Lögberg - 19.06.1913, Blaðsíða 3

Lögberg - 19.06.1913, Blaðsíða 3
1.ÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. Júní 1913. Kynleg saga af Rúss- neskri prinsessu. Um alt Rússland veröur fólki mjög tíörætt um atferli prinsessu nokkurrar, er heitir Marya Alex- androvna Garatzina. Hún er dótt- ir vellauöugs manns, er á mörg landsetur í Tula, Orel og Volhynia, svo og dýrölega höll í Moskwa. Prinsessan er 23 ára gömul, fríð sínum, tíguleg, mjög vel aö sér, til munns og handa, og tók vitanlega aldrei hendi sinni í kalt vátn, öll sín uppvaxtarár. Faöir hennar og frændur eru veraldarmenn í hóf- legu lagi og prinsessan fylgdi þeirra dæmi þartil fyrir skemstu. Hún var ein hin fjörugasta og kátasta í félagsskap og samkvæm- um tigna fólksins í Moskwa, þótti gaman aö dansa, aka geyst í sleða meö sínum jafnöldrum, fara í leik- hús og skemta sér á allan hátt að rikra manna sið. En alt i einu tók hún skyndilega gagngerðri breyt- ingu. Hún lýsti því einn daginn, að frá þeirri stundu ætlaði hún að lifa “einföldu líferni’’, og fám dögum fór hún burt úr höll föð- ur síns. Sú ástríða hefir um langan tíma oft komið upp hjá ríka fólkinu á Rússlandi, að segja skilið við' auð og allsnægtir, fara allslausir í framandi staði og vinna fyrir sér cinsog óbreyttir almúgamenn. Skáldið Turginjef gaf þessu at- hæfi fyrst nafn í einni skáldsögu sinni, þarsem söguhetjan fer að á þennan hátt. Tolstoy prédikaði þann lífernismáta í mörg ár, eins- og kunnugt er, og lifði sjálfur þann veg seinni part æfi sinnar. Þessi liin sama ástríða, aö yfir- gefa heiminn með.öllum hans fríð- indum og lystisemdum, kom nú yfir prinsessu Maryp Garatzin, ekki alt i einu, heldur smám saman í vetur leið. 1 Allan timann, í leikhúsum, á dans- leikjum og mannfagnaöarmótum var hún að velta fyrir sér þeirri hugsun, að breyta til um lífernis- máta og lifa óbrotnu lífi. Stund- um þegar hún kom af dansleikjum sat hún og las Tolstoy fram eftir nóttum, prófaði og rannsakaði sjálfa sig og jafnvel lagði á sig meinlæti. Hugsunin náði æ sterk- ari tökum á henni, svo að' hún réði varla við sig. Eitt sinn, er hún steig dans við liðsforingja nokk- urn, þá datt þetta upp úr henni: “Segðu skilið við alt þetta; afneit- aðu heiminum!” Liðsforinginn hugsaði, að hún væri að fá aðsvif og leiddi hana burt, undir bert loft. Þíegar hún loks fór að heiman, eins og fyr getur, fór elzti bróðir hennar að leita og spurði það uppi, að hún væri eldastúlka hjá lög- manni nokkrum í Rostoff; sá hafði komizt að þvi, hver hún var, sagöi hún honum þá upp alla sögu, en me® engu móti vildi hún þýö- ast ráð hans og fortölur, að snúa heitn aftur til foreldra sinna, og þegar bróðir hennar kom þangað, þá var hún horfin þaðan, og spurðist ekkert til hennar i mán- aðar tima. Þá komst það fyrir, að hún var í Moskwa og enn ráðin í vist sem eldabuska. Hinn gamli prins, faðir hennar, reyndi fyrst td að fá hana til að koma heim aftur, og er hún þvertók fyrir það, reyndi hann að fá hana til að fara burt úr Moskwa, með þvi að hún væri að gera ætt sinni minkun. “Ekki geri eg þér né fólki mínu minkun”, svaraði hún, “heldur