Lögberg - 09.01.1919, Side 5

Lögberg - 09.01.1919, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. JANÚAR 1919 5 Um sendibréf, Alþýðufræðsla stúdentafélagsins, Reykjavík 10. febrúar 1918. Háttvirtir tilheyrendur! pað er fyrir tilmseli formanns alþýðufræðslunefndarinnar að eg hefi grafið upp hjá mér gamalt erindi, sem eg flutti á árunum fyrir austan f jall. pað hefir ekki komið fyinr álmenningssjónir, og 'þess vegna hefi eg gjört kost á að flytja það nú aftur, á öðrum stað, að mestu leyti óbreytt, að- eins lítið eitt aukið. pað eru nokkrar sundurlausar hugleiðingar um sendi bréf, þetta talfæri og samvinnutæki, sem rnotað hefir verið af mönnum svo að segja frá alda öðli. Bréf er komið af latneska orð- inu hrevis, sem þýðir stuttur. Bréf hafa Hka verið einhver styzta tegund ritsmíða. Við vit- um, að þau hafa farið manna á milli frá því að til er saga, en verulega almenn munu 'þau ekki hafa orðið fyr en pergamentið var fundið og siíðar pappírinn. Assýríumenm og Babiloníu skrif- uðu bréf á leirtöflur, Egiptar not- uðu nokkurskonar pappír, sem gjörður var úr stönglum papyrus jurtarinnar, og á pottbrot, og Grikkir og Rómverjar á vaxtöfl- ur og papyrus. f Austurlöndum, einkum á Ind-landi, voru mjög notuð saman bundin pálmablöð. Framan af voru hér á íslandi rit- uð sendibréf á skinn. Nokkur eru enn til. Hið elzta sendibréf. þ. e. a. s. einkabréf, íslenzkt, sem varðveitt hefir verið, mun vera skrifað á miðri 15. öld. Elzta íslenzkt sendibréf á papp ír, sem til er, er frá ögmundi biskupi, skrifað 1528, ©n svo eru aftur til yngri sendibréf á skinni, svo sem bréfstúfur frá Jóni bisk- upi Arasyni, skrifaður líklega nálægt 1540. Eftir 1550 hafa menn alment farið að nota hér pappír undir sendibréf. Til þess að loka bréfum voru lengi notuð bönd og vaxinnsigli, en á 15. öld kom lakkið til Norð- urálfu frá Kína, eins og margt annað, sem við höfum orðið að sækja þangað. Á síðari hluta 16. aldar var farið að nota oflát- ur, en límborin umslög urðu ekki almenn fyr en á 19. öld. Áður var lengi blað brotið utanum bréf ið, eða þá sáðasta blaðsíða þess, ef auð var, látin vera yzt, og skrifað þar utan á. Bréf, s?m svo er um búið, sjást enm stöku sinnum hér, frá gömlum mönn- ufn, sem fastheldnir eru við fom- an sið. í bréfum, sem til eru frá fom- öld, eru ýms sérkennileg búnings- einkenni, ávörp, kveðjur o. s. frv. En seinna, þegar kom fram á mið aldir, fór búningurinn, formið, að verða fyrir öllu, og 'þetta hélzt alt fram undir lok 18. aldar, og var þó fremur hert á hnútunum. pá þurfti sérstaka kunnustu til að skrifa bréf, sem ibréf gæti heitið, og þetta varð jafnvel að sérstakri fræðigrein. Menn vom þá svo ákaflega strangir í öllum titlum, og alt lenti í að fá bréf- ' inu réttan búning. Efnið var umvafið í titlatogum, háfleygum velfamaðaróskum og annari um- búðamælgi. petta var orðið með föstu orðalagi, sem mikinn vís- dóm þurfti til að kunna að setja saman, svo vel færi. pað getur oft verið talsverð fyrirhöfn nú eftir á fyrir viðvaninga að segja í fám orðum efni þessara gömlu bréfa, eða tína það innan úr öll- um þessum reifum af ávörpum, óskum og kveðjum, formálum og eftirmálum og millimálum. — Lærðu mennimir mynduðu