Lögberg - 10.05.1917, Blaðsíða 2

Lögberg - 10.05.1917, Blaðsíða 2
i LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. MAÍ 1917 Ferðaminningar írá 13. janúar til 6. apríl 1917. Ferð vestur á Kyrrahafsströnd. Frá Winnipeg til Vancouver. 1 Seaitle 3. ’til 9. niars. Laugardaginn 3. marz kom eg aft- ur til Seattle frá Bremerton. Eg var hjá séra Jónasi næstu nótt og fram- eftir sunnudeginum. Hann var bú- inn að ætla sér aS fara meS mig um bæinn mér til skemtunar. En sVo gat þaS ekki orSiS því hann lagSist hættu- lega veikur á sunnudaginn og lá rúm- fastur fyrri part vikunnar; var samt farinn aS hressast þegar eg fór úr bænum alfarinn. Þessi síSasta dvöl mín í Seattle var mér til mikillar ánægju, þótt veikindi þessa vinar míns skygSi á hana. Eg var til heimilis hjá herra Bjarna Jóhannssyni. Kona hans sýndi mér skemtigarS sem heitir “Volunteer Park” og Sveinn lögmaS- ur Björnsson sýndi mér plássiS, þar sem sýningin var 1909; nú er þar kallaS “State University Ground’, háskóli ríkisins er þar og sýningar- byggingarnar. ViS komum inn í af- ar stóra trjásúlna byggingu, sem geymir marga forngripi, þar sjást gómul hagleiks og listaverk Indíána og Kínv'erja, vinnu og bardaga áhöld þeirra, svo og skurSgoS þeirra. Kín- verskan plóg sá eg þar, meS einu skafti; elzta hurS, sem var í Seattle er þar. og elzta skrifborS í Washing- ton-ríki; líka sjást þar egyptskar múmíur og ýmislegt frá Alaska, til ■dæmis óhreinsaSur gullklumpur. Sveinn sýndi mér staS, þar sem kostur gefst á aS sjá dýrategundir NorSur Ameríku, heitir þaS Wood- land Park. Mörg af dýrunum voru lögst til náSa af því HSiS var á lívöld. ísbirni sá eg liggja viS poll smn, sem voru aS Ieika sér aS mjóum kaSli. Hr. Sigtryggur Kristjánsson frá Kasthvammi sýndi mér og Kristjáni frænda mínum daginn eftir aS viS komum frá Tacoma skurSinum, sem sameinar vötnin Lake Washington og Union viS Puget Sound, fráganginn á lokuntim þar, er hann líkur og á þeim viS St. Andrews strengina í Rauöánni. TilkomumikiS þótti mér á kveldin meSan eg var í Seattle aS horfa til hæSanna i borgintii og sjá húsafjöld- ann á þeim prýdd rafljósum. ÞaS er sannarleg næturdýrS. Seattle er haldiS aS v'erSi áSur langt um IíSur stærsta borg á ströndinni, hefir nú mærri 300,000 ibúa. MiSvikudagskveldiS 7. marz var eg á fundi félagsins Vestra, sem haldinn var aS heimili þeirra hjóna Gunn- ars Mattíassonar og GuSnýjar dóttur Árna Sveinssonar aS Glenboro. Fé- lagiö heldur fund einu sinni í mán- uöi, gefur út blaö sem “Geysir” nefn- ist og er sér.a Jónas A. SigurSsson ritstjóri þess. Fundarstjóri var Pét- nr Hallgrímsson, skrifari Baldur Guöjónsson. Skemtiskrá fundarins var söngur, tölur og upplestur, sem TiúsráSandinn Ias upp. Hann þótti mér vel valinn og vel fram borinn og áherzlu breytt nákvæmlega eftir ■efninu. Upplesturinn var mannjafn- aöar samtal þeirra bræöranna Sig- uröar Jórsalafara og Eysteins Magn- ússona, sem konungar v’oru í Noregi eftir föður þeirra. Magnús konung berfætta, sem féll á íslandi 1103. Mér hefir dottiS í hug síöan eg var á fundi þessum aS vel ætti viö aö Bandalögin íslenzku færu aö hafa á prjónunum á fundum sínum upplest- ur. sem tekinn væri úr fomsögum vorum, því þar er óþrjótandi auölegS. Gæti þaö dálítiö stutt aö viöhaldi ís- lenzks þjóöernis og vona eg aö fé- lagið Vestri haldi áfram aS hafa þess kyns upplestra á sínum fundum. Einhver fundarmanna benti á aö þaö þyrfti aS búa sig undir samkomu á stimardaginn fyrsta, þó. var nú litiS rætt ttm þaS. En svó hittist á aS Almanak Ólafs Thorgeirssonar var þar viö hendina og var gætt aö því upp á hvaSa mánaðardag sumardag- ■urinn fyrsti bæri í ár: þaö var þá S6. apríl; þá varS eg hissa. Sumardag atrinn fyrsti er 19. apríl í ár, er þaö v'finlega þegar sunnudagsbókstafur er G. Er aldrei þann 26. apríl, aldrei seinna en 25, þegar sunnudagsbók- stafur