Lögberg - 09.11.1916, Blaðsíða 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af aætabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það aem ljúffengast. Giftingar kökur búnar
•g prýddar sérataklega vel af manni sem er meistari íþeirri
ðn. Kringlur og tvibökur einnig til sölu. Pantanir frá
veralunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigtndi,
1156-8 Ingfersoll 8t. - Tals. G. 4140
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FÍMTUDAGINN 9. NÓVEMBER. 1916
NÚMER 45
BANDARIKJA-KOSNINGARNAR
I ÓVISStr. WILSON Á UNDAN
Goðafoss
KELLY TAPAR FYRIR HÆSTA-
RÉTTI. VERÐUR AÐ SÆTA DÓMI
Skip rekast á og farast.
Farþegaskipin Connemara og
Retriever rákust hvort á annafi 3.
nóvember milli frlands og Eng-
lands. Voru þau á ferð milli
Greenore og Holyhead.
Um 100 manns er sagt aö hafi
verið á bábum skipunum til sam-
ans og allir farist nema einn maSur.
Skipið Connemara var 1106 smá-
lestir, 272 feta langt. Retriever
var 674 smálestir, igo feta langt.
Talsvert af likum hefir þegar
rekið á Iaod.
200 óþarfir embættismenn.
Særður embættismaður i hern-
um er nýkominn heim úr striðinu,
eftir því sem “Free Press” segir
á laugardaginn og heldur þvt
fram að um tvö hundruð hers-
höfðingjar æðri og lægri frá Can-
ada séu nú í Englandi, sem ekkert
aðhafist annað en að taka á móti
fullum launum. Þegar þangaö
kemur er öllum herdeildum héðan
skift upp í smáhópa og þeir sendir
þangaö sem þörf er á í þann svip-
inn, hvar sem það er. Flestir þess-
ara hershöfðingja vilja fyrir hvern
mun fara í stríðið, en eiga þess eng-
an kost nema sleppa tign sinni og
fara sem óbreyttir hermenn. Má
nærri geta hversu mikil vonbrigði
það eru sumum þeirra.
Bretar heiðra látinn óvin.
Boetke hét einn hinna frægustu
k>ftfara á Þýzkalandi og fórst hann
nýlega á flugi. Þegar hann var
jarðaður í Oslabruch á Þýzkalandi
var fagur blómvöndur sendur á
kistuna frá brezikum herforingjum
sem þar eru herfangar; var sveig-
urinn letraður gulli og lofsorðum
og því lýst að I3oelke hefði verið
heiðvirður og aðdáunarverður and-
stæðingur.
Tilmæli til Islendinga
Eins og kunnugt er hefir mikið
verið unnið að því að safna fé í
styrktarsjóð brezkra sjómanna.
Manitoba hefir ákveðið að leggja
fram $50,000 í því skyni og hefir
íslenzka félagið “Jón Sigurðsson”
verið beðið að taka þátt í fjársöfn-
un því til styrktar. Væri það vel
að Landar yrðu ekki eftirbátar
annara þjóða hér í fylkinu og sýndu
það að þeir reyndust vinir i nauð
ekki síður en aðrir.
Eélagið Jón Sigurðsson hefir
ákveðið að halda samkomu í Tjald-
búðarkirkjunni 14. þ. m. þessu máli
til styrktar. Verður þar vandað til
skemtana og þar á meðal hefir séra
Fr. J. Bergmann góðfúslega lofast
til að flytja ræðu um starf sjó-
manna síðan stríðið hófst.
Samkoman verður ókeypis en
samskot verða tekin og gefst þar
öllum færi á að leggja fram það
sem þeim er hægt og þeir vilja; 5
centin frá unglingnum eða þeim sem
ekki hefir ráð á meiru eru eins
|)akksamlega tekin og $5.00 frá
þeim er svo riflega vilja leggja
fram. En um fram alt er ]yess'
vænst að allir geri skyldu sina og
leggi fram eitthvað, þvi margt
smátt gerir eitt stórt og það væri
ilt til afspurnar ef Landinn stæði
öðrum að baki í þessu efni. íslend-
ingar cru sjómenn og þeir ættu að
muna eftir sjómönnunum.
