Lögberg - 04.03.1920, Page 4

Lögberg - 04.03.1920, Page 4
Bls. 4 LÖGBERG, flMTUDAGINN 4. MARZ 1920 Verð eg að gera það? Ósköpin öll eru það, sem sagt hefir verið og ritað um viðreisn atvinnuvega landanna, sem aflaga fóru í stríðinu. Með eldlegum tungum hafa menn talað um um framleiðslu lífsnauðsynja, að þær þvrftu að vaxa svo mjög, að skörð þau, sem urðu í forðaframleiðslu heimsins yrðu ekki einasta fylt, heldur meira en fylt. Menn hafa talað um hina nýju tíma, eða breyitu tíma, sem hin komandi ár eiga að færa mannanna börnum. Þegar só'lskin velmegunarinnar breiði sig út yfir allar bygðir mannanna, þegar jöfnuð- ur, friður og eining ríki á meðal allra manna. Þetta er alt fallegt og meira, <það er aðlað- aridi fyrir alla menn að hlusta á það og hugsa um það. En það er með framfarir á 'þessum svæð- um, eins og allar aðrar framfarir, að þær eru vissum skilyrðum háðar. Lögmáli, sem er jafn- órjúfanlegt og rás tímans. Engum manni, sem þekkir til kringum- stæða þeirra, sem nú eiga sér stað í heiminum, dylst, að þörfin til vakningar í þessum efnum er brýn. En oss virðist að menn leggi oft alt. of mikla áberslu á þörfina, án þess að yfirvega nægilega skilyrðin til þess að uppfvlla hana. Hver eru þá skilyrðin til þess að fram- leiðslan geti aukist? Vilji mannanna. Ekki að eins bændanna, eða 'þeirra manna, sem framleiðslustofnunum veita forstöðu, heldur allra. En viljaleysið er nú einmitt nútímans mesta mein. Fjöldi af hinu uppvaxandi fólki voru er svo að segja ófáanlegt til þess að takast á hend- ur verk við sumar atvinnu stofnanir landsins, hvað sem í boði er. Það er upp úr því vaxið og þarf ekki skarpskygnan mann til þess að sjá livert stefnir fyrir slíkum atvinnugreinum. En samt'er það nú ekki það versta, sem að aukin framleiðsla hefir við að stríða, því að fyrir jwrirn atvinnuvegum liggur ekkert annað, ef að afstaða fólks breyti^t ekki gagnvart þeim, heldar en að lcggjast niðhr. Ilitt er verra, að oss virðist að öll vinna sé að verða nkkurs konar prísund, — sé að verða nokkuð, sem allir vildu helzt komast hjá. “Verð eg að gjöra það ?” er spuming, sem fólk spyr sjálft sig að nú á tímum. Vinnan er að verða nauðung, sem menn vilja helzt sneiða hjá, ef þeir gætu. En verk, sem með nauðung er unnið, er aldrei unnið til hálfs. En hvernig stendur á því, að þessi spurn- ing: Verð eg að gjörfa það? er nú á vörum fleiri manna og kvenna heldur en nokkum tíma áður? Til þess geta legið og iiggja að líkindum rnargar ástæður. En höfuð-ástæðan er efnaieg velmegun. Þegar að maðurinn eða konan geng- ur til verka með þeirri tilfinningu, að honum sé sama hvort að hann heldnr atvinnu sinni eða ekki, sökum þess að hann eða hún þurfi ekki að vera upp á neinn kominn, þá missir maður hina sterkustu hvöt til framsóknar við vinnuna. Frumbyggjamir, þeir sem enn eru hjá oss og þeir, sem gengnir eru til hvíldar eftir afkastamikið æfistarf, spurðu ekki þessarar spumingar. Þeir ruddu skógana, yrktu slétt- urnar, unnu á jámbrautum, og á þeim dögum reis aldrei neitt spursmál um þörfina. Oss finst því ekki án orsaka, nú, þegar }>örfin til framleiðslu á öllum svæðum í heim- inum er svo brýn, að apyrja: Er velgengnin að eyðileggja okkur? ^ Höfum vér ekki nógu skarpan skilning og nógu mikið viljaþrek til þess að svíkja ekki lit við köllun vora í lífinu, hver svo sem hún er, án þess að vera i*ekin til þess með einhverju afli, sem vér verðum að beygja oss