Lögberg - 23.10.1919, Qupperneq 2
Bl«. 2
LÖGBERG, FiafTXJDAGINN 23. OKTÓBER 1919
ÆFIMINNING
Sigurðar Benedikts Kristjánssonar
pann 11. nóvember 1918 lézt að heimili sínu í íslenzku
bygðinni suðvestur af Morden, Man., einn af okkar efnilegu
ungu bændum, Benedikt Kristjánsson. Hann var sonur þeirra
heiðurshjóna Ólafs Kristjáns-
sonar og Júlíönu Jónsdóttur,
ættuð úr pingeyjarsýslu, og
munu þeir hafa verið systrá-
synir Guðmundur Friðjónsson
skáld og Ólafur. ólafur og
Jú-líana fluttu af Jökuldal á Is-
landi vestur um haf um 1884
og settust að í Garðar-bygð
Norður Dakota, og bjuggu þar
í nokkur ár, fluttust svo í þessa
bygð og bjuggu hér þar til fyr-
ir þremur árum, að Ólafur lézt.
Hjónaband Ólafs og Júlíönu
var eitt með því bezta og heim
ili þeirra viðurkent fyrir gest-
risni og alla góða alúð. — Ólaf-
ur og Júlíana eignuðust mörg
börn og var Benedikt. sál. eitt
af þeim. Systkini Benendikts
sál, sem eru á lífi, eru þessi:
Helgi, giftur og býr í þessari bygð, á föðurleifð sinni; Guðný,
gift Páli Tómassyni, Elfros, Sask.; pórunn, gift Jakob Lindal,
Sylvan, Man.; Kristjana, ekkja Stefáns sál. Goodman, Wynyard,
Sask.; Sigfríður, gift Corp. Ingimar Lindal; Jónína, gift Corp.
John Johnson, og Sigurlína, ógift, allar í þessari bygð.
Benedikt sál. var fæddur 26. júní 1891, í Garðar-bygð í N.-
Dak., og var því að eins 27 ára þegar hann lézt. Hann kvæntist
30. marz 1914 eftirlifandi ekkju sinni, Stefaníu dóttur Jónatans
Lindal frá Miðhópi í Húnavatnssýslu. pau hjón eignuðust tvær
dætur, sem báðar eru á lífi; þær heita: Sæunn Júlíana og Ingi-
björg Linda. Sú eldri var þriggja ára en, sú yngri nærri árs-
gömul, þegar faðir þeirra dó úr spönsku veikinni.
Beneditk sál. var bjartur yfirlitum, stór og karlmannlegur,
sterkur í bezta lagi, enda dró hann ekki af sér, þegar þess
þurfti við, því hann var ætið reiðubúinn að leggja fram krafta
sína öðrum til hjálpar. Hann var stórhuga og stórvirkur.
Næsti nágranni hans sagði við mig, að betri nágranna væri
sér ómögulegt að æskja sér, og með söknuði sagði hann: “pað
er sama hvers hann er beðinn og hvernig ástatt er fyrir hon-
um, þá er hann ætíð reiðubúinn að hjálpa.” pessu líkt getum
við margir sagt. Já, við söknum hans úr okkar íslenzka fé-
lagsskap, því hann tók fullan þátt í að styrkja hann.
Heimili Benedikts sál. var gott og voru þau hjónin sam-
valin í að taka vel á móti gestum sínum, enda höfðu þau Bene-
dikt sál. og Stefanía eignast marga sanna vini, sem og líka
sýndu hinni ungu ekkju hluttekningu og alla góðvild, sem eg
veit hún er af hjarta þakklát fyrir. pað eru þessir hlýju
straumar kærleikans, sem megna að létta byrðina og þerra tárin.
pað er filfinnanlega sárt fyrir vinina og allan okkar fá-
menna íslenzka hóp í þessari bygð, að sjá á bak okkar efnilegu
ungu mönnum. Eg á líka við okkar kæru ungu og hraustu
pilta, sem á vígvelli féllu. En þó að söknuðurinn sé sár vinun-
um, er hann þó sárari móður hins látna, sem er á lífi, og syst-
kinum; en sárastur er hann ekkju hins látna, með litlu dæturn-
ar tvær. *— En guð gefur styrkinn til að standast mótlætið, og
vissan sú, að hann lifir á landinu því, þar sem stormar og ill-
viðri ekki ná til, og hann, sem sagði: “eg fer á undan yður til
að útbúa yður stað”, hann hefir einnig búið þér stað, þar sem
við á síðar fáum að finnast.
