Lögberg - 02.10.1919, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. OKTÓBER 1919
Bls. 7
Hvernig losast skal
við gigt.
“FRUIT-A-TIVES” FUNDU VEG
INN TIL BRÁÐS BATA.
Verona, Ont.
“Eg þjáðist í mörg ár af gigt
og sárum verk í bakinu og mjöðm-
inni, sem orsa'kaðist af áreynslu
við þunga lyftingu.
pegar eg hafði mist alla von um
heilsubót, ráðlagði kunningi minn
“Fruit-a-tives” og eftir fyrsta
hylkið leið mér miklu betur og
eg hélt áfram að nota þær. Nú
hefi eg fengið beztu heilsu, þökk
sé yðar ágæta meðali.”
W. M. Lampson.
“Fruit-a-tives” fást í öllum búð-
um á 50 c. hylkið 6 fyrir $2.50, og
reynsluskerfur 25c. — eða gegn
fyrirfram borgun beint frá Fruit-
a-tives, Limited, Ottawa.
Keisaramorðið.
pegar Kolchak stjórnin varð að
hverfa burt frá Ekaterinburg í
Rússlandi 7. júlí 1919, var dóms-
málastjóri þeirrar stjórnar rétt
nýbúinn að rannsaka undir hvaða
kringumstæðum Nikulás Rússa-
keisari og fjölskylda hans mættu
dauða sínum og er hér á eftir eið-
svarið eftirrit af skýrslu þeirri.
“Til Monsieur le Gerant, utan-
ríkis ráðherra.
í sambandi við rannsókn þá, er
vér samkvæmt umboði höfum ver-
ið að halda til þess að komast að
hinu sanna um morð Nikulásar II.
og fjölskyldu hans, þá höfum vér
komist að eftirfylgjandi atriðum í
því máli.
Fyrstu dagana í ágústmán. 1917
var keisarinn fyrverandi og fjöl-
skylda hans færð frá Tsarskoe-Selo
og til Tobolsk, samkvæmt skipun
frá bráðabirgðar stjórninni, og þar
dvöldu þau þar til í aríl 1918 En
þá kom skipun frá höfuðnefnd um-
boðsmanna (deputies) verkamanna
og hermanna um að fjölskyldan
yrði tafarlaust að flytja sig til
Ekaterinburg, þar sem þau ættu að
búa framvegis.
En þá vildi svo til, að sonur keis-
arans, Alexis Nicholasovitch, var
veikur og ekki ferðafær, svo það
varð að samkomulagi, að hann yrði
eftir í Tobolsk ásamt systrum sín-
um og öðrum vinum. En keisarinn
og keisarainnan og stórhertogafrú
Marie Nicholaevna ásamt prins
Dalgorukof, prófessor Botikine og
þjónarnir Tchemurof Sednef og De-
midsowa lögðu á stað, og þegar þau
komu til Ekaterinburg var þeim
fengið hús til búðar, er maður að
nafni Ipatief hét átti, og þar var
þeim haldið sem föngum.
22. maí það sama ár kom hinn
partur fjölskyldunnar, börn keisar-
ans, á samt nokkrum kunningjum
þeirra og þjónum, til Ekaterinburg.
Frönsku kennarinn M. Pierre
Gillard, er var einn af þeim sem
með börnum keisarans kom, full-
yrðir, að keisarafrúin hafi haft
með sér alt gull og gimsteina keis-
araættarinnar og að það hafi verið
falið í fötum fjölskyldunnar, ým-
ist saumað í hatta eða annan
klæðnað kvenna.
í júní 1918 komst soviet stjórnin
í Ekaterinburg að því, að það væri
ekki óhætt að undirhalda keisara-
fjölskylduna lengur, og eina ráðið
væri að ráða hana af dögum.
Og frá þeim degi að þessi sam-
þykt var gerð, byrja sögurnar um
morðið annars vegar, og á hinn
bóginn um það, að keisarafjöl-
skyldan hefðði verið send til Ves-
koturief eða Perm. En allar þær
upplýsingar, sem vér höfum getað
fengið, sanna, að fjölskyldan var
myrt en ekki falin.