er háttalag mitt ykkur til sóma. Eg ætla að vinna fyrir mér sjálf.” Prinsinn hóf þá málsókn í þvi skyni, að fá hana setta á geS- veikrahæli, en lét það niður falla, eftir ráðum viturra manna. Prinsessan Marya hélt nú sínu fram, að lifa einföldu lifi. Hún fékk sér vist í stóru hóteli, þarsem auðugir og tignir menn gista, og þar var frændfólk hennar sjálfr- ar vant að búa, þegar það var á ferðinni. Henni var þar ætlað það verk, að bursta skó. Hún burstaði yfir hundrað pör á hverjum degi, fór á fætur klukkan fjögur á morgnana og varð að vinna til kl. 11 á kveldin. Eftir þriggjá mán- 'aða vinntt á þessttm stað gaf hún út flugrit ttm “Einfalt líferni”, er byrjar á líka lund og skáldsagan “Anna Karenina” eftir L. Tol- stoy. “Mörg þúsund leiðir eru til angurs og ógæfu, en aðeins ein til gle'ði og ánægju”, stendur þar. Eina leiðin til gæfunnar segir prinsessan að sé sú, að slíta öll þau bönd sem binda mann við heiminn, og lifa einföldu líferni. “Gæfa er einmitt það, að losa sig úr viðjum veraldiegra hluta- Þég- ar þú átt enga peninga, ekkert heimili, engin föt nema þau sem þú stendur í, engin matvæli nema þau nauðsynlegustu, þá ertu sæll og engunt böndttm bundinn.” Pés- inn endar á þvi að |Tolstoy hafi yfirgefið heimili sitt og dáið sem flakkari á járnbrautar stöðinni Astapovo, “við þá siðustu tilraun sem hann gerði til þess að eiga ekkert til í eigu sinni, til þess að yfirgefa konu og börn, heimili, peninga, föt og fæöi.” Þhrnæst reyndi prinsessan að vinna fyrir sér sent vikastúlka á fátæklegu matsöluhúsi. Þar varð hún veik. Eftir það fór hún til Kharkoff og varð vikastúlka í stórri búð. Þ.ar varð fyrir henni liin fyrsta freisting til að hætta við hið óbrotna líferni. Frændi hennar dó um þær mundir, er ver- ið hafði auðugur kaupmaður og mjög sérlyndur, og ánafnaði henni 300 þúsund dali. Búðarstúlkan Marya neitaði að taka á móti því fé. Lögmaður hennar réði henni til þess að gefa það föður hennar og bræðrum, ella fátækum. Prin- sessan neitaði hvorutveggja. “Það væri rangt gert að gefa það föður mínum,” mælti hún, “með þvi að hann mundi nota það fé til þess að láta annað fólk vinna fyrir sér, en það á hann að gera sjálfur. Að gefa það til fátækra er sömuleiðis rangt, með því að gjafir draga þrótt frá þeim sem þiggja. Eina rétta hjálpin er sú, að vinna til að kenna öörum aö vinna.” Freistingarnar voru fleiri og sú næsta sem mætti henni varð henni þyngri í skauti. Meðan prinsessa Marya var í búðinni, komst hún í kynni við liðsforingja er Yurieff hét; hann var á hennar reki, mað- ur vel gefinn og mikill fyrir sér. Þþu feldu ástir hvort til annars, Þegar Ýurieff komst að því, að unnusta hans var prinsessan Gara- tzin, þá gefðist honum enn tiðara að eignast hana fyrir konu. Prinsess- an lýsti því, að það væri ekki móti sinni kenningu að giftast, en “ein- falt hjónaband” yrði það að vera, er hún gengi í. Bónda efnið yrði að leggja niður stöðu sína í hern- um . Yurieff gekk að því skilyrði með því móti, að hún færi úr búð- inni og kæmi með honum út á smáa jörð í sveit, er hann átti fyrir utan Kharkoff borg — “þar” mælti hann “getQm