Lögberg - 23.10.1919, Qupperneq 5
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 23. OKTÓBER 1919
Bls. 5
iimniimmiiiiwiii
|
■
i
1
■
■
iiiimi»iuiHin[Hiimii»ii:iM;«iiiHiii«iiiiHiiiiBiuiHiniaiinHiiip
k flstöð Yðar Eigin
Bœjarfélags
getur sparað yður
50% á eldsneytisreikningnum.
Eldið Við Rafmagn
og gerið yður gott af ódýrasta 3uðu-
magninu í Norður-Ameríkii.
Ctty Light & Power
54 King Street
^■wmiiiaiiii
miiiiaiiiiii
iiiimniBiuiwiiiHMMH
■
■
vinum þeirra í Argyle^bygð og
bæjunum Glenboro og Baldur.
Enn fremur las hann upp ávarp
frá nokkrum vinum þeirra í Win-
nipeg, er sendu þeim með því $100
gjöf, og skrautritað kvæði frá p.
p. porsteinssyni í Winnipeg, en
lítill sonarsonur þeirra frá Winni-
peg afhenti þeim rósvönd mikinn
og fagran. — Auk prestsins tóku
til máls þeir Björn Walter-
son, Halldór Magnússon og Her-
nit Christopherson, en Jósep Da-
víðsson svaraði nokkrum orðum
og þakkaði fyrir hönd þeirra hjón-
anna vinunum nær og fjær, er
hefðu sýnt þeim kærleika fyr og
síðar og nú gjört þeim þennan dag
svo ánægjulegan. Voru að því
loknu veitingar fram bornar.
pau Jósep og Soffía voru gefin
saman í hjónaband að Skinnastað
í Axarfirði 8. okt. 1869. Pau
bjuggu 11 ár á Ferjubakka í Axar-
firði, en fluttust árið 1880 til Seyð-
isfjarðar og vann Jósep þar við
Gránufélags-verzlunina. Eftir 7
ára dvöl þar fluttust þau árið
1887 vestur um haf; fyrsta vetur-
inn voru þau í Winnipeg, en svo
tóku þau land í vesturhluta Ar-
gyle-bygðar og bjuggu þar 11 ár,
og fluttust svo þaðan til Baldur,
og hefir Jósep stundað þar tré-
smíði síðan.
Fjögur börn eignuðust þau.
Tvö hin eldri dóu bæði sömu vik-
una úr barnaveiki á Seyðisfirði.
En á lífi eru Hjörtur, sem lengi
var úrsmiður í Baldur, en er ný-
lega fluttur til Souris, Man., og
stundar þar iðn sína, og Harald-
ur, trésmiður í Winnipeg.
Innilegt þakklæti vottum við1
hér með öllum þeim vinum okkar
í Argyle-bygð og Winnipeg, sem
mintust okkar og glöddu með
höfðinglegum gjöfum og á annan
hátt á gullbrúðkaupsdegi okkar 8.
þessa mánaðar.
Baldur, Man., 10. okt. 1919.
Soffía og Jósep Pavíðsson.
Að hugsa rétt.
Eftir Dr. Frank Crane.
Ef þú þráir eitthvað, sem þig
langar til að öðlast, þá gættu að
athöfnum þínum.
Ef þú þráir að verða eitthvað
sjálfur, þá skaltu gefa gætur að
hugsunum þínum.
Hvað er það, sem þú þráir?
Ef að þú þráir það sama og aðr-
ir, það er: peninga, virðingu og
vald, og að meðbræður þínir kalli
þig nýtan mann, þá getur þú öðl-
ast þetta og verið fantur eftir
sem áður, — verið auvirðilegur,
ruddalegur, svikull og dýrslegur.
Slíkt hefir þráfaldlega komið fyr-
ir.
En ef þú þráir sannan mann-
dóm, fullan þroska þess bezta, sem
í þér býr, virðingu fyrir sjálfum
þér og að njóta tilfinningarinnar
um, að þú hafir leyst af hendi göf-
ugt æfistarf, þá athugaðu vel
hugsanir þínar.
pví hugsanir þínar og þú eru
eitt.