Vinur. !
Frá íslandi.
ólafi ísleifssyni lækni í pjórs-
ártúni og konu hans Guðríði Ei-
ríksdóttur voru nýlega færðar
heiðursgjafir frá almenningi vest
an og austan pjórsár. Voru gjaf-
irnar þessar: Vandað skrifborð
með silfurskildi áletruðum, silfur-
bikar með áletrun og 1000 kr. í
gulli á botninum, og kaffitæki úr
silfri með nafni húsfreyjunnar —
Dagsbrún.
Á mánudaginn var (18. ágúst)
lauk loks hinum langvinnu rign-
ingum. pá kom norðanátt með
þurki og kulda, og var einkum
hvast í gær. Sagt er að hey hafi
þá fokið til skaða austur í Mýrdal.
Frá Siglufirði og Eyjafirði er sagt,
að þar séu miklir kuldar, og hafi
snjóað í fjöll. — Síldveiði er þar
nú sem stendur engin, öll skip inni
á höfnum.
HundraíS ára afmæli Jóns Árná-
sonar bókavarðar og þjóðsagnarit-
ara var síðastl. sunnudag, 17. ág.
Var minnisvarði þeirra hjónanna
hér í kirkjugarðinum skreyttur
blómsveigum um morguninn, en
porv. Thoroddsen prófessor flutti
þar stutta minningarræðu, sem
einkum var beint til ættingja og
vandamanna.
(fsafold 25. ág.—5. sep.)
Sjötugsafmæli átti séra Oddgeir
Guðmundsson í Vestmannaeyjum
hinn 11. sept. Sýndu eyjarbúar
honum ýms vináttumerki í tilefni
af afmælinu, enda mun óhætt að
segja hann með allra vinsælustu
kennimönnum landsins. Séra
Oddgeir hefir nú verið þjónandi
prestur í 45 ár og er þó enn ernari
en margir þeir, sem ekki hafa lif-
að nema prestskaparárin hans.
Sæsíminn komst í lag laugar-
dagsmorguninn og var mál til
komið, þótt stundum hafi ver
gengið og lengur dregist.
Sænska stjórnin hefir ákveðið
að senda hingað mjög bráðlega
ræðismann, og ætia þeir því að
stofna alræðismanns skrifstofu í
Rvík líkt og Norðmenn hafa gert
nýlega. Eigi afráðið enn hver
embættið hlýtur. Svíar hafa mik-
inn hug á að auka viðskifti sín við
íslendinga. peir eru oss mjög
vinveittir og það er full ástæða til
þess að gleðjast yfir þessari á-
kvörðun þeirra því hag getum vér
haft af auknum yiðskiftum við þá.
Nefnd sú, er neðri deild hefir
skipað til þess að íhuga þingál.
tillögu Gísla Sveinssoar o, fl. um
undirbúning skilnaðar ríkis og
kirkju, og nefnd er í þinginu
kirkjunefnd, hefir klofnað. Vill
meiri hlutinn, pórarinn Jónsson,
Gísli Sveinsson, Pétur Ottesen og
Björn Stefánsson láta till. ganga
fram, en minni hlutinn, porsteinn
Jónsson, fella hana með rök-
studdri dagskrá.
Austur, í Fljótshlíð eru þeir
að mála Arngrímur Jónsson og
Jón Stefánsson. Ásgrímur hefir
einnig verið í Húsafelli að mála í
sumar, en Jón hefir dvalið í Hlíð-
inni síðan í júlímánuði.
Ágústmánuður hefir ekki gefið
síldveiðurunum gull í mund. Afla
brögðin hafa verið mjög lítil, eink-
anlega á Norðurlandi, en dálítið
veiðist á Vestfjörðum. Sagt er
að um 150 þús. tunnur síldar muni
hafa veiðst alls.