smám saman þenna stíl, meðan virðinga munurinn milli stéttanna var ríkjandi og heiður hvers manns mátti mæla í stigatali, eins og kulda og hita. pessi virðinga- mælir var þýddur á íslenzku úr dönsku, eins og margt annað gott, sem okkur hefir komið það- an til að bæta okkur í munnl Stigin voru mörg og mismunandi. pað má nefna nokkur: Æru- verðugur, velæruverðugur og há- æruverðugur, veleðla, velbomi og velbyrðugi eða velburðugi, háeðla og hávelborni, signor og monsjer, alt eftir því, hver ávarpaður var. En um allan þorra manna var aftur ekki annars getið en þeir væru með öllu ærulausir, óeðla, óburðugir og jafnvel óbornir. Eg ætla að nefna hér örfá dæmi af handahófi um ávörp og kveðjuorð í bréfum milli ís- lenzkra embættismanna á 18. öld, meðan þessi svonefndi kansellí- stíll var í algleymingi. Skólameistari í Skálholti ávarp- ar sýslumann: “Göfugi, vísi og velaktaði hr. præses, mikils virðandi elskulegi vin.” Kveðj uorðin þessi: “Enda eg svo þetta með for- látsbón, óskum alírar velgeingni og þjenustusamlegri heilsan til hans göfugheita, samt hans dygð elskandi kærustu, og vil svo ætíð finnast göfuga hr. præsidis 'þjenustu reiðubúinn vin og iþjenari.” Og á fótinn skrifar hann: “Göfugum, vísum og velökt- uðum kongl. majestis valdsmanni í ísafjarðarsýslu Segnr Markúsi Bergssyni, mínum æruvirðandi fautori, sendist þetta þénustu- samlega að ögri.” pá kemur ávarp prests til skólameistara í Skálholti: “Velæruverðugum og hálærð- um manni Sr. Jóni Thorkelssyni, mínum æru- og elskuverðum fau- toir, óska eg allsháttaðar lífs og sálar sannrar farsældar æfin1- lega.” Loks tek eg til dæmis ávarp frá presti til amtmanns: “Háeðla og velbyrðigi herra amtmann, háttvirðandi elskulegi herra.” Niðurlag bréfsins hljóðar svo: “Forlátið þetta í mesta hasti, sem eg enda með minni auðmjúk- ustu heilsan til yðar, minn háeðla herra, yðar velbyrðigrar frúr og ykkar veleðla dóttur með fylgj- andi óskum ævarandi guðs bless- unar. Eg með veneration forblív há- eðla herra amtmannsins auð- mjúkur þénari Sigurður Jónsson.” BLDE MBBON TEA Kjarngott! Sterkt! Ljútíengt! Það er hressandi að morgni þegar maður fer til vinnu sinnar; og kemur maniii til að gleyma áhyggjunum að kveldinu. Biðjið um það. Á fætinum stendur: “Háeðla og velbyrðigum herra amtmanninum yfir fslandi herra Magnúsi Gíslasyni auðmjúkleg- ast á Leirá.” pó að ekki sé nema málsins vegna, þá er þessi tildurgnótt að hverfa nú. Embættisbréf hafa raunar til skams tíma verið nokk- uð kansellíkend, sbr. þessa byrj- un, sem var algeng ekki alls fyr- ir löngu: “Hér með undanfelli eg ekki þénustusamlega að tjá yður” o. s. frv. En vaxandi til- finning fyrir sæmilega rituðu máli er að verða aðhald í þessu efni, svo nú er sitthvað að detta úr sögunni smám saman, sem áð- ur var algildar reglur. Og nú er líka farið að draga úr þessari lát- lausu virðingarvottun og fyrir- bænum, bæði í pennanum og á vörunum, sem oft hefir líklega mátt segja um: Skilur haf hjarta og vör, eða penna. Okk- ur er nú farið að þykja það bros- legt, þegar við lesum t. d. ræður þióðhöfðingja í löndum, sem nú eiga í ófriði, þegar þeir heimsóttu hver annan áður, og töluðu ekki um annað en fölskvalausa ást og