Lögberg - 07.05.1914, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. MAl 1914
Stefna Framsókn-
arflokksins:
1. —Að hafa til góða skóla
handa öllum, og láta
alla nota þá.
2. —Að loekka og afnema
tolla. ,
3. —Að útrýma vínsölu.
4. —Að veita konum jafn-
rétti við menn.
5. —Að innleiða beina lög-
gjöf.
Dauðinn
er einn sterkasti þátturinn í við-
haldi lífsins á jörðinni.
Þ.ví hefir verið haldið fram 'í
trúarbókum vorum, að mönnunum
hafi upphaflega verið ætlað að lifa
um eilífar tíðir á jörðinni, undir
föðurvemd guðs; ef þeir hefðu
aldrei syndgað. En Við nána íhug-
un sjáum vér, að í raun og veru
gæti þessi trúarhugmynd Gyðinga
ómögulega átt sér stað. Þeir, eins
og fleiri fornaldar þjóðir, höfðu
þá mjög óljósar og óþroskaðar
tríiarhugmyndir. En undravert er
J>að, hve lengi slíkar hugmyndir
og trúarkenningar haldast við. Á
dögum Postulans Páls, vom þær í
fullum blóma. Já, og meira að
segja, J>eim er haldið frarn enn i
dag. Þegar eg var barn að aldri,
lærði eg þessa grein, sem stendur
í bréfi Páls til Rómverja, og i
Lúters Katikismus: “Syndin er
af'einum manni ktimin i heiminn,
og dauðinn vegna syndarinnar, svo
hefir dauðinn sér til allra manna
innj>rengt; því allir hafa syndgað”.
— Það er ekki áform mitt að ræða
hér trúmál i kveld; en af því eg
ætla að minnast nokkuð á dauð-
ann og afleiðingar hans, tek eg
þessa trúarhugmynd til íhugunar;
og kemst )>á að þeirri niðurstöðu:
að þótt mennirnir hefðu frá upp-
hafi verið svo heilagir, að þeir
hefðu aldrei syndgað, þá hefði
samt verið algjörlega ómöuglegt,
að J>eir hefðu allir getað lifað um
eilífar tíðir á jörðinni, ef eðlileg
fjölgun hefði altaf haldið áfram,
. en enginn dáið. Því allar þær ó-
teljandi “Trilljónir”, sem hafa
fæðst og lifað á jörðinni, mundu
ekki undir neinum kringumstæð-
um, rúmast á henni. Þrengslin
yrðu svo megn, að ekkert líf með-
al mannanna gæti átt sér stað.
Það er því aðeins fyrir dauðann,
að lifið helzt við á jörðinni. Hann
er það eölislögmál náttúrunnar,
sem allar tegundir dýra og jurta i
heiminum, ldjóta að hlýða og
beygja sig fyrir. Ef dýr og jurtir
dæi ekki jafnóðum sem annað fæð-
ist og vex, útdæi alt líf á jörðinni.
Trén i skóginum, grasið og allar
jurtir, yrði svo þétt, að það gæti
ekki lengur vaxið og lifað. Menn
og dýr fjölguðu }>ar til þrengslin
vrðu svo megn, að alt hlyti að
deyja. Gufuhvolfið eða loftið
yrði svo þétt skipað fuglum, fiðr-
ildum og flugum, að sólarljóss nyti
ekki; og það eitt út af fyrir sig.
nægði til þess að eyðileggja alt líf
á jörðinni. Það er því auðskilið,
þegar að er gáð: að dauðinn er
einn sterkasti þátturinn i viðhaldi
lífsins. Þótt það i fljótu bragði
virðist mótsögn; J>vi venjulega er
hann talinn eitt eyðileggingar afl-
ið, og það er hann að vissu leyti.
— En í stað þess er hann eyðilegg-
ur, kemur oftast fram á sjónar-
sviðið nýtt og fullkomnara líf,
bæði í andlegu og líkamlegu tilliti;
svo hann óbeinlínis styður að fram-
)>róun og framförum á öllum
svæðum menningar og mentunar.
En sjaldan er hann æskunni kær-
kominn gestur, og ekki heldur full-
orðins og framkvæmdar árum. En
J>egar æfikvöldið er komið, mun
flestum kærkomin sú eilífa hvíld,
sem hann gefur.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
og uppgötvunum, er álitið að aldur
mannkynsins skifti miljónum ára.