Ef að þú þráir að verða kallað-
ur mikill, þá eru margir vegir að
því takmarki. Að því geta legið
sniðgötur og sumar ekki sem
hreinastar.
En ef að þú vilt verða mikill, þá
er að eins einn vegur til og hann
liggur um fylgsni hugsana þinna.
Hvað þú ert, er því undir því
komið hverju þú trúir, því hugsan-
ir þínar og trú eru eitt og hið
sama.
Hver einasti maður, sem á ann-
að borð hugsar, hlýtur að trúa, því
trúin er nafn, sem hugsunum
hans er gefið.
Máske að þeir, sem segjast engu
trúa, hafi rétt fyrir sér, eftir því
sem Doktor Johnson komst að
orði um þá menn:
“Eg veit ekki, herra minn, hvort
að mennirnir eru trúleysingjar.
En ef að þeir eru það„ þá eru þeir
það á sama hátt og hundar eru
trúlausir. pað er að segja, að
þeir hafa aldrei hugsað um málið.”
Níu tíundu partar af því, sem
vér köllum synd, siðferðileg brot,
eru frekar því að kenna, að vér
getum ekki hugsað nógu skýrt,
fceldur en því, að kraftar vorir séu
svo veikir.
pað sem fyrst ætti því að vaka
fyrir okkur, er að hugsa skýrt og
rétt; það mundi frelsa oss frá
mörgum óhöppum og heimskulegu
hjali.
Að vera fær um að dæma um
málin af skilningi, að sjá skýrt og
sjá hvert þessi eða hin hugsunin
leiðir, að vera fljótur að koma
auga á það, sem mesta hefir þýð-
ingu og skilja það frá hinu, sem
þýðingarminna er, í einu orði, að
geta reitt sig á sína eigin dóm-
greind og finna til þess, að niður-
staða vor er heilbrigð og ábyggi-
leg og ákveðin, frelsar mann ekki
einasta frá því að lenda út í haf-
villur óvissunnar, heldur frelsar
það oss frá ótal armæðu sporum
og varnar mörgum hjartasárum,
sem annars mundu blæða.
pað gæti verið leiðbeinandi í
þessu sambandi að athuga eftir-
flgjandi tíu atriði:
1. Byrja með því að vera á-
kveðinn.
2. Venja sig á að hugsa.
3. Skrifa hugsanir sínar niður.
4. Tala um þær við aðra.
5. Að lesa með ákveðið mark-
mið fyrir augum.
6. Að venja sig á að athuga
vel það, sem getur komið
fyrir.
7. Varast að treysta á það, sem
handhægast er.
8. Vertu ekki of stór til þess
að læra.
9. Gættu að verkefni trúarinn-
ar—
10. og kærleikans.
í samtali við aðra er ekki hægt
að hafa á móti því, sem þeir segja,
á skynsamlegan hátt, nema því að
eins, að maður geri sér grein fyr-
ir því, sem um er rætt og marki
því svið, dragi línur um hugsan-
irnar, svo að hægt sé að festa hug-
ann við þær.
Meiri parturinn af allri mis-
klíð og þrætum manna, stafar af
því, að þeir hafa ekki gjört sér
nógu skýra grein fyrir afstöðu
sinni í fyrstunni En til þess að
geta gjört það, þá þarf að girða
hugsunina af, það er að segja, þú
kemst að niðurstöðu um hvað ein
hugsun meinar, með því a loka út
frá henni alt það, sem hún ekki
mein'ar, og það er alt af hægara
að komast að niðurstöðu um hvað
það er, sem þú veizt ekki, heldur
en það, sem þú veizt, og fyr er ein
hugsun ekki afgirt — eða skýr
orðin í huga þínum, en þú hefir
aðgreint frá henni alt það, sem
hún meinar ekki.
