Lögberg - 09.01.1919, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. JANÚAR 1919
Árbók ófriðarins mikla Jg
1914:
Júní:
28. Myrtur ríkiserfingi Austur :
ríkis og Ungverjalands,
Francis Ferdinand, í bæn-
um Serajevo.
Júlí:
5.
23.
28.
31.
Herráðsfundur Vilihjálms
keisara í Potsdajm.
Austurríkismenn senda
Serbum kosti, sem ómögu-
legt er að ganga að.
Austurríki segir Serbum
stríð á hendur.
Óiriðahhorfur í pýzkalandi.
19.
21.
25.
Kovno fellur.
Rússar vinna sigur í Riga-
flóanum. y
Novo-Georgieosk fellur.
Flutningur baðmullar lýst-
ur óleyfilegur.
Brest.Litovsk fellur.
Ágúst:
Rússum
pjóðverj ar segj a
stríð á hendur.
pjóðverjar heimta af Belgíu
að mega flytja her manns
yfir landið.
pjóðverjar segja Frökkum
stríð á hendur.
Bretar segja pjóðverjum
stríð á hendur.
Frakkar áíkveða að fara í
stríð gegn Austurríkis-
mönnum.
Bretar segja Austurríkis-
mönnum stríð á hendur.
Virkjaborgin Liege fellur í
hendur pjóðverjum.
Bretar skjóta Jiði á land í
Frakklandi.
pjóðverjar ná haldi á Bruss
ei.
Japanar segja pjóðverjum
stríð á hendur.
Borgin Namur fellur fyrir
pjóðverj um.
Bærinn Louvain fellur.
Orustan við Tannenberg.
Bretar vinna sigur 1 Bight.
Lið frá Nýja Sjálandi tekur
Samoa.
September:
2.
3.
4.
10.
10.
15.
16.
20.
23.
24.
25.
26.
28.
29.
2.
3.
5.
Rússar taka Lemberg.
Franska stjórnin flytur til
Bordeaux.
Undanhaldið frá Mons hætt
ír.
til
6. Fyrsta Mameorustan hefst.
15. Fyrsti bardaginn við Aisne
byrjar.
16. R/ússar hröklast út úr
Prússlandi.
23. Bretar hefja hina fyrstu
loftárás á pýzkaland.
Október:
9. Antwerp fellur.
13. Stjóm Belgíu flytur
Havre.
20.. Orusta hefst við Ypres.
Nóvember:
1. Sjóomsta við Caronel.
5. Bretar segja Tyrkjum stríð
á ihendur.
7. Tsingtau fellur.
10. Skipinu Emden sökt.
21. Bretar taka Basra.
Desember:
2. Austurríkismenn ná Bel-
grad á sitt vald.
8. Sjóorusta við Falklands.
14. Serbar reka Austurríkis-
menn frá Belgrad.
16. pjóðverjar skjóta á Hartle-
pool.
16. Hússeini Kamel tekur við
soldánstign.
24.. Fyrsta loftflotaárás pjóð-
verja á England.
1915.
Janúar:
24. Sjóorusta við Dogger Bank.
Febrúar:
2. Tyrkir bíða ósigur við Suez
skurðinn.
18. pjóðverjar reyna í fyrsta
sinn að hamla siglingflfm til
Englands, með kafbátum.
25. Floti samherja ræðst inn í
Hellusund.
Marz:
10. Bretar taka Neuve Capelle.
22. Rússar taka Przemysl.
Apríl
22.
?5.
Maí:
3.
6.
7.
8.
11.
12.
16.
23.
25.
Júní:
önnur orustan við Ypres
Samherjar skjóta liði á
land við GaHipoli.
Orusta við Dunajec.
Bardagi við Kithia, Galli-
poli.
Lusitaniu sökt.
pjóðverjar taika Libau.
pjóðverjar bíða ósigur við
Ypres.
General Botha tekur Wind-
huk.
Rússar hörfa undan til San.
ítalir segja Austurríkis-
mönnum stríð á hendur.
Samsteypustjóm mynduð
á Englandi.
2. ítalir komast yfir Isonzo-
fljótið.
3. Rússar gefa upp Przemysl.
22. Miðveldaherinn nær Lem-
berg aftur á vald sitt.
Júlí:
2. pýzka herskipinu Pommiem
sökt.
