Nansen, og
mörg önnur örnefni gáftt þeir, öll
norræn.
Þegar á hásléttuna kom, uffl
to.ooo fet yfir sjávarmál fengu
þeir versta veður með snjókomu
og sterkum stormi. Þ4 drápu þeir
tvennar tylftir hunda og áttu þá
18 eftir , sex fyrir hvem sleða.
Þegar hríðin hafði staðið í fjóra
daga, leiddist þeim setan og héldu
út í bylinn; stýrðu sumir sleðunum1
en sumir runnu á skíðum ; ekki
sást handa skil í bylnum, en áfraffl
skilaði þeim óðfluga þvíað þá hall-
aði undan fæti, þó ekki ættu þeir
von á því. Næsta dag hélzt storm-
urinn, og kól þá þann dag á and-
liti en á þriðja degi rofaði til um
stutta stund og sáu þeir þá afar-
mikinn fjallarana á aðra hönd, er
hvarf þeim að vörmu spori í byln-
um. Á þriðja degi stytti upp og
og sáu þeir þá sama fjallgarðinn á
aðra hönd sér og jökul geysistór-
an, en á hina sáu þeir ekkert frá
sér fyrir hrímþoku- Þeir gengu á
jökul » þennan, er þeir kendu við
neðri bygða höfðingjann, og reynd
ist hann torsóttur af sprungum og
aíarstórum gjám og bollum og
hvörfum og tókst þeim að komast
yfir hann á 4. degi, í ]>oku og
heiðu veðri; þó sáu þeir frá sér
með köflum, og var þá alt i kring
um þá stórfeldur jöknlklasi með
himingnæfandi gnýpum og tindum
og jökulhömrum. Þegar af jökl-
unum kom, varð fyrir þeim sæmi-
lega flatt svæði, var ísinn þar slétt-
ur nema viða stóðu upp úr honum
strókar og strýtur, eins og risa-
vaxnar hundaþúfur. Þar var holt
undir og dunaði í ísnum, er þeir
fóm um ,eins og þeir gengju á
tunnubotnum; þar var skrof með
köflum og varð að hafa hina mestu
varúð, að detta ekki oían um ís-
inn. Það svæði kölluðu þeir
“læikskála Skrattans” fDevil’s
Dancing Hallj og segir Amundsen
svo, að um það svæði hafi ferðin
verið torsóttust.
Þann 8. Desember létti illviðr-
um þeim, er að þeim höfðu lagst
um hríð; þá náðu þeir að finna
hvar þeir voru ,eftir sólarhæð, og
stóð það nákvæmlega heima við
þá útreikninga, sem þeir höfðu
haldið. Þá voru þeir milli 88. og
89. breiddarstigs, og voru staddir
á sléttu einni marflatri og greið-
farinni, og þann dag fóru þeir
suður fyrir það takmark, er Sir
Ernest Shackleton kom i, sá er
Ibngst hafði suður komist fyrir
þann tíma, og þar skildu þeir enn
eftir vistir, hinn 10. forða, er þeir
lilóðu utan um á suðurleið. Upp
frá því skilaði þeirn áfram hægt
og hægt, þar til 14. Des., að þeir
komu þar sem þeim reiknaðist að
vera 89- stig og 55 mínútur. og
slógu þar tjöldum. Voru þá að
eins 5 mínútur að landfræðinga
tali að sjálfum péilnum, og uffl
það svæði fóru þeir í þrjá dagana
næstu, gerðii athuganir eins marg-
ar og þeir gátu við komið, reistu
fánann norska svo nærri sjálfum
pólspunktinum, sem þeim var auð-
ið og bygðu þar kofa til menja um
komu sina. ef nokkurn skyldi þar
að bera á eftir þeim; þeir gáftt
honum nafn og kölluðu Pól-
heima.
\regalengdin frá þeim stöðvum
er þeir tóku sig upp, á ísskörinni
við sjálft hafið, og þeir kölluðu
Framheima, til Pólheima, var
J400 kíluómetrar. Þá leið
féru þeir til baka á 39 dögum,
með þvi að veður var gott og
nienn röskir og kunnugir orðnir
leiðinni. Allir komu óskemdir til
baka; höfðu þeir farið til jafnaðar
36 kílómetra á dag og meðalkuldi
var um 30 stig á Celcíus.
