Lögberg - 04.05.1916, Side 5
LÖGBKRG, FIMTUDAGINN 4. MAI 1916.
5
Tuttugu og tveggja ára trú þjónusta í þarfir kornyrkju-
manna stendur á bak við nafnið:
Herbert H. Winearls
Aðal skrifstofa: Útibú:
237 Grain Exchange Union Bank Building
WINNIPEG BRANDON
Eins og að undanförnu er mér ant um að komast að sem beztum kjörum
fyrir mina gömlu viðskiftamenn og geta orðið mörgum nýjum að liði í ár.
SKRIFIÐ EFTIR WINEARLS: “HELPFUL HINTS TO GRAIN
SH PPERS”. Nt 0TKOMIÐ. KOSTAR IOc. VIÐSKIFTAMENN
FÁ KVERIÐ ÓKEYPIS. ÞAÐ SPARAR YÐUR PENINGA.
ar/' • • 1 • V timbur, fjalviður af öllum
Nyjar vorubirgoir tegundum, geirettur og als-
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar til vetrarins.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
---------------- Limited ------------
HENRY AVE. EAST - WINNIPEG
SEGID EKKI
“KG GKT KKKT BOR6AB TANNLÆRNI NÚ."
Vér vltum, aC nú gengur eldtl alt aO ðskum og ertttt er aC etgnaat
eklldlnga. Ef tll vtll, er os« þaC fyrlr beztu. þaC kennlr ou, Mm
verCum aC vinna fyrlr hverju centt, aC meta glldl penlnga.
MINNIOT þess, aC dalur sparaCur er dalur unnlnn.
MLNTNI8T þess elnnlg, aC TENNCR eru oft melra vlrOi en penlngar.
HKLLBRIGÐI er fyrsta spor U1 hamlngju. þvt verCtC þér aC verndo
TENNDRNAR — Nú er tímlnn—tiér er staðurinn tll aS láta gera vtfl
tennur y8ar.
Mikill sparnaöur á vöuduðu tannverki
ETNSTAKAR TKNNUK $5.00 ÍIVKR BK8TA 22 KAR. GULL
$5.00, 22 KAIIAT GULI/I’KNNUR
VerO vort ávalt óbreytt. Mörg hundruC manns nota aér hlð lága vee#.
HVKK8 VKGNA EKKI pt T
Fara yöar tilbúnu tennur vel?
•Ca ganga þaer lCulega úr skorCum? Ef þser gera þaC, flnnlC þá tann-
lækna, aem geta gert vel vtC tennur yCar fyrlr vægt verð.
EG Htnnl yður sjálfur—Notíð ftmtán ára reynslu vora vlð taunlæknlngai
$8.00 HVAliBKIN OPIB A KVOUOUM
13 3rt. PARSONS
McGRKKVST BUOCK, PORTAGK AVB. Telefónn M. «00. Uppl yflr
Grand Trunk farbréfa akrtfatofo.
snerti það beinlínis hag Eimskipa-
félagsins má fyrst á það minnast,
að líklega sparar félagiS íslending-
um fullar 300,000 kr. fyrsta árið,
borgar þjóðinni óbeinlínis áttfald-
an styrk þann, sem því var veittur
árlega í fjárlögunum (til millilanda-
ferða).
Eg skal skýra þetta með fám
orðum.
Eins og kunnugt er hafa farm-
gjöld hækkað afskaplega, síðan
stríðið hófst. Félögum, sem geta
fengið nóg að flytja fyrir þessi háu
gjöld, þykir auðvitað súrt i broti að
sigla fyrir miklu lægri farmgjöld
og þykjast jafnvel ekki bundin við
fyrri samninga á ófriðartímum.
Þannig hækkaði Björgvinjarfélagið
farmgjokl sín um fjórðung í byrj-
un stríðsins þvert ofan í alla samn-
inga, og hefir landstjórnin ekki séð
sér fært að rétta þar hluta vom.