Sðastliðinn mánudag andaðist
Jónas Árnasoh bóndi á Renifelli
eftir langa legu.
Danskur lyfjafræðingur, C.
Pedersen, hefir fengið leyfi hjá
stjórnarráðinu til að reka lyfja-
búð á Eyrarbakka. Hefir hann
nú keypt efni og áhöld til hennar
og mun opna hana með haustinu.
Síðastliðið föstudagskvöid vildi
það sorglega slys til í Kömbum
neðarlega, að vöruflutnings bif-
reið valt um á veginum og beið
ökustjórinn, Einar Kristinsson úr
Hafnarfirði, bana, en farþegi, er
með honum var, Sigurður bóndi á
Hrepphólum, brákaðist mjög á
handlegg og meiddist eitthvað
meira.
Eins og kunnugt er, hafa ýms-
ar breytingar orðið á stjórarfrv.
um laun embættismanna, í neðri
deild. Vilja umboðsmenn embætt-
is- og sýslunarmanna eigi sætta
sig við sumar fyrir hönd umbjóð-
enda sinna og hafa, að þvl er sagt
er, sent efri deild Aiþingis áskor-
un um að lagfæra ýmislegt, sem
telja þetta nauðsynlegt til þess að
þeira finna frv. til foráttu, og
varna því, að starfsmenn ríkisins
leggi niður embætti hópum sam-
an. — pað mun mega teljast áreið-
anlegt, að mikill meiri hluti opin-
berra starfsmanna hefir sumpart
þegar sent og mun á næstunni
senda umboð til að segja af sér
embæbti, ef launamjálinu verður
ekki ráðið til lykta á þann hátt, er
stjórn “Sambands starfsmanna
ríkisins” telur viðunandi. Eftir
áreiðanlegum heimildum getum
vér haft, að um 170 opinberir
starfsmenn hafa þegar tjáð sig
reiðubúna til að leggja niður em-
bætti, ef eigi fást viðunandi
launaviðbætur.— Væntanlega sér
þingið máli þessu farborða og af-
stýrir þeirri hættu, sem nú vofir
yfir, vel og viturlega.
Eins og kunnugt er, hefir síld-
araflinn verið óhemjumikill á
Vestfjörðum í sumar, svo að ald-
rei hefir þar aflast neitt svipað.
Voru 16. ágúst komnar á land á
safirði 34,000 tunnur, Álftafirði
30,000, Hesteyri 6,000, önundar-
firði 4,000, eða alls um 74,000 tn.
Er þetta þegar aðgætt er, að síðan
hefir töluvert aflast, geisilegur
afli og svo langsamlega meiri en
á Norðurlandi að tiltölu. Spá því
margir, að nú muni síldarútvegur-
inn aukast að mun á Vestfjörðum
næstu ár, en heldur draga úr hon-
um á Norðurlandi. pó ekki sé með
þessum mikla afla nú fengin nein
trgging fyrir slkum uppgripum
næstu ár, þá þykir það þó benda ó-
tvírætt til þess, að Vestfirðir séu
engu ver settir sem síldarútgerð-
arstöðvar en Norðurland. Og það
ætti nokkru um að ráða, að síldar-
gangan er þó fyr þar vestra en
nyrðra, krafturinn því mestur í
henni þar og aflavonin því mest.
Fyrir Norðurlandi hefir síldveið-
in gengið illa. Við Eyjafjörð
munu alls hafa flast um 100 þús.
tunnur. Sumir útgerðarmenn þar
stórskaðast.
Eigi gengur enn né rekur með
myndun nýrrar stjórnar. Var
leynifundur í sameinuðu þingi síð-
astliðið miðvikudagskvöld og sagt
að fundarefni hafi verið það, að
flýta fyrir myndun stjórnarinnar.
Hafði forsætisráðherrann krafist
aðgerða í málinu fyrir vikulok. En
eigi hefir tekist að mynda stjórn
enn og verður víst ekki í bráð.
Jón biskup Helgason kom síð-
astl. fimtudag úr vísitazíuferð um
Skagafjörð.
Prentverð hefir enn hækkað um
30 af hundr. frá byrjun sept.