Diogenes Laertius segir, að
Plató hafi lýst manninum á þann
hátt, að hann væri fiðurlaust dýr
á tveimur fótum. Daginn eftir
kom Diogenes með hana, sem alt
fiðrið hafði verið reitt af, í skól-
ann og sagði: “Petta er manns-
líkami eftir kenningum Platós”,
og varð það til þess, að við lýsingu
Platós var bætt: “með breiðum og
flötum nöglum”. Lýsingin var ó-
fullkomin, það voru skörð í girð-
inguna hjá honum. Ef hann hefði
sagt, að maðurinn væri dýr, sem
talaði, eðá sem notaði verkfæri,
þá hefði honum tekist betur að
girða af hugsunina, þá hefði alt
verið útilokað nema einstaka
páfagaukar eða apar, sem hefðu
verið búnir að læra að tala eða
fara með verkfæri.
pað er vert að benda á þrjár
bækur, sem eru ómissandi fyrir
þá, sem hugsa vilja rétt, og það
eru: fyrst góð orðabók, fjölfræðis-
bækur (Encyclopedia) og saman-
burðar málfræði.
Vendu þig á að nota orðabækur,
settu á minnið hvert það orð, sem
þú skilur ekki til hlítar og flettu
því upp í orðabókinni við fyrsta
tækifæri. pá muntu komast hjá
óþægindum þeim, sem menn þeir
er ætlast á meining orðanna, oft
komast í.
Eg man eftir því einu sinni á
mínum yngri árum, að eg notaði
enska orðið “meretricious” (sem
þýðir að sýnast, sigla undir fölsku
flaggi) í sömu merkingu og orðið
“meritorious’ (sem’ meinar að
eiga gott skilið), sökum þess að
hljóðfall orðanna er svipað,
hélt eg að skyldleiki hlyti
að vera milli þeirra, og
Sparsemi mótar manngildið
Nafnkunnur vlnnuveitandi sagtSi íyrir skömmu:
“Beztu mennirnir, er vinna íyrir oss I dag, eru þelr,
sem spara peninga reglulega.
Einbeitt stefnufesta, og heilbrigCur metnaSur lýsir
sér í öllum störfum þeirra.
peir eru mennirnir, sem stööugt hækka i tigninni, <»g
Þeir eiga sjaldnast £L hættu aC mlssa vinnuna, þött atvlnnu-
deyfíS komi meí5 köflum.”
THE DOMINION BANK
Notre Dame Branch—W. H. HAMII7TON, Manager.
Seikirk Branch—F. J. MANNlNfi. Mannger.
varð svo að segja þrumulostinn,
þegar vinur minn benti mér á
hina réttu meiningu þeirra í orða-
bókinni.
Fjölfræðibækur eru að eins
orðabók, sem er útfærð, þar sem
þú getur séð hvað efnið er, jafn-
framt þýðingu orðanna, og trú-
legt þykir mér, að hin gamla og
ábyggilega samanburðar mál-
fræði Roget’s Thesaurus sé hand-
hæg hverjum þeim manni, sem
mikið ritar á enska tungu og er
ant um orstír sinn.
2. Vendu þig á að hugsa.
Hugsun er orð, sem fremur lítil
rækt hefir verið lögð við á meðal
vor upp á síðkastið. pað hljómar í
eyrum vorum, eins og vér heyrðum
talað um einsetumenn og heim-
spekinga á meðal Hindúa.
En þó er þetta nauðsynleg list
fyrir hvern þann, sem ekki er
sama um sitt hugsunarlega á-
stand.
Allir viðurkenna, að þegar uip
trygga niðurstöðu í málum er að
ræða, þá sé nákvæm hugsun frum-
skilyrði. Vér viðurkennum þetta,
þegar vér segjum: “Hugsaðu þig
um tvisvar”, og “nóttin gjörir
hugsun þína skýrari.”
pví hugsunin, þegar hún kemur
þér fyrst í hug, hefir enga sér-
staka þýðingu. pað er ekki fyr en
hún hefir gert huga þinn að heim-
ili sínu, sameinað sig öðrum hugs-
unum, sem þar eru — þegar að
hún er orðin ein af fjölskyldunni,
ef maður mætti svo að orði kom-
ast—, en það tekur tíma. Hún er
eins og blekdropinn og er hagnýt
að eins þá, er hún hefir sett inn-
sigli sitt á hugsanir þær, sem vér
áttum fyrir.
