Lögberg - 04.03.1920, Page 1

Lögberg - 04.03.1920, Page 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir Ipegsta verð sem verið getur. REYNIÐ ÞAÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. - Garry 1320 33. ARGANGUR WINNIPE'G, MANITOBA, FIMTUDAGINN 4. MARZ 1920 NUMER 10 Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada. Robson dómari formaður verzlunarmála nefndarinnar hef- ir sagt af sér, og þó hann hafi efcki opinberlega gefið ástæðu fyrir því, iþá samit hefir hann sagt nógu mikið til þess að gefa hug- mynd um hana. í tali við fréttaritara Free Press komst Hon Robson svo að orði: “Fastákveðið verð á vör- um, og takmörkun á ágóða á framleiðslu getur verið, og er réttlát á stríðstíð, en ætti ekki að mínu áliti að vera fast ákveöið með lögum. Takmörkun á ágóða á nauð- synjavöru miðar til þess að hefta framleiðslu á þeim vörutegund- um, og hamla fólki frá því að skifta sér í sumar af þýðingar- mestu stöðum iliífsins. par ofan í kaupið er það með öllu rangt, að takmarka ágóða þeirra manna sem jnauðsynlega framleiðslu stunda, en láta þá sem munaðar- vörur búa til og selja, hafa ó- bundnar hendur, og það var þetta óréttlæti isem gerði mér svo erfitt fyrir við framkvæmd 'þeirra laga og kom mér til þess að segja af mér.” “pví skýldir þú leggja höndur á manninn sem flytur mjólkina heim í ihús til þín, en látavbóksal- ana sem græða 100% og þá sem verzla með blóm, og ylmvatn vera afskifta lausa?” Ef að of mjög er þjakað kosti þeirra manna sem nauðsynlega framleiðslu stunda þá ihætta þeir við þær atvinnugreinar, og snúa sér að þeim sem sanngjarn ágóði er ekki takmarkaður á með lögum. “pað er ef til óvinsælt að segja að það ætti að lofa þeim mönnum sem þarfa frandeiðslu stunda A Canada, að græða alla þá pen- inga sem þeir geta, en þó er það mín meining.” R. D. Waugh fyrrum borgar- stjóra í Winnipeg, hefir verið boðið að sitja fyrir 'hönd Canada i nefnd þeirri • sem á að sjá um og stjóma, Saardalis héraðinu, tiamkvæmt ákvörðun friðarsamn- inganna. H£rað það sem hér ræðir um, er um 1400 fermíiur að stærð, og er meira en helming- urinn af því svæði ko'lanámur. Mr. Waugh er enn ekki búinn að svara tilboði þessu, en talið er víst af þeim sem hann þekkja, að hann muni taka því. Launin «ru 100,(|Ó0 frankar á ári. Meþodistar í Canada íhafa skotið saman $ 4,356,354, til þess að efla trúboðs starfsemi sína bæði heima, og erlendis. Sagt er að en einu sinni ætli löpnenn Thos. Kelly að leggja tnál það sem Manitobafylki fékk dæmt á hendur honum út af svik- UTn 6 *ambandi við þinghúsbygg- inguna fyrir dómstólana. Ping bænda í Manitoba, hefir staðið yfir í Winnipeg undanfar- andi. Bandaríkin Wílson forseti hefir valið Bain- bridge Colby frá New York, sem eftirmann Robert Lansing, og kemur mörgum það kynlega fyr- ir, þar sem Mr. Colby hefir fylt flokk repúblíka, og alls engin afskifti haft af utanríkis málum. ^ Senator Arthur Caper frá Kansas flytur frumvarp í öld- ungadeild þjóðþings Bandaríkj- anna, um að lögleiða líkamsæf- ingar innan Bandaríkjanna. Held- ur senatorinn því fram, að óhugs- andi sé að sú þjóð