Að minsta kosti virðast órækar
sannanir fengnar fyrir því: að
mennirnir — á ýmsum stöðum í
heiminum — hafi verið komnir á
býsna hátt menningarstig, t. d. í
Babílon’s ríkjunum. og á Egypta-
landi, löngu fyrir ]>ann tíma sem
sköpun heimsins er miðuð við,
samkvæmt hinu almenna tímatali
voru. En upphaflega, löngu, löngu
fyrir þann menta tíma, voru menn-
irnir á mjög lágu stígi; lifðu
líkt og apar í skógunum, þar til
þeir fóru að hagnýta sér hella til
skýjis og J>æginda. Og þar finn-
ast fyrstu menjar verklegra fram-
kvæmda. Steinvopnin og ýms
önnur áhöld, sem voru fyrst mjög
ófögur og ófullkomin, en þó á
framfaraleið. — En mestar og
greiðastar uruðu breytingarnar í
framfara áttina, þegar mennirpir
voru komnir svo langt, að hagnýta
sér eldinn. Fyrst var mest um
það luigsað, að smíðis gripimir
yrðu að tilætluðum notum, án þess
að taka tillit til útlits eða fegurð-
ar. En býsna fljótt fer ]>ó feg-
urðar tilfinningin að gjöra vart við
sig. Hún vildi hafa sinn skerf, og
sameina fegurð og þægindi — láta
gamalt og úrelt og alt ófagpirt
deyja; en setja ný J>ægindi og
fegurð í staðinn, og þar með ryðja
braut nýjum og fögmm hugsjón-
•um í heimi andans á svæði listanna.
Fegurðar tilfinningin, virðist mér
með beztu og fullkomnustu hæfi-
leikum mannsins; J>ví hún er svo
góður leiðarvísir á framfara bráut-
unum. Hún vekur svo margar og
fjölbrevttar hugmyndir, sem koma
má i verklegar framkvæmdir. Tök-
um til dæmis byggingalistina: Það
má byggja íveruhús svo. að þau
veiti manni öll nauðsynleg þæg-
indi, án |>ess að skreyta þau nokk-
uð; og það má líka byggja kirkj-
ur, svo að þær komi að tilætluð-
um notum, án þess að prýða þær
með turnum, eða nokkru öðru
skrauti. En það er líka aúðgjört
að byggja kirkjur og önnur hús,
svo að J>au veiti öll þægindi, og um
leið skreyta og prýða jvo smekk-
lega, að þau fullnægi þörfum vor-
um og fegurðartilfinningum. Og
að sjálfsögðu eru þau hús í alla
,síaði fullkomnari, sem hafa þetta
hvorttveggja sameinað. Því ein-
mitt fyrir fegurðina gjöra þau
margfalt meira gagn en ófögru
húsin. Þau eru bezti skóli fyrir
alla sem vilja læra af þeim, og
ekki sizt fyrir bygginga-meistarana
sjálfa. Því það tekur talsverðan
tíma og íhugun, að mynda og smíða
í liuga sér: trausta, hagkvæma og
skrautlega bygging, eða hvern
annan smíðisgrip, sem hefir alt
]>étta sér til ágætis. En það
marg borgar sig, því það færir út
sjóndeildarhringinn, eykur og
margfaldar víðsýnið, í hinum víð-
tæka heimi listamannsins. Þar
koma þá fram svo margbreyttar
htigsjónir, sem altaf skýrast; þar
til þær komast í verklega fram-
kvæmd.
r
1
VOR.
Heyrið vorsins ástar óð
óma snjalt um geiminn víða:
nti er glatt um lög og lóð,
lífsins duna sigurhljóð;
fyllir æðar æ.sku blóð,
afl og gleði vonar tíða.
Heyrið vorsins ástar óð
óma snjalt um geiminn víða.
Yfir v'oga, vötn og grund
vorið stráir helgúm Ijóma,
náttúrunnar máttug mund
málar gullin blóm í lund,
hlær við öllu heilla stund,
hlýjar frelsis raddir óma.
Yfir voga, vötn og grund
vorið stráir helgum ljóma.
Er sem himinn, haf og láð
hljómi einum fegins rómi.
Hvrer vill efa eilíft ráð?
Alt er vísdóms rúnum skráð;
tímans hönd er heilög náð,
herrans skín á minsta blómi.
Er sem himfnn, haf og láð
hljómi einum fegins rómi.
Blíða vor! með æsku óð
alt, sem lifir, hjá þér dafnar;
himin þinn er guðleg glóð,
gull í mannsins hjartasjóð.
Steinar tala, rósin rjóð
rís úr mold og blöðurn safnar.
Blíða v'ör! með ævsku óð
alt, sem lifir, hjá þér dafnar.
I
M. Markússon.
L
J
Þannig er því einnig varið í
heimi andans, á svæSi bókment-
anna.—Listamennirnir þar: skáld-
in og fleiri andans snillingar, taka
oftast langan tíma til undirbúnings
og íhugunar, og eru svo vandvirk-
ir, aS þeir, hvaö eftir annaS, yfir-
fara, leiSrétta og endurrita, bæk-
ur og önntir ritverk sín, áSur en
|>eir leggja þau fyrir almennings-
sjónir. Enda mundu framfarir í
heimi listanna vera skamt á leiS
komnar, ef vandvirkni, fegurS og
smekkvísi væru þar ekki æztu ráS-
gjafarnir.
