Lögberg - 10.04.1913, Qupperneq 1
Þegar nota þarf
LUMBER
Þá RE.YNIÐ
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
WINNIPBG, MAN.
Furu Hurdir, Furu Finish
Vér höfum birgðirnar
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
WINMPEO, MAN.
26. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 10. APRÍL 1913
NÚMER M
Fyrirhugað stórvirki.
Svo er sagt, aö C. P. R. félag-
iS ætli aö láta gera göng gegnum
þann rana Klettafjalla, ;sem aö-
skilur Alberta fvlki og British
Columbia, þarsem heitir Kicking
Horse skarö. Þau jarögöng veröa
lengst allra í heimi, rúmar 16 míl-
ur. Þar er 5300 fet ynr sjávar-
mál, sem þau eiga aö Hggja i
gegnum fjallið; sjö ár verður ver-
iö að grafa þau, og er kostnaður-
inn áætlaður um 14 miljónir dala.
Til samanburöar er þess getið, aö
Simplon göngin, er liggja gegnum
Alpafjöllin, milli Svisslanda og
ítaliu eru 12,3 mílur á lengd og
kostuðu hálfa 16 miljón dala.
St. Gotthards göngin, sem og
liggja gegnum Alpafjöllin milli
Svisslands og ítalíu, kostuðu hálfa
tólftu miljón og eru 9,3 mílur á
lengd.
C. P. R. félagið hefir hingað til
verið eitt um hituna um flutning
héðan úr landi vestur að Strönd.
Nú er Grand Trunk brautin nærri
komin alla leið og C. N. R. félag-
ið er að berjast við að komast
þangaö lika. Þá verður mikilli
samkepni að mæta, og C. P. R. fé-
lagið er að búa sig undir að halda
sínu. Viðskifti aukast árlega
vestanlands, og minka ekki við
þaö, að Panamaskurðurinn verður
opnaður, viðskifti við Asíu fara í
vöxt, og af öllu þessu lætur C. P.
R. hendur standa fram úr ermum
vestanlands, öllu meir en áður.
--------------
Réð sér bana.
Lacombe hét sá illræðismaöur,
er eitt kveld kom til ritstjóra
nokkurs í Paris, og hélt honum og
konu hans i dauðans angist heila
nótt og skaut ritstjórann að því
búnu, en konan hélt lífi. Mörg
önnur morð hafði hann framið,
og kallaði lögreglan hann háska-
lesasta glæpamann, er til væri i
Evrópú. Hann slapp jafnan úr
greipum hennar með einhverju
móti, þartil fyrir nokkrum dögum
að hann þektist af merki nokkru,
er hann hafði látið gera með lit-
um á hönd sina. Var hann þá
tekinn, þó vopnaður væri með
byssum og sprengikúlum, og sett-
ur í fangelsi. Daginn eftir var
hann horfinn 'með einhverju ó-
skiljanlegu móti. Hann fanst eftir
langa leit bak við reykháf á þaki
fangelsisins, en er að því var kom-
ið, að hann væri gripinn, þá gekk
hann fram á þakbrún og kastaði
sér fram af, einsog þegar sundmað-
ur stingur sér. Fallíð var marg-
ar mannhæðir og grjót undir,'"og
muldist hvert bein í honum. þegar
niður kom og lauk svo æfi hans.
Dæmd í betrunarhús.
Mrs. Pankhurst, sú er lengi
hefir verið helzti forsprakki þeirra
kvenna á Englandi, sem sækja
eftir kosningarétti kvenna með of-
beldi og hverjum ráðum, sem þeim
kemur í hug, hefir verið dæmd til
þriggja ára betrunarhúss vinnu
fyrir að eggja til upphlaupa og
hryðjuverka með dynamite og
púður sprengingum. Kona þessi
hélt ræðu fyrir réttinum og lýsti
því, að hún mundi ekki una dóm-
inum, heldur neita að eta mat og
drekka drykk og komast þannig
úr fangelsi, dauð eða lifandi. —
Þegar dómarinn kvað upp dóm
sinn, gerðu vinir hennar, er við-
staddir voru réttarhöldin, óp mik-
ið að dómaranum og varð lögregl-
an að sefa uppistand þeirra. Þessi
dómur er hinn strangasti, sem
þessar óróakonur hafa verið dæmd-
ar í til þessa og sýnir, að álit al-
mennings á Englandi hefir snúizt
gegn þeim í seinni tíð, enda hefir
ráðaneytið sætt ákúrutfi fyrir það,
lye mikil línkind þessu kvenfólki
hefir verið sýnd. Allmörg hús
hafa verið sprengd í loft upp ný-
lega, einkum járnbrautar stöðvar,
og er kvenfrelsis konum kent um
þau ódæði.
