Lögberg - 16.12.1915, Page 5
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 16. DESEMBER. 1915
5
ASHDOWN’S
HIN STÓRA BÚÐ FYRIR ÞARFAR GJAFIR
Þarfar og nauðsynlegar jólagjafir af ymsu tagi,
mjög tjölbreyttar. Þar getur þú tengið gjöf sem
gleður hvern í íamilíuuni sem er. Kaupið hér—
Vér verzlum með þarfa og áreiðanlega muni.
Rakhnííar og rakaraáhöld
Gjafir, sem mönnum þðknast bezt: Gillett’s var-
isn rakhnlfur, Standard, Bulldog, Aristocrat og
vasa útgáfa, hver............................$5.00
•illett's Safety Razors, in the combination
Sets............................S6.50 til $25.00
A.to Strop Safety Razors...........$5.00 til $7.50
■vor Ready Safety Razors.....................$1.00
•em Junior Safety Razors................ .. $1.00
Penn & Knders Safety Razors. ................$1.00
Brýni
Yerkfæri, sem brýnir báðar eggjar 4 blaSinu I
einu. Vðr ábyrgjumst þetta verkfæri I tlu ár. —
VerS, hvert.................................. $4.00
Einnig verkfæri, sem skerpir bæSi Gillett’s og
aíra varSa skegghnífa, hvert..................$3.00
Líka verkfæri, sem brýnir vel, hvert........$1.00
Vanalegir skegghnífar
af öllum mögulegum tegundum; 25 mismunandi
tegundir hnífa aS velja úr; ágætt stál, einkar vel
tilbúnir og mjög vei vandaSir aS öllu leyti; skeftin
meS hvltu og svörtu fílabeini og meS skelplötu-
sköftum, meS %-þuml., % og% þuml. breiSum
blöSum. Nú seldir á.................75fi. til $5.00
Razor Strops..........................50c. til $4.00
Shaving Brushes.......................25c. til $5.00
Razor Hones..........................50c. til $1.75
Speglar fyrir dáta, geta hvorki rySgaS eSa brotn-
aS, búnir til úr nickel-silfri, hver.........$1.00
Armbanda úr (military), meS góSu, vel gerSu
armbandi, meS stðrum og skýrum tölustöfum á
skífunni; hvert..............................$3.00
Rafmagsnljós, bæSi lítil og stór, sem bera má I
vasa sínum og láta lýsa eftir vild og hvar sem er.
YerS, hvert.......................... $1.00 til $3.00
Rafmagns húsmunir
Ágætar og þarfar gjafir, sem færa gleSi á heim-
ilin fyrir alla fjölskylduna.
Hotpoint Eiectric Iron hvert..................$4.00
Universal Eiectric Iron, hvert................$5.00
Thermax Electric Iron, hvert..................$3.25
Hotpoint Electric Toaster, hver...............$4.50
Universal Electric Toaster, hver..............$4.50
Electric Grill. oblong style. hvert......T . . $5.00
Electric Grill, round style hvert.............$6.50
Hot Water Heaters, hver.......................$6.00
Electric Coffee Percolators, frá . . . . $8.50 tii $22.00
Electrlc Traveling Iron, frá........$4.50 til $5.25
Case of Carvers
af mismunandi gerS. búnir til af hinum víSfrægu
hnífasmiSum I Sheffield á Englandi; I hverj-
um kassa, er 2 til 5 stykki, skept meS hvltu og
svörtu fílabeini og öSru dýrindis efni; kassarnir úr
eik og fóSraSir meS silki; mörg hundruS aS velja
úr og verS sem getur komiS öllum aS liSi, þetta:—
$3.50, $4.00, $4.50, $5.00, $6.00, $6.50, $7.00, $7.50,
$8.00, $8.50 $9.00, $10.00, $11.00, $12.00 og $15.00.
