Alþýðublaðið - 15.07.1960, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.07.1960, Blaðsíða 4
Stjórnmála- baráttan í Banda- ríkjunum breytir um svip I»AÐ tók ekki lanffan tíma að velja forsetaefni Demókrata- flokksins. Þegar í fyrstu at- kvæðagreiðslu fékk hinn ungi «g unglegi öldungadeildarþin- maður frá Massaehusetts, John F. Kennedy, 786 atkvæði eða 25 atkvæðum meira en nauðsynlegt var. Þegar aug- ljóst var hve mikið fylgi hann hafði, drógu aðrir fram- hjóðendur sig í hlé, og var ]hann svo kjörinn mótatkvæða laust. i John F. Kennedy er langt * frá því að vera óþekktur. Und anfarna mánuði og jafnvel ár fiafa vikublöðin birt myndir af lionum og hinni fögru konu hans, Jacqueline, og það afrek hans að skjóta öllum helztu fáðamörinum Demókrata- flokksins ref fyrir rass og hljóta útnefningu flokksins bendir ti'l, að hér sé á ferðinni maður, sem vert er að veita athygli, ekki sízt fyrir þá sök, að líklegt þykir, að hann verði næsta forseti Bandaríkj anna og þar með í fylkingar- brjósti' hins frjálsa heims. ÞaS er gleðilegt að eiga von á því, að næsti forseti Banda- ríkjanna, hvort sem það nú verður Nixon eða Kennedy, er enn á fimmtugsaldri og er slík ur „u<nglingur“ skemmtileg tU tbreyting frá „föðurríki“ de ; Gaulle, Macmillans, Krúst- jovs, Eisenhowers Og Aden- auers. John Kennedy er Bostonar- maðúr og ber þess ýmis merki. Faðir Ihans, Joseph Kennedy, var af ínskri' inn- flytjendafjölskyldu. — Hann safnaði milljónum dtollara á kauphallarbraski, síðar komst hann inn í kvikmfyndaiðnað- inn og safnaði þar auði, sem stendur undir aUri Kennedy- fjölskyldunni. Hann var mik- ill vinur Roosevelts og var skip aður ambassador í Bretlandi á árunum fyrir heimsstyrjöldinQ síðari'. John Kennedy varð því snemma kunnugur í Evrópu. Hann hlaut beztu menntun, sem völ var á. Las lögfræði við Harvardháskólann og hag fræði hjá Harald Lasker við háskólann í London. Hann 'ferðalðist um heiminn, kynnt- ist kóngum, páfum og ráðherr- um, dreymdi um að verða blaðamaður og halda áfram ‘að ráfa um veröldina. En líf Kennedys tók aðra stefnu árið 1944. Hann lá þá á sjúkrahúsi og náði sér eftir meiðsli, sem hann ihlaut í styrjöldinni, er hann var sjó- liðsforingi á Kyrrahafi. Faðir hans kom til hans á sjúkra- húsið og sagði honum lát eldri bróður hans. „Nú ert þú von ættarinnar, þú átt að taka upp merki hennar í stjómmál- unum. Við hjálpum þér öll,“ sagði gamli' maðurinn. Frá því hefur Kennedy lifað fyrir stjórnmálin, — með bærileg- um árangri. Árið 1945 nær Kennedy kosningu til fulltrúadeildar- innar fyrir Massaohusetts. 1952 býður hann sjg fram til öldungadeildarinnar fyrir heimafylki sitt og fellir fram- bjóðanda Repúblíkana, sem var enginn ómerkari maður en Cabot Lodge. Þessi kosn- ingasigur Kennedys var á sín- um tíma kallaður kraftaverk, en fleiri sigrar fylgdu í kjöl- farið, og 1958 hlaut hann 70 prósent greiddra atkvæða við öldungadeildarkosningarnar í Massachu'setts. Kennedy á sigra sína að miklu leyti að þakka frábærri skipulagningu og hæfileikum þeirra, sem hann hefur nán- asta sam'vinnu vi'ð. Honum hefur tekizt að ná til sin frá- bærum ráðgjöfum á flestum sviðum stjórnmála. Lögfræði- ráðunautur hans er Archibald Cox, einn þekktast; lögfræð- ingur Bandaríkjanna, sérfræð ingur hans í efnahagsmálum er 'hinn frægi Kenneth Gil- braith, hann nýtur stuðnings Walter Rostovs í málefnum vanþróaðra ríkja og sjálfur Chester Bowles er helzti ráð- gjafi hans í utanríkismálum. Þessir menn og aðrir eru trygging fyrir frjálslyndi Kennedys. Tvö átriði ‘hafa einkum valdið því, að menn efast um að Kennedy nái kjöri sem for- seti Bandaríkjanna. Annað er aldur hans. Hann er aðeins 43 ára, en þótt hann verði kjör- inn, er hann ekk; yngsti for- seti landsins, Theodore Roose- velt var 42 