Lögberg - 30.03.1916, Side 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af saetabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem ljúffengast. Giftingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni «m er meistari fþeirri
ið 1. Kringlur og tvibökur einnig til sölu. Pantanir fiá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigandi,
11 56-8 Ingersoll 3t. - Tals. G. 4140
ÞETTA PLÁSS ER
TIL SÖLU
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 30. MARZ 1916
NÚMER I3
Hærri Kviðdómur ákveður kærurnargegn Roblin,
Howden, Coldwell og Kelly á rökum bygðar
STÓR BÆR BRENNUR OG
3000 MANNS VERÐA HÚSVILTIR
$200,000 af verzlunarhúsum brennur; bómull
$2,000,000 virði og $1,000,000 virði af
íbúðarhúsum.
Eftir langa yfirvegun var sá
dómur kveðinn upp á þriðjudag-
inn kl. 2.30 e.h. að kærumar
gegn Roblin, Howden, Coldwell
og Kelly væru á rökum bygðar,
eða að sannanir væru svo mikl-
ar að mál þeirra yrði að koma
fyrir.
Roblin og ráðherrarnir eru
kærðir um það að múta vitnum
og samsæri til fjárdráttar. Rob-
lin er auk þess kærður um að
eyðileggja opinber skjöl.
Kelly er kærður um þjófnað,
þágu stolinna peninga, fjárdrátt
undir fölsku yfirskyni og mein-
særi. Kviðdómurinn lagði til að
málið yrði tekið fyrir í júní.
Stríðsfréttir
Almennar fréttir.
R. M. Noble, lögmaSur í Winni-
peg, var á laugardaginn skipaður
fy’.kisdómari í staö Bonnicastle,
sem hefir gengi'S í herinn, og verS-
ur því að láta af stöðu sinni.
Séra R. S. Laidlaw frá Brandon
hefir veriS kallaður t'.l Knox kirkj-
unnar í Winnipeg. Var hann sett-
ur inn í embætti á sunnudaginn
með mikilli viðhöfn.
Landvarnar fr^imvarpið í Banda-
ríkujnum kom fyrir þingið 6. marz.
Samkvæmt því verða 140,000 i
lan^lhernum á friðartímum en 170,-
á ófriðartímum. Er áætlað að það
munf kosta $141,704,846, og er það
846,000,000 hærra á ári en með því
fyLrkomulagi sem nú er.
í bænum Augusta í Ga. brunnu
eignir upp á $5,000,000 á föstudag-
inn. Brunnu t:l kaldra kola tiu fer-
hymingar (Blocks) með verzlunar-
húsum og 20 ferhyrningar með
íveruhúsum.
Eldurinn eyðilagði alt sem fyrir
varð á 1% fermílu svæði og brunnu
allra stærstu verzlunarhús bæjar-
ins, vöruhús og opinberar bygging-
ar. Enn fremur allra skrautlegustu
bústaðir borgarinnar. Þar brann
fræg og inerkileg kirkja 135 ára
gömul.
I bænum Paris í Texas, sem get-
ið var um síðast að brunnið heföi,
eru 3000 manns húsviltir og eru
samskot hafin víðsvegar til hiálpar
nauðstöddu fólki þar.
Á laugardaginn komu þær fréttir
að bærinn Verdun á Frakklandi,
þar sem orustan mikla hefir staðið,
stæði í björtu bili.
t
Fulgvélaskipið Sussex sökk í
Ermarsundi á föstudaginn. Á skip-
inu voru 438 manns, og er álitið að
75 muni hafa farist.; hinir björguð-
ust.
iTveim skipum lenti saman i
Norðursjónum 29. febr.; var ann-
að þýzkt og hét “Grief” en hitt
enskt og hét “Alcantara”. Fórust
bæði skipin. Þjóðverjar mistu 120
manns og Englendingar 75.
Lítils háttar sjóorusta átti sér
stað í Norðursjónum á laugardag-
inn. Tveimur skipum var sökt fyr-
ir Þjóðverjum, en önnur flýðu, en
þrjú loftskip frá Englendingum
töpuðust.
