Lögberg - 31.08.1916, Blaðsíða 8

Lögberg - 31.08.1916, Blaðsíða 8
8 buutfERG, FIMTUDAGINN 31. AGÚST 1916 Ur bænum Sófónías Þorkelsson fór fyrra miðvikudag út til Oak Point, og dvelur þar í mánaðartíma. Séra Guðmundur Árnason flutti góða og uppbyggilega ræðu um vín- sölu og vínsölubann i Bandaríkjun- um á síðasta Skuldarfundi. Kristján S. Guðmundsson og Kristín Sigurðsson, bæði frá Moun- tain í Norður Dakota, voru gefin saman í hjónaband 21. Ágúst að 259 Spence stræti í Winnipeg af séra F. J. Bergmann. Trausti Guðjónsson frá Árborg v'ar hér á ferð fyrra miðvikudag; var hann að vitja um Benjamín Þorgrímsson þaðan að norðan, sem liggur hér á sjúkrahúsinu eins og getið hefir verið um. Séra Bjarni Þórarinsson, sem nú dvelur á Gimli, leggur af stað alfar- inn heim til íslands með Gullfossi 20. September að öllu forfallalausu. Séra Carl Olson frá Gimli var á ferð i bænum í vikunni sem leið. Aldrei kvaðst hann hafa séð þar eins margt fólk saman komið við nokkra kirkjulega athöfn fnema kirkjuþingið eins og verið hefði við jarðarför fólksins sem drukn- aði. O. G. Johnson frá ísafold póst húsi kom til bæjarins fyrra mið vikudag; hann v'ar að leita sér lækn- inga hjá Dr. Björnssyni. Johnson er sonur séra Guðmundar frá Arn- arbæli; hefir ritstjóri Lögbergs ekki séð hann stðan hann var barn, en þeir eru samsveitungar og höfðu á margt að minnast. Johnson sagði góða líðan manna i sinni bygð, slægjur ágætar og verður því hey- skapur góður, en korn er mikið skemt af ryði Einar Sigurðsson frá Churchbridge var hér á ferð á fimtudaginn. Hef- ir hann verið við vinnu úti í Narr- owsbygð við heyskap, en var nú að fara vestur í þreskingu. Hann lét vel af heyafla í Narrowsbygðinni og að slægjur hafi verið þar í ár með allra bezta móti. Friðbjörn Björnssotl, bóndi frá Sherwood í Norður Dakota, kom hingað til bæjarins fyrra þriðjudag; var hann samferða J. J. Swanson, sem sótti lík Jóns Goodmans sál. er; annars fór það Mrs. Jóhanna Freemann í Sel- kirk fékk aðvörun um að sonur hennar Sigurður E. Freeman hefði fallið á vígvellinum n. ágúst. Plann var tæplega 19 ára gamall og gekk í herinn fyrir ári síðan undir nafn- inu Siggie Freeman eins og hann var æfinlega kallaður heima. Hann hafði lífsábyrgðarskírteini No 48- 04907 uppá $1000 í New York Life félaginu, undir sínu fulla nafni, Sigurður E. Freeman. Fríða Arason kom vestan frá Kandahar á mánudaginn, þar sem hún hefir dvalið undanfarna nokkra mánuði hjá Sigurði Guðnasyni og konu hans. Mikið sagði hún kveða að skemdum af hagli þar vestra; höfðu margir tapað allri uppskeru og svo var um Sigurð; en það var bót í máli að hann hafði vátrygt uppskeru sína. Auk haglsins urðu þar einnig miklar skemdir af ryði. — Miss' Arason mintist með þakk- læti hinnar miklu gestrisni er hún mætti hjá þeim hjónum og öðru fólki þar í grendinni og bað hún Lögberg að bera Kandaharbúum kveðju sina. Lillian Albertina Emily, níu mán- aða gamalt barn þeirra hjónanna Mr. og Mrs. Eyjólfur Eiríksson í Selkirk, lézt snögglega miðviku- daginn 23. ágúst og var jarðsungin af undirrituðum þann 25. Lillian sáluga var einkar vel gáfað bam og mikið elskuð af foreldrum sínum. Var þetta mjög djúp og átakanleg sorg fyrir þau. — Guð blessi þetta heimili og öll önnur sem sorgin hef- ir heimsótt. Carl J. Olson. Eins og getið