17. júlí voru bændur tveir, sem
heima áttu í bæjunum Koptiak og
Verknie-Isset, á ferð. peir hétu
Andrew Chemetiewsky og Michael
Alferof. Sjá þeir, að tjöld her-
manna rauðu hersveitarinnar höfðu
verið reist í tólf mílna fjarlægð frá
Ekaerinburg og furðuðu sig mjög
á því fyrir þá sök, að þeirra var
þar engin von. Tjöld þessi voru
reist í skóginum rétt með fram
veginum, sem menn þessir fóru eft-
ir. pegar ferðamennirnir komu til
baka, eftir tiltölulega stuttan tíma,
voru hermennirnir farnir, svo þeir
gengu þangað sem tjöldin höfðu
verið, en fundu í fyrstu ekkert
einkennilegt. En svo komu þeir
að eldstæði, þar sem allmikið bál
hafði verið kveikt. peir rótuðu til
öskunni, sem ekki var orðin köld,
og fundu þar kross, settan emerald
steinum, og nbkkrar hvalbeins stíf-
ur úr kvenbolum, og hringjur af
axlaböndum, ásamt leifum af
kvenskóm og hnappa.
Skamt þar frá voru nokkrir
gamlir brunnar, sem sumir voru
hrundir saman. ) Við þá fundu
menn þessir göngustaf, börk af
planka, lim, sem nýhöggvið var af
trjám, og svo skóflu, sem þar hafði
verið skilin eftir.
Dómarinn, sem sérstaklega rann-
sakaði þessa staði, fann kven hand-
tösku við brunna, sem vanalega
eru nefndir “Isset námur”, leifar
af mjög vönduðum blaðborða og
brunaleifar, sem voru svartar að
lit og glitraði á.
Hann fann þar og máð brot af
emeröldum og perlum, bunka af
fötum, sem olíulykt virtist vera af,
grænan stein settan í platínum, er
við athugun vel þekts sérfræðings
kom í ljós að var demantur, sem
var 100,000 rúbla virði ($50,000);
og þessi sami sérfræðingur komst
líka að þeirri niðurstöðu, að steinn
þessi hefði verið í mjög dýru og
vönduðu hálsmeni.
í kring um brunna þessa eða
námur fundust allstaðar merki til
þess, að skotfæri höfðu verið brúk-
uð og niður í brunnana sjálfa hafði
sprengikúlum, sem hermenn kasta
(hand grenades) verið fleygt.
Eftir að vatnið hafði verið dælt
úr þessum brunnum og sandurinn
og moldin, sem inn hafði fallið,
tekin í burtu, fanst fingur af
mannshendi, falskar tennur, part-
ar úr sprengikúlu, hálsnæla og
ýmislegt fleira.
Maður þekkir gripina.
pessa gimsteina og það annað,
sem fundist hafði, sýndum vér M.
Pierre Gillard, og hann fullyrti, að
demantinn hefði verið í hálsmeni,
sem saumað hefði verið í föt Olgu
eða Titiana Nicholaena. Eyrna-
lokkur perlusettur, er einnig fanst,
sagði sami maður að væri alveg
eins og eyrnalokkar, sem keisara-
frúin hefði brúkað. En tennurnar
þekti annar maður, að nafni Dere-
venko, og sagði að Dr. Botkine
hefði átt þær.
Rannsóknarnefndin hafði. með
sér myndir af ýmsum af gimstein-
um keisara-ættarinnar, þar á með-
al af eyrnalokkum keisarafrúar-
innar; og eftir nákvæman saman-
burð á þeim sem fanst við þá mynd,
virtist ekki .hinn minsti vafi leika
á því, að þar er um að ræða eyrna-
lokka keisarafrúarinnar.
Hinn eyrnalokkurinn fanst ekki,
hversu sem leitað var, en perlubrot
fundust, sem sérfræðingar segja
að séu úr eyrnalokk af sömu gerð
og þeim, sem fanst.
í sambandi við fingurinn, sem
fanst, hafa læknar þeir, er skoðað
hafa, komist að þeirri niðurstöðu,
að hann sé af kvenmannshönd, er
hafi verið sérstaklega vél hirt.