eindrægni meðal þjóðanna, sem þeir áttu fyrir að ráða, þó að all- ir vissu, að þær bæru heiftar- eða öfundarhug hvor til annarar og ófriðurinn væri við landamærin. Og á mörgu má taka eftir því, að þetta almenna varadaður er að missa rótfestu, eða að minsta kosti að skifta um búning. pessi embættis-/eða skrif stof u- stÓl altók jafnframt kunningja- bréfin eða prívatbréfin, og alþýð- an tók þetta eftir höfðingjunum. Höfðingjanna synd er hinum fyrirmynd mætti hafa að málshætti bæði um þettaog ýmislegt annað. En alþýðumaðurinn, sem var ekki heima í þessum fræðum, sem lágu svo fjarri hugsunarhætti hans, vildi iþá oft rugla saman þessum orðatiltækjum, svo að úr því varð fáránlegasti samsetning ur, líkt og þegar afbökuð eru út- lend orð, eða þau notuð í ein1- hverri ímyndaðri fráleitri merk- ingu, t. d. “idiot” í merkingunni búmaður. En þessi orðavafningur hvarf af efninu í bréfunum með breytt- um hugsunarhætti. Embættis- bréfin fóru að losna úr flækjunni og kunningjabréfin urðu einfald- ari og meira blátt áfram. Bréf hafa auðvitað enn, eins og allar tegundir ritaðs máls, sín bún- ingseinkenni. Um embættisbréf- in ætla eg ekki að tala, heldur um kunningja- og prívatbréfin. í þeim eru ávörp, byrjun, nið- urlagsorð og kveðjur oft með svipuðu sniði. Menn segja ‘kæri vinur” og þakka fyrir síðast, og “það er efni þessa miða, og sein- ast tala þeir um að “brjóta blað- ið”, biðja að bera kveðjur og við- takandinn er. kært kvaddur áf sínum einlægum vini o. s. frv., með margvíslegum, mismunandi orðum. Hinsvegar byrja bréfin sjaldnast á að heiLsa viðtakanda. pó er til í byrjun bréfa: “Alúð- arheilsan”, næst á eftir ávarpinu. Og klausu man eg eftir, sem var algeng í byrjun á bréfum, eg 'held sérstaklega frá kvenmönn- um, en er nú víst að verða fátíð. Hún er svona: “Elsku vina! Ætíð sæl og blessuð. Eg sezt nú niður við að pára þér nokkrar lín- j ur að gamni mínu. Ekkert hefi ! eg þér nú í fréttum að segja, ut- an mína bærilega líðan, L. S. G., og óska eg þess sama af þér að frétta.” Og svo kemur kaniske heil fréttaruna á eftir. En1 yfirleit er alt form á bréf- um að styttast, eins og annað, eftir breyttum tíðaranda. pó mun líklega komandi kynslóðum þykja okkar bréf jafnskringileg í framsetningu eins og okkur finst um bréf frá fyrri öldum. En allra tíma bréf lýsa að þessu leyti aldarfiættinum. Alt þetta, um formið á bréfun- um, er nú ekki annað en auka- atriði, eða, réttara sagt, eitt at- riði eða liður í sögu þeirri, sem sendibréfin geyma, — og sú saga er meiri og merkilegri en almenn- ingur gjörir sér í hugarlund, eða svo er að sjá á meðferðinni á sendibréfum, að iþau séu ekki metin mikils. Sendiibréfin fjalla, samkvæmt eðld sínu, um nærri ált milli him- ins og jarðar, um alt, sem maður má manni segja. par segir hver einstakur maður öðrum, hver á sinn hátt, frá atburðum og frá högum 'sínum, dómum um menn og málefni, frá tilfinningum sín- um og leyndustu hugrenningum. Og bréfin segja frá mörgu, sem hvergi sést annarsstaðar, og hreinskilnin er þar meiri og hisp- ursleysi en alment gjörist í öðr- um ritum. Franska skáldið Guy de Mau- passant segir í einni af sögum sínum, að hægast sé að þekkja mennina á sendibréfum frá