Að vísu hefir Sameinaða gufuskipa
félagið ekki gert þetta, en fæstir
munu efast um það, að lí'kt hefði
því farið, ef Eimskipafélagið hefði
ekki verið. Sú hefir og orðið
reyndin á, að Sameinaða fél. hefir
hækkað farmgjöld stórum fengu
minna en Björgvinjarfélagið) með
aukaskipunum. Verður félaginu
tæpast ámælt fyrir það úr því nóg
er að flytja milli annara landa fyr-
ir engu minna verð. Eg tel því öll
líkindi til þess, ef ekki fulla vissu,
að oss hafi sparast um 25% á öll-
um farmgjöldum með skipum þeim,
er fastri áætlun fylgja, við það að
Eimskipafél. var stofnað. Slík
hækkun nemur á ári um 150,000
kr. fyrir skip Eimskipafél. og lík-
lega öllu meira fyrir skip Samein-
aða félagsins. Landinu sparast þvi
um 300,000 kr. á einu ári við starf-
semi l.sl. eimskipafél., jafnvel senni-
legt að í raun og veru sé um hærri
upphæð að ræða. Almenningur
hefir með öðrum orðum stórgrætt
á félaginu.
Samgöngubœtur. Sumar hafnir
eru að vísu svo vel settar, að sam-
göngur og vöruflutningar hefðu án
efa verið þar i góðtii lagi, ])ó skip
Eimskipafélagsins hefðu hvergi
verið. Svo er þetta um Reykjavík.
En öðrum héruðum, sem lakar eru
sett, t.d. Húnavatnssýslu hafa þau
orðið mikil samgöngubót ef ekki
bjargvættur. Allir muna hve vel
gekk fyrsta ferð Gullfoss, sem
slapp fyrstur allra skipa gegnum
ísinn og flutti miklar byrgðir af
nauðsynjavörum til hafnanna við
Húnaflóa. Á þessu ári hefir hann
fariS tvær ferðir með vörur á þess-
ar slóðir, sem geta komið að ómet-
anlegu gagni, ef hafísinn lokar öllu
undir vorið, eins og oft hefir J<om-
ið fyrir. Félagið skaðast á því, að
glíma við þessar erfiðu hafnir og
Sameinaða félaginu mun ekki ljúft
að sigla þangað, en Eitnskipafélag-
ið hefir að þessu leyti látið nauðsyn
almennings sitja í fyrirrúmi fyrir
eigin hag. Vafasamt er það og,
hvort strandferðir hefðu ekki orð-
ið að falla niður næsta sumar, ef
félagið hefði ekki hlaupið undir
bagga. Eg fæ því ekki betur séð,
en að það hafi þegar greitt fram
úr miklum vandræðum og bætt
samgöngumar til stórra muna, þó
ekki hafi því tekist, að koma strand-
ferðunum i það horf, sem til var
ætlast. Styrjöldin gerði það ókleyft.
Um nokkra vanrækslu frá félagsins
hálfu var eflaust ekki að tala.
Stórfé hefir almenningur grætt
á félaginu fyrsta árið og bjargvætt-
ur hefir það orðið fyrir samgöng-
urnar, sérstaklega norðanlands. En
hvernig er þá hagur félagsins? Er
útlit fyrir, að það beri sig og gefi
hluthöfum hagnað í aðra hönd?
Ahrif stríðsins. Styrjöldin hefir
orðið erlendum gufuskipafélögum
feykileg auðsuppspretta. Þau hafa
stórgrætt, en eingöngu vegna þess,
að farmgjöldin hafa hækkað hóf-
laust. I þennan gróða ná þau fé-
lög ekki, sem ekki hækka farm-
gjöldin eins og Eimskipafélagið
hefir gert*ý. Það hefir flutt vör-
ur milli Islands og útlanda fyrir 20
til 24 kr. tonnið, eins og var fyrir
stríðiö, en lausaskipin útlendu, sem
flutt hafa kol og ýmsan varning,
hafa tekið nálega tvöfalt, um 45 kr.
fyrir lestina. —
Félagið hefir því ekki grætt á
stríðinu og er bezt að hluthafar
geri sér það ljóst. Þvert á móti
hefir það tapað stórfé á þvi. Stjórn
félagsins hefir leyft mér að skýra
lauslega frá tjóni því, sem stríðið
hefir valdið undanfarið ár. Gull-
foss var þá í förum 9 mánuði, en
Goðafoss að eins 6]/2, svo tjónið
hefði verið milklu hærra, ef um
heilt ár hefði verið að ræða. Auka-
útgjöldin, sem stríðið hefir valdið,
eru aðallega þessi:
Stríðsvátrygging á skip-
unum meðan á bygg-
ingu þeirra stóð .. .. 2,910 kr.
