Lögberg - 15.05.1912, Blaðsíða 1
&
Co.
Grain Commission Mcrchants
- 201 GRAIN EXCHANGE BUILDING -
Members Winnipeg Grain Exchange, Winnipeg
I
ISLENZKIR KORNYRKJUMENN
Sendið hveiti yðar til Fort William
eða Port Arthur, og tilkynnið
Alex Johnson & Co.
201 GKAIN EXCHANÖE, WINNIPEG.
• Fyrstaogeina íslenzka kornfélag í Canada.
25. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN
15.
MAl 1912
NÚMER 20
Bandalagið á Islandi.
Mikil tíðindi og ill.
Hér á eftir er birtur fregnmiði
frá blaöinu "ÞjóSviljanum” um
bræöingsmakk stjórnmálaflokk-
anna á tslandi. Þaö eru fynstu ít-
arlegu tiöindin, sem hingaö hafa
borist um það mál. Má af þeim
fréttum sjá, að ekki lízt ritstjóran-
um, herra Skúla Thoroddsen, á
þetta bandalag. Hann hefir snú-
ist andvígur gegn því, eins og
hann reis röggsamlega, einn síns
lit5s, gegn sambandslaga-frumvarp-
inu í Kaupmannahöfn, og vertSur
honum til ævarandi sæmdar.
Skúli telur bandalag þetta hiklaust
miða að því aö innlima ísland
Danmörku, og segir aS engar
breytingar-tillögur bandamanna
séu þess eSlis, “að fullveldi lands-
ins sé borgnara, en þótt sambands-
laga-frumvarpið væri samþykt ó-
breytt.”
Lögberg hefir aS vísu ekki séö
allar þessar breytingar-tillögur, en
nokkrar þeirra höfum vér séS í
nýkomnum “Vísi”, og- verSum vér
því miöur aö játa, aö þær þeirra
eru veigalaust málamyndakák. ÁtS-
ur langt um liöur munum vér geta
birt lesendum vorum tillögur þess-
ar, er vér höfum fengið þær allar.
En mergurinq málsins er tekinn
fram í þeim fréttum frá “Þjóð-
viljanum”, sem hér greinir;
“Nokkrir menn úr sjálfstæöis-
flokknum” — “lsafoldar”-menn —
hafa nýskeö. að flokksstjórninni
fornspurðri, og með leynd mikilli,
bundist samtökum við nokkra
menn úr “heimastjómar”-flo'kkn-
um, — sem einnig kvað hafa láðst
að gera flokksstjórn sinni aðvart.
Samtök þessi fara i þá áitt, að
smella nú á “sambandslaga-upp-
kastinu”, — “innlimunar”-fmm-
varpinu frá 1908, sem hafna'ð var
af þjóð og þingi.
Blöðin “ísafold”, “Ingólfur” og
“Reykjavíkin” benda í síðustu nr.
sínum á samtök þessi. — og þó
mjög á huldu—, sem einskonar
gleðiboðskap, og* kalla nú rit-
stjórarnir hverir aðra merkis-
menn!
En merg málsins, eða að hverju
samtökin beinast, fá menn eigi að
vita.
Það átti að fara alt, sem leynd-
ast, — bíða þess, að þing kæmi
saman.
Engu að síður hefir “Þ jóðvilj-
anum” þó tekist — þótt sizt væri
svo til ætlazt — að komast á snoð-
ir um það hvað það er, sem banda-
mennirnir — nýbökuðu merkis-
mennirnir — hafa brætt sig sam- ‘
an um, og er drepið á það ögn
síðar í fregnmiða þessum.
Enn fremur hafa þeir og skrifað
undir ofur hátíðlegt skuldbindinga
skjal, svo enginn bregðist, er að
því kemur að haldast í hendur um
“innlimunar”-verkið.
Og með því að þessi fyrirmun-
un mannanna hefir, svo sem von
er, vakið undrun, efasemdir og
forvitni fólks hér í bænum, þykir
rétt, að lyfta þegar ögn skýlunni
af leynibræðing þessum, — þó að
vel geti svo farið, að einhverja
þeirra espi það og œsi.
Skuldlbindingin er svo látandi:
Um framanritaðar breytingar
tillögur við frumvarp millilandcu
nefndarinnar frá 1907 höfum
vér undirritaðir orðið sammála
og heitum hver öðrum að vinna
að því utan lands og innan að
frumvarpið með áður töldum
breytingum verði að lögum.