var um i Lögbergi. lézt Tón Guðmttndsson 20. ágúst að heimili sínu nálægt Geinsboro, Sask. Hann var ættaður úr Hraunhrepp i Mýrasýslu, bróðir Ólafs bónda í Hjörtsey. Jón sálugi var 36 ára að aldri, lætur eftir sig ekkju og tvo syni og fósturson, altá ungum aklri. ísafold er vinsamlega beðin að taka þetta upp. Miss Hansína Hjaltalín, 636 Tor- onto sSt- hér í borg, er nýlega koniin heim úr skemtiferð til Upham, N.D., h.var hún dv'aldi tveggja vikna tíma hjá frændfólki sínu. Hansína mætti þar hinum beztu viðtökum alstaðar og þessi tveggja vikna tími varð henni ein óslitin gleðistund. Unga fólkið þar var með henni í sífeld- um útkeyrslum, ýmist í bifreiðum eða með fjörugum hestum; meðal berjaleit til fjalla Auglýsing. f tilefni af mörgum eftir- spurnum frá íslendingum eftir þessum vel þektu plástrum: “Guðshandarplástur” og “Gum- miplástur” sendum við frá Jyfjabúðinni í Edinburg, N. D., til hvaða staðar í Canada og Bandaríkjunum sem er 3-16. úr pundi af þessum plástrum fyrir $1.00. Borgun þarf að fylgja hverri pöntun. Burðargjald frítt. B. B. HANSON. Etlinburg, N. I). + ^.1 ^ . 1. Glaðar stundir i getið var um í síðasta blaði. Frið- þeirra, sem nefnast Turtle Moun- björn var nábúi Jóns, er bjó skamt norðan við landamærin í Saskatche- wan, og fylgdi, honum hingað til grafar. Hann kvað uppskeru þar syðra hafa. orðið fyrir afarmiklum skemdum af ryði, hefði útlit verið frábærlega gott og er þetta þvi til- finnanlegúr hnekkír. Friðbjörn er skemtilegur maður og viðfeldinn og virðist fylgjast vel með málum yf- irleitt. Hafði hann þá skoðun eins og flestir betri menn og sanngjarn- ari, að Bryan sé einhv'er heilbrigð- asti maður í skoðunum, sem Banda- ríkjaþjóðin eigi. Engir íslendingar segir hann að séu í Sherwood nema hann og anna bóndi; það er Egill Reykjalín tengdabróðir hans. Frið- björn fer heim aftur á laugardaginn. tains; þá var og farið á bátum um hið fegursta vatn, sem til er í Norð- ur Dakota, sem kallað er Lake Meti- goshe. Miss Hjaltalín minnist þess- arar farar með innilegu þaklæti ti! fólksins þar syðra fyrir góðar við- tökur. Mrs. J. Goodntan kom hingað norður með lík bónda síns í vikunni sem leið, ásamt tvieimur börnum sínum og fósturbami. Eftir jarð- arförina fór hún snður aftur með tvö börnin, en eitt varð eftir hjá foreldrum hennar, Þorvarði Sveins- syni og konu hans. J. J. Swanson bróðir Mrs. Goodman fór suður með henni. Safnaðarnefndin í Selkirk biður fólk að veita eftirfylgjandi línum at- hygli:—í mörg undanfarin ár hefir X>+-f+-f+++++-f+++ ♦+*+♦+♦+♦+♦ Félagið “Jón Sigurðsson’' hélt vallarsamkomu hjá húsi Mrs. G. Ólafsson á fimtudagskveldið eins og auglýst var í Lögbergi síðast. Hafði A. S. Bardal varið mestum hluta dagsins til þess að príða völl- inn með ljóskerum, fánum og öðru skrauti. Var þar yfir dymm skrautlegt kögurmerki félagsins með stöfum þess og ýmsum táknum. En fyrir neðan var afarstór íslenzkur fáni og aðrir smærri til og frá, en enska flaggið og sambandsmerkið á mörgum stöðum. Allur var völl- urinn settur borðum og bekkjum og skreyttur ljósum; var því bjart eins og um dag væri. ■ Skemtanir fóru þar fram af ýmsu tagi bæði meðal yngri og eldri, en veitingar voru þar ríkulegar sem seldar voru til ágóða fýrir félagið, sem hefir það fyrir markmið að lið- sinna hermönnum bæði hér og á