Lögberg - 15.05.1919, Page 2
Síða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAí 1919
Athugið þetta vel!
Veitið því athygli hvernig
kaupverð—og peningaverð—
>essara Sparimerkja hækkar
á mánuði hverjum, þangað til
síðasta janúar 1924, j?egar
Canadastjómin - greiðir $5.00
fyrir hvert W—-S.S.
Arthur C. Townley.
Flestir af lesendum Lögbergs
hafa vist heyrt talað um þann
mann, og að einhverju leyti um
feril hans og framkvæmdir, að
minsta kosti þeir af lesendum
blaðsins, sem búsettir eru í
Norður Dakota.
En sökum þess að maður þessi
kemur svo mjög við sögu nú
sem stendur, dettur oss í hug,
málinu til skýringar, að taka upp
í Lögberg eftirfylgjandi grein,
sem nýlega birtist í tímaritinu
‘'Literary Digest”.
Townley er 38 ára að aldri.
Hann er fæddur í Minnesota,
faðir hans var bóndi, enskur að
ætt og uppruna.
Mönnum er ekki kunnugt um
framkvæmdir Townley á yngri
árum hans. Menn vita að hann
reyndi landbúnað í stórum stíl,
fyrst í Colorado, þar sem hann
ætlaði að framleiða kom, og síð-
ar í Norður Dakota, bar sem
hann ætlaði að rækta flax í
mjög stórum stíl — ætlaði að
verða flaxkonungur Norður
Dakota. f báðum þessum til-
fellum notaði hann annara fé til
framkvæmdanna. í Colorado
fór hann strax á höfuðið, en í
Norður Dakota græddi hann
$15,090 fyrsta árið. En svo fór
það sömu leiðina og í Colorado—
fór á höfuðið með alt saman. Og
>að er haft eftir gárungunum
þar syðra, að þá hafi Townley
snúist til socialista stefnunnar.
Eitt er samt víst, og það er >að,
að næst kemur 'hann fram sem
ákveðinn og ákafur talsmaður
þeirrar stefnu.
f fjögur ár hefir Townley tek-
ið þátt í stjómmálum, og á þeim
tíma hefir hann náð á sitt vald
stjóm eins ríkis, og 200,000
bændum, sem heima eiga
þrettán ríkjum. Ræðumaður er
TownJey með afbrigðum, og er
sagt að bann gefi Bryan ekkert
eftir í því efni, og við þann hæfi-
leika bætist að hann er framúr-
skarandi séður að byggja upp
málstað sinn og hrífa menn á
sitt vald. Og með þessum hæfi-
leikum sínum hefir hann gjört
tvent, sem í fljótu bragði virð-
ist ekki vera áhlaupa verk. í
fyrsta Iagi hefir hann fengið
meiri hluta allra bændanna í
Norður Dakota í félag með sér
og myndað þar nokkurs konar
einveldi, svo sterkt að hann
getur haldið stjóm og stjómar-
taumum fylkisins í hendi sér.
í öðm lagi er hann á góðum vegi
með að sameina bændur og
verkamenn í pólitískan flokk, og
lítur út fyrir að honum ætli að
takast meira í þeim efnum en
mönnum hefir áður tekist.
Sá sem skrifar þessa grein,
heldur því fram, að Townley og
fylgismenn hans séu ekki Bolshe-
vistar. peir séu hvorki ólög-
hlýðnir né I.W.W. í hugsun né
í framkomu. peir vilji ekki einu
sinni láta kalla sig sósiíalista —
þeir séu bara ákafir lögbreyt-
ingamenn. Hópur af bændum,
aðallega af útlendum ættum,
lagi hans nema þeir séu bændur,
og með sárfáum undantekning-
um eru það aðeins bændur, sem
flokkur sá velur til embætta, og
ekkert tækifæri htefir verið lát-
ið ónotað til þess að láta flokk-
inn finna til máttar síns og æsa
hatur hans á móti stóreigna-
mönnum.
Ef að hreifingu þessari í
Norður Dakota fylgir nokkur
hætta, þá er það Townley að
kenna, en ekki bændum. Aðal-
áhugamál þeirra er að ríkið
sjálft eigi ýms fyrirtæki sem
þeim er ant um, en spursmál er
hvort sama verður sagt um hug-
myndir Townleys, því hann hef-
ir nú þegar sett á stofn sjálfur
eða undir nafni félagsins, kerfi
af verzlunarhúsum í ríkinu, og
hafa menn það á tilfinningunni
að hann muni ætla að selja rík-
jnu þau verzlunarhús.
