Lögberg - 21.03.1912, Side 2

Lögberg - 21.03.1912, Side 2
LOGBERG, FIMTUDAGINN 21. MARZ 1912. Skúli Magnússon landfógeti. Kvæði, eftir Matthías Jochumson, flutt og sungið á Akureyri 12. Des. 1911. I. Heyrið, íslands ungu stéttir, óma hetjulag þess, er fyrst :i Fróni réttir fallinn þjóðarhag! Skiíla mikla Magnússonar minnis- kveðum -brag, faðir vorrar frelsisvonar fæddur var í dag! Hvaðan kom þér, kappinn sterki, konungborin sál, Ragnars þrek í víkingsverki, viljans sigurstál? Lúður þinn og frána fána féþkstú ei “úr búð” — Allt sem þér nam auönan lána, átti sál þín prúð. Fólkið svalt með sinateygjum, sífellt barði lóm, landið allt í bóndabeygjum bundið okursklóm. íslands hagur, orka. sómi, aldrei lægra stóð, einokunar dauðadrómi drakk þess hjartablóð. — Ungur Skúli einn á þiljum orkuramur stóð- “Hér éhann kvað) í.kröppum byljum kenni’ eg mína þjóð! Fá mér stýrið, danski drengur, dáðlaust brottu hik! Sjálfur vil eg sjá hve gengur, sigli hærra stryk.’’ Síðan vandist stjórnarstarfi, stormi' og þungum sjó, meðan lands og lýða arfi « lausn und fargi bjó. Löng var þrautin, þung var snerra þrjátíu ára skak. • þar til íslands okurherra út með sneypu rak. Aleinn stóðstú stríðs á vengi, sterka skörungssál, enginn skildi langa lengi landsins varnarmál; smáðir hatur, hróp og pretti, hærra sigldir stryk, þar til lutu landsins rétti langvinn okursvik. Hevrið, íslands itru synir, unga kaupmannsþjóð: Skúla saga, vösku vinir, vermi yðvart blóð! Rækið dæmi rausnarþjóða, reisið landsins kjör. fagra siði. frægð og gróða flytjið heim i v<">r! “Vogun vinnur, vogun tapar,’’1 völt er kenning sú. “byggt á sandi húsið hrapar,” liiildar segja nú. Fólkið svaf á fyrri dögum, fékkst þvi lítil tryggð; nú skal féiags festa lögum fóstru vorrar bygð! Lifi Skúla frægðín frána fram um tímans höf! Reisum íslands unga fána vfir skörungs gröf! Lof sé þeim, sem- lýðum sendir líkan stýrimann, sem úr fári flevi vendir fósturlands, sem hann! II. KÓR. Vor sterki Skúli skáhrtöld nýja vakti og skarst í leik er þrotin sýndust ráð. Hans lúður fyrstur lokaráð þau hrakti, að lifa' og deyja upp á kóngsins náð. “A Jótlandsheiðar fjárinn sjálfur fari í fangið á svo blindri okurstjórn; á lands mins dreggjum dey eg eða hjarí. en danskri miskunn verð eg aldrei fórn!” “Og fyr skal Islands fáráölinga befna, og fépúkunum kenna spáný skil, . og fyr til dóms þeim digru herrum stefna og draga’ í ljósið þeirra svikaspil. Eg trúi’ á Guð. og treysti' á Islands vini, eg trúi' á ærlegt blóð í hverri stétt; til lifs og dáðar landsins vek eg syni: Með lífi mínu heimta eg Islands rétt!” Svo mælti hann og knör á kólgtt setti og konungdjarfuh hét á jöfur sinn; “Að tslands þraut og mæðumyrkri létti, þarf meir en orðin, tignarherra minn! þín andlitssól er issins ströndum fjærri, en óðar mætti bjarga vorri þjóð, ef yðar tignar náð oss skini nærri tneð nægri hjálp af ríkri elfarglóð! Hinn ungi fylkir orðlaus lengi starði, því aldrei fyr svo djarílegt heyrði tal, né ægishjálm und þungu brúnabarði á burgeis nokkrum leit í konungs sal. En — vinur hitti vin á Jjeirri stundu, og viðreisn íslands gæddi sigurvon, því fáir þágu fé úr öðlings mundu með fyllri rausn en Skiíli Magmtsson. III. SÓLÓ■ 1 sorgarsögu