Við nákvæma skoðun á húsi því,
sem keisarafjölskyldan bjó í, kom
það í Ijós, að inn í eitt herbergið á
eftsa lofti hafði verið brotist;
mörk eftir byssustingi og byssu
skefti voru auðsæ, og seinast hafði
kveldið áður en morðið á að hafa
verið framið. Klukkan 8 að morgni
sagði hann að annar maður hefði
tekið sitt pláss, en hann hefði ver-
ið sendur á annan stað, sem kall-
aður var varðstaður númer 4. peg-
ar hann kom þangað, sá hann sér
til mikillar undrunar standa þar
pUt, sem áður hafði verið í þjón-
ustu keisarans. Hann sagðist hafa
spurt varðmanninn, sem þar var
fyrir, hví pilturinn væri þar.
En varðmaðurinn svaraði að eins
með því að banda út hendinni.
Annar varðmaður sagði honum, að
keisarinn, keisarafrúin, og börn
þeirra, þjónar og nokkrar þjónustu
konur drotningarinnar, hefðu ver-
ið skotin þá um nóttina. •
Varðmaðurinn, sem þetta sagði,
þóttist hafa það eftir hermanni úr
Rauðu hersveitinni, er Stekorine
héti, og sem verið hefði á verði þá
um nóttina. Hefi þðessi sami Ste-
korine sagt frá því, að yfirmaður
þeirra, Lurowskey, hefði lesið eitt-
hvert skjal upp fyrir keisaranum
og drepið hann svo á eftir, og rétt
í sörnu andránni hefði keisarafrúin
og elzta dóttir hennar gert fyrir
sér krosmark.
Eftir að búið var að skjóta keis-
arann voru hin tekin fyrir, og þeg-
ar búið var að skjóta fjölskylduna
og áhangendur hennar, sem þar
voru með þeim, var blóðið þurkað
upp af gólfinu og sandi síðan stráð
á það, en líkamirnir voru teknir og
látnir í stóran flutningsvagn (bif-
reið), sem fór tafarlaust með þá í
burtu.
Síðar hafði vitnið heyrt, að pilt-
urinn, sem var hjá keisarahjónun-
um, hefði verið sendur til Tsarskoe-
Selo og að Medvedef hefði haldið
til vígstöðvanna strax eftir að
verknaðurinn var framinn, ásamt
öðrum hermönnum, er verið höfðu
í Ekaterinburg.
Kona Paul Medvedef lýsti líka
þessu hryðjuverki, og sagði hún
að maðurinn sinn hefði tekið þátt
í því, og er hún var spurð hvernig
hún vissi það, sagði hún að hann
hefði sagt >sér það.
Hin grimdarfulla aftaka.
Einna eftirtektaverðust var lýs-
ing konu að nafni Capitoline Ogaf-
onova á þessu ódáðaverki, og hafði
hún hana eftir bróður sínum. Ana-
tole Iakimof, er var einn af varð-
mönnunum er vörð héldu við Ipati-
efhúsið þetta kvöld.
í júlí, sagði hún, kom Anatole
Iakinof að heimsækja mig kvöld
eitt; hann var fölleitur í andliti
og mjög þreytulegur, og spurði
hún hann hvernig á þvi stæði. pá
sagði hann henni hvernig Nikulás
' Packet of
WILSONS
FLY PADS
WILL KILL M0RE FLIES THAN
v $8°-WORTH OF ANY
r STICKY FLY CATCHER
Hi-ein í meðferð. Sclil í hverrt lyfja-
búð og matvörnhúsum.
Business and Professional Cards
HVAÐ sem þér kynnuS aS kaupa
af húsbúnaði, þá er hægt að
semja við okkur, hvort helúur
fyrir PENINGA ÚT I HÖND eða að
LÁNI. Vér höfum ALT sem til
húsbúnaðar þarf. Komið og skoðið
hurðin verið brotin af hjörunum, Romanoff, fjölskylda háns og þjón-
með einhverju verkfæri, sem ekki
var gott að gera sér grein fyrir
hvað var.
Á neðra gólfinu (húsið var tví-
lyft), í herbergi gegnt dyrunum,
ustufólk hefði verið ráðið af dög-
um.
pað var klukkan eitt um nótt-
ina,” þannig byrjaði hann sögu
sina, “að allir fangarnir voru vakt-
þar sem oss þykir sennilegt að ó-, jr upp og skipað að koma ofan á
dáðaverkin hafi verið framin, sá- neðra gólf i húsinu. Eftir dálitla
um við sex holur í veggnum, sem
auðsjáanlega voru eftir byssukúl-
ur. Holur þessar voru mishátt í
veggnum og einnig var mislangt
á milli þeirra.