Um vísindalegan árangur af
förinni er það að segja, að öllum
kemur saman um, að hann sé mik-
ill. Landa og veðurfræðingar
vænta sér mikils fróðleiks af henni
svo og steina og málmafræðingar
af safni því, er þrímenningarnir
sóttu til King Edward VII. Land.
Roald Amundsen hefir getið
mikla frægð sér og sinni þjóð, svo
að nú þykir sýnt, að engir megi
við Norðmenn jafnast í svaðilför-
um, er hreysti þarf til og viturlega
forsjá. Svo er sagt, að Amundsen
ætli sér að sækja til norðurpólsins
þegar frá líður.
Kolafúlga Englpnds.
A Englandi voru tekin kol úr
jörðu árið sem leið, er námu 274
miljónum smálesta. Kolanemar
þeir. er neðanjarðar vinna, töld-
ust 818 þúsundir, en alls og alls
unnu 1 miljón og 42 þúsundir
manna við námurnar.
Til annara landa selja Bretar
árlega um 100 miljónir smálesta,
þar af um 30 miljónir smálesta til
Erakklands, Italíu og Þýzkalands.
5 miljónir til Svíþjóðar ,4 miljónir
til Rússlands, 3 miljónir til Dan-
merkur, 2>i» miljón til Noregs og
þaðan af minna til ýmsra annara
landa. En flest lönd í Norðurálfu
kaupa kol frá Bretlandi, og eru
upp á það land komin að mestu
leyti-
Hvaðan fáum vér vatn?
Bæjarstjórn hélt aukafund á
fiúitudaginr. va: til þess að ráða
til lykta íppástungum vatnsnefnd-
ar um nýjar vatnsbirgðir handa
borginni. Nefndin lagði til, að
vatnið yrði tekið þar sem heitir
Crystal Springs og Poplar Springs
og leitt þaðan í pípum til borgar,
og að gera skyldi þegar i stað
gangskör að þvi að undirbúa það
starf. Þess var getið, að kostn-
aðurinn mundi verða nálega 90
þús. döllarar.
Östjórn \ Kína.
Síðustu fregnir segja,-að forseti
‘h’ins mikla kínverska þjóðveldis,”
Yuan Shi Kai, sé fangi í höll
sinni og þori ekki þaðan að hreyfa
sig: liðsveitir af Manchu kyni
halda vörð um höllina, þar sem
hinn nýkosni forseti situr inni
byrgður. Forlög Kínaveldis eru
enn á hverfanda hveli. Allir út-
lerídingar. sendiherrar stórveld-
anna sem aðrir, em i raun og verti
fangar í bústöðum sínum, dirfast
oklki þaðan að fara af ótta fyrir
því, aö þeir verði myrtir. Úrslitin
eru talin óvis, en svo er sagt, að
til skarar muni skriða innan fárra
daga og muni það þá sýna sig,
hver ráða skal i Kma.
Frá Peking berast hroðalegar
sögur af ránum og manndrápum.
Meir en i,ooo lík liggja þar höf-
uðlaus á strætum úti og rotna í
sólarhitanum; nályktin er ákaflega
megn og ekkert líklegra en að drep
sótt muni koma upp þá og þegar.
Líkin eru af þeim sem drepnir
voru fyrir að taka þátt í upphlaup-
um og ránum íyrirfarandi daga,
er herliðið gerði uppreisn og fór
með ránum og brennu um borgina-
Sumir af þeim voru sekir ,sumir
saklausir verkamemi og engum
hermanni hefir enn refsað verið
fyrir upphlaupið.
í Canton er sagt að alt sé ‘í upp-
námi. Þar hafa hermenn gert
uppreisn sem víða annarsstaðar og
skríllinn slegist í lið með þeim.
