Lögberg - 07.05.1914, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. MAI 1914
5
The Empire Sash & Door Co.
Limited
HENRY AVE. EAST
WINNIPEG
VIÐUR ”LATH“ ÞAKSPÓNN
Fljót afgreiðsla.
Ábyrgst að kaupendur séu ánægðir
THG ALBERT 60U6H SHPPLY 60.
BYGGINGAEFNI
OG ALLAR VIÐARTEGUNDIR
OFFICE: 411 TRIBUNE BUIiiDING - - PHONE: MAIN 1246
WARE HOUSE: WALIi SREET. PHONE: SHERBROOKE 2665
björtustu vonir og hugsjónir úra
hinn bezta árangur af framtíöar-
starfi þessarar stofnunar, því hvaö
sem öllu liöur ööru, þá er þessi
stund áreiöanlegt stund hinna
miklu möguleika,
Skólastofntinin sjálf hefir þá í
sér fólgna.
Um mig fer stundum eins og
köld og hressandi bylgja, er eg
hugsa um þá miklu möguleika, sem
náttúran ber í skauti sínu. Mér
finst stundum, er eg hugsa um þá,
aö brjóstiö þenjast út af ósegjan-
legri þrá eftir þvi aö fá að lifa
lengi, til þess að sjá, hvaö úr þeim
veröi og hvernig þeim reiði af, í
því aö komast í framkvæmd.
Sérstaklega á þetta sér staö, er
eitthvert mikilvægt málefni er tek-
i® upp og því hleypt af stokkun-
um. Það er sams konar tilfinning
og stundum grípur mig, þegar eg
held í fanginu á litlum bamungum
dreng. Eg hugsa þá oft: Þetta
mannslíf, sem eg nú held á, er
fult af möguleikum framtíSarinn-
ar. Hvaö veröur úr sveini þessum?
Hvaö veröur af þeim 'frjómögnum,
sem blunda í sálu litla drengsins;
fá þau aö njóta sín, eöa á ekkert
tir þeim aö veröa? Ef til vill held
eg nú í fangi minu á græöikvistin-
um aö einu hinu fegursta tré, sem
vaxa á í skógarlundum þjóöar
minnar; ef til vill ber eg nú á
armi mér heilan stórkafla úr verö-
andi sögu þjóöar minnar, hulinn í
þessum litla blómaknappi. Hver
veit? Jú, þaö er einn sem veit;
guö veit, hvaö úr honum veröur.
— Yfir smábaminu á armi mér
svífa vonir og möguleikar fram-
tíöarinnar og eilíföarinnar. Líkt
er því fariö á þessari stundu, er
veriö er aö halda hátíölega fvrstu
skóla uppsögn viö stofnun þessa.
Þessi skóli er bam hinnar miklu
vonar og hinna mörgu möguleika.
Hver veit? Jú, guö veit hvaö úr
honum veröur. Ef til vill á hann
aö veröa þvöingarmesta skrefiö,
sem stigiö iiefir verið í þjóðernis
og kristindóms baráttunni, meðal
íslendinga hérlendis. Ef til vill á
hann með timanum að veröa stór
og voldug stofnun, sem gefur
menningarstraumnum framrenslu
afl og knvr þá inn á nvjar brautir.
Ef til vill á hann að verða sterk og
ósveigjanlég máttarstoð Islenzku
kirkjunnar hér í landi. Ef til vill
veröur hann uppsprettulind. sem
vex og verður að mikilli elfu. er
skapar nvtt líf ' og nýjar fram-
kvæmdir, markar nýtt timabil i
sögu vorri. og hefur virðingu
þjóöar vorrar hátt í augum hins
mentaöa heims. Vér vitum það
ekki, Guö veit það. En fyrir hug-
sjón minni svífa vfir þesstt kæra
ungbarni, hinar glæsilegustu vonir
og stórfengilegustu möguleikar á
þessari stund.
En fyrst þessu er þannig variö,
fyrst þessi stund er stund hinnar
björtu vdnar og hinna miklu mögu-
leika, þá er hún um leiö stund
hinna stóru hlutverka. Þ’au rísa
upp fyrir sjónum vorum hvetjandi,
áminnandi, alvöruvekjandi. Því
hugsjónir vorar, draumar. vonir
og möguleikar komast aldrei í
framkvæmd, fá aldrei uppfyllingu
sína, verða aldrei aö virkileika,
nema þvi að eins að allir, sem hlut
eiga aö’ máli, gjöri sér þaö ljóst,
séu fúsir á aö taka upp hver sitt
hlutverk, og gjöra skyldu sína,
hvaö sem kostar.
