Lögberg - 21.11.1918, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. NÓVEMBER 1918
F réttabréf.
Herra ritstjóri Lögberg's!
Mig minnir að eg hafi eitt sinn
verið búinn að lofa þér því, að
senda Lögbergi nokkrar línur.
En vegna tímaleysis og annnara
orsaka hefir þaÖ dregist. En svo
hljóðar málshátturinn: “Betra
er seint en aldrei”.
J?að liggur þá hendi næst, rit-
stjóri góður, að óska þér og blað-
inu allra heilla, og þér langra líf-
daga í ritstjórasessinum. paö
eru allir kaupendur hér umhverf-
is, það eg frekast veit, mjög á-
nægðir með Lögberg undir þinni
stjórn.
petta er farinn^að verða nokk-
/ uð langur formáli fyrir litlu efni.
( Fréttabréf ætlaði eg að skrifa,-
því nú er orðið nokkuð langt síð-
an að nokkuð ipesskonar hefir
sézt héðan. pað mun hafa ver-
ið urn petta leyti í fyrra, sem Lög
berg flutti fréttagrein héðan úr
sveitinni, og eins og gefur að
skilja Ihefir ýmislegt til tíðinda
borið síðan á svo löngurn tíma,
og það á pessum miklu sögulegu
viðburðatímum. Samt hafa nú
• engin stórtíðindi átt sér stað önn-
' ur en iþau sameiginlegu, seim hver
hefir öðrum að segja um þessar
mundir, allir hlutir fara hér fram
í kyrð og friði, eining og sam-
iyndi. pað heyrist stundum
kvartað um að fréttabréfin séu
sum ekki á marga fiska. Samt
eru þó flestir með pví markinu
brendir að hafa gaman af að lesa
þau, og iesa þau næstum fyrst af
öllu því, sem blöðin flytja. pað
er eitt af einkennum þjóðar vorr-
ar, að vilja sjá og heyra hvemig
löndum vorum líður, hvar sem
þeir búa á hnettinuim. pess
vegna flytja blöðin okkar altof
sjaldan fréttir úr íslenzku bygð-
unum.
Sumarið 1917 var hér í þessu
bygðarlagi mjög þurt og gróður-
lítið; þar af leiðandi varð tilfinn-
anlegur uppskerubrestur í fyrra-
haust, og heyafli aneð minsta
móti. Veturinn var snjóalítill,
en langur þótti' hann og frost-
harður. Byrjað var að gefa
skepnum 16. október, og stóð
gjafatíminn til 1. júní; og hefir
um og nefnd er Moose River;
lendur þær keypti Guðmundur
faðir Jóns, á síðastliðnum vetri,
af Austmanni einum. Minnir sú
aðferð á forfeður vora í fomöld
úti á fslandi, þá sem keyptu höf
uðbólin undir syni sína. — Jón
Freeman er einkar vel gefinn
maður, með þeim eiginleikum er
hvern mann prýða, yfirlætisleyp
og prúðmensku. Bætist þar við
einn nýtur bóndi í sveitarfélagið,
sem líklegur er. til að verða fé-
lagslífinu til uppbyggingar, ef
hahs nýtur við. pað era til ungir
menn, sem ekki virtust skilja,
hvaða áihrif að gagnstæð fram-
koma hefir á hina eldri.
pá er eftir að minnast á það
stærsta og þýðingarmesta mál-
efni þessara tíma, stríðið, sem
alla viðkvæma strengi snertir. —-
AHmargir hinna yngri manna
hér í sveit hafa gengið í herþjón-
ustu Bandaríkjanna. Er það
frítt lið og harðsnúið, sem héðan
hefir farið, og mjög líklegir til að
reka flótt% pj óðverj a j afn- ósleiti-
lega og liðsmenn Egils Skalla-
grímssonar í orastunni á Vínar-
heiði. Flestir eða nálega allir,
sem héðan hafa farið, hafa geng-
ið sem sjálfboðar i herinn, sumir
þeirra innan við hinn lögboðna
aldur. Sést hér sem víðar á þess-
um tímum, að hugprýðin íslenzka
sem lengi hiefir einkent vora þjóð
er ekki aldauða, þótt svo megi að
orði kveða, að mikill harmur.sé
að oss kveðinn með þessu útboði,
þá ihefir alt farið fram þeggjandi
og hljóðalaust hér, enginn mæR
æðruorð, 'hvorki feður né mæður.
Hin háleita skylda við fóstur-
landið og þjóðina situr í fyrir
rúmi. Munu það fádæmi vera,
eða einsdæmi í veraldarsögunni,
að ein þjóð hafi jafnmikið fært í
framkvæmd á svo stuttum tíma,
sem Bandaríkin. Mann svimar
við að hugsa um það alt; og fá
dæmi muh vear jafn einhuga
þátttaka þjóðarinnar að hrinda
af sér hinu andstyggilega þýzka
ofurvaldi. Ekki sízt, er þess er
gætt, ihvað þessi þjóð saman-
stendur af mörgum þjóðflokkum.
