Lögberg - 25.07.1912, Blaðsíða 1
25. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ 1912
NÚMER 30
Bretar auka flotann.
Ráögjafi flotamála á Englandi,
Winston Churchill, flutti ræöu á
þingi á mánudaginn, og lýsti því,
aö þetta áriö mundu veröa smíð'uö
fimm orustuskip á Bretlandi um-
fram það er fyr er ráö fyrir gert
í fjárlögum, og siðan fjögur á ári
hverju í næstu fjögur árin. 'Þetta
kvaö hann beinlínis leiða af pvi,
aðl Þjóðverjar hafi skyndilega
ráðið að auka sinn flota umfram
áður gerða áætlun, og héldu hon-
um vígbúnum á hverri stundu.
Þessu er misjafnlega tekúð' og víð-
ast hvár með nokkurri áhyggju.
Conservatívar eru sagðir fylgja
því, að ráða þegar á flota Þjóð-
verja og taka þann veg fyrir
keppni þeirra, áður en flotinn
verður Bretum ofurefli. Liberal!-
ar sumir eru sagðir þvi fylgjandi,
að lofa Þjóðverjum að eiga sig
og hætta að keppa við þá. Ekki
er trútt um, að sumrum flokks-
mönnum Churchills þyki hann
fara geyst í sakirnar. En þó eru
allir samverkamfnn hans í ráða-
neytinu taldir vera einhuga um þá
stefnu, sem fylgt er 1 þessu atriiði.
í þessari ræðu sinni mintist Mr.
Churchill stuttlega á hluttöku Can-
ada i flotavörn hins brezka ríkis,
en kvað þeirri ráiðagerð verðja
haldið leyndri, þartil Borden segði
segði til hennar sjálfur í haust,
Það þykir víst, að Bordenstjórnin
muni ætla sér að gera báðum til
hæfis: þeim, sem1 heimta að Can-
ada kosti algerlega bygging nokk-
urra vígdreka og gefi Englandi,
og þeim, sem fylgja því að Can-
ada byggi herflota handa sjálfu
sér heima fyrir. Þessari ráðagerð
fylgja vitanleg|a afarmikil út-
gjöld. Ef til þess kemur að fram
lcvæma hana, þá er ekki nema
sanngjarnt og sjálfsagt, aði láta þá
kynslóð, sem tekur þetta upp á
sig, sjálfa bera byrðina, í staðinn
fyrir að ýta henni ál eftirkomendi-
urna með því að taka lán i þessu
skyni, er þeir svo verði látnir
borga. Ekkert er auðveldara
heldur en að binda komandi kyn-
slóð þunga bagga. Enginn góður
borgari skorast undan því að
leggja lið hinu brezka ríki í þörf.
En hitt er sjálfsögð sanngimis-
krafa, að sjá ráð fyrir þeim út-
gjöldum, sem þannig eru stofnuð,
með nýjum álögum á þá, sem) taka
þau upp á sig, en íþyngja ekki
framtið landsins með stórkostleg-
um lántökum er koma seinni tíma
mönnurn í' koll.
Ospektir kvenna.
Kvenréttinda konur á Englandi
eru enn ekki af baki dottnar. Þeg-
ar þær gátu ekki náð þeim rétt-
indum, sem þær fóru fram á, hafa
þær snúið við blaðinu og hyggja
nú að hefna sín með ýmiskonar
spellvirkjum er þær mega við
koma. Ráðherrarnir verða eink-
um fyrir ofsóknunum, þótt enginn
sé jafn grátt leikinn og forsætis-
ráðherrann.
Fyrir nokkru var Mr. Asquith
á ferð á Irlandi. Var þá exi kast-
að að vagni hans. Mörgum fleiri
árásurn hefir hann orðið fyrir.