1 því skyni að þetta megi verða
höfum vér afráð'.ð og heitið hver
öðrum að ganga saman í einn
stjórnmálaflokk, er skipi sam-
bandsmálinu í fremstu röð stjórn-
málanna.
Þeir af oss undirskrifuðum, sem
alþingismenn, heitum því að
stofna þegar í þingbyrjun í sum-
ar nýjan þingflokk, er vinni að
því framar öllu öðru, að sam-
bandsmálið verið til lykta leitt
samkvæmt áðurnefndu frum-
varpi miUilandanefndarinnar
með þeim breytingum, sem
skráðar eru hér að framan.
Reykjavík, í Apríl 1912.
Björn Jónsson,
Bjöm Kristjánsson,
Jón Magnússon,
Einar Hjörleifsson,
Jón Þorláksson,
Sigurður Hjörleifsson,
Þorsteinn Erlingsson,
Hannes Hafstein.
Jens Pálsson,
Jón Ólafsoon,
Guðm. Björnsson.
Ólafur Bjömsson,
Sveinn Bjömsson,
Ámi Pálsson.
Samhljóða mér sýndri afskrift.
Jón Þórkelsson.
En samkvæmt tillögum banda-
manna á Island að afhenda Dönum
og “innlima” þeim um aldur og æfi
utanríkismál sín og hcrmál, og
engar eru breytingartil'ögur þeirra
þess eðlis, að fullveldi landsins sé
borgnara, en þótt “samlbandslaga-
uppkastið” væri samþykt óbreytt.
Og þó bætist það hér ofan á, að
í leyni-skjali, sem sagt er, að tveir
menn úr hvorum flokki hafi ritað
undir, tjá allir sig fúsa til þess, að
ganga enn lengra til samkomulags,
— ef á þurfi að halda, og Danir
fari að ygla sigfU
Frá einu miðlunar-atriði sínu
ætla þeir þó hvergi að hopa, — og
það' fer í þá áttina, að hafa ráð-
herra í Kaupmannahöfn, er laun-
aður sé af íslenzku fé, og leyft sé,
að mega skygnast inn í danska rik-
isráðið.
Undir leyni-skjalið kvað hafa
skrifað: Björn Jónsson, Hamies
Hafstein, Sig. Hjörleifsson og
Jón Ólafsson.
Á undan kosningunum á síðastl.
hausti lofuðu “heimastjórnarmenn-
irnir” mjög hátíðlega, að hreifa
eigi við sambandsmálnu, — unnu
það þá sér til sigurs.
Pað loforð ætla þeir sér nú þeg-
ar að svíkja. .
Gott er slíkum merkismönn-
um/!) að trúaUJ
Að öðru leyti verður skýrt nán-
ara frá máli þessu í næsta númeri
“Þjóðv.” nú í vikulokin.
Nú ríður á, að þjóðin sé vel
vakandi.
Verum nú allir samtaka, að
kveða þegar ósómann niður!
Leiðin prýdd blómum.
Sú fagra venja helzt enn, sem
fyrir löngu var upp tekin, að leggja
blóm á leiði hermanna sem féllu
í stríði hér vestanlands og eiga
leiði í kirkjugarði St. Johns kirkju.
Síðan eru um 27 ár, að þeir voru
lagðir þar til siðustu hvíldar, en
jafnan siðan er til þess valinn einn
sunnudagur á vorin, að prýða leið-
in og halda við minningunni um
þá, sem mistu lífið í vörn fyrir
þetta þjóðfélag. Þetta fór fram í
ár á sunnudaginn var. Selnni part
þess dags söfnuðust saman allir
Jiermenn í Winnipeg og þeir hinna
fomu hermanna er i ófriðnum
voru og enn eru á lífi, hátt á sjö-
unda hundrað að tölu. Var stutt
prédikun haldin og sálmar sungn-
ir á flötunum fyrir framan há-
skólann og síðar farið í skrúð-
göngu eftir Broadway og Main
St. norður í kirkjugarð. Fyrstir
fóru riddarar þeir, sem kendir eru
Strathcona í rauðum kyrtlum með
blikandi hjálmum og blaktandi
fjaðraskúfum, þarnæst fótgöngu-
!ið, þarnæst ungir sveinar fBoy
ScoutsJ og loks hinir fomu her-
menn.