fyrir? Eitt íslenzkt orðtæki segir: “Neyðin kenn- ir naktri konu að spinna. ” Era það virkilega svipuhögg neyðarinnar, sem ein geta dregið fram þann þrótt, sem sál vor og líkami á yfir að ráða? Erum vér ekki fær um að oss líði efnalega vel, án þess að vér missum, með auknum efnum, manngildi vort. Ef vér lítum til listamannanna, skáidanna, u)>pfm<lingau)annanna, þá sjáum vér, að þegar urn listaverk þeirra eða uppfyndingar er að ræða, sem þeir hafa haft mest fyrir, eru þau flest framleidd þegar þeir áttu ekki til næsta máls og vissu varla hvar þeir ættu höfði sírm að að halla, þegar þeim datt ekki í hug að spyrja: Verða eg að gjöra það? Til þess að geta mætt kröfunni um aukna framleiðslu og átt nokkra von um nýja og betri tíma, verða menn og konur að mæta skyldu- verkum lífs síns án þess að spyrja um það, hvort það verði að gjöra þau. Stjórn fólksins. VI. Landbúnaðar-löggjöf Norris- stjórnarinnar. Eins og öllum er kunnugt, þá er landbún- aðurinn aðal atvinna og auðsuppspretta fylkis- búa, og fyrst svo er, þá er líka í augum uppi, að mikið er undir því komið, að vel sé farið með 1 a ndbún aðarmálin. En þegar um það er að ræða, þá er það sér- staklega tvent, sem kemur til greina. Fyrst löggjöf stjórnarinnar. Annað fólkið, sem und- ir þeirri lögjöf á að búa. Það er aldrei nóg að leiða í gildi lög, hvað ágæt sem þau kunna að vera, ef að þeir, sem undir þeim lögum eiga að búa, geta ekki notið réttarbóta eða hlunninda þeirra, sem lögin veita. Þetta á sér stað í sambandi við öll lög og undir öllum kringumstæðum, en ekki sízt þar sem um framþróun iðnaðar er að ræða. Það er hægt að gefa út lög um meðferð á búpeningi, um plægingar, sáning, uppskeru, hreinsun á illgresi úr ökrum manna, o. s. frv. En slík lög kæmu að litlum notum, ef bændur kynnu ekki aðferðirnar. Það er því ljóst, að jafnhliða landbúnaðar löggjöfum þurfti og þarf að vera kensla. Þegar Norrisstjómin kom til valda, var til búnaðarskóli hér í fylkinu, sem bygður var af líoblin-stjórninni. Hann er settur hér skamt fyrir utan Win- nipegbæ og hefir sótt hann fjöldi karla og kvenna víðsvegar úr fylkinu og má nærri geta, hve óendanlega miklu góðu sú stofnun hefir komið til leiðar. En hún er ekki einhlít. Hún er góð sem aokkurs konar miðstöð , er sendi strauma út frá sér í allar áttir. Þetta hefir og verið ljóst fyrir Norris- stjórainni, því það er ekki einasta, að öll rækt hafi verið lögð við búnaðarskólann sjálfan og ekkert til sparað að gera hann sem fullkomnast- an bæði að því er snertir hin vanalegu náms- skeið, og eins þau, sem fram fara við skólann á öðrum tímum, heldur hefir liún haldið náms- skeið árlega út. um alt fylkið. Árið 1917 vora þessi námsskeið haldin að Morden, Crystal City, Virden, Carberry, Langrath, Portage la Prairie, Plumas, Grandview, Russell, Ross- bura, Glenella og Neepawa, eða á 12 stöðum. Árið 1918 vora þessi námsskeið haldin að Dauphin, Gilbert Plains, Benito, Swan River, Roblin, St. Rose, Minnedosa, Shoal Lake, Bin- scarth, Hamiota, Beausejour, Emerson, Peters- field, Oak Ijake, Elkhom, Lenore, Wellwood, Brookdale, Somerset, Killaroey, Cartwright, Gladstone, Langrath, Oakville og í 26 öðrum stöðum. I alt hefir því stjómin látið halda náms- skeið á fimtíu stöðum víðsvegar út um fylkið árið 1918, og má af því ráða, hve afar mikla á- herzlu hún hefir htgt á uppfræðslu fylkisbúa í landbúnaðar málum. Auk þess hefir stjórnin lagt mikla rækt