isem ekki hugsi um heilbrigði og líkams hreysti barna sinna geti notið til fulig síns eigin hæfileika og þróttar. Hann heldur áfram og segir: “Eg er mótfallinn því, að menn séu skyldaðir til heræfinga, en trúir því að líkamsæfingar og upplýsing þeim viðvíkjandi í öll- um skólum landsins gefi hinni uppvaxandi kynslóð þau hin hag- kvæmu Munnindi, sem sagt er að hann verði aðnjótandi við her- æfingar, án þess að verða fyrir þeirn óheilnæmu áhrifum sem her- æfinga skyldan, hefir í för með sér, og sivo bætist við að líkams- æfingarnar ná tii hinna uppvax- andi kvenna jafnt sem karla. Eins og á stendur nú hjá þjóð vorri, þá mæli eg með þvi, að við sé höfð öll sú sparsemi sem mögu- legt er að koma við. En trúi því að með því að leggja fram $ 10, 000,000, að Bandaríkin geti lagt grundvöllinn að fyrirkomulagi sem verði sterkt afl til viðhalds lýðveldis hugsjónum vorum, auka heilbrigði og ánægju uppvaxandi kynslóðarinnar, og tryggja þjóð- ina jafnvel og heræfinga skyldan sem kostar svo hundruðum mil- jóna skiftir á ári.” óvíða hefir verið meiri mót- spyrna á móti vínsölu 'banninu heldur en í New Jersey. En þrátt fyrir hana eru þó ávextir vínbannsins augljósir og ómót- mælanlegir. íTrenton var á meðal brennandi ispursmála, sem fólk þurfti að ráða fram úr skortur á fangelsum. En svo hefir þetta breyzt við vín- bannið, að gömlu fangelsin, eru ekki einasta nógu stór, heldur eru þau líka orðin hálf tóm. Á þenna hiátt sparast Orean hérað- inu 100,000 dollarar sem íbúar þess hefðu þurft að leggja fram fyrir viðauka við fangelsi þess héraíls, ef vín'bannslögin hefðu ekki 'komist á. Hið sama segir Joseph M. Thomson aðal eftirlits maður opinberra bygginga 4 New Jersey að eigi sér stað um alt ríkið. Dr. Arthur S. Halley forseti Yale Háskólans, 'hefir lýst yfir því að hann ætli að segja forseta stöðu skólans af sér 1921, nema því að eins að eitthvað óvænt komi fyrir. Friðarsamningarnir voru lagðir aftur til umræðu fyrir öldunga- ráð Bandaríkjanna í vikunni sem leið, með það á tilfinningunni, að fram hjá þeim yrði nú ekki geng- ið fyr en annað hvort iþeir yrðu samþyktir eða féldir. Herbert Hoover, fyrv. vista- stjóri Bandaríikjanna, sem nú á síðustu tímum hefir verið mi'kið talað um sem forsetaefni við næstu kosningar í Bandaríkjunum, hef- ir nú lýst yfir því, að ihann sjái ek'ki neitt unnnið við að sækja um þá stöðu, hvorki fyrir þjóðina í heild né heldur fyrir sjálfan sig, og hefir því bannað stuðnings- mönnum sínurn að láta nafns sírts getið þegar undirbúnings- kosningar undir forsetakosning- ar fara fram 20. apríl næstkom- andi í Geoygia. Maður að nafni John C. Ols- head er nýlátinn í Brookline, Mass. Hann var þektur fyrir uppdrætti sína af skemtigörðum og sýningasvæðum; á meðal ann- ars, sem hann gerði uppdrátt að, var alheims sýningarsvæðið í Chi- cago, og sýningargarðurinn í Winnipeg. Hermálanefnd neðri málstofu þjóðþings Bandaríkjanna hefir komið sér saman um að leggja til að heræfingaskylda sé lögleidd innan Bandarí'kjanna frá 1. júlí 1922. Maður að nafni Abráham Sa- bagh er nýlátinn í Detroit, ættað- ur frá Sýrlandi. Hann var Mú- hametstrúar og skildi eftir svo- hljóðandi erfðaskrá: 1. sál mína gef eg til og fel ‘á hendur spá- manninum Múhamet. 