Einu sinni ætlaði “The National
Liberal Club” að halda honum
samsæti. En hætta varð við það,
því að lögreglan hafði komist á
snoðir uim svo margbrotim véla-
brögð, er höfð munau í frammi,
að tvísýnt þótti um, að unt yrði að
verjast þeim öllum. Ekld þorði
Asquith heldur að fara alrfianna-
leið, er hann hélt heimleiðis.
Reynt hafa þessar konur að
kveikja eða láta kveikja í húsi
mentamálaráðgjafans, og tundur-
kúlur hafa fundist í skrifstofum
sumra hinna.
Lögreglan á fult i fangi með að
verja náðherrana fyrir þessum
ófögnuði. Leyni 1 ögjregl uþ j ón um
er dreift um hvar sem þeir fara
og umhverfis bústaði þeirra má
segja að vörður sé haldinn dag og
nótt.
Ótti og uggur hefir gagntekið
.ráðherrana og ættfólk þeirra.
Hvarvetna er ills von. Aldrei
juega þeir um frjálst höfuð
strjúka. Það er augljós leyndar-
dómur, að vélar og illræði bíða
þeirra á hverju strái, Margir
þeirra eru orðnir veiklaðir af ótt-
anum, sem sifelt vofir yfir þeim.
Heimur batnandi fer.
Skiftist Kína?
Uppskeruhorfur.
Enn er frá því að segja, að
blaðið Free Press fékk skeyti frá
199 fréttariturum sínutn í vikul-
byrjun, frá ýmsum stöðum á slétt-
umnn og hafa þeir nálega allir
sörnu sögu að segja, að rigning
hefir komið fullnóg, svo að nú er
mest þörf þurviðris og sólarbakst-
urs. Frost hefir tvívegis '.comið
allvíða, svo áð margir ottuðust
tjón af þeim völdum, með þvi að
hveiti var þá farið að blómstra, en
ekki ber á því að svo stöddu, að
þar af hafi hlotist skaði, þó að svo
geti farið, að hann sýni sig seinna.
þegar farið verður að þreskja.
Haglél hafa komið á 27 stöðum
umfram það er áður er talið, með
mismunandi skaða), og á tíu stöð-
um hefir orðið vart við “Hessian
fly”, en hvergi ryð til muna—“enn
þá”, bæta flestir fréttamenn við.
Lítilsháttar hefir orðið vart við
máðk fcutwormj, helzt í Alberta.
Þvi er nú haldið frain af þeim,
sem ættu að vita hvað þeir segja,
að þó blómstrað hveiti sé mjög
viðkvæmt fyrir ku'ldá, þá þurfi
það ekki að skemmast á vissu stigi
þó það verði fyrir vægu frosti. En
hæpin er sú kenning, með því að
það er oft af vagu frosti, að korn
eru rýr í öxum, þó að stunudm sé
ikent um öðmm ástæðum.
Yfirleitt telst blaðinu svo til
eftir skýrslum þessum, að enn sé
útlit fyrir meðal uppskeru, ef ekki
koma óhöpp fyrir.
Enn er Kina i manna munnurn.
Forsetinn Yuan tók sér nýtt ráða-
neyti, er hið gamla fann ekki náð
fyrir augurn þingsins, en svo fór
að hinir nýju ráðgjafar urðu að
segja af sér af sömu ástæðu. Svo
er að sjá, sem hinb fyrri forseti,
Dr. Sun, vilji hafa Yuan frá völd-
um og komast sjálfur að, og er
talað um, að svo muni fara að
doktorinn ráði fyrir suðurhlut-
anum en Yuan fyrir nyrðri hluta
landsíns. Kínverjar eru dulir og
því erti fréttir af ráðabruggi
þeirra meira getgátur heldúr en
sannar sögur.' Friðáð virðist
landið vera sem stendur, en af
landstjórninni segir fátt, nema
flokkadráttum og þverúð undir
niðri með þeim, sem ráða vilja.