Dollarinn aðeins 67 centa virði.
Skýrsla sem birtist í Toronto
blaði á föstudaginn og Winnipeg-
blöðunum á laugardaginn sýnir
fram á að dollarinn í Canada sé
nú ekki meira virði en 67 centa til
þess að kaupa fyrir hann lífsnauð-
synjar í samanburði við það sem
verið hafi fyrir striðið. Maður
sem hafi áður haft $1000 árslaun
og hafi það enn, fái í raun og veru
ekki nema $670 virði.
Þetta liggur i hækkun lifsnauð-
synja. Sem dæmi um verðhækkun
eru þessir hlutir teknir:
Kartöflur hafa hækkað um 171%
Brauð 80%,
Mjólk 20%,
Smjör 50%,
Mjöl 64% og
Niðursoðnar vörur 45%.
Þessar tölur eru allar teknar úr
stjórnarslkýrslum og eru þvi áreið-
anlegar.
Maður sem vinnur daglauna-
vinnu fyrir $2.00 á dag fær í raun
og veru ekki nema $1.34. Cana-
diski dollarinn hefir fallið þannig
í verði í samanburði við vörurnar.
Atkvæðagreiðsla í Banda-
ríkjunum.
Eftirfarandi riki greiddu atkvæði
um algert vinbann í sambandi við
kosningarnar i fyrradag: Alaska,
Idaho, Michigan, Missouri, Mon-
tana, Nebraska, Oregon og Suður
Dakota. í Arizona voru greidd
atkvæði um afnám dauðadóma.
í Suður Dakota voru greidd at-
kvæði um atkvæðisrétt kvenna.
Siðbótaþing
fulltrúa frá öllum pörtum Canada
verður haldið í Fyrstu Babtista
kirkjunni hér í bænum frá 29. nóv.
til 3. desember. Verða þar rædd
öll helztu mannúðar- og siðbótamál
rikisins og ræður fluttar af mörg-
um helztu ræðuskörungum þessar-
ar álfu. Eini íslendingurinn sem
ákveðið hefir verið að tali þar er
Thos. H. Johnson ráðherra.
Uppfyndingamaður í St.
Boniface.
Maður nokkur sem J. E. Ennis
heitir og á heima í St. Boniface,
hefir fundið upp vél sem fljótara
býr til kúlur en dæmi séu til fyr.
Vélin getur búið til 10 fcúlur á
jáfnlöngum tíma og ein kúla var
búin til á áður. Það þarf aðeins
þrjár minútur til þess að kúlan sé
tilbúin til hleðslu frá þvi að stálið
er tekið og sett í vélina. Vélarnarí
eru eiginlega tvær og vinnur að-
eins einn maður við hvora.
Ýmsir emibættismenn bæjarins fóru
til St. Boniface á föstudaginn tii
þess að skoða hvernig vélarnar
ynnu og voru þar á meðal fylkis-
stjórinn Sir James Aikins, Norris
forsætisráðherra, bœjarstjórinn og
fleiri. Voru þeir hissa á hraða
vélarinnar, þar sem hún fullgerði
eina kúlu á bverjum þremur min-
útum, en áður þurfti til þess þrjá-
tíu mínútur. Vélin er heljarstór,
hér um bil 18,000 pund á þyngti, og
gengur fyrir 20 hesta aflvaka.
Verkfræðingar frá New York
og Chicago komu nýlega að skoða
vélina og láta nrkið af. Kveða
þeir þessa uppfyndingu afar mik-
ilsverða, einnig til þess að búa til
kúlur og sívalninga í bifreiðar og
margt fleira.
Árni Eggertsson umboðsmaður
islenzka Eimskipafélagsins fékk
bréf í fyrradag frá Júlíusi Júliníus-
arsyni skipstjóra á “Goðafossi”.