Þeir hafa náð á sitt vald því vigi,
sem fljótinu ræður og hóta að
sölkkva hverju skip; sem fer þar
um. Þar er bario : strætum úti
á hverjum degi, en rænirígja for-
sprakki nokkur að nafni Luk er
talinn að ráða mestu.
Talið er, að Dr. Sun Yat Sen
hafi nú lítil ráð og traust hjá liði
uppreisnarmanna, og vegna þess
helzt, að hann hafi ekki látið til
skarar skríða, heldur látið draga
völd úr höndum sér. Því liði mun
ervitt að stjörna nema með öflug-
um her og full traustum til bar-
daga við það ef á þarf að halda.
Þíng þeirra kínversku situr á
rökstólum i Nankin og hefir ný-
lega kosið til æzta ráðgjafa Tang
Shao Yi, sem talinn er vinur og
fylgismaður Yuan Shi Kais og
farið hefir bezt allra í sátta um-
leitan og samninga tilraunum með
báðum flokkum. Segir svo frá því
þingi, að því þyki sem noklkrir
svikarar séu meðal Kínverja, er
ýki alla bresti á hinu nýja fyrir-
komulagi og skrökvi því í útlend-
ar þjóðir, að þeir séu ekki stöðu
sinni vaxnir, sem nú eigi fyrir
landsmálum að ráða. Er þar látið
í veðri vaka, að forspraikkar Kín-
verja með Yuan Shi Kai i broddi
muni skjótt fá öllu kipt í lag og
skuli það þá sýna sig, að Kína sé
ekki komið upp á útlendar þjóðir
hvorki með liðveizlu né peninga-
lán-
Óeirðir kvenna.
Svo er komið máli þeirra kvenna,
sem upphlaupin gerðu i London,
brutu búðarglugga og köstuðu
grjóti, til þess að ávinna sér kosn-
ingarétt, að þær voru dregnar
fyrir dóm og dæmdar til betrunar-
hússvinnu og sekta, en forsprökk-
um þeirra haldið í gæzlu varðhaldi
þar til sakamál væri gegn þeim
höfðað fyrir drottins svik og upp-
hlaup. Þær gerðu aðsúg að þeim
konum sem þeim voru til þjónustu
og gæzlu settar í fangelsinu og
neituðu að fylgja fangelsisreglum-
\roru þá forsprakkamir settir í
klefa sér, og linaðist við það sá
kvenmaður, sem kallast hafa mest
ráð haft fyrir þeim, Mrs. Pank-
hurst grét og bað fyrir sér og var
sett á sjúkrahús í fangelsinu. Hin-
ar neituðu að eta, afklæða sig og
sofa, en ekki er þess getið hvort
þær hafa efnt það.
Verkfall kolanema.
Verkfallið breiðist út lim Norður-
álfu.
Kolanámu verkfallið á Eng-
landi hefir nú staðið í tæpan hálf-
an mánuð, og eru nú afleiðingar
þess farnar að verða býsna alvar-
legar. Verksmiöjum hefir verið
lokað víðsvegar um land, jám-
brautarlestir eru hættar að ganga
á mörgum stöðtini, en af hvoru-
tveggja leiðir það, að þeir verka-
menn sem þannig missa atvinnu
s'ina, eru nauðulega staddir og
keniur það einkar hart niður á
fjölskyldum þeirra- Böm fara
hungruð á skólana og verða skóla-
stjórnir að gefa þeim að borða. I
Ix>ndon eru lestir hættar að ganga,
sem mest flytja af fólkinu úr und-
irborgiinum og inn í bæinn; af þvi
leiðir að almenningur verður að
ganga, því að strætisvagnar eru
ónógir til að flytja allan þann
mannmúg. Svo er sagt, að nálega
komi fram afleiðingar verkfaiis
jiessa á hverju mannsbami um
endilangt Bretland. Þeir sem eiga
skip í förum verða að láta þau
liggja kyr á höfnum, og þykir
Bretiim sárt, að horfa upp á annara
þjóða skip flytja þann varning, er
þeim var ætlað að flytja. Sumir
segja, að landið sé nálega varnar-
laust, ef verkfallinu linnir ekki
þegar, með því að herskip eru að
]>rotum komin af kolum. Nauð-
synjar eru teknar að hækka í verði
og er öllum hin mesta áhyggja og
æðra búin af þessum hlutum.
