Lögberg


Lögberg - 01.04.1920, Qupperneq 2

Lögberg - 01.04.1920, Qupperneq 2
J?ts. 2 LÖGBERG FIMTUADGINN 4. APRIL 1920 STÓR AD ALS-MORÐINGINN. Eftir Axel Thorsteinssort. I. í Stóradal er steinagnótt, en starfað eigi að síður og þar er unnið fast og fljótt uns fram á kvöldið líður þeir vinna unz að sest er sól og seint í hátt er farið: Er nóttin hylur hygðarból —Svo bændum þar er varið. En örðugleikar ísalands ei ögra þessum körlum, því þar er aðalsmerki manns að mölva grjót úr fjöllum og höggva til í túnagarð, að tyrfa, ræsa, og silétta. peir télja sér það unninn arð, af ást þeir gera þetta. En sunnudögum oftast á er til kirkju riðið og varla nokkurn miissa má þar mann í kirkju liðið. Já, kirkju þarna þeyst er til — og það er gömul saga — að gera skaparanum skil um skúra sunnudaga. En skíni sól í heiði hátt og heyjið flatt á völlum er kirkju mengið furðu fátt. Peim finst það synd þar öllum, að nota ei þessa Guðs vors gjöf, sem gefst á helgum víða, því bændum finst það tímatöf og taðan má ei bíða. En vetrar daga dimmir fljótt í dalnum stórra hlíða, en þá er bara “saga sótt” og sögð á bæjum víða. Ein Iítil hrösun, atvik eitt þar oft er glæpur ta/linn og Gróu á Leiti vel er veitt þá vappar bún um dalinn. En þetta er fólksins elli í ef einhver glatar hylli, að góna á lífs hans skuggaský þó skíni sólin milli: Menn líta ei oft í eigin barm, en aðra svipum keyra og fæðist saga um hatur, harm, er hrópað: Meira, meira. II. Viltur, einn og þreyttur. Nú er nótt, nöpur hugsun hver — í myrkrið sótt, dregin upp úr miðum sjúkrar sálar, sorg, er engin listhönd málar, skín í augum hans, er villur vega vappar einn og hreldur, þreytulega. Viltur, einn og þreyttur. Ljóssins leita ljósblá augun vart í húsum sveita, að eins mildum, góðum Guði hjá, getur hvergi slíkan harm að sjá, sem í augum hans, er villur vega vappar einn og mæddur, þreytulega. Viltur, einn og þ^evttur. Næðingsnætur, Narfi, þegar enginn veit ’ann grætur, ráfar mæddur, einn, en enginn veit, upp um heiðar — út um sveit, tautar orð á stangli — villur vega vappar mæddur, þreytulega. Viltur, einn og þreyttur. Næðingsnætur. Narfi vappar einn og stundum grætur. Enginn það þó vita maður má, morðingjans <í augum tárin sjá. Fjarri bæjum, einn og viltur vega vappar Narfi löngum, þreytuloga. III. pað var einmitt slíka næðingsnótt, napur vintdur kysti fjöllin grá. Yfir Stóradalinn leið mín lá. Ljós í glugga hvergi’ eg sá. Yfir fannir hríðarskuggar skjótt skunduðu og fyltu hug minn þrá. Á förnum vegi fann eg þá fátækling með tár á brá. Fátæklinginn spurði eg úr spjörum. Spurningunum þagði karlinn við. Benti þögull yfir mjallar mið, mæddur hlýddi á stormsins nið, pó var eiirs og karls á visnum vörum virtust fæðast orð, enn fanna um svið að eins heyrði eg kaldan næturnið, Narfi hvarf, sem þyldi ’ann enga bið. IV. Eg áfram lengi gekk, um fánnir fór og fyr en varði barði kotsdyr á. En eins og mektarkonungs staður stór á stundu þeirri fanst mér hreysið smá. Eg sat í stofu lengi. Saga sönn mér sögð