Townley er í nánu sambandi
við I.W.W. félagið, og árið 1917
gjörði hann ýtarlega tilraun til
þess að sameina bændumar í
Norður Dakota og I.W.W. með
því að láta þá leggja bændum til
verkamenn við jarðrækt, og ef
þessi samningur hefði tekist,
þá hefði það verið ósegjanlegur
styrkur fyrir félagsskap I.W.W.
Stríðið lét hann sig engu
skifta, þar til að seinni stjómar-
byltingin á Rússlandi varð, og
menn sáu hvílíkt afl hún gat
orðið í æsinga áttina. Að vísu
var hann ekki beinlínis á móti
'■Liberty”-Iánum stjómarinnar,
en hann staðhæfði opinberlega
að auðmennirnir hefðu hrint
stríðinu á stað, það væri þeim að
kenna og þeir ættu að borga fyr-
ir það.
f kosningunum í Minnesota
1916, tilnefndi Townley Oharles
A. Lindberg fyrir ríkisstjóra.
Skoðanir Lindbergs á stríðinu
voru svipaðar skoðunum Town-
ley, nema hvað þær munu hafa
verið ennþá öfgameiri.
í kosningunum 1918 efldist
Townley flokkurinn, því engum
blöðum mun um það að fletta að
þá gengu þeir sem þýzksinnaðir
voru, bæði í Minnesota og Norð-
ur Dakota í flokkinn.
Townley sjálfum er það vel
ljóst, að í Norður Dakota átti
hann veg sinn að þakka inn-
fiuttum mönnum og þeirra af-
kömendum. Hjá þeim, sem af
innlendum stofni eru runnir hef-
ir Townley minna fylgi.
Skólana og blöðin hefir Town-
ley svo í hendi sinni að hann
getur gjört 'hvorttveggja að
verkfæri í þjónustu sócíalism-
ans.
pað er .enn ekki ljóst, hvað
Townley tekst að gjora á meðal
verkamanna, ef ihann beitir sér
til þess að æsa og auka óánægju
þeirra getur farið illa. En þó að
verkamennirnir séu ekki teknir
með í reikninginn, telst mönnum
svo til að Townley mundi máske
geta náð haldi á Dakota, Minne-
sota, Suður Dakota, Idaho og
Montana.
En í sambandi við þetta er
vert að athuga, að styrkur Non-
Partizan League er hvorki meiri
né heldur minni en styrkur
Townley. Ef hann gjörir ein-
reyndi hann fjársýslu í sam-
bandi við landbúnað í stórum
stíl, en misreiknaði sig og tapaði
í bæði skiftin. Hann er geðrík-
ur og ráðríkur, eða máske væri
réttara að segja einráður. Hann
læzt ætla að fara varlega, en þó
virðist vera farið að bera á f jár-
glæframanninum í sambandi við
framkvæmdir félagsins.
Townley er meistari í að út-
breiða kenningar sínar. pað
hafa sjaldán eða aldrei átt sér
stað vor á meðal samtök, sem
eins .vel hafa verið undirbúin
eins og myndun þessa Non-
Partizan League. Hann hefir
haft peningaráð svo furðu sætir.
$2,000,000 hefir hann eytt, aðal-
lega í Minnesota og Norður
Dakota, og hefir enginn pólitísk-
ur flokkur fyr eytt neitt líkt
þessu á meðal svo fárra kjós-
enda. En um það hvemig þess-
um peningum hefir verið eytt
veit enginn, né heldur hefir
neinn neitt um það að segja
nema Townley einn, og er hann
ekki skyldur að standa neinum
reikningsskap af gjörðum sínum
í þessu efni.
Að nafninu til er félag þetta
ekki sérstakur stjórnmála-
flokkur. Aðferð þeirra er að
velja þann flokk sem líklegri er
til sigurs og sem vill borga fylgi
Non-Partizan League með sjálf-
stæði sínu en fylgi við Townley.
Nú er Townley-stjóm' í Norður
Dakota, en þó voru Republicanar
kosnir þar síðast.