— Nýlega er dáin kona, sem
fæddist fyrir 82 árum á þeim stað,
þarsem Chicago stendur nú, og
var hið fyrsta barn er fæddist af
hvítum foreldrum á þeim slóðum.
Braut til strandar.
Þann 14. September 1914 segir
varaforseti Grand Trunk Pacific
brautarinnar, að hin fyrsta lest
muni leggja af stað frá Winnipeg
áleiðis til Prince Rupert. Hann er
nýkominn úr fimm vikna leiðangri
eftir brautum félagsins vestan-
lands og segir svo, að austurendi
aðalbrautarinnar verði lengdur1
um 162 mílur í sumar, vestur að
Prince George, og verði á þeim
.spotta bygðar tvær brautir yfir
Fraser elfu. Sá brautarstúfur
sem liggur austur á við frá Prince
Rupert, verður lengdur í sumar
um 140 mílur austur á við. Þeg-
ar lokið er við stórar brýr á þeim
spöl, sem verður i þessum mánuði,
segir hann aö hálfönnur míla verði
fullgerð á dag af þeim 115 mílum,
sem eftir eru. Bilið á milli braut-
arendanna er nú sem stendur 524
mílur og var það trú manna í
fyrra, að þeir mundu verða sam-
tengdir í haust. Af því .verður þó
ekki, lieldur á að geyma 222 mílur
til næsta sumars, og verður þá
þessu stórvirki lokið. — Hvergi
verða nýjar aukabrautir bygðar af
G. T. P. í sumar, en stálteinar
verða settir á nokkrar, svo sem á
þá sem liggur í útnorður frá
Moose Jaw og á Battleford braut-
ina.
Róstugt í Rifi.
í illindanna heimkynni, Mexico,
er ennþá barizt af kappi, með
uokkrum manndrápum á báöar
hliðar. Uppreisnar höfðinginn
Orozco gekk í lið með hinni' nýju
stjórn, og var settur til höfuðs,
þeim uppreisnar flokk, sem kend-
ur er við höfðingja sinn Zapata,
en misti lífið í þeirri viðureign.
Carranza heitir einn fylkisstjóri i
Mexico, er sér hefir látið gefa
forseta nafn, en sá, er hinir fyrri
uppreisnarmenn höfðu veitt þá
virðing, og Gomez hét, er flúinn
úr landi, en hans liðar hafa slegist
i lið með Huerta. Fregnir eru
miður áreiðanlegar sunnan að,
með því að fáar fréttir komast úr
landi, nema þær sem Huerta
stjórnin gefur leyfi til. Harka
hinnar nýju stjórnar vekur litið
umtal í útlöndum, en Mexico
menn eru grimd og kúgun vaííir,
og kippa sér ckki upp við þá hluti.
Svo er að sjá, sem flestum komi
saman um, að Madero hafi viljað
vel, en skort þrek til þess aö
leika svo við óvini sína, að þeir
yrðu meinlausir. í Mexico merk-
ir það, að hann hafi skort g.imd,
og er það víst sannmæli. að hinn
myrti forseti var mildur óvinum
sínum.
Hvaðanæfa.
— í bænum Weyburn í Saskat-
chewan hefir stórfélagiö Inter-
national Harvester Co. sett aðal-
stöð sína fyrir allan suðurhluta
Saskatchewan fylkis, og eykur
stööugt tölu starfsmanna sinna i
þessum bæ, og má af því ráða, að
þessi staður á góða framtíð í vænd-
um.
