Lögberg - 04.03.1920, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. MARZ 1920
Bls. 3
HELEN MARLOW
EFTIR
Óþektan Köfund.
Hún lyfti að eins hendi hans af öxl sinni
og sagði: “Látið yður ekki detta í hug að eg
elski yður. Eg vil ekki vita af neinni ást. Eg
vil ekki giftast yður; gerið svo vel að yfirgefa
mig. ’ ’
Án þess að hugsa um að hún gerði sjálf
það, sem hún bað hann um að gera, þaut hún
í hurtu og skiildi biðil sinn eftir, móðgaðann
yfir neitaninni, sem hann fékk.
27. Kapítuli.
“Fred, eg hefi beðið eftir þér í allan dag
að 'þú kæmir,” sagði fni Douglas í dálítið á-
sakandi róm.
“Og það máttu vita, kæra frænka Bessie,
að eg þráði eins mikið og þú, að geta komið;
en eg átti svo annríkt, og svo vil eg síður mæta
Rldolph.”
“En Fred, Iþú mátt ekki forðast mig hans
'Vgna. Viltu lofa því, að þú skulir koma á
m'orgun ? ’ ’
“Það skal eg gera, því eg hefi svo margt
að segja þér— það getur lfka verið að eg biðji
þig að gera mér greiða.”
“Beiðni þinni vil eg júta fyrir fram, kæri
Fred,” sagði vingjarnlega konan.
“Eg er ekki svo viss ujn það, þú getur
ekki getið þér til hvaða greiði það er, sem eg
aitla að biðja þig um, en, frænka, nú verður þú
að afsaka mig, eg verð að fara og skifta um
kiæðnað fyrir annan kafla. Eg kem hingað
aftur til þín ef eg get.”
Hann hraðaði sér burt, án þess að hafa
nokkurn grun um að tvö indæl blá augu höfðu
aðgætt hann með afarbeiskri afbrýði.
Þegar annar kafli var hálfnaður, kom
Budolph Armstrong inn í stúkuna til snotru
konunnar, falfegur og brosandi; en hann hlaut
að hafa drukkið nokkuð af víni.
“Eg hefi efnt. loforð mi'tt, eins og þú sérð,
Bessie föðursystir,” svo horfði hann á stúku-
raðirnar gegnum augnaglerið sitt.
“Og Fred hlaut mildð lófaklapp, undir
eins og áhorfendurnir sáu hann, og var svo
yfirburða Mnsamur,” sagði frúin með svo
miklum eldmóði, að liann brosti háðslega.
“Ó já, engin aðdáanleg rödd, en full af
sjálfeáliti, ” sagði hann.
“Ó, Rudolph hvemig getur þú fengið þig
til að tala þannig? Þú ert ósanngjam. All-
ir söngfræðingar segja, að hann sé sá langbesti
milliraddar söngvari sem nú sé kostur á að
heyra, og hann er eins fallegur eins og nokkur
getur verið. Vesalings Allaine var elskuleg,
(úns og iþú veist, og fegurð ofursta Oakland
var sjaldgæf”.
“Munið það, að nafnið Fi’ed Oakland er
r.óg til þess eingöngu, að mér verði bumbult,”
tautaði hann þóttáfullur og séri sér við til að
horfa á leiksviðið.
“Rudolph, hefir ^þú tekið eftir fallegu
stúlkunni ? Ó hvað hún er indæl. Það er
heiH straumur af hinum gullgulu lokkum!”
sagði hún, alveg fná sér numin af undrun-
“Svo þú metur dálítils fegurðar-vit mitt,
föðursystir? Eg hefi auðvitað veitt henni
<eftirtdkt. Og sjáðu hvernig hennar himnesku
Máu augu horfa á mig. Þetta er litla bend-
inga dansmevjan, sem eg mintist á við þig í
morgun.”
Henni sárnaði hiim léttúðugi ldátur hans,
<'g hún greip með fallegu hvítu höndunum
sínuin í handlegg lians.