2. Ef að eg verð að deyja, þá er það minn vilji að þeir, sem sjá um erfðaskrá mína og eignir sjái um, að $300 verði varið til þess að biðja fyrir sálu minni og skal slíkt bænahald standa í 30 mánuði; 200 til vel- gjörða og tryggingar í pílagríms- för minni til Mecca; $50 sem fórnarfé til hins heilaga Abo- Albadal Musteris; $200 til afplág- unar sex stór-syndum og fjórum smá-syndum mínum og skal þeim varið samkvæmt iskipunum míns hcilaga kenniföður. Fyrsta þessa mánaðar af- henti stjórn Bandaríkjanna járn- brautir landsins til hinna fyrri endum. Dómsmálastjóri Bandaríkjanna, Palmer, hefir ákveðið að sækja um forseta embættið undir merkj- um Demókrata flokksins við í hönd farandi forsetakosningar. Bretland ° Langt er síðan að mönnum hef- ir orðið eins tíðrætt um nokkra kosningu á Bretlandi, eins og Paislley kosninguna, sem fram fór í síðastliðnum mánuði á Sktetlandi. pað serm gerði iþessa kosningu svo eftirtektaverða var það, að fyr- verandi forsætisráðherra Breta, H. H. Asquith, sótti þar um þing- mensku á móti verkamanni og merkisbera samisteypu stjórnar- innar. Atkvæðagreiðsla fór fram 12. febrúar, en þegar atkvæðin voru talin 25. sama mánaðar, þá kom í iljós, að Asquith hafði náð kosningu með miklum atkvæða- mun. Atkvæði féllu þannig, að hann fékk 14,736 atkvæði, J. M. Biggar, verkamanna fulltrúinn, fékk 11,902 atkvæði, og sam- steypustjqrnar merkisberinn að eins 3,795 atkvæði. — pessi sigur Asquiths er mjög vinsæll á meðál allra flokka og hlaða, því maðurinn er viðurkend- ur að vera einn sá allra hæfasti stjórnmálamaður sem Bretland á, og meira að segja Lord North- cliff, sem steypti Asquith stjórn- inni, tekur afturkomu Asquiths á löggjafarþing þjóðarinnar með miklum fögnuði og er strax far- inn að tala um Asquith sem eftir- mann Lloyd George. Kjördæmi iþetta, Paisley kjör- dæmið, hefir ált af sent stuðn- ingsmenn frjálslynda flokksins á þing síðan 1832. Síðasti þingmað- ur á undan H. H. Asquith fyrir þetta kjördæmi, var Sir John Mc- Callum, sem dáinn er fyrir skömmu. 1 enska blaðinu News of the World, frá 8. febr. stendur eftir- fylgjandi grein: “Óvanalega mik- *ð berst til Englands af kjöti frá nýltíiidununi, öll fiystihús, sem hafnarnefnd Lundúna borgar á yfir að ráða, eru full af kjöti og í viðbót við það eru fjórtán skip ferrad með kjöti frá Nýja Sjálandi og Ástralíu; er sagt að þau til samans flytji ekki færri en I, 800,000 sauðarföll; og svo er kjötforðinn orðinn mikill, að stað- hæft er að aldrei hafi verið annar eins þar í landi síðan árið 1909, en þá fór pundið ofan í 7—10 cents. pað sem Bretar þurfa af innfluttu kiöti til notkunar mánaðarlega eru 30,000 tonn. En nú þessa síð- ustu mánuði hafa 60,000 verið flutt inn mánaðarlega, og við það verður að bæta 100,000 tonn- um, sem geymd eru í frystihús- um víðsvegar um land. Bankastofnun ein útlenzk, sem um 20 ára skeið hefir rekið verzl- un í Lundúnum, hefir leigt þar á öðru lofti í gamalli byggingu í borginni, sem