Frá Seyðisfirði símað 4. sept.—
Grasspretta á útengi austanlands
hefir verið í meðallagi í sumar.
Túnspretta betri en í meðallagi
og nýting ágæt þangað til í miðj-
um ágústmánuði; síðan hafa ver-
ið stöðugir óþurkar.
Mótorbátar hafa aflað lítið í
júlí og ágúst, en afla nú vel. —
Engin síld hefir fengist á Austur-
landi í sumar, en öll beitusíld ver-
ið sótt til Norðurlands. Mjög lít-
ið hefir fiskast á opna báta í sum-
Hún virtist ólœknandi.
EN “FRUIT-A-TIVES” KOMU
HENNI TIL HEILSU.
29. St. Rose St., Montreal.
“Eg skrifa þetta til þess að láta
yður vita, að eg á líf mitt að launa
“Fruit-a-tives”. petta meðal lækn-
aði mig þegar fokið sýndist í flest
skjól.
Eg hafði þjáðst mörg ár af Dys-
pepsia og öll meðöl reyndust á
rangurslaus. Eg hafði lesið um
“Fruit-a-tives” og reyndi það
meðal. Og eftir að hafa notað
fáeinar öskjur af þessu fræga á-
vaxtalyfi, fékk eg fulla heilsu.”
Madame Rosina Foisiz.
50 cent. hylkið, sex fyrir $2.50,
reynsluskerfur 25c. Fæst í öllum
búðum eða gegn fyrirfram borgun
hjá Fruit-a-tives, Ltd., Ottawa.
ar. — Færeysku fiskiskipin hafa
fiskað óvenju vel fyrir Austur-
landi í sumar. Hafa þau selt
kaupmönnum töluvert af fiski. —
Nýtt dilkakjöt kostar hér nú kr
3,25 kílóið og nýr fiskur með
hrygg 40 aura kg. — Norsk fiski-
skip á heimleið frá Norðurlandi
koma hér daglega.
Gullsmiður hér í bænum, Jón
Leví að nafni, hefir orðið uppvís
að því, að hafa falsað víxla, er
hann svo hefir selt báðum bönk-
unum. Sagt er að upphæð víxl-
anna sé nál. 3,000 kr. Maðurinn
hefir játað á sig glæpinn.
iiaiiiiniiiBiiiaiuaiiiiHiiaiiiHiiiiiBiii
iiiiniuninHiuiniiniiii
Stórmikill sparnaður á afbragðsh ísgcínir
og húsbúnaði hjá
Banfield’s
Dagstofu húsgögn
Ekta Dökk Valhnota.
petta eru ákaflega fallegir munir og endingar-
góðir. Stólarnir eru afar vel stoppaðir og
fóðraðir með fínasta damask.
Vanaverð $495.
jj| Kjörkaupsverð ................... $359.50
Dagstofu húsmunir
Samsettir af Chesterfield, Lady’s Hæginda-
stól og Gent’s Hægindastól.
petta sett er að efni og frágangi eitt það vand-
aðasta, sem hugsast getur, fjaðrabak og fjaðra-
stoppaðar bríkur ásamt Marshall Sanitary
Sring Cushon sætum.
Sérstakt vildarverð.................$465.00
9-stykkja kvartskorið eikar
borðstofusett
MeS gamalli Enskri Áferð.
Saman stendur af 60 þuml. Buffet, 50 þuml.
kringlóttu pensluborði, China Cabinet með
tveimur hurðum, 5 algengum Stólum og eiuum
Hægindastól, öllum leðurklæddum.
9 stykkja sett
Sérstakt verð...................$395.00
8-stykkja kvartskorið eikar
borðstofusett
Verðið fáheyrt. Settið saman stendur af 48
þuml. Buffet, 44 þuml. kringlótt Borðstofuborð,
sem þenja má um fimm fet, 5 algengir Stólar
og einn hægindastóll, alt fóðrað með ekta leðri.
8 stykkja sett.
