Lögberg - 15.05.1913, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAI 1913
1
Spara verðið sitt
á ári hverju
Ef þér hugsiö til aS kaupa rjóma skilvindu og hafiS aSeins
lítið af reiöu peningum þá látiö ekki freistast til aS kaupa eina
af hinum svokölluöu ,,ódýru“ vélum.
Hví skylduö þér borga peningaySar sem þér hafiö unniö yður
inn meö súrum sveita, fyrir ódýra og einkis
nýta vél, þegar þér getiö keypt hina traustu
De Laval meö svo vægum og sanngjörnum
kjörum
að hún meira en sparar verðiö sitt
meðan þér eruð að borea fyrir haiia
Þegar þér kaupiö De Laval þá megiö
þér treysta því, aö sú vinda endist minsta
kosti í tuttugu ár, en þann tíma sparar hún
yöur alt sem mögulegt er og margborgar sig.
Ef þér kaupiö svokallaöa , ,ódýra“ vindu,
þá verðið þér aö borga fyrirfram í peningum og eiga síöan á
hœttu aö hún verði ónýt eftir eitt eöa tvö ár, . fyrir utan allan
þann rjóma, sem hún ódrýgir meöan hún er í brúki.
Fleiri De Laval skilvindur eru í brúki, heldur en nokkur önn-
ur tegund. Þaö er ekki af tilviljun. Látið ekki bregðast, aö
hitta nœsta De Laval umboösmannog SJÁ og REYN-A De Laval
áður en þér kaupiö skilvindu.
Nýja De Laval mjólkurbókin 72 bls. hefir inni að halda ummæli fróðustu mjólkurfræðinRa. er
hverjum nauðsynleg. Send ókeypis, nefnið Lögberg á nafn. Hin nýja vöruskrá fyrir 1913 fæst
einnig með því að skrifa næstu skrifstofu,
DE LAVAL DAIRY SUPPLY CO.. Ltd
MONTREAL PETERBORO WINNIPEC WANGOUVER
Alþýðuvísur,
Passmn.
Mál vár höfðað gegn Sölva
Helgasyni, fyrir aS hafa búið til
fölsk vegabréf í nafni ýmsra em-
bættismanna. Hinn ákærði, sem
var fæddur 1820, játaöi aö hann
hefði búið til vegabréf nokkurt,
er fram kom undir málsókninni
með nafninu F. Ch. Valsnöe, undir
fátti það að vera Balsnöe, þáver-
andi sýslumaðiu' í Norðurmúla-
sýslu) og klínt á það sýslu-signet-
inu. Þetta alt gerði hann til þess
að geta flakkað, og fengið betri
viðtökur þar sem hann kæmi á
ferðinni. . Hann kallar sig því í
vegabréfinu “herra silfur- og gull-
smið, málara og hárskera m. m.,
Sölva Helgason Guðmundsen”, og
er þetta vegabréf svolátandi:
“Sýslumaðurinn yfir Norður-
múla-sýslu gjörir vitanlegt; að
lierra silíur- og gyllsmiöui', mál-
ari og hárskerari m. m., Sölvi
Helgason Guðmundsen, óskar í
dag af mér reisupassa frá Nor5-
urmúla-sýslu yfir aoistur og suður
og norðurf jórðunga Islands til
ýmislégra þarflegra erinda. Með-
fram öðrum hans erindum, ætlar
hann að setja sig niður i einhverri
sýslu á þessari ferð sem annar
handverkmsaður, hver að er , þó
flestum haridverksmönnum meiri,
og betur að sér til sálar og líkama;
og er hann fyrir laurigu búinn að
gjöra sig nafnfrægan í norður og
austurf jóröungum landsins með
sínum franiúrskarandi gáfum á
flestum smíðum, og á alla málma,
klæði og tré; líka fyrir uppáfinn-
ingar og ýmsar fróðlegar og hug-
vitsfullar kunstir, en þó mest fyrir
iðni, kapp, minni, ástundan, sálar-
flug ,skapandi ímyndunarafl og
kraft, bæði smekk, tilfinning -og
fegurð í öllum bókmentum og vís-
indagreinum, lika svo fyrir karl-
rnensku, krafta og glímur, fjör og
fjmleik, gáng og hörku, sund og
handahlaup. Með sundinu hefir
WINDSOR
SMJER 3j\LX
Er það ódýrasta sem
þér getið notað
ekki aðeins af þvi að það er hrein-
asta og bezta salt til að salta smjerið
Heldur líka af því, að það er drýgra,
mikið drýgra helduren nokkuð ann-
að salt, sem hægt er að fá.