— Alfons Spánarkonungur féll
af hestbaki einn daginn, er hann
var að leikjum, og lá rænulaus
lengi á eftir. Konungur er sagð-
ur veill fyrir brjósti, en er leikinn
mjög og fjörmikill.
— Fyrirliði í her Rússa. sá er
stjórnaði liði nokkru i Varsjövu á
Póllandi, féll tjl jarðar með flugvél
sinni úr háa lofti og misti lífið.
Bréf fanst eftir hann, þarsem hann
sagðist ætla að taka sig af lífi með
því að stöðva vélina og láta sig
detta.
Brennuvargurinn James Dodds,
sem játaði á sig að hafa kveikt
meir en 200 brennur í Winnipeg,
þar á meðal suma þá stærstu
bruna, sem hér hafa orðið, svo
sem Radfórd-Wright brunann,
þarsem 7 manns mistu lxfið, var
dæmdur í 15 ára hegningarhúss
vist. Sagt er, að læknar áliti
hann ekki með öllum mjalla og
þvi sé ekki höfðað mál á hendur
hpnum fyrir manndráþ, útaf því
liftjóni er orsakast hefir af þeim
brennum er hann hefir kveikt.
— Allsherjar fundur jarðfræö-
ínga af öllum löndum, veröur
haldinn í Canada í ár. Montreal
búar eru þegar farnir aö undirbúa
viötökurnar.
— Stjórnin í Ontario hefir 'lýst
því, aö lög skuli setja í fylkinu um
það, að banna sinnisveiku fólki að
giftast, svo og þeim sem drykk-
feldir eru.
— Ottawa stjórn hefir tilkynt,
aö hún muni bera upp lagafrum-
varp á þingi um að flytja böggla
með jjóstum í Canada. Það er
kominn tími til þess, að lands-
menn komizt undan einokun hinna
auöugu Express félaga.
— Flotastjórn Þjóðverja hefir
gert ráð fyrir loftskipa flota, er
kosta skal i2þí miljón dala, en sú
upphæð kemur til útgjalda á sjö
næstu árum. Þetta er aukabiti í
ofanálag á þær 25 miljónir sem
varið er til loftherskipa í ár.
— Franskur flugmaöur flaug
nýlega frá Rheims til Tournay
með þeim mesta hraða er menn
vita, 114 mílur á klukkustund. Um
sama leyti flaug annar frá Paris
til Lvons, 318 mílur, en hraðinn
var yfir 93 mílur á klukkustund.
Tollaniðurfærsla
Bandaríkjum.
Frumvarp BandartKja stjórnar
var gert ujjpskátt eftir nelgina, og
þykir mikils um það vert. Sam-
kvæmt því skulu flestar nauðsynja
vörur látnar álögulausar, svo sem
matvæti og fatnaður, tollar hækk-
aðir á munaðarvörum, þeim helzt
er ríka fólkið notar, og tekjuskatt-
ur lagður á alla landsmenn, er
hafa meir í kaup en 4000 dali á
ári. Þetta er aðalstefna frum-
varpsins. En ýmsum undantekn-
ingum og skilyrðum eru þó þessi
fyrirmæli bundin, er nu skal greina
nokkuð gjör.
Innflutningstollur á sykri lækk-
ar strax um fjórða part, en skal
afnumin meö öllu eftir þrjú ár.
Óunnin ull skal vera álögulaus
með öllu, etr á ullarvarningi lækk-
ar tollurinn mikið. Þetta kann að
hafa nokkra þýðingu fyrir Island,
með því að mikið af ull þaðan
flyzt til Bandaríkja. Fyrir utan
ullina eru þessar vörur látnar tolla-
lausar: Ket, mjölmatur, skófatn-
aður, trjáviður, kol, aktýgi og
söölaleður, járnmálmur, mjólk og
rjórni. kartöflur, salt. svin maís,
pokastrigi, jarðyrkju verkfæri,
garfað leður, viður í pappír, biblí-
ur, prentpappír sem kostar ekki
meir en hálft þriðja cent hvert
pund, ritsauma- og stílsetningar
vélar, peningaskúffur, stálteinar,
girðingavír, naglar;, gjarðajárn,
fiskur, brennisteinn, sódi og sútun-
efni, ediks og brennisteins
sýra, smiði itr tré, svo sem sköpt,
borö, hjólnafir, stólpar, lath,
tunnustafir og þaksjtónn.