Enska herskipið “Medusa” rakst
á annað skip á laugardaginn og
sökk; öllu fólki bjargað.
Svo segja ún blöðin að Þjóðverj-
ar og Austurríkismenn séu ekki í
neinni hættu af vistaskorti. Fréttin
um það á föstudaginn er á þessa
leið:
“Rómabórg 24. marz 1916. Skýrsl
ur sem afhentar hafa verið alþjóða
akuryrkjustofunni bera það rneð
sér að Þjóðverjar og Austurríkis-
menn muni hafa 400,000 tunnur af
hve'ti og rúgi í varaforðabúrinu
næsta september. Er það svo að
segja jafnmikið og á sama tíma i
fyrra. Sérfræðingar þessarar al-
þjóða akuryrkjustofnunar segja
veðuráltu þess konar, að uppskera
verði góð i þessum löndum, og
telja þeir líklegt að enginn fæðu-
skortur verði þar.
Á undan stríðinu var meðal
hveitiuppskera i Ungverjalandi
46,000,000 metramælar (qvintals),
en nú er sagt að það verði um 40,-
000,000. Kartöflu uppskera í Ung-
verjalandi er talin 7 prócentum
hærri í ár, en hún var árið 1914, og
maís uppskera heldur hærri en hún
var það ár.
Fundir hafa verið haldnir víðs-
vegar í Englandi, þar sem þess
hefir verið karfist að Derby jarl
segi af sér sem aðal nefndarmaður
í her söfnuninni. Ástæðan fyrir
þeirri kröfu er sú að menn mót-
mæla þeirri aðferð að heimta
kvænta menn í herinn, áður en all-
ir einhleypir séu komnir þagnað.
Herdeild Englendinga í Suður
Afríku, undir forustu Smuts hers-
höfðingja hefir hertekið bæinn
Arusha frá Þjóðverjum, og er það
talið mikils virði. Auk þess heldur
Smuts ‘öllum héruðum hjá ánni
Ruwn. Mannfall Þjóðverja þegar
borgin var tekin var allmikið.
Herforingja skifti hafa orðið
yfir brezka hernum í Egyptalandi;
hefir J. G. Maxwell látið þar af
herstjórn, en maður sem A. Murray
hefir tekið við. Alt er í góðu lagi
þar eystra nú sem stendur.
Sk pinu “The Englishman” var
sökt nýlega á Atlanzhafinu og fór-
ust allmargir menn.
Hershöfðingja hegnt.
Soukhomhinoff hershöfðingi á
Rússlandi var með vanvirðu svift-
ur tign nýlega. Hann hafði verið
hermálaráðherra Rússa. Þær sakir
voru bornar á hann að hann hefði
í stöðu sinni vanrækt að hafa til
nægileg hergögn, og hefði þjóðin
beðið við það stórtjón.
Page ríkisf ulltrúi frá Norður
Carolinu hefir lýst því yfir að hann
leggi niður embætti sitt vegna þess
að Bandaríkin lánuðu Englandi
$500,000,000; kveður hann það
sýna hlutdrægni.
Tveir skólakennarar í Medecine
Hat í Alberta voru úti á sunnudag-
inn með hermanni úr 175 deild.
Hafði hann með sér byssu til þess
að skjóta með dýr, en skó’.akennari
sem Ester Nicholson heitir hélt á
byssunni og hljóp skot úr henni
óvart og varð hinum skólakennar-
anum að bana. Hún hét Gladys
Paterson.
Kornhlöðufélagið í Saskatchew-
an ætlar að byggja 30 kornhlöður
þar í fylkinu í sumar.
Nýkomnar herskýrslur í Canada
sýna það að 24,000' manns eru við
heræfingar í 10. herhéraði. 4936
herforingjar eru í Canada fyrir
120,392 hermenn. Kostnaður við
Canadaherinn er um $12,000,000
(tóí\ miljónir) á hverjum mánuði.
Dr. Simpson, sem Manitoba
stjórnin hefir heimtað að verði
fluttur hingað til Winnipeg frá
Englandi til þess að standa fyrir
máli sínu, hefir lofast til þess að
koma af frjálsum vilja.