þjóða, er sækjast líf og hel, skín guðdómlíknin góða sem glaðast fagrahvel — sem löndin veki vorið og vermi freðna slóð — sern barn á hjarni borið, er bjargar heilli þjóð. Það sannar Skúla saga, það sýnir allt hans stríð ; að búa’ oss betri daga hann barðist sína tið. Hann verk sitt hóf ttm vetur, og vann i krafti' og trú. Hvað aleittn ttnnið getur oss undrun vcKtir nú- Svo grýtt er gatan lýða. og gæfan völt og hál, og löngum langt að biða að landsins vakni sál. En helgttr hulinskraftur, er harðna kjör þín, Frón! þér ávalt vekur aftur upp annan Skúla og Jón. IV. KÓR OG FINALE Svo stóð hann aleinn eftir langa æfi. á eyjarþröm, og hinzta niðjann grét: “Nú kveð eg landskuid lokna grimmum sævi, og land mitt aldrei framar stutt eg get. Mitt líf er þrotið. Hvað er eins manns aldur, og eins manns strrð, við flesta menn í þrá? En dauðinn vona’ eg verði minna kaldur en vinir þeir, sent reitur minar flá.” Og loksins þáði “!a i-n í náð” hinn sterkl og launin urðu köld og tiakin gröf. En samt hann féll und fósturlands síns merki,, og fáninn gnæfir enn, við tímans höf. Og vel sé Skúla! Fáir fegri byrði af frægðarauði niðjum gáfu’ í arf: ltans menjar eru millíóna virði; hans minning sé vort þjóðvekjandi starf. íþróttir á Islandi. Hér eru teknir upp kaflar úr rit- gerð, sem Sigurjón Pétursson sá sem nú er glimukóngur á íslandi, hefir ritað í i- hefti þessa árg. “Eimreiðarinnar!’ Leikmót U ngmennafélags tslands. Þau leikmót hafa , verið háð hingað og þangað um landið á síð- ustu árum, en þó einkum í Reykja- vík, á Norðurlandi éá Akureyri og ÍHúsavíkj og við Þjórsárbrú. 1 Á Norðurlandi hafa verið hald- in 3 leikmót, og var hið fyrsta þeirra háð á Akureyri 17. Júní 1909. Fóru þar fram skeið, ganga, glima, sund, soppleikur fknattsparkj, hástökk og lang- stökk. Þangað sóttu ma/rgir ungir t^pmenn og i glimunum tóku þátt nær 30 manna á ýmsum aldri. Var þeim skift í flokka eftir þyngd og jverðlaun veitt í hverjum flokki. í I. fl. fundir 100 pd.J hlaut verðl. Júlíus Sigurðsson fAkureyriJ; í II. fl- (100-120 pd) Jón Kristjáns I son (Akureyri) ■ í III fl. (120-145 pd.j Jakob Kristjánsson éAkur- eyrij 1. verðl. og Jón Haraldsson fEinarsstöðumJ 2. verðl.; í IV. fll ^145-165 pdj Sigurður Sigurðs- son föxnahólij; í V. fl. (yiir 165 pdj Jón Jónsson fSkjaldarstöð- umj. , •m Bæði í hástökki og Iangstökki hlaut Kári Amgrímss- frá Ljósa- vatni 1. verðl. Kapphlaup voru háð af ungum drengjum og ganga, sem ekki var neitt tiltakanlega afreksmikil ,þar eð skeiðið var stutt. Bezta skemtunin var að sjá sitnd- mennina. Þar synti sundkennari L J. Rist björgunarsund af mik- illi list. og margir- af lærisveinum hans syntu þar 'Kka sérlega vel. I kappsundi yfir 100 stikur varð Stefán Thórarensen fyrstur, á 120 1-5. sek., en i kappsundi yfir 50 stiktir varð Björn Arnórsson fyrstur á 55 sek. Nógu fróðlegt er að bera þetta saman við sunn- lemd<ii sundmennina og sjá, hverj- ir em hraðari i vatninu. Ris>t sttndkennari er einn af þeim mpnnum ,er vakið hefir mjög mik- inn áliuga hjá ttngttm mönntim í sinu héraði fyrir íþróttum. sér- staklega sundlist og leikfimi. Hann hefir kent mörgum leikfimi nyrðra, og honum mttn það að þakka manna mest, hve nú ertt tnargir syndir orðnir á