Lögberg - 16.10.1919, Blaðsíða 2
Bls. 2
LÖGBERG, FiivíTUDAGINN 16. OKTÓBER 1919
Uppskurður varð
ekki nauðsynlegur
Rœða
“FRUIT-A-TIVES” KOM HENNI
TIL FULLRAR HEILSU
123 Papineau Ave., Montreal.
“í þrjú ár hafði eg þjáðst mjög
af innanþrautum, ásamt bólgu og
uppþembingi. Eg hitti læknir, er
ráðlagði uppskurð, en eg neitaði
Eg heyrði um “Fruit-a-tives” og
ákvað að reyna það.
Mér batnaði strax nokkuð við
fyrsta skerfinn; og held áfram að
nota það. Nú er eg stálhraust og
flyt “Fruit-a-tives” mínar beztu
þakkir.” Mme. F. Gareau.
Hylkið á 50c., 6 fyrir $2.50 og
reynsluskerfur á 25c. Fæst í öll-
um búðum og gegn fyrirfram
borgun frá Fruit-a-tives, Limited,
Ottawa.
^ra Einars Friðgeirssonar á Borg
á 50 ára afmæli kauptúnsins
í Borgarnesi, 22. marz 1917
Eg hefi nú þulið það, sem eg veit
: um Borgarnes fram að þeim tíma,
S að löggiltur var verzlunarstaður á
| Borgarnesi við Brákarpoll í Mýra-
; syslu. En það skeði Anno Domini
11867, 22. marzmánaðar, með allra-
j mildilegustu opnu bréfi. Ekki var
■ þó bygt þar neitt íbúðarhús í næstu
j 10 ár. petta 10 ára tímabil leyfi eg
| mér að nefna lausakaupatímabilið.
I pá var rekin allmikil verzlun hér
á skipum úti. pað voru alt segl-
skútur. Lágu þær ýmist svín-
bundnar inni á Pollinum (c. höfðu
kaðla á bæði lönd) eða þær lágu
við akkeri úti á núverandi legu, ef
fleiri voru en svo, að rúmast gætu
á Pollinum. Að minsta kosti síðari
ár þessa tímabils munu vanalegast
hafa komið 6 skip á hverju sumri
til lausaverzlunar. Gengu lausa-
kaupin oft fjörugt um borð, þegar
gott var veður, en ef hvesti, varð
mörg jómfrúin að kasta fyrir borð
með sorg og harmkvælum sælgæt-
inu, sem búðarmennirnir höfðu
gætt henni á. Fremur var þá
sumblsamt um borð, ef mælt væri
með templara mæli, en víst þótti
það ekki tiltökumál þá. Á þeim tím-
um, sem engin verzlunarskip voru
hér, var alt með kyrrum jörum og
varla önnur umferð erí smalarnir
frá Borg og stöku sjófarendur á
opnum bátum, sem lentu þar, ef
illa stóð á sjó eða þeim þótti hag-
kvæmt að geyma skip sitt hér.
Lausakaupmenn borguðu 20 kr.
fyrir hvert skip til Borgarábúand-
ans, en Nesið hafði ekkert gott af
þeim, en ilt eitt. Landið blés upp
vegna átroðnings. Fugl og selur
flúði alveg burt. Og hvað sela-
veiði snerti, var það tilfinnanleg-
ur skaði.