við bæði unnið líkamlega vinnu”. Prinsessan sam- þyktist þessu, og nú.sagði foring- inn af sér stö'ðu sinni. Þjrem dögum áður en brúðkaupið skyldi standa, fékk hann bréf frá henni, og stóð þar, að henni hefði snúist hugur. Hún væri enganvegfn mót- fallin hjónabandi í sjálfu sér, heldur væri hún sannfærð um, að þáð mundi hnekkja þvt, að hún gæti lifað reglulega einföldu lífi, og hún væri fullráðin í því að lifa ekki við uppgerð og látalæti. “Eg ætla að vinna til æfiloka” var nið- urlag bréfsins. Og þannig heldur prinsessan áfram að vinna. Vitanlegt er það, að fríð og girnileg stúlka getur ekki verið vinnukona, vikakind á hótelum og matsölustöðum, svo að hún komist hjá ónáöum. Prin- sessan kvartar undan því, að eng- inn karlmaður sjái sig í friði. En hún lætur það ekki á sig fá. “í Loskutnaya hóteli” segir hún, “klóraði eg mig í framan og bar sót framan í mig, til þess að taka frá mér þokka og komast undan .áleitni manns, sem vann þar á skrifstofunni.” Það hefir síðast heyrst af henni, að föðursystir prinsessunnar er komin á leiðina frá ítalíu, “til þess að gera hvað hún getur til að koma vitinu fyrir bróðurdóttur, sína.” Þegar prinsessan frétti það, þá varð henni þetta að orði: “Og eg skal gera hvað í mínu valdi stend- ur, til að koma vitinu fyrir hana föðurysstur mína.” Seattle, Wash. 31. Maí 1913. Á aöalfundi, sein meðlimir Hallgrímssafnaðar — Islenzka lút- erska safnaðarins í Seattle — héldu siöastliðinn sunnudag, sagöi séra Jjónas A. Sigurðsson af sér starfi sínu, sem prestur safnaðar- ins. Séra J. A. Sigurðsson hefir þjónað söfnuði þessum síðastliðin 12 ár; hann hefir og hvenær, sem tækifæri hefir gefist, tekið sér ferð á hendur og prédikað fyrir Islendingum, sem búsettir eru hér á ýmsum stöðum á Kyrrahafs- ströndinni, auk þess seiri nann hef- ir á hverjum sunnudegi veitt fræðslu börnum og unglingurn sunnudagaskólans og einnig fram- kvæmt, sem prestur, önnur embætt- isverk, hvenær sem til hans hefir verið leitað. — Séra Jónas hefir orðið að vinna fyrir sér og fjöl- skyldu sinni, með því að hafa á hendi ábyrgðarmikið starf á skrif- stofu þessa héraðs ("County Clerks Office j; hafa kringumstæöurnar verið þannig, að hann, því miður, lrefir ekki getað gefið sig eingöngu við hinu kirkjulega starfi. — Nú sem stendur eru íslendingar hér prestlausir, en vonandi fá þeir ein- hvern bráðlega, sem heldur starf- inu áfram. — Að vér vinnum sam- an að kristilegum góðum félags- skap, að vér höldum fast við trú feðra vorra og mál, að vér rækj- um það sem bezt er í fari íslend- ingsins, —r á því byggist það að hve miklu leyti vér hljótum viður- kenningu hér, — annars er hætt við, a'ð liggi fyrir okkur að dreif- j ast, hverfa, og ef til vill týnast og | verða tröllum gefnir. Samkomur. íslenzka kvenfélagið » í Seattle heldur áfram starfi sínu, að líta I eftir, og hjálpa þeim, sem hjálpar þurfa. Að kveldi krossmessudags- ins, sem í íslenzkum almanökum aö kallaður er vinnuhjúaskildagi, 'héldu þær samkomu ('Box socialj, sem í alla staöi var hin ánægjuleg- asta. Körfur af mörgum stærð- um, fyltar sælgæti, og skreyttar bæði utan og innan voru þar seld- ar hæstbjóðanda og fengu færri en vildu. Félagiö “Vestri” hélt skenrti- i samkomu 2. Maí, gafst fólki þar | að heyra ágætt prógramm, ræöur, [ samspil, einsöngva, k'órsöngva og! upplestur; skemtu menn sér við | þetta og annan fagnað fram á nótt. Ágóðanum af samkomunni varið til að auka við bókasafn félagsins. 