Akureyri, Ilúsavík og viðar á Norðurlandi. Hann sjá'lftir hefir getið sér fræg- an orðstír fyrir sttnd, og fyrstur allra stindmanna þessarar aldar synti hann yfir Eyjafjörð sumarið 1907. Lagði hann af stað í sjó- klæðum, en tíndi smámsaman alt af sér á leiðinni og kom klæðiatts að landi Víð bíðum með óþreyju hinum megin fjarðarins og sáum ekki annað en smáskvettur við og við — nema þeir. sent hafa sjón- auka, þeir sjá höfttðið. Smámsam- an færist hann svo nær og eftir 30 mínúttir kemst hann loks að landi. nokkuð ]>reyttur en þó ekki þjak- aðttr til muna, ]>ótt strattmurinn hefði verið erfiðttr. “Drengilega gert! Til hamingju með heit- strenginguna!” fjrópuðu vinimir, sem biðtt hans á ströndinni — og það endurtökum við enn i dag. Slik afrek sem þessi eru góð fyrirmvnd fvrir æskttlýðinn, því þati verða til þess að glæða hjá honum kjark og áræði og gefa imglingttnum hvöt til að æfa sig. í von ttm að þeir kunni máske að geta* gert hið sama. Þess varð I heldur ekki lengi að biða; því und- ir eins næsta sumar, 1908, syntu 3 norðlenzkir unglingar einnig yfir 1 fjörðinn fEyjafjörðj. hinn fljót- aSt 1, Johann Ölafsson, a 24 mín 15 sek.. en hinir tveir. Kristján Þorgtlsson og Arngrímur Ólafs- ; son, á 25 m. 30 s. Er það sannar- 'ega skemtileg tilhugsun fyrir þessa ttngtt menn að hafa afrekað annað eúis á þeirra aldri og verða I þannig öðrum til skinandi fyrir- Imyndar. Og er ekki vert fyrir | marga af qldri mönntinttjti. isem jc‘kki Reta fleytt sér þumlungs- , lengd í vatni, að veita þessu eftir- ; tekt? Þeir eru stimir hverjir að | gasþra um hitt og þetta. sem þeir J þykjast gota gert fvrir landið. en j ef þeir detta í sjó eða vatn, þá 1 verðttr minna ur öllum gorgeirn- ! um- En þessum litlu drengjum stendur enginn stuggur af vatninu ]>ótt dýpið sé talsvert; þeir geta bjargað sér. og öðrtim máske Ííka. ef a h'ggur. Ög þeir ertt líklegri til að verða landinu okkar að Iiði, heldur en sumir stjórnmálaskúm- arnir, sem ertt að blaðra um að við getum ]>etta og þetta, — en geta þó ekkert sjálfir. Leikfimi hefir Rist kent við gagnfræðaskólann á Akureyri í nokkur ár. og sýndi leikfimisflokk ur hans sig opinberlega í Good- templarahúsinu veturinn 1908-09. Er það að öllum likindum í fyrsta sinn sem skólaleikfimi hefir verið sýnd opinberiega hér á landi, og er vel á stað farið. Það stófóog til að Rist kæmi með leikfimisflokk sinn að norðan á leikmót Ung- mennafélags fslands 1911, og hamlaði það eitt, að menn gátu ekki fengið sig lausa frá atvinnu sinni. Var það leitt mjög, að Ak- ureyringamir skyldu ekki geta komið suður, því sú för hefði sjálfsagt orðið þeim til mikils sóma. Þeir af leikfimisnemendum Rists, sem kostur hefir verið að kynnast í Reykjavík, hafa sýnt, að þeir hafa átt góðan kennara, og má þvi gera ráð fyrir, að sýning hans hefði orðið framúrskarandi- Það er ^nnars sárt, að mörgum húsbændum hættir til að líta hom- auga til íþrótta og allra líkamsæf- inga. Það ætti þó að liggja í aug- um uppi, að talsverðir kostir geti verið því samfara, að hafa íþrótta- menn í þjónustu sinni. Því í- þróttamaður verður sjaldan eða aldrei veikur og er jafnan glaður og ánægður við vinnuna, sem kem ur af því. að honum líðuc vel lik- amlega og andlega. Hann verður