Vel mætti svo fara ennþá, að til
borgara stríðs komi í því landi, ef
sundurlyndi ráðamanna verður
yfirsterkara ást þeirra til ættjarð-
arinnar. 1
Engum, sem lítur yfir heiminn
og gefur sér tima til að íhuga rás
þeirra viðburða, sem nú eru að
gerast um viða veröld getur bland-
ast hugur um, að merkilegir at-
burðir muni vera í nánd. Alstað-
ar er órói. Eins og einstakling-
arnir keppast hver við annan um
að höndla sem mest gæði, eins
keppast þjððirnar hver við aðra
um að skara fram úr. Hvort sem
þessi sókn miðar til góðs eða ills
—við efumst ekki um að hún miði
til góðs — þá veldur hún óróa,
þrotlausum ágangi og stundum
hálfgerðu æði. Lítuni á Austur-
löndin. Eftir mörg hundruð ára
dauðamók hafa þjóðirnar þar
rumskað við ágjöf öldunnar, sem
skolar í burtu gömlu ryki og ó-
heilnæmum sora liðinna alda. Þær
hafa vaknað við vondan draum.
Nú eru þær sem óðast að hrista af
sér fnókið. Japan varð fyrst til
þess. Kína er að opna augun og
það litur út fyrir, að það land
muni eiga fegurri framtíð fyrir
höndum, en nokkurn okkar hefir
um dreymt. í stuttu máli 3 er ekki
öll veröldin að vakna til nýs lífs,
betra og fegurra lifs en þess, sem
við höfumi átt að búa. Ef-
laust verður langt að biða þess, áð
það nái hámarkinu, sém því er ætl-
að ná:, en við getum sætt okkur við
það. að flest tákn timanna benda á
framför.
En við, sem eigum að
að jiessari framför og jiroskast
sjálf, erum ekki nema menn og
konur. Við erum orkusmá og í
mesta máta ófullkomin, og er þess
utan villngjarnt. Þess vegna verð-
um við að gæta að okkur, að við
siglum ekki af leið og líðum skip-
brot. Þess vegna þurfa allir, ekki
að eins Jæir sem fram úr skara, að
atgervi, heldur hver einasti mað-
ur, frá J>eim æðsta til þess lægsta,
að verka á hugarfar annara, bæta
jiað og göfga. Ef allir hefðu jætta
hugfast, þá yrði hvert einasta
heimili iúnan skamms eins og tær
fjallalækur, sem ár og síð og alla
tíð veitir hreinum straumum út í
óhreint fjöruvatnið.
E.
Samningar eru á ferðinni milli
bæjarráðs og stjórnar rafmagns-
félagsins um að nota sameiginlega
vírastaura og vírahólka neðan-
jarðar. Samningamir eru full-
gerðir, en eiga eftir að öðlast sam-
þykki bæjarstjórnar.
kola veiði í Eystrasalti og um út-
rýrning á sel er situr j>ar utn Iþx-
inn fyrir hverjum- árkjafti. Næsti
fundur verður haldinn í haust í
K'höfn og þar verður þessu máli
ráðið til lykta.
—A Þýzkalandi hefir fól'kinu
fjölgað stórmikið á síðasta manns-
aldri, er stafar mest af því, að
mannsævin hefir lengst, færri dáiö'
að tiltölu á ári hverju, heldur en
fyrineir. Eftir síðustu manntals-
skýrslum er það komið í ljós, að
fólkinu fjölgar ekki eins mikið nú
einsog áðúr. heldur fæðast stórum
færri börn tiltölulega á ári hverju
nu heldur en áður, J>ó að hjóna-
bcndum fjölgi stórmikið. Þess má
geta. að skattar þyngjast með
hverju ári i hinu J>ýzka ríki, og af-
koman þess vegna erviðari.