9. pjóðverjar tapa löndum sin
um í Suður-Afríku.
24. Nasiriyeh, bær við Euphr-
ates, tekinn af Bretum.
Ágúst:
4. Warsaw feöur.
5. Ivangorod fellur.
6. Bretar skjótaliði á land við
Suvle sundið.
8. General Birdwood vinnur
sigur við Anzac.
15. Almenn skrásetning á Eng-
landi.
September:
1. Gen. Alexieff skipaður yf-
irhershöfðingi Rússa.
5. Rússakeisari tekst á hend-
ur yfirstjóm bersins.
7. Rússar vinna mikinn sigur
við Tamopol.
18. Borgin Vilna fellur.
21. Undanhald Rússa endar.
25. Omstur við Loos og Cham-
pagne.
28. Bretar vinna stórsigur við
Kut-el-Amara.
Október:
4. Rússar senda úrslitakosti
til Búlgaríu.
5. Samherjar lenda liði í Sal-
iki.
6. pjóðverjar og Austurríkis-
menn vaða inn í Serbíu.
9. Belgrad fellur í hendur
Pjóðverja.
14. ófriðast með Búlgurum og
Serbum.
17. Samherjar senda Grikkjum
aðvömn.
22. Búlgarar vinna Uskub.
28. M. Briand skipaður yfir-
ráðgjafi Frakka.
Nóvember:
5. Borgin Nish fellur.
22. Orustan við Ctesiphon.
29. Brftar draga her sinn burt
frá Ctesiphon.
Desember:
2. Borgin Monastir fellur.
3. Gen. Townshend kemur
tneð lið sitt til Kút.
■ 9. Bandamenn hörfa undan í
Macedoniu.
13. Saloniki víggirt á ný.
15. Sir Douglas Haig skipaður
foringi yfir öllum her Breta
á Fraklandi. N
19. Bandamenn hverfa í brott
með lið sitt af Gallipoli.'
25. Tyrkir bíða ósigur við Kut.
1916.
Janúar:
8. Alt lið bandamanna komið
•burt úr Gallipoli.
13. Cettigne fellur.
Febrúar:
9. Gemeral Smuts skipaður yf-
irforingi alls brezka hers-
ins í Austur-Afríku.
16. Rússar ná Erzeram.
21. . Orastan við Verdun- hefst.
24. pjóðverjar vinna Dounau-
mont-virkið.
Marz: \
16. Aðmírál'l von Tirpitz neydd
ur til að segja af sér.
Apríl:
9.
17.
24.
29.
Maí:
24.
31.
Júní:
4.
pjóðverjar hefja nýtt á-
hlaup við Verdun.
Rússar vinna Trepizond.
Uppreist á frlandi.
Kut-el-Amara fellur.
Herskylduframvarp
sampykt.
Orustan við Jótland.
Breta
14.
21.
Júlí:
1.
25.
Gen. Brasiloff byrjar nýja
atsókn.
Lávarður Kitchener drukn-
ar ásamt föraneyti sínu.
Samherjar halda fjármála-
stefnu í París.
Mecca tekin.
Orustan við Somme byrjar.
Rússar ná á vald sitt borg-
inni Erzimgen.
Ágúst:
6.
ftalir hef ja áhlaup við Is-
onzo.
10. Rússar koma til Stanislau.
27.' Rúmenía fer í stríðið á hlið
Samherja.
29. Hindenburg skipaður æðsti
foringi alls pýzka hersins.
September:
3. Zeppelin eyðilagður við
Cuffley.
26. Bretar taka Thiepval og
Combles.
Október:
10. Samiherjar senda Grikkjum
úrslitakosti.
Nóvember:
1.
13.
18.
29.
ftalir vinna sigur við Carso
Bretar vinna sigur við
Ancre.
Serbar og Frakkar taka
Monastir.
Sir D. Beatty skipaður yf-
ir-flotaforingi Breta.
Desember:
1. Uppþot í Aþenuborg gegn
samherjum.
5. Herbert Asquith yfirráð-
gjafi Breta, fer frá völdum.
6. pjóðverjar halda innreið
sína í Bucharest.
7. Lloyd George skipaður yf-
irráðgjafi Breta.
12. Friðarskilmálar pjóðverja
hinir fyrstu.
15. Frakkar vinna stórsigur
við Verdun.