Á þessar óhófs vörur eru tollar
lagðir; demantar, slipaðir og ó-
slipaðir, og aðrir gimsteinar, loð-
skinn, koltjöru efni, sem ilmvötn
eru búin til úr og margt annað af
sarna tagi og ýmislegt sem brúkað
er í mat, til að gera hann munn-
tamari.
Á fjöldamörgurp varningi, sem
mikið er brúkaður, eru tollar
færðir niður, þar á meðal eru
nautgripir og egg, og nemur sú
línun meir en helming, ennfremur
hnifar og skæri, húsbúnaður, fatn-
aður ýmiskonar úr bómull, bæði
á börn og fullorðna, svo og eld-
spítur, umbúða pappír og bækur.
Niðttrfærslan á flestum þessum
varningi nemur tæpum helming og
á sumum minna.
Unt það. hvern hag Canada
mun hafa af þessu, eru mjög skift-
ar skoðanir, einkum að því er
Vesturlandið snertir. Tollar eru
mikið linaðir á ýmsum vörum, sem
hér er mikið selt af, og skulu
nokkrar taldar:
Af barley’mált var tollurinn 45
cent, en verður samkvæmt frum-
varpi stjórnarinnar, aðeins 25
cent ,á hvert bushel. Á buckwheat
er hann færður úr 15C,, niður t
10 cent af busheli. Á höfrum úr 15
centum niður i 10 cent á bushelið.
A hveiti úr 25 centum niður
í 10 cent. Á smjöri úr 6
cents, niður í 3 cent. A osti úr 6
centum niður í 20 per cent af and-
virði. A eggjum frá 5 centum
niður í 2 cent, tylftin. Á baun-
um úr 45 centum niður í 25 cent
bushelið. A kálmeti úr 25 centum
niður í 15 jter cent. A ávöxtum úr
25 centum niður í 10 cent bush.
A nautgripum úr 27 per cent, nið-
ur i 10 per cent. Á kindum úr 16,
47 per cent niður í 10 per cent.
En svínaket og nauta er látið
álögulaust. Á óunnu flaxi er toll-
urinn færður niður í 20 cent á 56
punda busheli.
Stefnan í þéssu frumvarpi er
miðuð við nauðsyn og þarfir þeirra
sem vörurnar þurfa að brúka, en
það er vitanlega allur almenning-
ur i Bandaríkjum. Því er sögð
mótstaða vís frá bændum í norð-
urhluta landsins, og einkum frá
kornmylnu eigendum. Verksmiðju-
menn og auðfélög víðsvegar um
land eru og sögð standa fast í
móti þessum breytingum. Því er
það margra spá, að Jrumvarpið
muni taka stórmiklum breyting-
um áður en lýkur, með því að
auðfélögin, þó að minni hlutinn
fylgi þeim á þingi, eigi mörg ítök
og ráð undir rifi hverju,, er þau
vilja léttan á leggja.
Sá böggull fylgir skammrifi, að
niðurfærsla tollanna nær í sumum
tilfellum aðeins til þess varnings,
sem kemur frá þeim löndum, er
ivilnun hafa veitt, eða veita kunna
Bandaríkjum. Fyrir því notast
voru landi hvergi nærri eins vel
að þessari linun á tollabandinu,
eins og verið hefði, ef reciprocíty
hefði komizt á. En nú er þó talin
bót i máli, að líklegt sé, að stjórnin
í Ottawa, þó mjög sé hún elsk að
tollunum, muni færa niður eða af-
nema þá tolla hér i landi er
hnekkja mest væntanlegum hagn-
aði hérlandsmanna af þessari nið-
urfærslu. — Hveitikaupmenn hér
í borg láta svo sem tlítill hagnaður
sé liveitibændum .æntanlegur, þó
að hveititollurinn hafi verið færð-
ur niður, en aðrir halda því fram,
að bændum sé af því vís hagnaður,
og muni bújarðir í sveitum þegar
hækka í verði, ef frumvarp þetta
verður að lögum.