—Nýjasta ráð við gigt er það, að
sjóða kartöflur hýðislausar í söltu
vatni og drekka síðan vatnið,
nokkra bolla á dag. Velmetin kona
á Norðurlöndum þykist hafa reynt
]>að með ágætum árangri. Jafn-
framt segir hún að kalkskán í kötl-
um losni við ]>að að sjóða i þeim
kartöflur; það ráð, ef nýtilegt er,
ætti að koma húsmæðrunum vel i
\\ innipeg.
—í Minneota hefir sungið opin-
berlega Miss Sylvia Thorgrímsen;
dóttir séra H. B. Th., og hlotið lof
fyrir. Blaðið i'Minneota Mascot”
flytur dóm um söng hennar eftir
stórblaði í St. Paul, og, er þar láltið
mikið af þvi, hve vel hún kunni að1
beita hljóðunum, og ei.nkum tekið
'mna til þess, hve vel hún hafi sungið
“Solveigs Sang” og önnur lög eftir
Grieg. Jungfrúin er af góðu s-öng-
fólki komin og faðir hennar mun
vera einn bezti söngmaður, sem nú
er uppi með þjóð vorri.
— Formaður járnbrautamála-
dómsins er skipaður Drayton
nokkur, með 15,000 dala árslaun-
um. Hann hefir verið lögmaður
fyrir gróðafélög og járnbrautafé-
lög i Toronto. Um J>essa útnefn-
ingu hafa blöðin alls ekki dæmt,
hvorki með né móti, se-m sann-
gjarnt er, mannsins vegna, að sjá
fyrst hvernig hann reynist í þess-
ari vandamiklu stöðu.
Á annað hundráð , Koreubúar
særi gegn Jöpunum og ráðabrugg
til þess að taka af lífi landstjóra
Japana í Korea. Fangamir ját-
uðu sekt sina þegar þeir vom
hneftir í fangelsi, en tóku þá
játningui aftur seinna mein„ og
tjáðust hafa verið kúgaðir og barð,
ir til þess framburðar. Nálega
allir ]>essir fangar vora kristnir,
og höfðu í sinum fyrsta framburði
kent missionerum Methodista log
Presbytera urn vitorð og upptök
samsærisins. Þann framburð hafa
J>eir nú, sem sagt, tekið aftur.
SILFUR-BRÚÐKAUP
Þann 24. júní síðastliðinn, heim-
sóttu allir bygðarmenn þau hjón-
in Sigurjón Bergvinson og Önnu
Þorkelsdóttur, að Brown P. O.,
Man., og var heimsóknin
heimsókn, og skildu ekkert í hvað)
til stóð. Herra Jón S. Gillis hafði
orð fyrir flokknum og bauð silfur-
brúöhjónunum ásamt tveim son-
um þeirra sein hernia eru, út i
gerð til að minnast þess, að J>ann! samkomuhús bygðarinnar (sem er
dag voru þau búin að búa saman í skamt frá þeirra húsij, og Jægar
fyrirmyndar hjónabandi í 25 ár. Jiangað kom, var byrjað á því að
Menn mæltu sér mót hjá Th. syngja hinn fallega sálm: Hve
Gíslason, og þaðan fór flok'kur-1 gott og fagurt og inndælt er, o. s.
inn heim til áður nefndra hjóna, | frv. Þar næst flutti herra J. S.
og áttu þau enga von á þessari < Gillis snjallt erindi til silfurbrúð-
Ur bænum
Samkvæmt simskeyti frá Höfn
til norska blaðsins “Skandinaven”
er H. Hafstein kosinnj forseti
sameinaðs þings. Ráðherra skift.i
eni ekki fram fárinj, þegar þetta
blað kemur út, með því að sám-
skeyti um það til ritstjórans er ó-
komið, en á því á hann von jafn-
skjótt og þau verða.
Hvaðanæfa.
Olympisku leikirnir.