Stóru smjerbúin munu segja yður
þetta—og sýna yður og sanna með
tilraunum.
Búnaðarskólarnir sýna þetta dag-
lega.
Hver bóndi og smjerbúamaður —
sem fá gott verð fyrir smjör sitt—
nota Windsor smjersalt.
Það er hreint—gerir smjerið fall-
egt—verkar fljótt—og er ódýrast
þegar öllu er á botninn hvolft. Reyn-
ið það sjálfir.
hann bjargað, að öllu samantöldu
18 manns, er fallið hafa í ár, vötn
éstraung og lygti) og sjó. Á
handahlaupum hefir hann verið
reyndur vlð færustu hesta, bæði
nyrðra og eystra, og hefir hann
ýað frásögn annara en hans sjálfsý
borið langt af. Margar eru hans
íþróttir, fleiri og meiri, þó ekki sé
hér upptaldar, og mætti þó til-
nefna nokkrar, sem hanm skarar
fram úr öðrum í, sem eru: allar
listir hér að ofan taldar, einnig
frábær ráðvendni og stilling, góð-
menska og lítillæti, hógværð og
hreinskilni, greiði og gjafmildi og
fl. Fyrir þessar dygðir og listir,
sem hann er útbúinn, og sem hann
sýnir jafnt öllum, af öllum stétt-
um, þá er hann elskaður af hverj-
um manni, i hverri röð, sem 'er,
sem verðugt er. U
Þessi passi gildir frá 1. Ágúst-
mánaðár 1843 til þess 30. Júníus-
mánaðar 1844, handa herra gull-
smið, málara og liárskera S. H.
Guömundsen, sem reisupassi, en að
öllu sem fullkominji sýslupassi, ef :
hann setur sig niður í einhverri
sýslu, eins og hér er getið um að
framan.
Þessi passi gildir fyrir herra
Guðmifndsen héðan frá Norður-
múlasýslu vfir allan þann part
landsins, sem hér er að framan
skrifaður ýþótt enginn embættis-
maður teikni á hann) heim til
Noröurtnúlasýslu aftur, ef hann
setur sig ekki niður í einhverri
sýslu á ferðintii, eins og hans
áform er, sem fyr et sagt hér að
framan.
Þessi passi gjörist gildandi fyrir
herra silfur- og gullsmið, m.ilara
og hárskera, Sölva Helgason Guð-
mundsen, til að fara svo hægt og
hart um landið, sem honum þókn-
ast á þessu timabili, sem hér er
fyr frá sagt á passanum, því hann
er í þeim erindum, er liann verður
að hafa hæga ferð, en> það er við
náttúrufræði, að skoða grös og
steina, málma og svo frv. En að
vetrinum ætlar hann að skoða,
hvernig veður haga sér til í hverju
héraði á þeim parti landsins, sem
hann fer um (eða reisir umj; cg
þ^rf hann að halda niiklar skriftir
á öllum þessum tima, bæði dag-
bækur, veðrabækttr og lýsingar-
bækur af ýmsum pörtum landsins,
líka teikningar af ýmsum hlutum,
s. s. fossum, hverum, fjöllum,
jöklum, elfum, ám, brunahraun-
ttm, gjám, stöðum, fjörðum, eyj-
um, draungutn, standbjörgum,
eyðisöndum, öræfum, skógum, döl-
um, giljum, grafnitigum, bygðurri,
bæjum, fiskiverum, höndlunar-
stöðum, bygðarlögum, Þúnaðarhátt-
um og svo mörgu og mörgu fleira,
sem ekki verður hér upptalið, sem
hannætlar að skoða og sjá og um
að skrifa og sumt upp að teikna,
alt á sinn kostnað m. fl.