er F. A8 ári, 1918 er sttmar- dagurinn fvrsti j>ann 25. apríl. — ÞaS er slænit aö |>essi tímavilla skuli vera í Almanakinu. A eftir fundi voru veitíngar, og Aöur en fundi var slitiS battö einn fundarmaöur, samkvæmt lögum fé- 1, gsins, aS halda skyldi hjá sér næsta íttnd. AS kveldi næsta tlags (8. marzj. var eg viö guösþjónustu í norskri kirkju. Séra SigurSur Ólafsson frá Blaine messaöi; ræSan var góö og íextinn vel valinn: afneitun Péturs. Því ntiöur er safnaöarlíf dauft hjá íslendingum í Seattle og heyrSist mér þó á þeim, sem eg talaSi viS um þaS, aS þeim fyndist til um þaS hvaö ]>aö væri dauft og óskuöu aö þaS gæti lagast. Hjá fleiri löndum en eg hefi þegar taliö var eg gestur í Seattle. Fvrst tel eg hjónin Svein frá ValþjófsstaS Björnsson Péturssonar prests á Val- þiófsstaö og Kristrúnu ólafsdóttur prests Indriöasonar. Eg þekti þau fvrir löngu síöan í Winnipeg og Norður Dakota. Veturinn 1871 var eg um tínia á Hallfreöarstööum í Hróarstungu, hjá Páli sáluga Ólafssyni aS fá ofurlitla tilsögn hjá honum í dönsku og reikn- ingi; Kristrún var þá þar, og lét Páll systur sína stundum segja mér til,, jjegar hann var ekki viö látlnn. — Þá á sama tíma voru mikil tíSindi aö erast í Evrópu, aumingja Parísar- ’iar máttu, sökum hungurs, gefast >p fyrir ÞjóSverjum. Nú á sama ta árs og þessi viöburSur geröist ír 46 ár, sjáum viö sem þá vorum ung, aftur sama markmiðiS. en nú veröur Parísarborg ekki unnin af Þjóöverjum í þessu stríöi og út- lit er fyrir aö sól hinnar hrokafullu Hoenxolla ættar sé aS síga til viöar. Hinir, sem eg var gestur hjá, voru Bergvin og Hóseas Þorlákssynir. Þeir ólust upp á Hallormsstaö í SuSur-múlasýslu, fólk þeirra þektl eg vel í æsku. Svo voru hjónin Þor- grimur Arnbjörnsson og Sólvei.; Ilalldórsdóttir frá Haugum í SkriS- dal, hún var náskyld báSum konum minum. Enn fremur hjónin Ágúst Goodman og Friörika GuSmundsdóct- ir ögmundssonar. / Bellingham, Mariette og Ferndale 9. til 12. marz. Föstudaginn 9. marz fór eg frá Seattle til Bellingham. Ungur, efni- legur maSur, sonur Sigtryggs Krist- jínssonar frá Kasthvammi fylgdi mér á vagnstöðina í Ballard. Sólin skein ylatt svo nú gat eg v'el séS Olvmpia fjöllin. Sökum skýjaflóka sem yfir þeim var haföi eg áSur ekki getaS haft glögga sjón af þeim. Nú notaöi eg tímann meöan eg beiS eftir lest- in:.i til þess. aö viröa þau fyrir mér. Eg fór af lestinni í Bellingham og fór yfir til Mariette til Gunnars Hólms og var hjá honum þar til eftir miðjan dag á sunnudaginn. Eg fór meS Gunnari til Bellingham á laug- ardaginn, kom inn í mylnuna, sem hr. Magnús Þorláksson á, gat snöggvast séö Magnús og kvatt hann. Hann var önnum kafinn viS vélar sínar. Eg sá þar stórkostlegt Japanskt skip, sem verið var aS ferma. ÁSur en eg fór frá Gur.uari á sunnudaginn komu þar tveir inenn, annan þeirra þekti eg frá gamalli tiö, var þaS Þorsteinn Þorsteinsson, einn af Iandnámsmönnum Gardar bygöar í Norður Dakota, fyrir skömmu flutt- ur þaðan til Grafton, N.D. Við vor- um sambýlismenn í Winnipeg vetur- inn 1880—81. Hann hefir. v'eriS vestur á ströndinni síðan í haust, ásamt konu sinni, hafa þau dvaliö lengst af í Oregon. Gunnar flutti mig til Bellingham, og á meSan eg beiS eftir bifreið, sem flutti mig til Ferndale, fórum viS þangaS sem kennaraskóli rikisins er. f-taSurinn líkist fögrum, hringmynd- uöum hvammi á eina hliö, er skógl vaxin hæð, sem kölluö er Schome Hill. HæSin er hnjúkmynduS og er ekki ólík hnjúkunum í Klettafjöllun- um. Við Gunnar gengum upp á hana, efst uppi á hnjúknum eru stór björg ■f, fyrsti steinninn sem viS komum aS líktist skipi á hvolfi. VíSsýni er .