þangað. llúsið var vátrygt. En
skaði samt í bráð talsverður.
Félagslíf fremur dauft hér.
Helzt að' unga fólkið lyftir sér upp
til að dansa.
Um lækkun á Manitobavatni
höfum við það eitt heyrt, að
stjórnin hafi sett á fjárhagsáætlun
sína upphæð, til að borga verk-
fræðing fyrir að skoða og mæla
skipaskurðarleið suður úr vatninu
frá Delta til Portage la Prairie,
og í Assineboine ána. Er það því
liklegt að það eitt verði gjört í
málinu næsta fjárhagsár.
Fléira man eg ei í fréttum að
segja. J. J.
— íbúar í þorpinu Flenrier á
Svisslandi eru mjög skelkaðir.
Fjall afarhátt er fyrir ofan bæinn,
en tindur þess er farinn að síga,
liægt og liægt, að vísu, um átta
þumlunga á klukkustund, en eigi
að síður geta þeir búist við að
hraðinn vaxi, og fjallið hrapi yfir
liá.
Reykjavík 7. Farz.
I fyrradag kl. um 3 siðd. var
íagnús bóndi á Lykkju á Kjalar-
nesi riðandi á heimleið úr Reykja-
vík, og féll aLhesti sínum. Var
jað skamt fyrir utan túnið á Ála-
fossi. Hesturinn hljóp heim að
Álafossi og var þá brugðið við á
honum aftur til baka, og fanst,
Magnús þá örendur við veginn.
Hafði hann áverka á höfði, og
ætla menn að hann iiafi rotast.
Hann var nýskilinn við tvo sveit-
unga sína, sem vóru gangandi og
fóru heim að Mógilsá, og var tal-
að um milli þeirra að þeir biðu
hans þar. Þeir höfðu ekki orðið
neins varir um að hann væri
veikur.
Magnús var nokkuð við aldur.
Hann skilur eftir ekkju og nokk
ur börn, sum uppkomin.
Reykjavík 6. Marz.
Frá Siglunesi.
Siglunes P. O. 21. Marz 1913.
Tíðin er altaf köld og um-
hleypingasöm, og snjóþyngsli mikil
orðin. Vont kvef gengur hér. og
ýmsir orðið mjög veikir af því.
Fiskiveiði er nú alstaöar lokið, og
var með rýrasta móti nær alstaðar,
en verð nokkuð hátt siðari hluta
fiskiveiða tímans. — Býst eg við
að það hafi óþægilegar afleiðing
ar fyrir ýmsa, hvað fiskiveiði
brást nú. — Almennur kvíði hjá
okkur, sem við vatnið búum, yfir
því, að flóð úr vatninu muni verða
til stórbaga næstkomandi sumar,
því flóðið var svo mikið i haust
er leið, að þar mátti engu við bæta.
Gripir hafa verið seldir allmik-
ið í vetur. Hafa þeir keypt. Geir-
finnur Pétursson frá Narrows
(fyrir Mat Hall hjá Westbournej
og Skúli Sigfússon. Verð á grip-
um hér með bezta móti; góðar kýr
50 doll., tveggja ára gripir frá
30—35 doll., og Skúli hefir borg
að fyrir þá alt að 40 doll.; vetr-
ungar frá 17 til 21 doll. —
Það slys vildi til í Birch eyju,
að kviknaði i hinu forna íbúðarhúsi
F rá Islandi.
Leikfélagið lék á laugardags-
kveldið nýtt leikrit eftir Pál skáld
og kennara Jónsson er heitir “A
glapstigum". Varð á eftir allmik-
ill úlfaþytur í bænum, þar sem
mörgum likaði ekki efni leiksins
— en það var andstætt kvenrétt-
indum — en aðrir voru því sinn-
andi og hefir ekki um annað verið
meira talað í borginni síðan.