20. Wilsón forseti sendir út sitt
fyrsta friðarskjal.
1917.
Janúar:
1. Tyrkir fordæma samning-
inn við pýzkaland.
Febrúar:
1. pjóðverjar gefa út yfirlýs-
ingu um ótakmarkaðann
kafbátahernað.
3. Bándaríkin slíta fulltrúa-
y
sambandi við pýzkaland.
6. Bretar taka Grandcourt.
24. Bretar vinna Kut-el-Amara
Marz:
11. Bretar ná Bagdað á vald
sitt.
12. Stjómarbylting í Rússlandi
15. Rússakeisari hröklast af
valdastóli.
18. Bretar taka Peronne.
21. Stofnað konunglegt stríðs-
ráðuneyti á Englandi.
Apríl:
6. Bandaríkin segja pjóðverj-
um stríð á hendur.
9. Orastan hefst við Vimy
Ridge.
Maí:
4. Frakkar taka Craonne.
14. ítalir hef ja nýja sókn gegn
Austurríkismönnum. *
15. Gen. Petain fengin í hend-
ur ótakmörkuð yfirstjórn
ítalska hersins.
Júní:
7. Bretar ná á vald sitt Mess-
ines-hæðunum.
12. Constantin Grikkjakonung-
ur fer frá völdum.
26. Fyrstu liðsveitir frá Banda
ríkjunum koma til Frakk-
lands.
27. Gefin út opinber skýrsla
um Mesopotamíu-leiðang-
urinn.
29. pen. Allenby skipaður yfir-
hershöfðingi á Egyptalandi
Júlí:
Rússar hefja síðasta á-
hlaupið.
14. Bebhman-Hollweg lætur af
stjóm í pýzkalandi.
17. Konungsættim brezka tekur
“Windsor” upp í titil sinn.
19. , pýzki ríkisdagurinn sam-
Iþykkir friðarákvörðun.
24. Rússar stórtapa í Galicíu.
31. Sam'herjar hefja harða at-
sókn við Ypres.
Ágúst:
29. Wilson forseti svarar erindi
páfa.
September:
4. pjóðverjar taka borgina
Riga.
15. Rússar lýsa því yfir, að
þjóð þeira skuli framvegis
vera lýðveldi.
28. Sigur Breta við Ramadieh.
Október:
9. Samiherjar hefja nýja árás
í Flandem.
29. ítailir bíða ósigur við Cap-
aretto.
29. Udine fellur.
30. Miohaelis, ríkiskanzlari
pjóðverja leggur niður völd.
31. Bretar taka Beersheba.
Nóvember:
1. pjóðverjar leggja á flótta
við CHemis des Dames.
4. Bretar senda lið til ftalíu.
6. Bretar táka Passchendaele-
hæðimar.
7. Bretar vinna borgina Gaza.
8. Bolshevikingar taka við
stjómartaumunum í Rúss-
landi.
9. ftalir taka sér stöðu við
Piave-fljótið.
17. Bretar korna til Jaffa.
18 . Gen. Maude deyr í Meso-
potamíu.
30. Bretar vinna mikinn sigur
við Cambrai.
30. pjóðverjar flýja frá Cam-
brai í hinni mestu óreiðu.
Desember:
6. Vopnahlé milli Rússa og
pjóðverja.
§. Bretar taka Jerúsalem.
22. Friðartilraunir milli Rússa
og pjóðverja hef jast í borg
inni Brest.
26. Sir R. Wemyss skipaður
flotamálaforingi Breta.
1918.
Janúar:
5. Lloyd George flytur ræðu
um -stríðshugsjónir Breta
og bandaananna þeirra.
20. Herskipi pjóðverja Bres-
lau sökt, og Goeben skemt
til muna.
Febrúar:
1. pjóðverjar viðurkenna sjálf
stjóm Ukrajne.
9. Fyrsti Brest-sdmningurinn
undirskrifaður.
16. Gen. Wilson skipaður Chief
of Staff.
18. pjóðverjar ráðast inn á
Rússland.
21. Bretar taka borgina Jer-
icho.
24. Tyrkir ná Trepizond á vald
sitt á ný.
25. pjóðverjar koma til Reval.
Marz:
3. Annar friðarsamningur
undirskrífaður í Brest.
7. pjóðverjar semja fríð við
Finna.
11. Tyrkir vinna Erzeram af
Bandamönnum.