Vér getum krufið nýjar hugs-
anir til mergjar þá að eins, er vér
höfum kynt oss þær, og það tekur
tma að kynnast nýjum hugsunum
alveg eins og það tekur tíma að
kynnast persónu, sem þú mætir. I
Og hugurinn er oft óframfærinn !
við hugsanir, sem hann ekki ,
þekkir.
pað sem vér köllum meðal-!
greind, er ekkert annað en það, að j
láta nýjar hugsanir sameinast;
hugsanaforða þeim, sem vér eig-
um. Meðalgreindir eru þeir, sem
gefa sér tíma til að hugsa, sem að
ekki gleypa hugsanirnar ómeltar,
heldur velta þeim fyrir sér, sálda
þær þar til þeir hafa lært að skilja
þær og sambönd þeirra.
Má vera, að það hafi verið þetta,
sem Goldsmith átti við, þegar
hann sagði: “pað sem nýtt er, er
óábyggilegt”, það er að segja þar
til tíminn hefir sannað tilverurétt
þess. En þangað til er það hættu-
spil og mætti alveg eins vera ó-
satt.
Hver einasti maður mundi græða
á því, ef hann vildi vera aleinn
svo sem þrjátíu mínútur á dag,
gleyma vinum sínum, slíta sig frá
bókum sínum, snúa baki við leikj-
um sínum, vera aleinn með hugs-
unum sínum. Vér erum of fastir
við hið stundlega,” sagði Words-
worth, og það var Emerson, sem
sagði: “að það væru fáir, sem
fyndu sjálfa sig í þessu lífi”, og
enn fremur tekur Carlyle það fram
að eins klukkutíma þögn mundi
hreinsa sálir vorar og vernda þær
frá mörgum ljótleika.
pví á þessari þagnarstundu at-
hugum vér sjálfa oss. Hinar
veiku hliðar vorar skýrast, vér
sáldum hismið frá hveitinu. óró-
inn í vorri eigin lund fær tíma til
að kyrrast og þokunni léttir af
huga vorum.
pað er sama um hvaða efni þú
þarft að dæma, dómur þinn verð-
ur heilbrigðari ef að þú værir al-
einn með hugsunum þínum í
klukkutíma áður en þú kvæðir
hann upp.
Nauðsynleg er þessi þagnarstund
fyrir alla menn, en nauðsynleg-
ust er hún þó mæðrura, því staða
þeirra í lífinu krefst svo mikils
af þeim — krefst svo mikils af
krafti þeirra, líkamlega og and-
lega, að öllum öðrum femur
þurfa þær að getá hvílt huga og
hjarta í þögulli kyrð stund og
stund.
3. Skrifaðu það niður.
Vendu þig á að skrifa niður á
blað á hverjum degi eina eða tvær
hugpanir, sem til þín hafa komið
en eru óljósar.
Ef að þú gefur sjálfum þér nán-
ar gætur, þá munt þú finna, að
þú hefir einhverja hugmynd um
flest spursmál, sem fyrir koma, þó
hún sé stundum óljós.
pú hefir heyrt talað um þau og
ert að meira eða minna leyti kunn-
ugur þeim, en þau ekki nógu
skýr.
Og bezti vegurinn til þess að
eyða þokunni í því sambandi, til
þess að komast nákvæmlega eft-
ir því hvað þú hugsar, eða, hvað
þú hugsar ekki, er að skrifa hugs-
anirnar niður á blað.
Eg meina ekki, að menn fari að
reyna að yrkja. “Takið þið skáld-
skapinn og snúið hann úr háls-
liðnum,” sagði einn mikilhæfur
rithöfundur.
Reyndu ekki til þess að búa hugs-
anir þínar I neinn sérstakan bún-
ing, reyndu heldur ekki til þess að
nota óalgeng orð, heldur settu
hugsanir þínar niður með orðum,
sem eru þér tömust — klæddu þær
í hugsanir, sem þér eru eðlileg-
astar.
(Framh.)