Var þar greinilega sagt af ferð
Skipsins yestur. Simskeyti hafði
skipstjóri falið einhverjum af
mönnum sínum að senda Eggerts-
sön þegar skipið lenti; en það
hafði einhverra hluta vegna fyrir-
farist og var afsökunar beðið á því.
Skipið flutti vestur 7000 tunnur
af sild, 100 tunnur af skinnum og
9 farþega. Segir skipstjóri að þeir
hafi fengið versta veður svo að
segja alla leið, en “Goðafoss’ hafi
sýnt það nú sem fyr að honum megi
treysta þótt lítill sé. Hafði maður
af stórskipi einu kvartað um ill-
viðri á hafinu og spurt hversu
mörg þúsund smálestir Goðafoss
væri, en skipstjóri svaraði að hann
væri álíka mörg hundruð smálestir
og skip hans margar þúsundir, ef
300 smálestir væru fyrst dregnar
frá að þvi er Goðafoss snerti. Sá
af stóra skipinu rak upp stór augu
og hélt að verið væri að gera gys
að sér.
Farþegar sem héðan fóru og ætl-
uðu heim voru komnir heilu og
höldnu til New York þegar skip-
stjóri skrifaði og kvaðst hann
mundu gera sér far um að láta
þeim liða vel; en það þótti honum
ilt að Eggertsson sikyldi ekki koma
með þeim; kveðst hefði haft á-
nægju af að hitta hann. Hann
kvaðst mundu sima Eggertsson
þegar hann legði af stað frá New
Ýork, þegar hann færi fram hjá
Nýfundnalandi og þegar hann
færi heim.
Þessir komu með “Goðafossi”:
Sigfús Blöndahl kaupmaður frá
Reykjavik og Jóhann starfsmaður
við sömu verzlun. Jón Bergsveins-
son síldarmatsmaður, Guðrún
Norðfjörð kona Sorensens yfir-
vélstjóra á “Goðafossi”. Þetta fólk
kom alt snöggva ferð og fór heim
aftur með skipimt.
Alfamir komu þessir: Elóvent
Jónsson og Anna Jónsdóttir syst-
kini, ættuð úr Borgarfirði, systkini
konu Péturs Andersonar frá Leslie.
Margrét Oddgeirsdóttir og Sig-
urður bróðir hennar, börn séra
Oddgeirs í Vestmannaeyjum. Sig-
urður varð eftir í New York, en
Margrét kom til Winnipeg. Sigur-
bjöm Jóhannsson frá Seyðisfirði
og Björn Hallgrimsson af Héraði,
sonur Hallgrims Bjömssonar í
Riverton. Hinn síðastnefndi sýkt-
ist af mislingum og varð eftir á
hospitali í New York.
Gleðifrétt.
Árni Eggertsson umboðsmaður
íslenzka Éimskipafélagsins fékk
bréf í fyrradag frá C. P. R. félag-
inu, þar sem því er lýst að félagið
hafi komist á snoðir um að margir
ferðamenn fari venjulega til ls-
lands frá Bretlandi á sumrin. Nú
segir félagið að beinar ferðir frá
Vesturheimi séu að komast á, þar
sem um íslenzku skipin sé að ræða
að minsta kosti, og vill það koma
á reglulegum ferðamannastraumi
héðan heim til íslands. Spyrst
félagið fyrir um það hvernig ferð-
unum sé háttað, hversu lengi ferða-
menn geti dvalið á íslandi o. s. frv.
Auk ]>ess biður félagið um upp-
lýsingar um helztu merkisstaði á
landinu sem verða mundit sérstakt
aðdráttarafl fyrir ferðamenn og
ætlar félagið að skrifa um þá og
birta af þeim myndir í hinum reglu-
legu bókum sinum, sem það sendir
út um allan heim.
Er erfitt að segja hversu mikla
þýðingu þessi hreyfing kann að
hafa að því er ísland snertir.
Merkileg uppfynding.
Nikulas K. Fongner heitir norsk-
ur verkfræðingur sem nýlega hefir
fundið það upp að smiða skip úr
steinsteypu.