19. Maí kom fjöldi karla og kvenna saman í húsi herra B. O. Johannssonar til að kveðja þau herra Gunnar Matthiasson og konu 'hans, sem flutt hafa til Edmonton, Alta., og hafa í hyggju að dvelja þar sunrarlangt eða lengur. — Vér vonum þau komi sem fyrst til baka aftur. Dauðsföll. Vér höfurn verið mintir á það, sem fyr, að enginn veit “nær sem kallið kemur”, eru það ekki færri en þrír framliðnir, sem fámenni íslenzki flokkurinn þér hefir fylgt til grafar nú í vor. Þjorgrímur Guðmundsson dó af slysförum 10. April síðastliðinn. Hann vann viö stórbyggingu eina, sem var í smíðum hér í borginni og varð fyrir þunga lyftivélar, og marðist svo, að hann dó innan viku á sjúkrahúsinu, sem hann var fluttur á strax eftir að slysið vildi til. — Mér er lítið kunnugt um ætt 'hins framliðna, nema hann hafi verið fæddur í Reykjavík 1864 eða 1865 og munu ættmenni hans vera búsettir þar og í Mos- fellssveit á íslandi. Hann mun hafa verið nálægt 30' ára að aldri þegar hann fluttist vestur um haf, og dvaldi þar um nokkurra ára bil í Winnipeg og Nýja Is- landi. Hér í Seattle dvaldi hann síðustu 13 árin. Hann var verk- maður góður, vinsæll í sinn hóp og vel látinn. Hann var jarðsunginn 13. Apríl af séra J. A. Sigurðs- syni; sá verkamannateiag fSeattle Building Labor Unionj, sem hinn framliðni tilheyrði, um útförina, sem var myndarleg í alla staði. Skúli Johnson og Jóhanna kona hans, nýflutt hingað frá Vancouv- er B. C., mistu barn sitt tveggja mánaða gamalt 24. Apríl. Það var jarðsungið þann 27. Apríl. Vér urðum fyrif þeirri sorg að þurfa að sjá á bak atgjörfismanni, senr lést i blóma lífsins; það var Benedikt Tryggvi Halldórsson, sem lézt 21. Apríl úr tæringu, eftir tiltölulega stutta legu. Hann var fæddur í Ontario, Canada, í Nóv. mánuði 1879. Foreldrar hans voru Þþrsteinn Hallgrímsson, ættaður úr Þiingeyjarsýslu, nú búsettur í Nýja Islandi, og Ingunn Jónsdótt- ir frá Miðhópi í Húnavatnssýslu. I þeirri ætt eru og hafa verið sumt af allra merkasta bændafólki í Húnavatnssýslu. Hinn framliðni ólst upp í Garðarbygð N. D. og þar rnisti hann móður sína. Vest- ur á Kyrrahafsströnd flutti hann árið 1900 og dvaldi lengstum hér í Seattle og Vancouver B. C. Eftir- lifandi bræður eru þeir Ásgeir, bú- settur í Edmonton, Alta., Jósafat Lindal Hallgrimsson í Winnipeg og Þorsteinn bóndi í Argyle. Hinn framliðni var ágætum hæfi- leikum gæddur og hið mesta prúð- rnenni i allri framgöngu; hans er sárt saknað af öllurn sem þektu hann. Hann var jarðsunginn af séra T. A. Sigurðssyni 28. Apríl. /. B. * Avarp- TH kvoúfclagsins “Isafold” í Vesturheimsbygð í Minnesota. Það ætíð sé vor iðja, um alla lífs vors tíð, því beina braut að ryðja, sem blessun flytur lýð. Vér skulum sterkar standa, og starfa einum hug; og veita lið í vanda, • með viti, þreki