hervellinum; þar á meðal að kaupa jólagjafir og senda austur. Kolskeggur Þorsteinsson, sem nýkominn er úr striðinu og tvisvar hefir særst flutti alllanga ræðu. Skýrði hann það fyrir félaginu hversu mikið og gott verk það gerði með starfi sínu, þótt ekki kæmi fram opinberlega þakklæti fyrir sendingar þess og hjálpsemi, þá kvaðst hann mega lýsa því yfir í nafni allra þeirra sem á herstööv- unum væru, að blessunarorð og þakklætis hugsanir fæddust þar eystra í hvert skifti sem vottur þes's bærist þangað að eftir þeim væri munað. Kolskeggur talaði vel, skörulega og skemtilega og krydd- aði orð sín með fyndni; t.d. því að konur þær og stúlkur sem þetta fé- lag skipaði, hefðu þegar kveikt þá ást í brjóstum hermannanna sem allri ást væri fullkomnari, og það væri matarástin. Var þá hlegið dátt og innilega. Kolskeggur gaf félaginu að síð- ustu ýmsar góðar bendingar um það hvað nytsamt væri og vel kæmi sér fyrir hermennina og hvað það Stefán Daníelsson frá Otto og kona hans komu til bæjarins á laug- ardaginn og dvöldu hér fram ál verði. — Þetta skemtimót byrjar kl. þriðjudag. Goða grassprettu sögðuj 2 eftir hádegi og heldur áfram eins þau þar í bygðinni og liðan manna | lengi og skemtanir endast. Nefndin í bezta lagi. Þar er meira treyst; gerir alt, sem í hennar valdi stendur griparækt en hveiti. j (.jj þess ag skemtanin verði sem TT Tr. .. ,, 7 '. , . . , fjölbreyttust, og vonast þar af leið- G H Hja taim yf.rskomerstan ^^^ tjj aS sæki þessa sam- 97- herdeddmm fekk nylega fn-; k eins þaS he£f aS tima til jæss að fara 1 þreskjngu , . 1 , * ,,__. „r -r>» undanfornu, þegar um batsferð var nalægt Ixiwer Fort Garry . Kom * * , , y 6 ,, ., 1 , • . , JA , að ræða, þo svo oheppilega vildx til hann til bæjarins a manudaginn a , , ^ „ ,, . 6 , * leið þangað. ' Þettau sk’f aö ekkl var aS 1 6 ____________ hafa skemtiferð a bat. B.S.B. Jónas Jónasson trésmiður frá Selkirk var á ferð í bænum í vik- unni sem leið; hafði hann frá eng- um fréttum að segja. Jóhann Sigfússon frá Selkirk var á ferð i bænum á mánudaginn. Litla byggingavinnu kvað hann vera þar í ár, en fiskiveiðar hefðu verið í meðallagi að því er afla snerti, en ýms óhöpp hefðu viljað til, svo sem netaskemdir af storm- um o. s. frv. Á járnverksmiðjunni kvað hann um 160 manns hafa at- vmnu og sömuleiðis er þar verið að byggja stálverksmiðju; á vinna að byrja þar i haust og allar vélar að ganga fyrir rafmagni. Samkvæmt tilmælum birtast hér nöfn fulltrúa og djákna Fyrsta lút. safnaðar. — Stjórnarnefnd: Dr. B. J. Brandson forseti, Mr. Jónas Jóhannesson féhirðir, Mr. Guttorm- ur Finnbogason ritari, Mr. Halldór Methusalems, og Mr. Alfred j Al- bert... — Djáknanefnd: Mr. A. S. Bardal, Miss Inga Johnson, Mrs. nnur Johnson, Mr. G. P. Thord- on og Mrs. Jón Júlíus. -s. Halldóra Peterson, móðir V. Péturssonar frá Limestone í 1 inesota; segir “Minneota 'MaS- r t” að hafi orðið fyrir bifreið fyrra sunnudag og meiðst allmikið. Hafði hún tvi fótbrotnað auk annara J. J. Vopni ráðsmaður Lögbergs meiðsla. Mrs. Pétursson er sögð 951 skrapp norður til Gimli á þriðju- ára gömul. í daginn og kom aftur í gær. Selkirk-söfnuður haft skemtiferð a væri aftur á móti sem litla þýðingu bát eftir Rauðánni á vúrkamanna- daginn éLabor Day) til arðs fyrir söfnuðinn. Ná í ár ferst þetta þó fyrir sökum