Sama árið og Nesið var löggilt
(1867), 11. júlí um sumarið, var
S. Jakobsen & Co. leigður “Skalla-
grímsdalur við Brákarpoll, hlíða á
j milli og frá fjalli til fjöru, til að
! setja þar verzlunarstað.” Aldrei
bygði þetta Jakobsens-félag, og
j fékk enginn annar útmælda lóð
til verzlunar fr en 4. sept. 1873;
þá var Pétri Péturssyni, líklega
þeim, er síðar varð bæjargjaldkeri
í Reykjavík, útmæld lóð á Suður-
nesklettunum, þar sem Jónarnir
verzla nú, en aldrei bygði þessi
Pétur, og var sú hin sama lóð,
með hækkuðum leigumála því næst
leigð “Akra-Jóni”, sem fyrstur
varð til að byggja hér verzlunar-
hús og íbúð. En það var ekki fyr
en sumarið 1877. í skýrslu prests-
ins að Borg, séra Guðm. Bjarna-
sonar, til biskups um tekjur hans
árin 1872—1877, stendur þessi
málsgrein: “Enn fremur hefir
hér verið bygt íshús, og lóðartoll-
ur fyrir það í fimm, sem samið er
um að þa veri nota, er 60 kr. um
árið. Nú hefir það gjald ekki ver-
ið borgað nemaf yrir fyrsta árið,
þar eð það hefir ekki verið notað
lengur en það eina ár.” (Dags. 24.
febr. 1878.) petta mun verið
hafa íshús, sem Englendingur að
nafni Moses(?), frá Browman &
Co. í Hull, bygði til að geyma í ís.
Hann fékst við að flytja út kæld-
an lax. Viðina úr þessu húsi
flutti hann eftir eitt ár inn að
Ferjuokti og setti þar upp sams-
konar íshús. — En á undan þess-
um Englendingi hafði annar Eng-
lendingur, Ritchie (?) að nafni,
Peaterhead, sett upp skúr í Borg-
arnesi. Hann sauð niður kjöt og
lax. Ekki var hann nema eitt ár
i Borgarnesi, en flutti sig inn að
Grímsárósum í Hvítárvallalandi
og rak þar atvinnu sína í nokkur
ár. — Árið 1881 bygði porsteinn
snikari Hálmarsen lítið íbúðarhús
jkog stóð það þar sem pósthúsið
er nú. Mun þa hafa verið rifið
niður árið 1884 og sett upp aftur
inni á Hvtárósi (“Hólnum”). En
það hið sama ár, 1884, mun Finn-
ur kaupmaður Finnsson hafa bygt.
Hann bygði fyrst þar sem nú eru
kaupfélagshúsin vestari (“Bryde-
húsin”). pað hús hans brann og
bygði hann þá nýtt hús á sama
Copenhagen
Vér ábyrgj-
umst það að
vera algjörlega !
hreint, og það
bezta tóbak í
heimí.
Ljúffengt og
endingar gott,
af því það er
búið til úr safa
miklu en mildu
tóbakslaufl
MUNNTOBAK
Sigurláns-skýrteina Canadaþjóðarinnar
ÞEGAR þú lánar peninga, þá gengurðu fyrst úr skugga
um það, hvort lánþegi sé fær um endurgreiðslu, og
að hann geti greitt þér vöxtu af fé þínu, jafnóðum og
þeir falla í gjalddaga.
Þegar þú lánar Canada peninga þá veiztu, að þeir eru
undir öllum kringumstæðum tryggir.
Sigurlánsskýrteini Canada eru trygð með öllum auðæfum
Canadaþjóðarinnar, öllum iðnaði og öllu því verðmæti, er
liggur í námum, fiskiveiðum, skógum og landi.
Að ummáli er Canada einn þriðji hluti af öllu hinu brezka
veldi; þrjátíu sinnum stærra en United Kingdoms, tvisvar
sinnum stærri en Indland; átján stærðir Frakklands og að
að heita má jafnstórt og öll Norðurálfuríkin til samans.
Canada er stærri en öll Bandaríkin til samans, að meðtöldu
Alaska (stærð Canada 3,729,665 fermílur; Bandaríkin og
Alaska, 3,617,673 fermílur.)
Canada telur yfir 440,000,000 ekrur af byggilegu landi; en
tæpur áttundi partur er enn undir ræktun.
Canada á stærstu og beztu fiskivötn í heimi, sem eru fullar
232,000 fermílur að ummáli.
Canada á yfir 225,000 ekrur af timburflákum, og er auðug-
asta skógland í brezka veldinu.