var þar um Narfa og karlsins ætt. Um sporið morðingjans, er fanst í fönn, þars fyr eg hafði skrítnum karli mætt Mig setti hljóðan lengi. Narfa nafn er nú í hug minn grafið fast og vel. Og nú eg birti í hljóði sögusafn, þótt sé það flest um beiskju lífs og hel. En, fyr en eg segi sögu hans, eg set hér drætti fáa úr ellisögu ’ins aldna manns, með ennið hvelfda og háa. Hann ráfaði’ æ um runnahlíð, er röðull himins brosti og eins í vetrar argri hríð, þá alt var bundið frosti. Að ráfa — það var yndið eitt og engum manni að sinna, af innri gleði ’hann átti ei neitt og aldrei reyndi’ að finna. En óravegu oft hann tróð og annara fylgd ei kaus, og börnum af honum beigur stóð, sem björn þar færi laus. í hraunsins jaðri hreysið var — sem hreiður fugls í gjótu — og sólin aldrei birtu bar 1 bústað hans og Tótu. pví aldna skari ei var rótt, er aftan seig á ölakka, því þegar skall á niðdimm nótt fór Narfi út að filakka. En mannsins sál er aldrei ein, þótt auðna heims burt flýi: Hins aldna kvendis ósk var hrein: Að eyða hverju hans skýi. pá allar stundir einhver var þar “æru hans að tosa” hún árum sínum eyddi þar og aldrei sá hann brosa. En þegar söng 1 hrauni hríð og hreysið huldi snjór, því eirðarlaus þar ár og síð inn aldni raumur fór — sem heyrði ’ann einhvem djöfla dans, þvers dauði riða um grund. En núna sögð skal saga hans og sögð á þessa lund: VI. í dalsins botni er býli smátt í björkum skrýddri hllíð og móti bláum 'himni hátt sig hefur reynihrísla fríð. Hún var af góðum manni setti lí svörð og síðan prýddi ’ún aidna jörð par bundust heitum fríður svanni og sveinn, þars svörðinn prýddi reyniviður beinn pau reistu bú. Hún réði húsum þar og Reiði aldrei gestur þeirra var. 0g árin liðu—undir viðnum væna í vöggu smárri ljósblá augu mæna. Og sumarþeyrinn lék um laufin smá og litlu augun stara, horfa á. Og pabbi og mamma brosa. Góðan Guð í geði hrærðu og þenna lífsfögnuð í hljóði lofa. Fáein falla tár. pau finna að Guð er hjá þeim, mildur, hár. VII. Og árin líða. Hinn ungi sveinn er upp að vaxa í sálu hreinn. Og móðirin elskar svo ungann sinn, að alt af við hann er hugurinn. Hún kallar hann “Ljósálf” og “Lítinn mann” og lífsgleði djúpa og hreina ’ún fann. Hvers hugsun var bæn með björtum vonum. Hún bað hverja stundu fyrir honum. (Framhald.) — Heiðurssamsœti héldu Breiðvíkingar í Nýja ís- landi þeim Magnúsi Magnússyni í jónsson. Brá þeim 'heldur veizlu. KI. lítið eftir 3 komu svo þau Magnússons hjón og í fylgd með þeirn þau Mr. og Mrs. Gunnst. og Ingibjörgu Sveinsdóttur konu hans þ. 10. marz s. 1., til minning- ar um tuttugu og fimm ára hjóna- bandsafmæli þeirra. Fór at- höfnin fram á Eyjólfsstöðum í Breiðuvík, heimili silfurbrúð- hjónanna, og hófst kl. milli 3 og 4 síðdegis. Var fjöldi fólks i heimsókninni, er var undir for- ystu Gísla kaupmanns Sigmunds- sonar. Kom það sér vel að hús þeirra Mr. og Mrs. Magnússonar j er stórt og rúmgotfc, svo hæglega var tekið á móti öllu því fríða liði er Gísli kaupmaður hafði í fylgd með sér. Laiust fyrir