þess, að ómögulegt er að fá bát til þessarar skemtiferðar. Samt sem áður vill safnaðarnefndin ráða fram úr þvi, að fólkið hafi tækifæri til að skemta sér þennan dags eins og að undanförnu. Hefir nefndinni því komið saman um, að hafa glaðar stundir í garðinum hjá húsi Mr. og Mrs. B. Benson, forseta safnaðarins, þann 4. Sept. næstkom andi. Til skemtunar verður söngur og ræðuhöld, hljóðfærasláttur o. fl Líka hefir nefndin v'on um, að geta fengið einn góðan ræðumann frá Winnipeg til að flytja ræðu við þetta tækifæri. Sömulieðis verða þar á staðnum nægar veitingar, bæði kaffi og ávextir, selt alt með lágu DOMINION. Þar er leikur sýndur sem heitir “Elevating a Husband”; er það bæði gaman og alvara; djúpar lífs- kenningar; heitar ástir, skemtilegir atburðir; fjárkröggur og klípur og alls konar æfint^ri. . í þessum leik er saga sem alla sneríir og allir hafa unun af að sjá og heyra, og verður það leikið ágæt- lega vel, því beztu leikkrafta er hér um að ræða. Sérstakur síðdegis leikur á mánu- daginn. PANTAGES. Stúlkuleikur verður þar sýndur næstu viku; er það skopleikur með dansi' og ágætum hljóðfæraslætti. Warren og Templeton eru fyrir- taks' dansarar og leika frábærlega vel alt sem skoplegt er. Charles og Ollie Vanis eru ekki síðtir vel J>ektir í þeirri list. Neal Abel er frábær- lega hlægilegur skripaleikari og dregur alt af að sér fjölda fólks. James Grady og félag hans leikur alvöru- og ástaleiki og munu marg- ir hlakka til þess að sjá hann og heyra. hefði að senda þeim Mrs. J. B. Skaftason talaði nokk- ur orð; lýsti tilgangi samkomunnar og bauð gestina velkomna. V'ar samkoman allfjölsótt og fór fram vel og skemtilega að öllu leyti. Hafði Mrs. Ólafsson léð hús sitt og völl til ókeypis nota við þetta tæki- færi og var því skemtunin bæði úti Og inni. Gjafir til “Betel ” Mrs. J. Vopnfjörð .. ., .. . . $2.00 Axel Vopnfjörð............... 1.00 Ásrún Vopnfjörð.................50 Davíð Vopnfjörð.................50 Victor Vopnfjörð................50 Ólöf Vopnfjörð..................50 Ónefndur..................... 1.00 Með innilegu þakklæti fyrir þess- ar gjafir. Jónas Jóhannesson, féh. 675 McDermot Aíve., Wpg. Prentvillur þessar eru á erfiljóðum mínum eft- ir Árna Jóel Stefánsson, sem birtust í Lögbergi 24. Ágúst: í þriðja stefi er “Iaugar” og greinarmerki, á að vera “lauga” og ekkert greinar- merki; x þriðju línu sama stefs á orðið “barnsins” að vera með ská- letri.—í þriðju línu 4. stefs er “sé ei gengin”, á að vera “sé nú gengin”. —I fyrstu línu 5. stefs er greinar- merki á eftir “sig”, á að vera á eftir “eilíft.” O. T. Johmon. Skógargildi í City Park Um mörg undanfarin ár hafa ís- lenzku Goodtemplara stúkurnar í Winnipeg farið skemtiför á hverju sumri út í einhverja íslenzku bygð- ina í grend við borgina. En svo al- varleg og að ýmsu leyti erfið hafa tvö síðustu árin verið, að óráðlegt hefir þótt að eggja fólk á að eyða tíma og talsverðu fé til slíkra fara, er þær jafnan óhjákvæmilega hafa i för með sér. Hins vegar líta Good templara stúkurnar sem önnur félög svo á, að því oftar sem meðlimir þeirra hittast, þótt ekki sé nerna til skemtana, og þá allra helzt ,utan steinlagðra stræta og stáli styrktra veggj a stórborgarinnar, því betur sé málefni þeirra borgið. Fyrir því hafa ísl. Goodtemplarastúkurnar í Winnijjeg