Um það atriði voru margar spár
í fyrstu, að torvelt mundi verða
að fylkja undir einu merki þeim
mörgu ólíku þjóðflokkum. En,
í þessari bygð. pessi hjón era ttefnd. óskar gekk í herinn í
næst Helga, hinir fyrstu land-1 október 1918. Hann er stúdent
nemar hér í sveit. Vilhelm gekk j af háskóla í Fargo. Friður
í herinn 3. september 1917. Hann I er hann sýnum og góðmannlegur,
það þótt langur gjafatími á ís- sem betur fer, hafa þær spár ekki
landi. Vorið í vor var ákaflega I ræzt. Hér í þessu nágrenni
vindasamt og kalt, svo akrar stór ganga allir hinir ungu menn glað-
skemdust af frostum, nálega í
hverri viku. OfViðri, sem gerðu
það að verkum, að öll hin léttari
íöndin eyðilögðust. Fjöldi bænda
tvísáðm í akra sína, en alt varð að
engu; það, sem vindurinn tók
ekíki, brann í júlí i of miklum
þurkum. Uppskeran er því nær
engin þetta haust hér í vestur-
hluta þessa ríkis. Vegna hinna
mikluþurka í tvö sumur, kom það
fyrir, sem aldrei í sögu þessarar
bygðar hefir átt sér stað áður, að
hið mikla og góða heyland gat
ekki sprottið. Urðu bændur því
vegna fóðurskorts að fækka búfé
sínu um helming, og sumir miklu
meira. Sannast á því gamli
málshátturinn: “Mörg er bú-
mannsraunin”.
Heilsufar manna hefir verið
fremur gott. Samt hefir stung-
ið sér niður botnlangabólga. Virð-
ist sá sjúkdómur vera orðinn tíð-
ari en áður. Fyrir nokkrum ár-
um iþektist hann ekki hér í sveit.
Á þessu sumri hafa f jórar mann-
eskjur gengið undir uppskúrð.
Af þeim afleiðingum dóu í júní-
mánuði tvær Unglingsstúlkur;
önnur þeirra tólf ára gömul, sem
Sigríður hét, dóttir Magnúsar
Halldórssonar; hin var 10 ára
gömul, Ásta að nafni, dóttir Ein-
ars J. Breiðfjörð.
ir út í ófriðinn, með ákveðinni
hugsun, að gjöra skyldu sína;
hinir, sem heima sitja, leggja
frám féð pftir efnum og ástæð-
um. Konumar hér í þessu bygð-
arlagi hafa sýnt dæmafáan dugn-
að í ‘þarfir líknarstarfseminnar,
svo mikinn dugnað, að ensk blöð
hafa lokið lofsorði á þessa deild
hér, sem kallar sig Elmgrow, og
samanstendur af tómum fslend-
ingum; hafa sumir menn unnið
vel og dyggilega fyrir þá starf-|
semi og lagt fyam mikla peninga
í þarfir hennar.
pessir hafa gengið í herinn:
pórður pérðarson, fæddur á
Rauðkollsstöðum í Hnappadals-
sýslu 16. okt. 1897. Foreldrar
hans pórður pórðarson hreppstj.
í Eyjahreppi í sömu sýslu og Pál-
ína Hansdóttir Hjaltalín frá
Jörfa í Flysjuhverfi, Jósepssonar;
frá Valshamri, Jónssonar prests
á Breiðabólsstað á Skógaströnd.
pórður gekk í herinn í febrúar-
mánuði 1917. Hann er stúdent
af ríkisháskólanum í Fargó.
pórður er vel viti borinn, fríður
sýnum og mentur vel.
2. óskar pórðarson, bróðir
pórðar, fæddur á Rauðkollsstöð-
um 2. febr. 1896; gekk í herinn
18. marz 1917. óskar er knár
maður og harðsnúinn og ótrauð-
er hár maður vexti og myndar-
legur, sem hann á kyn til, og
skjótlegur til karlmensku. Vil-
helm er kvæntur ólafíu, dóttur
Gríms bónda pórðarsonar að
Qarðar, sem áður er um getið.
Stúdent er Vilhelm frá Fargo-
skóla. Báðir hinir síðasttöldu
ungu menn vora skipaðir lög-
gæzlumenn á herstöðvunum. En
nú munu þeir vera komnir til or-
ustuvallarins.