■!IIIHIIIIHI!:il
llll!H!IHHI!lll
■HiwiiiiBiinaiiiiBiiiii
SKÓFATNAÐAR-
BÚÐ FÓLKSINS
Fyrir hálf öðru ári, þegar dýrtíðin svarf mest
að, og verð á skófatnaði var lítt þolandi,, ákváð-
um vér að opna nýja skóbúð (Belden’s Sample
Shoe Store) í þeim tilgangi að létta ögn undir
með fátækara fólkinu. Verzlun vorri var svo
vel fagnað af almenningi, bæði utanbæjar og
innan að slíks munu fá dæmi, og er búð vor nú
ein sú allra fjölsóttasta í Winnipeg-borg.
Vér rekum ekki verzlun með það fyrir aug-
um, að hrúga saman fé 1 vorn eigin vasa, heldur
aðeins til þess að bæta hag alþýðumanna,
bænda og verkafólks.
Flókaskór eru mörgum kœrkomnir.
Vér seljum handsaumaða flókaskó, með engum nöglum í hælunum,
og sendum þá gegn $3.00 fyrirfram borgun hvert á land, sem vill. pér
getið valið um stærðir. Enginn skófatnaður er hentugri skógarhöggs-
mönnum, þeim mönnum, sem vinna á járnbrautum, eða eru fótkaldir,
heldur en flókaskór.
Vér lögðum mikið í hættu, er vér réðumst í að opna þessa búð: atvinnu-
vegir landsins sýndust í hættu og peninga markaðurinn óviss. En traust vort á framtíð lands-
ins og traust fólksins til vor hefir gert það að verkum, að verzlunin hefir nú fengið byr undir
báða vængi, og er reglulega orðin verzlun fólksins.
Vér höfum allar tegundir skófatnaðar, fyrir börn, konur og menn.
Utanbæjarmenn, heomsækið búð vora, þegar þér eruð á ferð í borginni!
BELDEN’S SAMPLE SHOE STORE,
Next Door to Singer Sewing Machine Co. Opposite Y.M.C.A. Hut, Main St.
GLEYMIÐ EKKI STAÐNUM.
IIIHIIIIHIIllHllin
iniiBinn
i ■ i
FEIKHfl-MIKIL HflBVEST 01811»
Chevrie’s, The Blue Store, bjóða yður á þeirra 1919 Stóru Harvest
útsölu, sem stendur i 10 daga.
Eins og að undanförnu höldum vér hátíðleg uppskerulok Manitoba. Verðið á hveitinu er ekki
sama nú og var þá, og viðskiftavinir vorir til sveita þurfa ekki afsláttarsölu líkt og áður, en bæjarbúar
þurfa hennar sannarlega með og það meir en nokkru sinni áður.
Afsláttarsala vor að þessu sinni á ekki sinn líka. Vörugæðin og vöruverðið í sameiningu er óvið-
jafnalegt. Harvest útsalan 1919 er einsdæmiö
Komið, sjáið og sannfærist. íslendingur, herra Jaeob Johnston, vinnur hjá okur og afgreiðir
landa sína.
Karlmanna Fatnaðir
pessar þrjár tegundir—stóra þrenningin—endist
áreiðanlega ekki út “söluna.” Komið því fyrstu
Harvestar dagana.
Sterk og þykk Tweed-föt—Úr níðsterku ensku v^ð-
máli og ódýrari en fyrir stríðið. pér
verðið að hraða yður að ná þeim fyrir.
$10.25
Businessmanna-föt—Smekkleg og sterk, grá og
brúnleit á lit, vel saumuð og úr góðu
efni, og því afar ódýr á ........................
Spariföt—Úr bezta efni og með nýtízku sniði; brún,
köflótt og grænleit; eiga ekki
sinn líka á ...................................
ENNpÁ BETRI FATNAÐUR frá $35.00 til $50.00
Föt fyrir ungamenn—Smekkleg og eft-
ir nýjustu gerð. Afsláttarverð .
$15.25
Karlmanna-buxur
Nýjar buxur spara að kaupa sér heilan fatnað oft og
tíðum. Búforsjáll maður veit það og hagnýtir sér
það. Hér bjóðum vér kjörkaup á buxum, sem leitun
mun vera á annarsstaðar.
TWEED BUXUR—Níðsterkar. Vér vorum svo
hepnir að á í 1,000 af þessum buxum með fremur
góðum kjörum, og getum því boðið þær á
$4.25
CORDUROY BUXUR—Úr þremur litum að velja.