Ein af yfirsjónum mótstöðu-
manna Townleys er sú, að þeir
hafa lagt of lítið upp úr áhrifum
hans, hafa aldrei getað trúað
því, að kenningar hans mundu
ná eins föstum fótum og raun
hefir á orðið. En hér er kann
ske ekki eins mikið um að ræða
kenningarnar eins og manninn
sjálfan. Hann er verulegur
leiðtogi, ríkur af hugmyndum og
eldlegu sálarfjöri, sem hefir
veitt honum álgjört vald yfir
meðlimum Non-Partizan League
hann ræður vilja iþeirra, og svo
er þetta dálæti mikið á Townley
að það gengur næst tilibeiðslu.
Honum hefir verið borið
brýn af mótstöðumönnum sínum
að hann ráði öllum málum einn
— sé einvaldsstjóri — leiti aldrei
vil.ja félagsmanna í sambandi við
stjórn félagsins og sína stöðu
sem leiðtogi þess. En Townley
kærir sig hvergi, lætur þessar
aðfinslur sem vind um eyrun
þjóta og heldur áfram sínu ein
ræðis fyrirkomulagi — og það
virðist iheldur ekki hafa nein
áhrif á vinsældir hans hjá fé
lagsmönnum hans, því hánn hef
ir skipað þar æðsta sæti sökum
vinsælda sinna eða andlegra yfir
burða og enginn dirfst að lyfta
•hendi sinni, þar til nú nýlega að
óánægja hefir komið upp innan
félagsins í Norður Dakota, en þó
eru lítil Mkindi til þess að sú
óánœg.ja nái nokkurri verulegri
útbreiðslu.
f allri stjórnmálasögu Banda
ríkjanna höfum vér aldrei átt
velg.jörðarmann og harðstjóra
sem haft hefir eins mikið vald
yfir fvlg.jendum sínum, eins og
Townley hefir í Norður Dakota
og félagsmönnum sínum í einum
sex öðrum ríkjum.
Að vér höfum átt pólitíska
harðstjóra, það vitá allir. En
afstaða Norður-Dakota ríkis,
eftir að því broslega í sambandi
við hana er slept og alvaran eins
og hún bláköld ræður er sú, að
í nafni lýðfrelsis, og til þess að
losna við einveldi og harðstjórn
auðkýfinganna, þá hefir meiri
hluti bænda þar, lagt framtíð
ríkisins og stofnanir þess í hönd-
uraar á einum manAi — á ein
veldismanni sovietsins þeirra—
á herra stjómarvaldsins í Norð
ur Dakota.
sem vilja gjöra tilraunir með
það að ríkið taki í sína eign og|hýerja vitleysu eða veltur um
umsjá eignir og framleiðslutæki, koll, þá er Non-Partizan League
til þess að reyna að laga það | líka. oltið um koll. Hvort þessar
sem peim fmst \ era í ólagi. Og. socialista tilraunir eða socialista
segir greinarhöfundur að athafn- stefna j Norður Dakota vinnur
ír þeirra i þessa att seu lögum; ega tapar er alt undir 'hæfileik-
samkvæmar. i um Townley komið í sambandi
Svo heldur hann áfram: við stjómmálalegar framkvæmd-
“Townley hefir með þessum j ir, því hann er stjómin í Norð-
framkvæmdum sínum hrint af ! ur Dakota.
stað nýrri flokkstilfinningu, sem j Townley er og hefir verið
er bæði óholl og þröng, því engir ógætinn í fjánnálum. Áður en
Tóbaksreykingar.
geta gjörst meðlimir í þessu fé-
haf, _ _ _ _ JjJ
hann fór að eig^ við stjórnmál engan enda átt, og það sé 'því
Nafn þess manns, er fyrstur
þorði að éta skelfisk, hefir flog-
ið um allar lifandi jarðir; sá sem
fyrst fann upp á því að reykja
svínakjöt, er og verður ódauð-
iegur í sögunni, en alþjóð manna
er gersamlega ókunnugt um
hver það var, sem fyrstur þorði
að kveikja í pípu. f sambandi
við æfi hans þekkjast engin
æfintýr og .jafnvel engar munn-
mælasögur. Skáldin hafa engan
lofsöng sungið kappanum þeim,
og á málverkum listamannsins,
er drætti hans hvergi að finna.