7. Níels Jónsson; fæddur á
Akranesi í Borgarfjarðarsýslu
19. apríl 1896. Gekk í herinn 6.
september 1917. F'óreldrar hans
eru Guðbjartur Jónsson, Magn-
ússonar prests, og Guðrún ólafs-
dóttir frá Guðlaugsstöðum í
Hrútafirði. Búa þau hjón hér í
sveit. Er Níels greindur piltur
og vel mannaður er hann, og út-
skrifaður af háskóla í Fargo.
8. Gunnar Einarsson; fæddur
22. júlí 1895, að Garðar í Pem-
bina Co. Gekk í herinn 2. marz
1917. Era foreldrar hans Stefán
S. Einarsson, bóndi hér í bygð,
Stefánssonar, Enarssonar frá
Eiðsstöðum, Skaftasonar frá
Svínavatni í Húnavatnssýslu, og
EMsabet Geirhjartardóttir Krist-
jánssonar. Gunnar er hægur
piltur og prúður, og þrautseigur.
Má sjálfsagt um ihann hið sama
segja og sagt er um porgeir Há-
varðsson, að hann kunni ekki að
hræðast.
9. Stefán K. Björnisson; fædd-
ur að Mountain í N. D. árið 1891.
Foreldrar hans vora Kristján
Björnsson bóndi að Mountain og
Valgerður porsteinsdóttir. Ste-
fán Björnsson er einn meðal
hinna eldri, sem héðan hafa far-
ið, og að Mkindum þeirra mentað-
astur. Stefán er fríður maður
sýnum, gildur vel á velli og karl-
mannlegur, og sem Egill Skalla-
grímsson sköllóttur snemma.
Hefir hann um margra áya skeið
stundað nám við háskólann í
Á sumrinu hafa flutt í burtu ur til framgöngu. Mun þar sá
tvær fjölskyldur héðan úr bygð
inni: Magnús ólafsson, Vopn-
firðingur að ætt, og hans son er
Hallur heitir; fluttu þeir feðgar
maður vera, sem sízt bregður sér
við váveiflega 'hluti sqm að hönd-
um bera.
nam
Fargo.
10. Sigurlaugur Kr. Bensson;
hann er fæddur hér í sveit 20.
marz 1895. Gekk í herinn 1. júlí
1917. Stúdent er hann af bún-
aðarskólanum í Fargo. Voru for-
eldrar hans pórður Benediktsson
frá Dalhúsum í Eiðaþinghá og
María Sveinsdóttir frá Bæjar-
stæði í Seyðiisfirði. Siguriaugur
er ebki hár vexti, en giMur og
karlmannlegur, fjörmaður mikjll
og kappsfullur, sterkur og harð-
snúinn. Hann er einn af þeim
mönnum, sem nær hylli allra
sinna samferðamanna.
11. Sveinn Pétursson; fæddur
í Mjóafirði á íslandi 1880. Hann
gekk í herinn 18. júlí 1918. For-
eldrar hans Hallgrímur Péturson
og Sigurlaug Svéinsdóttir, Snæ-
bjarnarsonar frá Bæjarstæði í
Seyðisfirði. Sveinn Pétursson er
meðalmaður á vöxt, þéttvaxinn
og vel á velli, kappsmaður um alt
og vel að sér. Stundaði hann
verzlun hér um nokkur ár.
12. Jóhann Svansson; fæddur
Húsavík á íslandi árið 1884.
Gekk í herinn 10. jútí 1918. For-
eldrar hans búa hér í bygð, Sig-
urður Sveinsson frá Bæjarstæði
og Margrét Ásmundsdóttir úr
Húsavík í Borgarfirði eystra.
JÓhann Sveinsson er títill maður
vexti, hægur og prúður í fram-
göngu og góðmannlegur.
13. Alexalnder Goodman; fædd-
ur í Mourítainbygðinni 22. febr.
1898. Gekk í herinn 1. ágúst
1918. Búa foreldrar hans hér í
bygð, Guðmundur Helgason Guð-
mar frá Olvaldsstöðum í Mýra-
sýslu og Anna Jónsdóttir, Filipp-
ussonar frá Illugastöðum í Fljót-
um. Eru þau hjón frumherjar j
þessarar sveitar
einn af þeim mönnum, sem ö,Hum
er kær er hann þekkja.
17. Einar Einarsson; fæddur
í Mouse River bygðinni 22. febr.
1897. Uann gekk í herinn 25.
október 1918. Foreldrar hans
era Stefán S. Einársson og Elísa-
bet Geirhjartardóttir. Einar
Einarsson er meðal maður vexti
en gildur, vel vaxinn og íturmann
legur og hinn öraggasti til allra
mannrauna mun hann reynast.
Hann er hægur í framgöngu og
háttprúður. Stúdent er þessi
piltur frá búnaðarskólanum í
Kargo.