Slík kúluför sáust líka í gólfinu
til vinstri handar við förin í veggn-
um og þar sáust líka blóðslettur,
sem reynt hafði verið að þvo af.
Vér skoðuðum för þessi í veggnum
og gólfinu mjög nákvæmlega, og
gat enginn vafi leiki^S á því að þau
voru eftir byssukúlur, enda mátti
sjá vott af storknu blóðu í sumum
þeirra. Eftir iþví hvernig för þessi
eru í veggnum og á gólfinu leynir
það sér ekki, að nokkrar persónur
hafa verið skotnar þarna. Sumar
hafa staðið upp við vegginn og ver-
ið misháar, en aðrar hafa verið
skotnar liggjandi á gólfinu.
Og á einum veggnum í þessu
sama herbergi er skrifað á þýzku
af manni, sem illa kunni að draga
til stafs:
“í nótt var keisarinn skotinn.”
Framanskrifað eru þær beinu
sannanir, sem vér höfum höfum til
þess að byggja þá staðhæfingu
vora á, að keisara-fjölskyldan hafi
verið myrt.
Auk þess höfum vér yfirheyrt
fjölda vitna og fylgir vitnisburð-
ur þeirra:
Framburður vitna.
Hermaður úr Rauðu hersveit-
inni, að nafni Letemine sem yfir-
heyrður var í september, hefir í
fórum sínum og lagði fram í rann-
sóknarréttinum muni, sem keisara-
fjölskyldan átti. Suma þeirra sagð-
ist hann hafa tekið, þegar hann
var að hreinsa út Ipatiefhúsið, en
suma sagði hann að bróðir sinn,
sem líka væri hermaður í Rauðu
hersveitinni, hefði gefið sér. Late-
mine sagðist hafa verið einn af
þeim, sem héldu vörð um Ipatief-
húsið, og lýsti all-nákvæmlega fyr-
irskipunum þeim, sem þeir hefðu
orðið að fara eftir.
Enn fremur sagði hann nöfnin á
hinum varðmönnunum, sem með
honum voru þar, þar á meðal af
yfirmanni sínum, Lurowsky, og
aðstoðarmanni hans, Paul Med-
vedef.
Letemine sagðist hafa verið á
verði við framdyr Ipatief-hússins
kvöldi 18. júl 1918, það er að segja
stund komu þeir allir. peim var
sagt, að fjandmennirnir mundu
ingu, að hann gat ekki á heilum
sér tekið; augun virtust stærri og
meira starandi heldur en þau áttu
að sér. Neðri vörin skalf í hvert
■sinn sem hann talaði og það leyndi
sér ekki, að hann hefir orðið að
ganga í gegn um einhverja óskapa
eldraun nóttina áður.”
Vitnisburður hermanns úr Rauðu
hersveitinni.
Annar hermaður úr Rauða hern-
um, Prokonyi Kontenkof að nafni,
sem einnig var á verði við Ipatief-
húsið, sagðist hafa orðið var við
Sergius Parlovich, Peter Eupera-
kof og fleiri af leiðtogum Bolshe-
viki manna, 18. og 19. júlí. peir
hefðu verið í samkomuhúsi verka-
manna við Efra Isset. peir virtust
vera eitthvað öðru vísi en þeir áttu
að sér, og var framkoma þeirra af-
ar einkennileg, segir þessi maður,
og hann sagðist muna slitring af
samtali þeirra, og á meðal þess sem
hann heyrði, var þetta:
“pað var þrettán alls. Doktor-
inn var sá þrettándi.” pegar sá,
er þetta sagði, hafði lokið við þessa
málsgrein varð hann var við vitn-
ið og færði sig fjær ásamt þeim,
sem hann var að tala við. En vitn-
ið fór á eftir þeim og faldi sig þar
sem þeir sáu hann ekki. par hélt j
þessi sami maður áfram: “Við
höfum verið að fárast út af þessu |
í tvo daga; þau voru grafin í gærj
og svo aftur í dag.” Og af sundur-1
lausu og sundurslitnu samtali þess-
ara manna, eins og það barst hon-
um til eyrna, komst hann að þeirri
niðurstöðu, að þeir af þessum Bol-
shevika leiðtogum, Levatine, Par-
tine og Kastousof, hafi verið við
og hjálpað til þess að grafa keis-
arann og fólk hans eða að koma
því fyrir.