13. pjóðverjar koma til Odessa
14. Brest-friðarsamningamir
samþyktir í Moskow.
21. pjóðverjar hefja atlögu á
vestur-vígstöðvunum.
24. Bæimir Bapaume og Per-
onne falla.
Apríl:
5. Bandamenn skjóta liði á
land í Wladivostock.
9. Viðauki við herskyldulögin
borinn fram í brezjía þing-
inu.
11. Sambandsherinn verður að
------------------^------------
gefa upp Armentieres.
13. Tyrkir taka Batum.
14. Gen. Foch kjörinn fullvald-
ur yfirhershöfðingi yfir
öllu liði samherja í Frakk-
landi og Belgíu.
18. Milner lávarður útnefndur
hermálaritari á Englandi.
22. Gjörð árás af sjó á Zee-
brugge og Ostend.
26. pjóðverjar tapa Kemmel-
hæðunum.
27. Tyrkir taka borgina Kars.
30. pjóðverjar taka Viborg.
Maí:
1. pjóðverjar koma til Seb-
astopol.
9. Annað áhlaup á Ostend.
27.. pjóðverjar hefja nýja at-
sókn.
29. Sambandsmenn tapa Sois-
sons en halda Rheirns.
31. pjóðverjar komast til Mar-
ne.
Júní:
1. Áhlaup pjóðverja í áttina
til Parísar stöðvað að fullu.
9. pjóðverjar gjöra enn eina
atrennu til þess að brjóta
vamargarð sambanda-
manna.
15. Austurríkismenn hefja á-
rás á ítalau.
23. Austurríkismenn bíða feiki
legan ósigur.
Júlí:
2. Ein miljón Bandaríkjamenn
komnir til Frakklands.
15. pjóðverjar gjöra þriðju at-
rennuna; önnur Marne-or-
ustan hefst.
18. Gen. Fooh hefur gagnsókn
á allri heriínunni.
20. ípjóðverjar komast yfir
Marae.
: Ágúst:
! 2. Bandamenn taika Soissons.
1 8. Bretar hefja gagnsókn við
Amiens.
129. Randamenn vinna aftur
Bapaume og Noyon.
; September:
1. Peronne endurunnin.
2. Drpcourt—Quent-línan.rof-
in.
12. Bandaríkjamenn ráðast á
St. Mihiel.
15. Austurríkismenn sækja um
frið.
17. Ný sókn í Macedoniu.
19. Bretar vinna stór sigur í
Palestínu.
25. Búlgarar sækja um vopna-
hlé.
27. Hindeniburg vamarlínan
rofin.
29. Búlgaria gefst upp.
30. Damascus feMur.
Október.
1.
9.
10.
13.
14.
}5.
17.
20.
25.
26.
27.
28.
Bandamenn vinna St. Qu-
entin aítur.
Bandamenn ná Cambrai.
Bretar taka LaCateu.
Frakkar taka Laon.
Bretar koma til Irkutsk.
Bretar taka Homs.
Samherjar taka Ostend,
Lille og Dounai.
pýzka hemum sópað burt
af ströndum Belgíu.
Ludendorff segir af sér.
Aleppo feHur í hendur sam-
'herja.
Austurríki sækir enn um
frið.
ítalir koma liði miklu yfir
Piave.
29. Serbar komast til Danube.
30. Tyrkjum veitt vopnahlé.
Nóvember:
1. Ráðstefna sambandsmanna
hefst í Versölum.
2. Bretar ná Valenciennes.
3. Austurríki gefst upp. —
Uppþot í Kiel.
4. Samkomulag á meðal full-
trúa sambandsmanna í
Versölum um vopnahlé.
5. Marshall Foch gefið full-
veldi til þess að semja um
vopnahlé við pjóðverja. —
Wilson sendir síðasta svar
sitt til pýzkalands.
6. Bandaríkjaherinn tekur
Sedan.
7. Bavaria auglýst lýðveldi.
9. Foch tekur á móti vopna-
hlésfuMtrúum pjóðverja.
9. pýzkalandskeisari afsalar
sér keisaratign.
10. pýzkalandskeisari flýr til
Höllands. — Bretar taka
Mons.
11. Gengið að vopnahlésskil-
málunum, og ófriðnum
miMa lýkur.
Er hægt að hæta sálmasönginn
í kirkjunum ?