18. Jón Freeman er fæddur
við Akra í N. D. 1898. Vora for-
eldrar hans Jón Freeman bóndi
við Akra, Jónssonar frá Köldu-’
kinn í Dalasýslu og Helga ólafs-
dóttir frá Bjarnarstöðum í Hvít-
ársíðu. Jón Freemaú er meðal-
maður vexti, fríður sýnum og vel
mentur og hinn gjörfilegasti.
Pá hafa allir hinir ungu menn
verið taldír upp, sem í herinn
hafa gengið. pegar maður í
anda lítur yfir hópinn, er hann
glæsilegur mjög; og þeim, sem
kunnugastir eru, kemur ekki á ó-
vart, að þessi fríða sveit ávinni
sér frægð, ættingjum sínum og
þjóð sinni sæmd.
Flestum þeösum mönnum 'hef-
ir verið haldin samkoma að skiln-
aði og kvaddir í samkomuhúsi
bygðarinnar, af mestum hluta
sveitarinnar. Á þeim samkom-
um hafa oft verið haldnar snarp-
ar ræður í garð óvinanna. Allar
þær samkomur hafa farið fram í
þeim anda, sem er í fullu sam-
ræmi við hinn forna hugsunar-
hátt forfeðra Vorra undir sömu
kringumstæðum. Er það tal-
andi vóttur þess, hvað íslendings
eðlið forna (hugprýðin) er enn
ríkt með þjóð vorri. Vígamóður
og iherhvöt virtist haldast í hend-
ur hjá hermönnunum og aðstand-
endum. Hér umhverfis er langt
frá að allir hafi farið með jafn-
miklu hugrekki og þessi litla, ís-
lenzka sveit. En nú eftir fregn-
unum að dæma* er útlitið orðið
betra,_ og allir lifa við þá fögru
von að sjá sem flesta af ungu j
drengjunum koma aftur með
sigri og sæmd.
petta er nú farið að verða
nokkuð langt bréf, ritstjóri góð-
ur, og sé eg þann kost vænstan
aðihætta og slá í botninn.
Með beztu k\Teðju.
Sigurður Jónsson.
Ræða
við setningu háskóla íslands
1. okt. 1918.
Eftir Guðmund Hannesson
prófessor.
til Visconsin, til bæjar þess er ! ur á Mountain 3. september 1895.
Dreigner heitir; hafa þeir keypt/j Foreldrar hans eru Freeman
3. Victor Tr. Hannesson, fædd-1 Alexander Goodman er stór mað-
ur vexti og gildur, fríður sýnum
þar ábúðarlönd og una vel hag
sínum. Og nú í haust flutti héð-
an Magnús Halldórsson með fjöl-
skýldu sína. Færði hann búnað
sin naustur í Rauðarárdal. pað
óhapp bar honum að höndum
fimm dögum áður, að íbúðatthús
hans brann til kaldra kola um
miðjan dag; innanhússmunum
varð að mestu eða öllu bjargað.
f ábyrgð var sagt að húsið hefði
verið, og skaðinn iþví minni en
búast mátti við.
Á síðastliðnum jólum kvænt-
ust hér tveir af ungu mönnum
okkar; voru það synir Guðmund-
ar bónda Freemans, Jón og Vil-
helm; gengu þeir að eiga sína
systirina hvor, dætur Gríms
bónda pórðarsonar, sem fyrram
bjó við Garðar í Pembinahéraði,
er á sinni tíð var einn af allra-
skynsömustu og merkustu bænd-
um þeirrar sveitar. Grímur var
bróðir Hjartar hins fræga raf-
magnsfæðings í Cicago, sem all-
ir fslendingar kannast við, og
Pórðar lælcnis í Minnisóta. y— Jón
Freeman reisti bú á síðastliðnu
ári. Hefir hann bygt upp einn
hinn allra fegursta bústað í
þesus bygðarlagi, undir skógar-
belti einu einkar fögra með fram
á þeirri, sem rennur eftur daln-
Hannesson, bóndi hér í sveit, og
Helga Jónhannsdóttir, Magnús-
sonar, ættuð úr Tungusveit í
Skagafirði. Gekk hann í herinn
9. apríl 1917. Victor er fjör-
maður mikill knár og fylginn
sér.
4. Valdimar Fr. Hannesson,
bnjðir nr. 3; fæddur að Mountain
19. apríl 1897. Gekk í herinn
10. marz 1918. Valdimar er
knár og fylginn sér sem bróðir
hans.
5. Jón M. Jónsson; fæddur að
Mouseriver 18. des. 1893. Eru for
eldrar hans Stefán Jónsson,
Magnússonar, fyrrum prests á
íslandi, og Hóhnfríðar Hansdótt-
ur frá Jörfa. Hann gekk í her-
inn 3. september 1917. Jón er
hár maður vexti, fríður sýnum og
hinn snyrtimannlegasti. Stúdent
er hann frá ríkisháskólanum í
Fargo.