ára, er hann varð forseti, Hitt er trú hans. Ken- nedy-ættin hefur alltaf verið kaþóisk eins og eðhlegt er mteð íra. En þess ber að gæta, að kaþólskum mönnum fjölgar stöðugt í Bandaríkjunum, og fanatískum mótmælendum fækkar að sama skapi'. Stjórn- málafréttaritarar eru að kom- ast á þá skoðun, að trúarbrögð Kennedys verði jafnvel til að hjálpa honum í kosningabar- áttunni. John Kennedy hefur nú unn ið sinn stærsta sigur. Efti’r samfellda sigurgöngu í undan kosningum kom í ljós, að ekki var hægt að stöðva hann. Hin- ir eldri; menn flokksins verða nú að sætta sig við, að nýr tími heldur innreið sína, mað- ur, sem ekki er alinn upp af' flokksvélinni, nær upp á eig- in spýtur yfirburðaaðstöðu. Bandaríski blaðamðurinn A1 sop sagði nýlega um Kennedy: Framhald á 14. síðu. Kennedy, frambjóðandi demókrata. ÁSTAND veganna hér- lendis hefur löngum þótt slæmt og kostnaðarsamt á eínn og annan hátt. Malar vegir vilja fara illa með farartæki og verða dýrir vegna Stöðugs bg mikils viðhalds. Menn hafa reynt að ráða fram úr þess um vanda með ýmsu móti og þær þjóðir, sem efni hafa, annað hvort steypt eða malbika sína vegi, Hérlendis mun óefað nökk- uð langt í land, þangað til veg ir verða steyptir eða malbik aðir í stórum stíl. Hitt hefur lengi verið haft á orði, að gera megi malarvegina miMð betri yfirferðar án gífurlegs kostn- aðar. í ársskýrslu Iðnaðar- deildar 1957 er athyglisverð greinargerð um slíka lausn, sem beitt hefur verið á Norð urlöndum með góðum' árangri, en það er olíuibinding á slitlagi vegarins. OUubinding á vegofanlburði hefur þekkzt um alllangt skeið. í Svíþjóð tíðkaðist þessi aðíerð miMð á fjórða tua aldarinnar. Ending veg- anna- var hiris vegar of iítil, og því var notkuninni hætt, og 1940—1950 var olíubinding hvergi notuð í Svíþjóð. Um og eftir 1950 fór notkun á ýmiss konar amínum til í blöndunar í asfalt til malbik- unar mjög að færast í aukana. Kom í Ijós, að ýms þessara efna bættu viðloðun asfalts við steinefni stórlega, og þar nxeð endingu og gæði malbiks. Var því eðlilega hafizt handa með abhuganir á því, hvort eðli þessara blendiefna nyti sin eins í vegolíuupplausnum, eins og í asfaltinu. Rannsókn- ir, sem hófust' 1952, leiddu í ljós ágætan árangur af þess ari íblöndun og urðu til þess að nú er aftur farið að nota olíu til þess að binda slitdög í sænskum vegum, og var t. d. árið 1956 slitlagið á meir en 200 km. löngum vegum þann ig bundið. Dr. Hallberg lét mjög vel af þessum árangri og talldi það þessari aðferð til ágætis fram yfi’r venjúlega malbikun á vegum úti, að hægt væri að befla slitíagið upp og leggja það niður aft- ur, jafnvel eftir árs notkun. Tvær aðferðir eru aðallega notaðar við útlagningu á slit llögunum, og má nefna þær tvívætingu (dubbel oljning) á slitlaginu og lagningu með for vættu slitlagi (slitíager av föj öljet grus). Olían, sem notuð er, er venjuleg vegolía með um 1% af sterinamini. Til þess að húa renni nægjaniega vel, er hún höfð ca 80°C heif. Steinefnið er venjuleg „ideal grus“, þar sem verulegur hluti af leirn- um hefur verið fjarlægður. Steinetfnið er notað kalt og jarðraM. Við „tvívætingu“ er otíunnJ úðað yfir hinn heflaða veg. Þá er dreift grus yfir, síðan úð» að aftur og öðru gruslagi dreift yfir. Að lokum er herf að yfir þetta með mjög léttu herfi, og síðan er umferðin látin troða lagið niður. Efnis magn var um 2 1 atf olíu og 2$ 1 af „grus“ á m2 í vegi'. Að nota forvætt-slitlag er fóllgið í því að blanda olíu og ofaníburði saman í sérstalcri blöndunarstöð og 'keyra blönd unni í vegina. SHka blöndu má geyrna árum saman, ára þess að hún skemmist ,og nota af henni' til viðgerða eftir þörf um . ' Athygli er sérstaklega vak Framhald á 14, síSu. 4 15, júlí 19S0 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.