\'ér getum aldrei fullþakkaS
uppfyndinga og listamönnum fyrir
verk þeirra i þarfir mannkynsins;
því þegar þeir deyja, lifir hiS
bezta af verkum J>eirrá eftir þá,
til leiSbeiningar fyrir nýja braut-
rySjendur í heimi listanna — þeir
hat'a uppfyndningar J>eirra og for-
tíSina sér til fyrirmyriaar og IeiS-
arvdsi. Láta hiS órelta og ófull-
komna deyja, til þess aS gefa rúm
öSrum göfugri og háleitari hug-
sjónum, , sem fæSast, vaxa og
)>roskast, og verða aS veruleik í
náttúrunnar og listanna ríki. ÞaS
gamla hlýtur að deyja, svo nýtt
og fullkomnara geti fæðst og lif-
aS sinn ákveðna tíma.
Þannig mun gangurinn verða í
hinu fjölbreytta og margbrotna
framþróunar sigurverki náttúr-
unnar um ókomnar aldir. —
Eg geng að því vísu, að allir til-
heyrendur mínir hafi séð talsvert
af listaverkum. Þau eru svo mörg
og margbreytt hér í Ameríku. En
því miður veitum vér þeim — yfir-
leitt — ekki eins nákvæma eftir-
tekt sem skyldi. Tökum til dæm-
is, hinar mörgu og margbreyttu
vélar af ýmsu tagi. Sannarlega
getum vér mikið lært af þeim, með
nákvæmri eftirtekt. Vér getum,
gegnum þær, skygnst inn í hug-
sjóna heim höfundanna, meistar-
anna, sem hafa smíSað þær; fyrst
í huga sínum og svo komið þeim
i verklega framkvæmd. Og ef vér
viljum staðnæmast, og hafa þar
heimili og erum móttækilegir fyrir
góð áhrif, fer varla hjá því að vér
lærum talsvert, og að víðsýni og
manngildi vort vaxi. Eg hefi dá-
litla reynslð i þessu tilliti, þótt hún
sé næsta ófullkomin. Á æskuárum
minum var eg mjög hneigður fyrir
sjóinn og skipasmíði; veitti þvi
skipum og bátum nákvæma eftir-
tekt; svo myndir þeirra festust
býsna skýrt og vel í huga mínum,
og margar þeirra geymast þar enn
í dag, jafnvel skýrar og greinileg-
ar. Eins eftir að eg kom hingað
til vesturheims, tók eg vel eftir
þeim byggingum, sem mér virtust
fagrar og vel smíSaðar, og reyndi
aS festa sem bezt í huga minn,
hinar ýmsu tilbreytilegu myndir
Jæirra; og þótt eg yrði ekki neinn
listamaöur, hafði þaS góS áhrif á
mig. Því J>að er sá eini verkfræS-
isskóli, sem eg hefi notið, bæöi
hvað snertir húsasmíSi og annaö
fleira. En heföi smiSavinna verið
atvinna mín, nutndu áhrifin hafa
komiS betur í ljós. En eins og
ykkur mun flestum kunnugt, hefi
eg oftast haft smíðar aSeins í hjá-
verkum. —
Eg hefi — einkanlega nú á efri
árum ntínum — oft reynt að stytta
mér stundir, meS því aS taka til
íhugunar ýms snildarverk ágætis-
manna, bæði í andlegu og likam-
legu tilliti, og reynt að brjóta þau
til mergjar; og með þvL viljaS
reyna að komast inn í hugsjóna
heim höfundanna. Komast í svo
náið samband viS þá, sem mér
framast er mögfulegt. Og þótt eg
eygi þá aSeins í fjarska, finst mér
það hafi góð áhrif á mig, og veita
mér mjög mikla ánægju; svo mér
finst eg geti varla solnað, án þess
aS taka mér einhverja fræSandi
og góða bók til að lesa. Þvi þaS
er mér svo inndæl skemtun, að
heyra góða rithöfunda tala; J>ótt
það sé að eins i gegn um ritgerðir
J>eirra og bækur. Hlýða hrifinn á
þá. rétt áður en eg sofna. Sofna
meS orð og hugjsónir þeirra í
huganum. — En hinsvegar vekja,
andlaus og ógöfug ritverk, smekk-
lausir smíðisgripir og ófagrar
byggingar litla eftirtekt hjá Inér.
Veiti eg þeim nokkra eftirtekt eða
athygli, vekur það hjá mér þá j
komnunar í háttúrunnar riki geti
haldiö áfram, meSan jöröin er
hæfilegur bústaður fyrir menn og
skepnur, og lífið er í fullum blóma.
Arni Svein-sson.
Til skemtana.