Það er mín ósk og þénustu-
samleg tilmæli til allra, sem marg-
ttefudan lierra gullsmið m. m. S.
H. Guðmundsen fyrir hitta, að þér
látið hann passéra fritt og lið-
sinnið, hjálpið og lánið honum það
sem hann með þurfa kann til
ferðarinnar, því það er óhætt fyrir
hvern mann, að hjálpa honum og
lána, ef hann þess með þuría
kann, þótt hann fjarlægist þann,
er kynni lána honum peninga og
annað er hann kynni með þurfa,
sjá hans vitnisburð hér að framan.
Passinn þessi gildir, þó ekki sé
um það getið hér að frarnan í pass-
anum, yfir allan Vestfirðinga-
fjórðung, ef herra Guðmundsen á
þangað erindi eða vill þar eitthvað
skoða, viðkomandi náttúrufræð-
inni, eða ef hann vill þar setja sig
niður sem handverksmaður í ein-
hverri sýslu þar. Samt gildir ekki
þessi passi, hvorki þar né i hinum
fjórðungum landsins um lengra
tímabil, en hér er getiö um að
framan, nefnilega frá r. Ágúst-
mánaðar 1843 til þess 30. Júníus-
mánaðar 1844 sem reisupassi, en
að öðru leyti sepi sýslupassi, hvar
sem ltann setur sig niður í hverj-
utn fjórðungi landsins, og þarf
hann ekki sýslupassa héðan frá
'Norðurmúlasýslu annars en þenna.
Norðurmúlasýslu skrifstofu ista
Agústm. 1843
F. Ch. Valsnöe.
fNý Félagsrit, níunda árg. 1849J.
, Passavísur
nm Sölva Helgason. Eg man þær
ekki allar, en byrjunin mun vera
svona:
Víða mengið svinnan segg
svo sem þengil metur;
síðan drengur drógst á legg
druknað enginn getur.
Frár á sundi fleygir brands
fjötrum bundinn kífsins,
bjargað hundrað hefir manns
hvals á grund til lífsins.
Min er skylda að miðla höld .
er mætri af snild fram gengtt'r
passa. er gildir yfir öld
og, ef hann vildi, lengur.
Rekks ef ýðil reikningar
réna er víða nutum,
tekur fríðar teikningar
af téðum síðar hlutum;
Jöklum, hyljum, jarðföllum,
éljum, byljum, svipum,
skógum, giljum, grafningum,
grund og þiljuskipum.
Matar grjónum, geldingum,
gestum, ljórium, hundum,
herrum, dónum, herkóngum
og hvirfil grjóna kundurn.
Fiska bifurs fénað lands,
fugla þrifinn skara
upp að skrifa er áform ltans
ef hann lifir bara.
Hann mælt vel gat héðins snót
ltrein af 'vé’l og táli,
fannir, mela, fjöll og grjót'
fímt í pela máli.
Lætur málverk mönnum falt
mætu'r á'lfur glira,
kostar sjálfur upp á alt,
anri'áö hálfu meira.
Ef að beimur auðs með söfn
ægis teymir kassann
suður í heim um hvita dröfn
( hann skal geyrria passann.
G rímsnesingur.
Eg sendi vður hér tneð.fáeinar
vísur, fyrst af manni nokkrum sem
Tfans hét, er ætlaði að gera sig
heimakominn i lofti einu, sem
ferðafólk svaf í, bæði karlar og
konur; en af þeirri ástæðu, að
maðurinn var ekki áem bezt kynt-
ur, var honum hrundið úr stigan-
um, ekki sem mjúklegast, ofan á
;gólf; komu þá upp eftirfarandi
vísur:
Hans um grundu hægt. sig bar
hugði sprundin finna,
en mannhundi illum þar
ofan úr hrundið stiga var.