— pó er ef til vill fátt undar-
legra, sem maðurinn hefir lagt
í vana sinn, en tóbaksnautnin.—
Hvemig sem vér reynum að
leggja heilann í bleyti, þá erum
vér samt engu nær því, hver of-
urhugi sá var, er fyrstur varð
til þess að kveykja í pípunni
sinni, og þeyta út úr sér blágrá-
um reykjarstrókum, sjálfum sér
ti'l þúsundfaldrar ánægju en líka
svo ótal mörgum til ásteytingar.
— Manni liggur því næst að
halda, að tóbaksnautnin hafi
eiginlega aldrei átt nokkurt upp-
og geti því að sjálfsögðu I
með hana eins og ýmislegt ann-
að, að uppruninn verði óskiljan-
legur með öllu — eða ein af hin-
um mörgu ráðgátum tilverunn-
ar, sem mönnunum sé vamað
vitneskju um, af áhrifum æðri
valda.
pað fyrsta sem\vér vitum er
það, að tóbaksjurtin spratt upp
úr jarðveginum á líkan hátt og
aðrar plöntur og hafði eitthvað
sMkt aðdráttarafl í sér fólgið, er
opnaði öll skilningarvit á nautna-
þrá mannsins, — líklegast að á
hinum fyrstu frumstigum hafi
manninn langað til að soga alt
að sér, er honum þótti gimilegt.
James I. hataði reyktóbak, og
svo gerðu einnig margir niðjar
hans í röð. Enginn þeirra
kunni að meta skilningsauka
þann og vísdóm, sem tóbaks-
nautnin hefir veitt mörgum
manninum. Og það var eigin-
lega ekki fyr en. William III.
hafði rutt Charles I. og James
II. úr vegi, að England snerist
aftur á réttu sveifina, enda var
William einlægur og ákveðinn
reyktóbaksvinur.
Stjómmálamaðurinn enski,
Cromwell kunni vel að meta
kosti reyktóbaksins, og einkum
kom honum það vel að grípa til
þess, þegar hann átti að gera út
um stórmál.
Einu sinni átti hann kost á að
taka við konungdómi á Englandi.
— Tilboðið var auðvitað lokk-
andi, og er mælt að hann hafi þá
setið á ráðstefnu með vinum
sínum margar klukkustundir á
dag, en þegar samræðumar
stóðu sem hæst og farið var að
hitna í málunum, þá bað hann
einhvern í guðanna bænum að
útvega sér í pípu.
Enskur rithöfundur einn hefir
nýlega komist svo ð orði í þessu
sambandi: “Ef Cromweill hefði
aldrei reykt pípu og tekið við
ríkisstjóm, er fátt líklegra, en
að konuhgsætt Englands enn
þann dag í dag, hefði kend verið
við hann.
Swinburne hataði tóbak fram
úr öllu hófi. Einhverju sinni
var hann staddur í listamanna-
klúbbnum svo kallaða, og gat
hvergi fundið kyma, lausan við
tóbaksreyk. Hann varð ösku
syngjandi reiður, slepti sér al-
veg og hálföskraði yfir sig. —
“James I. var harðstjóri, fífl,
lygari og raggeit, en samt get eg
ekki annað en elskað hann fyrir
það, að hann hafði hugrekki til
þess að fordæma upphafsmann
tóbaksnautnarinnar, og alla þá
aðra, er sekir gerðust um slíka
ósvinnu.”
SVo var tóbaksástríðan orðin
sterk, að sagt er að prestur einn
á Englandi hafi um þessar
mundir margfylt á sér nefið, eft-
ir að hann var kominn upp í pré-
dikunarstólinn, og ætlaði að
fara að lesa textann.
Vísindamaðurinn Huxley, lýsti
einu sinni á fjölmennum mann-
fundi, afstöðu sinni til tóbaks-
nautnarinnar á þessa leið: “Um
fjörutíu ára skeið, var mér
tóbaksnautn sérlega ógeðfeld.
pegar eg var að byrja að lesa
læknisfræði, reyndi eg hvað eftir
annað að venja mig á tóbak, en
oftast fór þá svo, að mig snar-
svimaði og stundum leið bein-
ínis yfir mig. Og eftir að eg
gekk í þjónustu flotans, gerði eg
íverja tilraunina á fætur annari
til þess að venjast pípunni, en
alt fór á sama veg. Og fór eg
eftir það reglulega að hata tó-
3ak. Stundum fanst mér að eg
feginn hefði viljað leggja fram
alt mitt lið til þess, að hengja á
hæsta gálga, þessi nautnasjúku
mannkríli.