íi.ikiS af hæðinni. Skömmu eftir að viS komum ofan af hæðinni kvaddi eg vin mlnii Gunnar Hólm og fór til Femdale til a>sturdóttur minnar Hildigerðar. / Birrh Bay 12. marz. Eg kom til Birch Bay til systur minnar, þá í þriðja sinn, mánudags- kveldiS 12. marz. íslenzku blöðin koma ekki hér vestur á lítröndina fvrri en á mánu- dögum. Eg sá nú Lögberg frá 8. marz og sá þar lát gamals kunningja og góðs nágranna míns meðan eg Var í Vatnabygðinni í Saskatchewan, Björns Einarssonar að Kristnes P. O. Sask. Eg er nú búinn að sjá æfi- minningu hans í Lögbergi og er hún vel rituð, hvert orö satt í henni. SíS- an hefi eg séö lát annars kunningja mins og frænda, Einars Eiríkssonar að Mozart, Sask. BáSa þessa menn kvaddi eg í nóvember mán. næstliðn- um. Mér sýndist þeim fymefnda ;era brugSiö og kom ekki á óvart aS íeyra lát hans. anum um kveldiö hjá Sigurði. SigurSur fór meS mér á laugar- daginn til næstu nágranna sinna, Sveins Brynjólfssonar og fleiri. Sveinn á. fallegasta og vandaöasta bændahús, sem eg sá þar á ströndinni. Um kveldið veiktist SigurSur, en var þó svo frískur aS hann gat, ásamt konu sinni og nóttur fylgt mér úr garði og ekki var skiliS viS mig fyr en búiS var aS hjálpa mér meS það sem eg hafði meSferðis þangað, sem lestin stanzar í Crescent. Eg kom til Vancouver klukkan skömmu eftir þrjú á sunnudaginn 1. Apríl. Áöur en lestln kom til New Westminster kom maður til mín í vagninum o& heilsaði mér meS nafni, þaS var herra ÞórSur Vatnsdal frá Wadena, Sask. Hann og Friörik Vatnsdal bróðir hans hafa verið vest- ur viS haf síðan í janúar, lengst at í Oregon. ÞórSur ætlar sér aS flytja þangað bráðlega alfarinn frá Wadena. Eg var tvær nætur í Vancouver, þá fyrri hjá hr. Eggert Jóhannssyni, þá seinni hjá hr. William Anderson. Eg kom tvisvar í fagra skemtigarðinn “Stanley Park”, einn á mánudaginn en á þriöjudaginn var William Ander- son meS mér. “Stanley Park” er stærsti skemtigaröurinn á ströndinni. Eg sá.þar 15 tré standa í hring, sem öll munu v’era yfir 100 fet á hæö og gömul eru þau að sjá, hafa kannske verið nýgræðingar á dögum Leifs hepna. í sambandi hér við get eg þess aS eg heyrði getiS um tré þar á ströndinni, sem úr fengust 5,500 tenings fet. Anderson sýndi mér baðstöö Van- couver bæjar og líka komum við inn i gripasafnhúsið /Museumý. Þar éru margir merkilegir muríir. Eg sá þar letraðan á skjal dauðadóminn hans Karls fyrsta Englands konungs, sem hálshögírvinn var laugardaginn 30. janúar 1649, líka sá eg þar Magna Charta (stjórnfrelsisskránaþ gömlu, sem gefin var út 15. júní 1215. Eg lagði af staö frá Vancouver kl. 8.30 á þriSjudagskveldiS, og fylgdi vinur minn Eggert Jóhannsson mér á lestastöðina. Eg gat ekki eins vel tekiS eftir fjöllunum á austurleiöinm eins og þegar eg fór vestur, sökum þess að snjórinn var meiri í þeirð þá. Þó sá eg aS ísirin var leystur af á nokk urri, sem lestin rennur lengi meS fram. Grunnur brautarinnar hefir verið höggvinn inn í klettinn, mynd- ast svo brekka frá grunninum ofan aS ánni; lestin rennur rétt á brekku- brúninni. MaSur sér grænleitt vatn- ið fyrir neðan renna meS straum hraða, þó sýndist mér árbotninn ekki vera mjög stórgrýttur. Verkamenn, sem halda brautinni við, stóðu neöan í brekkunni, hættu þeir aö vinna á meðan lestin fór framhjá og lögöu niSur vopnin, eins og til að veita gufutröllinu lotningu. Ein af hinum mörgu jarSgöngum, sem eru í fjöllunum, eru fimm mílur á lengd. Lestin er dregin út úr þeim með rafafli. Refilstone heitir snotur bær í fjöll- unum. Skamt þar fyrir austan áriS 1885 mættust brautarteinarnir aS austan og vestan, þegar C.P.R braut- in var fullgjör. Áfram flutti lestin mig meS mikl um hraSa austur Alberta og SaskaÞ chewan slétturnar. Nú voru skógar tröllin horfin, sem eg sá vestur á ströndinni og þar standa í vegi fyrir jarSarframleiðslu gróðanum. JörS var auð oröin þegar kom austur fyr- ir Calgary, svo sáust snjóflákar meS köflum þegar kom austur fyrir Moose Jaw í Saskatchewan. Eg hafði hugsað að Bandaríkin yrðu búin aS segja Þjóðv'erjum stríð á hendur áður en eg færi