Augun néri ygldur hér I
upp þá stóð af falli,
baugaverinn blóta fer
burtu snéri og fiytti sér.
Þó að hrjóti hreysti svör
honum enginn láir
málmabrjót á minni vör
mun sú ljóta §mánar för.
Maður er nefndur Þorsteinn,
sem var álitinn æði kvenhollur, og
var ekki að ástæðulausu, því
tvær unnustur átti hann í einu,
önnur hét Sigurbjörg en hin Sig-
riður; unni hann báðum hugástum
og gladdi þær þegar hann kom úr
kaupstað; einu sinni var um það
kveöin þessi vísa:
Er það bót í allri nauð
um það kveð eg stöku
Sigurbjörg fekk sætabrauð
en Sigga hveitiköku.
Nú komst það upp að hann liélt
meir af Sigurbjörgu; þá var kveð-
ið;
Sigurbjörg þann sýnir vott
sérdeilis í leyni,
fínextrakt, og fleira gott
fær hún hjá Þorsteini.
Magntís Johnson.
Af því það er svo sjaldan sem
eg ónáða blað þitt, þá vona eg að
þú takir eftirfylgjandi leiðrétt-
ingar eða öllu heldur skýringar.
Það er oft vaðinn reykur í Lög-
bergi viðvíkjandi þessum alþýðu-
vísum og margar prentaðar oft og
eignaðar þessum og hinum eða þá
engum. Nú í þessu siðasta blaði,
gefið út 1. Maí, eru pípuvísur, en
eg kannast við fyrstu vísuna er
þar er skipað sæti; hún á ekkert
meira skiliö við pípu, en sólin við
svartnættið, Vísan byrjar svona:
“Þegar sól á fjölnirs frú fegrar
jóladaga", o. s. frv. Séra Hinrik
Hinriksson er eitt sinn var prest-
ur að Bergstöðum í Svartárdal,
orkti vísu þessa stuttu áður en
hann frétti lát Baldvins bróður
síns, er skar sig á h’áls á Jólanótt-
ina að Þverá í Hallárdal.
Það voru fyrir skömmu “Gránu
vísur” í Lögbergi er ekki var
kunnugt um höfund að; fyrsta
vísan byrjar svo: “Nú er Grána
fallin fríð” o. s. frv. Þetta Gránu
torrek er óefað eftir séra Pál, er
eitt sinn var prestur að Undirfelli
í Vatnsdal; tvær eru vísurnar lítiö
afbakaðar, það er ekki mikið, en
]>aö fer ver. í annari stendur:
“feta vill að húsum heim” rétt er
orðaö: “feta nam til húsa heim”;
í hinni stendur “í jarö skoru”, en
átti að vera “í jarð sprungu furðu
fast”.
R. J. Davidson.
_________ >
Gáta.
Fór eg eitt sinn á fiskum viða
hafði léttgöngu af harðri storms
verju
með stórviðris fönnum og sterkum
ölböndum
sem hentuðu bezt á hörðum vatns
klæðum
henti eg lásakraftspor úr húsi mel-
rakka ' .
því sízt vildi eg mæta sauðar
. kroppnum
lagði það mér liðsemd drjúga
því nýbæru mjólkin var mér nógu
mikill vindur;
fór eg með breiðri brimvallar siðu
þá þrjóskunnar verðlaun þöktu
víða,
hér næst. kom eg að hörmung
svana
er föðurland lofan flýtti mér yfir
hitti eg fyrir mér hrúts móður eina
sem fram hjá tnér hljóp og ferð-
um aftraði
um hræbarðs miðnætti hugði eg
engin
mundi svo nakin sem mér virtist
þessi,
þá klæddi eg beinin þorstadrykk
góðum
svo hefði ei skaða af hennar klæö-
leysi.