“Rudolph, þú skalt ekki gera þessu elsku-
•lega bami neitt ilt,” sagði hún og stundi.
“Hún er ástfangin af mér, frú—, tilbúin
að fleygja sér í faðm minn, þegar eg opna
hann. ’ ’ é
“Eg trúi því ekki; hún lítur út fyrir að
vera eins hrein og saklaus eins og hvít lilja, og
hvílíkur aðdáunarverður yndislei!ku4 og feg-
urð.”
“Hún er alt það sem þú segir,” sagði
hann: hún er saklaus og elskuverð.”
“Og samt sem áður segir þú, að hun elski
þig. Ó, hvað eg vorkenni henni það. Rudolph
vú mátt ekki telja þessari vesalings stúlku trú
llnb að þér þyki vænt um hana. Hættu, áður
eR þú truflar frið hennar og hugarró. 'Lofaðu
mér því, að þú skulir ekki telja heimi trú um
neitt, sem þú efnir ekki. *
Þannig talaði föðursystir hans við hann
i bœnarróm.
“Hvernig getur þér dottið í hug, að eg
ætli að gera henni nokkuð ilt?” spurði hann
kæruleysislega. \
“Af því eg þekki þig svo vel, Rudolph
Armstrong, veit eg hvað þú sækist mest eftir, og
veit við hvað og til hvers þú eyðir tímanum.
Í»ú munt leggja allskonar snömr fyrir hana
til þess, að ná henni á þitt vald; þú munt, sam-
vizkulaus eins og þú ert, án nokkurrar umhugs-
Rnar, geríi þessa aðdáunarveitS, sakJausu
stúlku ógæfusama. Skiftu þér ekkert af
henni. Getur þú ekki séð eða ökilið. að þú
gengur gflæpsamlegþr brautir? Láttu hana
tá leyfi til að ganga sína eigin, hreinu og réttu
leið. Þú verður að lofa mér þessu Rudolp!”
Voðalega viðbjóðslegum svip brá vfir and-
lit hans, svo haturslegum og illúðlegum, um
leið og hann svaraði sigri hrósandi:
“Ef eg gæfi þér slíkt loforð, kæra föður-
systir, }tó misti eg ágætt tækifæri til að hefna
mín á Fred Oakland.”
“Hefna þín, á Fred Oakland? Eg skil
þig ekki,” sagði hún-
“Þú veist ekki hvað mikið eg hata hann.
Hann hefir alt af komið á milli mín og sérhvers
ástríks hugar, sem eg átti heimild til. Nú hefi
eg bezta tækifæri til að hefna mín á honum.
Hann elskar hina fögru Helenu, með hið ó-
• viðjafnanlega, mikla gullhár. Hann var nógu
heimskur til að biðja hennar, og vildi fá hana
til að giftast sér, en hún neitaði honum. Hún
tók mig fram yfir hann. Er það ekki ein-
kennilegt, að loksins skyldi finnast ein per-
sóna, sem mat niig meira en hann? Heldur
}>ú þá, að eg vilji sleppa jafn ágætri sigurvon
yfir keppinaut mínum? Nei, aldrei. Nú
verður þú að afsaka mig, því eg ætla að fara
yfir í leikhúsið og tala við hana, þegar þessi
kafli er búin.” |
28. Kapítuli.
Helen bom inn í samkomusaiinn eftir
dansin, lieit, með rjóðar kinnar og hrífandi
fögur. Hún sá undir eins Rudolph Arm-
strong, sem sat og beið hennar.
“Ó, Helen, hvað þér eruð fallegar,” sagði
liann hrifinn, og augu lians litu á fegurð henn- •
ar með aðdáun.
Hún tók naumast eftir smjaðri lians.
JHún leit á hann ástþnmgnúm augum og sagði
með ákafa:
“Eg sá yður í stúkunni hjá fögru konunni.
Iíver er hún?
Hann grunaði strax að hún væri afbrýðis-
söm, og ásetti sér að blása í eldinn.