hádegi þenrfá sama dag hafði þeim Mr. og Mrs. Magn- ússon verið boðið til heimsóknar norður að Gásiastöðum um mílu vegar, þar sem búa ung hjón, þau Gunnsteinn Jónsson og Elin kona hans, syatir Th. Thorsteinssonar bankastjóra í Winnipeg. págu þau boðið. Sátu þau hjón þar í góðu yfirlæti fram til kl 3. Á meðan höfðu þeir Gísli kaupmaður og undirforingjar hans farið suð- ur að Eyólfsstöðum, tekið þar hús af fólki, raðað borðum og bekkjum og atólum og undirbúið alt til en ekki í brún, að korna að heimili | sínu umkringdu af sleðum er hsim | sækjendur höfðu ekið I, og til- búnum veizlusal í húsinu og um það hálft annað hundrað manns aðkomandi. Hefir sjaldan betur verið gert að koma á óvæntri heim- sókn, því slíkar heimsóknir eru ekki æfinlega óvæntar sem svo eru nefndar, en hér var það trúlega og greinilega. pau Mr. og Mrs. Magnúsison kunna manna bezt að taka á móti gestum og oft er gest- kvæmt á heimili þeirra, en það var ekki laust við að brosað væri að þeim undrunarsvip sem var á andlitum þeirra þegar þau komu heim til sín, og sáu hvað að hafði drifið á meðan þau voru í burtu. j Gagnstætt því ier venjulega gerist tóku gestir á móti húsráð- endum við dyr hússins og báðu þau velkomin. Leiddi Gísli kaup- maður þa/u Mr. og Mrs. Magnús- son síðan til sætis í öndvegi í veizlusalnum og bað gesti skipa sér undir borð alla þá er að gætu komist. Gerði hann svo grein fyrir heiimsókninni, og bað síðan séra Jóhann Bjarnason að taka við stjórn samkvæmisins um stundarsakir- Var þá næst sunginn sálmur- inn “Hve gott og fagurt og indælt er,” og séra Jóhann las blblíu- kafla og hafði bæn. Var svo sungið versið “ó, lífsins faðir láni krýn.” Að því búnu flutti séra Jóhann ræðu fyrir minni silfur- brúðhjónanna. Að henni lok- inni kvaðst hann afhenda stjórn samkvæmisins aftur í hendur Gísla kaupmanns. Stóð Gísli þá upp og flutti stutta cn skilmerkilega tölu, og afhenti silfurbrúðhjónunum gjafir dýrar og kostulegar. Voru þær fjórar að tölu: Fyrst, silfurhnífar og gaflar í tilgerðum eikarkassa, gjöf frá bömum þeirra hjóna. Ann- að stundaklukka gersemi mikil með viðeigandi áletrun, er kostaði $115. priðja, silfurbúinn göngu- stafur, áletraður, «em kostaði $ 35,00, til handa Alagnúsi. Fjórða silfunsjóður að upphæð $ 25,00, handa Mrs. Magnússon. pegar Gísli kaupmaður hafði lok ið við að afhenda gjafiraar, skip- aði hann svo fyrir, að næst skyldi veitingar fram fara. parf naum- ast að geta þess að þær voru með þeim höfðingsbrag sem algengur er í íslenzkum samsætum. Að veitingum afloknum var aft- ur byrjað á ræðuhöldum, með söng og kvæðaflutningi á milli. Fyrst sungið “Hvað er svo glatt”. Flutti síðan Hallgrímur Friðriks- son kvæði fyrir minni si'lfurbrúð- hjónanna. Talaði þá Bjarni Mar- teinsson. Er hann þaulæfður ræðumaður og talaði snjalt. Var þá annað kvæði flutt af Jóhannesi H. Húnfjörð. Næst talaði Mrs. Valgerður Sigurðsson, ekkja Stef- áns heitins kaupmanns Sigurðs- sonar á Hnausum. Er hún kona gáfuð, talsvert mentuð og prýði- lega máli farin. Tel