því lika miklu færari en aðrir til að taka að sér hverskonar vinnu og þolbezti þjónninn. sem vinnu- veitandinn getur fengið- Það mun því sannarlega margborga sig, ]>ó að hann verði einhvern tíma frá að hverfa til líkamsæfinga, — og ]>að hefðu húsbændur leikfim- isflokksins norðlenzka átt að at- huga. íþróttalífið norðanlands^ hefir verið heldur dauft þann tima árs- ins, sem engin leikmót hafa verið í undirbúningi. En 17. Júní 1910 var haldið leikmót á Húsavík. Veðrið var gott og fagurt en það þótti helzt á1 vanta, hve fáir i- þróttamenn tóku þátt í mótinu. \ ar það illa farið, hve áhuginn reyndist þá lítill, því ®hann ætti reyndar að fara því meir vaxandi, þvi oftar sem leikmótin em hald- I in. Á leikmóti þessu fóru fram I kapphlaup, bástökk, langstökk, jglímur og sund. En með því að enginn af sigurvegurum stóð sig eins vel og á Akureyrarmótinu árið á undan (igog) ,gerist ekki þörf að telja þá upp hér. — En ]>ó leitt sé að vita til hluttökuleys- j is tnanna i slíkum kappleikjum j sem þessttm, þá eiga þó Ungmenna 1 félögin þök kog heiður skilinn fyrir forgönguna; óg haldi þau á- fram— sem vonandi er —-þál mun mun sá tírni koma, er menn fara jað skilja þessa starfsemi og virða og leggja sjálfa sig í lima til að endurvekja hreystina í landinu. Sú hugsun kom lika fram 17. Júni 19x1. Þann dag hófust mik- il leikmót bæði á Akureyri og í Rvík. Um sigttrvegara á Akur- eyrarmótinu er oss ekki kunnugt, en þar fórtt fram kapphlaup (1.00 stikurj, stökk /'langstökk, há- stökk). hjólreiðar, glimur og sund, og enn sýndi Rist þar sundfimi sína. En annars snerist httgur allra iþróttamanna þá mest til Rvíkur, enda vortt 3 beztu íþrótta- ! menti Norðlendinga þar staddir, ;til að taka þátt í íslandsglímu og j fleirum íþróttuin- Þetta átti ltka : svo að vera, þvi að þangað átti nú að sækja af ölltt landintt, og ætti j hvert Ungmennafélag að telja sér ! skylt að senda ein neða tvo í- þróttamenn á slík mót hvernig sem þeir svo kunna að standa sig í leikjunum. Aðalatriðið er, að þeir mæti; því þó þeir biði ósigur, þá ætttu þeir lika að stælast við j það. “Ósigur í dag, en sigur á i morgun" verðttr ávált hugsun i þess, sem einhvern snefil hefir af í kjarki. Af öllujn Ungmennafélögum í landsins hefir mest kveðið að Ungmennafélagi Reykjavíkur, að því er snertir efling íþróttalífsins. Það félag hefir eignast bezta í- | þróttakrafta í ílestum greinum, enda líka mest fvrir íþróttirnar ,gert, sérstaklega sundlistina og jglímurnar, skeiðhlaup og göngur. ! Þótt við eigum ekki neina af- j hurðamenn t þessum siðasttöldu | íþróttum, ]>á er þar samt góður jog efnilegttr vísir, sem á fyrir sér ! að ]>roskast og fullkomnast. I Eitt af beztu verkum ]>ess félags | er reising sundskálans við Skerja- f jörð, sem komið var upp sumarið j 1909. Slikur sundskáli var orðinn Rvík alveg ómissandi, bæði til j ]>ess ,að þæjarbúar sjálfir gætu J ]>ar fengið sér hressandi sjóböð, log lx>ðið “gestum þeim er að garði i koma” upp á að synda við nýtilegt | suiidhús. Þetta sá lika Ungmenna- I félagið og 'bæði safnaði fé með skemtunum og stofnaði hultafélag til þess aö koma skálanum upp. Urðu margir bæjarbúar til að styrkja fyrirtækið með glöðu geði, en sjálfir unnu félagsmenn að vfeg