þeim. Svört orðin á hvítum pappímunt séu nakin sál mannsins, en raun- ar geti karfmenn með mælsku- brögðum og æfingu lært að skrifa svo, að þeir geti dulið sjálfa sig í bréfunum. í iþessu er eflaust mikill sann- leikur. Sendibréfin eru ómetan- leg þing til að þekkja mennina. Við íslendingar erum margir hneigðir fyrir ættfræði. Okkur þykir gaman að vita nöfn á for- feðrum okkar. En svo er eins og margir láti sér lynda þessa nafna þulu. Um hitt er minna feng- ist, hvemig maður þessi Oddur, Hjalti, Auðunn eða Steinn hafi verið, eða þessi Sigga, Vigga eða Sunneva, síður spurt um æfikjör þessara manna, eðlisfar eða hugsunarhátt. En þetta er stein- gerð ættfræði. Væri ekki meira um vert aðeiga einhverjar menj- ar iþessara manna, sem hægt væri að geyma öldum og óbomum? Nú vill svo oft til, að margur maðurinn legst svo í gröfina, að hann lætur ekki eftir sig neinar varanlegar menjar um sjálfan sig , nema nokkur sendibréf, því að minning og munnmæli lifa sjaldnast nema í fáa ættliði. Síð- an byrgist sýn, og eftir það seg- ir fátt af einum. Væri það nú ekki skemtilegri og meira lifandi ættfræði að safna saman og varð- veita einhverjar mikilsverðari menjar um forfeður sína en að- eins nöfnin á þeim og hverrar stéttar þeir hafi verið? Og ætli okkur þætti ekki fróðlegt og mik- ils um vert að geta t. d. eftir 1000 ár heyrt 1000 ára gamla forfeður •okkar tala saman? petta geta sendibréfin veitt okkur, ef rétt er með farið. Framh. Smávegis. 31. desember er sagt frá því, að pjóðverjar, Finnar og Svíar hafi komið sér saman um að eyði- ieggja víggirðingar á Álandseyj- unum, og að iþeir hafi allir undir- skrifað samning því viðvíkjandi. Sagt er að allir Sinn Fein fang- ar, sem hafa verið settir í gæzlu* varðhald, verði tafarlaust látnir lausir. R. A. Rigg, verkmannaleiðtogi cg fjrrrum þingmaður fyrir Norð- ur-Winnipeg á Manitöbaþinginu, er væntanlegur heim frá víg- stöðvunum bráðlega. Hann hef- ir tekið að sérf orstöðu á atvinnu- málaskrifstofu, sem hér verður sett upp af Manitoba stjórninni, til þess að sjá afturkomnum her- mönnum fyrir atvinnu, og fleir- um. Sinn Fein fangar í Belfast á frlandi hafa tekið í sínar hendur allstóran hluta af fangelsinu þar í bænum. peir hafa búið svo um að fangavörðurinn kemst ekki inn til þeirra, og segjast ekkert vilja ’hafa saman við hann að sælda framar, né heldur þá háu herra, sem hafi sett þá þar sem þeir eru nú niður komnir. Sagt er að þeir séu búnir að draga að sér forða, sem muni duga þeim í marga mánuði. úr ábreiðum of- an af rúmum sínum hafa þeir bú- ið til írska fánann og dregið hann á stöng yfir þeim hlluta fangels- isins, sem þeir hafa tekið á sitt vald, og úr eldhúspottum og pönnum hafa þeir búið sér til hljóðfæri, sem þeir stöðugt leika uppreistarsöngva á. Eftir tíu ára starfstíma lögðu yfirráðsmenn Winnipegbæjar nið úr embætti sín, 31. f. m. pví, eins og menn muna, var sú að- ferð til þess að stjóma bænum, vegin og léttvæg fundin s.l. haust af bæjarbúum. Á síðasta fundi þeirra, sem ihaldinn var á þriðju- daginn var, báru 'þeir fram þakk- lætisyfirlýsingu til Mr. Magnús- ar Peterson, sem hefir verið skrifari þessarar stjómamefnd- ar bæjarins frá byrjun, og hver einn