Maður að nafni Krivizof hafði
borið fram spurningu og hafði
mátt sjá á látbragði Levantine og
Partine að þeir þóttust hafa vax- ^
ið af þessu verki sínu.
Vitnið sagðist og hafa heyrt
Levatine isegja: “Líkin voru ekki
orðin köld, þegar við komum. Eg
snerti á keisarafrúnni og frá því
augnabliki eru syndir mínar mér
fyrirgefnar og pú get eg dáið í
friði.”
peir töluðu um hve margir
hefðu verið í hópnum, um það
hvernig það hefði verið klætt og
0VER-LAND
HOUSE FURNISHING Co. Ltd.
580 Main St., hoini Alexander Ave.
GOFINE & C0.
Tals. M. 8208. — 322-332 JEUlce Ave.
Hornlnu & Hargrave.
Verzla meC og vlrfia brúkaBa hús-
muni. eldstór og ofna — Vér kaup-
um, seljum og skiftum & öllu sem er
nokkurs virM
J. J. Swanson & Co.
Verala meft fagteignir. Sjé um
leigu á húsum. Annaat lén og
eldsábyrgftir o. fl.
808 París Buildlng
Phone Main 2596—7
A. G. CARTf R
úrsmlður
Gull og sllfurvöru Mopmaéur.
Selur gleraugu yif tllra bæfi
krjátlu S-ra reyn^ t I öllu sem
aö úr hringjum . g ööru gull-
stássi lýtur. — O- rlr viB úr og
klukkur á styttr tlma en fðlk
hefir vanist.
206 NOT’RE f 1AME AVE.
Sími M. 4529 - tVtnnipeg, Man.
Dr. R. L HURST,
•mber oí Roj J Coli. of Surgeonii
L, utskrlfabv t af Koyal Coliege o>
PWslclans, L• don. SérfræCingur 1
brjðst- tauga og kven-sjökdðmum
—Skrlfst 3ur Kennedy Bldg. Portagr
Vve. , ' raðt Katon’s). Tala. M 814
Helmh M. 2«9«, Tlmt tll vlCtals
kl. 2—, og 7—8 e.h.
F
G.&H.
TIRE SUPPLY CO.
Sargent Ave. & McGee St.
Phone Sher. 3631 - Winnipeg
Gert við bifreiðar Tires;
Vulcanizing og retreading sér-
stakur gaumur gefinn.
pað er ekkert til í sambandi
við Tires, sem vér getum eigi
gjört.
Vér seljum brúkaða Tires og
kaupum gamla.
Utanbæjarpantanir eru af-
greiddar fljótt og vel.
Iilenzk vinnustofa
AtSgerð bifreiBa, mðtorhjðla og
annara relBhjðla afgreidd njðtt og vel
Einnig nýjir bifreiBapartar ávalt viB
hendina. SömuleiBis gert viB flestar
aBrar tegundir algengra véla
S. EYMtTNDSSON,
Vinnustofnr 647—649 Sargent Ave.
Bústaður 635 Alverst-one St.
Reiðhjól, Mótor-hjól og
Bifreiðar.
Aðgerðir afgreiddar fljótt og
vel. Seljum einnig ný Perfect
reiðhjól-
Skautar smíðaðir, skerptir og
endurbættir.
J. E, C. Williams
641 Notre Dame Ave.
innan skamms koma til Ekaterin- um minjagripi þeirra, og sagði
burg og að afráðið hefði verið að
taka þá af lífi.