Kjörkaupsverð .................. $137.50
Banfield’s fyrirmyndar Kodav
MÁ BREYTA A FAEINUM SEKUNDUM ÚR FINASTA LEGUBEKK
í FYRIRMYNDAR RÚM
Sterk eikar umgjörð, reyklituð klædd með ósltandi leðurstælingu — Leather-
ette—, ásamt vorri afbragðs No 2 Special Mattress
Að eins.............................................
$75.00
Gólfteppi, sem verða að seljast fljótt.
■ Axminster Teppi
Í Ákaflega sterk og falleg, unnin
■ í Austurlanda stýl, með afar ein-
U kennilegri og aðlaðandi litblönd-
I un. Stærð 9x10-6. Vanaverðið
Iá þeim var $75
Sérstakt verð...........$59
Tapestry Teppi
pessi teppi endast ákaflega vel
og eru óviðjafnanleg að fegurð.
Áferðin og litirnir eiga sérlega
vel við borðstofu. Stærð 9x10-6.
Vanaverð $29.00
Sérstakt verð...........$19.50
Axminster Teppi.
pykk og sérlega vel ofin, með ^
Austurlanda sniði, fjölbreyttir
litir. Stærð 27 x 54 þuml.
Vanaverð $8.50.
Sérstakt verð.............$6.35
Útidyra Mottur
Nú er tíminn til að kaupa þessar mottur, áður
en kólnar meira í veðrinu. Tröppumar verða
oft hálar á veturna, en þessar Cocoa Mottur eru
bezta slysatryggingin. Unnar úr beztu fibre—
þráðtaugum, endast um aldur og æfi. Talsími:
Garry 1580. Látið verzlunarmenn vora gefa yð-
ur áætlun um stærð og verð.
Hjálpið til þess að Endurreisa Iðnað Lands-
ins Með því að Kaupa
VICTORY BONDS
COCOA MOTTUR |
Halda hreinum gangstéttunum fyrir framan |
húsin, fæst af öllum stærðum, bezta tegund á |
boðstólum, sanngjarnt verð.
Ábreiður, Stoppteppi og Gluggatjöld
| $12.50 Blankets $8.95
I pessar ábreiður eru fjarska léttar en þó hlýj-
( ar. Ljósgráar að lit með bláum eða gullitum
■ röndum. Stærð 66x80 þuml.
■ Vanaverð $12.50. Sérstakt.................$8.95
$2.25 Sterk Tapestry Tjöld Milli Dyra
■ $1.75 yardið.
1 Ákaflega sterkar, fallegar og ofnar í rósalitum,
1 grænár og brúnar. Sérlega fallegt munstur.
■ 50 þuml. breiðar. Vanaverð $2.25
■ Sérstakt verð..........yardið á........$1.75....
$12.00 Stoppteppi $8.95
pessi teppi koma sér vel, þegar farið er að
kólna í veðrinu, eins og nú á sér stað. Fóðruð
með dökku chintz, einnig með rauðu og bláu
mjúku taui. Stærðir 72x72 og 72x78 þml. Vana-
verð $12.00. Kjörkaupsverð..............$8.95
$22.00 Svissnesk Gluggatjöld fyrir
$13.95 parið.
pessi gluggatjöld eru að eins hvít, en ákaflega
falleg og vel viðeigandi, 3V2 yards löng, 50 þml.
breið. Vanaverð $22.00.
Sérstakt verð......................... 13.95
Lán veitt áreiðanlegu fólki
J. A. BANFIELD
Búðin opin
frá kl.
8.30 til 6
Laugardögum
8.30 til 10. e.h.
492 Main Street
Phone Garry 1580
*!!■!!!
1
imni!ii
iiiiiniiiniiii
iiiiniii
iiiniiiimiin
iiuiinnnii
Sérstök Sala 1
Hvert B
Laugardags- _
kvöld frá
7 til 10 I
|
iiuiiuiiuiiuiiuiiuiíini
HEIMSINS BEZTA
MUNNTÓBAK
COPENHAGEN
Hefir góðan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllum tóbakisölum
Boulder Gould Mines, Ltd.
(Non-Personal Liability)
HLUTABRÉF FéLAGSINS HAFA HÆKKAÐ UPP í 50c
HVER HLUTUR, FRÁ LAUGAREGINUM 25. OKTÓBER AÐ
TELJA. NAFNVERÐ HLUTA ER $1.00. FULLY PAID____________
NON-ASSESSABLE.