Skautar og sleðar
eru ágætar jólagjafir fyrir þá, sem leika sér úti;
skautar af mörgum tegundum og prisum.—
Ðrengja-skautar, pariS...............75c. og $1.00
Karlmanna-skautar, pariS............$1.50 til $6.00
Toboggan, 3 feta langir..........................$1.75
4 feta langir.............................$2.50
5 feta langir.............................$3.00
6 feta langir.............................$3.50
7 feta stærS..............................$4.00
Drengja slcíSi, pariS........................$2.25
Stúlkna-sklSi.................................$3.25
Manna skíSi...................................$3.75
Vasahnífar og stórir hnífar yfir 500 mismunandi
sortir til aS velja úr, eins, tvl, þrl og fjórblaSaSir
sjálfskeiSingar, frá................25c. til $10.00
Smíðatól handa drengjum er mjög heppileg gjöf. Það er bœði þörf
gjöf fcog svo hafa drengir svo mikla ánægju af því að smíða.
ASHOOWN’S
HIN STORA
JARNVÖRU BUD
ÆFIÁGRIP SÖNGFRŒÐINGANNA
('Framh. frá 2. bls.).
Arið 1900 fór hann til Seattle
•og þar stofnaði hann ‘‘Icelandic
Glee Club” og stýrði norska söng-
félaginu “Norden ’ og öðru
svensku. Fá las liann einnig
hljómfræði af kappi og tónfræði,
lijá ítölskum kennara. Sigurður
liefir mest starfaö meðal NorS-
manna og Svía og hafa þeir mjög
mikið álit á honum.
t>ess má geta að þegar bruninn
mikli varð i Aalesund í Noregi
fyrir nokkrum árum, tóku sig
saman allir Skandinavar í Seattle
til þess að halda vandaha söngsam-
komu bræðrum sínum til hjálpar,
var Sigurði falið á hendur að
stjórna þeirri samkomu. 1 þéim
flokki sungu um 200 manns og
þótti Siguröi takast prýðilega.
Vorið 1911 flutti hann aftur til
Canada, fyrst til Markerville í
Alberta og kom því til leiðar að
Tslendingar þar stofnuðu lúðra-
flokk; síðan flutti hann til Winni-
peg og tók við söngstjórn 'Fyrsta
lút. safnaðar um stund; þá gerðist
hann organisti Skjaldborgar safn-
aðar og síðar söngstjóri í Tjaldbúð-
inni. Hann hefir einnig stjórnað
“The Norwegian Glee Club” og
“Svenska Sangerbroderne”.
f'egar Skandinavar héldu hina
miklu og vönduðu samkomu í
fyrra til arðs fýrir þjóðræknis-
sjóðinn, stjórnaði hann þeim hluta
hennar, sem fram fór á svensku
og ensku, og var mikið látið af.
Nokkur lög hafa verið prentuð
eftir hann, en þó á hann miklu
fleiri óprentuð. Lagið “Vormorg’-
un” er prentað i Eimreiðinni og
"Ræn” í Lögbergi. Lögin “Skaga-
fjörður” f'Matth. Joch.), “Kveld-
hugsan” (K. P. Jónsson) og “Vest-
itr íslendingar” ("Gestur Pálsson)
eru og vel þekt.
Tborsteinn Johnston
er fædduy 18. desember 1876 að
Vatnsenda í Fljótum í Þingeyjar-
sýslu. Foreldrar hans eru Guð-
laugur Johannson og Guðrún Jóns-
dóttir. Þau fluttu hingað vestur
1885 °S settust að í Norður Dakota
og þaðan fluttu þau til Winnipeg
fyrir 15 árum.
Þorsteinn byrjaði að leika á
fiðlu þegar hann var 12 ára gamall,
og það án nokkurrar tilsagnar.
