Lögberg - 18.06.1914, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JCNÍ 1914.
1
Skýringar við stjórn-
málastefnu í Dakota.
%
Eftir Guðmund S. Grímsson,
ríkismálafærslumann í Cavalier
Country, N. D.
Mér kom til hugar aö Lögberg
mundi vera til með að flytja fáein
orð um stjórnmálastefnur i Norð-
ur Dakota, svo að lesendur þess
hér megin línunnar fengju örlitla
andlega politíska næringu, engu
siður en bræður vorir nyrðra.
Mér kom til hugar, að það gæti
verið til upplýsingar íslenzkum
kjósendum í Dakota, ef þeir
menn þeirra á meðal, sem þekkja
þá, sem nú sækja um embætti i
rikinu og þær stefnur, sem þeir
eru fylgjandi, vildu miðla hinum
einhverju af þeirri þekkingu.
Myndi það greiða fyrir oss hin-
ttm, að geta notað atkvæðisrétt
vom á sem skynsamlegastan hátt.
Einhver stærsta skyJda vor sem
borgara er atkvæðagreiðslan. Er
það sem næst sá eini þáttur, sem
almennir borgarar fá tekið í
stjórnmálunum. Þess vegna hvíl-
ir mest á því, hvort sem þjóðin
heldur áfram að þroskast eða hún
færist til baka — og snertir það
mjög aðrar aliðar vors mannlega
félagsskapar — með hvað glögg-
um skilningi fjöldinn greiðir at-
kvæði sitt.
Sagan sannar oss það, að þegar
almenningur þekkir og skilur,
hvað til grundvallar liggur fyrir
einhverri alþjóða hreyfingu eða
atkvæðagreiðslu, þá gjörir hann
það, sem rétt er og gjörir það
bæði fljótt og vel. Eg vona því
að Lögberg verði fljótt og vel við
þvi, að ljá oss rúm í blaðinu til
þess lítillega að bregða upp mynd
manna og málefna, er kjósendur
eiga um að velja hér í rikinu þann
24. júní næstkomandi.
Eg vil geta þess, að eg þykist
ekki vera alvitur i landsmálum;—
samt sem áður eru það tvö eða
þrjú atriði, er mig langar til að
minnast á við Iesendur yðar í N.
Dakota, er eg álít þæir mættu hafa
i huga, þegar til atkvæðagreiðsl-
unnar kemur.
Þann 24. júní fer fram útvals-
kosning í ríkinu. Með þeim
kosningum útvelur hver flokkur
umsækjendur frá sinni hlið, er
gengið verður svo til atkvæða um
við almennar kosningar i nóvem-
ber. Við þessar útvalskosningar
getur hver, sem einhverjum flokki
Ttltieyrir, 'sött um útnéfningu til
einhvers embættis innan ríkisins
Fái hann ákveðna tölu manna til
að undirskrifa bænarskrá þess
efnis, að honum sé veitt útnefn-
ing, er hann settur á kjörseðil
flokksins, og um ]>á greiðir svo
flokkurinn atkvæði, og sá, sem
hæsta atkvæðatölu hlýtur, fær út-
nefningu fyrir það embætti, og er
þá settur á kjörseðil fyrir almenn-
ar kosningar.
I Republikan tlokknum, sem
nú er ráðandi i N. Dakota. eru
margir, sem sækja um hvert em-
bætti. Að velja úr hæfustu
mennina, er sjálfsögð skylda allra,
er flokki þeim tilheyra, við i hönd
íarandi útvalskosningar.
Um útnefningu til öldunga-
eleildar Randaríkja Congressins
fTJ. S. SenatorJ sækja þrír:
Andrew Miller, núverandi dóms-
málastjóri ríkisins; A. J. Gronna,
uúverandi Senator, °g J- H.
Worst, núverandi forseti búfræðis-
skóla ríkisins.
Worst er nú maður 64 ára
gamall. Hefir hann verið for-
stöðumaður búfræðisskólans i 20
ár. — Hefir hann getið sér sæmd-
arorð fyrir að hafa bygt upp þá
stofnun. Er hann góður kennari
og kann skil á bókfræði allri, er
að búskap lýtur. A% mínu áliti
má hann ekki missast frá þvi
starfi, sem hann hefir, og getur
hann verið ríkinu til hálfu meira
gagns þar, en með þvi að sendast
burtu til öldungadeildarinnar í
Washington.