afráðið, eins og getið hef- ir verið um áður í blöðunum, að láta sér nægja að þessu sinni að fara ekki lengra en út í City Park og val- ið til þess verkamannadaginn ('Labor DayJ, sem er næstkomandi mánu- dagur, 4. September. Er nú alt und- irbúið eftir beztu föngum, svo dag- urinn megi verða sem skemtilegast- ur og jafnframt uppbyggilegastur: ræðumenn fengnir, nýir söngvar samdir, íþróttamenn og jafnvel leik- arar sýna þar listir sínar, og sér- stakir strætisvagnar hafa verið út- vegaðir til þess að hópurinn geti fylgst sem bezt að. Þrir menn hafa lofað að flytja stuttar ræður: Goðmimdur Kamb- an; hann hafa margir Iandar enn ekki heyrt, og ættu því sannarlega að nota sér þetta tækifæri; Dr. Sig. Júl. Jóhannesson og séra Guðmund- ur Arnason. Þá verða og flutt tvö frumort kvæði og jafnv'el fleiri. Einnig hefir verið hugsað fyrir skemtununum er þeir geta tekið þátt í, sem ekki gera sig ánægða með ræður og ljóðalestur eingöngu Guðm. Sigurjónsson, íþróttakennari, °g Sig- Björnsson hafa urnsjón með leikjum og íþróttum. Verður þá til engra verðlauna að vinna, en öll- um velkomið að taka þátt í þeim skemtunum eftir því sem hver finn ur hvöt og hæfileika til hjá sjálf- um sér. Loks sendir strætisvagnafélagið sérstaka vagna á tilteknum tíma til að taka alla er þess 'æskja. Ættu senx allra flestir að nota sér þá; því fleiri sem fylgjast að og því stærri serrt hópurinn er því styttri finst leiðin og því skemtilegri stundin.— Vagnarnir fara frá horninu á Sar- gent og Arlington kl. 1.30 e. m., austur Sargent, suður Sherbrooke og v'estur Portage Ave. Bezt að sem flestir tækju sér far á Sargent, því hætt er við að þröngt verði þeg- ar suður á Portage kemur. Hyggilegt væri fyrir húsmæður og jafnvel fleiri að gleyma ekki matnum. Þvi þótt nátúran sé fögur og fríð úti í garðinum og mörgum kunni aö vcrrða nýnæmi á að teyga hreina loftið, þá er ekki óhugsandi. að sumum finnist hvorttveggja létt á metunum, “þegar kvölda tekur og á daginn líður.” En heitt vatn fæst ókeypis þar úti. Þó Goodtemplarar standi fyrir þessari skemtiför, þá er öllum, sem af íslenzku bergi eru brotnir, vel- komið að “vera með”, hvört sem þeir eru templarar eða ekki. Með því að fyrsti mánudagur September- mánaðar er almennur' helgidagur og mjög fáir munu því hafa daglegum störfum að gegna, er vonandi að sem allra flestir “landar” taki þátt i för- inni og fylli hópinn, því vafasamt er hvort margir geta varið deginum betur. ORPHEUM. Kristján Ingvar Johnson, sonur Jóns Johnson að 65 Guay St. í St. Vital og konu hans, andaðist 28. ágúst. Hann var 6 ára ganiall. Jarðarförin fór frarn í gær og jarð- söng séra B. B. Jónsson. Valdimar Eiríksson frá Ottó kont til bæjarins í gær og fór heim sam- dægurs. Hann var að fá menn til þess að ikoma í þreskingu þangað út. Uppskeruna segir hann tals- vert skemda en heyskap ágætan. J. A. Johnson og M. A. Johnson frá Lundar og Kristján Pétursson frá Oak View komu hingað í gær að heiman frá sér. Höfðu þeir ver- ið þar i vinnu len voru kallaðir hing- að af herstjórninni; þeir eru allir í 108. deildinni og er í ráði að sú deild fari bráðlega austur. Engar fréttir sögðu þessir piltar aðrar en þær að uppskera muni verða þar ytra í meðallagi og heyskapur góð- ur. Angelíka Pétursson 10 ára gömul stúlka dóttir Jens Pé'turssonar að Oak