Telpa á 13. ári, er heima átti á
Möðruvöllum í Hörgárdal, gekk á
farskóla að Skriðulandi. Hún
lagði af stað í björtu veðri, en á
leiðinni skall á hríð og viltist hún.
hanst hún, er uppstytti, á túninu
á Reistará. Var blóðpollur all-
mikill hjá henni og var hún örend.
Ætla menn að hana hafi gripið
ofsahræðsla og hún hlaupið þar til
að æð hefir sprungið í lungunum
og hún dottið niöur yfirkomin af
mæði.
A Mööruvöllum í Hörgárdal féll
fyrir fáum dögum maður ofan af
húsþaki og fótbrotnaði. Hann hét
Davíð Eggertsson, heimamaður
þar.
Lm líkt leyti féll Stefán kenn-
ari af hestbaki og fótbrotnaði
einnig.
Asgeir kaupmaður * Pétursson
hefir nýlega keypt gufuskip er-
lendis, er hann ætlar að láta stunda
hér þorskveiði með línu. Skip-
stjóri er Stefán Jónasson, útskrif-
aður af stýrimannaskólanum í
Rvík í fyrra. Skipið er lagt af
stað hingað, og búist við því eftir
2—3 daga. »
—Vísir.
17 í hóp frá íslandi.
Sigurður Slembir kom á Ing-
ólfi til bæjarins í gær. Hánn fer
til útlanda til þess að undirbúa
stofnan lyfjabúðar í Vestmanna-
eyjum, er hann hefir i hyggju að
reka þar.
í síðustu ferð Ingólfs, 'Faxa-
flóabátsins, suöur (1. þ. m.J bar al
svo til, er hann lá á höfninni í
Gerðum, að þar fylti allan sjó af
þorski umhverfis skipið og náði
torfa sú nær þvi upp í landsteina.
Skipverjar höfðu lítinn tima til að
sinna þorskveiði, enda höfðu ekki
veiðarfæri, en einn eða tveir menn
reyndu veiði á færi. sem þeir út-
bjuggu með öngulræflum, er fund-
ust á skipinu, og náðu þeir á
skammri stundu 34 þorskum. Var
það mestalt * rig-fullorðinn fiskur.
Á föstudagskveldið komu af Is-
landi 17 vesturfarar hingað til
borgarinnar. Fóru frá Reykja-
vík þann 11. Marz. Þetta var í
hópnum;
Guðm. Filippusson, írá Gufu-
nesi, fór heim í vetur. Helgi Jéns-
son, af Álftanesi ættaður, hefir
Munið eftir samkomu kvenfé-
lags Fyrsta lúterska safnaðar á
sumardaginn fyrsta. Gott pró-
gramm. Góðar veitingar.
"Grasafjallið" og Apinn verður
leikið í Goodtemplarahúsinu á
laugardags og mánudagskveldið
kemur. Hvorttveggja skemtunar-
leikir og búist við góðri aðsókn.
Séra H. J. Leó messar í North
Star skólahúsi á sunnudaginn kem-
111 13. þ. m. kl. 11 f. h. Klukkan
3 s. d. flytur hann prédikun á
Lundar.
April hefti hins vinsæla veiði-
manna tímarits, Rod and Gun. er
nýlega út komið og flytur margan
fróðleik um villibráð og veiði-
brögð víðsvegar í Canada.
Herra Sigurður Sigurðsson frá
Mary Hill P. O. var á ferðinni
fyrir helgina og lét vel yfir öllu
í því bygðaragi.
Þann 29. Marz lézt að Lime-
stone í Lincoln bygð i Minnesota,
öldungurinn Vigfús Jósefsson, 83
ára gamall. Hann hafði lengi
verið blindur, maður ráðvandur,
skyldurækinn og allmikill fyrir
sér, segir baðið Minn. Mascot.
Fjórir synir og ein dóttir lifa hann.
Hinn 25. Marz þ. á. gaf séra
Bjarni Thorarinsson saman í
hjónaband þau Aðalstein Jönsson
og ungfrú Margréti Sigurbjörgu
; Helgason, bæöi til heimilis á Wild
Oak. Hjónavígslan fór fram í
samkomuhúsinu Herðibreið og var
þar fjölmenni mikið,, veitingar
ágætar, ræðuhöld og dans að lok-
um.