Senator Gronna er bóndi og
fjársýslumaður. Var hann studd-
ur til kosninga áður af hinni al-
kunnu McKenzie klikku hér í
ríkinu. í seinni tið hefir hann
tekið sér fram og ýms framfara-
mál hefir hann stutt í þinginu.
Þriðji umsækjandinn, Andrew
Miller, dómsmálastjóri, er að
minni skoðun langhæfasti maður-
inn. Hefir hann verið dómsmála-
stjóri Dakota ríkis í síðastliðin 6
ár, og i stöðu þeirri hefir hann
getið sér frægðarorð. Hann hefir
látið framfylgja lögum ríkisins
betur en dæmi eru til. Hann hefir
farið í þann hluta ríkisins. þar
sem vinbannslögin áttu minstum vin
sældum að fagna, og ekki einung-
Js látið þar lög og rétt fram ganga,
heldur lika gjörbreytt almennings-
alitinu, svo að nú viðurkenna flest-
lr> að lögin séu bæði til efnalegrar
°g siðferðislegrar uppbyggingar í
nkinu. Þegar reynt var til að
hrinda kolaflutningslögum rikis-
ins, varði hann þau fyrir yfirrétti
Bandaríkjanna, og vann málið.
Hann hefir æfinlega dregið al-
menningstaum í stjóminni, á móti
öllum spillingar samtökum og ein-
veldis liætti. Hann hefir ávalt
gætt skyldu sinnar, hversu sem
reynt hefir verið að fá hann til að
halla þar til. Hann er mjög fær
lögmaður. með afbrigðum ræðu-
maðUr, æfður stjómfræðingttr og
ágætis drengtir. Miller er dansk-
ur að ætt, og hefir af sjálfsdáð-
um aflað sér þeirrar stöðu, sem
hann er nú i. Er hann á bezta
aldri, maður um fertugt.
Af þessum þremur umsækjend-
um stendur Miller að minni hyggju
langt fyrir ofan hina báða, ekki
eingöngu hvað hæfileika snertir,
aldur og atgjörvi, heldur líka fyrir
framkomu hans i opinDerum mál-
um. Framkvæmdarsemi, atorka,
starfshæfileiki — vera á miðju
þroskaskeiði —. eru stærstir þing-
mannskostir. Og hvað hver um
sig gjörir, verði hann kosinn, má
meirkja af því, hvað þeir hafai
gjört og hvernig þeir hafa leyst
embættisstörf sín af hendi.
Worst forseti. þegar hann sat í
efri deild ríkisþingsins og til þess
kom, að sýna siðferðislegt þrek,
er Louisiana lottery málið var fyr-
ir þinginu, — greiddi hann atkvæði
með því, og með því að láta taka
upp vínsöluleyfi i ríkinu, og er
hann þó bæði prestur og skóla-
maður. Hann sýndi og sannaði
með því, að þegar skyldan krefur,
að ntenn séu bæði djarfir og sjálf-
stæðir og þori að fylgja þvi sem
rétt er, hvort það er vinsælt eða
ekki. — að þá var hann deigur og
huglaus.
Senator Gronna, meðan hann
átti sæti i neðri deild, greiddi ávalt
atkvæði eins og McKenzie lagði
fyrir. En svo yfirgaf hann Mc-
Kenzie einsog músin, sem skríður
af skipi. sem er að sökkva, og
gekk inn í Framsóknarflokkinn,
af því hann sá að sá flokkur
mundi geta fleytt sér i bráð yfir
pólitisku grvnningamar. Eg er
fús að viðurkenna verk hans síð-
an. er að ýmsu leyti hafa miðað
í framfaraátt, og heldur myndi eg
greiða honum atkvæði mitt en
Worst; en samt er það áreiðanlega
mín skoðun, að hæfari sé hann til
að fylgja fjöldanum. en veita hon-
um forstöðu.
Miller er aftur búinn að sýna,
að hann er traustur maður og
einbeittur, þegar á reynir. Hann
hefir sýnt það, að hann er leiðtoga
hæfileikum búinn og ber gæfu til
]>ess að leiða menn rétt. Fyrir
mitt leyti greiði eg honum atkvæði
mitt óhikað, og til þess vildi eg
sem flestum ráða líka.