hvorki er í lyftivél né önnur nútíðar þægindi, befir greitt 550 pd. sterl. á ári í húsa- léigu í öll þau tuttugu ár, sem hún hafði verið þar. En nú um daginn fengu forstöðumenn stofnunar þessarar tilkynningar, að húsa- leigan yrði framvegis 2,000 pund sterling. pað er eins og víðar sé há húsaleiga en í Winnipeg. Heimastjórnarfrumvarp íra var lagt fyrir brezka þingið 25. febrú- ar 'S.I., og er það mjög svipað því, sem Lloyd George skýrði frá í þinginu í desember síðastl. Frum- varpið gerir ráð fyrir tveimur lög- gjafar þingum á írlandi, sem að nefnist Suður og Norður lands- þing. Á Norðurlands þinginu eiga sæti 52 þingmenn, en á Suður- landsþinginu eiga 128 þingmenn sæti. Frumvarpið tekur og fram að á brezfca þinginu eigi sæti 12 menn frá Norður' írlandi, en 30 frá suðurparti landsins. Fram er tekið í þessu frum- varpi, að 40 manna stjórnarnefnd sé kosin af Norðan og Sunnan- lands þingunum, 20 af hvoru þingi og myndar sú nefnd sameiginlega stjórn, sem vonast er eftir að verði vísir til sameiginlegs þings á^meðal íra 4 framtíðinni. Fram- kvæmdarvald hefir sú nefnd samt ekkert annað en það, sem þingin veita henni. Löggjafarvald þess- ara tveggja þinga er all takmark- að. En þeim er veittur réttur til þess að mynda sameiginlegt þing fyrir íra, og er slíku þingi veitt miiklu meiri réttimli heldur en veitt eru þessum tveimur stjórn- um. Sagt er að írum litist illa á frumvarp þetta. Sir Ackland Geddes hefir verið skipaður sendihierra Breta 4 Wash- ington. Hann hefir áður gegnt ráðherra embætti í samsteypu- stjórninni á Englandi undir for- ystu Lloyd George. Þjóðrœknisfélags- þingið. Hið fyrsta ársþing pjóðræknis- félags íslendinga i Vesturheimi var sett samkvæmt fundarboði í íslenzku blöðunum, miðvikudag- iiin 25. febrúar sJl., klukkan 2 e. h. Var fyrst sunginn sálmur og þar næst flutt bæn af Kjartani prófasti Helgasyni. sendimanni Austur-íslendinga. Lýsti forset- inn, séra Rögnvaldur Pétursson, þá þingið sett og skýrði ítarlega frá stofnun félagsins og starfsemi þess á hinu liðna ári. Eftir að dagskrá hafði samin verið og sam- þykt, voru nefndir settar 4 málin og fundi því næst frestað. Um kvöldið kl. 8 flutti séra Jónas A. Sigurðsson fyrirlestur áhrifamikinn og vel fluttan um ís- lenzkt þjóðerni. Daginn eftir komu þingmenn saman á venjulegum tíma og ræddu mál; lögðu sumar nefndir þá fram álit sín. — Var þá og Tengið til kosninga og urðu þess- ir fyrir valinu: Forseti: séra Rögnv. Pétursson. Varafors.: J. J. Bildfell. Rit.: Sig. Júl. Jóhannesson. Vararit.: Á. I. Blöndahl. Féh.: Ásm. P. Jóhanmsson. Varafðh.: sr. Alb. Kristjánsson. Fjárm.rit.: Gísli Jón|f>son. Varafj.m.r.: Stefán Einarsson. Skjalav.: Finnur Jónsson. Endurskoðendur voru kosnir: Einar P. Jónss.on og Sveinbjörn Árnason. Klukka átta um kvöldið hins sama dags hófst skemtisamkvæmi það hið mikla, er' W'mnipeg-deild pjóðræknisfélagsins, Frón, hafði stuðlað til að haldið yrði 4 sam- bandi við ársþing allsherjar fé- Iagsins. Fagnaðarmótið var afar- fjölment og mun það einróma álit meginþorra fólks þess, et viðstatt var, að veigameiri skemtisamkoma muni sjaldan