Braut mín lá yfir brendar
raumstennur
og þar við kendar þjáning hugar
á fjallseggjasólar flagðahnúks
stólpanum
kveið eg fyrir þeim kraka dætrum,
hélt því fram um haflatanga
þar logaleif lá í nábýlum
Þórsdrykkir skemdu mér þessar
slóðir
því runahlýri rann fvrir norðri
þræddi eg fyrir þrautar enda
fiskiklæddur fjórtándu rúnar
hitti eg loks það kaupendur kjósa
óbygðar pláss að allra römi
jliafði eg þar hettuværð hjá ltoll
vinum
sem ætíð veittu mér innyfla böndin
hitti eg loks það höfðingja setur
er Mjölnir forðum markaði á nóttu 1
var þar ráðandi vetur liði
í tvöföldu standi eg til hans var
sendur
merghúsval þar mátti eg kanna
draumnjórun eina drógst svo til
hryggjar
sömu mölvaði svo hélt eg aftur
yfir tvær þjóðir endilangar
átti eg veraldir á óklárendum
í hrygnu morgunmyntar gini
fóstra ellinnar fáíkastóls tjalda
höfuðskjólgestur og hrugnisverja
sá sem þuluna saman setti
og sínum líkum sendir að ráða.
Þessi gáta var prentuð um 1880
sérstök, og hygg eg hún muni
víða glötuð, en mér finst hún
þess virði að láta hana lifa. Ef
alþýðuvísurn^r yrðu sérprentaðar
og gátan méð, þá slyppi hún hjá
eyðileggingu. Útskýringu sendi
eg næst.
Sinclair, Man.
Jón Halldórsson.
0 . ■ — ———
Siglinga visur.
Á haukum lóna leiðanna
litur nýta meingi
skaut upp trjónum skeiðanna
skalf á tónum reiðanna.
Bylgjan spýtti boðonum
brek í úðar hroðonum
skaflar gnúðu á gnoðonum
gustur dúði í voðonum.
Lék á seiða löndonum
lægis skeiða bröndonum
álsá heiða öndonum
í hvein reiða böndonum.
Lagar grana leið þandi
landið svona meiðandi
fór að vana freyðandi
að fróni Dana seiðandi.
Það yar um 1810 að ormakorn-
iö kom á ísafjörð, sá hét Árni
Sandholt, sem fyrstur kom með
það; hann var meðeigandi í mestu
kaupstaðarverzluninni. Ormamir
voru þumlungur á lengd og eftir
því digrir, flestir dauðir þó, en
sumir lifandi. Þá kvað Kristján
járnsmiður þessa vísu;
Sandholt frani á höfnina hóar
AliKKT [|()Ti:i.
vi8,sölutorgiö og City Hall
$1.00 til $1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL. i
S33' Notre Dame Phone G. 518D
REX
Custom Tailors
og FATAHREINSARAR
Vér höfum nýlega fengiö
ljómandi úrval af vor og
sumar fata efnuin á
$18 til $40
Ef þú vilt vera vel búinn, þá
komdu til okkar.
Karlmannaföt hreinsuö og
saumuö upp og gert viö
þau. Kvenfatnaö sér-
stakrir gaumur gefinn,
REX CUSTOM TAILORS
Cor. Notre Dame and Sherbrooke St. /
l’hone: Garry 5180
Næst Steen's Dry Goods Store
í h— eru kvalirnar nógar
en ormarnir í korninu kalla:
komdu pabbi og éttu okkur alla!
Hallvarður Guðmundsson var á
Börmum í Gufudalssveit; hann
var vanur að segja jú, þegar hann
átti að segja já. Svo giftist hann;
þá gerði Hjalti nokkur þessa visu:
Vinstri hendi að veigabrú
vomurinn sendi þarna
sagbi bendir járna: jú,—
ég skal enda að tarna.