eg hana kom- ast nær ólafíu Jóhannsdóttur í ræðuflutningslist, en nokkra aðra konu íslenzka, er eg enn hefi heyrt tala. Er hún móðursystir Ingi- bjargar konu Magnúsar. Talaði hún skemtilega og vel að vanda. pá var þriðja kvæðið flutt. Gerði pað (Mi|s. Sigríður Friðriksson, kona Hallgríms Friðrikssonar. Var kvæði það til ibarna silfur- brúðhjónanna. pá talaði næst Mrs. Helga Jónsson, kona Lýðs bðnda Jónssonar í Lundi í Breiðu- vík. Er hún systir Ingibjargar, ! greind kona og vel máli farin. | .Væst 'talaði Sigurjón pórðarson bóndi í Nýhaga í Geysisbygð. Er hann roskinn maður og fór seint að fást við ræðuflutninga á mannamótum. Má benda á hann >em gott dæmi upp á, að óþarfi sé fyrir aldraða skynuga menn, þó lítt sé þeir æfðir við ræðugerð, að isitja þegjandi á mannamótum, þegar aðrir áræðnari og fram- gjarnari menn tala eða flytja ræður. Mun það láta nærri, að sé maður nokkurn veginn viti bor- • inn, ekki ófróður og bresti ekki á- ræði að horfast í augu við hóp af fólki, þá geti sá hinn sami, með æfingu, orðið isæmilegur ræðu- maður. Get eg þess til, að marg- ur si'tji þegjandi á mannfundum, oft og tíðum, sem snjallar gæti mælt en sumir, sem sí og æ eru að tala. Áræðisleysið er víst í þessu, sem mörgu öðru sú óheilla- fylgja, er heftir för margra þeirra er áfram ættu að komast. pegar gestir höfðu lokið við ræðuhöld sín, stóð silfurbrúðgum- inn sjálfur á fætur og flutti skipulegt og gott erindi. pakkaði fyrir þá sæmd, sem þeim hjónum hefði verið sýnd með heimsókn- inni og gjöfunum og því, er sagt hefði verið í ræðum og kvæðum. Bjóst hann við, að kona sín myndi einnig taka til mális. Hún væri sér fremri, þegar til ræðuhalda kæmi. Varð þó ekki af því, að Ingibjörg talaði að því sinni. Virtist henni sem heimferðahug- ur mundi vera kominn í suma gest- ina, með því framorðið var orðið; mundi það og nægja, fyrir hönd þeirra beggja, er bóndi hennar hafði sagt. pað var hverju orði sannara. Ræða Magnúsar í alla staði fullnægjandi fyrir þau bæði og aðra, er hlut áttu að máli. peim til fróðleiks, sem fjær eru og þetta kunna að lesa, má geta þess, að Magnús Magnússon er ættaður af Vesturtandi, ólst að mestu leyti upp á Vatnseyri við Patreksfjörð. Kom vestur um haf 1888. Ingibjörg kona hans er ættuð úr Borgarfirði syðra, fædd i Síðumúla í Hvítársíðu. Foreldr- ar hennar Sveinn Árnason og por- gerður Jónsdóttir. Bjuggu þau fyrst á Síðumúla, en síðar all- lengi á Kleppi í Reykholtsdal. pau eru bæði enn á lífi og hér vestra. Nam Sveinn Iand I skóg- ’mum vestur af Breiðuvík og nefndi Aðalból. Mun hann (nú hafa selt landið og eru þau hjón á vegum barna sinna. Alsystkini Ingibjargar auk Helgu, sem áður er nefnd, eru Gróa kona Sveins Pálmasonar bónda í grend við Winnipeg Beach, og Jóhannes Sveinsson, bóndi skamt frá Am- aud hér suð-austur I fylkinu. Hálfbróðir Ingibjargar og þeirra systkina er Jón Sigurðsson, bóndi á Haukagili í Hvítársíðu, fyrrum þingrmaður Mýramanna. pau Magnús og Ingibjörg hafa eignast þrettán böra. Eru tvö af þeim gift, Jón Vídalín