Endingargóðar og skjólgóðar. Kjörkaupsverð.
BANNOCKBURN BUXUR—Eru hinar endingarbeztu,
skjólmestu og beztu buxur, sem hægt er að fá fyrir
Yfirfrakkar
Undrin Þrjú
Hver sá sem sér og skoðar þessa yfir-
frakka, sannfærist um hversu óvið-
jafnanleg kjörkaup eru hér boðin
KARLMANNA VETRARFRAKKAR
—Skjólgóðir og sterkir; stærðir frá
42 til 48. Kosta aðeins
$18.75
MELTON YFIRFRAKKAR—Gráir að lit og hlýir
—með háum krögum og fóðraðir þykkum dúk. Fá-
heyrð kjörkaup á
$28.75
KARLMANNA ULSTERS — pykkir, voðfeldir og
stórir — úr skozku Tweed — heil belti og fimm-
stungnar framermar. Ágætis flík. Kjörkaupsverð.
KARLMANNA VETRARHÚFUR—Fóðr-
aðar loðskinnum og ull. Úrval .
50c
Drengja-deildin.
Frir unglinga og drengi höfum vér meira úrval en
nokkur önnur búð í borginni. Látið son yðar hafa
hlutdeild í Harvest útsölunni.
DRENGJA FATNAÐIR.
Norfolk Tweed-föt—Stærðir 25—32 aðeins. Hér
bjóðum vér bæði hlýja og endingargóða fatnaði fyr-
ir aðeins ............................. $6.75
Skólaföt drengja—Mestmegnis Norfolks. pessir
ágætis fatnaðir boðnir fyrir hálfvirði meðan upplagið
endist, á...................... ,........$7.75
Spariföt drengja—Einnig Norfolks. Úr góðu efni og
með ýmsum litum. Stærðir frá 28 til 36. Fötin eru
hlý og edingargóð ......................$9.75
Drengjaföt með síðum buxum—Úr bezta efni, ný-
tízkusniði og vel frá gengið. Kjörkaupsverð....$15.75
Barnaföt—Úr dökkleitu eða gráu Tweed, hnept upp
í háls, fyrir þriggja til átta ára krakka. Vanaverð
$8.50. Kjörkaupsverð ...................$6.75
SÉRSTAKT FYRIR DRENGI.
Drengja Reefers—Úr þykku gráu Tweed, dúkfóðraðir
og með háum stormkraga, fyrir 9-15 ára drengi, $4.95
Barna-vetrarkápur—Gráar chin chilla kápur, hneptar
upp í háls og dúkfóðraðar, fyrir 3-8 ára drengi, $6.95
Drengja vetrar yfirhafnir—Gráröndóttar, þykkar og
skjólgóðar—seldar fyrir neðan innkaupsverð á $9.95
Drengja vetraryfirhafnir—Úr bezta ullarvaðmáli,
skjólgóðu fóðri og vandaðar að gerð, fyrir 12—14 ára
drengi á...............................$13.95
Drengjahúfur—Með loðskinnsfóðruðum eyrnaböndum
aðeins á..................................50c
Drengjaskyrtur—Hvt- og bláröndóttar á ....95c
Drengja-Blúsur—Mikið úrval, á.............95c
Drengjaskvrtur—Gráar eða bláröndóttar, úr góðu
efni, og með meðfylgjandi kraga, á........75c
Drengja nærfatnaðir — Penman’s brand—The Pen-
Angle. Allar stærðir, á.................$1.25
Drengja Merino nærfatnaðir—Skyrtur og buxur,
þykkar og skjólgóðar, hvert um sig ........75c
Drengja-leðurvetlingar—Ullarfóðraðir, á...50c
Pessi vor árlega Harvest útsala gefur oss tækifæri að kynnast nýjum viðskiftamönnum og endurnýja
vinskapinn við þá gömlu. Komið því allir sem getið.
Ekkert verður lánað meðan stendur á útsölunni og ekkert sent út úr búðinni til umdæmingar.
Staðurinn sem afi þinn verzlaði við 1872.
CHEVRIERS, -Th«“rf*”«”452 Maln St.