Á Þýzkalandi lögðti 75 'þúsund
kolamenn niður vinnu um helgina
og helmingi fleiri eru líklegir til að
fara að dæmi þeirra á Prússlandi
einu saman.
Á Frakklandi eru tveir-þriðju
hlutar allra rtámumanna frá verk-
um, þó gott hafi þeir kaup og
kjör.
í Belgiu kváðu námamenn hafa í
'’yRgjU; aS gera slikt hið sarna og
viðar er sagðtir órói með verka-
mönnum á meginlandi Evrópu. í
Bandaríkjum standa samningar
yfir með námaeigendum og verka-
mönnum og horfir ósáttvænlega, en
santningar þeirra á milli eru í gildi
til næstu mánaðar loka.
Þetta verkfall er eitt hið stór-
kostlegasta er sögur fara af, og er
hið mesta tjón fyrir þær þjóðir sem
fyrir því verða.
Fylkisreikningarnir.
Skuldabuskapur Roblins.
Fjárlaga frumvarpið lagði
stjórnin loksins fyrir fylkisþingið
á föstudaginn. Er það af því að
segja í stuttu máli, að tekjur eru
áætlaðar tæpar 4]/2 miljón dollara,
en útgjöld rúmar fjórar miljónir-
Á pappímum litur svo út sem
tekju afgangur sé 451 þús. dollar-
ar.
Meðal stærstu útgjalda ársins
má telja 700 þús. til búnaðarskól-
ans nýja, 112 þús. til vitfirringa
spitalans í Selkirk, og 282 þús. til
samskonar spítala í Brandon og 50
þúsundir til gamalmenna hælis.
Um fónareikningana er næsta
litið að græða á fjárl.frumvarpinu.
Tekjur af fónum eru taldir 1,318
þús., en útgjöld 3Í1 þús. til afborg-
unar kaupskuldinni og 1 miljón,
hvorki meira né minna, er stjóm-
in tjáist hafa ávísað fónanefndinni
til útborgunar. Reikningarnir
virðast helzt gefa í skyn, að tapast
hafi á fónum 2,290 dollarar og 68
cent. Á því er ekkert að byggja
um fjárhagsástand fónanna, með
því að stjórnin visar þinginu til
skýrslu fónanefndar, sem bráðum
muni koma, ef það Vilji finna
nokkurn botn í reikningunum.
Skuldirnar á fylkinu fyrir fóna-
kaupin eru rúm hálf tíunda tniljón.
Skuldir fylkisins alls og alls eru
taldar nálega sextán miljónir, að
ótöldum ábyrgðum fylkissjóðs.
Stórkostlegur bruni á Aðalstræti.
BYGGINGIN HRYNUR. — SJÖ MENN FARAST. — MARGIR
SLASAST. EIGNATJÓN METIÐ UM HÁLFA MIUÓN.
Einhver hinn mesti voöi, sem aö I
höndum hefir borið í Winnipeg,
skeöi á laugardagskvöldiö var. Þá
kviknaði í stórhýsi rétt fyrir norö-
an jarögcingin á Main Street, þar
sem Radford Wright hafa huröa
°S' ghigga kistu verkstæði. Á
öðru lofti aftan verðu var nokkuð
af naphta; þegar eldurinn náði því
sprakk það með miklurn hvell og
sprengdi byggingttna. Veggirnir
hrundtt sitt á hvað. en múrsteinar
og annað, sent laust varð, flaug t
loftinu viða vega. Tveir eldliöar
uröu tindir einttm veggnum. og
mistit lífiö, tveir menn aðrir, sem
nærstaddir voru, fórust og þar og
unglingur hinn fimti: en maður
nokkur, er stóð upp á glerþaki C.