arlagningu að skálanum í fristund um sínum. Er sundskálinn nú að mestu leyti orðinn eign Ungmenna félagsins, og er það að þakka ein- staka dugandi meðlimum félags- Íns, er beizt hafa af alhuga fyrir sundlistinni og þessu musteri hennar. Síðan sundskálinn kom upp, hef- ir fjöldi fólks farið þangað til að fá sér sjóböð. Það er heldur ekki nema mátulegur gangur þangað suður, til að hita sér undir baðið og losa sig við rykið og óloftið i bænum- En tiltölulega fáir eru það þó, af öllum fjöldanúm, sem svo mikla rækt leggja við líkama sinn. Margir játa reyndar, að það sé nauðsynlegt, en eru alitof mak- ráðir og latir til þess, að láta nokk uð úr því verða. En þeir ættu að lita sem snöggvast inn í heilsuhæl- ið á. Vífilstöðum. Þar munu þeir geta séð sveit ungra manna, sem eytt hafa frístundum sínum á göt- unum, veitingahúsum, kaffistofum og leikhúsum, en aldrei haft mann- dóm til að fá sér ærleg sjóböð. Og nú liggja þeir milli heims og helju, vona að sér batni, en vitá þó, að vel getur svo farið, að hinn illi gestur í brjóstum þeirra verði yf- irsterkari og leggi þá í gröfina í blóma Iífsins. Og þá Íðrast þeir þess sárt, að hafa ekki notað æsku Eftir barn. MAREN HULDA JÓNASDÓTTIR Fædd 17. Apríl 1910.—Dáin 14. Febr. 1912. I'ósturbarn Hjálmars Gíslasonar og Vilborgar systur kans. Aöeins barn, sem er dáið—Eitt daggar- smátt -tár, sem frá djúpinu sveif, og hvarf í það aftur. Er í sekúndu blikaði um sólmorguns ár, eins og sindurlog demants — þó al-lífsins kraftur.— Aðeins barn—-Samt þess lífvakning ódauöleg á, með oss eilífa lífið í draumi og spá. Sérhvert bros þess og hreyfing var boðun þess dags, þegar bjarthvelið vorsins eitt heldur upp’ svörum. Sérhvert hálf-talað orð þess, var hugvakning lags, sem til himinsins stígur frá lifenda vclrum. Sérhvert tár þess og andvarp, var tilveran hálf. Sérhvert tillit þess skuggsjá guðs: eilífðin sjálf.- Nú er sætið þitt, Hulda, í húsinu autt, enginn heimsmáttur skipað að jöfnu það getur.— Þeim, sem unnu þér, vor, er af viðkvæmni snautt, svo að veturinn hefir þar fyrst um sinn betur.— Þeim, sem ástfólgnast báru þig brjóstin sín viö, þeim, er byrðin mun þyngri við tónleikans frið.—- Aðeins barn, sern er dáið—Eitt árgeisla ar, sem á yfirborð sólhafsins skaut upp og — týndist.— Aðeins barn — tæpra áranna tveggja sem var, þegar tímanum nafn þess að stryka burt sýndist.— Aðeins barn- Samt þess lífsvakning ódauðleg á, ineð oss eilífa lífið, í draumi og spá. Þ. Þ.Þ. árin til að styrkja líkamann. En það er um seinan. Öllum ætti þetta að vera kenning, til þess að fara ekki eins að, lifa ekki alveg eins öfugt við allar heilbrigðisregl- ur, heldur brynja sig snemmagegn tæringunni og vingast við skæð- ustu fjandmenn hennar: sjóinn, loftið og sólina. Ef bæjarbúum væri það fullljóst, ’ hvílik óþrjót- andi heilsulind sundskálinn mætti verða fyrir þá, ef hann væri nógu mikið notaður, þá mundu þeir streyma þangað hópum saman. Allir eiga sunnudagana fría, og með því að nota þá vel, má mikið gera fyrir líkamann og heilsuna. Eins og áður hefir verið á vikið, var sundskálinn vígður i. ág- 1909 í sambandi við þjóðhátíð Reykvikinga, og hélt fyrv. ráð- herra Hannes Hafstein vígsluræð- una. Við sundskálann hafa mörg kappsund