Þegar hann kom til Winnipeg fékk
hann sér tafarlaust kennara og hélt
áfram námi í því og las uppihalds-
laust um mörg ár. Kenslulaunin
gat liann snemma greitt sjálfur,
þar sem hann vann sér inn fé
með þvi að leika á ýmsum sam-
kvæmum og kenna öðrum í fri-
stundum sínum. Fyrsti kennari
hans var Alexander Scott sem
lært hefir hjá hinum fræga fiðlu-
leikara Hermann. Þá lærði hann
hjá ungfrú Lawson, mjög góðum
kennara, og síöar hjá Emil Sogret,
þá hjá Camile Canture lærrsveim
hins belgiska hljómfræðings Ovide
Musine og siðast um langan tíma
hjá George Rutherford. Hann
hefir þvi ekki sett sig úr færi að
afla sér þeirrar kenslu sem bezt
var kostur á.
Um nokkur ár að undanfömu
hefir Þorsteinn haft stóran hóp
nemenda, og fjölgar þeim ár frá
ári. Hann hefir sýnt frábæra elju
og staðfesti í þvi að komast alla
leið að því takmarki sem hann
setti sér og er það praktísk “lexía”
fyrir marga áf vorum ungu mönn-
um.
Þorsteinn er kvæntur Valgreði
Magnúsdóttur Einarssonar úr
Þingeyjarsýslu.
Hjörtur Larusson
er fæddur 1874 í Ferjukoti í
Mýrasýslu. Er hann sonur Lárus-
ar Gtiðmundssonar hér í bæ og
Guðrúnar Hákonardóttur. Hjört-
ur ólst upp hjá Guðmundi afa sín-
um i Ferjukoti þangað til hann
var 15 ára. Þá fluttist hann hing-
að vestur. Kyntist hann þá brátt
Halldóri Oddsyni og veitti hánn
honum fyrstu tilsögn í hljómfræði.
Samtímis fékk hann sér þá kenslu
hjá enskum söngfræðingi. Um
tvitugt stofnaði hann íslenzkan
lúðraflokk ásamt fleiri Islending-
um; stýrði liann því allan þann
tima sem hann var hér.
Um aldamótin flutti hann til
Minneapolis og tók stöðu í sam-
hljómaflokki miklum sem þar er.
Nú vinnur hann þar algerlega á
eigin spýtur. Hjörtur er einhver
hinna allra fyrstu Islendinga sem
liér naði miklu áliti fyrir hljóm-
leika gáfu og lærdóm,- hann er þar
að nokkru leyti islenzkur ísbrjót-
ur’ 'le^'r hann á sér almennings
°rð sei11 einkar fimur í list sinni.
Auk þess hefir hann samið þó
nokkur lög, sem vel er af látið, en
ekki mun neitt þeirra hafa verið
prentað.
s. K. Hall
cr fæddur l(i. Nóveniber 1877 að
Gimli. Foreldrar hans eru þau Jón-
as Ixándi Hall ojí Sigríður Kristjáns-
dóttir kona hans. Steingrímur bvrj-
■Gi hljómfræðisnám þegar hann var
Þ2 ara. ]897 fór hann á Gustafus
Adolphus College í St. Peter, Minn.,
og útskrifaðist þaöan 1899, í pípu-
organslætti, pianoleik. hljómfræði
etnfaldri 0g samsettri og sögu hljóm-
fncðinnar; fékk hann þá stigið B.
M. f'Bachelor of MusicJ. Tvö árin
næstu las hann tóna og hljómfræði
hja Zozh kennara í Minneapolis og
H. von Scheller í Chictgo. Arin 1902-
1903 var hann kennari við pianodeild
1 hljómfræðisskólans í St. Peter og
1904 yfirkennari þar. Árið 1905
! flutti Steingrímur til Winnipeg og
hefir dvalið þar siðan. Hann er
organisti og söngstjóri i Fyrstu lút.
kirkjunni. Hann stofnaði Vestur-
Winnip. hljóðfæraflokkinn og stjóm-
aði honum í 4 ár; eru nú margir, sem
í þeim flokki voru, leiðandi menn í
j öðrum hljóðfæraflokkum, þar á með-
jal tveir, sem í stríðið hafa farið. —
Steingrímur hefir samið nokkur lög
j þessi þar á meðal:
1 “Mazurka” fyrir fíólínsspil.
“Thott art so like a flovver”.