View andaðist 2. ágúst úr barnaveiki. Foreldrar hennar eru færeysk, (móðir hennar dáinj, en hafa verið meðal íslendinga svo lengi að íslenzkan er svo að segja þeirra aðalmál. Royal Crown Sápa Óg pr'‘Z™« gefnar eru í skiftum fyrir Coupons og sápu-umbúÖir eru þaer allra beztu. Geymið royal crown sápu coupons þeir eru mikils viröi. Sendið eftir lista yfir premíur, bann fæst ókeypis, aðeins að skrífa á póstspjald og hann verð- ur yður sendur, Þér skuldið sjálfum yður það að nota þá sápu sem reynzt hefirvel. Ef þér hafið ekki nú þegar byrjað að safna Coupons þá byrjið strax. IHE R0YAL CR0WN S0APS Limited PREMIUM DEPARTMENT WINNIPEG, MAN. Heima-glóðir glæðist. (Keep the Home Fires Burning.) Herör skorinn hátt til fjalla, heyrðist boð í þröngum dal, rekkar stóðu reiðubúnir, riddarar og drengja val. Ei með tárum hrausta hryggið, hverfandi á vígaslóð; þó að hjartað bráðum bresti, brosið við og syngið ljóð. Kór: Heima-glóðir glæðist, þótt gráti hjarta’ og mæðist, því drengir sigldu á darraðs-slóð þá dreymir heim. Sindrar silfur-bjarminn svartan gegn um harminn, senn munu dengi sigri krýndir sigla heim. Yfir hafið bárust bænir: “Bjargið smárri’ og píndri þjóð” og vér gáfum okkar syni, æru möttum dýrri’ en blóð. Þrælaok skal aldrei beygja aldið Stóra Bretlands kyn; og sé okkar liðsemd leitað, látum engan kvelja vín. ÓSKAÐ eftir að kvienmaður gefi sig fram til að standa fyrir litlu búi hjá einhleypum miðaldra manni á landi sikamt frá sveitaþorpi vestur við haf. Gott kaup. Ekki frágangssök þótt hún hafi barn meðferðis. — Lögberg vísar á. RIFFILL ('No 22J hefir verið sendur til Guðmundar Thorleifs- sonar, c-o. Columbia Press Ltd. — Hlutaðeigandi geri svo vel og vitji hans ihið allra fyrsta á skrifstofu félagsins. Viðskiftabáku.i pakkarávarp. Þann 7. ágúst kom Agnes Thor- geirsson til mín með fimm dollara, sem var gjöf frá djáknanefnd Fyrstu lútersku kirkjunnar, og einnig sendi “Dorkas” félagið mér fimm dali nokkru áður, fyrir til- stilli fyrnefndrar konu. Gert var það í tilefni af langvarandi heilsu- leysi dóttur minnar Guðríðar Krist- jánsdóttur. Þiessar gjafir og marga aðra vel- y'ld bið eg góðan guð að endur- gjalda öllum sem að því hafa stutt, en þó séfstaklega áðurnefndri konu. Óska eg þess af heihnn hug að æfikveld þessarar göfugu konu megi verða friðsælt og bjart. Með þakklæti fyrir alla þá trygð og vináttu sem hún hefir sýnt mér frá því fyrsta. Mrs. B. Gilbert. Fjórar greinar og eitt kvæði. sem Lögbergi ihafa borist á móti ætt- jarðamíði Heimsk. sér blaðið sér ekki fært að birta sökum stóryrða, þótt þau séu öll verðskulduð. Fjórða sej>temebr byrja leikir aftur á Orpheum. Hefir leikskrá verið samin fyrir næsta tímabil og er hún ágæt. Laura Nelson Hall leikur þar i “The Cat and the Kitten”. Miss Hall lék áður “Beaytu” í leiknum “Everywoman” eftir Henry W. Savages. Helene Davis, sem mikið hefir verið látið af verður þar einnig. Fred Bowers og Lilian McNeil þurfa iengra meðmæla, þau eru kunn. Walter Brower kemur þar fram með söngva og Allen og Howard með skopleiki. Auk þessara verða þar næsta tímabil jxeir sem hér segir: Theodore Kosloff, Homer Miles og félag hans, Mullen og Coogan, stúlkan í tunglinu, Lydia Barry, Wilfred Clarke og félag hans, Claire Rochester, Moon og Morris, Alda Randegger. Hy. Carroll og Anna Wheaton, Clarke og Hamilton, Melville Ellis og Irene Bordini, Ruth St. Denrs o. fl. GuSsþjónustur. Sunnudaginn 3. september 1916: í Haglof skóla kl. 11. í Mozart kl. 1. í Kandahar kl. 4. 