“Hún er frú Douglas, mjög rík, ung ekkja
í New York, sem nýtur hinnar mostu virðingar
meðal helsta fólksins, sökum auðæfa sinna og
fegurðar. Helmingurinn af ógiftum mönnum
bæjarins vilja giftast henpi,” svaraði hann.
“Hún lítur út eins g drottning,” tautaði
Hölen öfundsjúk-
“Já, hún er yfirburða rík og gáfuð,”
sagði hann og bætti svo við:
“En við skulum tala um okkur sjálf, kæra
Helen. Ungfrú Graydon hefir boðið mér til
kvöldverðar í herbergjum sínum, þegar leik-
urinn er búinn. Hún sagði mér, að þér yrðuð
þar. Er það satt?”
“Já, hún hefir beðið mig að koma, en eg
hefi ekki lofað að koma.— Eg get ekki farið
einsömul, og hún bauð ekki Nathaliu vinkonu
minni. ”
“Það gerir engan mismun. Þér akið með
mér í mínum vagni, og eg skal flytja yður heim
til yðar aftur, þegar kvöldverðinum er lokið.
Ó, Helen, veitið mér þessa litlu ánægju, ,eg bið'
yður um það. Hvers vegna eruð þér svo kald-
ar og feimnar við mig, þegar þér vitið hve heitt
eg tilbið yður? Það væri mjög ókurteist að
afþakka heimboð ungfrú Gradyon, og eg er
sannfærður um, að yður muni líka ágætlega
að vera gestur hennar í kvöld. ”
“Ef hún að eins- hefði boðið Nathaliu
líka,” sagði Helen lágt og með blóðrjóðar
kinnar, því hann starði altaf framan í hana.
“En 'þér getið ekki hugsað yður, að hafa
Nathaliu alt af með vður, Helen litla. Þér
verðið að yfirgefa liana, þegar þér farið að
búa með mér, elskan. Ó, Helen, þér vitið hve
þolinmóður eg hefi verið gagnvart dutlungum
yðar, slæma litla daðurdrós. Þér hafið ald-
rei veitt mér neina hylli, sem eg hefi beðið
yður um. Jafnvel frú Douglas, hin ríka
fagra kona, mundi ekki vera eins drambsöm
og köld. Og hvað er rangt við þetta? Ekk-
ert.. Þegar ungfrú Graydon langar til áð
sýna yður dálítil > vináttumerki, þar eð hana
grunar hvemig ásigkomulagið er, og veit að
þér verðið mín einhvern daginn. Hún ekur
með okkur í vagninum mínum, og það er að
oins frá lienni og heim til yðar, sem þér verðið
einar með mér. Verðskulda eg ekki að þér
sýnið mér ofurlítið traust?”
“Eg — eg ætla að fara,” sagði hún lágt;
hún gat. ekki veitt ásökunum lians mótstöðu
og sá ekkert rangt við það, að verða við beiðni
hans á þann hátt, sem hann liafði hugsað sér
að koma öllu fyrir. En hefði hún skyndilega
. litið upp og séð hina illu eldingu í augúm hans,
/ þá hefði hún gert hana magnþrotá af hræðsu.
Jafn ung, eðlileg og saklaus og hún var,
gat henni ómögulega komið til hugar, að hann
væri að leggja afarvoðalega gildru fyrir
hana.
Hann þakkaði henni hlýlega fyrir sam-
þykki hgnnafr, og bað hána að láta Fred Oak-
Lmd ekkert vita um þenna kvöldverð hiá nng-
frú Graydon.
“Ungfrú Graydon er hrædd um, að hann
áiíti það móðgun gegn sér, að vera ekki boð-
in,” sagði hann. v
“Nei, eg skal auðvitað ökki minnast á það
við hann, við tölum annars nú orðið næstum
aldrei eitt orð saman,” sagði Helen móðguð;
hún fann enn þá til sárrar öfundar yfir því,
að hann hafði kyst fallegu konuna í leikhúss
stúkunni.