Magnús- son, giftur Rannveigu dóttur Al- berts bónda Sigursteinssonar á Selstöðum í Geysisbygð, og Helga porgerður Sigríður, gift porsteini I. Sigmundssyni. Eru ungu hjón- in hvortveggju búandi í grend við Eyjólfsstaði. Tvö börn hafa þau Mr. og Mrs. Magnússon mist. Hin níu, á ýmsum aldri, eru heima í föðurgarði. Ekki býst eg við að Mr. og Mns Magnússon geti með ríkisfólki talist. pau hafa samt sem áður komist prýðilega af með kostnað- arsamt húshald og stóran barna- hóp. Magnús er maður freanur heilsutæpur, en hefir í mörg ár haft umfangsmikinn fiskiútveg á Winnipegvatni og verzlað með fisk í stórum stíl. Fær hann orð fyr- ir að vera hinn áreiðanlegasti maður í öllum viðskiftum og hefir Iöngum haft sömu mennina 1 vinnu hjá sér ár eftir ár. Ingibjörg kona hans er mesta ágætiskona, kona fríð sýnum, dável greind, fremur glaðlynd og hefir mesta yndi af að vera að gleðja og hjálpa. Heimili þeirra og heim- ilislíf er hið ánægjuiegasta. Njóta Copenhagen Vér ábyrgj umst það a< vera algjörleg; hreint, og það bezta tóbak í heimí. Ljúffengt og endingar gott, af því það er búið til úr safa tniklu en mildu tóbakslaufi. MUNNTOBAK ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLFNDINGA I VESTURHEIMI P.O. Box 923, Winnipeg, Manitoba. I stjórnamefnd félagslns eru: séra Rögnvaldui- PétnrssOB, forneli, 650 Maryland str., Winnipeg; Jón J. IMldfell, vara-fonsi ti, 2106 Po. .age ave., Wpg.; Sig. Júl. Jóhannesson, skrifari, 957 Ingersoll str., Wpg.; Asg. I. Blöndahl, vara-skirifari, Wynyard, Sask.; S. D. B. Stephanson, fj&mi&la-ritari, 729 Sherbrooke str., Wpg.; Stefán EMnarsson, vara- fjft.rmfilaritari, Arborg, Man.; Ásm. P. Jóhannsson, gjaldkpri, 796 Victor str„ Wpg. ; Séra Albert Kristjánsson. vara-gjaldkerl., Ivundar, Man.; ag Slgurbjörn Sigurjónsson. skjalavörSur, 724 Beverley str„ Winnipeg. Fastafundi heflr nefndin fjóröa föstudag hvers mánaðar. 7! »*«■ A. CARRUTHERS Co. Ltd SENDIÐ I Húðir yðar,UH,Gœrur, Tólgog Senecarætur \ til næstu verzlunar vorrar. VJER greiðum hæsta markaðsverð. | VJER sendum merkispjöld og verðáætlanir þeim er æskja. | Adalskrifstofa: WINNIPEG, Manitoba ÚTIBÚ—Brandon, Man.; Moose Jaw, Sask., Saskatoon, Sask.; I Édmonton, Aita.; vancouver, B. C. | P G FÆ EKKI MEÐ NEINUM orðum lýst því, hversu mik- ið eg á Tanlac að þakka, því það hefir veitt mér fulla heilsu eftir tólf ára þjáningar,” segir Mrs. Olivine Peltier í Ver- mont. “Eg fæ aldrei nógsamelga veg- samað Tanlac, það hefir veitt mér fulikomna heilsu eftir tólf ára þjáningar,” sagði Mrs. Olivine Peltier, að No. 26 East Allen Street, Winooski, Vermont. “Eg hafði þjáðst mjög tilfinn- anlega af taugaveiklun og svefn- leysi í mörg ár og gat oft ekki sint húsmóðurskyldum mínum, og var í raun og veru búin að missa aila sanna lífsgleði. “Matarlystin var í hinni mestu óreiðu og það stóð ávalt á sama hvers eg neytti, mér varð ávalt ó- glatt á eftir. Maginn þandist út af gasi, og orsakaði það bæði hug- arvíl og hjartveiki. “Eg hrökk upp með andfælum á ■nóttunni við bvað