noröur fyrir linuna, en þaS var ekki. En svo voru þau búin aS því áSur en eg kom austur til Winnipeg. Á skír- dagskveldiö 5. apríl, þegar lestin stóS viS um þaS 25. mínútur í Regina, kom blaðasali inn í vagninn og kall- aSi upp “Declaration of War”. Eg held hann hafi selt mörg eintök. Eg kom til Winnipeg kl. hálf átta á föstudaginn aS morgni þess 6. apríl. HelgidagskyrS hvíldi yfir borginni. Eg hvíldi mig um tíma hjá vini mín- um hr. Pétri Pálmasyni, kom heim kl. 3 eftir hádegi. AS endingu þakka eg löndum mín- um, sem eg var gestur hjá vestur viS hafiS fyrir hlýleik og gestrisni, sem þeir sýndu mér. Allir Iétu þeir sér ant um aS gera mér tímann sem skemtilegastan. Hjá sumum var eg aöeins stuttan tíma, en nógu lengi til þess aö finna yl gestrisninnar. Einn af þeim var Frank Johnson frá Snjó- holti. Mér v'arS það óvart hér aö framan, þegar eg taldi upp þá Is- lendinga, sem eg kom til í Seattle, aS gleyma nafni hans. Eg kom til hans sunnudagskveldiS 4. marz. Mér þótti skemtilegt að tala við hann; hann ólst upp í næstu sveit viö þá, sem eg var uppalinn í, og var fermd- ur af sama presti og eg. Hann er fyrir löngu kunnur fyrir sína fögru uppdráttarlist og Jón skáld Runólfs- son fyrir þýöingar sínar á enskum skáldskap á Islenzku. Blessun guös veri yfir þjóðarbroti voru á Kyrrahafsströndinni. Frá Islandi. BlaSiS “Fram” birtir 17. febr. bréf frá útgerðarmanni í Álasundi, O. Tynæs, og er tekinn hér kafli úr því: “.... Ástæöur og útlit er slæmt hér. HvaS stríðið snertir er ekki út- lit fyrir aö þaS sé á enda. Englend- ingar selja nú síldina til SvíþjóSar með 30 króna hagnaði á tunnu. Nor- egur hefir ekkert að segja nú um verð á þeirri vöru. — VerSiö á nýrri síld er 38 til 40 kr. málið. HvaS snertir íslandsveiöar héðan er útlit fyrir að þær verSi engar, aS minsta kosti koma verksmiðjur til að tepp- Eg gat séS ljósiS í vit-ast eins og útlit er nú. England neit- A heimleið 28. mars til 6. apríl. Miðvikudaginn 28. marz kvaddi eg fólk mitt við Birch Bay og lagði af staS heim á leið. Næstu nótt gisti eg hjá hjónum, sem búa skamt frá Rlaine, þau höfðu frétt aS eg væri á ferð, og gerðu mér orð að sjá sig. Bóndinn heitir Ólafur Jóhannesson Pálssonar. ættaður úr Noröfirði í Suður-Múlasýslu í föðurætt, en í móðurætt úr SeySisfirSi, Katrín hét móðir hans, systir Sigurðar óðals- hónda Jónssonar í Firði í SeySisfirSi. Ólafur var á ÁrnastöSum í LoSmund- arfirði 1874—75, þá var eg á Úlfs- stöðum í sömu sveit. ViS 'mundum vel hver eftir öSrum og myrkrinu mikla á annan í páskum 29. marz 1875. Kona Ólafs heitir SigríSur dóttir Stefáns Vilhjálmssonar, sem bjó bæði í Borgarfirði og HjaltastaSa- þinghá. Þessi hjón eru gefin fyrir íslenzkan fróöleik. hvort heldur er sagnfræði, ættfræði eða þjóösagnir og fanst mér ekki langt verða úr tímanhm, þegar eg var aS tala viS >au. Þau eiga tíu ekrur af landi og rækta þar af, auk heys, ýmsa ávexti. Búskapur þeirra, þó ekki sé í stórum stíl, er vel hirtur. Eg fór frá Blaine föstudaginn 30. marz norður til Crescent, sté þar af lestinni og heimsótti aftur kunningja minn SigurS Kristófersson. Eg var lengur að komast til hans en þurfti hefði að vera af því eg tók ekki éttan veg upp hæöina; þó var mikið eftir af degi, svo SigurSur gat sýnt mér land sitt áður en kvelda tók. Hann sýndi mér gamlar Indíána stöðvar á lítilli hæS, þar er gamall arnargarður, sem sagt er aS þeir hafi hlaðið til að verjast á bak við h;-.nn fyrir árásum óvina sinna. Fyrir vestan hæðina sést að skuröur hefir veriö grafinn og hleðsluefnið í garð- inn tekið þar úr. Á fletinum innan við garðinn er ferhyrndur blettur, að stærð og lögun eins og gröf. Sig- urður sagði mér aS einhverjir hefðu grafiö þar hálft annað fet niður og I-ætt svo viS, hafa líklega haldiS að þeir yrðu fyrir reiði þess sent þar hvílir. í suövestur frá Sigurði úti t sjón- um er eyja með vita til leiöbeiningar skipum, vörður vitans er William Henry Taylor bróðir Karolínu konu SigurSar. ar Noregi um kol, og t. d. um kola- vöntun má geta þess, aS í Álasundi er bærinn ekki upplýstur eftir kl. 9 á kveldin. Flestar gasstöövar í land- inu stanzaðar og skipagöngur með- fram ströndum mikiö teftar. —■ Skipa- tap Noröranna er ákaflegt, síSan stríöiö byrjaði. 