Stríðsvátrygging á Gull-
fossi í 9 mán. 20,790 —
— á skipshöfn Gullf. 7,200 —
— á skipshöfn Goðaf. 4,225 —
— á Goðaf. í 6]/2 m. 13,697 —
Kauphækkun skipshafna 15,500 —
Verðh. á kolum Gullf. 28,000 —
Verðh. á kolum Goðaf. 12,000 —
Vinnukaups hækkun við
afgreiðslur o. fl..... 10,000 —
Tjón við tafir Gullfoss í
Englandi............... 39,200 —
Tjón við tafir Goöafoss
í Englandi...............15,400 —
Samtals 169,103 kr.
Eftir þessu myndi tjóiuð af stríð-
inu nema hér um bil 241,000 kr. á
heilu ári, ef alt hefði gengið eins og
raun varð á í fyrra, eða um 33%
af hlutafé félagsins ^711,000 kr.).
Með öðrum orðum: til þess að
geta staðist þetta tjón þyrfti félag-
ið að græða í meðalári 33% eða öllu
heldur hátt upp í 40%, ef gera væri
ráð fyrir því, að hluthafar fengju
þetta árið 4—6% arð, og er þó ó-
talin sú fúlga sem leggja þarf i
varasjóð. o. fl.
Hagur félagsins. Það er eg viss
um, að engum hluthafa vestan haf.s
eða austan hefir komið það til hug-
ar, að fá 33—40% ársarð af fé því,
er hann lagði í Eimskipafél. Flestir
munu hafa búist við ríflegri pen-
ingarentu, 5—6%, og jafnvel engu
fyrstu árin meðan þungar skuldir
hvíla á félaginu og brýna nauðsyn
ber til þess, að koma upp ríflegum
varasjóði. Félagið gat verið gott
og heilbrigt fyrirtæki fyrir þvi. En
hefði ekki félagið reynst miklu arð-
vænlegra en þetta, þá hefði styrj-
öldin orðið því drápsbyrði, gert það
óhjákvæmilegt, að hækka stórum
farmgjöldin eða krefjast mjög mik-
ils au'kastyrks úr landsjóði.
Nú hefir reynslan orðið sú, að
félagið hefir borið sig svo vel, að
það stenst alt þetta gífurlega tjón.
Ef það hefði ekki komið fyrir,
hefði það getað borgað hluthöfum
30—40%—og lagt auk þess sæmi-
lega fúlgu í varasjóð!
Þetta ,kann hluthöfum að þykja
lett í vasa þetta arið. Mér sýnist
það muni þyngja budduna, er fram
i sækir.
Og svo get eg glatt þá með því,'
að eitthvað hringlar þó í s'kúffuntii
handa hluthöfunum, þrátt fyrir öll
aukaútgjöldin utan lands og innan!
Líklega hafa hluthafar sjaldan
varið peningum betur en þeim, sem
þeir lögðu í félagið, jafnvel ]tó lit-
ið væri eingöngu á, hvað borgaði
sig bezt—,svo framarlega, sem eng-
in óvænt slys vilja til.
Ofan á allan annan hagnað, sent
vér höfum af Eimskipafélaginu,
bendir þessi stutta reynsla á það,
að það verði oss gullnáma, er fram
i sækir. Hitt er svo sem sjálfsagt,
að fyrstu árin verður að’ leggja
meira kapp á það, að koma upp
góðum varasjóði og tryggja sem
bezt framtíðina, heldur en að borga
hluthöfunum sem hæsta vexti.