Kennararnir hafa sín hlutverk;
þau eru mjög háleit og stefna aö
göfugu marki. Einu sinni var þaö
skoöun manna á kennara starfinu,
að þaö væri aðeins fólgiö í því að
kenna svo og svo mikið. I sögu
t. a. m. þótti mest um vert, að
hrúga saman sem mestu af viö-
burðum, mannanöfnum og ártöl-
um. Var þaö dauðasynd næst að
muna ekki t. d. dauðadag Cæsars;
en þótt persóna hans, lyndisein-
kunn og þýðing hans fyrir samtíð
og eftirtið stæði ekki eins ljóst í
huga nemandans, það gjörði minna
til, og svona var það í öllum grein-
um. Aðferðin við kensluna var
líkust þvi, aö verið væri að troða
í poka; aö troða og troða, svo að
hann yrði sem útþembdastur. Það
var höfuö atriðið; hvort það yrði
veruleg eign nefandans, það gjörði
minna til. En sú skoðun er horfin
eöa er að hverfa, sem betur fer.
Hlutverk kennarans nú er að gjöra
nemandann aö mentuðum manni,
fremur en að lærðum manni;
manni, sem er þaö 5 orðsins beztu
merkingu. Því betur sem það
tekst að hjálpa nemandanum til
þess að uppala hæfileika sína, ná
valdi yfir sjálfum sér og auka
skarpleik sinn og dómgreind, og
göfga vilja sinn; því betur sem
það tekst, þess nær kemst kennar-
inn að takmarki hlutverks síns.
Og þar viö bætist svo við kristi-
legan skóla, þaö hlutverk, að
hjálpa nemandanum til þess sem
æðst er i heiminum, að verða að
sannkristnum, trúuöum manni.
Vart mun vera til hærra og
göfugra takmark en þetta. Og
þar sem skóli og kirkja vinna sam-
an í réttum anda og hjálpa hvort
öðru, þar geta menn átt von á
hinum bezta árangri. •— Hlutverk
kennaranna er mikið og göfugt,
en það nær aldrei rétt tilkangi sin-
um, nema nemendumir skilji líka
rétt sina köllun og hlutverk; skilji,
að það er líka mikið undir þeim
komið, hverja heill og heiður skól-
inn á að fá. Ef þeir leggja kapp
á aö læra. og læra rétt, leggja kapp
á aö veröa göfugri, mentaöri og
sannari menn með hverjum degi
sem líður, leggja kapp á að standa
hærra að andlegum og sigferðis-
legum þroska við hverja skóla
uppsögn aö vori, en þeir stóöu
haustinu áður; ef þeir beita aö
þessu, öllum kröftum sinum og
líkama, og verði þessi áhugi aðal
aflið og andinn í skólalífinu, mun
ekki fara hjá því, að sá skóli hefst
upp til vegs og virðingar og lætur
dýrðlegar vonir rætast og mögu-
leika verða að framkvæmdum.
En það eru líka fleiri en kenn-
arar og nemendur, sem hafa hlut-
verk við slíkan skóla sem þenna.
Allur hinn íslenzki almenningur
hefir einnig sín hlutverk. Fyrst
og fremst hið íslenzka kirkjufélag,
og þar næst allir þeir, sem íslenzk-
um fræðum og menningu unna.
Hlutverk allra þeirra er það að'
styöja þenna skóla, elska hann og
skipa sér utan um hann í þétta
fylkingu. Og islenzka þjóðin
heima á líka að veita honum eftir-
tekt og allan þann stuðning, sem
henni er unt. Ef allir skilja rétt
sín hlutvcrk, þá er enginn efi á því,
að hinar beztu og dýrðlegustu hug-
sjónir, vonir og möguleikar, geta
'fengið sína beztu uppfyllingu.
Ekki veröur þaö útmálaö í stuttu
máli, hverja þýöingu þaö hefir
fyrir íslenzka timgu, bókmentir
og þjóðerni, ekki aðeins þjóðar-
brotsins hér vestra, heldur þjóðar-
heildarinnar yfir höfuð, ef þessi
skóli gæti átt sér glæsilega, fram-
tið, vröi stór og sterkur og full-
kominn í öllum greinum. Vér fs-
lendingar skipum nyrösta arminn í
menningar fylkingu heimsins, og
eitt sinn var merki vort hátt, svo
það bar við himininn sjálfan, og
þaö sem hin íslenzka þjóð þá lagði
fram til hinnar alþjóölegu menn-
ingar, var ekki lítið, þótt þaö bæri
ávöxt sinn fyrst löngu síðar. Þá
var gullöld vor í bókmentunum, en
hvaðan spratt hún? Hún spratt
frá þeim litlu en frægu skólum í
Odda og Haukadal, og í skóla
J;ns hins sæla Hólabiskups, ög-
mundssonar. Skólatækin, sem þeir
menn höföu, sem þar áttu að kehna
og læra, voru fá og smá, í saman-
burði viö tæki vorra tíma; en hin
nána sameining skóla og kirkju
skapaði þetta lif, sem enn þá ber
ávöxt sinn víða um veröld. Ný
gullöll getur komið enn, og einn
af hinum dýru möguleikum þessa
skóla er sá, að veröa einn þáttur-
inn í starfinu aö skapa þessa gull-
öld. Og mikið má vinna, ef vér
getum orðið samtaka. Mætti þá
svo enn fara, aö vér gætum meö
gleði sungið og sagt meö skáldinu:
“í norðurarmi fylkingar fána vom
má sjá,
Og frelsi, trú og þjóðlíf er skrifað
þar á.