Námalendur Canada hafa svo að segja tæpast verið snertar
og þó gáfu þær af sér $210,204,970 síðastliðið ár.
Kornuppskeran í Canada hefir tvöfaldast á síðustu fimm
árum—frá $552,771,500 upp í $1,367,909,970.
Canadaþjóðin hefir aukið innstæðufé sitt á Bönkum og í
Pósthúsum um hér um bil sjötíu og fimm af hundraði á
fimm árum, eða frá $1,086,013,704 upp í $1,740,462,509.
Verzlun Canada hefir meira en tvöfaldast á fimm árum —
frá $1,085,175,572 upp í $2,564,462,215. Canada kemur út
úr ófriðnum, sem ein af sterkustu og voldugustu þjóðum
heimsins — með auðæfi sem nema $2,000 á sérhvern karl-
mann, konu og barn í landinu.
Sigurlánsbréf Canada eru beztu verðbréf, sem til eru, bæði
hvað viðvíkur háum vöxtum og tryggingu.
Þar að auki vitið þér það, þégar þér lánið Canada peninga,
að þá eru vextirnir greiddir á hverjum sex mánuðum — og
þér þurfið eigi annað en fara til næsta banka og fá þá út-
borgaða.
Canadiskum borgurum gefst bráðum tækifæri á að kaupa
Sigurlánsskýrteini af nýju.
Þetta verður að líkindum í síðasta skiftið, sem yður gefst
kostur á að kaupa verðbréf Canada með svona ágætum
kjörum.
Búið yður undir kaupin. Trygging allrar Canadaþjóðar
innar er að baki.
"^Si
Vietory Loan 1919
“Hverjum Dollar Eytt i Canada'
Gefið út af Canada’s Victory Loan Committee í samráði við
fjármálaráðgjafa sambandsstjórnarinnar í Canada.
stað og g'eymsluhús nokkru ofark;
við það er nafn ensks fatasala nú
tengt og kallað “Tjernyhús”. Fata-
sali þessi hefir aldrei verið færð-
ur til manntals í Borgarnesi, en
mun hafa verzlað í þessu húsi einn
sumartíma og keypt það. Húsið
stóð svo í mörg ár mannlaust og í
greinarleysi.
Árið 1877 var, sem sagt, fyrsta
verzlunarhúsið og jafnframt í-
búðarhús bygt hér. pað gerði Jón
Jónsson kaupmaður (“Akra-Jón”
var hann oft kallaður). Hann
komst að sámningum við Johan
Lange lýsiskaupmann í Bergen.
Lét Lange hann fá vörur og verzl-
aði Jón fyrst með þær undir sínu
nafni, en síðar lét hann alt af
hendi við Lange, hús og ,vörur.
Keypti hann sér þá hús og búð í
Vesturnesinu, sem Finnur kaupm.
Finnsson hafði bygt; þar verzlar
kaupfélagið nú. pað mun verið
hafa árið 1886. — Fyrsti tómthús-
maðurinn í minni tíð bygði 1891,
og átti hús hans að verða gisti-
hús. pað bygði porsteinn Einars-
son. Nú er það hús rifið og ullar-
þvottahúsið komið í bólið þess.
Fjórða húsið bygði porbergur
porbergsson fjórum árum síðar,
nefnil. 1895, fimta húsið ólafur
Guðmundsson (prestsson) 1897;
sjöunda húsið Teitur Jónsson ár-
ið 1898. Allir þessir fengu út-
mældar 400 fer-faðma lóðir eftir
tómthúsmannalögunum. Nú varð
kyrstaða. Húsunum fjölgaði ekk-
ert í sex ár. En svo fer aftur að
komast rekspölur á. 1904 og 1905
er bygt sitt húsið hvort árið (J.
Svarfhælingur og Gistihúsið).
1906 voru bygð fjögur hús, 1907
ekkert, 1908 fjögur hús, 1909 ekk-
ert, 1910 fimm hús, 19111 tvö hús,
1912 fimm hús, 1913 þrjú hús,
1914 fimm hús, 1915 eitt hús og
ekkert síðan. Alls eru nú 37 í-
búðarhús.