Allmargir Islendingar hafa í
hyggju að ferðast til Islands i
sumar, og eru ýrrtsir nafnkendir
borgarar vor á meðal tilnefndir.
Herra H. S. Bardal selur nú far-
bréf bæði hina syðri og nyrðri leið,
um New York eða Montreal. og
sá eini af umboðsmönnum Hrv
anna, sem annast peninga býtti
fyrir þá sem kaupa farbréf af
honum.
verið utanlands í 5 ár og lært
skraddara iðn. Tómas Jónsson og
Jónas Guðmundsson, Hallgrimur
Hermannsson, Guðbjörn Guð-
mundsson, Bjarni Guðmundsson,
allir ungir menn úr Reykjavík. Herra G. J. Gooömanson fast-
Teitur Tónsson af Isafirði. Ragn- j eignasali er nýlega kominn heim
Reykjavík. 5. Marz 1913.
Aftakaveður á austan með blind-
hríð geysaði í fyrri nóA hér i bæ og
sjálfsagt um meiri hluta landsins-
Simaslit hafa orðið nokkur. — Hér í
bæ varð eigi annað teljandi tjón af of-
viðrinu en það, að vélarbáturinn Val-
ur sökk á höfninni. Báturinn var eign
Valentínusar Eyjólfssonar o. fl., óvá-
trygður. Reynt verður að ná honum
upp ef hann finst, en ófundinn var
hann í gærkveldi.
Siglfirðingar eru nú að reyna að
koma raflýsing á hjá sér. En verkið
er þeim að ýmsu crviðara, en búist var
við í fyrstu-
Frá Akureyri.
I’. J. Mathews. Bjuggu í þ\í Hér á Akureyri hafa menn mik
fiskimenn hans í vetur, og voru jnn áhuga á að koma á góðri vatns-
að eins tveir eftir er þessi atburö-
ur varð. Það var um næturtíma
að kviknaði í, og urðu þeir ekki
eldsins varir fyr en síðustu forvöð
voru fyrir þá að bjarga lífi sínu
þeir náðu ekki skófatnaði sínum
og urðu að ganga á sokkunum
land, um 10 mílur. 1 húsinu voru
um 200 net, er öll brunnu. Eld^
ábyrgð var á húsinu og netum að
einhverju leyti, en samt mun skað-
inn hafa orðið rnikill. Þetta er
annar eldsvoðinn sem hér hefir
borið að höndum, síðan í fyrra-
vor. I sumar er var, brann til
kaldra kola íbúðarhús Framars J.
Eyfjord póstafgreiðslumanns á
Siglunesi, með öllu sem í húsinu
var, nema fötum þeim er hjónin
og börnin stóðu uppi í. Póstáhöld
brunnu öll, en sú hepni var með,
að nýbúið var að sækja allan póst
Guðmundsson . af Akranesi.
Sigurður Árnason úr Reykjavík.
Loftur Jónsson, bróðir ofannefnds
Helga og skáldsins Guðmundar
Kambans. Þessar stúlkur voru
með: \ra1gerður Þorsteinsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Guðrún
Magnúsdóttir, Sigríður Einars-
dóttir með dóttur ársgamla. Alt
ungt kvenfólk úr Reykjavik.
*
Ur bœnum
aftur úr tveggja mánaða skemti-
ferð vestan frá Kvrrahafi. Kom
* /•
hann við á ýmsum stöðum á
Ströndinni, Vancouvér, Blaine,
Point Roberts, Seattle og San
Francisco. I síðasttaldri borg
eiga' systkini lians tvö heima.
Herra Goodmanson skernti sér
ágætlega á ferðinni og þótti eink-
j um mikið til koma hinnar stóru
og fögni Francisco borgar, sakir
mannvirkja og hrífandi náttúru-
fegurðar þar í grend.
veitu í bænum. Jjón verkfræðing
ur Isleifsson var hér í fyrra að
rannsaka hvernig ' tiltækilegast
væri að koma á vatnsveitu og
áleit hann heppilegast að fá vatn-
ið af Vaðlaheiði og lægi leiðslan
1 yfir “Iveiruna” niðurgrafin. Nú
eru menn þó að hverfa frá því
ráði og hyggja að fá vatnið úr
Glerá og þá um leið raflýsing frá
sömu á.