Sá guð, sem gaf oss landið og
lífsins kösta val,
Hann lifir i því verki, sem fólkiö
gjöra skal.”
Og hvaö guö, sem gaf oss land
vort og lífsins kosta val„ og lifir
í lífsverki íslenzku þjóöarinnar,
ætlast til að vér hinir fáu og smáu
leggjum fram heiminum ti! bless-
unar, það er enn þá hulið í hans
ráði. En oft höfum vér séð, að
guö útvelur hiö smáa, til aö fram-
kvæma stórvirki, og þaö mikla í
guðsríki byrjar oftast nær smátt,
“það byrjar sem blærinn,
sem bylgjum slær á rein,
en brýzt svo frain sem stormur,
svo að hryktir í grein”.
En vér verðum að vera trúir guði
og sjálfum oss, trúir í hinu smáa,
til þess að vér getum orðið verk-
færi guðs og framkvæmt vilja
hans. Mest af öllu er því áríð-
andi, að vér, að hin íslenzka þjóð,
bæöi vestan hafs óg austan, skilji
sín hlutverk og fylgi þeim svo með
festu og trúmensku í smáu og
stóru,
“því sú þjóö, sem veit sin hlutverk
er helgast afl um heim,
eins hátt sem lágt má falla
fyrir kraftinum þeim”,
segir skáldið.
Látum oss hafa þetta i huga á
þessari stundu um þenna skóla.
Látum það ekki beygja oss, að
hann er lítill nú, heldur setjum oss
fvrir sjónir, að “mjór er mikils
vísir”, og að þessi skóli, svo smár
sem hann er. getur með tímanum
orðið stór og hár. Eg sé fyrir
mér í anda háreistar hallir, sem
glymja af stórfengilegu, hreinu
og djörfu skólalífi, þrungnu af
f jöri og funa heilags áhuga og
brennandi kappi. Eg sé þennan
skóla orðinn að höfuðbóli íslenzku
menningarinnar hér vestan hafs,
sem drekkur í sig og ummyndar
öflin frá hinu stóra heimslífi í álfu
þessari, og veitir svo straumnum
aftur inn í þjóðlíf Islands heima
með margbreytilegum viðskiftum
í andans heimi.
Eg sé hér fyrir mér forvígi og
útvörð hinnar islenzkti tungu, út-
vörð, sem knýr hið mikla heimslíf
til þess að veita oss virðingu og
hafa það í heiðri, et oss er dýr-
mætt. — Hin islenzka tunga er
ekki neitt útkjálka mál, því sú
skoðun er að verða æ ríkari meðal
málfræðilegra vísindamanna, að
hún sitji á bekk með hinum gömlu
göfugu mentamálum, latinu og
grísku; klassisk í byggingu sinni
eins og þær, þroskandi eins og þær,
fyrir þá sem læra; hin bezta
æfing fyrir hugann og hugsun-
ina. Að útvega henni virðingu og
öndvegissæti meöal þjóðanna, það
er stórt og göfugt hlutverk; það
er líka hlutverk þessa skóla að
leggja fram sinn styrk til þess.
En eit ttakmark er yfir öllu,
stærst og dýrðlegast, sem hægt er
aö vinna að. — Það er þaö hlut-
verk aö efla guðsríki á jörðinni.
Það stendur yfir öllum þjóðrækn-
is hugsjónum. Og sá skóli, sem
stefnir að því, aö uppala, ekki ein-
asta göfuga nemendur, heldur
einnig kristna menn, í æösta skiln-
ingi þess orös; sá skóli, sem vinn-
ur aö því, aö efla og aukua hina
lifandi, kristilegu trú meðal þjóð-
ar sinnar; já, sá skóli á sér hið
hæösta takmark.