við að mynda landbúnaðarfélög og styrkt þau drengilega, sem sjá má af því, að þegar Norris- stjórnin kom til valda, voru þau fá og fámenn, en nú eru þau sjötíu, sem eru sí-starfandi að landbúnaðarmálum; þau halda hverf út af fyrir sig sýningar á hverju ári, gefa verðlaun fyrir bezt gerðar sumar-plagingar, fyi’ir fallegasta korn standandi á ökrum, o.s.frv., er alt miðar til þess að örfa samkepni manna og glæða fram- sóknarþrá þeirra til fullkonmunar í sínum verkahring. Auk þessara landbúnaðarfélaga, sem nú hafa verið talin, hefir Norrisstjórnin lagt mikla rækt við félög meðal ungmenna. Séð höfum vér einhversstaðar gert gys að þeirri starfsemi stjómarinnar, en slíkt mun fremur af s'kiTningsskorti en illvilja, og látum vér það því óátalið. En vart trúum vér því, að hugsandi rnönn- um þyki slík starfsemi ólþörf. Því það, sem liggur til grundvallar fyrir henni, er sameigin- leg hætta, sem vofir yfir öllum þjóðum, eins og tnargoft hefir verið tekið fram bæði í ræðu og riti að undanförnu, hættan sú, að ungdómurinn yfirgefi landbúnaðinn og þyrpist í borgimar; og þegar vér hugsum um það, að “bóndi er bú- stólpi og bú er landstólpi”, þá getur manni skil- ist, að það er ekki alveg sama hvemig að fer með framtíðar bóndann og að því er áríðandi, að “kenna þeim ungaþann veg, sem hann á að ganga.” Þegar Norrisstjórnin kom til valda, voru '5? slík ungmennafélög til í fylkinu, en árið 1919 era 230 aðal-félög, með 1,200 d'eildum, starfandi í fylkinu. f félögum þessum era um 30,000 ungir menn og konur, og mun einsdæmi í Ameríku, og líklega 'þótt víðar væri leitað, að samtök á með- al uppvaxandi fólksins hafi tekist jafn vel, og má það þakka mest einlægri aðstoð Manitoba- stjórnarinnar. Um stefnu þessara ungmenna félaga, eða augnamið það, sem fyrir forgöngumönnum hreyfingar þessarar vakir, þarf ekki að segja mikið, annað en það, sem bent er til að framan. Aformið er, að snúa liuga þeirra að land- inu — að þeim atvinnuvegi, sem öll framtíðar- velmegun Manitoba-fylkis byggist á, og mun enginn telja slíkt óþarfaverk. Arið 1919 vora félögum þessum fengin í hendur þessi tólf verkefni: Að ala upp grísi, kálfa og alifugla, ra-ktun koms og garðávaxta, fatagjörð, matreiðsla, niðursuða, trésmíðar, að þekkja og eyðileggja illgresi og að semja rit- gjörðir. Deildir stofnuðu þessi unglingafélög í sam- bandi við sýningar landbúnaðarfélaganna, og vora á þeim sýnd 1,964 svín, sem unglingarnir áttu og höfðu alið upp; skýrslur félaganna sýna, að ungmennafélögin í fylkinu hefðu alið upp og átt um þrjú þúsund svín, sem voru talin $S0,000 virði, og voru sum þeirra með því bezta, sem framleitt var í fylkinu í þeirri grein. 5,500 unglingar stunduðu alifuglarækt, 606 bænda- efni ræktuðu dálitla kornakra, sem þeir sáðu í því bezta útsæði, sem fáanlegt var, og í öllum öðrum greinum, er félög þessi lögðu stund á, sýndu félagsmeðlimir geysi mikla framför. Vér höfum bent á það, sem hér að framan er sagt, til þess að sýna, hve nákvæmlega að Norrisstjórnin hefir athugað landbúnaðarmál- in og hve vandlega að hún vill byggja á svæðum þeirra sem á öðrum svæðum. ------o------ I fr 'Útdráttur úr ræðu eftir J. C. BROWN, liinn nýkosna forseta sa/m- einuðu bœndafélaganna í Manitoba. Byrðar akuryrkjustéttanna. Á umliðnum árum hefir starfsemi félags- deilda vorra því nær einvörðungp hnigið að því, að greiða ögn úr tilfinnanlegustu flækj- unum, sem að oss hafa ofnar