258 skip hafa farist á sprengiduflum eða verið skotin niS- ur. SkaSinn er áætlaöur 285 miljóntr króna. Verð á matvælum er afskap- legt, 100 kg. af hveiti kosta nú 62 kr. og alt eftir þvl. HúsnæSisleysi er hér mjög mikiö. Fjöldi af skólum hefir verið tekinn handa fjölskyldum til að búa í og .jafnvel kirkjur hitaðar um nætur til þess að húsnæöislaust fólk geti gengiö þar inn og hvílt sig og vermt.” 1. marz kom hingað enskt herskip eða eitt af hinum stóru vopnuSu kaup förum Breta, sem þeir nota fyrir varöskip hér í höfunum nú á stríðs- tímanum. MeS því var Cah'e kon- súll og sendimennirnir héðan C. Proppé, P. Stefánsson, P. Ólafsson og R. Thors, sem verið hafa í Lond- on undanfarnar vikur til þess að tala fyrir okkar hönd um • endurskoöim verðlags á íslenzkum vörum samkv. samningnm frá í fyrra. Fullsamiö er ekki enn um verðlagiö milli stjórn- innar hér og Breta, en þó mun mega telja áeiðanlegt, aS þaö verði þetta á helztu vörutegundunum: Þur saltfiskur hækkar i verði um 25—30 pct. frá því, sem var í fyrra. Bezta tegund blautfiskjar, sem legiö hefir í salti minst 14 daga, veröur 52 au. kílóiö, ríetafiskur 46 au., smá- fiskur 41 eyrir, ýsa 39 au.,upsi 34 au., keila 36 au., langa 52 au. kíló. Kjöt 120 kr. tunnan bezta teg., næsta 110 kr. Hvít vorull 3 kr. kíló, en aðrar ullarteg. tiltölulega lægri. Á lýsi svipað verö og í fyrra. Síldarveröið er fyrst um sinn aS eins ákveSiS á takmörkuSum tunnufjöldao, 180 þús., nokkru hærra en í fyrra, 50 au. kíló, en annars ekki samiö um þaö til fulln ustu. Síldarmjöl hækkar um 2 kr. 100 kg. og fiskimjöl sömul. um 2 kr. 100 kg. Gærur hækka um 2 kr. fyrir vöndul (8 kg.J. Auk þess er nú á- kveðiðð, aö vörurnar borgist ákveSn- um tíma eftir söludag, hvaö sem út- íiutningi líður, og fyrir útflutning sildar borgist eitthvað hærra en í fyrra. Hækkunin mun eiga aö miðast viS það, sem framleiðslukostnaður verði talinn meiri nú en í fyrra, vegfna verS hækkunar á öllu. Sendimennirnir láta yfir höfuö v'el af veru sinni í Englandi. Þeir C. P., P. St. og P. Ól. komu til Leith 30. jan. og fóru þaðan þegar um kvöld- ið til London, en þar var R. Th. fyrir og Bj. SigurSsson. Voru fundir haldnir um verölagssamningana 2 á dag. Segja þeir Breta vel kunnuga hag sjávarútvegsins hér, einkum botn vörpuútgerSinni. Engar siglingar höfSu veriS til'Eaglands frá hlut- lausum löndum meðan þeir voru þar; þó kom norskt herskip með póst um það leyti, sem þeir fóru, og hafði þá póstur ekki komiö frá Noregi ti! Englands síöan 1. febr. Ekki urðti þeir þess varir,að verulegur skortur væri á nokkrum vörum í Englandi. Skipið, sem flutti þá hingað, heitir “Andes,” um 16 þús. smál. að stærS, og voru þeir 3J4 sólarhring á leið hingaS frá Englandi. Landstjórnin hefir nú Ieigt skip i Amerku, sem “Escondido” heitir, 1400 smál., og á þaS aS fara þaöan innan skamms áleiðis hingaS m^ð olíu, og eí til vill fleira. Enn sem komið er mun þaS að eins leigt til þessarar einu ferðar. — Tvö skip hafa nýlega kom- iö hingaS frá Englandi, “Aktiv,” meö salt, og “Are,” meS kol og salt. “Ak- tiv” fór héðan til Vestfjaröa. “Au- gusta” er komin til Lerwich. Botn- vörpuskipið “Þór” héðan úr Rvík er nýkomiS frá Khöfn til SeySisfjarSar en er tómt. “Gullfoss” og “Island” liggja enn í Khöfn, og “Botnía” á Seyöisfiöi. “Ceres” er hér, en ráð- gert ’iefir veriö aö hún færi aðra ferð til Norðurlands, og þó óvíst livað úr því verður. Akureyrarbær hefir nýlega keypt Templarahúsiö þar í