Á meðan þessu fór fram hafði Fred Oak-
land farið aftur inn í stúkuna, og talaði nú
mjög alvarlega við frú Douglas, sem svar til
nokkurs , er hún hafði sagt honum um Rudolph
Armstrong. Hann hafði krafist einhvers af
hpnni, og hún hafði samþýkt það, raunar eftir
talsverða íhugun.
“Nú verð eg að fara. Þú bíður mín þeg-
ar leikurinn er búinn, frænka. Það verður
að eins stutt stund, því eg býst við að ungfrú
Graydon og eg, verðum aftur kölluð fram á
leiksviðið. Eg kem til þín undir eins og eg
get.”
En hvað hann var óþohnmóður alla næstu
síundina. y
“Nathaliá; Nathalia!” hrópaði hanú á-
kafur á eftir henni, um leið og hún var að yfir-
gefa lei'khúsið ásamt félögum sínum.
“Hvar er Helen? Það er kona hérna,
sem yill tala við liana undir eins.”
“Vitið þér ekki,” svaraði Nghalia, “að
ungfrú Graydon hefir boðið Helenu og hr.
Armstrong til kvöldverðar í sínum eigin her-
v ' I
bergjum, og þau þrjú óku burt rétt núna í hin-
um iskrautlega. vagni Armstrongs.”
Hann varð náfölur í framan, snéri sér við
og hraðaði sér til frú Dougl'as aftur.
29. Kapítuli.
Undir eins og Fred Oakland sá frú Dou-
glas í stúkunni sinni, kom honum til hugar, að
hann yrði að heimsækja hana daginn eftir, og
reyna að vekja hjá henni samhygð til Helenar.
Hve yndislegt mundi það e'kki verða, fyr-
ir þessa vesalings vinalamsu stúlku, svo ósegj-
anlega fagra, að fá þessa góðu, eðallyndu konu
tii að vera vinu sína. Og þó að Rudolph
Artnstrong brigðist hinum metnaðargjörnu
vonum hennar, myndi lnín þá ekki standa ein
og yfirgefin í heiminum-
Þessi hugsun varð rótgróin hjá honum. og
liann þmði óþolinmóður komu morgundagsins.
VEn þegar hann í annað sinn kom aftur til
frú ’Douglas í stúkunni liennar, vissi liann að
þetta áform sitt varð að framkvæmast strax.
Hún sagði lionum viðbjóðslega hræðileg-
ar sögur mn hina tilfinningalausu og svívirði-
legu breytni Rudolph Armstrongs, og live
shlánarleg framkoma hans væri. Hún var
mjög kvíðandi vfir því, hvernig. hinni fal'legu
ungu stúlku, sem liún var orðin svo hrifin af
og bar svo lilýjar tilfinningar fyrir, mundi
ganga.
Hann varð líka að segja henni sannleik-
ann, og hann sagði henjii hve heitt hann elsk-
aði þessa Helenu, og talaði moð svo innilegri
og sannri hlýj, og svo mikilli oðlilegri hrein-
skilni og blíðu, að það gat haft áhrif á stein.
í fyrstunni sagði frú Douglas ekkert; lnín
vissi ekki hverju hún átti að svara honum.
Ættargöfgi hennar og staða, börðust á
móti meðaumkaninni, sem hún bar í huga
sínum.
Hvernig gat hún þessi ríka og mikilsvirta
kona, niðurlægt sig til að gjörast vinkona þess-
arar stúl'ku, sem stóð eins langt fyrir neðan
hana og liin fagra Helen? Hún leit á Fred
Oakland með tár í augum.
“Eg bjóst við að þú hefðir stefnt að æðra
takmarki, kæri Fred—þú verðskuldar að fá
hina tignustu stúlku fyrir konu,” sagði hún
hvíslandi.
“Ert þú svona drambsöm, Bessie frænka?
Þá hefi eg misskilið þig. Eg—eg hafði hugs-
að mér að þú mundir verða vingjamleg og
þykja vænt um þessa saklausu, vinasnauðu
stúlku vegna — endurminninganna um hina
litlu, týndu.”
Hún stundi þungan og studdi hendinni á
hjartað.