“Já, vér elskumi ísafoldu" og
“Guard while I sleep”, fjórraddað.
Steingrimur er prúðmenni i allri
I framgöngu og vinsæll mjög.
Hann er kvæntur Sigríði önnu
i Hördal, hinrú alþektu og góðknnu
I söngkonu meðal Vestur-íslendinga.
Atkvæði á Gimli.
21. þ. m. verða greidd atkvæði á
Gimli um vínsölubann. Er sú at-
kvæðagreiðsla þýðingarmeiri en
margan kann að gruna í fljótu
bragði. Gimli er eini staðurinn sem
berst um þetta mál nú í haust; en
almenn atkvæðagreiðsla fer fram
í öllu fylkinu í vor.
Það er engum efa bu»dið að sig-
ur á einum stað og einum tíma
hefir hvetjandi áhrif á fólk á öðr-
um stöðum og öðrum tímum; en
ósigur hið gagnstæða. Ef sigur
vinst á Gimli veröur það til pess
að gefa bindindismönnum enn þá
meiri vissu og starfsþrek, en held-
ur til þess að draga úr afli brenni-
víns liðsins.
Ef bindirtdismenn aftur á móti
skyldu tapa þá dregur að kjark og
traust úr þeim þegar til kemur í
vor, en eykur hinum vonir.
Gimlibúar þurfa því að hafa
það hugfast að þeir eru að búa
alla fylkisbúa undir vorbaráttuna
með atkvæði sínu á þriðjudaginn.
Þeim til leiðbeiningar mætti
geta þess að á þriðjudaginn voru
greidd atkvæði um það í mörgum
bæjum í Sashatcrewan að koma á
vihsölu þar sem hún var ekki og
afnema hana í bæjum þar sem hún
var. Undantekningarlaust unnu
bindindismenn alstaðar. Vínið var
útllokað alstaðar þar sem um
það voru greidd atkvæði og því
hvergi leyft inn þar sem iram a
það var farið af brennivínsliðum.
Gimlibúar þurfa að sýna þeim
það greinilega á þriðjudaginn sem
brennivínsbölinu vilja halda við að
þeir eru engir skrælingjar, sem
ekki kunna að lesa tákn tímanna
■og feta í spor siðaðs fólks.
Ef Gimlibúar skyldu verða svo
ógæfusamir að leyfa þeim óvini
griðland framvegis er þeim hefir
allra mesta bölvun unnið, þá verð-
ur á þá bent sem þá menn er flat-
ir liggi fyrir áhrifum hinnar van-
helgustu handar sem spillingin
þekkir.
Gimlibúar, reynist drengir 21.
desember. Gefið ekki konum ykk-
ar og börnum, bænum ykkar og
heimili brennivínsleyfi í jólagjöf.
Arni Eggertsson
Nú er að því komið að skera úr
hvort íslendingar eigi hér eftir
sem hingað til að vera algerlega
útilokaðir frá öllum áhrifum í
bæjarráðinu í Winnipeg. Nú er
áriðandi að taka saman höndum.
Síðan Lögberg kom út síðast hefir
tnargt gerst. Sá er á móti Eggert-
son sækir hefir reynt að rægja
landa vom og bera á hann ósann-
ar sakir. Atti að reyna að snua
gegn honum ensku fólki \ á þeim
grundvelli að hann væri Þjóðverj-
um hlyntur og föðurlandssvikari.
En sanngjarnir enskir menn komu
fram og sýndu fram á hvílík fjar-
stæða þetta væri, enda sönnuðu
það skýrslur að Árni hafði lagt
stórfé í þjóöræknissjóð Islending-
um til sóma, en andsækjandi hans
j ekki eitt einasta cent. Verður
j þetta atriði vafalaust til þess að
| snúa mörgum á band Áma, er áð-
■ ur voru honum andstæðir, en það
j sýnir hversu vandur mótsækjandi
| lians “Midwinter” er að meðulum,
cnda er hann að því kunnur að
líta smáum atigum á þá sem útlend-
ingar kallast, svo sem Islendinga.