Herra ritstjóri!
I seinasta Lögbergi 16. Apríl
beinir þú að lesnedum spumingum
um þaö, hvort rétt sé eSa rangt aS
viðhafa nokkrar skemtanir í sam-
bandi við alvarleg málefni mann-
anna. Mig langar til að koma einu
stóru jái. helzt tíu, inn í Lögb. —
Þó eg sé nærri sextugur karl, og
tttan viö allar skemtanir og hæfi-
leika til aS skemta eSa vera skemt;
nema standa utan viS, hlustandi og
ályktandi srona fyrir mig i næði.
Þá finst mér eg geta gert mér
beztu grein fyrir svona ýmsu, sem
hefir haft góðar afleiðingar, eins
og líka þvi, sém hefir haft slæmar.
Og þá sé eg líka glögt, að aldrei
hefir rétt skemtun haft nema góð-
ar afleiðingar, en þar á móti hefir
vöntun skemtana haft slæmar af-
leiðingar, og það fyrir alvarleg
mannfélags mál;'og viidi eg nú
mega segja í fám orðum, hvað það
er, sem mér skilst að vera holl og
nauðsynleg skemtun, fyrir jafnt
unga sem gamla.
Skemtun þessi er fólgin í hug-
myndasmíði (viS að smíða hug-
myndirj til þess eins og að leggja
hugsun, aS höfundarnir hafi verið J fram til vfirskoðunar og sam-
hugsjónasnauðir og aS þá hafi anburðar. ÞaS er lika stöðugt
skort: þekking, smekkvísi o^ feg- að færast í vöxt Jæssi skemtunar
urðartilfinning. Og að öll slík aSferð — en oft hefi eg orðiS bæSi
ófullkomin og ófögur verk, hvort liryggur og reiður viS að sjá hvern-
heldur i'andlegu eSa verklegu til- 'S Ta® mínum smekk og álitij,
liti, |>urfi sem fyrst aö deyja; svo keztu og blómlegustu hugmyndir
þau standa ekki í vegi fyrir því, hafa veriö sundur tættar og fót-
aS annað fegurra og fullkomnara um troðnar (guðs fegurstu blómj,
geti fæðst. vaxið og þroskast. — fyrir sannleikselskandi mönnum,
Eg vel því ráðleggja unga fólkinu sem í sakleysi og einlægni hafa ver-
að íhuga vel og vandlega öll lista- að gera sitt bezta; og með þessu
verk og lesa uppbyggilegar og
góðar bækur, eftir merka og góSa
höfunda, en sneiða hjá öllu ómerki-
legu skáld.Sagnarusli, tælandi og
ginnandi auðlýsingaprjáli. — Já,
látum allan slíkan óþverra deyja
eilífum dauða. —
Það er svo áríöandi — einkum
fyrir ungu mennina — aS athuga
vel, og lesa ofan’ í kjölinn öll lista-
verk, uppbyggilegar og fræðandi
bækur. Geri þeir það, fér
varla hjá því ab áhrifin verði góð,
svo að víðsýni þeirra og hugsjóna-
heimur vaxi. og munu þá margir
þeirra verða listamenn; að minsta
kosti þeir, sem nokkra hæfileika
hafa i þá átt, samfara atorku og
viljaþreki til að ryðja sér braut í
heimi listanna.
Verum ]>ví eðlislögmáli náttúr-
unnar samtaka, meS að láta alt hiö
gatnla, sem er fánýtt og einskis-
vert, deyja, sem allra fyrst, bæSi
í andlegu og verklegu tilliti; svo
vér getum því betur gróðursett og
ræktað annað fegurra og fullkomn-
ara. Og þótt það einnig að
sjálfsögðu hljóti að hverfa og
leyja á sinum tíma, mun ann-
aS enn fullkomnara risa upp
af rústum þess. Þannig mun
Iífiö og dauSinn verSa samtaka að
ryðja braut nýjum og fögrum bug-
sjónum og verklegum framkvæmd-
um á svæöi menningar og mentun-
ar. Svo stöðug framþróun til full-
snúið góöum hug upp i rangsleitni
og óhug. ýÞetta er aðallega í trú-
málumj.
“AS það ætti ekki að þurfa að
kaupa fólk með skemtunum, til aS
sinna neinum af þessum þrem al-
varlegu málefnum: Stjómmálum,
kirkjumálum, né bindindismálum;
og J>eir væru andlega veikir, sem
svo þyrfti að kaupa.” Þetta er
sannarlega athugavert, hjá þeim
neikvæða. Á öll skemtun óskilið
mál meS þetta? Til hvers er þá alt
J>etta, ef engin er skemtun. Stjóm-
mál, bindindismáb og kirkjumál;
ekkert gagn aö neinu, ef ekki er
þar í skemtun, þvi alt rétt lif er
skemtun.