“Ó, mín týnda, elskulega, litla stúlka,”
sagði hún og grét, en bætti svo við með blíðri
rödd.
“Fred það var rótt af þér að minna mig
á—að hún, týnda barnið mitt—getur verið fá-
tæk og vinalaus eins og þessi fallega unga
stúlka. Já, eg var hörð og drembin. Fyrir-
gefðu mér, kæri Fred, og segðu mér hvers þú
óskar. Eg vil verða við bón Iþinni sökum
míns týnda barns. ”
“Guð þlessi þig,” sagði hann með tár í auga.
“ Það er ’að eins, að þú viljir verða vina henn-
ar, annast hana og gæta liennar, svo Rudolph
Armstrong fái ekki tækifæri til að tæla hana
og svíkja. Þú verður að vera sú, sem frels-
ar hana—þú skilur?”
“Að varðveita hana gegn honum, já, eg
vil gera það, Fred; eg s'kal bjóða lienni að
\rera hjá mér. Ef honum er alvara, þá skal
hann biðja hennar hér hjá mér,” sagði hún
ákveðin; í augum hans skein ánægjan og hið
alúðlegasta þakklæti-
“ó hvað þú ert góð. Hve ósegjanlega
glaður eg er yfir því, að hún eignast jafn eð-
allvnda vinu. Þó það sé áform hans að gift-
ast benni, getur þú verið henni til mikillar að-
stoðar, þar eð hún er svo ung—sé áform hans
ni öðru tagi, þá getur þú verið henni sem frels-
andi engill.”
“Eg ætla að vera það. Já, eg vil vera
það. Eg sé nú skyldu mína svo vel og glögt.
Eg skal altaf rétta hinni fögru Helenu hjálp-
andi hendi. Kyntu inig henni í kvöld, og eg
ætla að biðja hana að koma heim með mér.
Það er eitthvað, sem segir mér, að það sem
á að gjöra, skuli strax vera gert.”
Hve innilega hann þakkaði henni og hrós-
aði; hve ákaft hann seinna reyndi að ná tali
af Helenu, þarf naumast að lýsa. En hún
forðaðist hann með kuldalegri þykkju, af því
hún hafði séð hann aftur hjá frú Douglas, og
það féll henni svo afarþungt.
Þegar hann var kallaður aftur fram á leik-
sviðið til að syngia ástarsönginn, skalf rödd
hans fremur mikið. Honum þótti vænt um
að ungfrú Graydon hraðaði sér burt og tafði
hann ekki. Eins fljótt og hann gæti, ætlaði
hann að ná í Helepu, og, þegar Nathalia var
búin að segja hohum sannleikann, flýtti hann
sér aftur að finna frú Douglas, en hann var
fölur og skalf af hræðslu yfir því sem hann
hafði heyrt.
“Hún er farin af stað með Rudolph til
að neyta kvöidverðar hjá ungfrú Graydon, og
eg er hræddur um að í sambandi við þetta
standi eitthvert glæpsamlegt áform,” sagði
hann skjálfraddaðuf af kvíða.
“Hvað eigum Við að gera? Spurði hún
áköf.
“Við verðum að elta þau og taka hana frá
þeim. Eg—eg—skal láta eins og eg sé að
heimsækja ungfrú Graydon en þú bíður úti í
Tagninum þínum; viltu ekki gera það, kæra
frænka Bessie?”
*4 Eg vil fara með þér, Fred, og eyðileggja
hin illu áform Rudolphs,” sagði hún einbeitt,
og á næsta augnabliki sáu þau hvort við ann-
ars hlið í vagninum hennar.
R. S. ROBINSON
Stofnsett 1883 KAUPIR og SEI.tTR HiifuSstóll $280,000.0«
Loðskinn, Húðir, Seneca Rætur, Ull, Feldi
OSS VAVTAR TATAREACIST mlkl8 af MUSKRAT8. WOI.VES ot MINK
meö eftlrfylífandi háa verOI i atOrum ogr sm&um kaupnm:
WINTER RATS .... $6.50 to $3.00
FALL RATS..... $4.00 to $3.1
SHOT and CUT.. $1.28 t«
IvITS........... 25 to
MINK, Prime Dark .. .$35.00 to $18.<
Eins ok allar aðrar tegamdir me* bezta vertsi.