! Og maður sem til annara eins
j ódrengskaparráða grípur og hér er
um a'5 ræða, er sannarlega ekki
þeim hæfileikum gæddur að honum
sé fyrir opinberum málum trúandi.
En, Landar! minnist þess að
ekki er nóg að vera með Eggertson
i oröi, yþótt það sé gott; farið út
og vinnið fyrir kosninguna; hafið
áhrif á sem allra flesta; gætið þess
að enginn atkvæðisbær maður frá
hans hlið sitji heima. Og annað;
kosningadaginn þarf hann á 140
eftirlitsmönmím að haldaj (Scru-
teeners), gerið svo vel að finna
umsjónarmann hans Mr. Spencer
á nefndarstofunni á Sargent Ave.
og bjóðist til að vera eftirlitsmenn
á kosningardagipn.
Dauðadómi breytt.
Önnur konan, sem getið var um
í síðasta blaði að dæmd hefði ver-
ið til lífláts, hefir verið náðuð frá
honum; en 10 ára fangelsi ákveð-
ið henni í þess stað. Hún heitir
Mrs. Annie Hawkes og haföi myrt
hjákonu bónda síns. Hin konan
var einnig náðuð, en dæmd í æfi-
lar.gt fangelsi.
vínsmenn hafa komið i dagsljósið;
lofið þeim að koma öllum út; þeim
skal verða mætt þegar til kemur;
nógur tíminn eftir nýárið.
Brennivínsliðið.
er
Dauðatökin og dauðastríðið
oft ægilegt. Þegar heljar risar, sem
engu hafa hlíft og alt hafa brotið
undir sig sjá dauðann framundan
sér, þá fyllast þeir trölldómi og æði.
Þannig var það í sumar með aft-
urhaldsflokkinn; allir muna eftir
öllum þeim ósköpum sem á gengu
í afturhaldsblöðunum, þegar sá
flokkur var í fjörbrotunum; þarf
ekki annað en að lesa alt stóra
letrið í Telegram, til þess að ryfja
það upp fyrir sér.
•Nú er það brennivínsspillingin,
sem sér sitt óvænna. Hún horfist
nú í augu við dauðann í þessu
fylki, og ver því hundruðum þús-
unda af því fé sem hún hefir sog- j.Guð, lát flóa gleðitár;
JónSigfússon sœkir
um oddvitaembætti.
íslendingar í grend við Lundar
eru sterklega ámintir um að fylgja
að málum landa vorum Jóni Sig-
fússyni við kosninguna á þriðju-
j daginn kemur. Hann er öllum að
I því kunnur að vera tramkvæmdar-
maður mikill og fylginn sér, og er
það tvímælalaust sveitinni í hag að
fá hann kosinn sem oddvita. Jón
er bróðir Skúla Sigfússonar þing-
manns, og stæði sveitin sérlega vel
að vígi ef oddvitinn og þingmað-
urinn ynnu eins vel saman að mál-
um hennar og húast má við að þeir
bræður geri.
En það er ekki nóg að vera ekki
á móti, um að gera að allir fari
á kjörstaðinn þegar til kemur.
Jólavísa.
Náðarblíð náðartíð nálgast jól í
Kristinn lýð kætir fríð kærleikssól.
söngsnillingi. Þar er eirrnig
“Jungletown” eftir sama höfund.
Jöseph B. Buberts sem söngnum
stjórnar og er einnig höfundur
sjálfur; hefir hann 13. Ieikara í
flokki með sér. Hann hefir í
sinni þjónustu Jack Henry og Rose
Gardner.
Frank Milton og De Long syst-
urnar leika í nýjum leik. Það er
járnbrautarleikur sem heitir “Th«
Terminal”.
“Twenty Minutes Layover al
Alfalfa Junction” er leikurinn sem
þetta var bygt á.
“The Two Pucks er leikið af
unglingum og þykir mikið til
koma.
Miss Leitzel leikur aðdáanlega
að allra dómi. Marie Bishop leik-
ur á fiðlu af þeirri list er fáum
er gefin.