verið. Vér höfum verið þeirrar skoðunar, og erum1 enn sannfærð- ir um réttmæti hennar, að akuryrkjustéttimar hafi orðið að sveitast undir þyngri byrðum, en aðrir flokkar þjóðfélagsins, með öðrum orðum, að byrðarnar hafi komið óverjanlega ójafnt niður. En þó svo hafi að vísu verið, þá er hitt víst, að vér höfum ógjarna kvartað, heldur borið ok- ið mikið til þegjandi. Nú er þó svo komið, að afstaða vor gagnvart þjóðfélaginu í heild sinni er að gerbreytast, og eftir því sem málunum nú horfir við, er fátt líklegra en að svo geti farið, að innan skamms muni forysta þjóðarinnar lenda í vorum höndum, ásamt ábyrgðinni, er henni auðvitað fylgir líka. — Það liggur því í augum uppi, hve afar áríðandi það er fyrir hvern einstakling innan vorra fjölmennu fé- lagsdeilda, að gera sér sem allra ljósásta grein fyrir hverjum lið þeirrar stefnuskrár, er vér nú, allir fyrir einn og einn fyrir allá, höfum bundist samtökum um að hrinda í framkvæmd. Með því eina móti getum vér með nokkram rétti aflað málum vorum fylgis á meðal almennings og vænt sigurs. “Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. ” Er ekki hugsanlegt, að ófriðurinn mikli hafi kent oss eitthvað nýtil'egt, sem koinið gæti að sönnum notum á sviði hinna ýmsu samfélags- mála? Kannske ekki beinlínis ófriðurinn sjálf- ur, þótt eitthvað megi sjálfsagt af honum læra. En af þjóða samvinnunni, sem ófriðnum var samfara, hlýtur að mega læra margt. Sam- vinna bandaþjóðanna vann stríðið.—Samvinna á vígstöðvunum á sjó og landi, samvinna í vopna-verksmiðjunum, samvinna í hjúkrunar- starfinu og samvinna í öllum atriðum heima fyrir, lét sigairinn falla oss og samherjum vor- um í skaut. — Þótt furðulegt megi kallast, eru einstaka meim'og málgögn enn að spyrja, liverjir hafi nú annars í rauninni unnið stríðið Jafnvel tímarit eins og Ladies Home Joumal hefir kom- íð fram með þannig lagaða fullyrðingu: “Bandáþjóðirnar töpuðu stríðinu í fjögur ár og tíu daga, en svo þegar Foch hershöfðingi kom til sögunnar, þá vann hann stríðið með að- stoð Ameríkumanna á 112 dögum.” Þessi stað- hæfing er í alla staði röng og því lítt sæanandi. Hver vann stríðið? Það gerðu Belgíumenn, þegar þeir hnektu framgangi Þjóðverja á hinni fyrstu atför þeirra að Paris. Það gerðu einn- ig Bretar á hinum ýmsu orustuvöllum, og þó umfram alt á hafinu. Canadamenn unnu stríðið við Ypres, St. Julien, Vimy Ridge, Paschen- daðle og Mons, en Frakkar unnu það við Ver- dun. — Að halda fram öðru eins og því, að Ame- ríkumenn hafi unnið stríðið, nær vitanlega engri átt, þótt þeir veitti samherjum að vísu ó- metanlega hjálp, bæði á meðan þjóð þeirra var hlutlaus, en cinkum þó eftir að þeir sendu mannafla til vígstöðvanna til þess að berja á Þjóðverjum. — Slík staðhæfing minnir ósjálf- rátt á söguna af bóndanum, sem horfði á kon- una sína sveitast við strokkinn í fjórar klukku- stundir og hafðist sjálfur eigi að, en þreif svo bullnna rétt þegar verkið var um það að enda, og stærði sig af því á eftir, að hafa getað náð smjörinu úr mjólkinni á tíu mínútum. Menning nútímans er margbrotin. Vér þurfum að láta oss skiljast, að menn- ing nútímans er eins og feykilega margbrotin vél, sem réttilega notuð, getur gefið þjóðlífinu margfalt betri og meiri árangur, en hið einfalda fyrirkomulag löngu liðinna alda. Enginn maður með heilbrigðri skynsemi mundi telja það svo mikinn ókost á bifreið, að hann mundi neita að nota hana, þótt gangvélin