og einasti af þeim — þeir voru 5 að tölu — vottaði það op- inberiega, að ómögulegt hefði ver ið fyrir þá að koma í framkvæmd öliu því verki, sem 'þeir áttu að sinna, ef 'það hefði ekki verið fyr- ir framúrskarandi dugnað, ná- kvæmni og skarpskygni skrifar- ans. En hann er, eins og margir vita, fslendingur. Og það er gleðiefni öllum oss, hvar sem ís- Ienzkir hæfileikar og íslenzkur drengskapur skarar fram úr. Sambandsmenn hafa lofast til þess að útvega fylkjum pjóð- verja í Austurríki 4000 tonn af hveiti undireins, og sjá um eins fljótt og unt er, að fólk það fái lífsnauðsynjar sínar, sem það skortir nú svo mjög. Heil vagnhleðsla, er send var frá Austur-Canada hingað til Winnipeg, og merkt var “Che- uing Gum”, kom hingað um helg- ina. Og undireins og það var komið tilkynti C. P. R. mönnum þeim, sem á móti áttu að taka„ og þegar að þeir heyrðu hvað í flutningsvagninum væri, vildu þeir ekkert við það kannast, og leit helzt útffyrir að enginn þyrði neitt við sendinguna að eiga, þótt 'sjálfsagt marga hafi langað til þess. En vínsölueftirlitsmaður Mandtobastjómarinnar aumkaði sig yfir sendingu þessa, og er hún nú komin á óhultan stað — þar sem enginn nær í hana og enginn fær að njóta hennar. En. vesalings mennimir, sem áttu að fá þetta, verða að sitja með þurr- ar kverkar nú um nýárið. — Ein- hvemtíma hefði nú þetta verið kallað ófrelsi. Spánn hefir gjört kröfu til þess að fá friðarþingið til að á- kveða, að Spánverjar fái aftur Gibraltar, og býður Bretum, ef þeir vilji gefa þetta eftir, að láta af höndum við þá Centa, en það er oddinn á Marœco að sunnan- verðu við Gibraltarsundið, og beint á móti Gibraltar. — Áður fyr var Gibraltar eign Spánverja, og tóku Bretar og Hollendingar hann frá þeim 1704. Spánverj- renydu að ná Gibraltar aftur frá 1779—1783, en árangurslaust. — Talsverð sanngimi mælir með því að Spánverjum verði veitt þessi ósk, því í rauninni er Gibraltar partur af Spáni. — Centa er 10 mílur beintsuður frá Gibraltar, og vígi gott. Hermálaritari Bandaríkjanna, Daniels, hefir tilkynt nefnd þeirri í Senati Bandaríkjanna, sem sér- staklega sér um flotamál, að ef ekki takist að koma á fót alþjóða fiðramefnd, ,þá verði Bandaríkin að byggja þann stærsta og full- komnasta herskipaflota, sem heimurinn hafi nokkumtíma séð. Alheims verkamálanefnd, sem athugi ástand verkamanna um allan heim, er talað um í sam- bandi við þetta friðarþing, og bú- ist er við að reynt verði að koma á j^ót alþjóða dómnefnd í öllum málum, sem snerta verkafólk og atvinnuvégi landanna. Eldsbrunar í Manitobafylki hafa verið miklir á árinu 1918. Skaði, sem þeir hafa gjört, er sagður að vera $1,750,000. Nýskeð var getið um það í blaði voru, að ný uppfynding hefði verið gjörð í Bandaríkjun- um í sambandi við tal- og ritsíma. Burieson póstmeistari hefir nú skýrt frá því, að uppfynding þessi sé í því fólgin, að hægt verði að senda 40 skeyti eftir sama ritþræði á sama tíma, og að 5 geti notað sama talþráðinn í einu. pessi nýja aðferð hefir kolum (frá Elíasi Stefánssyni og Alliance). Síðasta stórgjöfin eru 2000 kr. frá Eimskipafélagi íslands. Úthlutunamefndin hefir þegar úthlutað 20—30 þús. krón- um, eða nál. helming samskota- fjárins, og