C. H. Cowthorpe þingmaður fyr-
ir Biggar kjördæmi í Saskatchew-
an, hefir verið kærður fyrir að
hafa þegið $500 mútur 1913 til
þess að vera á móti vínbannslaga
frumvarpinu. Heffermann heitir
dómari sá er réttinum stjórnaði
og áleit hann líkur svo miklar fram
komnar gegn Cowthorpe, að hann
skyldi kærður fyrir æðra dómi. Er
hann laus gegn $1500 veðfé og bíð-
ur dómsúrskurðar.
225 særðir og limlestir hermenn
frá Canada komu á föstudaginn frá
Englandi til Quebec á skipunum
“Sicilian” og “Corinthian”. Af
þeim voru 25 frá Winnipeg.
Royal Templarar í Winnipeg eru
byrjaðir á að byggja $26,000 sam-
komuhús á Ýoung stræti, rétt hjá
Portage Ave.
Erost og hríðarbylur var í
Saskatchewan og vetsurhluta Mani-
tobafylkis 23. marz. Járnbrautar-
lestir teptust; talþræðir byluðu og
yfir höfuð var veðrið eins og verst
getur verið um hávetur.
Niðurjöfnunarnefnd.
Fylkisstjómin hefir útnefnt þrjá
menn í nefnd, til þess' að jafna nið-
ur öllum þeim gjöldum sem heyra
til fylkinu í heild sinni; var slíkt
kölluð niðurjöfnunarnefnd heima á
Fróni. Nefndin á að virða allar
skattskyldar eða gjaldskyldar eign-
ir í fylkinu, og eiga þeir að hafa
lokið því starfi 1. júlí.
í nefndinni eru þessir: Robert
Young, alþektur f jármálamaður hér
í Winnipeg, gamall starfsmaður
Canada lífsábyrgðar félagsins;
George Metcalfe, bróðir Metcalfes
dómara, einnig frá Winnipeg og
Robert Forke, viðurkepdur fjár-
málamaður frá Pipestone; á hann
aðallega að vera fulltrúi landsbygð-
anna.
Afar mikil óregla og ójöfnuður
er sagt að hafi átt sér stað að und-
anförnu í gjaldaálögum í fylkinu,
og er talið v'íst að þessi nefnd kippi
því í lag; þetta tiltæki stjórnarinn-
ar er því stór réttarbót.
Amundsen til norður-
heimskautsins.
Frétt frá Kristjaniu segir að
Hróaldur Aumundson, suðurheim-
skautsfarinn frægi, ætli að leggja
af stað til norðurheimskautsins að
vori (igij). Þingið hefir boðið til
þeirrar farar 200,000 krónur og
hefir hann þegið boðið, eftir því
sem fréttin segir.
223. Skandinaviska
herdeildin.
223 herdeildin hefir með leyfi
Lt.-Colones Bradburys leyfi til
þess að safna liði í Selkirk kjör-
dæmi.
Liðsafnaðar fundur verður
haldinn að Gimli í dag, fimtud.
.30. marz, að Árborg á morgun,
31. marz.
Lt.Colonel Bradbury eða ein-
hver fulltrúi 108 deildar og lieut.
H. M. Hanneson frá 223. deild
tala á fundunum.
Samsöngur á báðum stöðum.
Hús og húsbúnaður hr. Trausta
Davíðssonar, nálægt Hnausa, Man.,
brann til kaldra kola núna i vik-
unni. Engu bjargað; engin elds-
ábyrgð.
*
Ur bygðum
Islendinga.
Norður Dakota.
Mr. og Mrs. B. Tohrgrímsson
frá Mountain fluttu nýlega norður
til Canada og settust að í Riverton.
Embættismenn frá Thingvalla
héraði i Norður Dakota voru þess-
ir kjörnir. Eftirlitsmaður til þriggja
ára S. J. Sigfússon, skrifari C.
Indriðason, gjaldk. H. H. Reykja-
lín, virðingamaður Jóhannes Jónas-
son, friðdómarar til tveggja ára C.