kynni að vera nokkra margbrotnari en alment gerðist, ef hún hefði að öðra leyti flesta kosti umfram aðrar vélar. Og væri þá frekar nokk- urt vit í því, að kasta frá sér nútímamenning- unni, þótt margbrotin sé og kostnaðarsöm, í staðiiln fyrir eitthvað langt um lélegra, jafn- vel þó það fyrirkomulag kynni að vera ögn óbrotnara? (Framh.) Það er þjóðarskylda allra að SPARA Komist að niðurstöðu um hvað mikið þér getið lagt til síð« á hverjum borgunardegi, og látið þá upphæð verða þá fyrsti* af kaupi yðar, sem þér leggið í sparibanka. Hvrjið reikning næsta borgunarag. The Royal Bank of Canada WINNIPEG (West End) BRANCHES ror. William & Sherbrook T. E. Thorsteinson, Manager Cnr. Sargent 4 Beverley F. Thordarion, Manager Cor. Portage 4 Sherbrook R. L. Paterton, Manager Cor. Main 4 Logan M. A. 0’Mara Manager. 5% VEXTIR OG JAFNFRAMT O ÖRUGGASTA TRYGGING Leggið sparipeninga y8ar I 5% Fyrsta Veðréttar Skuldabréf meS arS- miða — Coupon Bonds — I Manitoba Farm Loans Association. — Höf- uðstðll og vextir ábyrgst af Manitoba stjórninni. — Skuldabréf gefin flt fyrir eins til tíu ára timabil, f upphæðum sniðnum eftir kröfum kaupenda. Vextir greiddir við tok hverra sex mdnaOa. Skrifið eftir upplýsingum. Lán handa bændum Peníngar lánaðir bændum til búnaðarframfara gegn mjög lágri rentu. Upplýsingar sendar tafarlaust þeim er æskja. The Manitoba Farm Loans Association WINNIPEG, - - MANIT0BA VEIDIMENN Raw Furs til Sendið Yðar HOERNER, WILLIAMSON & CO. 241 Princess St., Winnipeg VEL BORGAD fyrir RAW FURS Sanngjörn flokkun Peningar sendir um hæl Sendið eftir brúnu merkiseðlunum ^ Vér borgum ý Express kostnað SENDID UNDIREINS! VERDID ER FYRIRTAKj Skrifið eftir Verðlista vorum Endurminningar og fréttir frá Islandi. eftir Fr. Guðmundsson. II. Fúl og hvimleið þykir mér þokan okkar fósturlands. Veistu ei maður að hún er efasemdir skaparans. Hann er þá sem þú að leita þess, hvað veðrið eigi að heita. Báða reiti ragur við rigninguna og sólskinið. St. G. Stefánsson. Eg hefi ekki orðið þess var að menn væru reiðir við skáldið fyr- ir þetta erindi, og eg held, að fyrst eg ekki gætti að því, að taka þetta óstint upp Islands vegna, áður en eg fór heim, þá geri eg það ekki heðan af. AuSvitað er erindið alt leikur, nema tvær fyrstu hendingarnar. Alveg blöskraði mér hvað þokan var þrálynd, súld og regnið, og kuldinn ríkjiandi. Enda sögðu landsmenn það, að sumarið hefði verið í lakara meðallagi. Á suður og vesturlandi var meiri hluti töðunnar ekki hirtur fyr en um höfuðdag, hún þó minna skemd en ætla mátti, vegna þess hvað tíðin var jafnframt köld. í júní- mánuði ihöfðu verið þurkar á Norðurlandi, og ihitar svo miklir á Austfjörðum, að hann sté upp í 25 gráður á Celsíus á Seyðisfirði ( nokkra daga seinast í júní, og fyrst i júlí 25 gr. á C. mun svara til 56 gráður á Fahrenheit. Um 20. Agúst var biskup landsins Dr. J. H., staddur á Barði í Fljótum, Varð eg honum seinna samferða á strandferðaþkipi, og sagði hann mér þá, að fallið hefði um 10 þuml. þykkur fenjór út á sjáfar- bakka iþar í Fljótunum. Um þær mundir snjóáði iþá einnig ofan í mið fjöll á Austurlandi, og var isá snjór ekki horfii\n, fyr en eftir fleiri daga. Eg var staddur í R.vík í haust þegar skólapiltar af Norðurlandi voru að koma í Mentaskólann, og það var um mánaðamótin sept. og okt. og frétti eg þá, að Norðlend- ingar áttu enn þá eittlhvað eftir óhirt af útheyi sínu. pannig var tíðin 