hefir þó enginn feng- ið meira en 300 krónuV. Fjöldi umsókna hefir nefndinni borist, en mörgum veittur styrkur, sem ekki hafa sótt. Auðvitað er gert ráð fyrir því, að frekari styrk verði að veita sumum þeirra, sem úrlausn hafa fengið, og að fleiri verði styrks þurfandi en þeir, sem nefndinni er þegar kunnugt um; verður því talsverð upphæð geymd til ráðstöfunar síðar, og nefndin reynir, með aðstoð margrakunnugra manna, presta lækna, fátækrafulltrúa o. s. frv. að komast fyrir það, hvar þörfin er mest. f gærkveldi (6. des.) kviknaði aftur í húseign G. Bjömsonar landlæknis. í þetta sinn varð eldsins fyrst vart í útilhúsi, sem stendur austur við íbúðarhúsið, og er nú enginn vafi talinn á því, að kveikt hafi verið í. Slökkvlið- ið kom svo tímanlega á vettvang, að eldurinn ihafði ekki náð mikilli útbreiðslu, • og tókst þegar að slökkva Ihann. Var vörður hafð- ur um íhúsið í nótt. Rannsókn hefir verið hafin út af brunanum um daginn, sem allar líkur eru til að hafi einnig verið af manna- völdum. Og vonandi er að nú takist ^ð klófesta brennuvarginn. Mál gasstöðvarstjórans. pað hefir nú ræst svo úr því máli, að Borkenhagen fær að hafa gas- stöðvarforstöðuna á ihendi til fe- brúarioka, og væntanilega verður þá ofur auðvelt að fá kröfuna um frávikninðu hans tekna alveg aft- ur, eins oe: nú er komið.—Stjóm- ardagblaðið. Samfagnaðarkveðja barst al- 'þingi í gær frá Stórþinginu norska í tilefni af fullveldisviður- keningunni, á þessa leið: Stór- þing Norðmanna færir íslenzku bróðurþjóðinni samfagnaðar- kveðju og sínar innilegustu heilla óskir í tilefni af fengnu fullveldi. Forsetar þingsins þökkuðu kveðj una með símskeyti. Eldur varð laus í KJöpp við Klapparstíg í dag (13. des.) laust fyrir hádegi og var slökkviliðið kvatt þangað. í gærkveldi hafði kviknað í húsinu nr. 53 við Lauga enMMt FINEST THEATIA ALLA pESSA VIKU Mat. Miðvikudag og laugardag F. Steuart-Whyte’s CINDERALLA ALLA NÆSTU VIKU Mat. Miðvikudag og laugardag Mesti skopleikari heimsins Rilhard Carle í söng, dans, og skopleik FURS AND FRILLS Söngleikur í tveimur þáttum • 50 þátttakendur og Fallegar stúlkur verið notuð á milli Baltimore og veg en þar tókst að slökkva þegar Pittsburgh í meira en mánuð, og gefist ágætlega. ISLÁND Forsætisráðherra hefir að sögn falið þeim Ásgrími Jónssyni og Ríkharði Jónsisyni myndhöggv- ara að gera uppdrátt að skjaldar- merki handa íslandi. Hafði hann gert það með eímskeyti þvhöfn og má af því ráða, að stjórnin ætli að ákveða skjaldar- merkið án þess að bera það undir þing eða þjóð. Bæjarstjórnarfundur verður haldinn í dag (5. des.) á venju- legum stað og tíma. Á fundinum verður lagt fram fmmvarp fjár- hagsnefndar til áætlunar um tekjur og gjöld bæjarins árið 1919. Nefndin áætlar gjöldin kr. 1,072,209.43, en þar af er tekju- halli frá 1917 kr. 217,554.98. Af þeim tekjuihalla ámótekjan það ár kr. 108,000.00, og gasstöðin 34,554.98. Til ómaga framfærslu llrar eru áætlaðar fullar 200 þus. kr., auk fjárhæðar ti'l að veita fátæklingum vinnu (40 þús.). Til barnaskólans eru áætlaðar 71,800 kr., tl gatna og gangstéttagerðar 56,800. Stjóm kaupst. og lög- gæsla 70,000. Dýrtíðaruppbót starfsmanna og dýrtíðarráðstafr anir 60 