Indriðason og Paul Johnson, lög-
reglumenn til tveggja ára, E. A.
Brandson og O. M. Olason, sátta-
semjarar Jóhannes Jónasson, S. M.
Melsted og M. Einarsson.
Atkvæði fyrir forseta Bandaríkj-
anna voru greidd þannig: Wilson
33, La Folette 20, og Estabrook 11.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband að Gardar Mabel Paul-
son og Carl Bergmann, að heimili
foreldra brúðarinnar.
í Gardar héraði voru þessir kosn-
ir embættismenn fyrra þriðjudag:
Umsjónarmaður S. S. Láxdal,
virðingamaður John Johnson, gjald
keri G. Thorleifson, ritari H. J.
Hallgrímsson, friðdómarar Jónas
Ha1l og Stefán Eyjólfsson, lög-
reglumaður G. B. Olgeirsson.
(C>essar fréttir teknar eftir Edin-
burg Tribune).
Rógburðar tilraun Mrs. Joseph-
son fsystur hins fræga heimskauta-
fara) milli mín og séra Jakobs
Kristinssonar tel eg óþarft að
svara. Eg þekki séra Jakob lítið,
en eð öllu góðu og hefi aldrei, mér
vitandi, sagt neitt niðrandi í hans
garð.
Sig. Júl. Jóhannesson.
I Niður’agið á “Hvert stefnir” í
næsta blaði.
Atvinnunefnd.
Sambandsstjórnin i Ottawa hefir
á prjónunum hugmynd þess efnis
að skipa allsherjar nefnd í Canada,
með undirnefnd í hverju fylki,
til þess að útvega heimkomnum
særðum hermönnum atvinnu, hverj-
um eftir mentun og hæfileikum.
Hugmyndin er sú að stofna skóla
víðsvegar um landið, sem kenni her-
mönunnum það sem þeir þurfa t'l
þess að verða hæfir fyrir þá stöðu,
sem þeir geta tekið hver um sig,
eftir þvi hvernig þeir eru fatlaðir.
Er þetta ágæt hugmynd í alla
staði og nauðsynlegt. En undir
því er mikið komið að vel sé og
samvizkusamlega valið í nefndina.
Um það er verið að ræða nú, eftir
hvaða mælikvarða skuli farið þeg-
ar ákveðinn skuli árlegur lífeyrir
fatlaðra hermanna; kemur flestum
sam.au um að hanr. ♦kuli fara eftir
því hvaða tekjur sá hafi haft, sem
um er að ræða. Aðrir vilja láta
alla hafa jafnt, hvaða atvinnu sem
þeir hafa stundað. Líklega verður
það fyrtalda ofan á.
Alvarlegar ákœrur.
Þingmaður í Ottawa sem George
Kyte lieitir, lýsti því yfir í þinginu
í Ottawa í fyrradag að hergagna-
nefndin hefði veitt $2,500,000
("tvær miljónir og fimm hundnið
þúsund dali) félagi sem í raun
réttri hefði ekki verið til nema að
nafninu, fyrir hervörur.
Þessi ákæra er svo alvarleg að
fátt hefir verra verið, og verður
nánar frá því skýrt síðar. Fréttin
kom h ngað jiegar blaðið var að
fara í pressuna.
Allir boðnir.
Ókeypis samkoma verður haldm
í neðri sal Goodtemplara hússins á
morgun ('föstudaginn) kl. 8 e.h.
Liberal klúbburinn býður þangað
öllum, konum jafnt sem körlum, af
hvaða fólki sem er, og alveg ó-
keypis.
Þar verða ágætir söngvar, fyr-
irtaks hljóðfærasláttur og nokkrar
ræður.
Aðal ræðumaöurinn verður Thos.
H. Johnson ráðherra, en auk þess
talar Dr. Jón Stefánsson um borg-
aralegt gildi klúbbsins og Dr. Sig.
Júl. Jóhannesson um áhrif Hermi-
þingsins.
Vel ætti það við að einhver kona
kæmi fram á þessari samkomu og
mælti nokkur orð, þar sem þetta er
fyrsta opinber samkoma af þessu
tagi sem Thos. H. Johnson hefir
verið á meðal íslendinga síðan því
þingi var slitið sem fyrst allra
þinga í Canada veitti konum at-
kvæði og kjörgengi.