1,200,000 Treasury Development Shares, eru nú boðnir út
samkvæmt eftfrfylgjandi skilyrðum. pessari aðal upphæð
verður skift í sex (6) deidlir, með 200,000 í hverri. Fyrsta
deildin verður seld þannig að hver hlutur kostar 50c., en í
hverri hinni 200,000 dollar deild hækkar hver hlutur um 10
cent. Aðalhöfuðstóllinn, $900,0000.00, verður lagður inn í
Trust company, er greiðir 4 pró cet í vexti og verða vextirnir
aðeins notaðir vinslu námanna þar til hluthafar sjálfir ákveða
að verja meira fé til starfsrækslunnar.
Vér ábyrgjumst að alt fé ásamt vöxtunum verði einungis
notað til vinslu námanna, og ráðstafað af vorum opinbera Of-
ficial Trustee A. C. Campbell, Esq., hinum nafnkunna Winnipeg
‘Solicitor.
Séð hefir verið um að engin útgjöld \ né umboðslaun verði
tekin af Development hlutum. Enginn ráðsmaður, eða með-
stjórnandi fær nokkur laun eða borgun frá félaginu.
Petta er og verður Félag hluthafanna og enginn hluthafi
öðrum fremur getur náð yfirráðum þess í sínar hendur.
Tvö námagöng eru þegar komin vel á veg. Shaft No. 1 er
65 fet á dýpt; en shaft No. 2 er 42 feta djúpt. Rannsóknir
hafa leitt í ljós, að örsamt neðan við jarðskorpuna, nemur
málmurinn $19.40, $22.80, $33.40, og er það miklu meira en
alment gerist. Málmæðin, gold-bearing quartz, er þrjú fet að
ummáli efst, en er orðin full sjö fet, þar sem grafið hefir verið
dýpst, og er það þó tiltölulega mjög grunt, en því dýpra sem
grafið er, þess auðugri og umfangsmeiri verður náman.
Vér ábyrgjumst að hverju centi verði vel varið, ströngustu
business-reglum fylgt og miklum ágóða náð, með sem minstum
tilkostnaði.
No allotment und er 10 shares.
Uppdráttur af námusvæðinu og allar upplýsingar sendar
þeim er æskja.
SECURITIES LTD.
1203 McArthur Bldg., Winnipeg, Man.
Please forward me..........shares of TREASURY stock
of Boulder Gold Mines Ltd., at 50c per share, fully paid and
non-assessable. Enclosed find $..............in payment
thereof.
Make all chceks and money orders payable to
“SECURITIES, Ltd.”
1203 McArthur Bldg., Winnipeg, Manitoba.
Fisal Agents for “Boulders Gold Mines Ltd.”
LÆRIP VJELFRŒDI
VULCANIZING BATTERIES og WELDING
Lærðir bifreiðamenn, gas-dráttvélastjórar, tire aðgerð-
armenn og oxy-welders, fá hátt kaup fyrir vinnu sína Eft-
irsurn eftir slíkum mönnum er margfalt meiri en nemur
þeim fjölda, sem læra slíkar handiðnir. Vér kennum þær til
fullnustu á hinum ágæta skóla vorum. Bezti og fullkomn-
asti skólinn í Canada. Vér höfum komið öllum vorum $25,
000 útbúnaði fyrir í einu lagi í stað þess að láta þá upphæð
dreifast á sjö eða átta skóla. Engin stofnun í Canada jafn-
ast á við skóla vorn eins og hann nú er. Kensluaðferðirnar
hinar beztu sem þekkjast og eftir kröfum tímans. — Hjá
oss má greiða kenslugjald út í hönd eða með afborgunum.
Skrifið til Dept. X.
GARBUTT MOTOR SCHOOL, LIMITED
City Public Market Bldg. CALGARY, ALTA.
Húsmæður!
Fáið meira brauð 0g betra brauð
með því að brúka
PTÍRIT9 FCOIIR
(Government Standard)
Notið það í allar yðar bakningar.
Cereal License No. 2-009.