Lögberg - 28.02.1918, Page 1

Lögberg - 28.02.1918, Page 1
SPIERS-PARNELL BAKING CO. • ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. REYNIÐ ÞA! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG öabnvi3 Þetta pláss er til sölu Talsímið Garrv 416 eða 41T 31. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 28. FEBRÚAR 1918 NÚMER9 Canada. Brig. General Ruttan, sá er verið hefir yfir-herumsjónar- maður í 10. hersöfnunarsvæðinu —Manitöba, Saskatohewan og Alberta, hefir látið af embætti, en í hans stað skipaður ver- ið Major-Gen. John Hughes, bróðir Sir. Sam Hughes fyrver- andi hermálaráðgjafa Borden- stjómarinnar, og tekur hann við stöðunni 15. marz næstkomandi. Major George H. Welsby fé- hirðir fyrir 10. hersöfnunarsvæð- ið, með aðalskrifstofu í Winni- peg, hefir verið tekinn fastur og sakaður um fjárdrátt, eigi all- lítinn; hvarf hann skyndilega 17. þ. m. úr borginni, en við rann- sókn á bókhaldi hans kom í ljós sjóðþurð, er nam eigi minna en $7,000, að því er “Free Press” skýrir frá. — Komu vinum Mr. Welsby þessi tíðindi mjög á ó- vart, með því að maðurinn kvað hafa notið mikilla vinsælda og haft á hendi trúnaðarstörf um all-langt skeið. Var hans leitað hér í borginni af lögreglunni, en alt kom fyrir ekki. pau urðu þó úrslitin, að Mr. Welsby, var handsamaður aust- ur í Ontario, og fluttur rakleitt hingað til Winnipeg, þar sem hann skal svara til sakar. Hann er kvæntur maður og liggur kona hans fárveik eftir holskurð á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni. Stórkostlegt tjón af völdum flóðs, hefir orðið á ýmsum stöð- um í Ontario-fylkinu. Veðrið hafði verið óvanalega milt, og síðastliðna mánudagsnótt gerði rigningu all-mikla, er hafði þær afleiðingar að sumar ámar austur þar sprengdu af sér ís og stífluðu jakamir víða framrás- ina og olli það flóðinu. Hve miklu fé tjónið muni nema hefir enn eigi sannfrést um. “sléttu-sveinanna”, heldur hop- uðu þeir á hæl, hið ákjótasta, misisandi nokkuð manha, og undu hag sínum illa. Hugðust þeir og skyldu ná sér niðri á Canadamönnum áður langt um liði; sátu þeir af sér ekkert færi, því undir eins nóttina eftir gerðu þeir aðra atrennu, og höfðu þá eitrað gas og annan óþverra, er þeir hugðu betur duga mundu. En Canadamenn voru við öllu búnir og tóku mannlega á móti, létu þeir fallbyssukúlumar ó- spart dynja á þýzkurunum, er sáu eigi annan kost vænni, en að hörfa undan til virkja sinna, með hlut sinn óbættan. ' Nótt þessa var ólátaveður hið mesta, og áttu Canadamenh að sækja móti hríðarbyl. Sir Douglas Haig hefir opinberlega látið í ljósi þakklæti sitt til hinna Cana- disku hermanna fyrir frammi- stöðuna. Bandaríkin. Candaherinn sýnir frækilega frammistöðu enn sem fyr. Hinn 25. þ. m. gerðu pjóðverj- ar allharða árás á vígstöðvar Canadamanna fyrir norðan Lens, en ekki sóttu þeir gull í greipar Ríkisskuldabréf upp#á þrjár biljónir dollars hefir McAdoo til- jkynt öllum bönkum í landinu að eigi að gefa út til bráðabyrgðar, og -hefir beðið; bankana að leggja að minsta kosli 1% af öllum eign um þeirra, þetta er