6. Vilhelm Freeman; faéddur
Mouse River 24. október 1895.
Foreldrar hans era Guðmundur
Freeman Jónsson frá Köldukinn
íDölum, Jónssonar frá porsteins-
stöðum, Jónssonar frá Höskuld-
arstöðum, og Guðbjörg Helga-
dóttir, Guðmundssonar frá 01-
valdsstöðum í Mýrasýslu, er
fyrstur sinna systlkina settist að
og karlmannlegur og hinn glæsi-
legasti í sjón, kjarkmaður mikill
og mun hann líkastur til þess
vera að láta sér fátt fyrir brjósti
brenna, og á sarna mun honum
standa hvort Gordonshnútur í
liði óvinanna er högginn eða leyst
ur.
14. Ásmundur Sveinsson; fædd-
ur í Mouse River bygðinni árið
1891. Gekk í herinn 20. ágúst
1918. Era foreldrar hans Sig-
urður Sveinsson og Margrét Ás-
muttdsdóttir, sem áður var getið.
Ásmundur Sveinsson er myndar-
legur sýnum, knár og kappsfull-
ur þegar til mannrauna kemur;
mun hann sanna þjóðemi sitt og
fyllilega sýna að hann er íslend-
ingur.
14. Et. Apúkramber; fæddur
við Mouse River 24. des. 1896.
Gekk í herinn í jan. 1918. pþssi
piltur er, eins og föðurnafnið
bendir til, ekki íslendingur nema
í aðra ættina; er móðir hans
Ingibjörg Helgadóttir, Guð-
nlundssonar frá ölvaldsiholti í
Mýrasýslu. Et er þéttur á velli.
ifjörmaður og hinn öraggasti í
'öHu.
16. ósikar Bensson; fæddur
hér í sveit árið 1898. Foreldr-
ar- hans eru pórður- Benedikts-
son og María Sveinsdóttir, áður
Háttvirtu stéttarbræður. Kæra
stúdentar!
* Mér he|ir verið falið að setja
háskóla vom í 'þetta sinn í for-
föllum Einars Amórs'sonar há-
skólarektors.
pess er þá fyrst að minnast,
að á þessu ári á háskólinn á bak
að sjá einum kennara, próf. B. M.
Olsen, þektum vísindamanni í
sinni grein, fjölfróðum í mörgum
öðrum og ágætum kennara. í
hans sæti er nú kominn próf. Sig.
Nordal. Jafnframt því að bjóða
hann velkominn, óska eg honum
allra heilla, frægðar og vísinda-
frama. pað er ábyrgðarmikið
starf, sem hann tekur að sér, því
í engu verður ætlast til jafn mik-
ils af háskóla vorum og í íslenzk-
um fræðum. par þurfum vér að
minsta kosti að skara fram úr
öðrum, ef vel á að vera.
Eg sný þá máli mínu ti'l ykkar,
| ungu stúdentar. Verið þið allir
hjartanlega velkomnir úr sumar-
leyfinu, og verði hún ykkur bæði
til gagns og gleði, háskólavistin,
hlýr og bj artur sólskinsblettur á
æfinni, þrátt fyrir allan skort og
erfiðleika. Sumarleyfinu munu
flestir hafa varið til nytsamlegr-
ar vinnu, tekið þátt í hverskonar
atvinnurekstri, bæði á sjó og
landi. Betur verður ekki sumr-
inu varið, og meðan þessi góði
siður helzt, er lítil hætta á því,
að heilbrigði og líkamsþroski
námsmanna haldist ekki í góðu
horfi. Útivinnan hefir flesta
kosti íþróttanna, en gefur auk
þess mikið í aðra ihönd. Hún er
góður styrkur fyrir fátæka stú-
denta, hún heldur við lifandi
sambandi á námsáranum við alt
þjóðlíf vort, veitir sjálfkrafa
mikla, þekkingu um atvinnuvegi
vora, og alþýðulíf, sem síðar
kemur eflaust að góðu liði. pó
ykkur stæði til boða að lifa ríkis-
mannalífi að sumrinu, lifa í á-
hyggjulausu iðjuleysi og skemt-
unum, ,þá væri það stóram óholl-
ara bæði ykkur sjálfum, og þjóð-
inni beinlínis hættuleg afturför
frá því sem nú er. Vetrartíminn
er meira ségja of langur til þess
að taka sér algjörlega líkamlega
hvíid. pað er holt og hressandi
að taka af sér bókarykið úti í
góðu vetrarveðri, miklu hollara
en að sitja fir spilum og tóbaks-
pípum, en auk þess er hér nóg
tækifæri til þess að taka þátt í
ýmislegum fþróttum. öllum er
það mikils virði að hafa hraustan
og stæltan líkama, en læknum er
það bókstaflega nauðsynlegt, því
oft verða þeir að leggja út í fuh-
komnar mannraunir, sem þeir
einir eru vel vaxnir, sem eru
djarfir og hraustir íþróttamenn.