A sunnudaginn stofnaði hjúkr-
unarfélagið “Hlíf’ til skemtisam-
komu hér í leikhúsinu. Hafði það
meðal annars að bjóða mönnum
söng Geirs vígslubiskups, en hann
hefir ekki sungið hér í háa tíð.
Árangurinn var sá, að húsið varð
troðfullt — komust að um 500
manns — og á anrrað hundrað varð
frá að hverfa.
Á sunnudagsmorguninn var and-
aðist á Alountain N. Dak., Sigrún
Ólafsson, kona séra K. K. Ólafs-
sonar. Hún dó úr lungnabólgu
eftir stutta legu, rúmlega þrítug
að aldri. Hún var dóttir Ólafs
Anderson, sem kaupmaður var í
Minneota, og fyrri konu hans.
Eru af þeim börnum tveir bræður
á lífi, en einn andaðist í fyrra.
Hálfsystkini Sigrúnar heitinnar
eru á lifi syðra, og stjúpa, en faðir
hennar dáinn fyrir nokkrum ár-
um. Fólk hennar alt mesta mann-
kosta fólk og frábærlega vinsælt;
sjálf var hún mesta ágætiskona, og
er hörmuð af öllum, er hana þektu,
en þyngst verður hið sviplega frá-
fall hennar eiginmanninum og
þremur kornungum börnum, sem
hafa svo mikils mist.
Skemdir af vatnsflóðum liafa
orðið töluverðar í Veston hverfi
hér í borginni.
Samkoma prófessors Sveinbj.
Sveinbjörnssonar hér í Goodtempl-
I arahúsinu 4. 1>. m., var vel sótt
og gerður að skemtiskránni hinn
bezti rómur. Prófessorinn spil-
aði þar og söng fyrir fólkið ís-
lenzka þjóðsöngva er hann hafði
sett lög við flesta og þótti áheyr-
endum ánægja á að hlýða. Eink-
anlega hreif “Valagilsá” áheyr-
endurna með sínum tröllaukna ís-
lenzka þunga og fegurð. Söng-
flokkurinn “Geysir” söng nokkur
lög og þótti takast vel að vanda.
Prófessor Sveinbjörnsson hélt
samsöng á Gimli 8. þ. m. og í ráði
er að hann haldi annan í Minneota
á mánudaginn kemur þann 12.
Seint í þessum mánuði býst Svein-
björnsson við að leggja af stað frá
New York til Skotlands og dvelja
þar að heimili sínu í Edinburgh um
hrið, en hefir hug að koma aftur
siðar.
Hinn 28. f. m. voru gefin sam-
an að heimili Runólfs Marteins-
sonar 446 Toronto stræti hér í
bænum, þau Þorvarður Ólafsson
og Guðrún Jónsdóttir. Séra Run-
Verkfall hafa málarar gert hér
í borg, og gengið alt friðsamlega
þangað til á mánudaginn var, að
erjur nokkrar urðu milli verkfalls-
manna og utanfélagsmanna er að
ólfur Marteinsson gaf þau saman., málningu störfuðu á Notre Dame
Brúðguminn er ættaður frá Fossi
á Síðu, en brúðurin frá Eyjar-
hólmi í Mýrdal í Vestur-Skafta-
fellssýslu. Daginn eftir gifting-
una lagði brúðguminn af stað
vestur á Kyrrahafsströncí, einn í
hópi þeirra, sem ætluðu að skoða
Graham eyju. Kona hans varð
eftir hér í bænum fyrst um sinn.
Ave. Ivögreglan varð að skerast
í leikinn og sefaði deiluna fang-
elsunarlaust þó.
Sir Rodmond Roblin stjórnar-
formaður er nýkominn heim úr
skemtiferð sunnan úr rikjum.
Hefir verið tvo mánuði burtu,
og er sagður hinn hraustasti.