Þeir eru nú á enda kljáðir eftir
l:,r'gSja vikna hörðustu kepni með-
al flestra þjóða, á hinum prýðilega
leikvelli í hinni fögru hófuðborg
Sviþjóðar. Maraþon skeiðið, sem
talið er höfuðatriða leikja þess-
ara, rann fyrstur i þetta sinn
maður nokkur frá Suður-Afríku,,
McArthur að nefni. Honum
næstur var samlandi lians, sá
fimm hinir næstu sömuleiðis. I
því kapphlaupi voru 75 manns til
að byrja ineð, þar af 12 frá Banda
rikjum; 35 hlupu alla leið, og
meðal þeifra 10 Ameríkumenn.
Þeir fóru svo hart í byrjuninni, að,
]>eir vora komnir að niður'lotuim í
leikslok. McArthur er lögreglu-
þjónn, ákaflega stór og leggja-
langur; hiti var mikill þann dag-
inn, er þeir frá Afríku þoldu bet-
ur en aðrir. Margir duttu niður
máttlausir á hlaupunum, og einn
misti lifið; sá var frá Portúgal.
. Ameríkumenn unnu flesta sigra
á Jæssu leikmóti, Svíar þar næst
og Finnar. Um framkomu Is-
lendinga á þessu leikmóti höfum
vér ekkert séð í blöðunum að svo
stöddu.
—Skipahleðslu menn í London
eru enn ]>á verklausir, og er mikil
hungursneyð sögð þeirra á meðal.
Herlið var sent til að halda þeim
í skefjum um síðustu helgi, með
þvi að stjórnin óttast að þeir
muni svífast einskis, er hungrið
sverfur að' þeim. — I Liverpool
hafa 13 þúsund skipahleðslumenn
lagt niður verk og er skipaferðum
talin stafa hætta af því.
—Suður í Florida varð svertingi
nokkur hamslaus af reiði og gekk
berserksgang. Hann drap fjóra
svarta menn og særði hvítan lög-
regluþjón hættulega, flýði eftir þa>
til kofa síns. FÍann hafði þar nóg
skotvopn og Jx>rði enginn að koma
nærri honum. Það varð ráð lög-
reglunnar að dæla gasolíni sem
næst húsinu og alt umhverfis það
og kVeikja í þangað til negrinn
Jioldi ekki við og stökk út gegn um
bjilið. A því hlaupi var hann skot-
inn til bana.
—Þýzkar skýrslur mjög nýlegar
segja Danmörk langauðiugasta land
i veröldinni að tiltölu við mami-
fjölda. Þar koma 4,000 krónur á
nef 'hvert af sikuldlausri eign. Eng-
land er talið næst með rúmar 2,000
kr., þá Frakkland, Holland og
Belgía; Þýzkaland með meir en
helmingi minni eign á nef hvert
heldur en Holland. Svíaríki ámóta
og Austurríki. Italía cg.Rússland
eru talin fátækust að tiltölu af
löndum Evrópu.
—Samtök hófust fyrir nokkrum
árum meðal vísindamanna þeirra
]>jóða, sem eiga lönd að Eystrasalti,
Jótlands og Englands höfum, til
rannsókna á öllu er lýtur að fiski-
veiðum i nefndum sjó, svo og til
sameiginlegra aðgerðá eftir ráðum
þessara lærðu manna. — Danir
áttu upptökin að þessu og í Khöfn
var fundur haldinn þessa dagana
um þetta málefni og þar fram
lögð skýrsla um flest það er menn
vita um líf sjávar dýra á nefndum
stöðum. Það er í ráði að semja
licig um fiskveiðar i þessum höfum,
er gildi fyrir allar þjóðir er þar
eiga land að, svo og um laxveiði og
Það er nú komið í Ijós hve mik-
ið það kostaði i peningum, að
finna Ameríku; forn skjöl hafa
fundist á Spáni, er segja til þess.
Skip Columbusar kostuðu alls
2.800 dali, kaup Coltimbusar og
skipstjóra Ixans i< f.x> dalir, og
allur ferðakostnaðurinn um 4000
dalir. Hver hásetanna hafði í
kaup $1.25 ttm mánuðinn. Alls
og alls vora útgjöldin 7.600 dalir í
peningum.