gjört til þess að reyna að koma á jafnvægi á verksmiðjuiðnað, sem aflaga hef- ir farið sökum kolaleysis. Bank- arnir hafa orðið mjög vel við til- mælum þessum; sagt er að sím- skeytum rigni að fjármálaráð- herranum f rá bönkum með. lof- orðum um drengilegar undir- tektir. Verkfall það sem skipasmiðir gjörðu í New Orleans hefir ver- ið með samkomulagi beggja máls aðila til lykta leitt, og mennimir byrjaðir að vinna. Skipið “Lucia”, sem var eign Austurríkismanna, fyrir stríðið, en nú er eign Bandaríkjamanna hefir verið útbúið til fóíksflutn- inga og er sagt að það geti boðið neðansjávarbátunum byrginn, sé útbúið svo, að það sé ómögule£t að sökkva því. 12,000 loftheld hólf úr jámi eru í skipinu. Yfir- smiður skipsins heldur því hik- laust fram, að þótt tundurkúla komi í það, og jafnvel sprengi part úr því þá geti hún al- drei sökt því. Innan skams á nú að reyna þetta með því að skjóta á skipið tundurkúlum, og verður fróðlegt að sjá havð vel skipið getur varist þeim vogesti. Maður að nafni Kurt Kind byggingameistari frá New York hefir verið tekin-n fastur í San Francisco, sagður að vera með- limur í þýzka leynilögregluliðinu General Pershing, í skeyti til hermáladeildarinnar, segir að þeir 10 hermenn, sem hafi tapast 30. nóv. sl. séu fangar hjá pjóð- verjum, einnig segir hann að fall ið hafi 4, særst 6 og 3 verið her- teknir nýlega og einnig að tíu hafi látist á sóttarsæng. ♦ Fyrrqm forseti Bandaríkjanna Theodor Rooswelt hefir verið skorinn upp í annað sinn á Roose- welt sjúkrahúsinu í New York. Læknar segja hann nú úr allri hættu. Póstmálaráðherra Bandaríkj- anna hefir tilkynt að í vor verði byrjað á því að flytja póst á milli New York, Philadelphiu og Wasihington í loftförum. Hvert loftfar á að geta flutt 300 pund og fara 100 mílur á klukkutíma. Áætlað er að burðargjald muni verða um 25 cent undir eina únsu. ' Skipabyggingarstöð eru Banda- ríkin að láta gjöra við Dela- ware ána og átti að kosta $21,- 000,000 þegar húin væri búin samkvæmt áætlun. 5 af 50 bás- um, sem áttu að vera eru nú full- gerðir og kostuðu $27,000,000. Gullfoss hreppir ofsaveður og laskast í bréfi frá Garðari Guðmundssyni, sem er símastjóri á Gullfoss, til Mr. S. W. Melsted hér í borg, sem er föðurbróð- ir Mr. Guðmundssonar, segir að Gullfoss hafi hrept ofsaveð- ur í hafi, og á miðvikudaginn 13. febrúar, hafi yfirbyggingin og borðstokkurinn á stjórnborða brotnað, og einnig hafi hlið sú, sem borðsalurinn veit út að, svignað inn. öllum á skip- inu sagði ihann að liði vel. peir voru 13 daga á leiðinni frá íslandi til Halifax. pjóðverjar neita Rússum um vopnahlé. Opinber tilkynning hefir verið gefin út í Pétursborg þess efnis, að pjóðverjar hafi neitað að veita Rússum vopnahlé, og þeir haldi áfram yfirgangi sínum og innrás í landið. Hefir Lenine-stjórnin skorað á menn og konur að hefjast handa til varnar höfuðborginni, og til vemdar stjórnarbylting- unni, er Rússar sjálfir svo segja. Undir eins og Pétursborg verð- ur talin í hættu, verður stjórnar- ráðið flutt til Moskva. Rússland. Emil Páll. I Sigurbjörn