Flestir, sem einhverntíma hafa
verið organistar eða söngstjórar
i kirkjum á meðal íslendinga,
munu vera á eitt sáttir, að afar
erfitt sé að halda saman söng-
flokkum, og þá ekki sízt að fá þá
til að æfa sálnoalögin svo vel megi
við una, um það era víst skoðanir
(gkki mjög skiftar; en um hitt
hver ástæðan sé, eru víst ekki
allir á einu máli. Flestir vilja
kenna söngstjórunum um, að þeir
séu ekki nógu duglegir eða liprir
o. s. frv.; aðrir kenna um léttúð
og óstöðugleik fólksins. Vel má
vera að eitthvað ofurltið brot af
sannleika sé í öllu þessu, en ekk-
ert af þessu er nálægt því að vera
aðalástæðan. Aðalástæðan er
beint og blátt sú, að sálmalögin
pkkar eru alls ekki sönghæf.
Raddsetningin er þunglamaleg,
stirð og óeðlileg, og verða því af-
ar óaðgengileg fyrir þá, sem til
dæmis hafa heyrt sönginn í
ensku kirkjunum, sem er nú al-
ment viðurkendur að vera sá
bezti og innilegasti, sem heimur-
inn þekkir; og það er beinlínis af
því, að lögin era sniðin eftir al- \
þýðu hæfi. Lögin sjáif á hæfi-
legu sviði, ihvorki of há eða of
lág. Taktfallandinn léttur og
eðlilegur. Sama er að segja um
undirraddimar, — “melódískar”,
sönghæfar — og sem mest er um
vert, innan takmarka raddsviðs
hvers þess manns, sem á annað
borð h'efir nokkra söngrödd, en
það hafa lang flestir að meira eða
minna leyti. ^
Eg býst nú við að orð mín verði
tekin svo, að eg álíti að okkar
sálmalög standi að baki hinum
ensku, en svo er þó alls ekki,
heldur hið gagnstæða. Sálma-
lögisn okkar eru mörg ljómandi
góð, og sum ágæt; en þau era
ekki við alþýðuhæfi, eins og eg
hefi áður tékið fram. Flest era
lögin radd'sett þannig, að “bass-
inn” er svo djúpur, að ihann er að-
eins meðfæri örfárra mahna, og
það jafnvel með hinni mestu
! þvingun.
Millirödd og tenor eru vanaleg-
aist laglausar langlokur, sem
fiestum er um megn að. læra, þó
sífelt séu æfðar ár eftir ár. Af
þessu leiðir eðlilega, að fólkið hef
lir enga ánægju af lögunum, að-
! eins þeir fáu, sem stunda söng-
æfingar að staðaldri, gera það
einungis af skyldurækni og til að
hjálpa áfram (þeim félagsskap,
sem þeir tilheyra, en hafa ekki
hina minstu löngun til að taka
þátt í söngnum. Bassamennirn-
ir vita svo sem vel, iþegar söng-
æfingin byrjar, fá þeir að raula
eitthvað langt fyrir neðan sitt
eðlilega raddsvið, þar sem þeim
er ómögulegt að njóta sín, nema
að mjög litlu leyti. Hið sama má
segja um millirödd og tenór. Nið-
urstaðan verður þá sú, að sálma-
lögin okkar verða að fá mýjan og
betri búning, eða með öðrum orð-
um að raddsetjast upp að nýju,
cg Iþað ekki af néinum, s€m að-
eins þekkir tónfræðisreglur, held-
ur af manni, sem bæði þekkir
tónfræðisreglur og er æfður að
nota þær. Með öðrum orðum,
maður, sem er “kompónistf’ sjálf
ur. pví verkið er ekki eins auð-
velt og margur mundi halda.
Aðeins einn maður kemur mér
í hug, sem verk þetta mundi
leysa svo af hendi, að okkur væri
ekki einungis til ómetanlegs
gagns, heldur og einnig stór
sóma. pað er prófessor Svein-
bjöm Sveinbjömsson. Hann er,
eiins og við öll vitum, íhámentaður
í sönglistinni og þaul-æfður að
raddsetja á öllum svæðum, ogþar
að auki löngu viðurkendur af öll-
um Austur- og Vestur-fslending-
um, sem berandi höfuð og herðar
yfir okkar þjóðflokk, og það með
réttu. Enginn mundi því leyfa
sér að efa verk hans, heldur hið
gagnstæða. ABir mundu hlakka
til þeirrar stundqg, að sjá okkar
indælu melódíur, sem við höfum
öll elskað frá bamdómi, klæddar
í nýjan hátíðaskrúða af lista-
hendi prófessors Sveinbjömsson-
ar.^ pannig löguð bók mundi fá
alveg stórkostlega útbreiðslu.