og dug. Að gleðja sorgmætt sinni, og sjúkum aðstoð ljá, svo hjartað huggun finni sem harmar sárir þjá, — það sé vort æðsta yndi, og aðal-stefna kær; það göfgar, léttir lyndi, og ljúfrar gleði fær. Og þótt vér sjálfar syrgjum, og sára hugarkvöl í brjósti þrávalt byrgjum, og brá vor oft sé föl, — vér skulurn æðrast eigi, En áfram halda braut alt fram að dauðadegi, með dáðum sigra þraut. María G. Arnasoti. Islands fréttir Reykjavik 25. Maí. Fréttir frá Akureyri; Þingmaður verður hér að sjálf- sögðu Magnús kaupmaður Krist- jánsson, þar sem hann hefir feng- ið skriflegar áskoranir frá 230 kjósendunr um að bjóða sig fram, I en alls eru á kjörskrá um 350. Afli er hér mjög rýr og aðeins [ utarlega á firðinunr. A Reykjavik 26. Maí. Um skopleika flutti Andrés Björnsson fyrirlestur í gær í Báru-i bú'ð og stóð hann, með ræðu er Gísli Sveinsson hélt á eftir, frá kl. 6—7E2. Hér var um 400 manns saman komið og því töluvert fleira en í sæti komst. Hann rakti sögu skopleikanna og byrjaði á Grikkj- um, sem hefðu komist svo langt í þeirri list á blómaöld þeirra, að lengra hefir vart verið komist síð- an. Hann gat um frjálslyndi Grikkja á þeim tíma, að heyra annarlegar skoðanir, svo sem Har- aldur prófessor Níelsson 'hafði lýst svo fagurlega sunnudaginn áður, en honurn fanst að prófess- orinn heföi ekki tillagt sér sjálfum það frjál^lyndi gagnvart skopleikn- um. Rabelais, hið fræga frakkneska skopleikaskáld, og Holberg mint- ist ræðumaður á og hina miklu þýðingu skopleika. Svo sagði hann sögu þessa skopleiks, sem hér hef- ir verið mest umræddur. Enn gat hann um grein E. H. skálds í síðustu Isafold og þót i hann meðal annars ekki vel vand- a'ður í tilvitnunum. Dr. G. F. þótti fyrirlesara nokkuð óglöggur í ritgerð sinni um eign á öðrum rnönnum; mvndi t. d. tæplega geta bannaö aö aðrir fengju sér sama efni í föt og hann, notuðu og hefðu þau eins sniðin og hann. Margt fleira bar a ’ goma hjá Andrési; en er hann hafði lokið máli sínu var kosinn fundarstjóri Bjarni Jónsson frá Vogi. Gísli Sveinsson tók þá til nráls og tal- aði lengi. Þótti honum guðfræð- iskennarar háskólans ekki halda sér sem vera bæri við lúterskan siö í kenningum sínum og mintist í þvi sambandi á prestaeið þeirra. Þótti honum sem þeir, er í gler-i 'húsi búa væru ekki færir i grjót- kast. —Vísir. Seyðisfirði 17. Maí. Atvinna er mikil hér í bænum nú sem stendur, oft unnið bæöi dag og nótt, einkum vi'ð móttöku á fiski úr botnvörpungum, svo og kolavinnu. Hefir rnargt verkafólk sótt hingað úr nærhggjandi sveit- um. Hæst kaupgjald, sem vér- höf- um heyrt getið hér um er 75 aur- ar — 1 kr. um klukkustundina. Þjað er oss sagt að kaupm. Þór. Guðmundsson og Fr. Wathne hafi greitt á Hvitasunnudagsnótt. Að vegavinnu er nú lika gengið hér í bænum, og eftir helgina byrj- ar vinna við undirbúning raflýs- ingar; og því næst koma annirnar hjá mótorbátaútgjörðarmönnun- um. Seyðfirðingar þurfa þvi von- andi eigi að kvarta um atvinnu- skort í sumar. Tuttugu kindur fórust í vor ofan um is á Álftavatni skammt frá Straumi i Hróarstungu. Flest- ar kindurnar átti Ámi Árnason bóndi á Straumi. Seyðisfirði 