Hvað er óholl skemtun?
Alt sem veldur of miklum sinn-
isæsingum og hefir slæm eftirköst,
bæði andlega og efnalega. — Þetta
vita þeir eldri og reyndu bezt um.
HvaS á að gera, til að útrýma
óhollum skemtunum eða nautnum?
Það á vitanlega aS útrýma hinu
illa með hinu góða; og það illa
verður ekki útrekið með- öSru.
Ekki veröur þaS útrekið með
þjósti eða bannfæringum éða svört-
um lýsingum eða sögum. Þaö eitt
gerir æfinlega ílt verra, eöa að
minsta kosti ekkert gagn.
ÞaS eru einungis hollu skemtan-
irnar sem geta útrýmt þeim óhollu,
annaö ekki. Og styrku og góöu
vinimir eru til þess aö leiða þá
óstyrkari ' og er þaS þaS eina
sem dugir.
F. Halldórsson.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson:—
Kæri herra! Eg óska þér, til
lukku og blessunar i hinni nýju og
þýöingarmiklu stöSu þinni Lík-
legri munt þú af mörgum vera tal-
inn til að leggja fáfræöingnum og
litilmagnanum liðsyrði, en margir
aðrir, af þessum svo kölluöu ment-
uðu eða lærSu mönnurn þjóSar
vorrar hér yestra.
í Lögbergi 16. Apríl s. 1. eru
spurningar, sem lesendur blaðsins
eru beSnir aS svara. Fyrir mitt
leyti vil eg stuttlega gera það hér-
x. Já, skemtanir tel eg ekki
einungis heppilegar til aS laða fólk
aö alvarlegum og nytsömum félags-
skap, heldur einnig bráð nauösyn-
legar, til þess að efla félagsskap-
inn og viðhalda honum.
meö
2. Af því að mannsandanum eða
sálinni er ásköpuð þörf fyrir hvild
og hressingu, eins og líkamanum er
ásköpuS þörf fyrir hressingu og
hvíld frá daglegum störfum og
striti.
4. spumingunni verður ekki
svarað i stuttu máli svo vel sé.
Þaö ætti þó aS vera augljóst, að
skemtanir ættu aS vera þess eðlis,
að þær geti ekki haft siöspillandi
eða vond áhrif á tólk. aS neinu
leyti. Eg skil ekki vel hvað meint
er ' meS því: “hvað langt eiga
skemtanir að ganga”. Tímalengd
sem skemtanir taka upp, veröur
auðvitaS ætíð aS vera takmörkuö.
Hverskonar skemtanir eigi um
hönd aS hafa, er ekki vandalaust
að tiltaka. Það er vitanlegt, að
einn hefir oft leiSindi og sára hug-
raun af J>vi, sem annar hefir un-
aðslega skemtun af. Það er ef til
vill J>örf fyrir eins mikla marg-
breytni i skemtunum, eins og
margbreytni er mikil í eðli og til-
finningum mannanna. Áhugalaust
og alvörulaust fólk, sem komiS er
á fullorðins aldur, er frá mér aö
sjá, helzt einkis virði fyrir mann-
félagiS. Það eru einmitt mennim-
ir sem standa iöjulausir á torginu
allan dagijjn ; þessvegna eru skemt-
anir einnig nauðsynlegar, til aö
draga athygli þess aö einvherju
nytsömu og alvarlegu.
M. Tngimarsson.
Svör og athugasemdir.
Eg varð hrifin af spurningum Dr.
Sigurö^r, ritstjpra Lögbergs, tvið-
vikjandi þvi, hvert heppilegt væri aS
hafa skemtanir og- gleöskap til þess
að ná mönnum inn í alvarlegan fé-
lagsskap og halda þeim þar.
ÞaS verðu gaman aS heyra hin
ýmsu svör manna upp á þessar spurn-
ingar. Sjálf ætla eg ekki aS svara
þeim nema aS ofurlitlu leyti, því þaS
er ekki svo lítill vandi.
Hiklaut get eg ekki játað, að þaS
sé heppilegt. Það má til aS hafa
skemtanir í alvarlegum félagsskap,
vegna J>ess aS manneöliö er vanheilt,
hugsunarhátturinn er sýktur hjá
mörgum. Félögin geta ekki starfað
án töluverðra peninga, svo þau neyö-
ast til að neyta ýmsra bragða og hafa
að meira eða minna leyti óhollar
beitur á önglunum til þes að ná sam-
an peningum. Það eru ef til vill
dæmí þess, að meSlimur, sem dregst
inn í bindindisfélagsskapin til dæmis
sökum skemtana, sem hann hefir að
bjóða, verði áhugasamur, starfandi
meðlimur, en það eru einstæö dæmi.
Lang flestir liafa áhuga fyrir skemt-
unum að eins, sérstaklega dansinum.