Nokkrum mínútum síðar riðu af
skot, og var keisara erfinginn
fyrst skotinn, en hitt fólkið var
að eins sært”, og Iakimof hélt á-
fram, “þess vegna þurftum við
að gera út af við það með byssu-
styngjum og byssuskeftum.” Ein
þjónustukona keisaradrotningar-
innar reyndist lífseigust; særð
eins og hún var dró hún sig á bak
við súlu þar í herberginu og varð-
ist þaðan, og þegar loksins hún
hné dauð, þá töldum við þrjátíu
og tvö sár á henni.
pað leið yfir stórhertogainnu
Anastasiu Nicholaovna, og þegar
við fórum að leita á henni, rakn-
aði hún við og tók að hljóða alt
hvað af tók, og því hélt hún á-
fraih þar til við þögguðum niður
í henni með byssuskeftunum og
byssustyngjum okkar.”
Að horfa upp á ódáðaverk þetta
sagði Iakimof að hefði verið svo
andstyggilegt, að hann hefði
neyðst til að fara út svo hann ekki
misti jafnvægið með öllu.
Og Kapitoline Agafonova bætti
við: “pað er ómögulegt annað en
trúa sögu Anatole Iakimof, því um
kvöldið sem hann kom til að kveðja
mig — kveldið eftir að morðin voru
framin—, var hann alt öðru vísi en
hann átti að sér að vera. Hann var
svo yfirkominn af einhverri skelf-
Partine, að það hefði alt verið
húið eins og vanalegir borgarar,
og menajgripir þeirra, gimsteinar
og gullstáss hefði verið saumað í
föt kvenfólksins. Og hann tók
það og fram, að engin kvenpersón-
an hefði verið lagleg.
Vitnið hafði og heyrt þessi-orð.
pað sagði okkur, að ríkiserfinginn
hefði dáið í Tobolsk, en hann var, nefndin heldur fundið eina ein-
tæplega sé hægt að efast lengur
um að það hafi farm farið.
pó eru til nokkrir, sem halda
því fram, að fjölskyldan hafi ekki
verið myrt, heldur flutt frá Ekat-
erinburg og til Perm eða Verkot-
urief. pess vegna var rannsókn-
inni beint í þá átt, en þessi orð-
rómur hefir ekki reynst ábyggi-
legur, og ekki hefir rannsóknar-
Dr. B. J. BRANDSON
701 Lindsay Building
Tki.bphonk oarki 390
Offick-TIm.ar: a—3
Hoimili: 776 Victor St.
Telephonk oakrv 381
Winnipeg, Man.
Dagtals. St. J. 474. Næturt SL J. 8««
Kalll sint á nött og degi.
D R. B. GERZABEK,
M.R.C.S. frá Englandi, L.RC.P. frá
London, M.R.C.P. og M.R.C.S. frá
Manltoba. Fyrverandi aBstoBarlæknir
viB hospltal I Vlnarborg, Prag, 0«
Berltn og fleiri hospltöl.
Skrlfstofa á eigin hospltall, 415—417
Pritchard Ave., Winnipeg, Man.
Skrtfstofutlmi frá 9—12 f. h.; S—•
og 7—9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks eigið bospítul
416—417 Prltchard Ave.
Stundun og læknlng valdra sjök-
linga. sem þjást af brjöstvelkl, hjart-
veiki, magasjúkdömum, innýflavelkl.
kvensjúkdömum, karlmannasjúkdöm-
um.tauga veiklun.
Vér leggjuin sersiaKs anerziu a at
selja nieSöl eftlr forskrlttum læk.,a
Hir. beztu lyí, sera hægi er aB fá
eru notuS elngör.gu. ýegar þér kointB
meB forskrlftina tll vor, megiB j/éi
vera viss u.n aB fá rétt t>aB »om
læknirlnn tekur til.
COI.CLEOGB A CO.
Notre Dame Ave. og Slierbrooke 81
Phones Qa>-ry 2*90 og 2691
Glftlngaleyftshréf «elo
THOS. H. J0HNS0N og
HJÁLMAR A. BERGMAN,
fsienzkir lógfraePingar,
Skrifstoka:— Boom 811 McArtbnr
Building. Ponage Avenue
áritun: P. O. Box 1658.
Telefónar: 4303 og 4504. Winnipeg
Hannesson, McTavishfif Freemin
lögfræðingar
215 Curry Building, Winnipeg
Talsími M. 450
peir félagar hafa og tekið að
sér lögfræðistarf B. S. Ben-
sons heit. í Selkirk.