Manntalið óx auðvitað hægt,
eins og byggingarnar. Fyrstu tíu
árin eftir að bygð hófst varð fólk-
ið flest 16 manns í tveimur húsum.
Eftir önnur tíu ár var það orðið
57 menn í 17 húsum, og nú er það
um 280 menn í 37 húsum. — Gjald-
þolið óx fyrsta áratugin núr 45,00
upp í 204,00; annan áratuginn upp
504,00; þriðja áratuginn upp £
991,00, og nú borga 80 gjaldend-
ur 2711,00. — Útlendar vörur eru
nú seldar í Nesinu fyrir 500 þús-
und, og virðingarverð húsa er um
225 þúsund kr. Lóðir undir hús-
um og ræktunarlönd eru leigð um
600 kr. pað er 5 af hundr. renta
af 12 þús. krónum. Enn eru óvirt-
ar allar girðingar og jarðabætur.
Ræktunarlöndin stækka óðum og
koma í gagnið. Mest eru ræktað-
ar kartöflur. Búpeningseign er
álíka og á einu stórbúi í sveit.
Hér vil eg skjóta inn lítilli
grein, sem eg kalla höpp og óhöpp.
—Ekki ætla eg að telja upp hið
heppilega við legu Borgarness, af-
stöðu þess til héraðsins og næstu
héraða, né neitt því líkt. —Happið
mesta er það, hve þrautgóða land-
námsmenn það hefir átt og dug-
lega menn í kaupmannsstöðunni,
því kaupmensku og kaupskap á
Framh. á 7. bls.
LÆRID VJELFRŒDl
VULCANIZING BATTERIES og WELDING
Lærðir bifreiðamenn, gas-dráttvélastjórar, tire aðgerð-
armenn og oxy-welders, fá hátt kaup fyrir vinnu sína Eft-
irsurn eftir slíkum mönnum er margfalt meiri en nemur
þeim fjölda, sem læra slíkar handiðnir. Vér kennum þær til
fullnustu á hinum ágæta skóla vorum. Bezti og fullkomn-
asti skólinn í Canada. Vér höfum komið öllum vorum $25,
000 útbúnaði fyrir í einu lagi I stað þess að láta þá upphæð
dreifast á sjö eða átta skóla.Engin stofnun í Canada jafn-
ast á við skóla vorn eins og hann nú er. Kensluaðferðirnar
hinar beztu sem þekkjast og eftir kröfum tímans. — Hjá
oss má greiða kenslugjald út í hönd eða með afborgunum.
Skrifið til Dept. X.
GARBUTT MOTOR SCHOOL, LIMITED
City Public Market Bldg. CALGARY, ALTA.
Frá Lundúnum kemur sú frétt,
að um 80 ritstjórar og blaða út-
gefendur frá Bretlandi ætli að
koma til Canada í ágúst næsta
sumar og eiga þeir að vera gestir
Dominion stjórnarinnar. Leið-
togi flokksins verður Burnham lá-
varður, eigandi blaðsins Daily
Telegram,’ enn fremur verður
Northcliffe lávarður með í þeirri
för.
Indíána stúlka, að nafni Mat-
ilda Greenleaf, giftist nýlega Kín-
verja, sem átti heima í Cumber-
land I Manitoba. pegar kunn-
ingjar stúlkunnar fréttu um gift-
inguna, stríddu þeir henni svo
mikið, að hún hljóp í burtu og
faldi sig í skóginum. pað síðasta
sem menn vita um hana er, að
hún hafði fengið sér bát og stefnt.
til óbygða eftir Mossy ánni.
==0
WJ
Sparið peninga yðar
með því að kaupa þá fæðutegund, sem
þér fáið mesta næringu úr. í allar bakn-
ingar yðar ættuð þér að nota
(Government Standard)
ird) tI