Eg var áður meömælt dansi á fund-
um, vegna þess, að eg þekki aödrátt-
araflið, sem hann hefir; en nú lít eg
á hann með vanþóknun, þvi nú er eg
búin að sjá með eigin augum aS stór
hópur1, bræ@ra og systra Jkemuir
sjaldan eða aldrei á fund fyr en
skemtanir eiga að fara að byrja.
Málefnið, sem verið er að berjast
fyrir, er af mörgum látiS liggja milli
hluta. ÞaS er hvort tveggja að
bindindisfélögunum verður tiltölulega
lítið ágengt; engin félög slá eins
mörg vindhögg eins og þau, engin fé-
lög vinna jafn mikið fyrir gíg eins og
bindindisfélögin; þau sá miklu, en
jarðvegurinn er víða grýttur og fú
inn, svo uppskeran veröur rýr.
Hugsunarhátturinn er sjúkur og
mannfélagiö í heild sinni.
A8 minu áliti er nauðsynlegt að
hafa eitthvað fjörgandi í hverjum
félagsskap, svo sem upplestra og
söng. Upplestrarnir ættu þó ekki
ætíð að vera skoplegs efnis; J>eir
ættu einnig að vera alvarlegir og
koma við kaunin og slá á tilfinninga
strengina. þar sem þeir eru til, sem
eg vona að sé í hvers manns sál.
Eg hefi nú sagt mitt álit í Jæssu
máli. Eg veit, að eg er hér nokkuö
berorð^ en þaS getur ekki orðið hátt
á mér fallið. '
Ragnh. J. Davíðsson.
*
Ahugi.
Hálfdán lávarSur, mjög góðkunn-
ur stjórnmálamaöur á Englandi, hélt
nýlega ræðu til ungra manna.
Eitt ráð. Eg gef ykkur að eins
eitt ráð, sagði hann, verið áhugasam-
ir, með opin augu fyrir þeirri miklu
fegurð og göfgi, sem til er í heimin-
um. Ekkert er eins hættulegt og að
vera trúlaus á alt og sama um alt.
Þeir menn, sem svo eru geröir, eru
þjóðfélaginu minna en einskis viröi.
Þeir eru beint skaðlegir.
Eg held því fram, og eg hefi ekki
all-litla lífsreynslu og mannþekkingu
að baki mér — að hver ungur maSur,
sem vill gera eitthvað og komast eitt-
hvað í heiminum, verði aS hafa á-
hugamál, sem fylla sál hans og láta
hann skilja hvílík dýpt og göfgi er í
hinum miklu áhugaefnum mannlifs-
ins. Þaö skiftir næstum engu, hvort
Jætta áhugaefni er trúin, vísindin,
heimspekin eða hinar fögru listir.
Það sem öllu skiftir, er að vera úti á
hinum djúpu vötnum, og vera kom-
inn í náið og innilegt samband við
einhverja aSalgrein heimshugsunar-
innar, að geta veriö heitur. hrifinn
og fullur af lotningu fjvir því, sem
mikið er og göfugt, þvi að sá skiln-
ingsgóði og lotningarfulli hugsunar-
háttur gerir manninn áhugasaman og
bjartsýnan og þúsund sinnum meira
virði aS hverju verki sem hann
gengur.
Andstœða. Ekkert er jafn kæfandi-
i drepandi eins og það skilningslausa',
! dauða sjálfstraust, sem alt af horfir,
inn á við, sem tilbiðttr sjálft sig, en
; lítur með blindri fyrirlitningu á þá
| fegurð og dvrð, sem snild ,og vizka
! mannsins hefir verið að skapa í mörg
| þúsund ár. Slíkir menn eru dauðir,
| jafnvel meðan þeir lifa. Frá þeim
kemur enginn andi, engin hugsun,
ekkert nýtilegt starf, því að t þá
vantar hreifiafliS: bá sterku tilfinn-
! ingu fyrir þv,í sem vel hefir verið
gcrt á undan þeim, og löngunina til
j að halda áfram i sömu stefnu.
íslenska áhugaleysið. Þessi viS-
j vörun Hálfdáns lávarðar mun engu
síöur eiga við hér en í ættlandi hans.
j Við höfum orðið fyrir því mikla ó-
j láni að eiga tiltölulega mikið af á-
j hugaleysingjum. sem er sarna unt alt,
j sem er utan við þeirra eigið skinn.