Haraldur. E. P. Wilson og Harry Wilson. Heimkomu þessara bræðra hefir ekki verið getið í íslenzku blöðunum til þessa. En með því að eg hefi bæði bréflega og munnlega verið spurð um það, hvemig þeim líði, þá finst mér vel viðeigandi, að gefa þeim hin- ura sömu vinum mínum nokkrar uPplýsingar viðvíkjandi bræðr- unum. Sigurbjörn Haraldur innritaðist í 78. herdeildina hinn 9- júlí 1915 og fór með deild Peirri áleiðis til Englands 15. maí 1916. Eftir að til Englands kom, fór hann að finna til gigtar, er fór dagversnandi, og litlu eftir að hann kom tii Frakklands, í ágústmánuði 1916, varð hann yfirkomin af veiki þessari, og fluttur aftur til Englands, þar sem hann lá á sjúkrahúsi svo mánuðum skifti. Hann kom heim^ í marz 1917, og er nú við all-góða heilsu. Emil Páll innritaðist í 61. herdeildina 14. . júní 1915 og fór til Englands 27. marz 1916. Eftir að þangað kom var hann færður yfir í 44. her- sveitina, og áður en langt um leið, hafði hann áunnið sér svo mikið traust yfirmanna sinna, að nann var hækkaður í tigninni og gerður að Sergent. Til Frakk- lands fór hann 9. ágúst og var í fremstu skotgröfum nærri því 10 mánuði, eða þar til 3 janúar 1917, að hann særðist í orustunni við Lens, fékk skot gegnum vinstra handlegginn, og var flutt ur á sjúkrahús á Englandi; þar sem hann hlaut góða aðhjúkrun, og hrestist hann furðu fljótt. En þá vildi honum það slys til, að hann meiddist all-mikið í hægra hnénu, og lá hann rúm- fastur um hríð af þeim orsökum Hann kom heim 16. janúar síð- astliðinn og líður bærilega. Við heimkomu drengjanna minna, hefir sannarlega birt mikið yfir heimili mínu, sem var dapurt í fjarveru þeirra, og autt og harm þrungið eftir fráfall föður þeirra míns hjartkæra eiginmanns Sig- urðar Erlendsonar, er við urðum á bak að sjá, eftir langa og stranga sjúkdómslegu, þann 20. maí 1917. Hvað við höfum mist við fráfall hans, geta þeir einir borið um, sem hafa orðið að sjá á bak ástríkum og skyldurækn- um föður og eiginmanni. Metonia E. Wilson. pjóðverjar halda áfram að vaða inn í Rússland af miklu of- urkappi. í síðustu atrennunni hafa þeir náð á sitt vald virkja- borginni Reval og bænum Pskov, sem liggur um 160 mílur suð- vestur af Pétursborg. Veittu Rússar all-sterka mótstöðu um hríð, en urðu loks ofurliði bomir. Reval, höfuðborgin í Esthonía fylkinu, er rammlega víggirt; liggur hún við finska flóann, 230 mílur fyrir vestan höfuðborg Rússlands. íbúatala borgarinn- ar fyrír stríðið var um 100,000, mestmegnis pjóðv. Var fjörugt viðskiftalíf í borginni og þaðan útflutt allmikið af vörum svo sem byggingarefni, komi, ull, gærum og tólg; verzlunarum- setningin mun hafa numið um þrjátíu miljónum dala á ári. Keisarahöllin, er Pétur mikli lét reisa þar, stendur enn þann dag í dag og ýmislegt annað sögu- legra bygginga. Borgin Pskov, er höfuðborg samnefnds héraðs. par er veg- leg dómkirkja og nunnuklaustur all-frægt, eigi hefir borg þessi verulega verzlunar þýðingu. Spánn. ’Kosningar til spánska þings- ins eru nýlega afstaðnar og hafa gengið hinum frjálslyndari lýð- veldissinnum