1 Wyn- yard kl. 7. Allir velkomnir. H. Sigmar. Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar hefir ákveðið að halda útsölu (“’Bazaar”) í sunnudagaskóla sal kirkjunnar 24. og 25. október n.k. Skeð getur að einhverjar kvenfé- lagskonur viti ekki um þessa á- kvörðun félagsins og því eru þær og allir aðrir vinir safnaðarins' og kvenfélagsins á þetta mintir. Því eins og vant er vonast félagið eftir að konur búi til margt fallegt og eigulegt til að selja á útsölunni. í fréttagrein frá Seattle 20. Júlí 36. l.a.n., stendur “snúið á ensku” í staðinn fyrir “snúið á íslenzku.” ‘Tslenzk kona” getur sent söguna sem hún talar um; oss þykir gaman að sjá hana og taka hana í blaðið, sé hún vel til þess fallin, sem tæp- lega þarf að efast um. Lögfræðislegum spurningum sem blaðinu eru sendar verður svarað þegar hægt er, án }>ess þó að það skuldbindi sig til að svara öllu sem spurt er að. Allir sem senda ritgerðir, hvort heldur er í Lögberg eða Sólskin, eru beðnir að r'ta þær með bleki en ekki blýanti, sérstaklega þó ekki blek- blýanti. Ritstjóri jxakkar Önnu Mýrdal kærlega fyrir bréfið og myndina. Grein frá Reykj avíkurlxygð, send Lögbergi 14. Ág., er vel rituð og að mörgu leyti góð en í sumum atriðum óviðkunnanleg að voru áliti, og finst oss biezt fyrir hlutaðeigendur, að hún birtist ekki. Ritstjóri Lögbergs hefir fengið bréf úr ýmsum áttum, þar sem hann er beðinn að yrkja eftir látið fólk. Hónum væri ánægja að gera það, ef timi leyfði, en með þessum línum er fólk látið vita, að honum er það ó- mögulegt sökum anna. f heimahögum. Þrjóti nesti þrek og seim þjóð fyrir vestan pínir, þá er bezt að þokast heim j>ar eru flestir mínir. Þegar blárri brosa við brúnir várra haga býr við hárra hnúka rið hugurinn skárri daga. /. G. G. Á siglingu. Fyrir blánar íjöllum lands fögnuð lánar huga manns, stíga Ranar dætur dans drifnar mána ljósvaJcans. Svelgdu boðar brjóstin há belgdi froða á stafni, helfdum voðum hátt við rá heldur gnoðin landið á. /. G. G. Norsk-Ameriska Linan Nýtízku gufuskip sigLa frá New York sem segir: “Bcrgensfjord” 16. Sept. "Krtstianiafjord" 7. Okt. “Bergensfjord” 28. okt. Norðveslurlands farþegar geta ferðaat með Ðurlington og Baltimore og Ohio járnbrautum. FarbrjeF tra Is- landi eru seld til hvaða staða sem er í Bandaríkjunum og Canada. — Snúið yður til HOBE & CO„ G.N.W.A. 123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða H. S. BARDAL, 892 Sherbrooke Street, Winnipeg. Hvar er stúlkan? Hver sá er veit um núverandi heimilisfang Jónasínu Stefánson, sem árið 1913 stundaði búfræðinám hér í borg, geri svo vel að senda ppplýsing um það til þessa blaðs. Öryggishnífar etv skerptir RAZO . Ef þér er ant um að fá góða brýnslu, þá höfum við sérstaklega gott tækifæri að brýna fyrir þig rakhnífa og skæri. “Gilett's” ör- yggishlöð eru endurbrýnd og “Duj>- lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein- föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf- ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur sýna þér hversu auðvelt það er að raka þegar vér höfum endurbrýnt blöðin. — Einföld blöð einnig lög- uð og bætt. — Einnig brýnum við skæri fyrir lOc.