Þess var minst í vikulokin í
Paris og Geneva, aði þann 19.
voru 200 ár liöin frá ]>ví að J. J.
Roussean fæddist í hinni síðar-
nefndu borg. I París afhjúpaði
forsetinn veglegt mmnismenki
hans í Pantheon. stóran stöpul úr
hvítum marmara, með mörgum
kvennamyndum á, er eiga að tákna
heimspeki., náttúrana, sannleika
og frægð. Undir þeim stöpli
verða bein hans jörðuð. Hátíða
höldin voru trufluð af konungs
sinnum, J>ó aðeins með hávaða, en
ekki með ofbeldi.
Roussean var frægur maður fyrir
daga stjórnarbyltingarinnar miiklu
á Frakklandi; sumir af forsprökk-
unum í þeirri orrahrið voru læri-
sveinar hans. Kenningar hans
um myndun félagsskipunar eru
vitanlega úreltar og öllum gleymd'-
ar nema þeim sem fást við að rýna
i þankabrot framliðinna, en í sög-
unni geymist nafn hans fyrir það,
að hann var óviljandi riðinn við
)>au stórtíðindi, sem gerðust eftir
hans daga, og lítið voru farin að
fvrnast hundrað árum eftir að'
]>au urðu. Á ýmsum stöðum vora
ræður haldnar um hann i háskól-
um og ritgerðir prentaðar í blöð-
um.
Stúlka var fyrir rétti í Montreal,
ung, lagleg og prúðbúin. Skrifari
réttarins las upp nafn hennar og
sakargift, sem var betl á almanna-
færi, og sagði strax, Jiegar hann'
leit á kærðrt, að þetta gæti vist
ekki verið. Lögregk$>jónninn,
sem hafði tekið hana fasta, og lok-
að hana inn í klefa á lögreglu-
stöðvum, ætlaði varla að þekkja
hana fyrir réttinum, og gat varla
trúað því að það væri sú sama,
sem hann hafði staðið að betl-
sökinni. Hún var þá í tötrum
yzt klæða, gekk hús úr húsi og
sagðist vera ekkja með fjögur
ungbörn. Hún hafði kastað tötr-
unum í fangelsisklefanum og funs-
að sig sem bezt. Hún kannaðist
við yfirsjón sína, sagðist vera í
skuldum og bað af sér reiði. Henni
var sleft gegn loforði um góða
hegðun framvegis og eftirlici um
tíma.
Maður að nafni Gundersen frá
Haugasundi í Noregi var veginn
að morgni til þann 7. Júlí fyrir
utan “The Moose Club” á Market
stræti hér i borginni. Maðurinn
lá milli heims og helju í meir en
viku og var rænulaus allan ]>ann
tima og svo dó hann, að hann fékk
ekki ráð né rænu. Vegandinn var
þá tekinn fastur og verður málið
rannsakað. Hinn vegni var af
góðu fólki kominn í sínu landi og
átti hér góða kunningja meðal
sinna landa.
Það J>ykir nýlunda, að stúlka af
Galicíukyni hefir kært Rínverja
nokkurn hér í bænum um J>að að
liann hafi látið hana eina. Kven-
maðurinn segist hafa gifst honum
fyrir rúmu misseri og heimtar nú
með aðstoð' lögreglunnar, að hann
standi i stöðu sinni sem ektamaki.
Kínapiltur þessi var tekinn fastur
t gær, svo að málið er enn ódæmt.
Sigurjón Bergvinsson og Anna Þorkelsdóttir.
hjiónanna fyrir hönd bygðarmanna
og afhenti þeim mjög fallegt silf-
ur te sett, á silfurbakka. Ymsir
fleiri töluðu, og gengu þær tölur
aðallega út á! að votta silfurbrúð-
hjónunum hlýan hug og heillaósk-
ir, og vorti sungnir á milli fal'egir
sálmar eða falleg kvæði.