Og eg sé einnig,; á þessari von-
arinnar stund, fvrir mér þá tíð,
er þessi skóli er oröin hin öflug-
asta máttarstoð kirkju vorrar og
kristindóms; meginstöö, þaðan
sem út koma sannmentaöir menn
og vel undirbúnir aö styðja guðs-
ríki, í hvaða stöðu, sem þeir kom-
ast í; menn, sem veröa lifandi
prestar eða áhugamiklir kristnir
leikmenn í söfnuöum vorum,
menn, sem hafa lært aö beita sér,
fórna sér fyrir hugsjónir sínar,
lært aö gefa út sitt eigið hjarta-
blóö, til þess aö ná sigri. — Ef
allir hlutaðeigendur þessa unga
skóla, allir Vestur-Tslendingar
skipa sér í þétta fylkingu um
hann, með kærleika og fómfýsi,
þá er enginn vafi á, aö á þessum
skóla rætast oröin, sem Jón biskup
Arason sagöi, er hann var leiddur
út til lífláts síns: “Héðan mun
margur göfugur útganga!”
Þaö skal þá veröa ósk hjarta
vors á þessari stundu hinnar miklu
vonar, og hinna miklu möguleika
og hlutverka, þessi ósk að héðan,
frá þessum skóla, mætti marg-
ur göfugur út ganga! Með þeirri
ósk vil eg svo enda þessi mín fá-
tæklegu orð, og þakka fyrir þann
heiður, sem mér hefir hlotnast,
meö því að fá aö vera hér við þessa
fyrstu skólauppsögn þessarar
mentastofnunar. — Guö drottinn
blessi framtíð skólans, starf kenn-
aranna, nám nemendanna, hlut-
verk hans og stðrf öll saman, og
Iáti vorar beztu vonir meir en ræt-
ast á komandi tíö, Islendingum hér
til heilla og blessunar og heiðurs,
og alþjóö vorri til sóma og frægö-
ar. Drottinn veiti því oröi sigur!
Heygulskapur.
E. L. Taylor, Gimli þingmaður-
inn kunni, hélt nýlega fyrirlestur
um bei#ia löggjöf fyrir íhalds-
manna klúbbinn. Ot af ósannind-
um og rangfærslum og hræðileg-
um missögnum Taylors í sambandi
við þetta mál, skoraði F. J. Dixon
á hann aö koma fram og mæta sér
á opinberri almennri samkomu, til
þess aö ræöa beina löggjöf á sann-
gjarnan hátt. Taylor þoröi ekki
að mæta honum, þoröi ekki aö
halda fram máli sinu, nema þar,
sem hans eigin skoðanabræöur
voru — eða réttara sagt, þar sem
allir voru reiðubúnir til þess aö
gjöra hans staðhæfingar að sínum
eigin — gjöra sér gott af öllu sem
hann sagöi; gleypa það eins og
það kom fyrir. Eru þaö betri sann-
anir fyrir því, hversu litla trú
Taylór haföi á málstað sínum, en
nokkuö annaö, að hann, stjóm-
málamaðurinn og lögfræðingurinn,
þorir ekki að kappræða þaö; og
beztu sannanir fyrir því, hversu
hann álítur aö málið sé heilbrigt á
hina hliðina og veikt á sína, að
hann telur því betur borgiö frá
sinni hlið, ef því sé haldið i þögn
og dimmu.
“Ef maöur vill eyöileggja gott
mál og koma fram röngu” sagði
Benedikt sál. Sveinsson, “þá er
um aö gera að ræöa þaö aðeins í
kyrþey; gera það tortryggilegt á
þann hátt aö sem minst sé látið á
bera. Tala um það, þegar enginn
andstæðingur er viöstaddur, og
sérstaklega þarf aö foröast aö þaö
sé rökrætt í áheym fólksins.”
Taylor veit hvaö hann syngur.
En Dixon skrifaði opiö bréf til
hans og birtist þaö hér í lauslegri
þýöingu eftir annan ritstjóra “Al-
þýöuvinarins”.
Opið bréf til E. L. Taylor.
Winnipeg, 28. Apríl 1914.
Mr. E. L. Taylor, K. C.,
Winnipeg, Man.
Herra:
Með því að þér hafið ekki haft
lítillæti til að svara tilboði mínu um
að kappræða opinberlega beina lög-
gjöf á móti mér, er eg knúinn til aö
svara hinni ósvífnu árás á þá
umbótastefnu á annan hátt.
Eg er ekkert hissa á aö þér veigrið
yður við að kappræða þetta mál opin-
berlega. Það er svo langtum auð-
veldara að ráðast á beina löggjöf í
hópi afturhaldsmanna. á klúbb-fund-
um þeirra, þar sem allri ósvífni, sem
hægt er að sýna einu málefni, er
fagnaö og klappaö lof í lófa, heldur
en að flytja mál sitt fyrir alþýðu
manna og láta hana dæma um gildi
þeirrar kenningar, sem þér hafið svo
mikinn áhuga fyrir að sannfæra aðra
um.