Veður var . blitt og var fjöldi
fólks saman kominn að horfa á og
liklegast hefir ekki nokkur bifreið
fundist í bænum, er ekki var á
ferðinni og fylgdi liðinu alla leið.
Stjóm og tilhögun var hin bezta
og þótti öl'um mikið til þessarar
ihátíðlegu athafnar koma.
Kosninga baráttan.
Um kosninga undirbúning i
Bandaríkjum eru fáar fréttir að
segja nýjar, nema hriðin harðnar
með degi hverjum. Það var fyrst
að Taft hlífðist við að beita hörð-
um orðum um Roosevelt, en svo er
nú komið, að þeir taka ómjúkt
hvor á öðrum og þykir engum
meira gaman að þvi heldur en
þeim, sem á móti þeim sækja af
'hálfu Demókrata. Margir væntu
þess, að úr mundi skera í Massa-
chusetts, en það brást, því að þar
urðu þeir sem næst jafnir. í Illi-
nois og Pennsylvania hefir Roose
velt unnið algerðan sigur, og «•!
marka má sögur af veðmálumi þar
syðra um það, hvor hlutskarpar;
verði, þá stendur R. allvel að vigi
eftir áliti þeirra, sem veðji d
hann. Eigi að siíður er það álit
þeirra blaða, sem vér trúum vel,
að hvorugur þeirra verði valinn til
að sækja um forseta tign af hálfu
Republikana. ' Taft eða Rooseelt,
með því að hvorugs fulltrúar vilji
beygja sig fyrir hinum, þegar á
kjörfund kemur í Chicago, heldur
muni þeir sameina sig um einhvern
þriðja mann og eru strax tilnefnd-
ir líklegir Hughes, hæstaréttar-
dómari og Beveridge 1 Indiana.
Þó er þetta ekki annað en spá-
dómur enn þá. Sem stendur er
bardaginn óðastur i Ohio og legg-
ur Taft sig al'an fram til þess að
vinna þar. Hann er þaðan ættað-
tir og á þar frænda styrk mikinn.
Akafur flokksmaður
í gröfinni.
Siðan stjóm Bordens komst að
völdum, hefir hún sett menn frá
störfum og embættum um alt
land, og er það að vísu hennar að-
alstarf hingað til. Hún hefir gef-
ið þeim að sök, að þeir hafi verið
“ákafir flokksmenn”, en um það
vantar heimildir eða skýringar frá
hennar hálfu, hvað til þurfi, að
komast undir það mark hjá henni.
Nú er víst skýring fengin á þvi.
Póstmála ráðgjafi Pelletier, hefir
nýlega skrifað bréf til póstmeist-
arans i Guysboro í Nova Scotia og
tjáð honum, að hann sé settur af
embætti fyrir ákafa hluttöku í
pólitík. McPherson var pióstmieist-
ari á þessum stað. meðan hann
var i holdinu, en hann er nú láinn
fyrir fimm árum. Eigi að siður
segir í bréfinu, að hann hafi unnið
einsog fantur á móti stjórninni
bæði 1 fylkiskosningum og Dom-
inion kosningnm 1911 og skuli
hann gjalda þess grimmilega og
verða settur frá! Kona þessa
látna MePhersons hetir haft póst-
húsfð síðan hann dó. Hún hefir
vitanlega aldrei opnað sinn munn
um pólitík, hvorki i síðustu kosn-
ingum né öðrum og Mac var lög-
lega afsakaður frá því að vinna á
móti þessari stjóm. En hann var
heldur ekki með henni 1 kosning-
unum, með því að hann lá þá J
gröf sinni. Nú gera menn sér í
hug, að sú sé ástæðan til þessarar
refsingar, að hann ólmaðist ekki
með henni, og sé nú augljóst orð-
ið, hvert stjórnin stelnir * þessu
efni: að leyfa engum að vera við
embætti í landinu, nema þeim sem
hafa Iagt sig fram til að vinna með
flokk hennar. Það hefir lengi
við gengist, að stjómir i þessu
landi hafa veitt embætti sínum
vinum, eftir því sem þau hafa
losnað, og kann það að vera eðli-
legt eftir atvikum. En hitt geng-
ur langt úr hófi, að reka menn
frá opinberum störfum, hversu vel
sem þeir gegna þeim, fyrir það
eitt, að stjóminni hefir ekki orðið
lið að þeim í kosningum. Sá sið-
ur er pýr í Canada og verður á-
reiðanlega af öllum; sanngjömum
mönnum kallaður ósi'ður.