Rikisstjóra embættið er það
þýðingarmesta embætti, sem út-
nefnt veröur í, við útvalnings-
kosninguna i sumar. Rikisstjór-
inn hefir meiri áhrif til góðs og til
ills fyrir hvern einstakling í rik-
inu, en nokkur annar embættis-
maðttr. Vér ættum þvi að athuga
gaumgæfilega, hverjir mennimir
eru, sem bjóða sig fram í þetta
embætti.
Á útnefningarseðli Repúblíkana
verða nú þrir menn í þetta sinn:—
L. R. Hanna, núverandi ríkis-
stjóri; Wishek, er sækir sem full-
trúi þýzka sambandsins, og U. L.
Rurdick, er fylgir framsóknar-
flokki Repúblikana fProgressives)
\\ ishek er með endurskoðun
vínbannslaganna, og að lcoma aft-
ur á vinsöluleyfi um rikið. Hann
er harðsnúinn á móti atkvæðis-
rétti kvenna. Eg trúi því naum-
ast, að nokkur hugsandi maður
vilji, að rikið hverfi aftur til vín-
sölunnar. Umsókn Wisheks er
ekki hættuleg, en yrði hann kos-
inn væri það hið aumasta slys, sem
komið gæti bæði fyrir ríkið sjálft
og Repúblikanska flokkinn.
L. B. Hanna hefr verið ríkis-
stjóri i tvö ár. Er hann einn rík-
asti maður i Dakota. sagð .r mil-
iónaeigandi. Er hann bróður-
sonur Mark Hanna, stjómmála-
skörungsins nafnkunna. Banka-
störf er hans aðal atvinnugrein.
Hann hefir setið á ríkisþingi og í
Congressinu. Hann er vandaður
á margatt hátt og maðttr um fim-
tugt.
U. L. Burdick er upprunninn í
Dakota, er 35 ára að aldri og hef-
ir átt heima í rtkinu stðan
hann var þriggja ára. er lærð-
ur lögfræðingttr, en hefir gef-
ið sig mikið við búskap og skepnu-
rækt. Hann bjó um 8 ár í Cavali-
er Country og var þaðan kjörinn
á ríkisþing til neðri málstofunn-
ar; hélt hann forsæti neðri deild-
ar og vararíkisstjóra embætti um
ttma. Nú um síðastliðin tvö ár
hefir hann verið búsettur í Willi-
ston í Williams Country og gegnt
þar ríkismálfærslu embætti ‘Coun-
tysins’. Hann hefir ávalt gjört
vel, í hvaða opinberri stöðu sem
ltann hefir verið, og er orðstýr
hans sá, að ltann sé strang-heiðar-
legur og röggsamur embættismað-
ur.
Eg bjó í næsta húsi við hann í
Municli, N. Dak. og kyntist hon-
um vel, og varð þess eins vts, að
hann var drengskapar ntaður, og
hafði hag fjöldans jafnan fyrir
augum. Hann er í heimulegunt
efnum engu óheiðarlegri maður en
Hanna rikisstjóri, en margfalt
vandaðri maður i stjómmálum.
Nú á þessunt tímum er skörp
flokkaskifting milli þeirra manna,
sem ltalda vilja eignaréttinn helg-
ari eða jafn ltelgan mannréttind-
um og þeirra, sent setja mannrétt-
indin ofar öllu öðru; með öðrttm
orðunt ntilli auðvaldsstéttarinnar
og fjöldans.
Taft forseti fylgdi þeim fyrri,
og þessvegna varð stjórnmála fer-
ill hans skammur. . Utaf þessu
máli ltefir Repúblikanski flokkur-
inn klofnað og sem næst beðið al-
gjört strand. Hið sama bíður hans
hér i ríkinu, ef vér ekki förum
varlega.