Þar sem eg er einn af þeim er
halda fram beinni löggjöf, þvi stjóm-
arfyrirkomulagi er þér lýsiö á þá
leið, aö sé að eins leifar og afskræmi
steinaldarinnar, get eg ekki látið hjá
líða aö svara í fám orðum hinum
staðlausu staöhæfingum yðar um þá
stefnu.
Þér eruð auðsjáanlega mji% á-
nægöur meö stjórnarfarið eins og
þaö er í Manitoba. En hin glopru-
lega staöhæfing yöar mun sannfæra
fáa, sem ekki heyra til afturhalds-
klíkunni, um þaö, aö núverandi stjórn
eigi ekkert þaö t fari sínu, sem henni
hafi verið fundið til saka, og aö því
beri ekki að ryðja beinni löggjöf
braut.
Það hafa verið og eru eflaust enn
til menn. sem sjáandi sjá ekki og
heyrandi heyra hvorki né skilja,
En getur þaö komið til nokkurra
mála, aö þér hafið ekki að minsta
kosti heyrt því hvíslað utan að, að
sú stjórn, sem nú hefir .völdin, hafi
brugðist vilja almennings, þegar hún
neitaði að taka til greina áskorun
20,000 kjósenda um aö gefa því sam-
þykki, að almenn atkvæðagreiösla
færi fram um það að loka staupasölu
kránum? Og barst yður aldrei neitt
til eyrna um að almenningur hefði
“lítils háttar’’ sök aö bera á hendur
tjórninni, fyrir hina dæmalausu
framkomu hennar í talsímamálinu?
Eöa hefir þaö ekki enn á neinn hátt
komist inn i meövitund yöar, uppi-
standið, sem átti sér staö í Macdon-
ald og Gimli kjördæmunum?
Ef þessu skyldi vera þannig variö,
fer eg að efast um að þér hafið nokk-
urn tíma lifað í þessum héimi.
Eg get ekki vegna rúmleysis, skráð
allar þær sakir og öll þau vonbrigði,
sem almenningur hefir orðiö fyrir,
og sem eg byggi staðhæfingar mínar
á. En eg get sagt bæði yður og öll-
um, er þaö mál skiftir, að þær munu
bráðlega veröa heyrin kunnar.
Þér lýsið því yfir, aö vilji yöar og
ósk sé aö vilji alþýðunnar ráði.
Það eru margir hissa á því, hve
lengi stjórn vorri hefir tekist aö
gylla það í augutn manna, sem hún
kallar “vilja fólksins,” en sem í raun
og veru er þaö alls ekki. En þér get-
iö ef til vill betur en aðrir í stjórn-
inni frætt oss um hvaö “vilji fólks-
ins” er.
Við skulum gera ráö fyrir því,
eins og þér eflaust geriö ráð fyrir,
að Roblinstjórnin sitji aö völdum
eftir næstu kosningar. Er þaö þá ó-
rfkur vottur þess að “fólkið” sé á
móti beinni löggjöf, á móti atkvæö-
isrétti kvenna, á móti skólaskyldu, og
á móti útrýmingu staupasölunnar?
Eöa, þó afturhaldsflokkurinn komist
aftur til valda,. er þá þar með sagt,
að þaö sé vilji fólksins aö eyöa 2yí
miljón dollara til aö auka samgöngur
á þann hátt sem núverandi stjóm
lætur sér aö góöu veröa aö gera?
Ef aö hvert þessara mála væri
tekið fyrir sérstakl<%a og almenningp
gefinn kostur á að greiða atkvæöi um
þau hvert í sínu lagi, við í höndfar-
andi kosningar, á sama hátt og á sér
staö með aukalög bæja og bygða,
þá mundi vilji fólksins koma ótví-
rætt í ljós, þá mundi úrskurður fólks-
ins ráöa, þá mundum við hafa Iög,
sem væru í fullu og beinu samræmi
við vilja þjóöainnar í heild sinni.
Sú staðhæfing, að vilji fólksins
komi ávalt í ljós meö úrslitum kosn-
ingá, er blátt áfram blekking, þegar
um stjórnarfyrirkomulag er að ræða
eins og nú á sér stað hjá oss. Við
síðustu fylkiskosningar greiddu tæp-
lega 80 prósent af kjósendum at-
kvæði. Afturhaldsflokkurinn fékk
ekki 50 prócent, ekki helming aUra
atkvæða sem greidd voru.