60 manns í sjóinn.
Siðustu fréttir frá Islandi um
mannskaðann mikla eru það, að
60 manns hafi farið, i sjóinn við
íslands strendur síðan á nýári í
vetur, nærri því einn maður af
hverju þúsundi landsbúa. Óskap-
legt skarð er þetta í vom fámenna
þjóðflokk á svo skömmum tima.
Skift um sendiherra.
Stjóm Þýzkalands hefir kallað
burt sendiherra sinn frá Englandi
og ætlar að senda í hans stað þann
sem h eitir baron von Bieberstein.
Hann var um stund utanríkis ráð-
herra hjá keisara og að hans
undirlagi var símskeytið sent til
Búanna um árið, er svo mikið veð-
ur varð út úr. Siðar var hamn
sendur til Miklagarðs og gerði
Tvrki svo vinveitta Þýzkalandi
að þar kemst ekki hnífurinn á
milli. Nú hefir keisari ráðið, að
senda hann til Englandis og hyg'gja
Bretar hið bezta til, með því að
Bieberstein er talinn mestur fvrir
sér af öllum þeim. sem Þjóðverj-
ar hafa á að skipa til sendiherra-
stöðu og líklegur til að bæta sami-
komulagið milli þjóðanna.
Stríðið.
Hernaður á sjó og í lofti.
ítalir hafa látið hendur standa
fram úr ermum þessa síðustu viku.
Þeir gengu á land á Rhodes ey
og tóku hana af Tyrkjum. Sú ey
er um 550 fermílur með 30,000 1-
búum. Þaðan er skamt til lands
í Litlu-Asiu, um þrettán milur.
Tyrkir tóku hana árið 1522 af Jó-
hannesarriddurum og hafa haldið
henni síðan. Eyjarbúar eru flest-
ir griskir. — Nú sfegja síðustu
fregnir, að Tyrkir hafi barist til
eyjarinnar á ný og felt um 1,000
ítali.
—í Tripolis hafa ítalir gert
það þessa dagana, sem aldrei hefir
fyr verið gert í veröldinni, að beita
loftskipum til hernaðar. Þeir
sendu nokkrar flugvélar yfir her-
búðir Tyrkja þar sem heitir Aziz-
ich; var spreng-ikúlum varpað á
þær frá flugvé’unum og er sagt, að
herbúðimar hafi nálega verið
gjöreyddar. Tyrkir reyndu að
skjóta á loftskipin, en þau voru
svo hátt i lofti, a® ekki dró til
þeirra mett fallbyssunbm. Þýkir
þetta merkileg frétt, ef sönn er, að
loftskip hafi dugað svto vel í hem-
aði. — ítals'ki herflotinn hefir
legið fyrir Dardanella sundi um
hríð og setið um færi til að ltom-
ast til Miklagarðs; fóru mörg skot
milli virkjanna i sundinu og her-
skipa flotans og urðu ítalir loks
frá að hverfa við allmikið tjón á
skipum og mönnum. Nú hafa þeir
sezt um borgina Mytileme á Litlu-
Asiu ströndum og banna þar allar
skipaferðir.
Hvaðanæfa.
—Það er dómur læknis, er var
á einu þeirra skipa, sem leituðu að
líkum eftir að Titanic fórst, að
sextán manns af seytján, er það
skip fann, hafi dáið af kulda en
ekki druknað.
—Frá þvi var sagt íyrir skömmu
í blaði vom, að prestur nokkur
skaut skotum í fordyri þing-
hússins í London. Hann var lát-
inn laus og kom það fram bráðlega
að það var ekki varlegt. Sex
vikum seinna fanst hann á heimili
sínu kominn að dauða af skotsári;
við hliðina á honum lá kona hans
skorin á háls.
—Dr. Beattie Nesbitt var tekinn
fastur í Chicago þann 12. Apríl
fyrir grunsama hlutdeild 1 hruni
Farmers bankans í Toronto í hitt
hið fyrra. Tap bankans var um
$300,000 og er bankastjórinn í
fangelsi fyrir að hafa misfarið
með fé hans. Dr. Beattie þektist
i Chicago á matarsölustað, af
manni, sem þar gekk um beina og
áður hafði átt heima í Toronto,
var tekinn fastur og fenginn í
hendur lögreglu Canada, áður en
lögmaður hans hafði svigrúm til
þess að koma lögum við. Hann
er nú í Toronto og verður látinn
ganga laus gegn veði, að sögn,
þangað til fullprófað verður hans
mál.