Hér í Háskólanum komast
stúdentar í frjálslegan félags-
skap kennara og skólabræðra
sinna. Bilið milli kennara og
stúdenta er ekki stærra en það,
að stíga má yfir það í einu skrefi.
Eg efast ekki um, að hver stú-
dent sé æfinlega velkominn til
kennara síns, hvort heldur sem
er til að fá einhverja fræðslu, eða
blátt áfram til þess að spjalla við
hann um einhver af sínum áhuga
málum. Við kennarana geta
stúdentar talað jafn frjálslega
og skólábræður sína, og það leyfi
ættu þeir að nota, djarfmannlega
og ihispurslaust. Eftirlit með
stúdentum frá kennara hálfu er
tæpast teljandi. peim er ætlað
að ráða sér sjálfum, en jafnframt
legst á þá sá mikli vandi, að stýra
þá sinni fleytu vel, jafnvel þó
eitthvað verði að veðri. Annars
er tími stúdenta ótrúlega bund-
inn, þrátt fyrir frelsið, að minsta
kosti í læknadeildinni, námið svo
erfitt, að þeir einir geta gjört sér
von um að lj úka því á réttum
tíma, sem stunda það af kappi og
sækja samvizkusamlega kenslu-
stundir.
pað er í mínum augum mikið
mein hve ákaflega stúdentar era
bundnir hver við sína námsgrein.
hve frístundir þeirra eru af
skornum skamti. pví fer nefni-
lega fjarri, að stúdentar gangi
aðeins á Háskóla til þess að læra
hver sína námsgrein. Hana eiga
þeir að vísu að læra vel, en hitt er
ekki tninna virði, að þeir eiga
jafnframt að búa sig eftir mætti
undir það að verða leiðtogar þess-
arar þjóðar. Lærðir menn hafa
stýrt henni fram á þenna dag og
lærðir, eða veil mentaðir menn
munu allir helztu’leiðtogar henn-
ar verða, hversu svo sem öll
stjórnmál veltast. Jafnvel stjórn-
leysisstefnan, sem nú gengur yf-
ir Rússland, er rannin frá há-
mentuðum mönnum og foringi
hennar lærður maður og rithöf-
undur. Annars hefði hún aldrei
orðið að slfku voðavaldi.
Undan því verður ekki flúið, að
fleiri yðar eða færri verða leiðtog
ar þjóðarinnar, sumir heima í
héruðum, sumir á þingi. pað er
bezt að gjöra sér þetta Ijóst í
byrjun, iþví þetta starf þarf góð-
an undirbúning, ef það á að far-
ast vel úr hendi. Grundvöllur-
inn þarf beinlínis að leggjast á
háskólaárunum. pað er mikið til
í því, sem amerískur rithöfundur
(Edm. J James) segir: “pað
gagn, sem þjóðféag nýtur af Há-»
skóla, fer beinlínis eftir því hve
margir góðir foringjar koma frá
honum.”
En hvernig geta stúdentar bú-
ið sig undir slíka köllun ?
Eg hygg að þessari spurningu
verði aldrei svarað svo fullgilt sé.
Meðfæddir hæfileikar ráða svo
miklu og eru svo breytilegir. Ef
til vill liggur næst að svara:
Fyrst er að læra að stjóma sjálf-
um sér, að ná sem beztu taum-
haldi á öllum sínum andlegu
kröftum og geta beitt þeim ó-
skiftum að ákveðnu markmiði.
í jarklítill maður og stefnureikull
verður aldrei til foringja fallinn. i
Hitt atriðið er víðtaék og víðsýn
þekking, og ihennar er sjaldnast
að leita í blöðum, fundaræðum
eða þingtíðindum. Almenna
grundvallarins er að leita í út-
lendum ritum, ritum þjóðanna,
sem eru lengra á veg komnar en
vér, en upplýsinga um islenzk
efni í hagskýrslum, tímaitrum
og fræðibókum, sem f jalla um at-
vinnuvegi vora og þjóðmál. < >11-
um ykkur erþað ljóst, að á þess-
um málskrafs og kosjiingadögum
semur sér vel að vera vel máli
farinn. Félag stúdenta. almenn-
ir fundir og ekki sízt að hlusta á
beztu ræðumenn vora, hvort held
ur er í prédikunarstól eða þing-
sæti, ætti að gefa nokkra æfingu
eða leiðbeiningu í þessu efni.