P. R. brautarinnar, steig gegnum
glerið, féll til jarðar og fékk bráð-
an bana. Tveir ntettn gengtt norð-
tir strætið og varð annar þeirra
fyrir múrsteini og rotaðist, en
hinn skaðaðist af t'afmagnsvírum
er yfir þá féllu. Tólf aörir menn
meiddust meira og minna viö þenn
an brtina. fót og handleggsbrotn-
uöu og slösuðust rrteð ýmsu móti,
en enginn til bana, nenta þessir,
sem taldir voru.
Upptök eldsins eru ókunn, en
eru af sumti'm talin stafa frá raf-
tnagnsvirum, er tendrað hafi
naphta-efnið, aðrir telja eldinn
kveiktan af mannavöldum, og
styöja þaö meö þvi meöal annars,
aö eldliðið var kallað þrisvar til
annara staða meðan ú hrunanum
stóð.
Heitari eldur hefir aldrei kynt-
ttr veriö í Winnipeg, þvi aö húsið
var fult á öllttm loftum af skrauf-
þurrum við; þakið tók af húsinu
við spreninguna. datt niður í log-
ann og braut öll loft undir sér-
Við það magnaðist eldurintt, svo
að loginn tók nieir en tvö hundruð
fet upp úr veggjum og sló roða
yfir loftið sem sást alstaðar aö úr
bænum. Vatn var af skornum
skamti, nteö þvi aö nægilegur
þrýstingur á vatninu nær ekki
lengra en aö C. P. R. jarögöng-
um; eldliðar ttrðu að standa all-
langt frá eldinum vegna hitans. og
gerðu buntimar varla betur en ná
til eldsins þaðan sem þeir stóðu.
Loks voru pípur lagðar frá bruna-
vatnspipu á horni Higgins og
Main St. og eftir það gekk betur
að halda bálinu í skefjttm.
Því er mjög hrósað, hversu vel
og vasklega eldliðar, þeir er ekki
sködduðust við sprenginguna,
sóttu eftir þeim félögum sinum,
sem urðu undir veggnttm. þegar
Ihúsið sprakk.
Eignatjón af brunanum er talið
150 þústtnd er smiöafélagiö tapaöi,
og bætt verður aö fullu af bruna-
bótafélögum. og um 25 þús. er
eigendur hússins verða að bera
umfram það, er í brunaábyrgð var.
Sterkir steinveggir stóðu á hivora
hlið húsi þessu og vann ekkert á
]>eim, og af þeirri orsök varð
litill sem enginn skaði á stórhýsum
International Harvester Co. og
og Stewart Machinery Co, er stóðit
sitt hvoru megin við. Veggimir
hrundu aftur og fram á strætið,
og þar varð ynannskaðinn- Fólk
sem um strætið gekk. sumt beint
undir bvggingnnni, vissi alls ekki
um brttnann baka til. og varði
engan livaö verða mttndi, þar til
efsti hluti fratnhliðar sprakk og
féll niður á fólkið; það tvístraðist
hljóöandi, en þrír lágtt eftir sem
liðin lik, marðir og brotnir liö
fvrir lið. en þeir vom miklu fleiri
er bártt þaðan áverka og síðan
varö að hjálpa btirt og aka til spít-
ala.
Alt, sem fyrir þessu hruni varö,
fór i ntola. virastaurar allir brotn-
uðu sem gler og urðtt háir brestir
og ótrúlegur ljósagangur, er vir-
arnir slitnuðu og köstuðust hver á
annan. Þegar veggurinn kom á
götugrjótið reis þar ttpp mökkur
svo þykkur, að húsin i kring urðu
hvítgrá, og leiftraði ljósagangur
víranna í gegn ttm þann rykmökk,
en vein og hljóð hinna meiddit
heyrðtist út úr því gráa mistri og
tóku upp úr dyn og undirgangi
brunans.
Litlu seinna sprakk á öðrum
staö í húsinu og þá tóku logarnir
ttpp úr; eftir það var eldurinn ein-
ráður ttm æði langa stund, og var
þá svo bjart af bálinu, að lesa
niátti smátt prent tíu götur frá á
allar hliðar. Logar stóðu hátt i
loft ttpp og út úr öllum gluggttm.
en hitinn var svo mikill. að ekki
var vært hinum megin á Main Str.
og flýði fólk sem fætur toguðu. er
áður hafði nálgast 'brunann.