Nokkrum árum seinna var eg
ferð með nokkrum kunningj-
um mínum á Englandi, í 'hálf-
gildings kalsa og slyddnveðri.
élagar mínir voru alt af öðru
ívoru að kveykja í pípum sínum
og sýndust vera í Ijómandi
skapi, svo mér flaug á hug að
reyna einu sinni enn. Eg brá
mér því inn í búðarholu og keypti
mér álitlegan vindil, og vitiði
hvað, mér fanst nú bæði 'bragðið
og lyktin af tóbakinu hreinasta
fyrirtak. Eftir þetta var eg al-
veg eins og nýsleginn túskild-
ingur. Og eg er sannfærður um
að hófleg tóbaksnautn er í alla
staði virðingarverð, og hefir góð
áhrif á gáfumar, einkum og sér
í lagi þó, ef maður er hrakinn,
syfjaður eða þreyttur. — pað er
ekkert skaðsamlegra fyrir heils-
una, að reykjá pípu af góðu tó-
baki, en að drekka bolla af al-
gengu te.”
Tennyson reykti allmjög, og
ganga af ihonum margar sögur
um það, hve hart hann lagði að
sér, við það, að safna tóbaks-
pípurn af öllum hugsanlegum
gerðum. Hann hataði borgina
F'lorence fyrir það, að hann
kvaðst áldrei geta fengið þar
sæmilegt tóbak í pípu.
í ritgjörð sinni, er Carlyle
samdi um Tennyson, kemst hann
svo að orði: “Hann reykti eins
mikið tóbak og hann framast
gat náð í. Hann hafði fengið
svo sterka ást á tóbaksplöntunni
að Ihann gat eigi lifað án henn-
ar.” — Einu sinni var Tennyson
í dýriegri vezlu sem oftar, en sá
ljóður var á, að bannað var þar
að reykja. Tennyson langaði
mjög að hverfa á brottu hið
bráðasta, en átti þó ilt með sóma
síns vegna. Kunningi hans einn,
er þar var staddur, sá að honum
leið ekki sem bezt, og bað hann
að koma með sér inn í bókasafn-
ið, og stakk upp á því, að hann
skyldi stíga upp á bekk og
reykja upp um skorsteininn. —
petta þótti Tennyson þjóðráð,
parna púaði hann í ákafa fullan
fjórðung stundar, og sýndist al-
veg verða að nýjum manni.
Hann gat eiginlega hvergi verið,
þar sem hann mátti ekki reykja.
Árið 1876 var Tennyson boðið
í gildi eitt mikið hjá stjómmála-
skörunginum Gladstöne, hann
þá boðið og sendi samstundis
þessar línur Ntil baka: “úr því
að þú segist á annað borð skulu
annast um alt, þá vonast eg til
þess, að þú annist um það, frem-
ur en missa af minni hágöfgi,
að eg geti fengið að kveykja í
pípunni minni hvar og hvenær,
sem mér náðarsamlegast þókn-
ast.”
Fyrir fimmtíu árum eða svo,
var uppi maður, er nefndist
Mynheer Van Klaes, og var tal-
inn að vera sjálfkjörinn konung-
ur tóbaksmanna. Hann sat í
bókasafni sínu ár eftir ár og
reýkti. ÖUum áhöldum og minj-
um, sem í einhverju sambandi
stóðu við tóbaksnautn, safnaði
hann að sér úr öllum áttum, og
greiddi fyrir fé mikið. Sagt er
að maður þessi hafi reykt fjög-
ur tonn af tóbaki um æfina, eða
tíu pund á viku í þau sextíu ár,
sem hann lifði til þess að reykja
— eða reykti til þess að lifa.
Hann byrjaði að reykja tuttugu
og eins árs að aldri, og dó þegar
hann hafði einn um áttrætt. —
öll starfsæfi hans hafði snúist
því nær eingöngu um tóbak!
Jarðarför hans stóð í beinu
samræmi við æfistarfið. Sam-
kvæmt fyrirmælum sjálfs hans,
var líkkistan þiljuð innan með
vindlakösisum. Til fóta var lagð
ur stóeflis tóbaksbaukur, troð-
fullur af bezta hollenzka tóbak-
inu, sem fékst á markaðnum, en
við hliðina eldspítustokkur og
auk þess stál og tinna. Allir
helstu tóbaksmennimir í RJott-
erdam voru boðnir til jarðarfar-
arinnar, og í stað þess að bera
sorgarbönd, ens og siður var til,
þá var hverjum þeirra gefinn
tíu punda baukur af tóbaki, á-
samt tveimur pípum með fanga-
marki Van Klaes.