hafa haldin verið á meðal Vestur-fslendinga. Séra Kjartan' Helgason flutti þar gullfallegan fyrirlestur, en söngflokkur undir stjórn prófess- or Sveinbjörnssonar söng mörg og fögur karlakórslög eftir prófess- orinn öðru bvoru, unz skemtiskrá- in var tæmd. prjú þessara laga hafa aldrei heyrst áður opinber- lega.: “ó, fögur er vor fóstur- jörð” við kvæði Jóns Thoroddsen, “Móðurmálið,” ljóð eftir Gísla Jónsson, og einsöngslag við Sum- arúísur eftir Einar P. Jónsson, sungið af prófessor Sveinbjörns- son sjálfum. f fjórsöngnum sungu: Gísli Jónsson, Alfred Albert, Th. Swin- burne og Brynjólfur Helgason.— Rausnarlegar veitingar voru fram reiddar og dans stiginn no'kkuð fran! yfir miðnætti. Á föstudagskveldið flutti séra Rögnvaldur Pétursson fyrirlest- ur mikinn og kjarnorðan, en blandaður söngflokkur undir stjórn Björgvins Guðmundssonar söng nokkur lög og var að því hin bezta skemtun. Séra Kjartan Helgason var á þeim fundi kjörinn lífstíðar heið- ursfélagi pjóðræknisfélagsins. Nánari fregnir af ársþingi pjóðræknisfélagsins verða sökum rúmleysis að bíða næsta blaðs. Skauta-samkepni. Skauta kappleikur, sem skera átti úr hver fljótastur væri skautamaður í Canada, fór fram í Amphitheatre skautaskálanum þriðjudags kveldið var. í þeim leik tóku 17 menn þátt, voru þrír frá New York ríkinu í Bandaríkj- unum, tveir frá Chicago, einn frá Aurora, 111., ellefu frá Winnipeg, E. McGowan frá St. Paul, sá er vann fyrstu verðlaun í samkepni > Lake Placid fyrir sköipmu, var ekki viðstaddur. En sá ter næstur honum var þar, C. Jewtraw, var viðstaddur og tók þátt 4 öllum leikjum. pessari samkepni lauk svo, að íslendingurinn Magnús Gíslason Goodman (Mike Good- man) bar af öllum keppinautum sínum og hefir með heiðri unnif, til heiðurs þess sem >því fylgjr, að vera skautakappi Canada. Magnús Gíslason Goodman, frá Winnipeg hlaut fyrstu verðlaun, með 90 stigum, C. Jewtraw frá Lafce Placid, N. Y., önnur verðl. með 80 stigum, og J. Moore frá Lake Placid, N. Y., þriðju verð- laun með 60 stigum. Ur bœnnm. Mr. Björgvin Guðmundsson, er hér hefir dvalið í vetur að full- komna sig í sönglist, hefir komið á 40 manna söngílokk og mun í nálægri framtíð lofa almenningi hí. heyra til hans, og verða lögín öll eftir hann sjálfan. Bjarni Jónsson og Óskar Guð- mundsson frá Árborg voru á ferð í bænum í vikunni, þeir sögðu að spanska veikin lægi þar allmikið í landi. Afmælishátíð. Afmælis gamalmiennaheimilisins Betel var minst með samkomu í sunnudagsskólasal Fyrstu lút- ersku kirkju á mánudagskveldið I. þ.m., og stóð kvenfélag safnað- arins fyrir samkomunni, eins og það hefir gjört á hverju ári síðan heimilið komst á fót. Virðist þetta eiga vel við, því það er alkunnugt, að þetta félag lagði fyrstu undir- stöðu þessarar þörfu og vinsælu stofnunar og hefir verið einn af hennar allra beztu vinum jafnan síðan.