pá er að lokum ekki minst um
vert, að hafa opinn hug og hjarta
bæði fyrir Mfi og högum þjóðar
vorrar og öllum þeim helztu
stefnum og framfarviðleitni
vorrar aldar. Vér höfum .fengið
það hlutskifti, að lifa á sannri
undraöld og stórtíðinda. Á til-
tölulega fáum áratugum hafa
náttúruvísindin gjörbreytt útliti
heimsins og tífi þjóðanna, fengið
mannkyninu máttugri öfl í hend-
ur en nokkurn dreymdi um á liðn-
um öldum, gert heiminn og þjóð-
félögin að nokkurskonar voldugri
vél. Fádæma auður hefir safn-
ast, þó gengið hafi 'hann til þurð-
ar síðustu árin, svo legið hefir
við að alt jafnvægi þjóðfélag-
anna truflaðist. Gróðafýkn og
mammonisdýrkun hefir gagnsýrt
heilar þjóðir. öll þjóðfélags-
byggirigin hefir verið eins og
reyr af vindi skekinn og brakað
í hverjum rafti í þessu gjöm-
COPENHAGEN
Munntóbak
Búið tilúr hin-
um beztu, elstu,
safa- mestu tó-
baks blöðum, er
ábyrgst að vera
algjörlega hreint
Hjá öllum tóbakssölum
Þetta er tóbaks-askjan sem
hefir að innihalda heimsin
bezta munntébek
ingaveðri byltinga og breytinga.
En hjálpar hafa flestir leitað
með atkvæðateningunum, sem
gjöra alla jafna, hversu ójafnir
sem þeir eru. Menn hafa haldið
það heilJavænlegast, að reyna að
gjörá ástandið líkt og skáldið
porst. Gíslason lýsir því í kvæð-
inu “Hombjarg”:
“Yfir ræður enginn — fjöld-
inn allúr fer með völdin.”
Svo bætist ofan á alt þetta al--
heimsstyrjöld, hörmuleg fæðing-
arhríð nýrrar aldar, sem enginn
veit hvað ber í skauti sínu, ef til
vill frið og framför, ef til vill
stríð og styrjaldir.
Og jafnvel trúarbrögðin leika
á reiðiskjálfi. Eftir háreista öldu
Vantrúar og vísindahyggj u fer
nú hin fáránlegasta trú á allskon-
ar dularmögn og hulduheima
víðsvegar um Kind, sem vel má
vera að leiði til mikilla byltinga
í trúarlífi þjóðanna, að minsta
kosti í allri sálarfræði..
pað ber margt fyrir augu ykk-
ar ungu mentamannanna. pið
þurfið að gjöra ykkur grein fyrir
mörgu, ef þið eigið að verða góð-
ir leiðtogar fyrir þjóðina, brjóta
marga harða hnútu til mergjar.
En alveg tómhentir byrjið þið
ekki. pið takið við fullvalda kon-
ungsríki, þó lítið sé, íslenzkum
fána, hvar sem ykkar skip sigla,
batnandi efnahaga alþýðu og
meiir framförum innan lands en
verið hefir nokkru sinni fyr. pið
takið við háskóla, er hefir úr ólíkt
meiru fé að spila en verið hefir
til þessa. Samningar vorir við
Dani færa honum mikið fé, sem
ætti fljótlega að margfaldast.
Svo takið þið vonandi við betra
samlyndi og meiri samúð með
sambandsþjóð vprri, Dönum, en
áður hefir verið. peir hafa reynst
oss vel á þessum skálmaldardög-
um, þegar aðrir hafa virt lög og
rétt einkis.
Allur iþess arfur ætti að reyn-
ast ykkur drjúgur, ef þið haldið
vel á.
pað er þó hægra að styðja en
með þreki og trúmensku að ein-
hverju góðu og göfugu verki,
einhverju, sem miðar til þess að
“hefja land og lýð”.
pað hafa aðeins verið gefnar
tvær heilbrigðar lífsreglur. öll-
um hentar ekki hin sama.
Önnur er þessi: Labora! —
Starfa þú!
Hin: Ora et Labora! — Biðj-
ið og iðjið!
(Lögrétta.)
reisa.
Tíminn líður fyr en nokkum
varir. Háskólaárin líða fljól^og
þér dreifist, hver í sinn verka-
hring víðsvegar um land; sumir
leita ef til vill til útlanda, sér-
staklega læknar. En hvar sem
kandídat frá Háskóla voram sezt
að, á bletturinn að véra fljótlega
auðþektur á betri mentun, meiri
velmegun og auðugra andlegu
lífi. pað er ekki að metast um
það, hvort bletturinn er stór eða
lítill, hvort hann er lítið presta-
kall á útkjálka, læknishérað eða
annað stærra: Ef allir láta gott
i af sér leiða, hiver í sínum verka-
jhring, og leggja alla alúð við
starf sitt, blómgast alt vort þjóð-
tíf. En heilbrigð og þrekmikil
frámför, bæði í andlegum og lík-
amlegum efnum, á að fylgja
hverju ykkar spori.
pið, sem setjist að í útlöndum,
megið ekki láta ykkur nægja, að
standa jafnfætis útlendingum.