Þegar nýbúið var að byggja upp
Baulárvelli á Snæfellsnesi, var
fólkið að vandræðast um, að það
vissi ekki dagsmörkin; þá var
kveðin á glugganum þessi vísa:
Dagmálin á Dofnahnúp
hádegið á Stakki,
miðdegið á Möðruhnúk
en nónið út á Klakki.
Miðaftan á Breiðuborg og Baul-
árvöllum,
Náttmálin á Nýpufjöllum
nú hef eg greint frá merkjum
öllum.
B. Suðfjörð.
F rá Islandi.
Reykjavík 16. Apríl
Lækjargatið, suður við Bama-
skóla — þar sem Tjörnin með
sogi miklu fellur í lækjarræsið —
er, af ýmsum, sem snúið hafa sér
til ísaf., talið stórhættulegt, eins
og frá þvi er gengiö. Ef börn
kynnu að detta þar í Tjörnina, er
talið gefið, að þau muni sogast inn
í ræsið og er þá eigi fé bjóðandi í
líf þeirra.
Þetta er brunnur, sem byrgja
ætti á einhvern hátt, áður en barn
dettur í!
Nýjar verzlanir eru að spretta
upp hér í bæ um þessar mundir.
Veiðarfæraverzlanir 2 eru ný-
stofnaðar, önnur fVerðandiý af
Pétri J. Thorsteinsson, hin af Th.
Thorsteinsson.
Þá hefir Th. Thorsteinsson
flutt karlmannafataverzlun sína í
stórhýsi það fyrir austan Hótel
Reykjavík, er Einar Benediktsson
lét reisa fyrir 2—3 árum, og bor-
ið hefir nafnið “tómthúsið” til
skamms tíma. Hin nýja búð Th.
Th. er hin skrautlegasta og á-
nægjulegt að sjá svo góða bæjar-
prýði á einhverjum fjölfarnasta
stað borgarinnar. — í sama húsi
hefir og Jón Hallgrímsson stofn-
sett fataverzlun.
Þá er og ný verzlun komin í
búð Nic. Bjamason, vestast í
Austurstræti. Hún heitir “Nýja
verzlunin” og eru þar til sölu
allskonar vörur er kvenfólkið
girnist.
Loks er risin upp ný verzlun í 1
einu af Thomsenshúsum. Er það
Carl Hemmert, sem hana rekur. 1
Þetta er eigi lítil verzlunarvið-
koma á örstuttum tíma — og mun
)»ó eitthvað ótalið af nýjum verzl-
unum.
Sjúkrasjóður Rvíkur var í árs-
lok 1912 orðinn i7,735»32-
Revkjavík 5. April.
Á bókauppboði sem nýlega var
haldið i Kaupmannahöfn á bókum
Ludvigs Wimmers, norrænufræð-
ings, var Guðbrandarbiblía kevpt
á 400 kr.
Aflabrögð mega allgóð heita
upp á síðkastið. Botnvörpungarn-
ir eru að koma inn öðru hvoru
með 30—50,000 fiska — eftir 10
til 14 daga útivist. Þilskipin hafa
og aflað bærilega. En mest veltur
auðvitað' á, að gæftir og fiskur
fylgist að í þessum mánuði.
ALLAN LINE
Konungleg Póstgufuskip
VETRAR-FERDIR
Frá St. John og Halifax Frá Portland
til til
Liverpool og Glasgow Glasgow
FARGJOLD
• A FYltSTA FARRÝMI.........$80.00 og upp
A ömtU FARRÍMI...............$47.50
A ÞRXÐ.TA FARRÝMI............$31.25
Fargjald frá Islandi
(Emigration rate)
Fyrir 12 ára og eldri ............. $56.141
“ 5 til 12 ára ................. 28.05
“ 2 til 5 ára................... 18,95
“ 1 til 2 ára................... 13. 55
“ börn á 1. ári.................. 2.70
Allar frekari upplýsingar um guftjskipaferðirnar, far
bréf og fargjöld gefur umboðsmaður vor H. S. BARDAL
horni Sherbrooke og Elgin, Winnipeg, sem annast um far-
gjalda sendingar til Islands fyrir þá sem til hans leita.-
W. R. ALLAN
á64 Main St., Winnlpeg. Aðalumboðsmaður vestanlands.