26. Maí. Fréttir úr Austur-Skaftafellssýslu: 13. Marz lögðu 4 Svínfellingar í fjöruferð á Svínafellsfjörur, þeir Gísli Jónsson, Lárus Magnússon, Jön Sigurðsson og Páll Pálsson, i allgóðu veðri, snemrna morguns; en svo tók að hvessa norðaustan og þykna i lofti, og er þeir voru komnir nálægt fjörunni fór aö drífa. Fóru þeir í flýti að fást við tré, en urðu að yfirgefa þau, því veðrið harðnaði óðum. Þeir sáu sér ekki fært að komast til bæja, heldur tóku fyrir að reyna að komast austur fjömr meðfram sjó, ef unt væri, og ná í sjóhraktra hælið á Ingólfshöfða, sem Thomsen konsúll lét byggja þar síðastliðið haust. Þ]eir lögðu af stað austur frá trjánum um hádegi, en af því bylurinn var nú skollinn á, og veðrið afar-hart og stóð beint á móti, þá gekk ferðin mjög seint, enda gátu þeir naumast setið á hestunum. Altaf versnaði færðin svo hestarnir brutust um i dyngj- um, og bágt áttu þeir með að halda hóp, því það gaddaði fyrir andlit- in, og urðu þeir sífelt að brjóta klakann frá augunum. Þegar far- ið var að dimma af nótt, komust þeir ekki lengra fyrir ófærð og hvassviðri, og vissu þeir þá ekki hvað langt væri til Höfðans, tóku þá það ráð að leggjast fvrir þarna á bersvæði. Ekkert gátu þeir séð 5 A vorin Hver og einn, sem þykir gott að smakka glas af öli, vill B o c k s. DREWRY5 Bock Beer bruggaður fyrir 6 mánuð- um er nú til sölu. Pantið snemma því að birgðirnar eru takmarkaðar FURNITURE o»> Lrv, OVERLAND MA'S \ *111ANDIR -f GERA OSS MÖGU- LEGT AÐ FRAM- LEIÐA PRENTUN SEM GERIR VIÐ- SKIFTAVINI VORA ANÆGÐA The Columbfa Press, Limited Book. and Commercial Printers Ph'one Garry2156 P.O.BoxH72 WINNIPEG vegna blindhríöar, og ýmist fauk sandur í augu þeim er þeir komu nær sjó. Ekkert heyrðu þeir 'hver til annars fyrir veðurdyn, nema þeir væru með andlitin föst saman. Nú var um að gera að sofna ekki né láta sig fenna. Einn þeirra, Jón, varð fastur í fönn og hafðist ekki fyr en morguninn eftir, því þeir voru verkfæralausir, skáru þá ístöð frá hnakk, og gátu með þeinr barið snjóinn frá. Hinir voru á hreyfingu um nóttina, til þess að láta sig ekki fenna. Morguninn eftir var veðriö vægara, en samt bylur, tóku þeir sig þá upp, og náðu Ingólfshöfða klukkan 8 f. h., létu alla hestana, 9 að tölu, í húsið, kveiktu þar upp eld á olíuvél, er þar er, og vermdú sig þar, fengu sér matarbita, fóru í þurra sokka, gáfu hestunum | tuggu, hjúkruðu sér og þeim eftir föngum, hvíldu sig þar í 6 tíma og héldu þaðan heim um kveldið'. Þjeir félagar og hestarnir hrestust mikið í Höfðahælinu. Það hjálp- aði, að nokkuð dró úr frosti, er á nóttina leið. Nokkra daga á eftir voru þeir meö skinnhrafl á andlitunum, eftir snjóskara og sand, og veikir í aug- um, en eru nú orðnir jafn-góðir að mestu. I sama óveðrinu urðu úti allir j sauðir Svinfellinga. Þteim varð : ekki náð í hús áður en óveðrið j harðnaði, og dóu þá nálægt 40 j sauðir, og hinir, senr af komust, j þjökuðust mikið. Sauðamenn kom- j úst ekki heim, lágu í beitarhúsun- um um nóttina. "Vietur þessi hefir verið mjög úr- fellasamur, snjór og regn stórkost- legt á víxl. 30 f. m. batnaði tiðin og er nú