Og J>eir eru ætíS og undantekningar-
laust steinblindir fyrir “heimsljósun-
um miklu”. Það eru þessir andvana-
fæddu menn. sem eru aöal hindrun
j umbótanna í landinu. Þeir hafa eng-
j in rök, ekkert nema tómahlátur skiln-
' iugsleysisins. í þeirra augttm er
j skógræktun barnaskapur. Úr þvi
j landið er bert og kálgarðar í kring
um bæina þá er ó{>arfi að breyta
j nokkru unt. íþróttirnar eru hlægileg
j vitleysa, betra aS sitja inni á knæpum
j og drekka sig fullan. Alþýðumentún
skaSleg heimska. “Skríllinn” á að
vinna og hlýða möglunarlaust. Auk-
inn siöferSisþroski til ills eins “því
að hart er að taka af þeim fátæku
réttinn til að svíkja”. MaSurinn, sem
sagöi þessi orð — og það er þjóð-
frægur borgari í Rvík—hefir líklega
ekki gætt að því, aö fátæklingar nota
sér ekki oft J>ennan “rétt”, einmitt af
því að þeir eru sjaldan alveg hug-
sjónalausir.
Tvennskonar menn. Það er mikil
nauðsyn fyrir þjóðina að þekkja
greinilega sundur J>essar tvær teg-
undir manna, þá sem trúa á eitthvaS
göfugt, J>á sem hafa hugsjónir, þá
sem vinna að því að bæta heiminn,
þá sem skoða sig þjóna hollra hug-
myncía og h'Íná', sem trúá ög"virSa
ekkert sem er fyrir utan þá, sem eng-
ar hugsjónir hafa, sem að engu vilja
vinna nema eigin gagni, og sem á-
líta sig þungamiðju heimsins er alt
verði aö lúta. Það er létt aS greina
menn samkvæmt þessu—eftir ávöxt-
unum. Þá kemur í ljós, aS sumir
þeir menn, sem mest er gumað af,
hafa alls ekkert gert, og geta aldrei
neitt nema að tylla sér á tá. Þeir
hafa vanrækt, eSa ekki haft hæfi-
leika til, að verða hrifnir af göfug-
um viöfangsefnum; þess vegna orð-
ið tómir, haldlausir og kraftlausir.
Hins vegar eru aðrir menn, sem litiö
ber á, fyr en þeir eru fallnir frá. ÞaS
eru J>eir sem “hlaupa i skaröið” þar
sem hættan er mest og fæstir vilja
standa. Það eru J>eir sem lyfta, þar
sem hinir áhugalausu draga niöur.
Fyrir þá, sem standa á vegamótum,
skiftir öllu hvora leiðina þeir lenda.
Þeim, sem þora að fara þrönga og
grýtta veginn, sem til lífsins leiðir,
verður varla fenginn betri leiöar-
steinn en þessi orð Goethes: “Opn-
aðu hug og hjarta fyrir öllu því sem
stórt er og göfugt í samtíS þinni, og
þá munu verkin fylgja.”
J- J-
—Skinfaxi.
Líkamleg og siðferðisleg ábyrgð
kvenfólksins.
Dr. Mary Crawford hélt ræSu
fyrra mánudagskveld um “Líkam-
lega og siSferðislega ábyrgS
kvenna”. Lagði hún aöaláherzl-
una á það, hversu nauösynlegt þaS
væri að allar konur og stúlkur af
öllum stéttum nytif upplýsingar um
alla kynferðissjúkdóma, matar
hæfi og hreinlæti. Hún fór einn-
ig um það mörgum orðum og
skynsamlegum, að konur þyrftu
aS kynna sér ásigkomulagið eins
og þaö er í sambandi >jiS ósiðferð-
isstofnanir, og afleiSingar þeirra
á heilsuna. Sýndi hún fram á, aö
fyr en bæSi menn og konur skoS-
uöu það frá því sjónarmiöi, jafn-
framt ósiöferðishliöinni, væri engra
umbóta aS vænta. Nákvæm J>ekk-
ing er þaS sem til þess þarf aö
vinna að hverju máli sem er; og
það ekki sízt í þessu máli.
Þarfir innflytjenda stúlkunnar.
Mrs. Genevieve Lipsett Skinner
talaði á fundi kristilegs félags
ungra kvenna fyrra þriöjudags-
kveld. Var umræöuefniö: “Þ’arf-
ir innflytjenda stúlkunnar”. Hún
kvaö tvær tegundir ástæSa fyrir
því, aS stúlkur yfirgæfu ættlánd
sitt og flyttu hingaö; önnur væri
sú aS J>ær ættu við örðug kjör og
þröngan kost að búa heima fyrir
— og þær væru margar; hin væri
sú að stúlkur heyrSu ósköpin öll
af VesturheimsdýrSinni, auönum
þægindunum, hægSinni og frelsinu.