—Samningar milli Frakklands
og Spánar um lönd í Morokkó,
ganga skrikkjótt. Spánverjar vilja
hafa meiri lönd en Frakkar vilja
unna þeim og er sagt, að Frakkar
hafi hótað að slíta öllu samkomu-
lagi og fara sínu fram, ef ekki er
gert með góðu að fara að þeirra
vilja.
j-Ekki linnir flóðunum í Banda-
nkjum, og eru þau verst nú sem
stendur í Louisiana. Þar hafa
imargir menn farist. A einum stað
sá fólk. sem siðar var bjargað, aði
50 manns hafði leitað athvarfs i
húsi nokkru; það flaut af grunni,
er vatnið í>x og dreif fyrir stormi
og straumi þegar seinast sást. Á
öðrum stað flutti lest margt fólk
frá flóðinu. vatnið var tvö fet á
dýpt ofan að teinum og voru þeir
svo lausir, að þrír vagnar fóru út-
af; allt bjargaðist fólkið, sem .í
þeim var. — Frumvarp er fram
komið á Washington þingi, að
leggja fram 30 miljónir úr nkis-
sjóði til þess áð hlaða í bakka-
skörð á Missippifljóti, en á aðra
miljón hefir þingið veitt ti! að-
stoðar hinum bágstöddu. — Hina
siðustu daga hefir verið sólskin og
þurviðri og má þvi ætla að vatna-
vöxtum sé lokið; þó er frá þvi
sagt. að áin Missouri hafi skift um
farveg og sé að búa sér til nýjan,
en við það mundu sópast burtu
fjöldi þorpa og mörg mannvirki.
300 vögnum, fullum af grjóti og
gömlu járni var steypt í skarðið
þar sem áin brýtur bakkann, en
hún gleypti það alt saman og held-
ur áfram að eyða landið.
—Veggur hrundi 1 fimm lofta
hárri verksmiðju í Toronto og |
biðu tveir menn bana en sextán
meiddust.
—Kvenfólk i New York fór ný-
lega í fylkingu um götur borgar-
innar. margar þúsundir að tölu, til
þess að láta taka eftir því máli serm
þær berjast fyrir, en það er kven-
réttindamálið. Sú fylking fór spak-
lega og varð ékkert uppistand út
af því tiltæki.
—Wright hét maður frá Hali-
fax er fórst á Titanic. Hann hafði
1 eríðaskrá sinni gefið þriðjung
efna sinna, um 66 þúsundir dala,
til þarflegrar starfsemi, þar á
meðal 20 þús. til að bæta skemtan-
ir ungdórnsins. en á þ\’í hafði hann
haft mikinn áhuga.
Kosningar fara fram í Quebec i
dag (fimtudagj og er búist við,
að liberalar vinni sigur 1 þeim.
Kosningabaráttan hefir verið í
vægara lagi. Sir Lomer Gojuin er
formaður stjórnarinnar, sem nú er
við völd, hinn. ötulasti stjórnandi.
Kosningar á kjörmönnum til
forsetavals fóru fram í Californiu
í gær og vann Roosevelt þar al-
geran sigur. Maryland veitir hon-
um örugt fylgi. í Tennessee varð
Taft hlutskarþari. Af forsetaefn-
um Demókrata er Clark enn þá
fremstur i flokki.
Til forseta Grand Trunk járn-
brautarfélagsins eru margir nefnd-
ir. Einn þeirra er IJon. G. P.
Graham, er var ráðherra jám-
brautarmála í stjórn Lauriers,r en
um það verður ekki útkljáð fyr en
A. W. Smithers kemur til Canada,
hann er formaður fyrir stjómar-
ráði félagsins, og er nú á leiðinni
hingað.
Manjtoba.
í gær auglýsir stjórn lands vors,
að Manitobafylki skuli, verða 250
þúsund fermilur áð stærð, 1 stab
75 þúsund er þaö áður var. Þáð
nær nú norður aö 60. breiddarstigi
og hefir sjávarströnd að Hudsons-
flóa, 550 mílna langa. Þessi land-
auki er mikill á pappírnum, en
ekki hækkar fólkstalan í fylkinu
að sama skapi, því að 1 öllu þessu
feikna flæmi búa að eins 5,770
sálir, Eskimóar, Indíánar og Kyn-
blendingar. Fjártillag fylgir þess-
um landauka úr ríkissjóði, um 500
þúsitndir á ári, en sá böggull fylg-
ir því skammrifi, að Manitoba
selur af hendi opinber lönd svo og
námnrétt og hlunnindi, í hendur
Ottawa stjórnar, ekki eingöngu 1
þessu nýja svæði, heldur líka um 7
miljónir ekra í hinu foma Mani-
toba.— Þetta nýja land á að kjósa
mann á fylkisþing og er undirbún-
ingur hafinn til þeirra kosninga í
Le Pas.