Hættan yrði því engin hvað fjár-
hagslegu hliðina snertir. Hvert
mannsbam, bæði heima á íslandi
Copenhagen
Vér ábyrgj-
umst það að
vera algjörlega
hreint, og það
bezta tóbak í
heimi.
Ljúffengt og
endingar gott,
af því það er
búið til úr safa
miklu en mildu
tóbakslaufi.
MUNNTOBAK
og hér fyrir vestan, mundi óðai*a
reyna að eignast slíka bók.
Hver mundi sá á meðal vor, er
ekki fagnaði að sjá sáJmalög vor
í skrautklæðum og endurfædd,
eins og til dæmis litla lagið:
“Björt mey og hrein”, sem Svein-
bjömsson bjargaði, að heita má,
undan fótatraðki almennings, og
lyfti því upp í æðra veldi tigiter
og aðdáunar? Hugsum okkur
slíkt. Hann tekur þama eina
litla ihugsun einhvers löngu liðins
alþýðumanns, og býr hana á svip-
stundu út þannig, að ihún getur
verið á “prógrammi” með dætr-
um hinna beztu nútíðarmanna,
og meira að segja, á ekkert á
hættu að verða talin eftirbátur,
þrátt fyrir það þótt Sveinbjöms-
^on leyfði henni að bera greini-
Iégan svip sinnar tíðár. Sama
má segja um sérhvað það, sem
Sveinbjömsson hefir lagt hendur
á. Alt ber Ijósan vott um hans
miklu þekking, smekkvísi og list-
fengi.
Tökum iþví höndum saman,
kæru landar, og reynum að fá
Sveinbjömsson til að leysa þetta
nauðsynjaverk af hendi, það verð
ur að gjörast hvort sem er, hjá
því verður ekki komist, ef á að
halda unga fólkinu í söngflokkum
vorum. Hver veit hvað íengi það
stendur að við eigum völ á öðram
eins manni og þeim, sem eg hefi
bent á. Eitt er alveg víst, að við,
sem nú lifum, fáum aldrei annað
eins tækifæri og þetta; og slepp-
um við 'því fram hjá okkur, er
kirkjusöngur okkar hér fyrir
vestan að minsita kostr, dauða-
dæmdur.
Tökum einníg aðra hlið á þessu.
Á hvern hátt gætum við betur
geyimt minning þessa merka
landa vors, en með því að hafa
nafn hans og verk á ihverju ís-
lenzku heimili og í hverri ís-
lenzkri kirkju ? Með þessu móti
yrði Sveinbjöörnsson alveg ó-
dauðlegur með þjóð'vorri, og það
á Ihann fyllilega skilið. Enginn
skrautsteimn mundi halda minn-
ingu hans jafn lifandi og þetta,
jafnvel hvar sem hann væri sett-
ur.
Takið nú drengilega í þetta
tmál, kæru landar, sem unnið
sálmasöngnum, og stuðlið að því
að lög vor fái ný og fögur klæði,
svo þau geti orðið til sem' mestr-
ar ánægjy og notið sín sem bezt
í kirkj um’ voram.
Gagn og gaman væri að heyra
álit sem flestra í þessu máli.
Reyna mun eg að ljá því mitt lið,
sem bezt eg má, f járhagslega og
öðra vísi.
Enda eg svo línur þessar með
þeirri innilegu ósk, að þessu nauð
synjamáli verði vel tekið.
Jónas Pálsson.
pakkarorð.
Eg undirrituð varð fyrir 'því
eignatjóni síðastliðið haust, að
hús mitt brann; og jók það all-
mikið á hrygðartilefnin í mínum
einstæðingss'kap, horfandi með
kvíða á aðsvífandi vetrarkomu
tímans, — með sérstakar áhyggj
ur og hrygðarhugsanir, tengdar
við mína tvo, einu og ástúðlegu
sonu, sem fyrir ári síðan kvöddu
mig og fóra með herdeildum
,Bandaríkjanna til bardagastöðv-
anjná á Frakklandi.