-—Dr. Jón Stefán&son stýrði samkomunni, og var hún skemti- leg og hin ánægjulegasta í alla staði. Með söng skemtu: Miss Hermann, Miss Thorvaldson, Mr. Emil Jónsson, Mrs. Thorsteins- son og prófessor Sveinbjörnsson með sínum karlakór, sem nú þegar er orðinn sterkur þáttur í sam- kvæmislífíi íslendinga í Winni- peg. Höfum vér, Vestur-íslend- ingar nú þegar notið mikillar á- nægju af að hafa prófessor Svein- björnsson hér hjá oss og vonum vér að mega lengi njóta ihans og hans ljúfu listar. Séra Kjartan Helgason flutti ræðu á samkomunni, sem allir virtust hlusta á með sérstakri á- nægju og eftirtekt, eins og æfin- lega, þegar hann talar Ræðu- manns hæfileikun séra Kjartans r þannig farið, að því oftar sem fólk hlustar á hann, því meir sæk- ist það eftir því. pað er óneitan- lega öllum góðum mönnum gleði- efni mikið, hve margir iþeir eru vor á meðal, sem með ánægju og eftirtekt hlusta á hið vituríega og góðgjarna mál séra Kjartans, hvort sem hann talar um eilífðar- málin, þjóðræknismálin eða líkn- armálin. Séra Kjartan byrjaði ræðu sína með því að segja, að hann hefði verið beðinn að minnast á afmæi- isbarnið, Betel, og ætti hann því líklega að tala um rílina. En nu væri hann 4 því skapi, að hann vildi heldur tala um æskuna. pað æskuþrek, sem hug hafði og þor tií að stofna gamalmenna heimil- ið, án peninga, án sjóðs, en með vinlægu trausti til guðs og dreng- lundar mannanna. En hér skal ekki út í það farið, að gefa neinn útdrátt úr hinni gullfallegu ræðu séra Kjartans. Vér gætum ekki gjört það nógu vel. Ágætar veitingar voru fram- reiddar fyrir alla, sem samkom- una sóttu. Aðgangur var ekki seldur, en samskot tekin til arðs fyrir Betel, og námu þau yfir hundrað dollars. Nokkur Sönglög, eftir próf. Svb. Sveinbjörnsson. íslenzku þjóðerni 4 Vesturheimi verður Iþví að eins haldið við, að fólkið haldi áfram að' lesa íslenzk- ar bækur og syngja alíslenzk lög. Enginn íslenzkra sönglagahöf- unda htefir unnið þjóð vorri ann- an eins heiður og prófessor Svb. Sveinbjörnsson; þess vegna ættu lögin hans að vera til á hverju íslenzku heimili. — pví miður er enn eigi hægt að fá hið ágæta þjóðlagahefti prófessorsins, en þó mun það innan skamms koma á markaðinn, með iþví að hann hef- ir sent eftir þeim hluta upplags- ins, er hann varð að skilja eftir í Edinburg. pó eru nokkur lög eftir prófessorinn til sölu hér 4 borginni, og fást hjá hr. Finni Jónssyni bóksala á Sargent Ave., og fylgja nöfn þeirra hér á eftir: Fáninn, verð 50c. Páskadagsmorgun, verð 25c. Serenade, verð 50c. Now is the Month of Maying, tvísöngur, verð 50c. The Troubadour, verð 50c. Berceuse vioilin og piano, 50c. “The Fairies”, verð 50c. Tveir ihelgisöngvar: “Nights Consolation og Song of Songs, verð 50c. Up in the North, verð 50c. Textarnir eru allir enskir nema við tvö fyrstu lögin, en andinn er hánorrænn, eins og flestöll söng- verk prófessorsins yfir höfuð. — peir, sem sönglist unna og láta sér ant um íslenzkt þjóðerni, ættu að panta lög þessi sem allra fyrst, því af sumum þeirra eru ekki til nema fá eintök. Frá Islandi. Aflabrögð eru nú í bezta lagi frá útgerðarstöðvunum hér suður með flóanmm. Haraldur Sigurðsson píanó- leikari frá Kaldaðarnesi, er nú sestur að í Khöfn.. og hefir feng- ið þar kennarastöðu við söng- listaskóíann. Duusverzlun í Kteflavík er seld Albert Petersen, sem lengi hefir verið á