Úr bænum
Herra Jón Abrahamsson frá
Antler, Sask., er nýlega fluttur
hingað til bæjarins með konu sína
og dóttur. Býst hann við að setj-
ast hér að.
Nýlega er látinn suður í St.
Paul, Minn., íslenzk kona, Mrs.
Vierling. Jarðarför hennar fór
fram 27. f. m.
Danakonungur látinn.
Var á ferðalagi suður á Þýzkalandi.
Friðrik 8., konungur yfir Dan-
mörku og Islandi, skildi við að-
íaranótt miðvikudags i Hamburg
á Þýzkalandi. Hann var á leið
sunnan úr löndum, en þangað
hafði hann farið til heilsubótar sér
eftir sjúkdóm sem að honum kom
í vetur, og talinn var hættulaus af
læknura; hvað honum varð að
bana hefir ekki verið gert upp-
skátt, en eftir opirtberum skýrslum
lækna hans, fékk hann snert af
lungnabólgu og sló niður hvað
eftir annað. Hann var hress og
hraustur milli kastanna. og stund-
aði þá sín verk eins og vant var.
Island hafði jjað semast af hans
nkisstjórn að segja, að hann
spurðist fyrir hjá ráðherra íslands
um manntjónið er þar varð í vor,
og er hann vissi hversu bágar voru
ástæður liinna munaðarlausu, þá
gaf hann 2,000 krónur í samskota-
sjóðinn. Friðrik konungur var
mesta ljúfmenni, ágætlega Vel
mentaður, vel máli farinn, trvgg-
ur og hollur sínum vinum og átti
engan óvin. Hann var stórauðug-
ur af örfum konu sinnar, sem er
dóttir Karls 15. Sviakonungs, og
var örlátur og gjöfull af auð sín-
um, meir en almenningur hafði
hugmynd um.
Friðrik konungur var kominn
fast að sjötugu, íæddur 3. Júm
1843. Hann var eni og röskur,
sem sýndi sig bezt á ferðalagi
hans um Island. Hann var líkari
i föðurætt sina en móðurætt; fað-
ir hans Kristján 9. var góður mað-
ur og göfugmenni mikið, en Lov-
ísa drotning móðir Friðriks kon-
nngs, var hinn mesti skörungur,
sem álj>ekt er. Meðan hún var á
lifi, var Kaupmannahöfn sam-
komustaður hinna nkustu þjóð-
höfðingja í Evrópu, en þeir voru
tengdasvnir hennar Rússakeisari
og Játvarður Bretakonungur, og
er það sögn manna, að þar hafi
verið mörg ráð ráðin, er allri
Norðurálfunni kom í góðar þarf-
ir. Næstelzti sonur Friðriks kon-
ungs er nú konungur í Norvegi;
sonur hans hinn elzti, Kristján,
tekur konungdóm eftir hann yfir
Dönum og íslandi, og nefnist
Krisfján tíundi; hann er allra
manna mestur vexti, og sagður
líkur föður sinum i skapi, góður
maður og gegn og ‘skyldurækinn.
Hann er nú um fertugt og sonu
og dætur. önnur börn Friðriks
konungs, en þau sem nefnd voru.
er Haraldur, giftur maður, hálf-
fertugur, Ingibjörg, gift Karli
hertqga af Dölum, syni Oscars 2.
Svíakonungs. Lovisa gift þýzkum
prinz, Thyra, Gustaf og Dagmar.
íslendingum má vera konungur
sinn harmdauði, þvi að af öllum
Danakonungum lét hann sig íslands
hag varða miklu mest; hann gerði
jiað að dæmi föður síns, að hcim-
sækja landið og lét sér um það
lmgað að kynna sér þess hagi. Eitt
meö öðru sýnir það hug hans til
íslands, að það var með hans ráði
gert að setja íslending 1 fulltrúa-
stöðu ríkisins, þar sem mest var á-
stæða til, og er það einsdæmi í
sögu Danmerkur ríkis, að íslenzk-
ur maður hlaut þann heiður er hr.