LU MBER
b A S n , DOORS, MOIJLDING,
CCMENT oq HARDWALL PLASTER
• Alt sem til bygginga útheimtist.
National Supply Co.
Horni McPhilips og Notre Dame Ave.
Talsímar: Garry 3556 | uriwmrc
« 3558 WINNÍPEG
The Birds Hill
Búa til múrstein til prýði utan á hús.
Litaður eftir því sem hver vill hafa.
Skrifstofa og verksmiðja á
horni Arlington og Elgin
WINNIPEG, - - . MANITOBA
D. D. Wood, Manager
Fón Garry 424 og 3842 Hver múrsteinn pressaður
Nú er vorið
komið
og ný hús og stórbygging-
ingar fara aö rísa upp víös-
vegar í borginni. Muniö
það, þér sem byggiö, aö
byggja til frambúöar.
Gœtiö þess einkum, aö
vel og vandlega sé gengiö
frá hita og vatni. Sá sem
leysir slíkt verk vel af
hendi er, einsog allir vita
G.L.STEPHENSQN
‘ The Pli.ml.er”
Talsími Garry 2154
842 Sherbrook St., W’peg.
Dominion Hotel
523 Main St. Winnipeg
Björn B. Halldórsson, eigandi
P. S. Anderson, veitingam.
Bifreið fyrir gesti
Sími Main 1131. Dagsfæði $1.25
ROBINSON
& Co.
Límitcd
í Th. Björnsson, !
J Rakari +
Ý Nýtízku rakarastofa ásamt 4>
4. k n a t t 1 e i ka bo r ð u m T
X TH. BJÖRNSSON. Eigandi
F DOMIMON HOTEL. - WINNIPEQ
♦ ♦ ♦ ♦ 1' ♦ 1' ♦ '1' ♦ 't' ♦ t »1' ♦ 1 ♦ t' ♦ ‘1 ♦ 1-H
KVENKÁPUR
Hér eru nýkomnar fallegar kápur
handa kvenfólki, skósíðar, víðar,
með smekklega kraga og uppslög-
um á ermum, með ýmislegum lit og
áferð. Allar stærðir. Þetta er sér-
stök kjörkaup á. .
Skoðið þær í nýju
deildinni á 2. lofti.
$6.75
JAPANSKT POSTULlN
Nú stendur yfir stórkostleg kjör-
kaupa útsala á japönsku postulíni,
Það er handmálað og hver og einn
mun undrast, að vér skulum geta
selt það með svO vægu verði. Eng-
inn hefir ráð á að láta þessa sölu
fara fram hjá sér, svo lágt sem verðið
er og postulínið prýðilegt. OC
75c virði fyrir.....
ROBINSON
& Co.
Llmitcd
Goast Lumber
Yards Ltd.
185 Lombard St. Tals. M.765
Sérstakir Talsímar
fyrir hvert yard.
LUMBER
YARDS:
1. St. Boniface . . M. 765
eftir sex og á helgidögum
2. McPhilip St. . . M.766
3. St. James . . . M. 767
Aðalskrifstofa . . . M 768
Eg hefi 320 ekrur af landi nálægf
Varbo, Sask. (V> sect.J, sem seljast á
með góöum skilmálum; eign í eöa um-
hverfis Winnipeg tekin í skiftum. Á
landinu eru um 90 ekrur plægöar og ai
þeim 50 undir akri nú. Alt landiö inn-
girt og á því um þúsund doll. viröi ai
húsum ásamt góöu vatnsbóli.
5. SIGURJÓNSfON,
689 Agnes Stræti, Winnipeg.
Ný eldastó til sölu meö vægu verö
Ráösmaöur Lögbergs vísar á.