Meðan á ]>essii stóð ráfuðtt hin-
ir meiddti um strætið ög .vissu
varla hvaö þeir fórit. Með visstt
veit enginn hversu margir fengat
meiðsli, en yfir tuttugu eru taldir
með nöfnum. sttmir litiö að vísu,
sem betur fór. Þaö hlifði mest.
aö ekki varð nteiri ntannskaði, aö
múrinn sprakk fram á miðja götu,
en ekki á götustéttina. Fjöldi
manns misti fótanna, þegar spreng
ingin kont, og tókst að komast
tmdan áður en þeir urðu fyrir
skaða. Sumir urðu fyrir vírunum
er ]>eir slitnuðu og kösfuðust
nokkrar álnir án þess þó að meið-
íast alvarlega-
Úr bænum
Hr. Guðrn. Davíðsson úr Mikl-
ey var hér á ferð í vikunni og Jó-
hannes Grímólfsson- Þeir fóru á
hundasleða úr eynni til Gimli. Fisk
veiði segir Mr. Davíðsson litla
þennan vetur en heilsufar gott og
alntenna vellíðan nteðal eyjarbúa.
Víða búa þeir sig kappsamlega
undir forsetakosningu í Banda-
ríkjurn næsta ár, en hvergi rösk-
legar en i hinu trausta bóli Sósi-
alista i Milwaukee, Wis. Þar tek-
ur íslendingur fjörugan og ein-
kennilegan þátt í bardaganum.
Hann semur gamanWæði um
stjórnmálin og syngur þau á fund- I
um- Mebal kvæða hans, er vér I
höfurn séð getið, má nefna þessi:
1. ”We’ll have to wait to see”, 2.
“Right in Milwaukee” og 3. “If
I were only Mr. Morgan.” Eng-
inn stjórnmálafundur þykir nýti-
legur i Milwattkee nema landi
vor Billy Johnson sé þar viðstadd-
ur að kveða kvæði sín.
ltjónin santan- Mjög fáir voru
viðstaddir, — aðeins nokkrir kunn
ingjar á Oak Point og bræöur
brúðarinnar frá Lundar. Eftir
vígsluna var farið til húss hr. Páls
Reykdals. Var þar búiö aö til-
reiöa borö meö alskonar kræsing-
um. Skemtu menn sér þar fram
eftir kveldinu meö samtali og
ræöuhöldum. Þessir héldu ræður:
Séra Carl J. Olson, hr. Páll Reyk-
dal, hr. Jóh. Halldórsson og brúð-
guminn sjálfur. Ennfremur flutti
hr. Vigfús Guttormsson einka fag-
urt of tilhlýðilegt kvæði. Brúð-
hjónin lögðu af stað næsta morg-
un til Winnipeg, þar sem þau bú-
ast viö aö dvelja nokkra daga-
Safnaöarfundur veröur haldinn
í Fyrstu lút. kirkjit næsta þriðju-
dagskveld, klukkan átta síödegis.
Nánara auglýst i kirkjunni á
sunnudaginn kemur.
Séra Rúnólfur Marteinsson pré-
dikar í efri GoodTemplara salnum
ttæsta sunnudagskvöld kl. 7- Allir
velkomnir.
Mánudagskveldið 4. þ.m, voru
þau Dr. Magnús Hjaltason og ung-
frú Þórunn Þorkelsson, dóttir Jóns
bónda Þorkelssonar við Lundar,
gefin saman í hjónaband. Hjóna-
vígslan fór fram í húsi herra Vig-
fúsar Guttormssonar að Oak Point
en séra Carl J. Olson gaf brúð-
Herra Sigurvin Sigurðsson frá
West Selkirk er staddur hér í bæn-
um um þessa mundir.
Vönduð stúlka óskast í vist nú
þegar- Upplýsingar að 22 College
str., St. James.