lítið skrjáf sem um var að ræða, og eins og gefur að skilja tapaði eg þyngd og var svo að segja ekki orðin annað en skinin bein. Eg var alt af að reyna ný og ný meðöl, en alt kom fyrir ekki. “Eiginmaður minn hafði einnig verið heilsutæpur um hríð, en hon- um hafði tekist að lækna sig með Tanlac. Hann hvatti mig til að reyna það, og sannleikurinn er sá, að S’íðan eg fór að nota Tan- lac, varð eg alt önnur mann- eskja. “Nú hefi eg beztu matarlyst, sef vært og draumlaust á hverri nóttu og hefi á fáurn vikum þyngst um níu pund. Tanlac hefir reynst mér töfralyf, og það fær mér sannrar ánægju að geta Mtið almenning vita um hinn undraverða kraft þess.” Tanlac er selt í flöskum og fæst í Liggett’s Drug Store, Winnipeg, og hjá lyfsölum út um land. pað fæst einnig hjá The Vopni-Sig- urdson, Ltd., Riverton, Man. — Adv. þau hjón, sökum höfðingsskapar og góðrar þátttöku í öllu því er betur má fara, al'mennra vin- sælda. Fréttaritari Lögbergs. Ávarp til Mr. og Mrs. -M. Magnússon. (Flutt á 25 ára giftingar afmæli þeirra 10. marz 1920. Er rís frá unnum sumarsól og sunnan þeyrin, andar hljótt og dreyfir yl um dal og hól, sem draumsjón birtist (hægt og rótt, Oss náttúrunnar munarmynd, í morgunroðans gulllnri laug. frá himin tærri ljóssins ljnd að iífsine fjærsta stjónarbaug. Já, svo er brosbýrt berasku vor með blóma fjöld, og daggar- skraut, og ástarþrár, að 'auka þor , að yfirstíga hverja þraut. par til að knýtist sál við sál í sönnum kærleiks rósáhjúp, og gleði þrungið guðamál, fær geisilum laugað hugardjúp Já framtíð blikhrein brosir mót, og burtu feykist sérbver hrygð, er ungur halur, hýra snót sér hefir fest og svarið trygð, og það er gulivægt gæfu spor. sem gá'laust enginn feta m|á, og tekur óskift ástarþor svo eining Ihvergi víkj frá. Pið hafið sýnt, og sannað oss að 'Sú var ástin laus við tál, er bundust fyr, log blíðu-hnoss sem breyttist ei, þá leið var hál. Nú eftir fjórungs- aldar bið, er en sem fyrrum hlýtt og bjart. í isameining og sönnum frið, þið sigrað hafið bölið margt. Pví enginn kemst svo langa leið, a8 líti ei stundum* kulda él. Ef settist ávalt só!l í heið Ihve sviplausj myndi æfibvel pið bafið vinir, starfað stórt og stefnufestu jafnan sýnt, en aldrei bopað eða slórt né ykkar sigummrki týnt. Um fjórðung a/ldar ykkur tvö fékk auðnan vafið blómafjöld. Já, fjórar dætur, synd sjö nú svipljúft skreyta æfikvöld. í sveináhópinn samt er skarð því sjá á ba'k þið máttuð tveim er fyrir handan feigðar garð í friðarríkum dvelja heim. Hjá ykkur þeirra munarmær mynd er greypt á hugarspjöld, og vonin sú burt sorgir þvær, að sjáist aftur hinsta kvöld. Já harnalánið brúðhjón kær, er bezta sigurgjöfin lífs, og gleðiiþrungnum geislum sJær, hvert gengið spor, í þrautum kífs. Já, megið una en sem fyr í eining saman lífs um dröfn, og sólarheima blíðu byr beri vona knör í höfn, og auðnist langa æfi bið en, og vermi hjartna ból, ástin heilg, og efli frið, uns að meiði hnígur sól. Jóhannes H. Húnfjörð. Kvæði flutt.. í silfurbrúðkaupi Mr. og