En horfurnar gru þessar, að fé-
lagið verði stórgróðafyrirtæki.
—Isafold.
Merkisatburður í ver-
aldarsögunni.
Á föstudaginn '-ar voru liðin 99
ár síðan tveir menn sátu á ráð-
stefnu til þess að framkvæma eitt
viturlegasta, mannúðlegasta og
bezta verk sem veraldársagan get-
ur um. Það er afnám alls herút-
búnaðar milli Bandaríkjanna og
Canada.
Elbert Hubhard ritar þannig um
þctta atriði árið 1908.
“Strandlengjan milli Canada og
Bandaríkjanna frá St. Lawrence
fljótinu til Superior vatnsins eru
2000 milur. Árið 1812 voru þar 46
víggirtir staðir, stærri og smærri;
Bandaríkja megin og álíka margir
Canadamegin. Við Niagara kastal-
ann einn saman voru einu sinni 6000
hermenn og alls höfðu Bandáríkin
við stórvötnin yfir 100 skip til ]tess
að berjast við Canadamenn ef eitt-
hvað bæri á milii—og þetta átti alt
að vera til þess að halda á friði—
vopnuðum friði.
í einni smáorustu við Erievatnið
hertók maður sem Perry héf, 27.
ára gamall galgopi, sex brezk skip
og drap 300 manns, og skömmu áð-
ur eyðilögðu Bretar 10 skip fyrir
Amerikumönnum og drápu af þeim
200 manns.
Eftir stríðið 1812 var saminn
friður. En beggja megin var tekið
til starfa og þótti heldur en ekki
nauðsynlegt að láta hendur standa
fram úr ermum. Þá var farið að
byggja herkastai!ana sterkari og
kyggja lrerskipastöðvar. í Water-
lown, Conneantð Erie, Fort Huron,
Cleveland og Detroit voru herskipa-
stöðvar og unnu þar mörg hundr-
uð manan dag og nótt við herskipa-
smiðar. Ekki var þetta af þeim á-
stæðum gert að stríð sýndist vera í
nánd, beldur vegna hins að því var
þá haldið fram að á því riði að vera
við öllu búinn.”
“Canadamegin var sama máli að
gegna, og voru heitingar hafðar i
frammi. Perry sem fyr var getið
hafði sagt: “Vér höfum mætt óvin-
unum og þeir eru á voru valdi.”
Þessarar svívirðingar fanst Can-
adamönnum að ]>eir þyrftu að hefna
og þeir kváðust hráðlega verða svo
vel búnir að þeir hefðu í öllum
höndum við “óvinina”.
Svo var það alt í einu, en ]>egj-
andi og hljóðalaust að tveir menn
settust á ráðstefnu í Washington
og gerðu uppkast að samningi.
Annar þeirra var Ritíhard Rush, þá-
verandi utanríkisritari frá Phila-
delphia; hinn var Charles Bagot,
ráðherra Englendirtga í Bandaríkj
unum. Rush var kVekari að ætt-
emi og eðlilega á móti stríði og
hernaði.
Bagot hafði séð nóg af orustum
og stríði tiil þess að vita að í því
var livorki frægð né ánægja. Rush
gerði uppkast að samningi með
fyrirsögninni “Samkomulag”. Þetta
merkilega skjal skrifað aðeins
öðrumegin á eina pappírsörk og
dagsett 28. apríl 1817. Það er á
þessa leið:
1. Héðan af skulu herskipin sem
höfð verða á stórvötnunum
takmörkuð eins og hér segir
beggja megin linunnar.
2. Á Ontario vatninu aðpins eitt
IOO tonna skip. með ekki fleiri
en 25 manns og einni 18 pnnda
fallbyssu.
3. Á efri vötnuruun tvö skip jafn-
stór og eins mönnuð og útbúin.
4. Á Champlain vatninu eitt skip
jafnstórt og eins útbúið.
5. Af öllum öðrum skipum skulu
þegar í stað téknir allir aðrir
hermenn og öll hernaðar áhö’d
og engin önnur herskip skultt
mönnttð og bygð meðfram St.