Dr. O. BJORNSON
701 Lindsay Building
rKl.KI>IIONE,OARRV 32t
Office tímar: 2—3
HKIMILI:
7 64 Victor St, ®et
rSLEPUONEi QARRV TOS
WÍHnipeg, Man.
Dr- J. Stefánsson
401 Bðyd Building
C0R. P0RT/\CE A»E. & EOMOjlTOjl *T.
Stundar eingöngu augna, eyina, nef
og kverka sjúkdóma. — Er að hitta
frákl. I0 I2 f. h. eg 2 5 e. h.—
Talsimi: Main 3088. Heimili 105
OliviaSt. Talsími: Garry 2315.
TaU. M. 3142
G. A. AXF0RD,
Málafcrrslumaður
503 P ARIS BUILDING
Winnipeg
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Building
Cor. Portage Ave. og Edmonton
Stundar eérstaklega berklaeýkl
og aBra lungnaajúkdóma. Br aB
finna á skrlfstofunni kl. 11_
12 f.m. og kl. 2—4 c.m. Skrif-
stofu tals. M. 3088. Heimill: 46
Alloway Ave. Talsiml: Sher-
brook 3168
einn af þeim.
“Einhver spurði að,” sagði vitn-
ið, “hvar keisarafjöMcyldan hefði
verið grafin. Fyrst sagði það að
talað hefði verið um tvo staði á
bak við aðra vagnstöðina í Ekat-
erinburg; svo hefðu þeir tekið þau
þaðan og fært í annan stað, en
yitnið sagðist ekki hafa heyrt þá
segja, hvar sá staður væri.
.... Flutnings bifreiðarnar.
Auk þess sem að framan hefir
verið sagt, þá sannaðist að þessa
sömu nótt fóru margar bifreiðar
frá Ikatief-húsinu. Enn fremur
sagði yfirmaður Leonof að vista-
stjóri Bolshevikimanna á her-
stöðvum Gorbunof hafi sent fimm
flutnings bifreiðar til Ekaterin-
burg og að þær hafi komið til
baka þann 19.allar forugar og með
blóðblettum, þrátt fyrir það þótt
sjáanleg tilraun hefði verið gerð
til þess að þvo blóðið af. En
þrátt fyrir það, þótt sönnur hafi
verið færðar á morð þetta, svo
DR. O. STEPHENSEN
Telephone Garry 798
Til viðtals frá kl 1—3 e. h.
heimili:
615 Banatyne Ave., Winnipeg
Joseph T. 1 horson,
íslenzkur Lögfraðingur
Heimili: 16 Alloway Court,,
Alloway Ave.
MESSRS. PHILLJPS & SCARTH
Barristers, Etc.
201 Montreal Trust Bldc., Winnipeg
Pbone Main 512
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VBRKSTŒÐI:
Horni Toronto og Notre Pame
Phone —: Hetmllt*
Qarry 7988 Oarry 89*
Kaupið
Kolin
Undireins
pér sparið með því að knupa undir eins.
AMERISK HARDKOL:
EGG, PEA, NUT, PEA stærðir Vandlega hreinsaðar
REGAL I.INKOL
LUMP and STOVE stærðir
Ábyrgst Hrein — Sótlaus, Loga Alla Nóttina
D. D. WOOD & SONS, Ltd.
TELEPHONE: GARRY 2620
Office and Yards: Cor. Ross and Arlington Sts.
ustu manneskju, sem sjálf varð
vör við eða sá fjölskylduna flytja
frá Ekaterinburg.
Atriðin, sem hér að framan
dregin fram, eru sannanir þær,
sem rannsóknarnefndin byggir á
ályktanir sínar um að morðið hafi
verið framið. Nýlega höfum við
tekið í okkar hendur öll skeyti,
sem nefnd þingmanna, bænda og
verkamanna sendi til yfirboðara
sinna um þetta leyti. Símskeyti
þessi öll verða nákvæmlega skoð-
uð við fyrsta tækifæri, og ætti þá
að sannast, hver afstaða embætt-
ismannanna þar á staðnum og
eins yfirboðara þeirra hefir verið
í þessu máli. (
Enn fremur er vert að geta
þess, að einn af þeim mönnum,
sem aðalþátt tóku í verkinu, Paul
Medvedef, verður bráðlega yfir-
heyrður, og vonast rannsóknar-
nefndin eftir þvá, að hægt verði
með því vitni að sanna, á hvern
hátt morðið fór fram og eins það,
hvað gert hafi verið við líkin.