Sveinn Brynjójfsson var skipaður
konsúll rikisins 1 Winnipeg. —
Hinn látni konungur lét sig alt
skifta, sem gerðist í riki hans, en
hann var svo gætinn og svinnur
maður. að afskifta hans gætti ekki
nema i kvrþev.
Siðastliðinn Aprílmánuð borgaði íslenzkir innflytjendur, sem að
New York Life félagið $2,570,- heiman komu í fyrri viku, eru
720 fyrir 805 dauðsföll félags- i þessir: G. Arnason og Haraldur
manna sinna og $2,576,508 til lif-j Anderson, sem heim fóru i fyrra:
andi skírteinahafa. Á sama tima'Enn fremur úr Reykjavik: Guð-
beiddust 10,300 manns inngöngu i bergur Magnússon verkamaður,
í þetta afarmikla og volduga félag.' Sigurður Guðmundsson smiður,
Að eins 11 þeirra ' manna, sem Þá kom og Jón Jónsson, ungur
druknuðu á stóra skipinu Titanic i maður frá Gilsbakka á Hvítársíðu
voru líftrygðir i New York Lifejog Halldór Albertsson verzlunar-
fyrir samtals $105,000, svo að
skaði félagsins var tiltölulega
lítill.
Myndarlega taka Islendingar i
Brandon undir mannskaðasam-
skotin til ekknanna á íslandi. Rétt
þegar Lögberg er að fara i press-
tina berast oss bréf frá Mrs. S.
Bjarnason og Mrs. R. J. Olson
þar 1 bæ með $33.25 í peningum.
sem þær hafa safnað meðal ís-
lendinga 5 Brandon. Nöfn gef-
enda verða birt í næsta blaði.
Vel verði Isl. i Brandon fyrir
drengskapinn.
—
Úr Álftavatnsbygð er skrifað
11. þ. m.: Hér hefir veriö mjög
erfitt að fást við jarðyrkju í vor
vegna vatnsaga, og þar sem sáð
hefir verið, hefir ltið getað þróast
vegna kulda. Hveiti, sem sáð var
fyrir þrem vikurn, er fyrst að
koma upp þessa dagana.
Frézt hefir, að látinn sé að
Tranter P. O-, Skarphéðinn, son-
ur Eggerts bónda Stefánssonar,
25 ára að aldri. Hann dó úr lungna
tæringu, talinn efnismaður og
mjög vinsæll.
Lögbergi er þökk á, að blutað-
eigendur gerðu aðvart um, ef eitt-
hvað kynni að misprentast í mann-
skaða samskotaskránni, svo að
leiðrétta megi jafnskjótt.
ímaður úr Reykjavík, ættaður frá
I Stóruvöllum í Bárðardal. Sex
stúlkur voru 1 hópnum, allar ógift-
ar. Þær voru þessar: Ing'.björg
ívarsdóttir, María Einarsdóttir,
‘ættuð úr Barðastrandasýslu, Mar-
1 grét Guðmundsdóttir, Lilja Guð-
I mundsdóttir, Guðríður Sæmunds-
j dóttir úr Barðastrandasýslu og
Steinunn Jónsdóttir.
Frá Seattle, Wash., barst hing-
að til bæjar með bréfi fi*étt um
sorglegt slys, sem varð jiar yestra
3. þ.m. Þá varð landi vor Magn-
ús O. Smith, skósmiður, fyrir
strætisvagni og beið bana af. —
Magnús var daufdumbur ('mállaus
og heyrnarlausj. Hann hafði bú-
ið i Winnipeg i mörg ár og fólki
hér að góðu kunnur. Hann lætur
! eftir sig ekkju og tvö börn vist
nær fulltíða.
Brú var bygð nýlega yfir ána
Rm á landamærum Þýzkalands og
j Austurríjcis. Stjóm hins síðar
nefnda var treg til þess að gefa
leyfi til að byggja brúna, en lét þó
tilleiðast á endanum með þeim
skilmálum, að að eins karlmönnum
væri leyft yfir hana. Kvenfólk fær
ekki að fara um brúna hvað sem
tautar og er sú talin ástæðan að
það sé gjarnt á að svíkjast um að
borga toll af tol'skyldum vörum
I og klókt að leyna þeim.
t