Hanna ríkisstjóri fylgir fyrri
flokknum, og eðlilega skoðar alt
frá sjónarmiði eignaréttarirs,
Hann hefir aldrei tilheyrt þeim
flokki mannfélagsins, er verið hafa
lánþiggjendur og orðið að berj-
ast strangt fyrir lífi sínu, og ber
því enga samhygð með þeim, eða
skoðunum þeirra. Hans sjónar-
mið er sjónarmið skattheimtu-
ntannsins, en ekki þess sem skatt-
inn greiðir. Sem dæmi má geta
þess að hann lætur ekki uppi neitt
um það hverju megin hann er í því
að láta lækka lögleyfða vöxtu á
peningum úr 12 prócent ofan i 10
prósent; en Burdick styður af al-
efli lækkunina. Annað dæmi, hve
hann dregur taum auðvaldsins, er
svnjun hans að undirskrifa sam-
þykt siðasta þings tim að allir
skaðabóta samningar járnbrauta-
félaga við þá sem verða fyrir
meiðslum fyrir vanrækslu félags-
ins, séu ekki bindandi nema þeir séu
gjörðir eftir 30 daga trá þvi slys-
ið varð. — Og lög þessi hefðu fyr-
irboðið lögmanni félagsins, það
sem nú er alvanalegt, að fara til
þess tneidda og fá hann til þess að
undirskrifa samning fyrir ein-
hverja smá uppbót, er leysti félag-
ið undan allri ábyrgð við hlutað-
eigendur, meðan sá sjúki er alls
ekki i því sálarástandi að geta
gjört slíkan samning eða áður en
hann fær ráðfært sig um það mál
við þá sem vit hafa á.
Synjun ríkisstjóra á þessurn
lögunt er í hag auðfélögum en á
inóti almennings velferð. Sama
má segja um tilraun hans að fá af-
numda skatta niðttrjöfnunarnefnd
rikisins. Nefnd sú hefir látið
gróða félög borga skatta að jöfn-
um hlut við aðra, og ]>ví kannske
verið óþörf fjárpyngju sumra
vildar vina Hanna. Fleiri dæmi
mætti nefna er sýna mundu hverju
megin Hanna er í baráttunni milli
eignarréttarins og mannréttind-
anna.
Burdick er mannréttinda megin.
Öll hans embættisfærsla sýnir það.
Hann segir ávalt til sýn hvað hann
hugsar og hverju hann fylgir.
Ekki hefir Hanna þrek til þess.
Stefnuskrá Burdicks er þessi:
1. Einföld kosning fShort Ballot)
2. Lög leyfa afturköllun úr em-
bættum
3. Einskattur á öllu yrktu landi.
4. Jafn atkvæðisréttur karla og
kvenna.
5. Lög um launa uppbót verka-
manna.
6. Framfylgi allra laga, án ótta og
yfirskins.
7. Sparsenti í allri rikis, Coun-
ty’s, Townshrp og héraðs
stjórn.
8. Semja aukagreinar við útvals-
kosningalögin, er komi í veg
fyrir öll kosningasvik.
9. Niðurfærsla á lögleyfðri rentu
úr 12 prósent í 10 prósent.
10. Strax og samþykt eru lög um
afturköllun úr embættum, að
þá fari kosningar fram aðeins
fjórða hvert ár.
11. Rein löggjöf, hvort sem snert-
ir stjórnarskrár breyting eða
laga ákvæði önnur.
12. Skatta niðurjöfnunarnefnd.
í3- Lög um að létta undir með
landbúnaði, með því að koma
á bændalánum og vegagjörð.
14. Afnám allra veiði-eftirlits em-
bætta en leggja Countyunum
það verk á herðar.
Það er óhætt að fttllyrða, að
meiri hluti íslendinga að minsta
kosti, hér í rikinu, tilheyrir ekki
auðvalds stéttinni en trúir á eign-
arréttinn fram yfir mannréttindin.
Hag vorttm er þvi betur borgið í
höndum Burdicks en Hanna. Vér
veljum inannréttinda manninn,
því þa>- er helzt trúmenskunnar
að leita, fram yfir hinn manninn,
þvi hann kemur hreint og beint
fram og segir hvað hann ætlar að
gjöra, en hylur sig ekki í neinum
óhreinskilnis hjúp, og um leið og
hann brosir frantan í almenning-
inn og læst vilja vemda hann,
fer á .bak við hann og selur hag
hans í hendur auðvaldinu. Lát-
um Hanna koma lireint og beint
fram; skoðum sanngjarnlega alla
hans embættisskýrslu, og það mun
Meiri ágóði = Minna verk.
FULLKOMIÐ HREINL.ETI
í þessum atriðum skarar Magnet skilvindan
fram úr þegar hún er borin saman við allar
aðra'r skilvindur.