Því er óhætt að lofa að þessi sam-
koma verði þess virði að sækja
hana og á það skal aftur minst að
þar verður hvorki seldur aðgangur
né samskot tekin.
Munið eftir föstudagskveldinu!
Dr. Arthur Warren Waite tekinn
fastur.
Læknir í New York, er A. W.
Waite heitir, hefir verið tekinn
fastur, grunaður um morð. Hann
er kvæntur dóttur John E. Pecks,
sem var miljóneri frá Grand Rapids
í Michigan. Tengdaforeldrar lækn-
isins voru í kynnisferð hjá honum
og dóttur sinni nýlega, og dóu bæði
skyndilega; var lík hans grafið upp
og rannsakað og fanst eitur í inn-
ýflunum, en konan hafði verið
brend. Læknisfrúin átti að erfa
helming eignanna eftir foreldra
sína og er þess getið til að sú sé
ástæðan fyrir þessu.
Bæjarfréttir.
Meðtekið frá J. B. Johnson, Dog
Creek, $5.00 !• þjóðræknissjóðinn
og frá konu hans $5.00 í Rauða
kross sjóðinn.—Th. Thorsteinsson.
Mrs. O. Magnússon • var jörðuð
á miðvikudaginn kl. 2. e.h. frá
Fyrstu lút. kirkjunni.
Sú frétt hefir borist út með góð-
um heimildum að séra F. J. Berg-
mann sé ráðinn herprestur í deild
Fonseca.
Þau Fr. Thompson og kona hans
urðu fyrir þeirri sorg að missa 4
ára gamlan dreng á sunnudaginn
var úr skar’.atssótt. Hann hét Pét-
ur Guðjón Hjaltalín, mjög efnileg-
ur. Var hann jarðsettur á sunnu-
daginn af séra B. B. Jónssyni frá
heimili foreldranna undir umsjón
A. S. Bardals.
Erlendur Erlendsson, Húnvetn-
ingur að ætt og faðir þeirra Björns
Erlendssonar bónda í Víði hér í
fylkinu og Sigurðar Erlendssonar
hér i bæ, andaðist að heimili Björns
sonar síns þann 7. janúar siðastl.,
85 ára gamall. Lá rúmfastur rétt
um mánuð. Jarðarförin fór fram
frá heimili þeirra feðga í Víði þann
13. jan. Stra Jóhann Bjarnason
jarðsöng. — Um dánarfregn þessa
hefir láðst að geta þar til nú.
Kvenfélag fyrsta lúterska safn-
aðar hefir ákveðið að halda útsölu
fBazar) í sunnudaga skóla sal
kirkjunnar, einhverntíma í vor.
Skeð getur að einhverjar kvenfé-
lagskonur viti ekki um þessa á-
kvörðun félagsins og því eru þær
og allir aðrir vinir safnaðarins og
kvenfélagsins á þetta mintir. Því
eins og vant er, vonast félagið eftir
að konurnar búi til margt fallegt og
eigulegt til að selja á útsölunni.
Auðvitað verður þar líka selt kaffi
og aðrar góðgjörðir, eins og vant
er. — Einnig hefir kvenfélagið á-
kveðið að hafa hina árlegu sumar-
mála samkomu, en af því að sum-
ardaginn fyrsta ber upp á skir-
dag þetta árið, verður samkomunni
frestað um viku. Meira um þetta
síðar.
Páskasamsöngur (Easter Con-
cert) verður haldinn í Central Con-
gregational kirkjunni 24. apríl
undir persónulegu eftirliti Francis
Fisher Powers, til ágóða fyrir 223.
herdeildina, sem herra Lt.-Col.
Albretchsen stjórnar. — Sumt af
allra bezta hljómleika- og söng-
fólki tekur þátt i því. Þessi sam-
söngur verður einn sá stærsti sem
haldinn verður á þessu tímabili.
Nákvæm skemtiskrá auglýst síðar.