Mrs. M. Magnússonar, að Hnausa P. O. 10. marz 1920. Um ílandsins srveitir blómgar jafnt sem bong, sér breytir margt í tímans þunga kífi, því skærir geislar, skuggar, gleði, og sorg, það skiftist jafnan á í voru iífi. Nú hér er inni, Mítt og bjart, og blíðir geislar ljúft og fagurt skína, ihér safnast hefir saman fólkið margt, á svip þess iljómar gleðin und- ur fína. 1 dag skal rifja upp minnis- mörk ei fá úr margri tímans rún vor hug- ur greiði, þv*í þökk og iheiður hjónum nú skal tjá, sem hjúskaps luku aldarfjórð- ungs iskeiði. En hugur minn nú befir litla bið, og héðan burt sem skjótast venda náir, hann flýgur yfir fornra daga isvið, hvar fyrst eg vann á járnbraut loks hann áir. Og þar hann Magnús, Magnús kundur var þeim mæta hal eg kyntist starfs 'í önnum, ; og brautarteina -og bönd við saman þar, þá bárum þrátt með öðrum vöskum mönnum. Og fyrir vestan Atlandis ólgu- ®já, , þá að eins dvalið hafði skamm- an tíma, og eg það vissi hann eignalaus var þ»á, við óþekt kjör, og störf hann mátti gl'íma. En sál bans átti drengskap bæði og dáð, 'hinn dýra arf frá feðrum vor- um glöðum. Hann stuttu síðar staðfesti sitt ráð, og strags sér reisti bú að Ey- ólfsstöðum. Hann síðan æ með þor og mann- skaps þrótt, sitt þróað hefir anðnu dýar ■ gengi, og stöðugt gull í greipar vatns- * ins sótt, en gugnað ei þó stundum hrakn- ing fengi. Sinn happadrátt hann hlaut úr mannliífs sjó, því 'helgur Stýrði ^auðnukraftur mæri, það af sér leiddi unun sæld og fró, er Ingibjörgu h’ann veiddi sitt á færi. pó gj'áld ætt h’ið unga bjarta víf, saimt ei gekk snauð i hjúskaps- stöðu háa, hún kom xneð blessun, ýlinn ljós og líf, sem leiddi á burt, hið dimma kalda og smáa. Og yfir liðna aldairfjóirðungs tíð, húh arins helgar þeirra kynti glóðir, og hús sitt prýðir, blómleg enn og blíð, þótt barna þrettán, nú sé orðin móðir. pið ibrúðhjón kær, í dag það vei eg veit, þó velti saerinn lífs með hvíta skafla, að aílis óboðin ykkar bindið heit er annan byrjið hjúskaps leiðar kafla. Og hveraig svo sem blása náir byr, þið beint í horfið munuð kneri snúa. Með ást og trú og eining jafnt sem fyr, hér öllu þörfu, sönnu og góftu hlúa. pað allra hér mun ósk og vonin blíft, að aukin styrk, og blessun meg- ið ihljóta. Svo bygðin en um aldarfjóið- ungs tíð, hér ykkar fái starfs og gæfta að njóta. — H. V. Friðriksson. Til barna Mr. og Mrs. Magnússon. ó, elsku börn, sem ánægð lifið hér, þið eiga náið foreldra svo góða, sem ykkur bera æ á höndum s<&% og öLlum ilífsins meta framar gróða. Á ykkar hjartna aigið rita spjöld, þann ásetning með kærleiks- stöfum ljósum, að( þið skulið æfi þeirra kvöld, æ með skreyta manndygðanna- rósum. Ó, ibiðjið guð að gefa ykkur styrk, hið góða fagra, stunda vel og læía, ei þá verður æfibrautim myrk, en ætíð ljómar gleðisólin skæra. Ti'l ykkar lengri yrkja mun ei brag, því elli og heimska mér það gjöra að banna, en óska að gæfan ykkar verndi hag, svo alla hljótið vírðing góðra manua. Sigríður Eiríksson.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.