kaupstaðnum, sem er aðalsamkomuhús og leikhús bæjarins, fyrir 28 þús. kr., meS inn- anstokksmunum, sem taldir voru 4,000 kr. virði. — HeiniilisiSnaSarfélag NorSurlands heldur námsskeið á Akureyri í vetur og kennir þar tó- vinnu, trésmíði, skósmiði o. fl. ÞórSur kaupm. Bjarnason hefir nú keypt hús Skúla sál. Thoroddsen í Vonarstræti. D. Sch. Thorsteinsson læknir frá ísafiröi hefir keypt hús Jóns Sveinsosnar sunnan við dóm- kirkjuna, og sezt nú að hér í bænum. Holger Wiehe docent hefir keypt HólavallarhúsiS, sem áður átti Dr. Tón Þorkelsson landsskjalavörður. Halldór Ó. SigurSsson, frá Galtastöö- um í Flóa, hefjr keypt hús Gísla Gíslasonar silfursmiðs, Lindarg. 36. “Líf og dauði” er titill á bók eftir F.inar Hjörleifsson Kvaran, sem nú er veriö að prenta. Þar í eru fyrir- lestrar um bók Sir Oliver Lodge, sem hann flutti hér nýlega og vöktu mikla eftirtekt. Um ljóðabók H. Hafsteins hélt Dr Alexander Jóhannsson fyrirlestur i Stúdentafélaginu 28. febr., og endur- tók hann fyrirlesturinn } ISnaSar- mannahúsinu 4. marz, fyrir alþýðu- fræðslu Stúdentafélagsins, og var þar húsfyllir. Sjö sönglög eru nýlega komin út eftir Sigvalda S. Kaldailóns lœkni, og kostar SigurSur ÞórSarson á I.augabóli útgáfuna. Lögin eru við þessi kvæði: “Þú eina hjartans ynd- ið mitt”, eftir G. Geirdal; “Samtal fuglanna”, eftir Huldu; “Soföu, KAUPMANNAHAFNAR Vér ábyrgj- umst það að vera algjörlega hreint, og það bezta tóbak í heimi. Ljúffengt og endingar gott, af því það er búið til úr safa miklu en mildu tóbakslaufi. MUNNTOBAK og kvaS það vera mikiS brotið í botninn, steinlímið líklega að mestu eyöilagt, aS sögn. SkipiS heitir “Alliance”. “Björgvin” mann út sunnan við land. MaSurinn hét A. Jónsson, frá Botni ArnarfirSi, 22 ára gamall. sofðti, góði”, eftir GuSm. GuSmunds- son; “Á Sprengisandi”, eftir Gr. I Thomsen; “Við SundiS”, eftir Sig. SigurSsson; “Draumur hjarðsveins- ins”, eftir Stgr. Thorsteinsson; “1 SvanahlíS”, eftir Gr. Thomsen. Umtal hefir veriö um það, að “Fálkinn” komi með póst hingað frá Khöfn. Þar eru nú staddir margir Islendingar, sem biðiS hafa þar lengi skipsferðar hingaS, þar á meðal ekki fáir kaupmenn héðan úr bænum. Er búist við að þeir komi með “Fálk- anum”, ^f úr för hans veröur. — “Ceres” er nú á för til NorSurlands, og fór með vörur þangað. — Von er á skipi sem “Kora” heitir, meS kolafarm frá Englandi til Kveld- úlfsfélagsins, en skipiö er frá Berg- ensfélaginu. ViS MeSalIand strandaði þann ní- uiida marz enskur botnvörpungur og fór “Geir” austur til aS reyna a'ð ná honum út, en kom aftur þ. 13. s.m. hingaS og hafði ekki tekist björgunin. Menn höfðu komist af. Geir Zoega kaupmaður hefir legiS veikur ,um tíma og þungt haldinn. MeiniS stafar af blöðrusteinum, og liefir. hann veriö skorinn upp. ASfaranótt þess 10. marz kom hingað stór skononrta dönsk, sem var á leiS til Vesturhafseyjanna með steinlím og fleiri vörur. Kom leki að skipinu í hafi og hleypti þaö þvl i.'.n hingað. ÞaS er járnskip. En aöfaraíótt sunnud. var töluvert hvass- viSri á norðaustan, og rak þá skipið upp rétt austan viS hafnargarðinn. HafSi þaS legiö austur frá hafnar- minninu, eins og skip o.ft gera, en ekki fariS inn. SíSan hefir vörunum veriö skipað upp úr þvi að nokkru, íþróttafélag Reykjavíkur átti 10 ára afmæli sunnudaginn 11. marz Stofnandi félagsins og fyrsti kenn- ari var A. Bertels, þá forstjóri klæða- verksmiðjunnar “ISunn”. Nú eru í félaginu um 200 manns, karlar og konur, í sex flokkum, sem skift er í eftir aldri, karlmenn í 4 flokkum og kvenmem. í 2. Opinberar leikfimis- sýningar hefir félagið öðru hvoru. Hin fyrsta v'ar 5. júní 1909. Jón Jónsson sagnfræðingur hefir fengiS lögfest fyrir sig og fólk sitt ættarnafniö ASils. Fyrir nokkru misti fiskiskútan SigurSur Kristjánsson bóksali kvað til Þór. B. Þorlákssonar á fimtugs- afmæli hans, 14. febrúar: VerSi æfileið þín löng og listhelgur þinn frægöar gróöi; skolist aö þér auðnuföng og áma víns með hverju flóði. 