þús. kr. Vextir og af- borganir af lánum 110 þús. En til þess að standans öll essi út- gjöld, verður að jafna niður “eft- ir efnum og ástæðum” kr. 817,- 959.43, auk 5—10% umfram, eða nál. 900 þúsund krónum. í stað. pað var sagt frá því fyrir nokkru síðan, að sóleyjar hefðu fundist nýútsprungnar norður í Húnavatnssýsíu í nóvembermán- uði. En sama veðurblíðan hefir haldist til þessa um alt land, og nýlega hefir Vísir frétt að sóleyj- ar hafi fundist suður í Garði þessa dagana, í svartasta skamm ^11"; deginu, og f jólur hafa sprungið ra út í görðum hér í bænum. f Ámeseýslu hefir verið settur sýslumaður enn á ný og í þetta sinn varð það porsteinn porsteins son cand. jur. frá Ambjargarlæk. —Vísir. dagblöðunum frá okkar háttvirtu stjóm, til karla og kvenna, að gefa sig fram til að fara út á land að hjúkra, ef til kæmi og með þyrfti. Sjálfsagt hafa nokkuð rnargir gefið sig fram, og eftir því sem maður fær frekast séð af blöðunum, er ástandið til sveita víða mjög bágt, eins og til dæmis í Mosfellssveit, austur í Flóa og Grimsnesi og Holtum, og eins suður með sjó. En eftir því sem eg hef komist næst, hafa að eins 4 — f jórar — stúlkur verið sendar, af þvi fólki sem gaf sig fram. pví er ekki fleira sent ? Og því em ekki karlmenn sendir líka? Ef karimenn kunna að mjólka, hirða skepnur og búa til algeng- asta mat (og þó ekki væri nema hafragraut og hafraseyði) mundi þá ekki vera gagn að þeim í starfi þessu ? pví eru þeir ekki sendir? Er að af því að ekki sé þörf á því ? Nei, sannarlega getur það ekki verið af því. Hér í Rvík hafði maður þó fulla reynslu fyr- ir, ihvemig inflúenzar hagar sér, þar sem hún er búinn að ihola sér inni Og þegar heilar f jölskyldur liggja í veikinni, ætti að vera þörf fyrir verklega hjálp. Ef til vill er ihin háttvirta stjóm hrædd um að, veikin breið- ist frekar út, við að senda fólk héðan út um land, en þó get eg ekki komið mér til að trúa því um stjómina, heldur treysti eg því að hún láti nú til skarar skríða, komist í samband við læ-kna, presta, sýslumenn, hreppstjóra út um land, og geri það sem gera þarf strax. —Vísir. Liðsmaður. Kolakaup bæjarstjórnarnnar. pað var vel ráðið af bæjar- stjóminni, að samþykkja tillög- una um kolakaupin, sem sagtvar 'frá í blaðinu í gær (6. des.). Jón porláksson, sem mælti með tillögunni fyrir hönd þeirra flutn ingsmannanna, kvaðst hafa fyrir því ummæli fróðra manna í þeim efnum, að kol væri hægt að selja hér nú fyrir ekki hærra verð en 200 kr. smál.. En kolaverðið er hér 325 kr. í Noregi eru ensk kol seld fyrir 100 kr. smál., svo að óhætt er um það, að ræðum. hefir ekki tekið of djúft í árinni. Enda er það kunnugt, að stjómin eða landsverzlunin ihefir lagt ó- hæfilega mikið á kolin, og auk þess er stríðsvátrygginginhorfin úr sögunni. Vandkvæði gat J. p. engin VerðuíTþó útko^^^þrtttl^rir f™diJ á ** a®afla koUaina. Ef ekki þætti fært að bæjarsjóður - Skímir. IV. hefti skímis er komið og er innihaldið fróðlegt og skemtilegt 1. Ástriður ólafsdóttir Svía kon ungs. Stephan G. Stephansson, (kvæði). 2. Byggingairmálið, húsagerð í sveitum. Guðm. Hannesson. 3. Erasmus frá Rotterdam, Nl- Magnús Jónsson. 4. Um sendibréf. Jón Sigurð- son. 5. Frá Frakklandi eftir John Galsworthy. G. F. þýddi. 