í vil, hlutu þeir 93 þingsæti, en íhaldsflokkurinn 86. Eigi verður af kosningum séð að svo stöddu, hverir mynda muni næsta ráðaneyti, með því, að flokkamir eru tiltölulega jafnir að fylgi, en þó er búist við því, ,að á laggimar verði sett sam- steypustjóm. Spönsku skipi, er Negwi nefndist, var sökt nýverið af völdum þýzks neðansjávarbáts. Skipið var 1,859 smálestir að stærð, gmíðað í Englandi árið 1894. — Spánverjar hafa sent mótmæli til pjóðverja yfir að- fömnum. pýzki kanzlarinn Count' von Hertling, svaraði á mánudaginn var ræðu, er Wilson forseti Bandaríkjanna flutti 11. þ. m. Ræða þessi virðist kveða við dálítið annan tón, en vér höfum átt að venjast úr þeirri átt. Hann viðurkennir að aðal- atriðin fjögur, sem Wilson tekur fram i ræðu sinni sé sanngjöm. Segir hann að pjóðverjar muni þess albúnir að leggja stríðsmál- in í alþjóða gerðu. uó»t, ef nokk- ur slíkur gerðardómur sé til. Sagði hann að ekki mundi spilla, þó að menn gæfu sig að tillögu Mr. Walter Runciman um að málsvarar allra hlutaðeigandi þjóða kæmu saman og bæru saman skoðanir sínar. Enn fremur gat kanzlarinn þess, að ákveðið væri af mið- veldunum að veita Courlandi og Lithuania sjálfstjóm. En svo veit maður aldrei hverju er að treysta frá þeirri hendi. Tyrkland. Síðustu fregnir skýra frá því að Tyrkir hafi tekið borgina Trebizond, er liggur við Svarta- hafið, og fylgir það fréttinni, að á stöðvum þessum hafi Tyrkir hafið áhlaup þetta, áður en út var runninn tími sá, er samið hafði verið um við Rússa. Sagt er samt að innan skamms muni teknar upp friðarumleitanir milli Tyrkia og hins nýstofnaða lýð- veldis Caucasus-manna. Noregur. Verzlunarsamningur er full- gjör milli Norðmanna og sam- bandsþjóðanna í stríðinu við Noreg. Samningstilraunir þess- ar hafa staðið yfir lengi, og hefir Dr. Friðþjófur Nansen, sem er umboðsmaður Noregs, annast um þá fyrir hönd þjóðar sinnar. pann 26. janúar síðastl. sendi stríðs-verzlunamefnd Banda- ríkjanna uppkast af þessum samningi til Nansens, og 14. þ. m. svarar Nansen, og gengur að öllum skilyrðum, sem Banda- ríkjamenn fara fram á. Aðalatriðin eru: 1. Að engar vömr né vöru- efni, sem í Bandaríkjunum er keypt gangi til pjóðverja. 2. Að Norðmenn selji ekki neitt af heimaframleiddri vöru til miðveldanna, sem þeir geti bætt upp heima fyrir með vöru- kaupum í Bandaríkjunum. 3. Að Norðmenn sendi ekki meir en 28,000 tonn af fiski á ári til miðveldanna. 4. Að ábyrgjast að engar vörur, sem Noregur kynni að selja til hlutlausra landa, lendi til pýzkalands. 5. Að þar sem Bandaríkja kol, verkfæri eða efni væri notað við framleiðslu í Noregi, þá megi þær vörur, sem á þann hátt eru framleiddar, með engu móti send- ast til miðveldanna. 6. Að matarseðlar verði við- hafðir í Noregi. 