19. des. andaSist Filippus Ámason, áður skipstjóri á ísafirSi, einhver elzti borgari þar. — Fyrir nokkru er dáinn Samson Samsonarson í Ás- garðsnesi við Þingeyri, tengdafaSir Jóhannesar hreppstj. Ólafssonar, ha- aldraður maður, en einn af helztu bændum í Dýrafirði á sinni tíö. — Á Mýrum í DýrafirSi er fyrir nokkru dáin ekkjan Maren Oddsdóttir, systir Gísla heitins í LoSinhömrum og þeirra systkina, 85 ára. — Á annan dag jóla andaöist á Syðra-Lauga- landi í Eyjafiröi Ámi Hallgrímsson frá Garðsá, háaldraður maður. Eftir “Lögréttu” |Registration of Electors Electoral Division of Gimli Austurför Arngríms. /Orkt í tilefni af samsæti þvi, sem hinum nýgiftu hjónum, Amgrími og Sigrúnu Johnson, var haldið í Winnipeg, 2. des. 1916/. Nú gaman-stef um góövin minn, hann ”Grím hinn prúða”, sem eg hér með sól og úða, og sendi þau án “brúSkaups-skrúða”. AS “út er genginn” Arngrimur, í annaö sinni, eflaust hafa menn í minni meðan tóra í veröldinni. Er héöan, frá oss, hélt hann austur hraða meöur, enginn haföi af því veöur, að hann væri þetta séður. AS vitur maður væri’ ’hann þó það vissu allir; en ítar fara’ ei oft í hallir ástar-guSs, þó séu snjallir. Nú skatnar allir skilja hér hv'að skrif hans taföi: “Konu fastnaS” hann sér hafði, og hennar gæta skyldan krafði. Hér fyrnin miklu’ í fyrravetur:—i frost og snærinn, komu’ af því, að Sól og Særinn sáu’ aS Arngríms-laus var bærinn. Þá bjartur röðull byrgði sig aS baki skýja; og einnig brást oss Ægis hlýja, en engin hægt í skjól aS flýja. Svo herjaSi á oss Hræsvelgur, í heiftaræði. Hann breytti’, í skyndi, blóma-klæSi í “bruna-gadd” — á stóru svæöi. Hér, Arngrím Johnson, allar grétu Ægis-dætur. Þeim, sem öSrum, þótti’ ’hann mætur, og þrá hann bæði’ um daga’ og nætur. Og söngfuglarnir syrgSu hann og svifu héðan; en sætt þeir oftast sungu’ á meöan að sáu þeir hér vin sinn téöan. En allra mest sá “íslendingur” eftir honum, því oft hann gleöi vakti’, að vonum, hjá vænum dætrum hans og sonum. Já, ef hann Grimsi eigi hefSi austur þotið, hans vér eflaust hefSum notið, og hamingjan þá aldrei þrotið. 1 gegnum lífið GleSi’ og Hepni Grím æ leiddu. Þær vel úr öllum v'anda greiddu, og v'ífin fögru til hans seiddu. Nú S-igrún góS frá Sunnuhvoli sælu veitir, sólskins-ríkum sverða-beitir, sem að lífið aldrei þreytir. Svo óska’ eg þessum “unga” manni, í ástar-böndum, til allra heilla í “Austur-löndum”, þars allir bera’ hann sér á höndum. /. Asgeir J. IJndal. (Des. 1916J. Mr. og Mrs. G. Isberg A þrjátíu ára giftingarafmceli þeirra. Sumardaginn fyrsta 1917. ViS þriggja tuga skundaS ára skeiö er skylt og ljúft að minnast kærra vina, og þakka fyrir fylgd og stoS á leiö er fáði geislum alla samleiSina. Og nú, við þessi merku stunda mót oss mörg er rúnin kær á gömlum blöðum, með höpp og tjón við tímans öldu rót í tilfellanna straumi megin hröSum. Já, það er margt, sem bendir farna braut og breiðir ljós á sporin frumherjanna. Viö nutum ykkar þá t hverri þraut, meS þor og dug og kærleiks eSlið sanna. Notice is hereby given that, pursuant to the Provislons ot ‘ Manitoba Klectlon Act,’’ it has been deternained to add to, correct and revise the Lists of Electors of the several Electora! Divisions in the Provlnce. ■The date on and places at which applica- tions for reglstration, for strlklng names off the List of Electors, and for the correction of errors, will be received are as follows: Monday, May 21—At the Post Office, Foley. Tuesday, May 22—At the Post Office, Husavik. Wednesday, May 23, and Friday, May 25— At the Town Hall, Gimll. Saturday, May 26—At the store of S. Wood, Kreuzberg. Monday, May 28—At the house of Thomas Brown, 19-19-1 E. Teusday, May 29—At the store of Mike Gottfried, Village of