Er það þannig að búin er til
grind eða réttara sagt net úr stiltu
stáli, margfalt eins og þykkur vef-
ur og lagað alveg eins og skipið á að
vera og síðan er það fvlt með góðri
steinsteypu og lítur það út að utan
og innan rétt eins og marmaraskál.
Skipið sem hann smiðaði fyrst var
fremur lítið, en síðan hefir hann
smiðað mörg stærri og reynast þau
ágætléga. Er álitið að þetta verði
aðalbvggingaefni skipa framvegis.
Skipin eru nokkru þvngri en úr
venjulegu efni, en mi’klu sterkari
og ódýrari og langtum fljótgerðari.
Tvö stór félög hafa ver'ð stofn-
uð i Noregi til þess að reka sfcipa-
smíðar úr þessu efni og er þetta
talin einhver markverðasta upp-
fynding er fram hefir komið lengi
Úrskurður var feldur í Kellymál-
inu á þriðjudaginn. Var honum
synjað um endurrannsókn og verð-
ur nú að hlíta dómi hér.
Er talið ólíklegt að málið fari til
leyndarráðs Breta.
Bonnar lögmaður stjómarinnar
hefir ákveðið að krefjast þess að
Prendengast dómari felli tafarlaust
úrskurð í málinu, þegar hann kem-
Síðan striðið hófst hefir ver-
ið sökt 1820 kaupskipum, sem
til samans hafa verið 3,3228,584
smálestir. Þetta er samkvæmt
skýrslu “Joumal of Commerre”
(Werzlunarblaðsins). í október
mánuði einum saman var sökt 127
sfcipum, sem til samans voru 227,-
116 smálestir. Af öllum skipum
sem farist hafa siðan stríðið hófst
liafa 75% verið frá bandamönnum,
18% frá hlutlausum þjóðum og
70/- frá Þjóðverjum og sambands-
mönnum þeirra.
Ajf hlutlausum þjóðum haft
Norðmenn tapað flestum skipum.
Fangelsa nefndin.
hélt fund á föstudaginn. Kom
þar skýrsla frá undimefnd sem
kosin var til þess að finna dóms-
málaráðherrann og verkamálaráð-
herrann. í henni voru Harkness
formaður fangelsanefndarinnar og
Mrs. (Dr.) Galloway. Báru þau
ráðherrunum beztu sögu og kváðu
stjórnina reiðubúna að veita fang-
elsisnefnd'nni alla aðstoð sem
möguleg og heppileg væri.
Ritstjóri þessa blaðs bar upp á
fundinum eftirfarandi tillögu:
“Nefndin leggur til að skorað sé
á stjómina að koma sem allra fyrst
á þeim breytingum á meðferð fanga
sem hér segir:
1. Að séð sé að 'hæfilegt
starf sé haft til ^flnda hverjum
fanga ineö því að fsu/ er sannað að
iðjuleysi er bæði siðferðis lækkandi
og þvingandi.
2. Að stofnaður sé skóli í fang-
elsunum, þar sem fcend séu almenn
fræði, kenslunni hagað eftir óskum
og hæfileifcum fanganna og og fær-
ir kennarar til fengnir.
3. Að bókasafn með uppbyggi-
legum, skemtandi og siðferöisbæt-
andi bókum sé stofnað i fangolsun-
um.
4. Að föngunum sé leyft að lesa
öll blöð og timarit, sem ekki séu að
neinu leyti siðspillandi, og sé það
undir umsjón þar til kjörinna
manna hvað leyft skuli og hvað
ekki.
5. Að hætt sé þeirri reglu að
nefna fanga með tölum, heldur
haldi þar hver sinu rétta nafni.
6. Að reglulegur heimsóknar-
tími verði hafður í fangelsunum á
hverjum degi, eins og tíðkast á
hospítölum.
7. Að fangabúningur sé afnum-
inn, eins og þegar hefir verið gert
í öllum beztu fangelsum i Banda-
ríkjunum og Austur Canadá.
8. Að læknisskoðun fari fram á
hverjum þeirn er í fangelsi kemur,
til þess að fcomast að raun um hvort
yfirsjón hans geti ekki stafað af
hikamlegri eða andlegri vanheilsu,
sem lælma mætti.