—75c. Ths Bazop & Sltear Sharpeníng Co. 4. lofti, 614 Ðuilders Exchange Grinding Dpt. 333£ Portage Are., Winnipeg Klæðskerar' og saumakonur alls konar geta fengið vinnu við kvenn- föt, yfirhafnir og kjóla. Gott kaup og stöðug atv'inna. Komið og spyrj- ist fyrir hjá The Faultless Ladies Wear Co. Ltd., Cor. McDermot & Lydia St. Málverk. [“Pastel’ og olíumálverk] af mönnum og landslagi býr til og selur með sanngjörnu verði. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, 732 McCee St. Tals. G. 4997 VINNUKONU vantar út á land sem allra fyrst; kaup $15 á mánuði; konan hjálpar við öll verk. Tilboð sendist til, Mrs. J. G. Davíðsson, Box 169, Antler, Sask. Eg hefi nú nægar byrgðlr af 'granite” legsteinunum “góðu” stöðugt við hendina handa öllum, sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja þá. sem hafa verið að biðja mig um legsteina, og þá, sem ætla að fá sér legsteina í sumar, að finna mig sem fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að gera eins vel og aðrir, ef ekki betur Yðar einlægur. A. S. Bardal. Staðurinn sem þér ætt- uð að kaupa meðul er í LYFJABÚÐ Kauptu te af matvörusalanum, silki af fatasalanum og járnvörur anrarstaðar. En þegarþú þarft að kaupa ósvikin meðul. hreinlætisáhöld eða muni, einkaleyfis- meðul o.s frv. þákom Þú hingað, Vér höfum lyfjabúð. WHALEYS LYFJABÚÐ Phone She'-br. 268 og 1130 Horni Sargent Ave. og Agnes St. Ef eitthvað gengur að úriuu þínu þá er þér langbezt að senda það til hans G. Thomas. Haua er í Bardals byggingunni og þú mátt trúa því aö úrin kasta eílibelgn- um i höndunum á honum. KENNARA vantar fyrir Siglu- nes skóla No. 1399 frá 15. septem- ber til 15. desember og frá 15. febr. til 15. maí. Umsækjendur tilgreini kaup og mentastig. Tilboðum veitt móttaka til síðasta ágúst af Framar J. Eyford, Sec. Treas. Siglunes P, O., Man. TU sölu. Gasolínvél fyrir bát, 12 hesta afl, er til sölu hjá undirrituðum. Sveinn Björnsson. Giinli, Man. VÉR KENNUM GREGG Hraðritun SUCCESS VÉR KENNUM PITMAN Hraðritun BUSINESS COLLEGE Limited HORNI PORTAGE 0G EDMONTON ST. WINNIPEG, - MANIT0BA ÚTIBUS-SKOLAR FRÁ HAFI TIL HAFS TÆKIFÆRJ pað er mikil eftirsókn eftir nemendum, sem út- skrifast af skóla vorum. — Hundruð bókhaldara, hraðritara, skrifara og búðarmanna er þörf fyr- ir. Búið yður undir þau störf. Verið tilbúin að nota tækifærin, er* þau berja á dyr hjá yður. Látið nám koma yður á hillu hagnaðar. Ef þér gerið það, munu ekki að eins þér, heldur foreldr- ar og vinir njóta góðs af. — The Success College getur leitt yður á þann veg. Skrifist í skólann nú þegar. YFIRBURÐIR Beztu meðmæli eru með- mæli fjöldans. Hinn ár- legi nemendafjöldi í Suc- cess skóla fer langt fram yfir alla aðra verzl- unarskóla í Winnipeg til samans. Kensla vor er bygð á háum hugmynd- um og nýjustu aðferð- um. Ódýrir prívatskólar eru dýrastir að lokum. Hjá oss eru námsgreinar kendar af hæfustu kenn- urum og skólastofur og áhöld eru hin beztu. — Lærið á Success skólan- um. Sá skóli hefir lifað nafn sitt. Success verð- ur fremst í flokki. SUCCESS-NKMAXDT HELDUR HAMARKI f VJEIiRITCN INNRITIST HVENÆR SEM ER Skrifið eftir bæklingi SUCCESS BUSINESS COLLEGE Limited F. G. Garbutt, Pres. D. F. Ferguson, Prin.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.