Lawrence fljótinu eða stórvötn-
unum.
Þessi samningur hefir verið sam-
vizkusamlega haldinn ávalt síðan.
Hann hafði það í för með sér að
tafarlaust var hætt við allar víggirð-
ingar og vopn lögð niður meðfram
vötnunimi. Eftir því sem bezt
verður séð verður þessi samningur
í giidi um aldur og æfi. Báðir
málspartar eru ánægðir með hann
og svo eðlilegur ltefir hann reynst
að jafnvel fáir vita af því að hann
er til.
Hræðsla, yfirgangur og hégoma-
girni eru þeir þrír draugar sem
standa því í vegi að vopn séu lögð
niður alment. En hugsandi menn
heimsins eru farnir að sjá það að
eigi mannkynið ekki að líða undir
lok, þá verður að hætta öllum stríð-
um.
Það er augljósara en nokkurra
orða ]>urfi hvilík heimska það er að
þjóðir, sem kalla sig kristnar, skuli
fljúgast á og drepa hvor aðra. Þeg-
ar tvö lönd geta gert samning um
]tað að takmarka svo herbúnað eins
og Bandaríkin og Canada hafa gert,
og sá samningur er haldinn í öllu
tilliti í hundrað ár, hví skyldu ])á
ékki öll ríki geta gert það sama?
Allur her er óþarfur nema aðeins1
fáeinir hermenn sem lögreglulið.
Þjóðirnar mega ekki við því að
vera blóðþyrstir vargar fremur en
einstaklingarnir.
?Þýtt úr Tribune).
Glaðar stundir,
Wynyard búar heiðra séra Sig-
mar og konu hans og gefa þeim
bifreið til viðttrkenningar fyrir
starf þeirra.
Gamalt máltadki segir að sá sem
aldrei geri nei'tt nema það sem hann
fái borgað fyrir, hann fái aldrei
borgað fyrir meira en hann geri;
en við ])etta mætti bæta því að vér
fáum altaf borgað fyrir alt sem
vér gerutn; einstaklingurinn er það
samanlagt sem hann hefir gert og
hugsað, og engin villa getur átt sér
stað í þeim reikningi.
Þetta er auðvitað þannig vaxið
að mæla má með og móti, en mik-
inn sannleika hefir það í sér fólg-
inn, þrátt fyrir það þótt margt virð-
ist benda í gag-nstæða átt, þegar það
er athugað að sumir þorparar virð-
ast njóta gæfu og gengis, en alþýð-
an yfir höfuð búa við sult og seyru.
En auðlegð mannlífsins' verðttr ekki
nteð réttu mæld við það sem út-
vortis sést; þar kemur annað til
greina, meira virði; því sá sem eyð-
ir tímanum i það að telja miljónir
sínar er oft fátækari en sá sem að-
eins hefir til hnífs og skeiðar.
Dygðin er sjálf sín eigin laun
og þau sæl. En stundum ber það
við að verðlaun dygðanna taka á
sig líkamlega mynd og verða þreif-
anleg og “pralktisk”. Þetta átti sér
stað síðasta fimtudag, þegar fáein-
ir vinir þeirra hjóna séra Haraldar
Sigmar og konu hans frá söfnuð-
um hans, heimsóttu þau að óvörum
og færðu þeim að gjöf nýja bifreið.
Það var vel válin og viðeigandi
gjöf út af fyrir sig; en það sem enn
þá meira var í varið var það sem á
bak við gjöfina var og gerir jafn-
vel allra smærstu gjafir stórar—
það var sannarleg vinátta, sem er
ein hin allra bezta mannlegra til-
finninga. Það var viðurkenning
til manrtsins fyrir verk hans og
verðskuldað þakklæti í líkamlegri
mynd með heitri sál að baki sér.
Þegar séra Sigmar byrjaði starf
sitt hér fyrir 5 árum var hér tals-
vert af sundurlyndi og flokkadrætti.
Menn greindi á eins og þá gerir
enn, um trúaratriði, og oft varð það
að óvináttu og illindum. Það
þurfti á lagi og lipurð að halda, og
vér getum sagt það með sanni að
séra Sigmar hefir tekist það, hann
hefir verið því starfi vaxinn.