9. Að sett sé á stofn prentsmiðja
í fangelsunum og fangarnir látnir
gefa út sitt eigið þiað, eins og
tíðkast í öllum betri fangelsum
menningarþjóðanna.
Dr. Sinclair vildi bæta því við að
föngununt væru heimilaðar stöðug-
ar bréfaskriftir til vina sinna og
vandamanna.
Iíarkness formaður nefndarinn-
ar vildi enn fremur bæta því við
að svo skyldi til hagað í fangelsun-
um að sameiginlegar skemtanir og
fundir væru þar haldnir, þar sem
fangarnir kæmu allir saman, bæði
konur og karlar, undir umsjón
varðmannanna að sjálfsögðu.
Dr. Mary Crawford gat þess að
slíkir samfundir hefðu verið reynd-
ir á geðveikrahælum og reynst
ágætlega.
Bráðlega verður haldinn annar
fundur til þess að ræða ýtarlegar
þessar uþpástungur og ráða þeim
til lykta.
Viðaukalög við vínbannslögin á
næsta þingi.
Eins og kunnugt er. hafa ýmsir
reynt að fara í kring um vínbanns-
lögin á þann bátt að panta áfengi,
en fylkisstjómin hefir ákveðið að
semja viðaukalög við Macdonald
lögin þegar þingið kemur saman í
vetur, sem þanni mönnum einnig
að panta áfengi. Hudson dóms-
málastjóri lýsti þessu yfir fyrra
miðvikudag.
ur heim frá Portage la Prairie, þar
sem hann situr að dómi.
Þeir voru tveir sem úrskurðinn
feldu i háyfirdómi. Var Iddington
nákvæmlega samdóma kviðdómin-
um í Manitoba, sem fann Kelly
sekan um (1) þjófnað, (2) að taka
við peningum ólöglega fengnum
og (3) taka fé undir fölsku yf-
irskyni. Duff dómari taldi hann
aðeins sefcan um siðasta atriðið.
Fasteignasali og kornkaupmaður
héðan frá bænum, sem George
Clements hét og heima átti að nr.
50 Home stræti var skotinn til
dauðs á laugardaginn.
Þannig var mál með vexti að
Clements átti sumarbústað á
Winnipeg Beach; fór hann þangað
á föstudaginn ásamt nokkrum öðr-
um mönnum til þess að loka sum-
arbústaðnum og skilja við munina
til vetrarins. í fyrra hafði ýmsum
munum verið stolið frá Clements
og höfðu munir aftur horfið úr
húsi hans i haust. Gerði hann lög-
reglunni aðvart og var ákveðið að
leita þjófaleit hjá fólki fyrir vestan
Húsavík. Clements fékk Kristján
Sigurðsson frá Sandy Hook til
]æss að flytja sig þangað ásamt Sig-
urði Sturlaugssyni lögregluþjóni.
Fóru þeir «4 mílur vestur frá Húsa-
vík og koma þar að kofa sem mað-
ur átti er Mi'ke Hyrhorczuk heitir;
fóru þeir tafarlaust inn í kófann
og leituðu fyrirvaralaust þjófaleit.
Fundu þeir þar rúmábreiðu, brauð-
gerðarfötu og fleira, sem Clements
sagðist eiga.
Þegar minst varði reið af skot
og fór í gegn um höfuðið á Clem-
ents, var hann þegar örendur.
Sturlaugsson og Sigurðsson reyndu
þegar að handtaka manninn, en
það var ekki auðgert; veitti hann
svo mikla mótstöðu að hann náð-
ist eklki fyr en eftir fjögra klukku-
stunda viðureign og voru þá allir
orðnir talsvert meiddir.
$20,000,000 daglega og blóð
eftir þörfum.