Roblinstjórnin var því sett til
valda með minni hluta greiddra at-
kvæða, og samkvæmt því er þér
haldið fram, hafa öll lög, sem stjóm-
in hefir samþykt, öðlast gildi án
samþykkis meiri hluta kjósenda og
því i trássi við “vilja fólksins.”
iLagaflækjur og kosningabrellur
geta oft af sér skrítin dæmi. En
það er að eins ein regla gildandi,
þegar um lýðstjórn er að ræða; hún
er almenn atkvæðagreiðsla um hvert
mál út af fyrir sig; það er bein lög-
gjöf.
En að þessu hendið þér gaman og
haldið andmælendur stjórnarinnar
séu nógu áhrifamiklir til þess aö
koma i veg fyrir að neinn stjórnar-
flokkur komi því í lög, sem er að
hans vilja aö eins, en ekki vilja
fólksins.
Þegar Roblin kallar sína trúföstu
þjóna sér til fylgdar til þess að kveða
niður eitthvert mál, þá hlýða þeir
því án þess að taka nokkurt tillit til
þess hvort það er rétt eöa rangt, og
oft þrátt fyrir þaö, þó minni hluti
geri sitt ýtrasta til aö fá sitt álit tek-
ið til greina, að einhverju ofur litlu
leyti.
Lög, sem lúta að því að auðfélög
skuli taka að tiltölu meiri þátt í skatt
byrði en þau gera, segið þér aö séu
feld af því að meiri hluti sé þeim
mótmæltur. Þar sem slíkt kemur
fyrir, er það að eins vottur þess, aö
lögin eru þannig.i að” þau skatta al-
þýðuna til þess aö verada og auðga
auðfélögin. Það er hverju orði
sannara, að þeir sem önnur eins sér-
réttindi hafa og peningastofnaniraar,
landeignafélög, ábyrgðarfétög skulda-
bréfa og ýms önnur félög, sem hlunn-
indi hafa þessu lik, eru ofur eðlilega
á móti beinni löggjöf. Viö búumst
við mótspyrnu frá þeim, sem á einn
eða annan hátt eru verndaðir og
studdir til þess að féfletta alþýöu
manna, og hversu kænlega sem þér
reynið til að dylja sannleikann í þeim
efnum, mun alþýðan bráðum komast
að því, að þaö eru sérstök hlunnindi
einstakra manna, sem eru á bak við
og liggja til grundvallar fyrir mót-
mælunum gegn beinni löggjöf.
Þér vitnið í blaðið “Oregonian”
máli yðar til stuðnings. Þaö getur
verið máli yðar stuðningur í augum
þeirra, sem ekki vita, að slíkt blað er
álíka áreiðanlegt og blaðið “Winni-
peg Telegram”. Aftur er tilvitnun
yðar frá Woodrow Wilson góð, og
■betri en ásætöan sem þér gáfuð í
þessu máli í þinginu. Ef að þér
haldið áfram að gefa hans skoðunum
gætur, munuð þér sannfærast brátt
um það, aö hann sé einlægur fylgis-
maður beinnar löggjafar.
í ritinu Outlook 26. Ágúst 1911
segir hann:
“Eg hefi kent það í 15 ár, að “initi-
ative’ og “referndum” væri ófram-
kvæmanlegt. Eg get ekki sannara
sagt nú, en að þau eru framkvæm-
anleg. Það sem fylgir öllum umbót-
uni, er þaö, hvernig eigi að koma
þeim i framkvæmd. Að baki þess,
hvers þörfnumst vér, Kggur spurn-
ingin, hvernig er hægt að framkvæma
þetta? Þaö sem vér þurfum fyrst
og fremst að gera. er að koma á aö
fólkið stjómi. Viö erum aö hreinsa
itl í húsinu og þurfum góðan sóp til
þess. “Initiative” og “referendum”
eru góðir sópar.”
Þér finnið beinni löggjöf það til
foráttu, að kosningar verði of tíðar
ef hún er löggilt. En eg sé ekki því
hún er það. Oss finst það engum
erviðleikum bundið, að greiða 5 eöa
6 sinnum atkvæöi um lög í bæjum og
héruðum. Þaö ætti að vera oss al-
veg eins auðvelt að greiða 5 eöa 6
sinntmi atkvæði um mál þau er varöa
heil fylki.
Þér minnist á Sviss og segið um
það einu sinni, að ekki sé neitt hægt
að fara eftir þvi sem þar eigi sér
enn stað, því það sé lítið land. En þaö
væri fróðlegt ,aö vita á hvern hátt
þér komist að þeirri niöurstöðu, að
sú umbótastefna sem gefst ágætlega
í Sviss, þar sem eru 3 miljónir íbút,
geti ekki einnig gefist vel í Manito-
ba þar sem ekki eru nema um 500
þús. íbúa.