Dómsmála ráðherrann hefir
látið sig þessa rannsókn miklu
varða og hefir gert sitt ýtrasta til
þess að flýta fyrir henni; til þess
að stjórna henni valdi hann dóm-
ara, sem er reyndur og þektur,
Peter Sokolof.
Allir munir, sem fundist hafa
og voru eign keisarafjölskyldunn-
ar, eru vandlega varðveittir, því
þeir hafa ekki að eins þýðingu
fyrir þetta rannsóknarmál, held-
ur hafa þeir og sögulega þýðingu
Staryn Kevitah,
dómsmála ráðherra.
Að ofanritað sé nákvæmt og
satt eftirrit af frumskýrslunni,
vottar,
N. Nikiforof,
aðstoðarm. dómsmálaráðherra.
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Somemet Block
Cor. Portage Ave. eg Donald Street
Tals. main 5302.
BIFKEIÐAR “TIRES”
Goodyear og Dominion Tires ætlB
4 reiBum höndum: Getum út-
veg»B hvaBa tegund sem
Þér þarfnist.
Aðgerðum og “Vulcanizlng” sér-
stakur ganmur gefinti.
Battery aBgerBir og bifreiBár til-
búnar til reynslu, geymdar
og þvegnar.
AlíTO TIRE VULCANIZING CO.
309 Cumberland Ave.
Tals. Garry 2767. OplB dag og nött.
A. S. Bardal
843 Sherbrooke St.
Selur likkistur og annait um utfarir.
Allur útbúnaður só bezti. Ennfrem-
ur selur hann alskonar minnisvarfta
og legsteina.
Heimilis T«N Qarry 2181
ftkrifisto'fu Talt. - Qarry 300, 376
Giftinga og . w
Jarðarfara- D,om
með litlum fyrirvara
Birch blómsali
616 Portage Ave. Tals. 720
ST JOHN 2 RING 3
Verkstofu Tals.:
Garry 2154
Ileim. Tals.:
Garry 2949
G. L. Stephenson
PLUMBER
Allskonar rafinagnsáhöld. svo sem
straujárn víra, allar tegundlr af
glösum og aflvaka (batteris).
VERKSTDFA: 676 HDME STREET
J. H. M
CA RSON
Byr ti!
Aiiskonar ltmi fyrir fatlaða menn,
einnig kviðslitaumbúðlr o. fl.
Tulsími: Sh. 2048.
338 COLONY ST. — WINNTPEG.
JOSEPH TAYLOR
LÖGTAKSMAÐUR
Heimilis-Tals.: St. .lohn 1844
Skrifstofu-Tals.: Mabi 7978
Tekur lögtakl bæBi húsaleiguskuldir,
veBsrfuldir, vixlaskuldlr. AfgrelBir alt
sero aB lögum lýtur.
Skrifstofa, 255 Main Strat
Veikin fer ekki fram
hjá.
Það má teljasta vafalaust,
að “flúin” geri vart við sig á
komanda vetri. Árið sem leið
dóu svo margir úr drepsótt-
inni, að sjaldan. hefir betur
blætt. Það er því lífsnauðsyn-
legt að vera á verði og berjast
hraustlega . Heilbrigðis full-
trúar allra stærstu borganna
eru sí og æ að hetj menn til
varkárni og brynjast gegn ó-
vætti þessum. Hið öruggasta
ráð er að halda inn>’flunum
hreinum. Triner’s Américan
Elixir of Bitter Wine er ó-
brigðult í þessu tilliti og bvgg-
ir varnarimír sem engir sjúk-
dómar komast inn yfir. Ilafið
liann ávalt á heimilinu og einn-
ig Triner’s Angelioa Bitter
Tonic, sem er sérlega gott
meðal ef “flnin” kynni að
drepa á dyr hjá þér aftur. —
Þessi ineðul fást í öllum lvfja-
búðum. — Joseph Triner Com-
,pany, 1333-1343 S. Ashland
Ave., Chicago, 111.