Að endingu þakkaði (silfurbrúð-
guminn tneð mjög fallegri og vel
hugsaðri ræð'u fyrir það vinarþel,
og, þá virðingu sem hygðarmenn
sýndu ]>eim lijóuum og hina fall-
egu gjöf. Þar næst og að siðustu
var sungið: Hvað er svo glatt, o.
s. frv. Síðan var gengið heim í
hús brúðhjónanna og þar sezt að
rikmannlegum veitingum sein fólk
hafði haft með sér, og að því end-
uðu boðaði dagur komu sina, með
roða á austurloftinu og fóru menn
]>á heim til sín glaðir í huga yfir
því að hafa veitt ]>essum hjónum,
("og um leið sjálfum sér) sem áttu
þaö skilið með makleikum, þvi þau
eru' sönn fyrirmynd í hvivetna.
Eiitn of gcstunmn.
Hver sem veit um núver-1 látið hefir verið, og eingöngu
andi heimili hr. Knúts Jenssonar ! farið fram sér vitrari manna ráð-
matreiðslumanns, geri svo vel að um.
gera afgreiðslu ,Lög|bergs aðvajrt
um það. Maðurinn er norskur
að ætt og átti heima 1 Winnipeg
Beach er síðast fréttist.
Tekjur af sýningunni voru um
70 þústind dala í ár, en um út-
gjöldin eru engar skýrslur komn-
ar enn. Vanalega er nokkur tekju-
halli á sýningunni, sem bórgast úr
bæjarsjóði nú orð.ið.
Bana beið á mánudaginn málaií
er var að vinna á 472 Bannatyne
Ave., Craig að nafni, einn heizti
maðurinn í félagsskap málaranna
hér í borg. frá því máilarafélagið
var stofnað. Hann kom við raf-
magnsvir og féll niður örendur á
samri stundu.
Fyrir 60 þúsund dali var seld
landspilda í Kildónan, sem kend
er við Senator1 Watson. Hún
liggur milli Birds Hill Roa l og
Rauðár ekki langt frá landeign
herra G. Johnsons, er áður rak
verzlun á Northwest Hall.
Mr. og Mrs. Stefán Björnsson
fóru á mánudaginn norður til
Lundar og dvelja þar sér til hress-
ingar um hálfs nlánaðar tíma.
Svo segja kunnugir, að seinustu
vikurnar hafi hvergi verið keypt
eins mikið af lóðunVí borginni og
kringum hana. eins og í C. P. R-
Transcona. I blöðum hér segir,
að herra J. J. Bildfell hafi selt þar
lóðir fyrir 100,000 dollara á fjór-
um vikum. Það telst vafalaust.
Af þeim mönnum, semj eiga að
hafa gát á lapsakvendum í borg-
inni, varð annar fyrir skakkafalli
en hinn liggur veikur. Á meðan
leikur sá fénaður lausum hala. Þó
var ein tekin þessa dagana), sú
laglegasta i hópnm, að sögn blað-
anna, og liklega sú frekasta. Hún
var dæmcl í tveggja ára fangelsis-
vist.
Félag nokkurra helztu borgara
i bæjum þeim sem standa á bökk-
tim Rauðár í Manitobal , Minnes-
ota og Dakota, og hefir fyrir
markmið að vinna að því að gerð
verði skipaleið alla leið að Hud-
sons flóa eftir Rauðá, Winnipeg-
að staðurinn eigi stórmikla fram- ^ vatnj Gg Uelson fljóti, hafði ftind
tið fyrir höndum og að það reyn-1 ný]ega hér i bænum að ráða ráðum
ist sannmælt, sem sagt var opin- ' sintim. Waugh borgarstjóri er
berlega t vor, að þar mundi með formaður félagsins. Ráðgert var
timanum rísa upp Binningham ag bíðja landsstjórnina að láta
“Great Falls Power Company”
heitir félag, sem býðst til að setja
upp talsíma í Winnipeg borg og
keppa við fónakerfi Manitoba-
stjórnar. Eftir itarlega rannsókn
og yfirvegun segist félagið geta
staðið sig við að taka að eins $40
um árið af business mönnum og
$20 leigu af heimilafónum. Leyfi
bæjarstjórnar til þess að reisa
vírastólpa verður líklega veitt.