viðast orðið alautt. —Austri. Bísmarck þótti fleira gott til drykkjar heldur en bjór og grogg, og einkum þótti honum gott kaffi, en engan kaffibætir vildi hann hafa samanvið það. Sú saga er sögð af honum á herferð Þjjóð- verja á Frakklándi, að hann kom að veitingahúsi nokkru, gerði boð fyrir húsbóndann og spurði liann hvort hann hefði nokkurn kaffi- bætir til. Hinn kvað svo vera. “Tæja”, sagði Bismarck, “færðu mér hann þá; alt senr til er í kot- inu.” Hinn fór og kom aftur með brúsa fullan af kaffibæti, og fékk Bisnrarck. “Ertu viss um, að þú hafir ekki neitt meira af kaffi- bæti?” spurði járnkanslarinn. “Já, herra, ekki eitt korn.” “Þá skaltu”; sagði Bismarck, og hélt hjá sér brúsanum, “fara og búa mér til kaffisopa, ekki minna en tvær merkur.” Vjelar, Dœlur, Katlar K oxiLtia?s^,C5'fc£La?a,-áhöId Þessi mynd sýnir IMilwaukee steínsteypu Vjel Spyrjið eftir verði THE STUART MACHINERY COMPANY LIMITED. 764 Main St., - - Winnipeg, Man Eddy’s nýjustu eldspítur Hættulausar-Hljóðar Eitur-lausar - - hinar nýju ,,Ses-qui“ Einu eldspíturnar af þeirri tegund í Canada. Endahnúðarnir algerlega hættu- lausir. Þér eða börn yðar geta bitið eða gleypt þá án nokkurrar hættu Seldar í tveim stærðum—vanalegr og vasastærð, Verndið sjálfa yður með Jjví að brúka engar eldspítur nema Eddy’s nýju „Ses-qui.“ Spyrji’ð kaup- manninn. KARLMANNA BUXUR Hentugar á vorin. Hentugar til daglegs brúks Hentugar til vinnu Heniugar til spari. Hver sem kaupir buxur hér, verður ánægður með kaupin. Þær eru þokkalegar og end- ast vel, seldar sanngjarnlega. Venjið yður á að koma til WHITE & MANAHAN 500 Main Street, - - WINNIPEG tibúsverzlun i Kenora THOS, JACKSON & SON BYOQINGAEFNI AÐALSKRIFSTpFA og birgfeból 370 COLONY ST TALS. Sherbr. 62 og 64 WINNIPEG, MAN. GEYMSLUPLÁSS: Vestnrbœnum: horni Ellice og Wall St., Fón Sherb. 63 I Elmwood: horni Gordon og Levis, Fón, St. John 498 I Ft. Rouge: Pembina Highway og Scotland, Vér seljum þessi efni í byggingar: n Múrstein, cement, malað grjót, (aTTar stærð.), eidtraustan múrstein, og eldleir, Flue Lining, möl, Hard- wall Plaster, hár, Keene’s Cement, hvítt og grátt kalk, hydrated kalk, viðar og málm lath, gyps, Rubble stone, Sand, ræsapípur, weeping drain Tile, Wood Fibre Plastur, Einnig Mortar, rautt, guit, brúnt, standard og double strengtb black. Tuttugu menn óskast strax. Vér skulum borga þeim gott | kaup meðan þeir eru í Moler’s j Rakara skóla. Vér kennum rakara I iðn til fullnustu á tveiin mánuðum og útvegum lærisveinum beztu stöður að afstöðnu námi með $15 til $35 kaupi um viku. Gríðarleg eftirspurn eftir Moler rökurum sem hafa Moler vottorð. Varið ykkur á eftirhermum. Komið og skoðið stærsta Rakara Skóla i heirni og fáið fagurt kver ókeypis. Gætið að nafninu Moler á horni King og Pacific stræta, Winnipeg eða 1709 Broad St. Regina. J. J. Swanson & Co. Verzla meÖ fasteignir. Sjá um leigu á Kúsum. Annast lán og eldsábyrgðir o. fl. 1 ALBERTJ\ BL0CI\. Portage & Carry Phone Mam 2597 FORT ROUCE THEATRE Corydon Hreyfimynda leikhús Beztu myndir sýndar J. JÓNASSON, eigandi.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.