þrettán ár stöðugt að búa tíl Magnet skil-
vindur og alt af náið samband við fólkið í Can-
ada. Arangurs. Mjólkin er skilin nákvæmlega
og fult traust bændafólksins. Fólkið og vxrk-
fræðingarnir mæla með Magnet skilvinlu einum
munni og staðfesta {ilt það er vír segjum
henni vilvúkjandi.
Þessi þrettán ára reynsla hefir framleitt vél,
sem öllum öðrum vélum tekur fram eftir dómi
griparæktarmanna, og þeir mæla með þvi sem
bezt reynist fyrir minsta peninga og minst verk.
LESIÍ) þETTA
“]>etta er því tll sönnunar, aS eg hefi reynt MAGMET skilvindunal
til þess aS finna út, hversu vel hún skilur mjólkina og einnig til þess aS
komast aS raun um hversu mikiS verk hún getur gert. Eg reyndi MAG-
NET vélina fullkomlega, og get vitnaS þaS, aS hún er hi nbezta rjóma-
skilvinda, sem eg hefi nokkru sinni þekt. Eg mæli sterklega meS hennl
viS hvern þann er skilvindu ætlar aS kaupa, og get fullvissaS hann um aS
hann fær þar beztu tegund skilvindu.
(UndirritaS)
H. A. SHAW,
Rjómabúskennari Saskateheæan-
stjórnarinnar, 29. Júlí 1907.
f þessum atriðum skartir MAGNET skilvindan fram úr öðrums Hún
hefir tvistudda skál, sterk ferhyrningsstig, skiljara í einu iagi, skilur en
skilur ekkl eftir, er hæg og liðug, liægt að hreinsa liana. heflr sterk
stinn uppihöld. Alveg örugg. Skrifið eftir síðusta verðlista.
The Petrie Manufacturing Co., Limited
Aðal skrifstofa og verkstæði: Hamilton, Canada
Vancouver. Calgary. Kegina. Winnipeg. Ilnmilton. Montreal. St. John
vitnast hið sama sem eg hefi sagt,
að hann er auðvaldsstéttinni háð-
ur.
Með því eg þekki Burdick vel,
og eg veit nokkuð um, hvernig
ástæður eru hér í ríkinu, og mér
er ant um almenningshag, vildi eg
heita á alla landa mína að greiða
U. L- Burdick atkvæði sem ríkis-
stjóra við útvals kosnitigar þann
24. júni, n.k.
Enn er annað embætti sem mjög
er áríðandi, en það er dómstnála-
stjóra embætti ríkisins. Dóms-
mála stjórinn er fvrst og fremst
aðalráðanautur allrar ríkisstjóm-
arinnar, hann er aðal málssækj-
andn fyrir hönd rikisins í öllum
málum og í hans verkahring ligg-
ur skyldan að sjá um að allir ein-
staklingar og félög fylgi ákvæð-
um laganna í öllu sem snertir al-
menning. Um útnefningu í þetta
embætti sækja þrir frá hálfu
Repúblikana: F. C. Heffron, H. L.
Linde og Alfred Zuger.
Heffron hefir verið aðsloðar
dómsmála ráðgjafi við stöku tæki-
færi, aðallega við brot á bindind-
islögunum. Hann er hugrakkur
og hreinn og beinn maður, og í
vínsölubannsmálum einlægur, en
hvort hann yrði eins dugandi við
önnur mál er engin vissa fengin
fyrir. Þess utan virðist litlar lík-
ur til þess að hann nái útnefningu
i þetta sinn , því flokksskiftingin
sýnist vera um hina.
H. L. Linde hefir setið i neðri
málstofu þingsins undanfarinn
tíma, og hefir þar ávalt sýnt sig
sporléttan fylginaut gróðafélaga
og einkaréttar stefnúnnar. Ekki
er hann heldur við eina fjöl feld-
ur í vínbannsmálum, og sem
stendur fylgja honum eindregiö
vinsölu félög og annar brennivins
lýður. Hann hetir htla æfingu
haft sem lögmaður, og sem næst
enga sem málaflutnmgsmaður.