7. Að hætta að senda skot- færi eða herútbúnað til miðveld- anna. 8. Að láta samherja sitja fyrir vörukaupum, að svo miklu leyti sem unt er. pann 14. þ. m. gekk Nansen að þessum samningum í öllum aðalatriðum, að undanteknum 7. lið. Segir Nansen að Norðmenn séu upp á pjóðverja komnir með sumt af nauðsynjavörum sínum, og gætu þeir þess vegna ekki gengið inn á að hætta að verzla við miðveldin. En ef Norðmönn- um væri hamlað að selja pjóð- verjum þær vörur, sem þeir helzt þyrftu við, þá væri úti um þá verzlun. Var þetta atrjði því gefið eftir, með þeim skilningi, að þessi viðskifti Norðmanna og pjóðverja yrði takmörkuð sem mest að unt er. Bandaríkja stjórnin lofaðis4 Rauðakross skip strandar. Rauðakross skipið Florizel, strandaði við Race höfðann í gríðarlegu ofviðri og brotnaði í spón að morgni hins 24. þ. m. Og týndu þar lífi eigi færri en um 100 menn, eftir síðustu frétt- um að dæma. Skipið var á leið til Halifax frá Nýfundnalandi og átti þaðan að halda til New York. Sex líkum skolaði á land laust eftir hádegi þann sama dag, og síðan hafa fundist alls 92 lík. peir sem af komust, höfðu hald- ist við á skipsflekunum í 26 klukkustundir, þar til fiskimenn frá Nýfundnalandi komu þeim til hjálpar. Sterkur grunur leikur á því, að þýzkir njósnrmenn, muni á einhvem hátt valdir að slysinu. til þess að láta af hendi við Noreg, eins árs forða af nauð- synjavöru, einnig ákvað hún að laus skyldu látin norsku skipin Alfred Nobel og Kins, sem að undanförnu hefir verið haldið fermdum af matvöru og fóður- tegundum, sem þau komu með frá Argentínu, en fengu ekki að fara áleiðis frá Bandaríkjunum, þar til samningar þessir, sem eru til eins árs, voru fullgerðir. Síðustu fréttir. Brezku spítalaskipi var sökt 26. þ. m. í Bristol sundinu. Eng- ir sjúklingar voru á skipinu og fólki flestu bjargað. pjóðverjar gerðu tilraun til að taka landspildu þá við Butte du Mensel, er Frakkar tóku ný- lega, en gátu engu áorkað fyrir Frökkum, sem stöðugt hröktu þá til baka, þar til þeir hættu. Ekki eru Bretar aðgjörðalaus- ir á vestur vígstöðvunum. Stöð- ug smá áhlaup eiga sér stað, og máske mörg sömu nóttina, og all-harðar loft orustur hafa líka átt sér stað, og hafa Bretar á þrem vikum eyðilagt 120 loftför fyrir pjóðverjum, en sjálfir mist aðeins 28. 70,000 rússneskir hermenn hafa verið kallaðir frá Moscow, til þess að reyna að stemma stigu fyrir pjóðverjum, áður en þeir ná til Pétursborgar. Canada Kyrrahafsbrautar fé- agið hefir ákveðið að gjöra verk, sambandi við jámbrautarkerfi sitt hér í landi á þessu ári, sem nemi $7,000,000. Munið eftir afmœlissamkomu ---------------Betels---------------- sem haldin verður í kveld (fimtudag), í Fyrstu lútersku kirkjunni. pó vér höfum í mörg hom að líta — þó hugur vor sé fastur við hin mörgu og erfiðu umfangsefni. þá er hann aldrei svo upptekinn, að þar sé ekki rúm til þess að hugsa um og gleðja þá á meðal vor, sem ellin beygir, og í skugga haustsins bíða sólarlags. íslendingar, munið eftir að fjölmenna á afmælissam- komu Gamalmennaheimilisins. Inngangur ekki seldur, en samskota leitað. pví sem inn jcemur verður varið til þess að kaupa afmælisgjöf handa gamla fólkinu á Betel. Friðrik Josephson Friðrik Josephsson er fæddur á Mýdarlóni í Lögmannhlíðar- sókn í Eyjafjarðarsýslu 24. okt 1895. Foreldrar hans voru Jón bóndi Jósepsson og kona hans Guðrún fsleifsdóttir. — priggja