Roseberry lávarður hélt ræðu í
Edinborg 2. nóvember, þar sem
hann kvað langt frá að Englending-
ar hygðu á ifrið í bráð. Um frið
væri alls ekki að tala fvr en Þjóð-
verjar væru gersamlega yfirbugað-
ir. Kvað hann Bretland reiðubú-
ið að leggja fram $20,000,000 á dag
og eins miklar blóðsúthellingar og
þörf væri á til þess að vinna sigur
og ná því marki sem sett hefði
verið,, en það væri að yfirbuga með
öllu Þjóðverja og hernaðaranda
þeirra. Flugufrétt kvað hann hafa
borist út um ríkið þess efnis að
friður mundi bráðlega komast á, en
fyrir slíku væri enginn fótur.
Islendingur fallinn.
Herra ritstjóri Lögbergs:—
Samstundis hefir mér verið til-
kynt að sonur minn (910948) Jakob
Lindal hafi fallið á vígvelli (in
action) 17. f. m. Síðasta póst-
spjald meðtók eg frá honum 9. s.
m.; þá alheill.
Þessi forlög komu mér ekki að
óvörum, þar sem hann síðastliðið
sumar sækir um “Transfer” úr
þeirri deild sem hann hafði upphaf-
lega innritast í, og fer þannig óund-
irbúinn til Englands; og það með
svo mifclum hasti að liann varð að
kveðja mig bréflega.
Þessi sonur minn var fæddur í
Thing\-allabygð í Sask. 22. nóv.
1895. Fæddist hann upp með
okkur foreldrum hans þar til hann
misti móður sina 1908. Eftir það
var hann að eins tvö ár óslitið með
mér.
Siðastliðinn vetur var annað
timabil hans í undirbúningsdeild við
háskólann í Saskatoon, þar til hann
innritaðist um páskatímann.
Nafni minn var ætíð elskuríkur
sonur sinum aldraða föður, og það
því fremur sem faðir hans gerðist
minni maður á velli.
Af bréfum hans gat eg lesið að
hann gekk rólegur og ókvíðinn
móti framtíðinni, og hafði sann-
færingu fyrir því að hann legði líf
sitt í hættu fyrir velferðar málið
mikla.
Að vísu svellur mér sárt um
hjarta sonarmissirinn, en sæl verður
stundin samfundar, því síðla er nú
liðið á daginn.
Eg þakika þér fyrir rúmið ef þú
vilt taka línur þessar í blaðið.
Með vinsemd.
Wynyard, Sask., 7. nóv. 1916.
/. H. Lindal.
1820 Skipum sökt.
Hryðjuverk.
/”
Fór með 196. herdeildinni til Englands
SERGEANT AUGUST G. ODDLEIFSSON.
Hann er í 461 Platoon A Co. igóth Battalion “Univedsity of
Manitoba”. Er fæddur 17 ágúst 1893, sonur Sigurðar Oddleifssonar
og fyrri konu hans, Margr. Gísladóttur frá Húnstöðum í Húnaþingi.
Kom frá íslandi 25. júlí 1902, þá níu ára gamall. Byrjaði sama ár hér
á bamaskóla og fór í gegn um hann á 6 vetrum; þaðan á Collegiate
og var þar í 3 vetur; þaðan á University of Manitoba og skrifaöist út
þaðan með 3. árs prófi vorið 1916 í “Engineering”, átti eftir að vera
þar tvo vetur til fullnaðamáms í þeirri grein. *— Hinn 2. febrúar 1916
innritaðist hann í University Battalion og hefir fyrsta númer (No
910001) í þeirri herdeild. Fór héðan með herdeildinni til Englands
þann 27. október 1916.
Liberal klúbburinn
Hann hélt fyrsta fund sinn á
þriðjudagskveldið.
Sigurður Melsted forseti klúbbs-
ins flutti langa ræðu um starf
klúbbsins og framtíð. Þakkaði
fyrir góða samvinnu, en fcvaðst ekki
geta tekið kosningu aftur sökum
anna.
G. M. Bjamason skrifari as upp
skýrslu yfir fjárhag klúbbsins og
voru rúmir $5 i sjóði.
Sig. Júl. Jóhannesson skýrði frá
störfum hermiþingsins og áliti
fólksins á því. Kvað það vera
mentandi og fræðandi og óskaði að
þvi yrði haldið áfram.