Alfred Zuger, þriðji umsækj-
andinn. er nú vara dómsmála
stjóri ríkisins. Hefir hann sýnt
að hann er fær um aö meðhöndla
þau mál sem embætti hans til-
heyra, og er hann alment álitinn
einn af færustu lögmönnum ríkis-
ins. Áður en hann tók við núver-
andi embætti var hann lögmaður
Valley City bæjar, og ríkislög-
maður Barnes County. Hann er
fæddur í Noregi, en faðir hans
var þýzkur. Hann hefir sjálfur
unnið sig upp hjálparlaust. Verði
hann kosinn, er áreiðanlegt að
hann lætur framfylgja lögum rík-
isins og mun framkvæma öll sín
embættisverk með trúmensku.
f siðastliðin þrjú ár sem ríkis-
lögmaður Cavalier County’s hefir
mér gefist kostur á að kynnast öll-
um þessum mönnum. Mr. Zuger
aðstoðaði mig í Reilly málinu við
yfirréttinn, en margir munu karn-
ast við, að verk Heffons í þarfir
vínbannslaganna hafa ávalt verið
þörf og góð. Lmde hefir tekið að
sér að vemda ólöglega vínsölu,
varði hann eitt þessháttar má' á
Langdon móti mér sem Cavalier
County lét lögsækja. Eg álít því
að eg geti gefið bendingar við-
víkjandi þessum síðast-tö’du
mönnum, er almenningur þekkir
mikið síður en þ:i, sem sækja um
þingmensku í Washington ði
ríkisstjóra embættið, en mér em
aftur betur kunnir, og tillaga min
er að tvímælalaust sé Zuger bezti
maðurinn. Hann er hæfileka
maður og áreiðanlegur í alla staði.
Hann efnir ætíð það sem hann
lofar, og hann er alveg viss að
halda embættisfærslunni í þarfir
réttvísinnar og laganna. Sá sem
vill greiða atkvæði sitt rikinu í
hag. getur engum oðrum greitt
það en honum.
Skaðabætur fyrir gcezluvarðhald
að ósekju.
Dómur féll 16. maí í yfirrétti i
máli því sem Ólafur Jónsson
myndasmiður i Vík í Mýrdal
höfðaði gegn landssjqði, til skaða-
bóta fyrir gæzluvarðhald, sem
sýslumaður Skagfellinga Sigurð-
ur Eggerz. hafði látið hann sitja
í um nokkra mánuði út af þjófn-
aðargrun.
Komst rétturinn að þeirri niður-
stöðu að Ólaf yrði að telja sak-
lausan með öllu, og hefði honum
þvi að óverðskulduðu verið haldið í
gæzluvarðhaldi. Dæmdi rétturinn
honum 200 kr. í skaðabætur og 25
kr. þóknun til skipaðs málaflutn-
ingsmanns hans, Gísla Sveinsson-
ar yfirdómslögmanns.
Geta má þess að isjaldan fást
slíkir dómar sem þessi, því að
eitikar erfitt er að sanna sakleysi
manna. — “Ingólfur”.
Brynjólfur Jónsson dáinn.
Morguninn 16. þ. m. var símað
frá Eyrarbakka að Brynjólfur
Jónsson skáld og fræðimaður frá
Minna-Núpi væri nýdáinn úr
lungnabólgu.
Hann var liðlega hálfáttræður,
fæddur að Minna-Núpi i Gnúp-
verjahreppi i Amessyslu 26. sept.
1838. Bjuggu foreldrar hans þar,
og voru fremur fátæk. En Bryn
jólfur var kominn í beinan karl-
legg frá Þorláki Skúlasyni bisk-
upi, en móðir afa hans var dóttir
Halldórs biskups Brynjólfssónar.
Tæplega þrítugur veiktist Bryn-
jólfur svo, að hann varð aldrei
upp frá því fær til líkamlegrar
vinnu og fékst eftir það ein-
göngu við kenslu og ritstörf, og
auk þess var hann oft í rann
sóknarferðum um landið fyrir
Fornleifafélagið.
Eftir Brynjólf liggur fjöldi
rita, bæði kveðskapur, sagnarit og
fornmenjalýsingar, og svo heim-
spekisritið “Saga hugsana minna”,
sem út kom siðastliðið ár.
Hann var mjög gáfaður maður og
athugull og ritaði ljóst og vel, en
að sumum sagnaritum 'hans, eink-
um Bólu-Hjálmarssögu og Natans-
sögu, hefir verið fundið, að hann
hafi látið þar ofmikið leiðast af
óáreiðanlegum munnmælum. En
yfir höfuð er bókmentastarf
Brynjólfs merkilegt og þakkar
vert.