6- Við Dyflin. Kvæði, Steph- an G Stephansson. 7. Frá málstreitu Norðmanna Holger Wiehe. 8. Ritfregnir eftir Holger Wiehe og Páll E. Olason. 9. Ný rit- legði fram féð, þá mundi þó auð- velt að fá það. En á hinn bóginn væra f járhagsörðugleikar bæjar- ástaræfintýram. alt, síst lakari en í fyrra. Eldur varð laus á efstu hæð í suðurenda húss Guðm. Bjömson- ar landlæknis í gær. Varð þess vart um kl. 6, og landlæknirinn þá ekki heima. Slökkviliðið var þegar kallað til hjállpar, og tókst því brátt að slökkva, en allmiklar skemdir höfðu orðið' á húsinu, bæði af eldi og vatni. Enginn veit hvemig eldurinn hefir kvikn reyndist ófáanleg til þess að veita að, en líklegast þykir að kviknað bæjarstjórninni innflutningleyfi, hafi í fataskáp einum á efsta vegna þess að landsverzl. ætti all- lofti, og er það þó allkynlegt. Er miklar birgðir af kolum sem sel.ia þetta í f jórða eða fimta sinn, sem yr*5i hærra verði; þó væri það lítt eldur ihefir kviknað í þessu húsi hugsanlegt, er bæjarstjómin ætti Walker. Eins og vant er verður Walker fullkomnasti skemtistaðurinn. í þessari viku verður Cinderella sýnd á Walker, og er þar sannar- lega efni sem öllum hentar. í næstu viku verður sýndur leik- ur sem heitir ‘,Furs and Frills”, og er hann ekki eftirbátur hins leiksins. Ágætur hljóðfæraflokk- ur skemtir á leikhúsinu við sýn- ingamar. Wonderland. Leikurinn, sem Wonderland sýnir á miðviku- og fimtudaginn, heitir “No Mans Land”. — Eftir nafninu að dæma skyldu menn halda, að efnið væri tekið úr styrjöldinni miklu, en svo er þó eigi. Heldúr er myndin öll á enda ein samanhangandi keðja af búa svo miklir um þessar mund- ir, að einskis mætti láta ófreistað sem orðið gæti til þess að létta undir með almenningi. pau tormerki taldi hann ein hugsanleg á því, að unt yrði að afil'a kolanna, að landstjórnin með svo undariegum hætti. Á reiðhjólum komu tveir menn austan af Eyrarbakka fyrir helg- ina og geikk ágætlega. Hjá Lög- bergi varlþó svo mikill aur, að þeir urðu að ganga. Mun ekki vera dæmi til þess áður, að þessi Ieið hafi verið farin um jólaleytið. í hiut. —Vísir. S jálf boða-h j úkrunarlið. Mér varð litið í litla grein í Vísi í dag, 27. nóv., um framgang okkar heiðvirtu stjómar, gagn- á reiðhjóli vart útbreiðslu innflúenzunnar út um land, og í sambandi við þetta par að auki verður sýndur 19. kaflinn af “The House af Hate”. Á föstu- og laugardaginn sýnir leikhúsið skemtilega kýmimynd, er kallast “The Eyes of Julia Deep”. Látið eigi hjá iíða að koma. Samskotin til ibágstaddra vegna inflúenzunnar, nema nú nálægt 60 þús. krónum, auk 15 smál. af langar mig til að gera nokkrar spumingar. Um helgina var auglýsing í Orpheum. SkemtiiSkráin á Orpheum yfir vikuna, sem hefst 13. þ. m., verð- ur sérliega fjölbreytt. — par verða meðal annars sýndir falleg- ir smáleikir og sumgnir kými- söng\Tar. — En merkasti þátturinn á skemtiskránni verður þó 'vafa- laust íþróttaliðurinn, þar sem hr. Jóhannes Jósefsson, íslenzki afl- raunamaðurinn nafnkunni og fé- lagar hans, sýna listir sínar. Ekki þarf að efa að íslending- ar noti tækifærið og fjölmenni á Orpheum í þetta sinn.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.