Meðan á útfararathöfninni
stóð, reyktu allir í ákafa. En um
leið og presturinn ibyrjaði á orð-
unum: “Duftið hverfur til jarð-
arinnar” o. s. frv., þá hristu allir
úr pípum sínum og létu öskuna
falla niður á kistulokið.
Copenhagen
Vér ábyrgj-
umst það að
vera algjörlega
hreint, og það
bezta tóbak I
heimi.
Ljúffengt og
endingar gott,
af því það er
búið til úr safa
miklu en mildu
tóbakslaufi.
MUNNTOBAK
; wj WJ : w: W wj i.1 •
The Campell Studio
Nafnkunnir ljósmyadasmiðir
Scott Block, Main Street South
Simi M. 1127 gagnvart Iðnaðarhöllinni
Stœrsta og elzta Ijósmyndastofan í Winnipeg og
ein af þeim stærstu og beztu í Canada.
Areiðanleg og lipur afgreiðsla.
Verð við allra hœfi.
Sérstaklega gott boð.
Ágætur Frystiskápur og Sumars forði af ÍS á
HÆGUM MÁNAÐAR AFBORGUNUM
No. 1.—“Little Arctic” (Galvanized) ........$24.50
$3.50 niðurborgun og $3.50 mánaðarlega.
No. 2—“Arctic” (Galvanized) ................$28.00
$4.00 niðurborgun og $4.00 mánaðarlega.
No. 3—“Superior” (White Enamel) ............$35.00
$5.00 niðurborgun og $5.00 mánaðarlega.
Vor 35 ára orðstír er yður fullnægjandi trygging.
Dragið ekki pantanir yðar.
Allar upplýsingar fást og sýnishom skápanna að
156 Bell Avenue og 201 Lindsay Bldg.
THE ARCTIC ICE CO., LTD.
Phone : Ft. Rouge 981
Leggurðu nokkra peninga fyrir?
Vér greiðum 4 % um árið af Sparisjóðsfé, sem draga
má út með ávísunum, nær sem vera vill. 43/2% um árið af
peningum, sem standa ósnertir um ákveðinn tíma.
The Home Investment and Savings Association
S. E. Cor. Portage and Main.
(Xext Bank of Montreal)
M. Bull W. A. Windatt
President Managing Director
Baldur Kristjánsson.
Prá Glmli (Bandsman 197. Batt.)
Féil 1 orustu á Frakklandi 11. ágúst 1918.
í herbötSum kyntíst eg honuim fyrst
me?S hljððfæra ieikendum vorum,
og man þvi svo glögt hve hann lék af list
er lit, nú atS gengnum sporum.
Hann blés ávalt hressing i huga vorn inn
ÞatS honum rjú, iiðnum, vér þökkum,
þá hersönginn lék ’ann á lúöurinn sinn
sem lifgar og tilheyrir Frökkum.
"Fram til orustu”, Frakklandi á
forlögin létu hann reika,
hersönginn Frakka heyrði hann þá
og herhvöt í virkilegleika.
Lúðurinn sinn hann lék ei á
Iengi, hjá framandi þjððum,
byssuna hlaut a't5 bera þá
til bardaga á heljar slððurn.
Og hugSi þau umskifti hentugri I stríð,
"4 hólmi” varð kjarkurinn meiri,
þar ungur hann gaf, fyrir landiS og lýS
sitt lif, eins. og lietjurnar fleiri.
G. H. Hjaltalín.
EeRICHARD BELIVEAU ©y
WINE MANUFACTURERS
WINNIPEG
G.&H.
TIRE SUPPLY CO.
Sargent Ave. & McGee St.
Phone Sher. 3631 - Winnipeg
Gert við bifreiðar Tires;
Vulcanizing og retreading sér-
i stakur gaumur gefinn.
pað er ekkert til í sambandi
| við Tires, sem vér getum eigi
I gjört.
Vér seljum brúkaða Tires og
kaupum gamla.
Utanbæjarpantanir eru af-
greiddar fljótt og vel.
i-f-
Góða bragðið
•> kemur frá
rindsor
' Dairy
Salt
Wi
11%
THE CANADIAN SAtT CO. UMITEO
285