Peter Magnus frá Glenboro, sem
nýlega fór suður til Chicago, eins
og getið var um í Lögbergi, kom
þaðan aftur á mánudaginn og fór
heimleiðis aftur í gærmorgun.
Hann kvað Islendingum líða vel í
Chicago, og sömuleiðis í Minne-
apolis; þar var hann afceins í tvo
daga. Framtíðar horfur mjög góð-
ar, sérstaklega í Minneapolis; þar
er nóg vinna og miklar byggingar i
sumar.
J. Ashdown stórkaupmaður, sem
legið hefir á hospítalinu i Rochester
um tíma, kom heim á sunnudaginn
á góðum batavegi.
Árni Árnason og Magnús W.
Magnússon frá Leslie komu til
bæjarins fyrir helgina og innrituð-
ust í 223. deildina. Þeir fóru
heim aftur á sunnudaginn og verða
heima í 6 vikur. Magnús er bróð-
ursonur W. Magnússonar prentara
Lögbergs.
Bonar Law lýsti því yfir í fyrra-
dag, að canadiskt brennivín væri
meðal þeirra hluta, sem bannaður
væri innflutningur á til Englands.
21. þ. m. andaðist ekkjan María
Jóhannsson, ekkja Sigurbjörns heit.
Jóhannssonar skálds, er lengi átti
heima i Argyle bygð. Hún var síð-
ustu árin sjö hjá tengdasyni sínum,
hr. J. A. Sveinssyni.
Þegar blaðið er að fara í press-
una berst því ágæt ritgerð eftir Jón
á Sleðbrjót um tslenzkar konur og
kvenréttindi. Hún birtist í næsta
bláði.
BITAR
“Island” fór til útlanda í morg-
un, segja blöðin heima 9. febr.
Skrítilega til orða tekið, en þó rétt.
Munið eftir því að hún Rósa—
nei, nei, hún Sigurrós, er systir
hins heimsfræga norðurheimskauts-
fara.
“Fólkið er ekki nógu þroskað til
þess að greiða atkvæði um afnám
vínsölu, og það er ekki nógu þrosk-
að til þess að búa undir algerðu
vínbanni” segir Kringla. Fyrra
ámælið rak fólkið ofan í hana 13.
marz; síðara ámælið fer það eins
með seinna.
Almennar fréttir
Kona nokkur, Mrs. Joseph R.
Tachur, skamt frá bænum Wood-
ric’ge í Manitoba, fanst örend í
rúmi sínu 13. marz; hafði hún ver-
ið skotin til bana. Þegar nágfann-
ar komu á heimilið og drápu á dyr,
var ekki svarað; þeir fóru þvt inn
og sáu hvemig komið var. Tvö
ungbörn léku sér á gólfinu, móðlr
þeirra lá andvana í rúntinu, en
húsbóndinn var ekki heima — ný-
lega farinn burtu. Hann hefir
verið tekinn fastur og bíður yfir-
heyrslu hér í Winnipeg.
Ö’.dungadeildin í Washington'
hefir samþykt heraukningar frum-
varpið, sem kent er við Hay. Frum-
varp þetta er fyrsta stigið til þess
að vera við varnarstríði búinn, ef
til kæmi.
Ma,ur sem T. R. Preston heitir
hefir skrifað sögu Strathcona lá-
varðar og fer um hann mjög niðr-
andi orðum. Ef trúa má staðhæf-
ingum hans ? þessari bók, þá hefir
Strathcona verið einhver versti og
óhlutvandaðasti maður, sem hér
þefir stigið fæti á jörð. Ættingj-
ar hans hafa höfðað mál móti höf-
undi bókarinnar og varð það út úr
að bönnuð var sala bókarinanr
samkvæmt dómi. En þar var að
eins um eitt atriði að ræða; lét
Preston því sleppa því eina atriði
og prenta bókina aftur, án þess.
Varð þetta bókinni svo góð auglýs-
ing, að hann græddi á h^nni stórfé.