Af hrærðu hjarta vil eg því
þakka opinberlega því góða fólki
í Mouse River bygð, og víðar, sem
tafarlaust sýndu mér elsku og
mannkærleika í verkinu, bætandi
mér skaðann með almennum og
ríkmannlegum peningasamskot-
um, er eftirrituð nafnaskrá sýn-
ir.
Blðjandi í trú og Jesú nafni,
ihinn algóða Guð að endurgjalda
því fólki öllu af ríkidómi sinnar
náðar og blessunar.
Xöfn gefendanna.
Mr. og Mrs. O. S. Freeman .... 5.00
Mr. og Mrs. G. A. Freeman .... 5.00
Mr. og Mrs. B. Asmundson .... 4.00
Mr. og Mrs. Walter Arnason .... 3.00
Mr. og Mrs. Geo. Freeman.... 6.00
Og börn þeirra Freemans ....... 3.00
Mrs. Helga Goodman ............ 6.00
Miss Carolina Goodman ....... 10.00
Mr. og Mrs. W. Da'vlössýn..- 5.00
Gunnar DavIiSsson ... 0.60
Marteinn DavIÖsson.... .... .... 0.60
Miss Björg Davlösson ........ 0.50
GútSmundur Goodman .......... 1.00
Jönas Goodman...... ....'... 10.00
Miss Marta Goodman ........... 3.00
Sveinbjörn Sveinsson ........ 1.00
J. Thorsteinsson ............ 1.00
Mr. og Mrs. S. Westford ..... 5.00
Mr. og Mrs. G. E. Benedictson 5.00
Ásgrlmur SigurSsson ........ 5.00
Mr< og Mrs. J. Westford..... > 5.00
Miss Aanna Johnson .......... 5.00
I.ynny og Lára Johnson ...... 5.00
Mrs. HólmfríÖur Johnson ..... 5.00
Mr. og Mrs. Geo. Goodman .... 5.00
Mr. og Mrs. Arni Gdbdman ..... 5.00
Börn þeirra.................. 5.00
Mr. og Mrs. G. B. Johnson .. 10 00
Mr. og Mrs. GIsli Johnson... 8.00
Mrs. Marla Benson ........... 5.00
Mr. og Mrs. John Goodman .... 2.00
Mr. Hróifur Árnason ........... 5.00
Mr. og Mrs. B. T. Benson .... 15.00
Mr. John Olafsson ...'. ... 5(1.00
Mr. og Mrs.G.H.Hjaltalín, Wpeg 5 00
Mrs. GuÖrún Jóhannsson, Wpg. 5.00
Mrs.Sigrlöur F. Thomson, Wpeg 2.00
Mr. og Mrs. J. Hanson, Wpeg 5.00
Mr. S. H. Hjaltalín, Mountain 20.00
Upham, N.-Dak.
Pálína H. Thordarson.
Aj
3
NO ‘DUDS’ IN
SILENT FiVES
J_J ANDÍTÆGT og örugt Ijós hvenær
sem þú þarfnast þess. — á enda
eldspítunnar. Þeg;ar Iþað brennur út s&t —’ • -'
skilur það eftir engan ódaun eða glóð, sem orsakað gæti slys.
Það eru engin “duds” í
1
Eddy’s Silent 5 Matches
Vegna öryggis og sparnaðar skaltu ávalt krefjast þessarar tegundar. —
Þú þarft ekki að óttast að sys hljótistaf þessum eldspítum. Þegar þú
slekkur á þeim þá er enginn eldur eftir, sem orsakað gæti tjón. Þær eru
óeitraðar,og slá eigi eld þótt stigið sé ofan ú þær.
Striðsskatturimrá eldspítum meira en tvö-
faldar verð hinna bVztu tegunda, og langt
fram yfir það á hinum lélegri tegundum.
Þú stendur þig ekki við að borga háan
skatt af mjög lélegum eldspítum. , Biðjið
kaupmann yðar um SILENT 5’s, og gætið
þess vandlega að Eddy’s nafnið sé á
kassanum.
Made by the manufacturers of Eddy’s
Famous Indurated Fibreware Washtubs
The E. B. EDDY Cö., Limited
HULL, Cana^la
K 2
\,