Beizkjan er öll horfin, og samúð-
artilfinningar hafa komið í staðinn,
þrátti fyrir mismunandi skoðanir.
Orð Edwins Markhams eiga hér við
“I samráði kærleiks eg sirkil dró,
og svæðið þar inni var öllum nóg.”
Blaðið Advance óskar séra Sig-
mar og konu hans til hamingju í
hinu sigursæla starfi, sem altaf hef-
ir betri og'betri áhrif eftir því sem
árin líða; blaðið ósikar þess að vin-
um þeirra megi enn fjölga og
starfsgæfa þeirra enn aukast og al-
menn hylli enn vaxa, sem þó hefir
verið greinilega sýnd með þessari
gjöf.'’
Lauslega þýtt úr
“Wynyard Advance’’.
WALKER.
heilmikil söngskemtun verður þar
næstu viku. Þar verða 125 raddir
og lúðraflokkur 90. herdeildarinnar
undir stjórn Mr. S. L. Barrow-
clough og fjögra frægra söngvara.
“I’m Seventeen Come Sunday”,
er frægur söngur sem sunginn verð-
ur á föstudaginn af P. Aö Grainger. |
“Bold Turpin”, sem Samuel
Weller syngur.
“Britaan Prepared” er mvnda-
sýning, sem mikið lof hefir hlotið
á Bretlandi. Sést þar margt sem
fram fer fyrir stríðið og í því.
“Robin Hood” verður éinnig
sýndur 15. maí og alla þá viku og
John P. Slocum syngur “Nobody
Home”.
DOMINION
“The Man of the Hour” heitir
sá leikur sem mest kveður þar að
um þetta leyti. Er það bæði póli-
tískur leikur og f jármálaleikur, sem
sýnir ýmsar hliðar þeirra mála. Er
þar sýnd einkennileg bæjarstjóra
kosning og sýnir leikurinn hvílíkum
brögðum oft er beitt í pólitík og
fjármálum.
PAN-TAGES
Lrvals leikir, söngvár og íþróttir
fara frarn á Pantages næstu viku.
Sumt af þvi eftir William Morris,
hinn alkunna snilling. “The Al.
Coles Troops” verður þar aðal að-
dráttaraflið. Það félag verður að-
eins 14 vikur i þessu landi. Er
sókst eftir því unt allan heim. ”The
Alibi” er lika ágætur gleðileikur og
“The Jron Claw kannast allir við.
Seinustu sumarpásk-
ar voru 1886.
Ernest Nixon Kitchen, ágætis
píanó kennari frá Winnipeg dó á
laugardaginn var í hospítali í
Chicago eftir uppskurð við botn-
lang^þólgu.
Eldur kom upp í mylnum kom-
hlöðu félagsins í Medecine Hat og
var skaðinn metinn á $200,000.
enginn veit um orsök eldsins.
Fimtudags og föstudagskveldið
6. og 6. mal
gefst mönnum færi að hlusta á
vor-söngleika
WINNIPEG ORATORIO SOCIETY
með aðstoð hornleikaflokks 90.
herdeildarinnar og fjörga
söngmanna.
Verð $1.00, 75c, 50c.
ALLA NÆSTU VIKU
Tvisvar á dag, 2.30 og 8.30.
Verða myndasýningar gefnar út
af heimastjórninni
BRITAIN PREPARED
Með leyfi hans hátignar konungsins og
drotningarinnar og hertogans og
hertogafrúarinnar af Connaught.
Verð: $1.00 tii 25c. Eftirm. 50c og 25c.
BRAÐUM KEMUR
The DeKoven Opera Co.
1 Robin Hood söngleiknum
“NOBODY HOME”.
Sumartíma-
bilið byrjar
1. Maí
og helzt til
30. Sept.
Verðið er sama og vant
er. Borgunarskilmálar eru
auðveldir. Afgreiðsla er
greiðari en nokkru sinni
áður.
m
Biðjið um bækling með
fullkomnum upplýsingum
eða talsímið
m
The Aictic lce Co.