Að því búnu símaði blaðamaður á
Englandi sem W. A. MacKenzie
heitir til ýmsra blaða í Canada og
lastaði bókina; blöðin birtu það og
höfðaði Preston mál gegn Mac-
Kenzie. Það var dæmt á fimtudag-
inn og tapaði Preston því.
Mary A. Hamilton í Hamiota í
Manitoba, fanst myrt i kjallara
íbúðarhúss síns nýlega. Hafði hún
verið barin til dauðs. Hún var
gömul kona, húsmóðirin á heimil-
inu. Enginn var heima þegar þetta
skeði nema hún og ung stúlka sem
var þar vinnukona, og Teenie Mal-
one heitir; hún er galizíu stúlka.
Hefir hún verið tekin föst og kærð
um að hafa myrt húsmóður sína.
Margar glaðar stundir wni til í
þetta skifti, en vcrða að bíða næsta
blaðs sökum r.úmleysis.
Guðsþjónustur í prestakalli séra
H. Sigmars:
Sunnudaginn 2. apríl að Leslie
kl. 11. f.h. Sunnudaginn 2. apríl
að Elfros kl. 2 e.h. Þriðjudaginn
4. april að Wynyard kí. 2. e.h.
Miðvikudaginn 5. apríl að Kanda-
har kl. 2 e.h. Allir velkomnir.
Munið eftir að koma.
Stefán Eiriksson frá Oak View
leit inn á skriftsofu Lögbergs í gær.
Sagði hann góða líðan þar ytra og
engar sérstakar fréttir.
Auglýsing frá Marteini Sveins-
syni að Elfros kom of seint; birtist
í næsta blaði.
Tvö skip með hermönnum frá
Canada eru komin heilu og höldnu
til Englands; annað skipið heitir
“Metagam” og fór 11. marz, hitt
heitir “Lappland” og fór 13. marz.
A þeim voru 4000 hermenn.
Félagið ‘Jón Sigurðsson’
Deildin Jón Sigurösson fl.O.D.
E.) heldur aukafund að heimili
Mrs. K. Hanson, Suite 5, Alex-
andria Apts á horni Edmonton og
praham, miðvikudagskveldið 29.
marz 1916 kl. 8.
Fyrsti reglulegi mánaðarfundur
deildarinnar verður haldinn í
“Assemby Hall” í John M. Kings
skólanum á homi Ellice og
Agnes stræta mánudagskveldið 3.
apríl 1916 kl. 8 stundvíslega.
E. G. Baldwinson.
E. G. Baldwinsson, í bréfi rituðu
á Frakklandi dags. 8. marz s. 1.,
biður blað vort að geta þess að
áritan hans sé:
Pte. E. G. Baldwinson
M. 2/ 153341
ist Base M. T. Depot
Rouen France.
Hann gekk i herinn 15. desem-
ber 1915; fór frá Winnipeg 17.
janúar 1916; kom til Englands 17.
febr. 1916 og til Rouen á Frakk-
landi 5. marz.
Hermann Jónsson
(sonur Jóns Hjálmarssonar frá
Brekku í Mjóafirði á IslandiJ hef-
ir gengið í 222. herdeildina. Hann
er bróðursonur H. Hermann bók-
haldara Lögbergs.
Edward. — Stefán.
Þetta eru bræður, synir Magnús-
ar heit Thorlákssoanr og Moniku
Suðfjörð konu hans, í Þingvalla
nýlendu, Sask. Þeir fóru til Eng-
lands i haust er leið, og eru nú á
Frakklandi; báðir eru Signallers.—
Utanáskrift þeirra er:
Pte. E. J. Thorlakson
422744 Sign. 6 B.D.E.
M. G. Company C.E.F. France.
Og hins:
Pte. S. S. Thorlakson
422745 Sign. 6. B.D.E.
M. G. Company C.E.F. France.
Zeebrugge eyðilögð.
Þjóðverjar hafa haft bæinn Zee-
brúgge í Belgíu, sem skipa- og loft-
bátastöð; en nú hafa bandamenn
skotið á hann sprengikúlum af loft-
skipum hvað eftir annað, þangað
til hann er ekki hæfur til skipa-
stöðva, og er það Þjóðverjum mik-
ill skaði.