ALLAN LINE
Konungleg Póstgufuskip
Frá Montreal Frá Halifax
til til
Liverpool og Glasgow Glasgow
FARGJOLD
Á FYRSTA FARRÝMl.......$80.00 og upp
Á Ö?)RU FARRÝMI........$47.50 og upp
K pRIF)JA FARRÝMI......$31.25 ogupp
Fargjald frá ^slandi
(Emigration rate)
Fyrir 12 ára og eldri......... $56.1«
“ 5 til 12 ára............. 28.05
“ 2 til 5 ára............... 18,95
“ 1 til 2 ára.............. 13.55
“ börn á 1. ári.............. 2.70
Allar frekari upplýsingar um gufuakipaferðirnar, fu-
bréf og fargjöld gefur umboðsmaður ror, H. S. BABDAL,
horni Sherbrooke og Elgin, Winnipeg, sem annaat um far-
gjalda sendingar til íslands fyrir þá sem til hana leita.
W. R. ALLAN
$64 M&ln 8t., Wlnnipeg. AC&luxn boð(sm&5ur
1
Þegar þér þarfnist byggingaefnis eða eldiviðar
þá leitið til
D. D. WOOD & SONS,
-------------LIMITED —;---------------
Verzla með sand, mulin stein, kalkstein,
límstein, plastur, tægjuplastur, brenda
tígulsteina, brendar pípur, sandsteypu-
steina, rennustokka úr gipsi, jarðrennu-
steina, allskonar kol, eldivið og fleira.
Talsímar: Garry 2620 eða 3842
§K..R.1FST0_FAi Cor. Ross og Arlington Str.
OVERLAND
Alclrei kvæntist Brynjólfur, en
son á liann, sem Dagur heitir, og
er búfræðingur og býr á Gerðis-
koti í Flóa. Þar taldi Brynjólf-
ur heimili sitt hin síðari ár, en var
þó oftast á vetrum á Eyrarbakka
við kenslu, og til skamms tíma á
ferðalögum á sumrin. Lengi hefir
hann haft i fjárlögunum 300 kr.
styrk til 'foríileiflarannsókna. —
—Lögrétta.
Söguskáldið fræga séra C. W.
Gordon f'Ralph Connor) hefir rit-
að bréf til allra meðlima- Siðbóta-
isins á móti Roblin og drvkkju-
klúbbunum við næstu kosningar.
“Vínsalan í gistihúsum og brenr.i-
vínsklúbbarínir verí5a að hverfa úr
sögunni” segir hann ; og hann tel-
ur upp hverja siðbótastofnunina á
fætur annari, sem allai hafi á-
kveðið að hefja stríð á móti ósið-
ferðisstofnunum stjórnarinnar.
CANADIAN NORTHERN RAILWAY
SUMARFERDIR
eftir
gegnum Port Arthur
og Duluth
STORVOTNUNUM
TIL
AUSTUR CANADA og BANDARIKJANNA
í gegnum Port Arthur og Duluth í sambandi við ttóru skipin HURONIC.HAMONIC, NORONIC (nýtt)
Lestin fer frá Winnipeg kl. 6. e.h. og frá Duluth á þriSjud. fimtud. og laugard. kl. 4.30 e. h.
Fer frá Winnipeg kl. 6 e.h. daglega, og frá Port Arthur á miðvikud., föstud. og laugard. kl. 4 e.h.
I-estin er einnig í sanibandi við KTRRAHAFS og VATNA BATANA, frá PORT ARTHIIR á snnnml., þriðjud.,
fiintud., föstud. og laugardögum
Canadian Northern hrautin á milli Winnipeg og Port Arthur er i gegn um fagurt landslag til stórvatnanna-
Farþegar í gegn um Port Atthur á “Northern” gufuskipi geta fengiS lykla aS farþegaherbergjum og aS-
göngumíSa aS matsölum skipanna í Winnipeg áSur en fariS er af staS, og komlS þannig 1 veg fyrir tafir og
óþægindi. FæSi og rúm á skipunum er innifaliS í fargjaldinu.
FáiS allar upplýsingar frá næsta Canadian Northern umboSsmanni eSa skrifiS
R. CREEIiMAN,
aSal ferSaumboSsmanni C.N.R. i Winnipeg.