VERMI.ISTI, SEM NÚ ER GILDANDI
Salted BEEF HIDES . 26«—2Sc I KALFSKINS 45c—85c KIPS SOc—25e
Frozen BEEF HIDES ..22c—19c | HORSE HIDES ...$10.00 to $5.00
Uxn, Stíra, og Bola hú$ir, eínnig brennmerktar húBir a$ tiitúlu lœgri
Ilúftir bor$ast hæsta maritaöverhi daginn er þær koma til vor.
SEND STRAX til 157-63 RUPKRT Avc. OB 150-6 PACIFIC Ave., WTNNIPEO
Notið tœkifœrið!
Vér viljum fá 500 íslenzka menn til þess að læra meSferð á
dráttvélum (tráctors), einnig alt sem lýtur að Welding og Batt-
ery vinnu. Eftirspurn eftir slíkum sérfræðingum er afarmikil.
Afbragðs kaup, þetta frá $100 til $300 um mánuðinn. — Mörg
hundruð Islendinga hafa lært hjá oss síðast liðin fimm ár. —
Lærið góða handiðn að vetrinum og byrjið fyrir eigin reikning.
Ókeypis atvinnu-skrifstofa vor leiðbeinir yður að loknu námi.
Vér höfum allar tegundir Automobíla og annara véla við hend-
ina, sem lærlingar fá að æfa sig á. Fónið oss eða skrifið eftir ó-
keypis kensluskrá. Kortt^og skoðið vorn nýtýzku-skóla.
HEMPHILL TRADE SCHOOLS, LIMITED,
Rétt hjá Strand leikhúsinu. Office, 626 Main St., Winnipeg
Útibú: Regina, Saskatoon, Edmonton, Calgary, Vancouver.
\T * • .. 1 • timbur, fialviður af öllum
Nyjar vorubirgðir tegundum, geirettur og al.- ;
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir f
að sýna þó ekkert sé keypt. ,
}
The Empire Sash & Door Co. !
Limited ----
HENRY AVE. EAST
WINNIPEG '
The^CampbeRStuÆ^
Nafnkunnir ljósmyndasmiðir
Scott B’ock, Main Street South
I Simi hS. 1127 gagnvart íðnaðarhöllinni
Stœrsta og elzta ljósmyndastofan í Winnipeg og
ein af þeim stærstu og b:ztu í Canada.
Areiðanleg og lipur afgreiðsla.
Verð við ailra hœfi.
»Ýrí'.S'.Ý»S'ý«Y>í»V:;.JÝ»v‘SS-Jí«SlSí'JJ?.SJÝ»v
Allar
tegnndir af
Allar
tegundir af
KOLUM
EMPIRE COAL COMPANY Ltd.
* Tals. Garry 238 og 239
Kaupið
Kolin
Undireins
pér sparið með því að kaupa undir eins.
AMERISK HARDKOL:
EGG, PEA, NUT, PEA stærðir Vandiega hreinsaðar
REGAL LINKOL
LUMP and STOVE stærðir
Ábyrgst Hrein — Sótlaus, Loga AHa Nóttina
D. D. WOOD & SONS, Ltd.
TELEPHONE: GARRY 2620
Office and Yards: Cor. Ross and Arlington Sts.
FULLFERMI AF ÁNŒGJU
RCSEDALE KOL
Óviðjafnanleg að endingu og gæðum. Spyrjið nágrann
yðar, sem hafa notað þau. Ávalt fyrir liggjandi
birðir af Harðkolum og Við
Thos. Jacksnn 8 Sons
Skrifstofa, 370 Colony St. Símar: Sher. 62--63-ti4
Forðabúr, Yard, í vesturbænum:
WALL STREET og ELLICE AVENUE
Talsími: Sher. 71.
KAIIPID BEZTA BLADID, LOGBERG.