En svo eg snúi aftur aö atkvæða-
greiðslunni, sem yður virðist svo
miklu varöa, skal bent á þaö, að
samkvæmt skýrslum þeim sem eg hefi
fyrir mér, hefir alveg verið lögö
eins mikil rækt við hana af kjósend-
um, þar sem bein löggjöf á sér staö,
eins og þar, sem hún hefir ekki ver-
ið að lögum gerð, eins og eftirfylgj-
andi skýrsla ber með sér:
Hæstu prct. Lægstu prct.
Ríki gr. atkv. gr. atkv.
South Dakota .. 92 57
Oregon. .. . t .. 90 62
Montana .. .. . . 80 72
Oklahoma .. . . IOO 52
Maine . . IOO 36
Missouri .. .. •• 95 71
Arkansas. .. .. 90 75
Eftir tölum þessum að dæma,
virðist atkvæfóagreiðsla í þessum
ríkjum ekkert síðri en annarsstaðar,
og sem bindindismanni hlýtur yður
að vera ánægja aö sjá, aö þar sem
um vínsölu hefir verið að rræða í
kosningum, hafa flestir greitt at-
\[AHKJ;T. fJOTEL
Við sölutorgiC og City Hall
$1.00 til $1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL.
kvæði af öllu atkvæðisbæru fólki.
Hinar kegri tölur eiga aöallega
við mál, sem að eifts snerta lítinn
hluta fólksins, og eru því ekki áhuga-
mál fjöldans.
Aö endingu skal eg svo taka það
fram. að það stjóraarfyfirkomulag,
sem bygt er á beinni löggjöf, hefir
ekki á sér neinn steinaldarbrag, held-
ur er í fullu samræmi við mannúð
og menningu nútímans.
Það er ástæða til þess að krefjast
þess fyrir þetta fylki; þaö mundi
bæta og göfga löggjöf vora; það
mundi eyða því og uppræta það sem
er lágt, ósvífið og órétt í löggjöfinni;
það mundi greiða veg hollra og hag-
kvæmra laga. Alstaðar þar sem
þetta fyrirkomulag hefir verið reynt,
þar hefir þaö gefist vel. Af þesum
ástæðum og ótal fleirum, sem hér
verða ekki taldar, er það einlæg sann-
færing min, að svona lagað stjórnar-
far beri nauðsyn til aS leiða í lög í
Manitobafylki.
Yðar,
F. J. DIXON.
(S. T. E. þýddi.J
Þakklœti-
Fyrir nokkru síöan hefir mér
borist bréf frá konu þeirri, Sigur-
laugu Guömundsdóttur, í Reykja-
vík á Islandi, sem eg leitaði sam-
skota handa síöastliöiö haust, þar
sem hún kvittar fyrir peningum
þeim er inn komu og henni voru
sendir í bankaávísan frá Winni-
peg þ. 6. Jan. s. 1. Biður Sigur-
laug mig í bréfi þessu að færa gef-
endunum öllum sitt innilegasta
hjartans þakklæti fyrir hjálpina,
sem afstýrði svo mikilli neyð og
kom sér svo vel. Finst Sigurlatigu
auðsjátnlega mikið um, hve fólk
hafi verið góðsamt og kærleiksríkt
að rétta sér þama hönd til hjálp>-
ar. Þakklæti þetta bið eg Lög-
berg að færa gefendunum hérmeð.
Áheiti, $1,00, frá stúlku á
Beverley St., Wpg, til Sigurlaug-
ar, hefi eg veitt móttöku fyrir
nokkru og kvittast fyrir því með
þakklæti. Eru þá alls $9,00
geymdir hjá mér nú, sem Sigur-
laugu hafa verið gefnir, síðan aö-
alupphæöin var send henni i vetur.
Árbohg, Man. 4. Maí 1914.
Jóhann Bjarnason.
íþróttir.
“The Falcon” knattleika félagiö
tapaði í fyrra þegar þaö kepti um
verðlaun bæjarfélaganna. Nú er
það vaknað aftur eftir vetrar-
hvíldina og tekið til starfa með
meira afli en áður. Hafa því
aukist talsverðir kraftar. Mr.
Axford er formaöur þess, og
hyggur hann gott til afreksverka
félagsins í sumar.
Félagið he^dur danssamkomu á
föstudaginn í Goodtemplarahús-
inu, verður þar einnig stofnaður
“Lawn Tennis” klúbbur fyrir
kvenfólk og ætti þaö aö vera gleði-
fréttir fyrir stúlkumar. Er til
þess ætlast að góö samvinna verði
með piltum og stúlkum sem í-
þróttir stunda.