verzlunarskrifstofu Duus í Khöfn., en sagt, að í félagi með honum séu einhverjir Islendingar. Stgr. Matthrasson læknir kom úr ferð um Norðurlönd og pýska- land með lslandi í síðastl. viku, en ‘hélt héðan heim til Akureyrar með þýska skipinu “ Dione” og hafði hér 'því litla dvöl. Mun síðar segja eiltthvað frá ferð sinni hér i blaðinu. Frá nýári er lögboðinn taxti Ijósmæðra iþessi: Minista þókn- un fyrir að taka á móti barni 7 kr. og 2 kr. og 50 aura fyrir hvern dag sem ljósmóðÍT dvelur hjá konunni, nema þann dag, sem barnið fæðist. 1 kr. fyrir hverja vitjun í kauiijstað e/ða kauptúni þar isem ljósmóðir býr. Vifilstaðahælið. Meðlag með sjúklinguim iþar hækkar frá 1. n. m., verður á 'sambýlisstofum 3 kr. á dag í stað 2 nú, á tvímennings- stofuim 4 kr. í stað 2,50 nú, og á einbýlisstofuim 5 kr. í stað 3 nú. Settur læknir á Eskifirði, með- an Sig. H. Kvaran situr á þingi, er Jón Benidiktsson stud. med. Frk. Kristin Thoroddsén hjúkr- unarkona, dóttir Skúla sál. Thor- oddsenn alþm., er ráðin til spí- tala Va’lpariso í Ohile og mun fara þangað í vetur, segir Mrg.bl. Strand. ÚtlenduT botnvörpung- ur '&trandaði í nótt eða gæfkvöldi á Gerðahólma hér suður í flóan- um. Menn voru allir úti í skip- inu í morgun, og Geir fór þó suð- ur í björgunarerindum. Nú er tekið til við vinnu að því fyrir alvöru, að undirbúa rafljós fcanda Reykjavíkurbæ, hjá Ár- túnum. iprír verkfræðinjíar eru við það: B. Christensen, danskur maður, Guðm. Hlíðdal og Steingrímur Jónsson Ef vel gengur er sagt, að stöðin geti tekið til starfa fyrir næstu jól. Nýlega steldi botnvörpungurinn Belgaum farm sinn í Englandi fyrri nokkuð á 8. þúsund pund strl.J og er það hæðsta verð, sem fengist hefir fyrir skipsfarm af fiski héðan. Nýlega steldi Jón forseti farm sinn í Englandi fyrir 3400 pund sterl., Ethel fyrir 2720 og Vín- land fyrir 4500 pund sterl. Páll Bjarnason lögfr. frá Stein- resi er frá nýári orðinn fulltrúi bæarfógetans hér. Verzlunarráði íslands var til- kynt af stjórnarráðinu 12. þ. m., að verzlun með kol væri upp frá því gefin frjáls. Nokkrar birgð- ir mun þó landstjórnin eiga enn, en ráðgert, að það taki kaupmenn nokkurn tíma, að ná samböhdum og fá vöruna hingað. Úr Borgarfjarðarsýslu er skrifað 31. des: “Heilsa og líðan fólks hér yfiríeitt góð, Tíðin líka góð í vetur framundir jól, oftast þurviðri, en stundum nokkur frost, ekki farið að gefa fé fram til fyr en rétt fyrir jólin og kom það sér vel, því hey voru með minsta móti eftir sumarið hér frann til dala. Engjar í sumat með' allra snegsta móti. Sumir, sem hafa veitt því eftirtekt, hvað þeir eru vanir að fá af hverju engjastykki, töldu sig í sumar hafa fengið htelmingi minna af þeim en 4 meðalári. par að auki voru engjarnar hlautar svo að það gekk ákaflega seint að ná heyjuni^m. Rétt fyrir jólin gerði dálítin rosa, kom þá dálítill snjór og hver skemda-blotinn eftir ann- an sem spilti svo högum, að nú er lítið um haga fram til dala og fremst í dölum haglaust. Nú er aftur komið þurviðri og nokkuð mikið frost.