ára gamall misti hann föður sinn og fluttist þrem árum síðar með móður sinni vestur um haf, til Argyle-bygðar og hefir hann lengst af síðan átt heimili þar, síðast hjá stjúpföður sínum, Sig valda B. Gunnlaussyni. — Hann gekk 8. janúar 1916 í 222. her- deildina. Með henni fór hann í nóvember 1916 til Norðurálfunn ar. Hann særðist 7. apríl 1917 bardaganum við Vimy hæðina Síðan hefir hann verið til lækn- inga á Englandi, en býst við að fara bráðlega aftur á vígvöllinn Kominn heim. Dr. O. Stephensen, sem verið hefir herlæknir á Bretlandi síðan í febrúar í fyrra, kom til bæjarins á fimtudaginn í síðustu viku. Hann fékk heimfararleyfi sökum gigtar, sem stöðugt á- gjörðist í hinu rakafulla lofts- lagi, sem er á Bretlandi. Dr. Stephensen var lengst af við herspítalana í Shorncliffe og í Ramsgate, og annaðist þar sér- staklega þá, sem limi höfðu mist í stríðinu, eða þá, sem stirða limi höfðu sökum sára, er þeir höfðu fengið. Hann var staddur í Shorncliffe, er pjóðv. gjörðu áhlaup með loftförum sínum á þann stað í maí síðastliðnum, og hittu sumar sprengikúlumar frá þeim spítalann, og eins og kunn- ugt er, varð að mannskaði all- mikill. pegar atlaga þessi hófst kl. 5.30 e. h. var doktorinn ásamt mörgum öðrum starfsbræðrum sínum við handlaug, því kveld- ,verðar tími var í nánd. Síðar fór hann til Ramsgate. par lenti hann einnig í einni af þessum loft-atlögum pjóðverja, hún var gjörð um hádegi dags og var Dr. Stephensen þá úti staddur og sá loftskip pjóðverja, fjögur talsins, sem nálega voru komin yfir sjúkrahúsið. Fjórum sprengikúlum var kastað niður, og skemdist byggingin nokkuð, en mannskaði varð ekki mikil. Doktorinn segir fóllc á Bret- landi með einum hug í öllu því, sem að stríðinu lýtur, meininga- munur um smámál og misklíð öll hverfi fyrir því eina stóra og alvarlega. — Ekki sagði doktor- inn að enn sem komið væri bæri neitt á vistaskorti; að vísu væri alt sparað sem mögulegt væri og engu á glæ kastað. Dr. Stephensen verður heima fyrst um sinn. Jarðarför Halldórs Eggertssonar fór fram á föstudaginn, þann 22. þ. m. og var fjölmenn. Húskveðju á heimilinu hélt séra Fr. J. Bergmann og var líkið svo flutt í Fyrstu lút. kirkjuna, þar sem séra Bjöm B. Jónsson flutti ræðu. Við athöfnina þar söng Mr. Halldór pórólfsson prýðisvel, eins og honum er lagið, meðfylgjandi kvæði eftir Dr. Sig. Júl. Jóhannesson. Kveðja frá ekkjunni. Á ströndinni köldu’ eg kveð þig, vinur minn, eg kveð þig með tárum; á hafið eg stari og eygi anda þinn á eilífðar bárum, eg sé hvar þú lendir við lífsströnd hinummegin og ljósið frá sál þinni birtir mér veginn, unz kem eg til þín, til þín; eg kem til þín. En eg verð að bíða og brosa gegn um tár hjá blómunum þínum, því sviðanum vildi eg verja þeirra sár í veikleika mínum; en þegar mig syfjar og höfuð þreytt eg hneigi og hvíldar eg þarfnast að enduðum degi þá kem eg til þín, til þín; eg kem til þín. Frá kirkjunni var farið með líkið út í líkhúsið í Brook- side grafreitnum, þar sem það verður gejmit til vors.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.