Llmited
156 Bell Ave. 09 201 Lindsa^ Bailding
4
S 6 U S K I N.
nú býsna margar” segir Siggi, og
eg man ekki að telja þær allar upp.
Mér þykir mest gaman að fornsög-
unum okkar, Njálu, Eglu, Grettis-
sögu, Laxdælu og Vatnsdælu. Þess-
ar sögur ættu allir íslendingar að
kunna. Eg gæti sagt þér þráðinn
úr öllum þessum sögum, Bjami
minn, en það væri betra fyrir þig
að lesa þær sjálfur. Þær segja
allar frá svo miklum og góðum
mönnum, sem afar mikill heiður er
fyrir okkar þjóð að hafa átt.”
Bjarni svarar: “Það væri gaman að
þekkja alla helztu mennina í sög-
um þessum sem þú talar um.” “Vist
væri það” mælti Siggi, “en til þess
þarftu ekki annað en læra að lesa
íslenzkuna.”
Um vorið fluttu foreldrar Bjarna
burtu úr bygðinni og Bjarni með
þeim. Sáust þeir Siggi og Bjarni
ekki næstu fjögur árin Þegar þeir
fundust aftur var Bjarni orðinn vel
lesandi á íslenzku og kunni þá þráð-
inn úr öllum íslendingasögunum
og mörgum bókum fleiri sem ís-
lenzkan fróðleik höfðu að geyma.
og nú þekti hann orðið Lögberg
með Sólskini barnanna. Töluðu
þeir drengirinr nú um sögumar
fram og aftur. Kom þeim saman
um að fáir af fommönnunum okk-
ar hefðu verið betri en Ingimundur
gamli og Þorkell Máni, sem á dán-
ardægri sínum lét bera sig út i
Sólskinið.
5\
Litli fuglinn.
Litli fuglinn kvakar uppi á kvisti,
kominn hingað Suðurlöndum frá,
sendur jafnt og sumardagur fyrsti
sólskins barni mjúkum vængjum á.
Litli fuglinn segir margar sögur,
Suðurlöndin eru björt og hlý;
blómin þeirra bæði stór og fögur,
byrgj a þar ei nokkur kuldaský.
Litli vinur, segðu mér að sunnan,
syngja fuglar skærra þar en hér?
gera blómin guð þar betur kunnan?
grét þar ekkert bam, sem mætti þér?
paðan burt mér finst eg aldrei færi,
fanst þér ekki suðrið töfra þig?
til hvers varstu að koma hingað, kæri?
komstu bara til að gleðja mig?
Sig. Júl. Jóhannesson.
Gullfoss.
A Islandi eru ákaflega margir og
fallegir fossar. Sumir eru svo ein-
kennilegir að hægt er að ganga á
bak við þá. Einhver fegursta sjón
sem hægt er að hugsa sér er það,
]>ar sem fossarnir steýpast niður
af háum klettum, þegar klettarnir
slúta fram þannig að þeir skaga
lengra fram að ofan en að neðan.
Þá verður bil á milli klettsins og
vatnsfallsins, fossinn er þá eins og
heljar mikil vatnssvunta sem hang-
ir laus niður af klettsbrúninni og
ofan í ána fyrir neðan. Þar sem
svona hagar til má ganga inn undir
klettinn og yfir um ána, eða standa
á bak við fossinn og horfa frant í
vatnsbreiðuna. Ef svo vill til a«
glaða sólskin er, þá er ómögulegt
að lýsa því hversu fagurt er að
horfa á fossinn, þegar staðið er á
bak við hann og sól'.n skín á hann
að framan. Vatnið er þá á milli
manns og sólarinnar og hún sést
aðeins í gegn um það, eins og í
gegn um krystallsbreiðu.
Gullfoss' er einn af fallegustu
fossunum á íslamli. — Hanti er
“gullfallegur” og hann lítur út rétt
eins og “gull” á kveldin þegar sólin
skin á hann rétt fyrir só!arlagið.
Islendingar heima hafa nýlega