“The Tuscano Brothers” eru
kkeddir eins og rómverskir bar-
dagamenn og skemta svo að ekk-
ert jafnast við.
ið út úr húsum ekkna og munaðar
leysingja, til þess að reyna að villa
sjónir með röngum og rangfærð-
um skýrslum. Er reynt að láta
málstað brennivínsins líta út sem
fegurstan og þegar þeir sem skarp-
ar hugsanir hafa og slægvizku eru
viljugir að leggja krafta sína til
að villa sjónir, þá er ekkert mál
svo ilt að það geti ekki tekist að
afvegaleiða gnmnhugsandi1 fólk í
bráðina.
En lesið þið allar stóru greinam-
ar hrennivínsmannanna; hugsið þii$
vel um þær, lærið .þið allar kenn-
ingarnar sem þær flytja og tölum-
ar sem þær koma með, svo komum
við bindindismennirnir til á eftir.
Þetta er í fyrsta skifti sem brenni-
Gef að þróist friðsæl ár;
Og lát gróa :,: öll vor sár
— S.R.
“Landið verður eins og ctauðra
manna gröf, ef hætt verður að
drekka brennivín” segja vinsal-
amir. — Hugsið vel um þetta.
Brennivíns siðferði, brennivíns
manniið, brennivíns sparsemi,
brennivíns fjárhyggni, brennivíns
heilbrigði. — Þetta prédika þeir
núna blessaðir.
ORPHEUM
“The Bachelor Dinner” er eink-
ar skemtilegur söngleikur, saminn
af Seymour Brown, hinum fræga
PANTAGES.
Leikhússtjórar í Chicago hafa
} tekið eftir því með undrun í tvær
vikur að undanförnu hversu mikla
aðdáun Gus Elmore og “Cannibal
Maids” hafa vakið.
“Cannibal Maids” byrja á Pant-
ages næstu viku. Þar verður líka
Iæ Roy og Paul gleðileikarar.
Einnig “Frank Bush” og “Imper-
ial Troups” næstu viku.
1 “Cannibal Maids” er Gus
Elmore beztur leikari og leikur
“Fiji” höfðingja. Hann er upp-
spretta endalauss hláturs; talar
tóma vitleysu. Það sem Elmore
leikur þar er tilbúið eins og “The
Lone Fisherman” í “Evangeline”.
Arthur Stauffer, sem skrifaði
“September Morn” bjó til öll lögin
“My South Sea Islend Rose”, sem
“Hazel Wood” syngur er fyrirtak.
“The Cannibal Maids” tekur öllu
fram eftir dómi Chicagomanna.
Hjörtur Thordarson
landi vor í Chicago hefir unnið sér
mikið nafn á Panama sýningunni í
ár’
Blað frá San Francisco var ny-
lega sent Gunn. Goodmundson þar
sem mynd er af Thordarson og
lýst nýrri uppfundningu hans er
svo mikilsverð sé að hún muni
gerbreyta ýmsu því er nú á sér
stað. Greinin er Iöng og itarleg;
veröur úr henni þýtt þaö merkileg-
asta í næsta blaði Lögbergs og þar
rækilega minst á (Thordarson.
Af öllum góðum hlutum sem fylgja jólatíman-
um er x
HREINASTI VARNINGUR
(búið til í Vesturlandinujhanda Vesturlanda íbúum)
Það sem bezt kemur sér og
mest þykir í varið af ’öllum
á heimilinu:
Gold Standard Baking
Powder tryggir góða bökun.
Golð Standard sykur-
leðja gefir kökunni brezkt
bragð.
Gold Standarð bragð-
bætir og jurtir eru mátulega
frískandi.
Gold Standard sætukvoða er ágæt fyrir
eftirmat, og
Gold Stanðard te eða Gold Standard
hreinsað kaffi eru fyrirtaks drykkir til þess
að kóróna jólaréttina.
The Codville Company Ltd
W I N N I P E G
Heildsölu útibú í
BRANDON MOOSEJAW
SASKATOON