— Ekki urðu menn hér sem ánægðastir með það, hvernig kosningarnar foru í sum- um kjördæmunum,, almenn Óá- nægja yfir því að Jón Magnússon skyldi tekki ná kosningu í Reykja- vík jlletmane fhohú gnyyó ápkfn vík, telja menn það tap fyrir land- ið og rninkun fyrir kjördæmið. Líka búast bændur við því, að landbúnaðurinn græði ekki á því að missa Sigurð ráðanaut frá þingstörfum.” S.-pingeyjarsýSlu 20. des. ’19. öllum hugsandi mönnum hér í sýslu blöskrar þingkosningin í R.vík að því leyti sem snertir fall Jóns Magnússonar fyrir þesisum Möíler. peir sem lesið hafa “Vísir”, en reyndar ern þeir fáir hér um slóðir, vita tekki til, að sá maður hafi lagt til þjóðmála annað en Ihelber ósannindi Hann hefir, svo sem lesa miá, helst raus- að um land,sverzlunina og farið þar með staðlausa stafi. Við það mál ætla eg ekki að eltast, en drepa á aðalherferðir hans, sem eru gegn kjötsölu útflutn- ingsnefndar og hrossasölu. Kjöt- söluvaðalinn hefir Jón porláks- son rekið ofan í Möller með þeirri rökfimi og orðfærni, ®em hann er alkunnur að. Til viðbótar orðum Jóns skal eg geta þess, að við pingeyingar tókum gilda skýrslu útflutningsnefndar um kjötsöluna. í fyrra, eftir marg- faldan lestur. Og þó að Möller kynni að veifa hala s4num að okk- ur með því urri, að okkur bresti vit til að sjá sannindi þessa máls, þá mun honum ekki endast vel að etja kappi til þrautar við alla pingeyinga í vitsmunum. Nærri má geta, hvort þingmaður okkar hefði verið látinh gagnsóknar- Iaus um þingmenns'kuna hér í sýslu, ef á honum hefðu fundist sakir í kjötsölumáliuu svo mikið sem þar var í húfi fjárhagslega fyrir þetta fjárræktarhérað. Um hestasöluna er það að segja, sem Vísir gerði sig gleiðan yfir, að þar fór blaðið með svo hártogaða vitleysu ásamt póarni Tuliniusi, að fádæmum sætti, þegar um al- gáða menn er þó að ráeða. Jafn- vel Morgunblaðið tók þar í öfug- an streng við Kobba og Túlla, og mátti þó ætla, að það blað léti þá kumpána að minsta kosti óvítta. Annars var tvöfteldni Morgun- blaðsins í kosningabardaga Rvík- ur alveg meistaraleg. pað hvatti til að kjósa ‘^nnað hvort Jón Magnússon eða Jakob Möller”— eins og þetta værn jafningar. Jú, Jón var talinn “nýtur J*ing- maður” — maðurinn sem róið hefir undir sæmd þjóðarinnar gegnum brotsjóa dýrtíðar og styrjaldar svo vel, að 100 Tulin- iusar og 1000 Möllers Kokkar mundu ekki hafa svo vel gert, þó að þeim hefði verið trúað til þess. En þá var þó ísland ekki svo heillum horfið, sem betur fór. pórarinn korost sntemma á svörtu töflu bandamanna, og þaðan munu hestarnir aldrei fá gneggj- að hann að eiMfu. — Við héma pingeyingar aumkvum -Rvik fyrir kosninguna í haust, að því leyti sem kosning Jakobs gildir, og víst þarf 1000 ára steypiregn til þess að þvo óvirðinguna af höfuðstaðn- um. pessi kosning ásamt falli Jóns Magnússonar Stetur kol- svartan blett á söguna um aldur og æfi — okkar sjálfstæðissögu. pjóðin öll á það skilið fyrir þessa dauðasynd að fara í skammar- krókinn. G. Eimskfél. hefir hækkað farm— gjöld frá Amerfku um 10%. pað er nú sagt fullráðið, að hingað komi sendikonsúll frá Sviþjóð á komandi sumri. —Lögrétta 21. jan. 1920.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.