Ennfremur er J. Baldvin að
undirbúa hlaupaæfinga flokk sinn,
og er svo til ætlast að fulltrúi mæti
frá íslenzka leikfimisfélaginu, á
Portage la Prairie leikmóti, sem
þar veröur haldið 25. Maí.
Einhver sagöi aö Paul Reykdal
væri svo önnum kafinn aö undir-
búa leikfimisflokk sinn, að hann
ætlaöi sér ekki aö taka neinn veru-
legan þátt í pólitík í sumar.
Fúsi Johnson í Selkirk er
byrjaður aö svelta Kelly, svo liann
veröi léttari á sér við stökkin,
þegar til kemur.
Hver sem upplýsinga óskar viö-
vikjandi leikfimisreglum og hver
sem vill taka þátt í þeim, snúi sér
til J. Davidsons og J. Baldwins.
Vesuvius og Etna hafa gosiö ný-
lega og kveöur prófessor Mallabra
alt útlit fyrir að stórgos verði líkt
og var áriö 1906. Dóu þá mörg
hundruð manns og margar borgir
evddust, og margar þúsunudir
ekra af ræktuöu landi eyöilögöust.
Gosiö var þá um miöjan Apríl.
3 KVHD FRA MANUD. 11. MAI
Mat*. prlðjuíl. og Miðv.d.
pú leikur hin ll.sthfa.sta leik-
kona ■ heimi
Evelin Nesbit Thaw
með aðstoð miklls leikflokks
í lelknum
“ M A R I E T T E ”
Hljómleika og dans sýning fögur
Sæti seid frá kl. 10 f.h. ft föstudag
Kveld $2 tii 25c. Mat. $1.50 til 25c.
VIKUNA FRA 18. MAf AD KVEUDI
Mat. Miðv.d. og Laugard.
J’ft kcmur aKur með mlklum fögnuði
hinn mesti leikari Eiiglamls
— MR. UAURENCE IRVING —
og leikur með aðstoð Miss Mabel
Haekney og en.sk.s lelkfloklcs
hina ágætu leiki
“TYPHOON”,
“THE UVVV RITTEN I.AW
“THE IiILY”
“THE IMPORTANCE OF BE-
ING EARNEST.”
1000
manna, sem oröiö hafa
heilsulitlir, hafa haft stór-
mikiö gagn af hófsamlegri
brúkun á
DREWRYS
Redwood Lager
Hreinasta malt-tonic
Æfinlega eins á bragö
iö og jafn góöur.
REYNIÐ ÞAÐ
J. J. BILDFELL
FASTEIOnASALI
Room 520 Union Bank - TEL. 2885
Selut hús og lóðir og annast
alt þar aðlútandi. Peningalán
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VERKSTŒÐI:
Horni Toronto
Phone
Qarry 2988
og Notre Dame
: Hclmlli.
Oarry 899
Fáið ánægju
af skóakaup-
um með því
að kaupa þá í
Quebec Shoe Store
639 Main Street, Winnipeg
Rétt fyrir uorðcn Logan Ave.
Thorsteinsson Bros.
& Co.
Byggja hús. Selja lóöir. Otve**
lán og eldsábyrgð.
Fónn: M. 2992. 815 Somerset DUg
Heimaf.: G .736. Winnipeg, Man.
Ef þér viljið fá fljóta og góða
afgreiðslu þá kaliið upp
WINNIPEG WINE CO.
685 Main St. Fón M 40
Vér flytjum lnn allskonar vln
og llkjöra og sendum tll allrm
borgarhluta. Pantanir úr «velt
afgreiddar fljótt og vel. Sérstakt
verð ef stöðugt er verzlað.
Piltar, hér er tæki-
færið
ICaup goldiS mefian þér lærifi rakara
iðn í Moler skölum. Vér kennum rak-
ara ifin til fullnustu ft tveim m&nufium.
Stöður Stvegafiar afi loknu námi, ella
geta menn sett upp rakstofur fyrlr
slg sjálfa. Vér getum bent yfiur ft
vænlega stafii. Mikil eftirspurn eftir
rökurum, sem hafa útskriíast frft
Moler skólum. Yarifi yfiur & eftir-
hermum. KomiS efio. skriflfi eftir
nýjum catalogue. Gætifi afi nafninu
Moler, á horni King St. og Pacifle
Ave., Winnlpeg, efia ötibúum i 170»
Road St„ Regina, og 230 Simpson St,
Fort William, Ont.
Þér fáið yður rakaðan og kliptan
frítt upp á lofti frá kl. 9 f. h. til 4 e.h
J. J. Swanson & Co.
Verzla með fasteignir. Sjá um
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
1 ALBEDTft BLOCK- Portage & Carry
Phone Main 2597