Nei, þið eigið að leggja alt kapp
á að skara fram úr þeim og reyn-
ast tþeirri þjóð sem bezt, sem þið
starfið hjá. Spor fslendinga
eiga einnig að vera auðþekt þar
á auðugum hugsjónum og hvers
konar framför. Á þantt hátt efl-
ið þið álit ykkar sjálfra og víð-
frægið þjóð vora og^kóla.
Vestan frá Strönd.
pann 8. nóv. vora gefin saman
hjónaband í Blaine, Wash., af
síra Sig. ólafssyni, þau Mr. F. S.
Baker frá Ferndale, Wash., og
Miss Edith Evonson frá Quatsino
B. C.
Mr. Baker er sonur þeirra
hjóna Magnúsar S. Baker og
Steinunnar konu hans, er lengi
hafa búið í grend við Femdale,
Wash.
pann 29. oke. síðastliðinn lézt
í Blaine, Wash., Jón ólafsson, 78
ára að aldri.
Jón 'heitinn var fæddur í marz
1840, á Mýrum í Álftaveri í
V estur-Skaf tafellssýslu.
Bam að aldri fluttist hann
undir Eyjafjöll í Rangárvalla-
Sýslu og ólst þar upp, en bjó síð-
ar í Berjanesi undir Eyjafjöll-
um.
Hann kvæntist Geirdísi ólafs-
dóttur, ættaðri undan Vestur-
Eyjafjöllum. Bjuggu þau lengi
að Berjanesi, en fluttu síðar til
Vestmannaeyja og bjuggu þar.
Til Canada fluttu þau árið
1902, með Skúla syni sínum.
Settust þau fyrst að í Selkirk,
Man., en fluttu ásamt Skúla til
Vancouver og síðar til Blaine.
Geirdís kana Jóns dó í apríl
1917.
pessi af bömum þeirra hjóna
eru á lífi:
Skúli, búsettur í Blaine. Gísli,
fyr í Winnipeg, nú á Smith Is-
land B. C. ólína, gift kona í
Peace River héraði, Alta(?).
Krístín kona porkels Jónssonar,
búsett í Blaine. Jón Kristinn
sonur þeirra hjóna og ólöf dóttir,
eru til heimilis á íslandi.
Jón heitinn kom aldraður til
Ameríku. Beztu dagar hans
voru á íslandi. Var hann hraust-
ur og duglegur maður og prýðis
vel greindur.
Lífið er ekki til þess að elta
aura, þó skylt sé að vera efna
pann 5. þ. m. andaðist í Ever-
ett, Wash., Mrs. Sólrún Margrét
Plummer, dóttir hjónanna Magn-
úsar pórarinssonar og Elísabetar
onu hans, er lengi hafa verið bú-
sett í Blaine, en fluttu til Ever-
ett síðastliðið sumar.i
Mrs. Plummer misti mann
sinn, W. J. Plummer, fyrir
nokkru síðan. Var hún eftir það
oftast hjá foreldrum sinum. Hún
barðist lengi við bilaða heilsu.
Hún var góð kona og vel gefin.
Ein dóttir, sem er til heimilis
hjá^ afa sinum og ömmu, syrgir
hana, ásamt foreldranum, og
mörgum systkinum og vinum.
Mrs. Plummer dó af afleiðing-
lega sjálfstæður, og heldur ekkijum sþönsku veikinnar.
til þess að leggjast í iðjuleysi og i Hún var jörðuð í grafreit
öskustó. pað er of dýrmætt til Blaine bæjar þann 9. þ. m.
þess. Lífið er til þess að starfa í Sig. ólafsson.
HEIM AFTUR FYRIR JOLIN
Það cr ávalt mikilvaegt atriði að koma heérn, bó eru jólin, kaerasti
heimsóknartími til fólks.- Vinir yðar austur frá bíða yðar meðóþreyju
þ^ir hafa vonast eftir yður alt árið og eftir því sem lengra Iíður, eftir
því verður tilhlökkuni’h imrilegri.
Takið yður hvíldardaga og njótið lífsins.
þú nýtur ferðarínnar ekki fulkomlega, nema þú kaupir farseðil hjá
Canadian Northern Railway
Fegurðin meðfram vötnunum lokkar að sér hug ferða-
mannsms
Góðar viðsöður;
Ágætur fararbeini
Fegursta leiðin
Fyrirjaks aðbún-
aður. Vagna allir
raflýstir.
Athugunarvagnar, frá
Winnipeg til Toronto
Bestu svefnvagnar.
BAILWAV
Upplýsingar um niðursett fargjöld hjá umboðsmönnum.
R. CREELMAN, Gon. Punn. Ageut -- Wínnipeé