Meleb. Wednesday, May 30—At the house of Franz Eivens, 22-20-3 E. Thursday, May 31—At the house «f G. Magnusson, Nes Post Office. Friday, June 1—At the house of Bjarni Peterson, 9-21-4 E. Saturday, June 2—At the store of Harry Diamond, Rembrandt. Monday, June 4—At the house of M. Boya- zuk, 27-21-1 E. Registration Clerk for the 11 foregoing registration booths—B. Martinson, Hnausa Post Office. Reg’istration Clerk for the fellowing Registraton Booths—Martin M. Jonasson. Vidir P. O. Monday, May 21. Tuesday, May 22—At Good Templars Hall, Arborg. Wednesday, May 23—At the house of Thomas Bjornsson, 22-22-3 E. Friday, May 25—At the house of G. G. Martin, 28-22-4 E. Saturday, May 26, and Monday, May 28— At the house of Johann Bríem, River Lot 6, W. Village of Riverton. Wednesday, May 30—At the house of Krist- jan Thomason, Big Island. Friday, June 1—At the house of Mykola Cinuyk, 2-24-3 E. Saturday, June 2—At the house of Niak Peabosh, 2-24-2 E. Monday, June 4—At the House of M. M. Jonasson, 20-23-2 E. Tuesday, June 5—At the house of Joseph Weselak, 32-24-1 E. Wednesday, June 6—At the house of F. G. Stephesn, Fisher River. B. Martinson, Hnausa P. O., and Martin M. Jonasson, Vidir P. O., have been ap- pointed Registration Clerks and will attend and sit at the place and on the dates named above between the houra af 12 o’clock noon and 6 o’clock p. m. and 7 o’clock and 9 o’clock p. m., unless other hours are stated in the above paragraphs, except that in incorpurated towns and villages the hours will be from 9 o’clock a.m. to 1 o'clock p.m., 2.30 o’clock to 6 o’clock p. m. and 7.30 o’clock to 9 o’clock p. m. Only such persons whose names are not on the last revised List of Electors, but posess the qualifications to be reglstered as electors under the provision of ”The Mani- toba Election Act,” need attend the registration sittings or Court of Revision for the purpose of being so registered. Electors can make application for registration at any of the places mentioned above. A COURT OF REVISION will be held in Town Hall, Gimli, on Satur- day, June 9th, and at Good Templars Hall, Arborg, on Wednesday, June, 20th, 1917, commencing at the hour of 10 a. m. and closing at 4 p. m. with an Intermission at noon for lunch, to consider all applicatons filed wíth the Registration Clerk, and also the apprlications of other persons to have their names added to the List of Electors. Dated at the office of the Provinclal Secretary this Fourth day of May, 1917. J. W. Armstrongr, Provincial Secretary. ALVEG NÝ og UNDRAVERÐ UPPFUNDING Því hvað er öll vor andans ment og ráð ef eining brestur til aS lyfta merki? En þar er sönnu sigurmarki náS, hvar samúS ríkir jafnt í hug og verki. Ettir 10 ára erfiöi og tilrauríir hefir Pr6f. D. Motturas fundiS upp meSal búið til sem áburð, sem hann ábyrgist að lækni allra verstu tilfelli af hinni ægilegu. Þú göfga kona, góða systir vor, er gafst oss ráö og ljós á förnum vegi, nú ljómar sérhvert samvistanna spor í sælli þökk á blíðum haustsins degi. Vér þökkum systir, langa, fama leiö, með ljós og yl í gegnum sæld og tárin; þín mannúð lifir, himinn blíö og heið x hjörtum vina, þó að streymi árin. Ó, kæru hjón, við haustsins friðar skaut, vor helg er þrá, af vinar anda glööum, aS enn þiö lengi lýsiö okkar braut meS líf og yl í tímans straumi hrööum. Fyrir liönd kvenfélagsins í Dog Creek bygS. M. Markússon. G I G T og svo ódýrt aö allir geta keypt. Hvers vegna skyldu menn vera að borga læknishjálp og ferðir í sérstakt loftslag, þegar þéir geta fengiS lækn- ingu heima hjá sér. það bregst al- drei og læknar tafarlaust. Verð $1.00 glasiö. Póstgjald og herskattur 15 cent þess utan. Aðalskrifstofa og einkaútsölumenn að 614 BUILDERS EXCHANGE BLDG. Dept 9, Winnipeg, Man.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.