Þá voru kosnir embættismenn,
og hlutu þessir kosningu.
Ileiðursforseti Thos. H. John-
son ráðherra. Forseti Thordtir
Johnson úrsmiður. Varaforseti
Amgrímur Johnson. Skrifari Ein-
ar P. Jónsson. Varaskrifari Hjálm-
arson Hermann. Féhirðir Jón G.
Gunnarsson. Varaféhirðir Christ-
ján Ólafsson.
í framkvæmdarnefnd voru kosn-
ir Þorsteinn Borgfjörð, Jónas
Bergmann og Sig. Júl. Jóhannes-
son. Yfirskoðunarmaður reikninga 1
var kosinn J. J. Bíldfell.
Ákveðið var að fá þrjár konur
til viðbótar í framkvæmdamefnd-
ina og var mikil áherzla lögð á að
þær tækju þátt í starfi klúbbsins á
komandi ári, þar sem þeim riði á
að búa sig undir væntanlega þátt-
töku í öllum stjórnarstörfum fram-
vegis.
J. J. Bíldfell flutti snjalla ræðu
um skyldur klúbbsins og meðlima
hans. Birtist ágrip af henni í næsta
blaði. Atik hans töluðu. Thordur
Johttson, hinn nýkosni forseti, Am-
grimur Johnson og Þorsteinn Borg-
fjörð.
Næsta blað skýrir nánar frá 1
klúbbnum.
( BITAR
Fyrst fréttist að Hughes væri
kosinn, þá voru þessir bitar ritaðir,
siðari fréttir 'benda til þess að.
Wilson sé fcosinn.
Verkamenn i Bandarikjunum1
geta ráðið kosningum þar eins og
alstaðar. Wilson dæmdi milli
þeirra og auðvaldsins nýlega og
dæmdi þeim í vil, en svo köstuðu
þeir honum frá sér á þriðjudaginn.
— “Ekki þennan, heldur Barra-
bas”, hrópaði fólkið.
Það var þrent sem olli ósigri
Wilsons: Þjóðverjar vortt á móti
honum af því hann vildi efcki vera
einhliða með þeim; bandamanna
vinir voru á móti honum af því
hann vildi ekki fara í stríðið með
þeim, og auðvaldið var á móti hon-
um af þvi hann var með verka-
lýðnum.
Far vel, Wilson. Það er æfin-
lega mannlegt að falla með heiöri.
Það gerðir þú.
“Free Press” gefur það í skyn að
Sturlaugsson hafi farið inn í hús
hjá Austurríkismanni og leitað
)ar þjófaleit án þess aö stefna; ef
)að er satt þá er það óforsvaran-
egt. Sturlaugsson þessi mun vera
sá sami er drýgði hina óafplánan-
iegu synd' á La Pas brúnni við
kosninguna 1914.
Algengur ritdómur.
Á nýort kvæði hitti hann
og hélt það væri gert
af manni þeim, sem þektist lítt,
— og það var einskis vert.
Hann santa kvæði síðar las
og sá — þar nafnið stóð —
að það var eftir þjóðfrægt skáld
— og það var snildar ljóð.
t'órir.
Ein af beztu skemtunum sem
menn hafa kost á, var að lesa síð-
ustu Kringlu. Smjörið var þyfckra
en kakan sjálf._____________ T.. .
Fór með 209. herdeildinni
Óskar Franklín
Sonur Guðna Thorsteinssonar og
Vilborgar Árnadóttur fconu ‘hans.
fór ])ann 9 október austur með 209.
herdeildinni, en ekki með 109. her-
deildinni, eins' og stóð í Heims-
kringlu. Hann bjó í Winn peg hjá
móður sinni i nokkur ár og vann
þar á Northern Crown bankanum
þar til hann var sendur vestur til
Swift Current, Sask., til þess að
vinna þar á sama banka. Þaðan
innritaðist hann í herinn í febrúar
1916. Hann er 22 ára gamall. —
Innilegar lukkuóskir fylgja honum
frá vinum og vandamönnum.