Illa hefir stjórninni gengið að
græða á fónum hingað til, en ef
]>etta gengttr fram, þá fer fyrst
að kárna fyrir Áma.
Canadalands. Þein sent kaupa,
hafa dæmið fyrir sér. Þegar
Grand Trunk setti smiðjttr sínar
og vagna garð. þar sem nú heitir j málirm áleiðis.
G. T. Transcona, 1 þá ->voru lóðir
þar í litlu verði, en þeiri, semf þá
•keyptu þar lóðir, hata orðið rikir
á fáum árum. Þó ekki settust
aðrir að i C. P. R. Transcona,
heldur en þeir, sem i smiðjum og
görðum' og á skrifstofum félags-
ins vinna, þá mundú lóðir vissu-
lega hækka í verði frá því sem nú
er, af þeirri ástæðu einni saman.
En auk þess er þaið víst, að verk-
smiðjur verða fluttar þangað, sem
nú þykir of þröngt um sig inni í
rannsaka og mœla farveg Rauðár
suður að takmörkum, og ýmislegt
gleira var náðgert til að hrinda
Mrs. Young býr á 467 McDer-
mott Aventte. Hana vantaði mjólk
eitt kveld, svo að hún lét tóma
mjólkurflösku út fyrir dyr hjá sér
og 5 dala seðil i flöskustútinn, með
því að hún hafði þá ekkert smærra.
Um dagtnálabilið daginn eftir fór
hún að gá að flöskunni; hún stóð
óhreyfð við dyrastafinn, en eng-
in mjólk og engir peningar. Nú
uppástendur frúinl, að lögreglan
hafi hendur í hári þjófsins.
Smith á lífi?
Frá Baltimore kemur sú saga,
að Peter Pryall nokkur þykist
hafa hitt Cmith skipstjóra, þann
er stýrði Titanic á slysaferð
þess skips. Þeir voru nákunnugir
og félagar á sama skipi i 17 ár.
Pryal segist hafa séð hann á götu
og heilsað upp á hann.| Hann tók
miðbænum, stórar komhlöður risa : unc]jr kveðjuna, kvaöst hafa ann-
þar upp og margsháttar atvinna!,: 0g bað hann ekki tef ja sig.
sem dregur að fólkið. En þar sem
fólk sezt að, þar hækka lóöir í
verði.
Pryal gekk á eftir eða með honum
til járnbrautarstöðva; þar keypti
Smith farbréf til Washington;
1 hann kom auga á hinn um leið og
Séra Hans B. Thorgrímsen frá1 ha,in steiS UPP 1 vagninn og
Mountain, er fluttur til 223 4th kvaddi hann með þessum orðum:
\ve., Grand Forks, N. D. "Vert.ll ^11’ laxma«ur- þangað til
við sjáumst aftur.” Pryal þessi
er sagður ráðvendnismaður og ó-
skreytinn. Frændi Smiths skip-
stjóra er búsettur í Baltimore, en
ekki gátu blaðamenn náð í hafin
til viðtals. Þessi saga er hér
sögð eins og hún stendur í blöð-
um, en engin álbyrgð tekin á
—Sagður er liggja fyrir dauð-
anum keisarinn i Japan. Hann er
maður hniginn að aldri og farinn
að kröftum með fram fyrir ógæti-
lcgt líferni að sögn. Svo er nú
sagt, að hann hafi átt miklu núnni
þátt í stjóm landsins heldur en | henni.
\
1