'á vestur og Norðurlandi úrkomusöm og köld venjufremur, á þessu sumri eftir júnímánaðar lok. Og er það þá furða þó mér dytti í hug erindið hans Stefáns: “Fúl og hvimleið þykir mér” o. s. frv." pað er enginn vafi á iþví, að ógleymanlegir yndislegir dagar og lengri tímabil, falla árlega 1 skaut flest allra manna heima á ættjörðinni. Én svo mikill sárs- auki er því samfara að kljúfa aftur andstreymið og örðugleik- ana á öðrum tímum, að iþað veldur tortryggni til gjafmildi hinnar íslenzku náttúru. Eg vildi lítilsháttar minnast á bvernig blíðu faðmlög íslenzku ‘ náttúrunnar draga stundum dilk á eftir sér. Á veturnar koma hlákurnar eins og við munum eftir, og það sá eg einu sinni í # eínhverri tíðarskrá heima, að veturinn 1797 eða rétt fyrir aldamótin 1800, var svo góð tíð á porranum og fram eftir Góu á Norðurlandi, að menn hlóðu tún- garða og kirkjugarða úr torfi, sem menn stungu og ristu á þessum tíma vetrar, og algengt er það á Suðurlandi að svo kemur góð tíð einhverntíma á vetrinum að jörð þiðnar, og jurtir og blóm- knappar springa út. Eru þetta áhrifamiklir sælutímar fyrir menn og skepnur. Annríki er þá lítið, þegar allar skepnur ganga sjólf- ala úti, og þá láta menn auðvitað eftir sér að heimsækja nlgranna og vini, og eiga skemtin samtöl um landisins gagn og nauðsynjar. pá er og tími til a8 lesa, og auðga andann á margvíslegann hátt. En svo koma frost og hríðar, sem alla jafnast varir þá lengst fram á sumar, og á þá margur átakanlega stríðsamt og bágt. Ær bera í þröngum og dimmum húsum, og eru þá svo þurftar- -frekar, þegar lömbin hanga á þeim, að lítið hrekkur heyið, sem sparaðist í vetrar- hiákunium. pá þarf og að bera mikið vatn í lambærnar svo þær mjólki betur. Og ofaná þreytu dagsins, verður svo fjármaðurinn að vaka að mestu leyti á nóttunni, svo að eklki séu tröðkuð undir þau lömbin sem fæðast í hús- þrengslunum, og jafnframt til þess, að lambið og móðirin vill- ist ekki hvað frá öðru fyrstu mínúturnar, sem getur hæglega kostað endalau'st stríð, þegar hvorugt vill sjá annað. Og þó er einn, og máske rersti dilkur vetrarblíðunnar ótalinn enn þá, og hann er sá, að þegar grös og jurtir hafa sprungið út á vetrinum, og svo frosið aftur í hel, þá eru frækornin fallin úr sögunni, sem næstliðið eumar hafði lagt til síðu, handa vorsól- inni að endurreisa af nýjan jurta- gróður, og þá fer svo, að kom- andi sumarsól, með öllum sínum blíðu atlotum, er ráðalaus fram eftir öllu sumri að framlepða bit- haga, aukheldur engi. Væri nú ekki eðlilegt, að fólkið S'om við þetta býr og stríðir, fólk- ið sem stendur varnarlaust fyrir þessum aðköstum. Fólkið sem á framtíðar velfarnan sína á valdi þessara óútreiknanlegu árstíða.— Að það hyggi með kvíða eftir á- rangri af fyrirhöfn sinni, og van- treysti landinu? Og hlýtur það ekki að skapa sérstaklega þrótt- mikla 'hæfileika, iað verða 'altaf að beita sínu ýtrasta til að ná takmarkinu ? pegar Dr. Guðm. Finnbogason var á ferðinni hér, sagði hann í fyrirlestri, er hann hélt að Moz- art: Að Islendingar hefðu í raun- inni skáld til útflutnings. Náttúr- lega var hann að segja að gamni sínu. En eðlilegt finst mér það, að íslendingar eigi tiltölulega fleiri skáld en nokkur önnur þjóð. Auðsjáanlega er íslexizk náttúra með allan sinxi töfra- ljóma, á einstökum augnablikum, og yfirbragðsmikla hrikasvipinn á sérstökum stöðum, öllu öðru

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.