Það heillaði huga J>eirra — og þær
væru jafnvel fleiri sem fyrir þær
ástæður kæmu, en hinar. Þessar
síöarnefndu hefSu oft verðið gint-
ar hingað með fögrum loforðum,
sem stundum heföu fariö út um
þúfur ]>egar á átti að herða.Þær
hefðu orðiö fyrir vonbrigðuin og
þeim væri hætta búin. Þær væru
margar J>eim •kostum gæddar að'
geta orðið góðir borgarar ef þeim
væri bent á réttar leiðir, en þær
raddirnar, sem til ógæfunnar leiða,
létu oft liærra til sín heyra en hin-
ar. Mrs. Skinner sagði frá eigin
reynslu og þekkingu, þegar hún
var skólakennari. Kyntist hún þá
persónttlega mörgum konum og
stúlkum, sem voru ekki mönnum
sinnandi af leiðindum og von-
brigðum. Lagði hún áherzlu á
J>að, hversu nauösynlegt væri að
mynda félag, er það hefði fyrir
markmið aS leiðbeina stúlkum er
þannig kæmu; er það samskonar
hugmvnd og Lögberg mintist á
siðast að íslendingar ættu að koma
á framkævmd.
Kveufrelsis-félögum fjölgar á
Þýzkalandi.
Konur úr öllum héruðum
Þýzkalands komu nýlega saman í
Berlin til þess að halda þing í
sambandi við 20 ára afmæli kven-
félagsins þýzka. Frú Stitt, fyr-
verandi forseti félagsins kom
þangaS frá Dresden og hélt mik-
inn fyririestur um vöxt og viS-
gang félagsins. Félag þetta er í
sambandi viS alj>jóöafélag kvenna,
var stofnaö fyrir 20 árum af
Augustu Schmidt og fáeinum öðr-
um konum, til þess að efla vel-
ferð kvenna andlega og líkam-
lega og einkum stjórnarfarslega.
Þá vóru 34 deildir í félaginu, nú
eru þær 1550. Félagiö fylgir eng-
um stjómmálaflokki fremur en
öðrum, en styöur þá sem kvenrétt-
indi vilja efla, hverjum flokki sem
þeir tilheyra.
Hvaðnoefa.
VerkamannafélagiS á Englandi
hélt nýlega ársþing sitt. Var þar
samþykt tillaga með 233 atkvæS-
um gegn 78, þess eftis aS skora á
verlcamanna þingmenn. aS fara
sínu fram á þingi, óháðir Fram-
sóknarflokknum. Var því haldið
fram, að gjörðir Framsóknar-
flokksins væra andstæSar mörgum
málum verkamanna og stæSu ýmsu
fyrir þrifum, er til bóta mætti
verða.
V’erkfall mikiö hefir staðið yfir
í koparnámum i Michigan, síSan
23. Júlí í fyrra. Er nú verkfalliS
á enda og lyktaSi með algjörðum
ósigri verkamanna. Þeir gengu að
því að leggja niður kröfur sínar
um hærra kauup, betri aðbúnaö
og styttri vinnutíma, og taka til
starfa meS nálega sömu kjörum
og áður. Þetta verkfall hefir ver-
ið eitt meðal þeirra allra alvarleg-
ustu og skaðsamlegustu.
Félag loftsiglingamanna á Frakk-
landi og Rússlandi hefir í hyggju
48 reyna flug frá St. Pétursborg
til Peking. Eru þaS 5,600 mílur
vegar.
Brezka stjórnin hefir hafið mál
á móti námufélagi í Wales, þar
sem fjöldi manna dó af námaslysi
af sprengingu í Október i haust.
Er því haldið. fram, aS eigendur
námanna hafi á ýmsan hátt brotið
námalögin, og af þvi hafi slysiö
stafað.
180,000 tóbaksgeröarmenn hafa
gert verkfall á Italíu; krefjast
hærra kaups og styttri vinnutíma.
Stjómin hefir einkaleyfi á tóbaks-
gerð á ítalíu, eins og á Frakklandi.
RáSgjafi hervama i Nýja Sjá-
Iandi hélt ræöu 16. þ. m., þar sem
hann kvað þáS óviturlegt að verja
$500.000 á ári til brezka hersins.
Hann vildi láta þaS fé vera í Iand-
inu og vera viS hervömum búinn
heima fyrir, en ekki treysta ein-
ungis á vemd annara. “ÞaS
er ranglátt”, sagöT hann, “aS fé til
herkostnaSar sé sent til Englands
og öllum yfirráðum slept yfir því.
Hví skyldum vér ekki sjálfir og
heima fyrir ráSa því aö einhverju
leyti, hvemig voru eigin fé er var-
ið? Hví skyldum vér ekki svo
mikiö sem eiga atkvæöi um þaS,
hvenær og af hvaöa ástæðum og
við hverja, lagt væri út í stríS, ef
vort eigiö fé er lagt til þess?”
• Endurtalning atkvæða fór fram
í Michigan eftir síSustu kosning-
ar. VarS J>aS til þess aS tvö hér-
uS hafa bæst viS vínsölubanns-
svæðiS. Alls vom þar greidd at-
kvæöi um vínsölubann í 12 héruS-
um og unnu bindindismenn i 10.