þreytt verið, og Ung- mennafélag Reykjavíkur gengist fvrir þeim öllum. - EimreiSin. Er hægt að ráða því ? Maðúr er á Bretlandi sem var- ið hefir til þess miklum parti ævi sinnar að rannsaka vísindalega hvort og að hve miklu leyri unnt sé að ráða því, hvoru kyninu af- kvæmi dýra tilheyri. Nú er sagt að hann sé það langt kominn í ransóknum sínum, að hann geti með yissu sagt hvort afkvæmi þeirra skepna, sem hann hefir undir hendi, verði karl kyns eða kvankyns. Hann er að gefa út bók um þetta efni, sem kemur út þessa vikuna, er heitir: ,,Kyn af- kvæmis. Hver og einn getur ráð- ið því, “ Mergur málsins í ráðum hans er að kynna sér forfeður dýranna og komast að raun um hvort þau eigi til þess sem hann kallar kven- kendra eða karlkendra að rekja, Um það gefur hann reglur eftir reynslu sinni, er hann telur ó- brigðular til þess að ráða kyni af- kvæhxisins. Svo er sagt, að bók hans muni verða þeim sem ala upp stóð og aðrar kynbóta skepn ur, til hins mesta hagrœðis og á- bata. Tíu þúsund til Peking. Svo er sagt með sanni, að hers- höfðingi nokkur að nafni Sheng sé ó leiðinni til Peking með tíu þúsund manns til þess að rétta hlut keisarans og setja hann aftur f hásæti. Þetta herlið er norðan úr landi, þarsem heitir Kansu; þaðan átti uppreisn Boxaranna upptök sín fyrir aldamótin síð- ustu; þar búa Múhameðstrúar- menn, herskáir sagðir og miklu meiri hreystimenn heldur en þeir Kínverjar sem sunnar búa og aldrei hafa verið til hernaðar fallnir. HnndraS hvítir vcngir á lofti. Eitt hundrað flugvélar og tvö loftskip verða reynd í haust, þeg- ar Frakkar haldahinar miklu her- æfingar og kanna lið sitt nálægt Orleans. Áhuginn á Ioftferðum í því landi er næsta mikill og eru nú hafin samskot meðal almenn- ings um altland, til þessað kaupa flugvélar til íernaðar. Svo mik- ið hefir safnast nú þegar, að níu- tíu flugvélar hafu keyptar verið í þessu skyni. Krókur á móti bragli. Tveir ræningjar stöðvuðu íest suður í Bandaríkjum í vikunni, kúguðu vagnstjórann til að leysa tvo fremstu vagnana frá, þarsem póstflutningur og peningar voru geymdir og íæra þá frá aðal-Iest- inni. Annar ræninginn gætti með byssum á Iofti þpss manns, sem með peningunum var sendur, og 1 ruesdale hét, en hinn sprengdi upp peningaskrín og skar upp póstpokana. Truesdale lét sem hann gæfi einhverjum bendingar, er stæði á bak við ræningjann, og þegar ræninginn sneri sér við, til að gæta að hver sá væri, þá greip Truesdale þessi hamar og rotaöi hann, tók síðan byssu hans og sat^fyrir hinum þartil hann kom í skötfæri, og skaut hann þá til bana. Þetta þykir sögulegt af því, að það er fátítt í því landi, að ræningjar fái mótstöðu, er stöðva lestir og ræna. WINDSOR DAIRY SALT Tók öllu fram á öll- um sýningum. Árið 1911 varmikið sigur ár fyrir Windsor Dairy Salt. Rétt allir, sem unnu verð- laun, fyrir smjörgerð, brúk- uðu Windsor Dairy Salt. Þeir sem stunda smjörgerð segja að Windsor salt sé þeirra stoð og stytta. Þeir treysta því altaf, af því að þeir vita, að það er hreint, —það smjör sem saltað er með því, er bragðbezt og útgengileg#»t—, af því að þeir vinna verðlaun og fá bezta verð fyrir smjör sitt— þegar þeir brúka WIND- SOR DAIRY SALT.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.